Í hafnarfirði á árum áður braggar og herminjar.Í hafnarfirði á árum áður braggar og...

21
Í Hafnarfirði á árum áður Braggar og herminjar. Efri mynd t.v. Breskt herlið stígur á land í Reykjavík 10 maí 1940. T.h. 12.000 braggar voru byggðir af Bretum og Bandaríkjamönnum á stríðsárunum og um 1000 hús úr timbri og steinsteypu fyrir eldhús og böð Neðri mynd. t.v Herbaggi byggður. T.h. Tilbúin til notkunar. Átta mánuðum eftir að herir Hitlers gerðu innrás í Pólland 1939 urðu íslendingar varir stríðsins með beinum hætt. 10 maí 1940 fylltist landið Breskum hermönnum og hófu að koma sér fyrir í einföldu húsnæði sem við þekkjum sem bragga. Hafnarfjörður fór ekki varhluta af þessari innreið hermannanna frekar en önnur bæjarfélög landsins og voru þessir braggar niðursettir hér og hvar í bænum þó höfundi því miður sé ekki kunnugt hvar né heldur hafi undir höndum haldgóðar heimildir um staðsetningu bragganna í bænum. Sem gaman væri. Það í sjálfu sér breytir ekki staðreyndinni að í bænum voru herbraggar svipaðrar gerðar og annarstaðar þekktist. Breska og bandaríska herliðið reisti alls um 12.000 bragga af öllum stærðum og gerðum í landinu auk um 1.000 smærri bygginga úr timbri og steini sem einkum þjónuðu sem eldhús og böð. Þó vissulega megi víða sjá ummerki veru Breskra og síðar Bandarískra hermanna á íslandi er flest samt horfið og mönnum hulið. Bestu vaðveitu braggaminjarnar á Íslandi eru í Hvalfirði í eigu Hvals hf sem hann lengi hefur notað fyrir starfsfólk sitt á hvalvertíðum. Til að mynda var því alltaf haldið fram að á lóðinni bak við húsið Kóngsgerði, Hellisgata 15, áður Kirkjuvegur 19, hafi verið herbraggi, eða braggar, sem hermenn bjuggu í á stríðsárunum á Íslandi þó engin ummerki væru um þá í tíð höfundar á þessum stað. Nema ef vera skildi þessi 30 fermetra steypta plata neðst á lóðinni sem þar bara var og er máski enn og menn svo sem veltu ekki mikið fyrir sér tilganginn með.

Upload: others

Post on 29-Jan-2021

8 views

Category:

Documents


0 download

TRANSCRIPT

  • Í Hafnarfirði á árum áður

    Braggar og herminjar.

    Efri mynd t.v. Breskt herlið stígur á land í Reykjavík 10 maí 1940.

    T.h. 12.000 braggar voru byggðir af Bretum og Bandaríkjamönnum á stríðsárunum og um 1000 hús úr timbri og steinsteypu fyrir eldhús og böð

    Neðri mynd. t.v Herbaggi byggður. T.h. Tilbúin til notkunar.

    Átta mánuðum eftir að herir Hitlers gerðu innrás í Pólland 1939 urðu íslendingar varir stríðsins með beinum hætt. 10 maí 1940 fylltist landið Breskum hermönnum og hófu að koma sér fyrir í einföldu húsnæði sem við þekkjum sem bragga. Hafnarfjörður fór ekki varhluta af þessari innreið hermannanna frekar en önnur bæjarfélög landsins og voru þessir braggar niðursettir hér og hvar í bænum þó höfundi því miður sé ekki kunnugt hvar né heldur hafi undir höndum haldgóðar heimildir um staðsetningu bragganna í bænum. Sem gaman væri. Það í sjálfu sér breytir ekki staðreyndinni að í bænum voru herbraggar svipaðrar gerðar og annarstaðar þekktist. Breska og bandaríska herliðið reisti alls um 12.000 bragga af öllum stærðum og gerðum í landinu auk um 1.000 smærri bygginga úr timbri og steini sem einkum þjónuðu sem eldhús og böð.

    Þó vissulega megi víða sjá ummerki veru Breskra og síðar Bandarískra hermanna á íslandi er flest samt horfið og mönnum hulið. Bestu vaðveitu braggaminjarnar á Íslandi eru í Hvalfirði í eigu Hvals hf sem hann lengi hefur notað fyrir starfsfólk sitt á hvalvertíðum.

    Til að mynda var því alltaf haldið fram að á lóðinni bak við húsið Kóngsgerði, Hellisgata 15, áður Kirkjuvegur 19, hafi verið herbraggi, eða braggar, sem hermenn bjuggu í á stríðsárunum á Íslandi þó engin ummerki væru um þá í tíð höfundar á þessum stað. Nema ef vera skildi þessi 30 fermetra steypta plata neðst á lóðinni sem þar bara var og er máski enn og menn svo sem veltu ekki mikið fyrir sér tilganginn með.

  • Á svokölluðum Einarsreit við Strandgötu voru nokkrir svona herbraggar. Einnig var við Vesturkot á Hvaleyri niðurgrafið manngengt byrgi sem hægt var að komast niður í á einum stað. Byrgið vísaði til vesturs og gátu hermennirnir sem þar voru fylgst náið með skipa- og bátaumferð og byrgið reist í þeim tilgangi. Byrgi þetta varð síðar eitt af leiksvæðum hvaleyskra krakka sem bjuggu þar á sjötta áratugnum. Og þá vitaskuld umbreyst í árvökula hermenn og herkonur sem létu ekkert markvert fara framhjá sér sem á sjónum í kring gerðist og flaut. Byrgið vísaði til vesturs og var ágætlega staðsett til að fylgjast með báta- og skipaferðum. Hvort byrgi þetta sé enn þarna veit höfundur ekki en dregur stórlega í efa að svo sé. Herbröggunum var " dritað niður " hvar sem slíku var við komið og að minnsta kosti í Reykjavík risu sérstök braggahverfi þó ekki hafi höfundur heyrt á þau minnst um Hafnarfjörð.

    Hersetan tilheyrir merkilegri sögu sem sjálfsagt er fyrir bæjarfélag eins og Hafnarfjörð að kortleggja og gera íbúum sínum aðgengilegt til að mynd á Netinu.

    2005 var ágætis sýning sett upp í Byggðasafni Hafnarfjarðar sem fékk nafnið " Jæja, þeir eru þá komnir. " (Sjá myndband) - Nafnið er komið frá Hermanni Jónassyni þáverandi forsætisráðherra sem hann lét hafa eftir sér er hann fyrst heyrði um komu Breska liðsins til landsins. Að mörgu leiti merkileg sýning. Á henni var saga þessi að nokkru rakin sem og vitaskuld staðfestir að til eru ýmsar heimildir um þetta tímabil í Hafnarfirði. Er enda ekki svo langt um liðið frá atburðinum sjálfum og enn til fólk í bænum sem mann þá og upplifði.

    Vel er þekkt atvinnan sem hernámið skapaði og að hver fékk vinnu sem eftir leitaði. Hafnarfjörður var að þessi leiti á sama stað og önnur bæjarfélög. Enda margt í einu í gangi og fólk í þann tíð að upplifa fjölmargar nýjungar í lífi sínu.

    Flóttamannavegur ofan við Hafnarfjörð er ein herframkvæmdin og kostuð af hernámsliðinu til að koma því undan innrás Þjóverja, ef af yrði, sem menn auðvitað vissu ekki hvort gerðist. Við veglagninguna vann líklega fólk frá Hafnarfirði. Flóttamannavegur er enn ekin og nú búið að leggja bundnu slitlagi og bæta hér og þar. Frá fyrstu tíð hefur vegurinn verið talsvert notaður. Flóttamannavegur er einn minnisvarði merkilegs tímabils í merkilegri sögu Hafnarfjarðar.

    Sett inn til gamans og vonandi líka fróðleiks.

  • Kolakynding.

    T.v. Í svona pokum voru kolin geymd og flutt. T.h. Austurgata í Hafnarfirði 1923.

    Reikna má með að allir sem eitthvað þekkja til Hafnarfjarðar hafi heyrt getið Gúttós Suðurgötu 7. 17 desember 1886, er hús Góðtemplara í Hafnarfirði var vígt, var haft eftir, líklega hafnfirðingi, að byggingin gæti rúmað alla hafnfirðinga í einu. Salur hússins tók 300 manns og yfirlýsing manneskjunnar ekki út í bláinn. Íbúatala hafnfirðinga árið 1886 er 400 manneskjur. Gúttó er vegleg bygging og ekkert undarlegt þó vakið hafi umtal. Ekki svo að skilja að önnur hús hafi ekki líka verið vegleg en talsvert minni og sum smá með mörgum manneskjum í. Þess skal þó getið að hús hafnfirðinga voru í engu öðruvísi húsum annarra landsmanna á þessum tíma.

    Gúttó var til að byrja með klætt viðarborðum á hliðum og asfaltsteinpappa á þaki sem síðar var skipt út fyrir bárujárnsplötur á bæði þak og hliðar. Gúttó er fyrsta hús Góðtemplara sem félagið reisti undir starfsemi sína í landinu.

    Í heimildum um húsið segir að einn ofn hafi verið til upphitunar og staðsettur í salnum. Vísað er á kolaofns og ekki annað að sjá að en að hafi verið eina upphitun þessa mikla húss.

    Jóhannesi Reykdal reisti árið 1904 rafstöð eftir að hafa virkjað lækinn í Hafnarfirði. 12 desember sama ár lagði Jóhannes við annan mann rafstreng inn í 15 hús sem eftirleiðis nutu góðs af raflýsingu frá rafstöðinni á Hörðuvöllum. (Var þessi rafstöð Reykdals kannski staðsett neðan við brúnna við Austurgötu? Minnir að hafa heyrt það, án þess að fullyrða neitt um.) Tvö þessara fimmtán húsa sem nutu rafljósanna var Gúttó og Barnaskólinn, ekki Lækjarskóli, ásamt fjórum götuljósum. Þeim fyrstu í Hafnarfirði.

    Á þessum tíma er hitun húsnæðis fengin með kolum og þurfti að tendra eld í sérstakri kolamaskínu. Einkennismerki kolatímabilsins voru allir þessir skorsteinar á þökum húsa spúandi upp kolsvörtum kolareyk. Seinna komu skorsteinarnir sér vel er sjónvarpsvæðingin hélt innreið inn í bæinn með öllum sínum sjónvarpsgreiðum sem allar þurftu trausta festingu. Þá hafði kolaupphitun sumpart vikið fyrir olíukyndingu sem höfundur veit ekki hvenær hófst en veit þó að árið 1970 eru enn allmörg hús í bænum kynnt upp með þessum kolum, ef marka má frétt sem greinir frá að eftir að " Kol og Salt " lagði upp laupanna, skyndilega að því er virðist, hafi visst ófremdarástand skapast. Þá nefnilega hættu hafnfirðingar, þeir sem enn notuðu kol, að fá þau send heim til sín og þurftu eftirleiðis sjálfir að sækja sér til Reykjavíkur. Og sumir bíllausir. Eina sem bíllaus gat gert, oft gamalt fólk, var

  • að kaupa akstur sendibíls og láta sækja fyrir sig kolin. Í fréttinni kemur fram að líklega sé hitunarkostnaður íbúðarhúsa orðin sá dýrasti sem í boði sé ef kynnt er með kolum.

    Þó ekki muni höfundur hvenær Hellisgata 15, Kóngsgerði, heimili höfundar frá 1959-1976, fékk sína olíukyndingu mann hann samt vel eftir kolakyndingunni í kjallaranum þar, fullum kolapokum, kolamokstri og hreinsun kynditækis sem fylltist sóti og þurfti að losa til að stíflast ekki. Og væntanlega muna margir hafnfirðingar eftir Inga blessuðum sótara sem öðru hvoru kleif stiga upp á þök hafnfirskra húsa og renndi kústi niður strompa og sást aldrei öðruvísi en sótsvartur frá hvirfli til ylja?

    Með olíukyndingunni á Hellisgötu 15, áður Kirkjuvegur 19, kom heitt rennandi vatn í eldhúsið sem ekki var á tíma kolanna. Bara kalt rennandi vatn.

    Lækjarskóli í Hafnarfirði.

    2 október 1977. Formaður fræðsluráðs Hafnarfjarðar afhentir Þorgeri Ibsen skóalstjóra bréf bæjarstjóra um byggingu viðbótarhúss við

    skólann.

    2 október árið 1977 varð gamli góði Lækjarskóli Hafnarfjarðar 50 ára. Þá voru liðin eitt hundrað ár frá því að föst kennsla hófst í firðinum með stofnun Flensborgarskóla sem, eins og kunnugt er, stendur á " Hamrinum. "

    2 október 1927, er elsti hluti Lækjarskóla var vígður, voru hafnfirðingar aðeins 3200 og húsið því nægjanlegt fyrir þann fjölda íbúa. Ljóst er að byggingin hefur markað viss þáttaskil því

  • með henni var skólaskyldaldurinn í Hafnarfirði lækkaður niður í sjö ár, og var fyrsta bæjarfélagið í landinu til að taka þessa afdrifaríka ákvörðun, en aðrir fylgdu síðan á eftir. Hvað skólaskyldualdurinn í bænum var áður þekkir höfundur ekki.

    Bygging Lækjarskóla var talin fullkomnasta barnaskólabygging í öllu landinu. Hafði smíði hússins þá kostað 200, 921 krónu og 49 aura og samanstóð af þrem kennslustofum og rúmgóðum göngum. Strax í upphafi var gert ráð fyrir stækkun hússins og ráðist í hana 1945 og 1946 og henni lokið haustið 1947 á 20 ára afmæli skólans. Með viðbyggingunni bættust fimm nýjar kennslustofur við. 1959 var byggt við fimmleikahús skólans. Við sjáum að Hafnfirðingar hafa á ýmsum stöðum fyrstir riðið á vaðið og ekki bara um útgerð togara heldur á ýmsum öðrum sviðum líka.

    Frá upphafi hafði Lækjarskóli einvörðungu verið barnaskóli en frá árinu 197o voru einnig 1. og 2. bekkir unglingadeildar þar, og var fyrsta unglingaprófið tekið 1971.

    Í frétt um atburð þennan í október1977 kemur fram að formaður fræðsluráðs Hafnafjarðar hafi afhent Þorgeiri Ibsen skólastjóra leyfi sem heimilaði viðbótarstækkun við skólann og að skóflustunga hafi verið tekin " Vegna brýnnar þarfar, " eins og sagt var, sem höfundur minnist ekki að hafi orðið af og veltir því fyrir sér hvort hætt hafi verið við framkvæmdina og hvar sú viðbygging þá sé? Þekkir reyndar ekki hvenær ákvörðun var tekin af bæjaryfirvöldum um byggingu nýja Lækjarskóla. En markmiðið með viðbótinni á sínum tíma var að færa 9. bekk sem á þessum tíma var í Flensborg niður í Lækjarskóla. Og fylgdi með í fréttinni " Verður Lækjarskóli þá fullkominn grunnskóli."

    Þorgeir Íbsen sem lengi var skólastjóri í þessum skóla og nemendur eiga margar góðar minningar um rakti sögu skólans á þessum merku tímamótum.

    En allt hefur sinn tíma og er gamli Lækjarskóli í dag ekki notaður sem barnaskóli heldur fræðasetur og annað skólahús, með sama nafni, risið við Hörðuvelli. Ennþá er " Sá gamli " eins útlítandi eins og við flest munum hann og rennur lækurinn fyrir framan með sínum öndum líkt áður gerðist. Líka er ánægjulegt til þess að vita að starfsemi sé í húsinu. Allavega öðru hvoru, eftir því sem höfundur best veit.

  • Sundhöll Hafnarfjarðar vígð 1943

    Hið mikla mannvirki Sundlaug Hafnarfjarðar var vígð 1943. Laugin var útilaug sem sjór var notaður í sem áður hafði verið hitaður upp í þar til gerðum upphitunarbúnaði. Athöfnin fór fram við hátíðlega athöfn og fjölmenni sem kom saman í hrauninu bak við húsið. Stundin hefur

    áreiðanlega vakið verðskuldaða athygli í þessum fyrrum stórtæka útgerðarbæ Hafnarfirði sem um margt reið á vaðið í framkvæmdum.

    Þegar maður flettir í gegnum aldirnar kemur í ljós að þá gerðist margt áhugavert. En ætli það hafi samt nokkuð verið fyrr enn í enda nítjándu- og á tuttugustu öldinni sem íslendingar fara virkilega að hugsa stórt í sumu tengdu atvinnulífi? Þetta getum við séð með innreið togaranna sem voru allstór skip miðað við hin sem fyrir voru. Áhugavert er að skoða hve hafnfirðingar riðu oft á vaðið eins og sést með útgerð fyrsta togarans Coot sem gerður var út frá Hafnarfirði. Þessi togari var 141, 45 smálestir og kom siglandi inn til Hafnarfjarðar í fyrsta skipti 6 mars 1905. Ekki var Coot lengi gerður út því óhappið sem skipið lenti í olli strandi þess og aðdragandinn sá að Coot dró annað skip frá Reykjavík áleiðis til Hafnarfjarðar er taugin milli þeirra slitnaði og flæktist í skrúfu Coot sem við það rak stjórnlaust og hafnaði upp í Keilisnesi og ónýttist. Áhafnir beggja skipanna komust af. Þetta var 1908. Útgerðin þóttist takast vel og var hvatning margra um að hefja útgerð togara.

    Fyrsti áfangi Lækjarskóla var byggður 1927 og þótti vel heppnað hús sem sumir horfðu til. Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði riðu á vaðið og ákváðu að lækka skólaskyldualdurinn niður í sjö ár. Aðrir fylgdu á eftir. Við sjáum að hafnfirðingar hugsuðu í mörgu stórt um miðbik tuttugustu aldar, að öðrum bæjarfélögum ólöstuðum og voru hvatning um margt fyrir aðra. Munum þó að hér er stórhugur svona að vakna með þjóðinni og hún opin fyrir ýmsu. Merkilegt.

    Lengi hefur heitt vatn runnið úr iðrum jarðar. Um 13 laugar er vitað að voru til og að minnsta kosti ein enn við lýði. Snorralaug í Reykholti og sú fyrsta sem getið er um.

  • Að vísu urðu hafnfirðingar ekki fyrstir til að reisa alvöru sundlaug fyrir sitt fólk. Reykvíkingar voru nokkrum árum á undan með Sundhöll Reykjavíkur. (Fyrsta steypta sundlaugin reis í Laugardal " við Reykjavík ", eins og stendur í heimildum, 1908.) Sundhöll Reykjavíkur er vígð 23 mars 1937 og kostaði 650 þúsund krónur.

    Sex árum síðar, 1943, er í Hafnarfirði vígð 25 metra útilaug sem upphitaður sjór er notaður í sem mikill og fullkominn tækjabúnaður inn í húsinu sjálfu sá um að velgja og gera laugargestum sundsprett sinn þægilegri. Sundlaug þessi var fyrsta sundlaugin sem reis í Hafnarfirði og stendur enn á sama stað, Krosseyrarmölum. Verkið gerist á miðjum stríðsárunum með alla þá óvissu í lofti sem þeim fylgdi. Byggingin, held ég, tafðist vegna stríðsins en samt haldið áfram þó hægar gengi uns verkslokin blöstu við 1943, eins og áður segir. Þetta fær sagt okkur allmikið um hug manna sem gerðu sér grein fyrir mikilvægi byggingarinnar að hún þyrfti að tilheyra bæjarfélaginu og nýtast því Undir sundkennslu, að dæmi sé tekið. Margt bendir til að menn hafnfirskir hafi horft töluvert fram á veginn með sumt og verið tilbúnir fyrir margt á sviði framkvæmda.

    1953 var sundlaug Hafnarfjarðar umbylt og stórlega endurbætt er byggt var yfir hana. Hvenær menn hættu að notast við sjó veit höfundur ekki en veit þó að í áratugi var notast við heitt vatn sem í fyrstu var, eins og sjórinn, hitað upp í tönkum og veitt þaðan út í laugina. Hvort vatnstankarnir voru kyntir upp með kolum, olíu eða rafmagni veit höfundur ekki heldur um en getur sér þess til að jafnvel öll þessi efni hafi þjónað tilgangi á undan hitaveitunni sem lögð var í húsið eftir 1970, er það ekki rétt?, og önnur hús í bænum sem leysti olíukyndinguna og olíubílanna af hólmi sem og leystu kolinn af og er saga út af fyrir sig sem gaman væri að skoða.

    Og hver mann ekki eftir skiltinu í sturtuklefa Sundhallar Hafnarfjarðar sem minnti laugargesti á að fara sparlega með heita vatnið og sápa sig með skrúfað fyrir krananna? Skemmtilegt.

  • Togarinn Maí árið 1960.

    18 maí 1960. Togarinn Maí GK 346 kemur í fyrsta sinn inn til Hafnarfjarðar. Sjá má mikinn mannfjölda taka á móti skipinu.

    Engum blöðum er um það að fletta að mikil breyting hafi átt sér stað um alla umræðu þegar menn voru betur tengdir uppruna sínum og vart til sá maður íslenskur sem ekki vissi hvaðan peningurinn kom að var beintengdur sjónum, sókn báta og togara og mikilvægi sjómannastéttarinnar í landinu. Og auðvitað líka útgerðar og útgerðarmannanna.

    Þetta má vel sjá með því að glugga í gömul blöð og lesa skrif blaðamanna sem þá voru við störf á dagblöðunum hve þeir voru vel með á nótunum og fjölluðu um þessu mál með greinilegum áhuga á verkefninu.

    Og af hverju skrifa þeir eins og þeir skrifa. Svarið er augljóst. Þeir vildu það sjálfir og þjóðinni fýsta að heyra um málið og fá fréttir af skipum, aflabrögðum, gangi veiðanna, sölum togaranna á erlendri grund á haustin, sem var svona tími siglinganna, og ýmsu því sem tengdist sjó- og sjósókn.

    Engan þarf í skjóli svona upplýsinga að undra móttökurnar sem sjá má af komu nýsköpunartogaranna og svo stóru 1000 tonna síðutogaranna Þýskbyggðu er þeir fánum prýddir sigldu til sinna heimahafna 1960.

    Sjálfur var höfundur, þá sex ára gamall, viðstaddur komu togarans Maí GK 346 ásamt foreldrum sínum og mann vel eftir því er reisulegt skipið sigldi milli gamla hafnagarðsins og þess nýja og tók stefnuna á bryggjuna sem kölluð var " Gamla bryggja " í bænum og lagðist þar. Á bryggjunni var grúi manna, kvenna og barna að vart rúmaðist þar fleira fólk. Hvort allir viðstaddir fóru í siglinguna sem boðið var upp á út á flóann veit höfundur ekki en mann vel eftir talsvert stórum hópi fólks um borð.

    Viðbrögð hafnfirðinga við komu togarans er ágætt merki til okkar um þennan áhuga bæjarbúa og hve menn almennt voru vel með á nótunum í þann tíð.

    Í dag er þetta ekki svona. Án þess að lagt sé neitt mat á það hvort sé gott eða slæmt. Aðeins bent á staðreyndina um að hugsunin sé orðin önnur.

    Skoðum tvær umfjallanir úr gömlu dagblaði tengd komu togarans Maí GK 346.

  • " Alþýðublaðið 13 maí 1960

    Maí GK gekk 16, 2 m. í reynsluferð.

    Maí, nýi togarinn Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar og jafnfram stærsti togarinn, sem byggður hefur verið fyrir íslendinga, kemur væntanlega til heimahafnar næstkomandi miðvikudag. Í gærmorgun barst Bæjarútgerðinni skeyti frá Bremerhaven, sem í segir meðal annars: " Reynsluferð lauk kl. 18 í dag (miðvikudag). Allt í óaðfinnanlegu lagi. Ganghraði í reynsluferð 16,2 mílur. "

    Kristinn Gunnarsson forstjóri er nú í Bremerhaven og mun taka formlega við Maí í dag. Togarinn leggur af stað til Hafnarfjarðar á morgun, laugardag.

    Alþýðublaðið 18 maí 1960

    Maí kemur í dag.

    Í dag kemur stærsti togari íslendinga til landsins. Það er togarinn Maí, sem smíðaður hefur verið í vestur Þýskalandi fyrir Bæjarútgerð Hafnarfjarðar.

    Togarinn Maí er 1000 lestir að stærð. Nafnið er það sama og á fyrsta togara Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar,sem hét Maí, og sem var fyrsti togarinn sem gerður var út frá Íslandi, sem ekki var í einstaklingseigu. "

    Maí mun leggjast upp að bryggju í dag klukkan 6 síðdegis. "

    Skipasmíðastöðin Bátalón

    1961. Skipasmíðastöðin Bátalón stóð við Hvaleyralón og var vinnuveitandi allmargra hafnfirðinga á meðan þar var enn starfsemi.

  • Mynd frá árinu 1961 af skipasmíðastöðinni Bátalón sem lengi var starfrækt í Hafnarfirði og fjölmargir menn störfuðu hjá, skipasmiðir, tæknimenn, verkamenn og fleiri. Bátalón var sem kunnugt er staðsett við merkilegt Lónið við Hvaleyri sem fyllist sjó á flóði en þurrkast alveg upp á fjöru. Og gerir víst ennþá.

    Áratugum saman voru bátar smíðaðir í Bátalón og voru sumir bátanna frá stöðinni þekktir um landið. Margir muna eftir 12 tonna Bátalónsbátunum sem gerðir voru út frá mörgum íslenskum höfnum og þóttu ágætis sjóbátar, muni höfundur þetta rétt.

    Er þessi mynd var tekin er líklegt að enn sé kríuvarp í Grandanum á varptíma kríanna. Í Granda þennan sést í við enda hússins sem stendur í vestur. Gatan sem liggur meðfram húsinu er að sjá mjó og mjórri en hún var í minningunni.

    Sé myndin betur skoðuð kemur hluti Herjólfsgötu í ljós handan fjarðarins og sést að þessi gata er bara nokkur hús í beinni línu fast meðfram götunni og hraunið upp af henni " hreint " af húsum, öðrum en kofabyggingum sem dritað var niður í þetta hraun hirst og her og geymdi fjölda kartöflugarða í eigu bæjarbúa. Svæðið upp af húsunum á myndinni er í dag að mestu komið undi hús sem fólk býr í og biki sem götur eru þaktar með.

    Á myndinni endar byggðin við Herjólfsgötu með byggingum fiskverkunarinnar Malirnar sem þarna er enn að fullu starfrækt. Þessi bæjarmynd hélst óbreitt má segja áratugum saman og þekkja hana allir hafnfirðingar sem komnir eru yfir miðjan aldur. Flestir af þeim muna hana alltént eins og hún blasir hér við. Sannleikurinn er að fátt breyttist í bænum okkar og má segja að hver þúfa og hver hóll hafi haldist kyrr á sínum stað. Já, mann fram af manni, liggur mér við að segja.

    1961, þegar myndin er tekin, voru íbúar Hafnarfjarðar innan við 10, 000 manneskjur og langt frá tölunni sem gildir í dag, sem er um 28,000 manns. Bærinn hefur stækkað talsvert frá árinu 1961.

    1961 voru nú ekki margar götur lagðar biki eða steinsteypu heldur voru þær að stærstum hluta þaktar möl með sínum aur og pollum sem bifreiðar skvettu úr er þar óku um þessar götur í rigningartíð og gerðu skófatnað íbúa skítuga og, stundum að minnsta kosti, úr hófi fram sem teygði sig uppeftir buxnaskálmunum Efnalaug Hafnarfjarðar máski til gleði sem við það fékk flíkinni meira til að hreinsa og örlítið meira af aur í kassann. " Safnast þegar saman kemur " - segir enda spakmælið.

    Margt hefur breyst í bænum okkar fagra sem hlær svo glaðlega í logni sumarkvöldanna. Í honum heyrist ekki lengur vélarskellir fiskibáta að koma og eða fara sem suma af þeim mátti þekkja af vélarhljóðinu einu saman. Allt svona er bara minningin ein og Bátlón hætt starfsemi og fjölda annarra burðarstoða bæjarins einnig og annarskonar atvinnustarfsemi tekin við í stækkandi bæjarfélagi.

    Gaman að sjá þessar gömlu myndir og skoða breytingarnar sem orðnar eru. Ljósmyndin segir okkur stöðuna á hverjum tíma og er oft ágætis heimild um margt sem var. Sagan er skemmtilegt umhugsunarefni. Víst er um það. Sett hér inn til gamans og vonandi líka smá fróðleiks.

  • Rafha í Hafnarfirði.

    Rafhaeldavélarnar þóttu miklir kostagripir og voru líklega til á flestum íslenskum heimilum á sinni tíð.

    Alltaf hafa verið til menn sem sjá möguleika. Fljótlega eftir virkjun Sogsins í Grímsnesi fóru menn, kannski hafnfirðingar, að hugleiða hvort ekki væri rétt að nýta orkuna sem þarna var og framleiða íslensk raftæki.

    Hér er kominn grunnur að því sem síðar varð og hafnfirðingar þekkja sem Rafha og varð að veruleika árið 1936 með stofnun hlutafélagsins Raftækjaverksmiðjan h/f í Hafnarfirði en nafnið stytt í Rafha og það notað í vörumerki. Stofnendur voru 22 talsins, auk ríkissjóðs. Um lóð var sótt og reis 702, 5 fermetra bygging á Lækjargötu 22 - 30, á bökkum Hamarskotslækjar í Hafnarfirði og mest á einni hæð. Lokið var við byggingu Rafha- hússins 1937. 20 verkamenn unnu hjá fyrirtækinu, auk nokkurra sérfróðra manna. Vélar voru keyptar í Noregi.

    Um mánaðarmótin ágúst september 1937 lauk smíði fyrstu íslensku eldavélarinnar með framleiðslunúmerið 1. Það sem eftir lifði árs 1937 voru framleiddar hjá Rafha aðeins 187 eldavélar. Menn vildu fara varlega.

    Árin á eftir voru Rafha erfið og gekk firmanu illa að útvega sér hráefni til framleiðslunnar. Með hernámi Danmerkur og Noregs í apríl 1940, var ljóst að leita þyrfti nýrra leiða til að útvega hráefni og halda starfseminni gangandi. Þá var hönnuð ný eldavél með amerískum rafbúnaði og samsetningarhlutum og svokölluðum gorma- eða spíralhellum, sem sumir muna eftir.

    Eftir stríðið vænkast aftur hagur Rafha með söluaukningu sem gerir húsnæðið fljótt of lítið. 1945 var það stækkað verulega og tækifærið notað til að endurnýja vélakost. Tíu árum eftir gangsetningu (1946) hefur Rafha framleitt 22,730 rafmagnstæki af 30 tegundum og er komið með 46 manns í vinnu.

    1952 og aftur 1957 er húnsæðið enn stækkað og fer í yfir 5000 fermetra. 1952 hóf Rafha að framleiða ryksugur og í samstarfi við Vélsmiðjuna Héðinn þvottavélina Mjöll.

    Uppúr 1960 fór að halla undan rekstrinum. Útflutningur hjá Rafha gekk ekki sem skildi

  • 1986, á 50 ára afmælinu, var tímamótum fagnað með opnun glæsilegrar verslunar í húsakynnum fyrirtækisins við Lækinn í Hafnarfirði.

    1990 var ákveðið að hætta rekstri þessarar merkilegu verksmiðju og selja reksturinn. Síðan 1996 hefur Rafha rekið 1000 fermetra verslun við Suðurlandsbraut 16 í Reykjavík. Líklegt er að Rafha hafi átt drjúgan þátt í að eldavélavæða íslensk eldhús.

    Hluti fréttar í Morgunblaðinu 17 júní 1965.

    " STJÓRN H.f. Raftækjaverksmiðjan í Hafnarfirði, RAFHA, ákvað hinn 8. mars 1964 á 75 ára afmæli Bjarna Snæbjörnssonar læknis, er verið hefur í stjórn verksmiðjunnar frá upphafi, að minnast þess með 25 þúsund kr. gjöf, er hann ráðstafaði á einhvern þann hátt, er hann kynni að óska. Nokkru síðar tilkynnti Bjarni stjórninni, að hann hefði ákveðið að stofna sjóð af gjöf þessari og skyldi hann heita Afmælisgjafasjóður Hafnfirðinga.

    Stjórn sjóðsins er þannig skipuð: Prestur þjóðkirkjunnar í Hafnarfirði; lögreglustjóri og bæjarstjóri Hafnarfjarðar séu fastir stjórnarmenn. Þeir skipta með sér verkum og kjósa síðan tvo meðstjórnendur, karl og konu, til tveggja ára í senn úr hópi þeirra Hafnfirðinga, sem fengið hafa skeyti. "

  • Mikið útsýni í Kóngsgerði

    Þessi sjón var algeng út um einn glugga Hellisgötu 15 (Heimili höfundar í 16. ár) Skorsteinn togarans Maí blasir við rauðmálaður með H á

    hliðinni.

    Mikið og gott útsýni var yfir bæinn til suðurs úr glugganum á Hellisgötunni, þar sem maður ólst upp.

    Hellisgata 15, Kóngsgerði, stendur eins og menn vita hátt og blasir meira og minna allur suðurbærinn við.

    Maí GK 346 var ein myndin sem blasti við manni er maður leit út um þennan ágæta glugga og skorsteinn skipsins með sínu " hái " þar sem það lá á sínum stað við stálþilið á meðan landað var upp úr lestum skipsins og áhöfnin kominn til síns heima í inniverunni, sem ekki var nú löng.

    Á þessum tíma var ekki mikið um að togarasjómenn tækju sér frítúr en hefur þó eitthvað færst í aukanna er myndin er tekin í kringum 1970. Halldór Halldórsson er enn með Maí og

  • maður sjálfur orðinn einn áhafnarmeðlimur þetta sumar. Hóf togaramennsku um borð í þessu merka skipi sumarið 1970 og var til hausts, er skipið fór í sinn árlega slipp. Kom aftur um borð næsta haust 1971.

    Gluggamyndin sem hér blasir við er manni afskaplega kunnugleg og blasti við öll árin á meðan við enn, fjölskylda mín, bjuggum þarna og togarinn Maí í höfn sem alltaf lá við festar á sama stað í höfninni.

    Hinum megin er smábátabryggjan og sést í Íshús Hafnarfjarðar sem á þessum tíma er í fullum rekstri og með fjölda manns í frystihúsinu og gerir út í það minnsta einn bát Arnarnes GK og líklega 150tonna bátinn sem Íshúsið átti og lengi var í rekstri hjá því og Viðar Þórðarson skipstjóri var að líkundum með á þessum tíma og fleiri ágætir skipstjórar á undan honum. Arnarnes var gott sjóskip og gekk vel. Var sagt.

    Á þessum bát fór ég einn neta róður með bróðir mínum sem var stýrimaður um borð og bauð mér með sér og hét skipstjórinn Guðmundur, muni ég rétt. Þá bara polli. Líklega árið 1965.

    Það sem sagði manni út um þennan sama glugga að jólin væru á næsta leiti var hús nokkurt á líklega Hringbraut sem um miðjan desember eigendur hengdu upp mikla jólaljósaseríu á sem myndaði "emm" og kannski fugl. Máski að það væri hugsunin. Þegar ljós þessi blöstu við út um sama glugga voru jólin að sigla inn. Engin velktist lengur í vafa. Allt saman greipt í huga minninganna sem maður á frá dvöl sinni í Kóngsgerði forðum daga sem skemmtilegt er að rifja upp.

    Góðir tímar í Hafnarfirði æsku minnar. Og er ég víst ekki einn um að segja þetta. Heyrist mér alltént. Gott mál.

  • Hljómplötusalan í Hafnarfirði.

    Hljómplata var ekki seld í Hafnarfirði sjálfum fyrr en á sjötta áratug seinustu aldar.

    Hljómplatan á Íslandi er orðin 102ára og hafa nokkrir tekið sér fyrir hendur að gefa út hljómplötur. Lengi vel voru " SG- hljómplötur "- fyrirferðarmiklar. Gaf fyrirtækið út fjölda platna bæði litlar og stórar 33þriggja snúninga plötur á starfstíma sínum. Hvort hafnfirðingar voru með hljómplötuútgáfufyrirtæki þekki ég ekki og ekki heldur heyrt um það. Mann eftir Hljóðrita - sem þá upptökustað frekar en hljómplötuútgefanda. Í Hafnarfirði var hann alllengi með aðsetur sem margir þekktir tónlistarmenn komið við í.

    Frá tíma fyrstu hljómplötunnar hefur margt gerst og vart til það heimili sem ekki státar af allskonar músíkefni sem lon og don glymur í eyrum heimilismanna.

    Í Hafnarfirði æsku minnar var öðruvísi um að litast. Plötuspilarinn fráleitt til á öllum heimilum. Þó er líklegt að þessi spilari hafi tekið svolítinn vaxtarkipp hér í tíð Elvis Presley og samtíðarmanna hans í bransanum á sjötta áratug seinustu aldar. Hafnfirðingar fóru ekki varhluta af æðinu eins og sjá mátti á Briljantín- greiddu hári sem einkenndi marga unga menn í þá daga.

    Hljómplatan tók kipp á Bítlatímabilinu með aukinni sölu plötuspilara sem á þessum árum urðu algengari á heimilum hafnfirskum.

    Í upphafi sjöunda áratugarins voru engar hljómplötuverslanir í bænum og var Fálkinn á Laugavegi í Reykjavik sú stærsta í þeim flokki og kannski sú eina. þangað sóttu þeir sem í plötuhugleiðingum voru. Fálkinn bauð allar helstu plöturnar. Í minningunni komu þær samt seint í hillur búðarinnar og voru menn í siglingum oft talsvert á undan þeim með vinsælt efni. Og auðvitað Kanaútvarpið sem margir heyrðu fyrst hina og þessa tónlist í. Til að mynda nýjasta smell Presleys og síðar Bítlanna og Rolling Stones.

  • Hvenær hljómplötusala hófst í Hafnarfirði þekki ég ekki með vissu en tel samt ekki fjarri lagi að hafi gerst um 1967- 1968, eitthvað svoleiðis. Mann eftir reiðhjólaverkstæði í skúr einum við Hellisgötu, gegnt Hellisgerði, við hlið Siggubæjar, sem ungur maður rak reiðhjólaverkstæði í og það spurðist út að þessi maður seldi líka hljómplötur. Stundum kom maður við hjá honum og skoðaði safnið. Plöturnar stóðu á hillu við innganginn og var hægt að skoða þær í hálfrökkrinu inni. Lýsing var á skornum skammti í skúrnum. Ekki var margt um titla en þó viðleitni af mannsins hálfu að færa hljómplötuna ögn nær hafnfirðingum. Vel má vera að þessi ungi maður hafi riðið á vaðið varðandi hljómplötusölu í bænum.

    Hve lengi reiðhjólaverkstæðið var þarna mann ég ekki en minnir þó að tíminn hafi verið skammur. Kannski eitt ár. Sami aðili setti eftir Hellisgötuna upp verslun á Strandgötu og seldi gott ef ekki er hljómplötur þar, svona meðfram annarri vöru. Svo fóru hafnfirskir kaupmenn að draga hljómplötuna til sín án þess að sett væri á laggirnar sérstök hljómplötuverslun. Enda eftirspurn orðin meiri eftir Bítlaplötum, Rolling Stones plötum, Kings- og Hollis plötum og plötum allra hinna "goðanna" sem þá gerðu garðinn frægan og ungmenni hafnfirsk sóttust eftir að hlusta á. Og líka gerðu. Á þessum tíma er plötuspilaraeign hafnfirðina orðin meiri. Þetta vitaskuld hrópaði hærra á hljómplötuna en samt langur vegur frá að tilheyrði hverju hafnfirsku heimili árin 1967 - 1968. Á þessum árum óð tæknin samt fram og jukust sölutölurnar árlega. Enda gróska mikil í öllu sem hét dægurmúsík í þann tíð.

    Um tíma seldi verslun " Jóns Mattíesens " á Strandgötu hljómplötur og var safnið sem þar var í boði eins og á hinum staðnum frekar rýrt í roðinu og samanstóð af aðeins fáeinum hljómplötum en samt hljómplötur sem vinsælar voru í þann tíð og menn gátu nú verslað í Hafnarfirði en þurftu ekki að flengjast í strætó yfir til Reykjavíkur og inn í Fálkann sömu erinda.

    1 september 1971 er Músík og Sport stofnað og seldi sportfatnað og hljómplötur. Þar var úr meiru að velja en gekk og gerðist hjá hinum heiðursmönnunum sem hér eru tíndir til sögunnar. Músík og Sport var lengi vel til húsa við Hverfisgötu og Smyrlahraun en fluttist svo á Reykjavíkurveg 60. Oft kom maður við í Músík og Sport á meðan það enn var á Hverfisgötu og fletti í gegnum plötusafnið og fór stundum út með kannski þrjár hljómplötur undir hendinni. Voru ekki foreldrar handboltakappans Kristjáns Arasonar sem stofnuðu þetta fyrirtæki? Minnir það. Mikið heiðursfólk.

    Hvort fleiri hafnfirskar verslanir á sjöunda áratugnum buðu viðskiptavinum hljómplötur til kaups veit ég ekki. Þó er ekki loku fyrir það skotið að Kaupfélag Hafnfirðinga við Strandgötu hafi gert það, án þess að ég minnist þess sjálfur. Sett hér inn til gamans og vonandi líka fróðleiks.

  • Hvaleyri við Hafnarfjörð

    Loftmynd af Hvaleyri og tjörninni sem til verður á flóði. Sumir telja myndina tekna af Bandaríska hernum á stríðsárunum.

    Loftmyndin sem hér birtist er af Hvaleyri við Hafnarfjörð og tekin á meðan enn var búið þar á öllum bæjum og sjást bæirnir ágætlega á myndinni. Hvenær myndin er tekin er ekki vitað.

  • Á þessum árum bjuggu nokkrir bændur á Hvaleyri með kindur og kýr, hross og geitur og mink á einum bæ. Þarna bjuggu og um þrjátíu manns.

    Fimm bæir voru á Hvaleyri: Sveinskot, Hjörtskot, Hvaleyri, Vesturkot og Halldórskot. Bóndinn á Sveinskoti var með 7 kýr, 40 – 50 kindur og vagnhest. Meira bar land Sveinskots ekki. Ábúandi Sveinskots var síðastur til að flytja þaðan. Aðrir ábúendur fóru fyrir og um 1960.

    Í að minnsta kosti einu íbúðarhúsi Hvaleyrar (Halldórskoti) var ekkert rennandi vatn og kom tankbíll úr Hafnarfirði og dældi vatni í brunn sem stóð við útihúsin sem fólkið svo sótti sér allt drykkjarvatn í og vatn til annarra nota og bar í fötu yfir hlaðið og inn í bæ.

    Kamrar voru á líklega öllum bæjum Hvaleyrar. Þó má vera að vatnssalerni hafi verið komið hin síðari ár.

    Þess má geta að í kringum 1960 er enn nokkuð um kamra í eldri hverfum Hafnarfjarðar. Svona var nú Hafnarfjarðarbær útlítandi fyrir rúmlega hálfri öld.

    Byggð á Hvaleyri leggst endanlega af á áttunda áratug tuttugustu aldar og síðustu byggingar rifnar og golfvellinum, sem þá hafði verið starfræktur í nokkur ár, breytt í það horf sem nú er.

    Á loftmyndinni má sjá Lónið og Grandann ( ljósi raninn hægra megin við Lónið) sem nokkuð kríuvarp var í. Krían hætti að verpa á Grandanum góða á sennilega sjöunda áratug tuttugustu aldar. Líkleg skíring er að byggðin hafi verið kominn of nálægt varpstað kríanna. Grandinn er þarna ennþá.

    Á Hvaleyri var um margt merkilegt samfélag. Góð vinátta myndaðist með fólkinu sem þarna bjó sem margir minnast enn í dag með hlýhug.

    Saga Hvaleyrar er gömul og teygir sig langt aftur í aldir.

    Merkilegt er til þess að hugsa að nafnið Hvaleyri hefur haldist frá öndverðu og er til komið, að sögn, vegna hvalreka sem Hrafna Flóki og hans menn gengu fram á í fjörunni. Hvaleyri er partur merkilegrar sögu Hafnarfjarðarbæjar sem vert er að gera skil.

  • Ávarp við komu togarans Maí 18. maí 1960

    Maí GK 346.

    (Alþýðublaðið 12 júní 1960.)

    Heim til Hafnarfjarðar, af hafi kominn, Skeið skartbúin. Vonarnafn ber

    og vor okkur færir, togari tignarlegur

    tákn grósku.

    Maí, mjög fagur, megir þú njóta

    heilla á hafdjúpum og happa á miðum. Gnótt veiddu gæða

    og góðfiskjar. Vertu í Hafnarfirði

    hamingjugjafi.

    Leiki um þig löngum ljúfur blærinn.

    Mót stormum stríðum stýrðu með prýði.

    Bylgjur Ránar og brigðóttur Ægir

  • veiti þér ætíð vináttu og gleði.

    Styrkar hendur stjórna fari.

    Og langt skal haldið í leit til fanga. Mannval sé

    mætra drengja innanborðs

    á öllum stundum.

    Farið heilir um fjarrar slóðir.

    Gifta fylgi þótt gangi á ýmsu.

    Komið heim Til kærra vina, efldir að orku,

    að erfiðu loknu.

    Bæjarútgerðin blómgist, stækki,

    hleypi af stokkunum hópi slíkra.

    Mannvirki margs konar, megi hún byggja, er farsæld auki

    og frambúðargengi.

    Bjart er í dag, blómin spretta. Fögnuður ríkir,

    framtíð við hyllum. Maí er kominn,

    mjög því gleðjast, Hafnfirðingar og hrósa sigri.

    (Höfundur: Hafnfirðingur)

  • Norðurstjarnan í Hafnarfirði

    Norðurstjarnan í Hafnarfirði brann skömmu áður en taka átti hana í notkun. Lokafrágangurinn tafðist af hans völdum.

    Norðurstjarnan veitti fjölda manns atvinnu og var allengi rekin í Hafnarfirði.

    Upphafið að Norðurstjörnunni í Hafnarfiðri er að verksmiðjunni er úthlutað lóð við hlið Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar alveg við sjóinn eða á hafnarbakkanum við nýju upp fyllinguna.

    1964 er Norðurstjarnan enn í byggingu.

    Í fyrstu gerðu áætlanir ráð fyrir því að starfsemi hæfist í húsinu um haustið. Hún dróst og þá gert ráð fyrir að vinnsla hæfist um mánaðarmótin nóvember desember sama ár. Mánuði áður kviknaði í húsnæðinu og dróst gangsetningin enn og nú af völdum eldsvoðans. Allar vinnsluvélar voru komnar til landsins og en ekki farið að setja þær niður er eldurinn blossaði upp. Það minnkaði skaðann.

    Árið 1967 virðist hafa komið upp rekstrarerfiðleikar hjá fyrirtækinu sem ríkið sér sig knúið til að grípa inn í og líka gerir með því að tryggja Norðurstjörnunni áframhaldandi rekstrarfé: „ Áður hefur verið skýrt frá ráðstöfunum þeim, sem eiga að tryggja, að Norðurstjarnan, hin fullkomna niðursuðuverksmiðja í Hafnarfirði, geti hafið framleiðslu á ný. „ (segir í frétt í Vísi 20 desember 1967 um málefni Norðurstjörnunnar frá þessum tíma)

    Hvort Egill Thorarensen (17 nóv.19 44 – 28 feb. 2013) matvælafræðingur, menntaður í Hamborg í Þýskalandi í matvælafræði, sé fyrsti framleiðslustjóri Norðurstjörnunnar í Hafnarfirði veit höfundur ekki en Egill gegndi þessari stöðu þarna um tíma.

    2001 er Norðurstjörninni, þá orðið frystihús, breytt í myndver og „ Mávahlátur, kvikmynd Ágústs Guðmundssonar, tekin þar upp.

    „ 1.Útboð opnuð í niðurrif á húsum á Norðurbakka

    Útboð opnuð í niðurrif á húsum á Norðurbakka 1. des. 2004 Hafnarfjarðarbær auglýsti fyrir skömmu útboð vegna niðurrifs á húsum á Norðurbakka, til að rýma fyrir væntanlegri uppbyggingu á Norðurbakka.Um var að ræða eftirtalin hús og var heimilt að bjóða í einstök hús til brottflutnings: Vesturgata 9-13, áður Bæjarútgerðin Vesturgata 15, áður Norðurstjarnan Hafnarbakki, vigtarhús og vigtarþró. „