2.tbl 2013

24
vf.is vf.is | www.ytjandi.is | sími mi 525 7 5 7700 | VIÐ ERUM DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND Víkurfréttir Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: [email protected] Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001 FIMMTUdagUrInn 17. janúar 2013 2. TölUblað 34. árgangUr 3. 3. 3. Munum að setja Ásmund í 3. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna 26. janúar 2013. www.asmundurf.is Ásmundur Friðriksson sæti Hringbraut 99 - 577 1150 Félagar í FEB fá 12% afslá af öllum vörum og góð kjör á lyfseðilsskyldum lyum Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00. VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐ Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson - fullnýta allar fiskafurðir frá fiskvinnslustöðvum í Garði Próteinverksmiðja gangsett í Garðinum E itt af þeim verkefnum sem hlutu hæsta styrkinn frá Vaxtarsamningi Suðurnesja í nýliðinni viku var prótein- framleiðsla í Garði. Verkefnið lýtur að próteinvinnslu úr sjávarfangi. Áherslan verður lögð á að nýta slóg og aðrar aukaafurðir sem ekki eru nýttar í dag. Ný verksmiðja, Prótein ehf., er staðsett í Sveitarfélaginu Garði. Eigendur hennar eru H. Pétursson ehf., Nesfiskur hf. og Verslunar- félagið Ábót ehf. Framkvæmda- stjóri fyrirtækisins er Hallgrímur Artúrsson. Iðnaðarmenn hafa verið að leggja lokahönd á uppsetningu búnaðar í verksmiðju fyrirtækisins í þess- ari viku en gert er ráð fyrir að framleiðsla heist í dag, fimmtu- dag. Það er Héðinn sem smíðar verksmiðjuna sem á að geta fram- leitt prótein og lýsi úr 10 tonnum af aukaafurðum frá fiskvinnslu- stöðvum. Í samtali við Víkurfréttir sagði Hallgrímur Artúrsson að verk- smiðjan taki við hráefni til vinnsl- unnar frá Nesfiski, H.Péturssyni og Seacrest Iceland, sem allt eru fiskvinnslur í Garði. Einnig sé hugsanlegt að taka við hráefnum frá fleirum. Verksmiðjan í Garði er smá í sniðum og verður starfrækt allan sólarhringinn, alla daga ársins. Gert er ráð fyrir að stærri fram- leiðslueining verði tekin í notkun að ári liðnu. Sú sem sett hefur verið upp í dag vinnur úr 10 tonnum á sólarhring en næsta framleiðslu- eining verður með annað hvort 25 eða 50 tonna framleiðslugetu á sólarhring. Þessi verksmiðja er sú fyrsta sinnar tegundar en fleiri slíkar eru í farvatninu. Mikil sjálfvirkni er í próteinverk- smiðjunni í Garði og því þarf aðeins 2-3 starfsmenn til að sinna verksmiðjunni með öðrum tilfall- andi störfum. Hallgrímur artúrsson er framkvæmdastjóri Próteins ehf. í garði Ú tboð sem Samband sveitarfélaga á Suður- nesjum stóð fyrir á akstri hópferðabif- reiða til og frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar og átti að opna 4. jan. sl. var kært til kærunefndar útboðsmála. Í kjölfarið var farið fram á að út- boðið verði stöðvað þar til niðurstöður kæru- nefndar liggi fyrir. Berglind Kristinsdóttir framkvæmdarstjóri SSS vildi ekki tjá sig um málið þar sem það væri á viðkvæmu stigi. Hún segir að unnið sé að greinargerð um kæruna sem kemur út þann 18. janúar nk. Óánægja hefur verið hjá rútufyrirtækjunum vegna útboðsins sem kært var af Kynnisferðum. Annað fyrirtæki sem sinnt hefur akstri til og frá Leifsstöð, Allrahanda, segir SSS vera með stríðsyfirlýsingu á ferðaþjónustu og samkeppni. Sjá nánar á bls. 14 í blaðinu í dag. Útboðið á Leifs- stöðvarakstri kært

Upload: vikurfrettir-ehf

Post on 24-Mar-2016

263 views

Category:

Documents


6 download

DESCRIPTION

02.tbl.34.árg.

TRANSCRIPT

Page 1: 2.tbl 2013

vf.isvf.is

Metan er innlendurog umhverfisvænnorkugjafi sem erhelmingi ódýrarien bensín.

Nýttu þér kostimetans meðVolkswagen.

K. Steinarsson – Njarðarbraut 13420 5000 - [email protected]

Das Auto. TM

Opið allansólarhringinn

Fitjum

NÝTTMorgunverðar-matseðill

Aðeins í boði áSubway Fitjum

14. tölublað • 32. árgangur • Fimmtudagurinn 7. apríl 2011

Mjódd - Salavegur - Hverafold - Akureyri - Höfn - Grindavík - Reykjanesbær Skráðu þig á póstlistann á www.netto.is

989kr/stk.Tilboðsverð!

339kr/stk.Tilboðsverð!

EasyÞvoTTaEfni

aloE vEra 2.7 kg

EasyMýkingarEfni

2 l

| www.flytjandi.is | símimi 525 75 7700 |

VIÐ ERUM DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND

Víkurfréttir ehf.Grundarvegur 23 - 260 Reykjanesbær

Sími 421 0000 - Póstur: [email protected]ðslan er opin virka daga kl. 09-17

Það er háspenna í körfuboltanum í Reykjanesbæ þessa dagana. Keflavík og KR eigast við í undan-úrslitum Iceland Express-deildar karla í körfuknattleik og staðan í viðureign liðanna er 2:2.

Oddaleikur verður í viðureign liðanna í KR-heimilinu í Reykjavík í kvöld. Spennan er ekki minni í úrslitaviðureign Keflavíkur og Njarðvíkur í kvennaboltanum. Þar er staðan reyndar orðin 2:0

fyrir Keflavík eftir tvo æsispennandi háspennuleiki. Keflavíkurstúlkur geta orðið Íslandsmeistarar kvenna með sigri á Njarðvíkurstúlkum í Keflavík annað kvöld, föstudagskvöld. VF-mynd: HBB

Æsispennandikörfuknattleikir

- sjá nánar á bls. 23

VíkurfréttirKrossmóa 4a, 4. hæð,

260 Reykjanesbær

Sími: 421 0000

Póstur: [email protected]

Afgreiðslan er opinvirka daga kl. 09-17

Auglýsingasíminner 421 0001

FIMMTUdagUrInn 17. janúar 2013 • 2 . TölUblað • 34. árgangUr

3.3.3.Munum að setja Ásmund í 3. sætií prófkjöri sjálfstæðismanna26. janúar 2013.

www.asmundurf.is

Ásmundur Friðriksson

sæti

Hringbraut 99 - 577 1150

Félagar í FEB fá 12% afslátt af öllum vörum og góð kjör á lyfseðilsskyldum lyfjum

Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00.

VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐV

íku

rfr

étta

my

nd

: Hil

ma

r B

ra

gi B

ár

ða

rso

n

- fullnýta allar fiskafurðir frá fiskvinnslustöðvum í Garði

Próteinverksmiðjagangsett í GarðinumEitt af þeim verkefnum sem

hlutu hæsta styrkinn frá Vaxtarsamningi Suðurnesja í nýliðinni viku var prótein-framleiðsla í Garði. Verkefnið lýtur að próteinvinnslu úr sjávarfangi. Áherslan verður lögð á að nýta slóg og aðrar aukaafurðir sem ekki eru nýttar í dag.Ný verksmiðja, Prótein ehf., er staðsett í Sveitarfélaginu Garði. Eigendur hennar eru H. Pétursson

ehf., Nesfiskur hf. og Verslunar-félagið Ábót ehf. Framkvæmda-stjóri fyrirtækisins er Hallgrímur Artúrsson.Iðnaðarmenn hafa verið að leggja lokahönd á uppsetningu búnaðar í verksmiðju fyrirtækisins í þess-ari viku en gert er ráð fyrir að framleiðsla hefjist í dag, fimmtu-dag. Það er Héðinn sem smíðar verksmiðjuna sem á að geta fram-leitt prótein og lýsi úr 10 tonnum af aukaafurðum frá fiskvinnslu-stöðvum.

Í samtali við Víkurfréttir sagði Hallgrímur Artúrsson að verk-smiðjan taki við hráefni til vinnsl-unnar frá Nesfiski, H.Péturssyni og Seacrest Iceland, sem allt eru fiskvinnslur í Garði. Einnig sé hugsanlegt að taka við hráefnum frá fleirum.Verksmiðjan í Garði er smá í sniðum og verður starfrækt allan sólarhringinn, alla daga ársins. Gert er ráð fyrir að stærri fram-leiðslueining verði tekin í notkun að ári liðnu. Sú sem sett hefur verið

upp í dag vinnur úr 10 tonnum á sólarhring en næsta framleiðslu-eining verður með annað hvort 25 eða 50 tonna framleiðslugetu á sólarhring. Þessi verksmiðja er sú fyrsta sinnar tegundar en fleiri slíkar eru í farvatninu.Mikil sjálfvirkni er í próteinverk-smiðjunni í Garði og því þarf aðeins 2-3 starfsmenn til að sinna verksmiðjunni með öðrum tilfall-andi störfum.

Hallgrímur artúrsson er framkvæmdastjóri Próteins ehf. í garði

Útboð sem Samband sveitarfélaga á Suður-nesjum stóð fyrir á akstri hópferðabif-

reiða til og frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar og átti að opna 4. jan. sl. var kært til kærunefndar útboðsmála. Í kjölfarið var farið fram á að út-boðið verði stöðvað þar til niðurstöður kæru-nefndar liggi fyrir. Berglind Kristinsdóttir framkvæmdarstjóri SSS vildi ekki tjá sig um málið þar sem það væri á viðkvæmu stigi. Hún segir að unnið sé að greinargerð um kæruna sem kemur út þann 18. janúar nk.Óánægja hefur verið hjá rútufyrirtækjunum vegna útboðsins sem kært var af Kynnisferðum. Annað fyrirtæki sem sinnt hefur akstri til og frá Leifsstöð, Allrahanda, segir SSS vera með stríðsyfirlýsingu á ferðaþjónustu og samkeppni. Sjá nánar á bls. 14 í blaðinu í dag.

Útboðið á Leifs-stöðvarakstri kært

Page 2: 2.tbl 2013

fimmtudagurinn 17. janúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR2

FJÖLSKYLDUVÆNN VINNUSTAÐURVINNUR ÞÚ Á FJÖLSKYLDUVÆNUM VINNUSTAÐ?

NESVELLIRLéttur föstudagur 18. janúar kl.14:00

Kynning frá UMFÍ á landsmóti 50+ 2013

Allir hjartanlega velkomnir

Leitast fyrirtækið sem þú vinnur hjá við að gera starfsmönnum sínum kleift að samræma sem best fjölskyldu- og atvinnulíf?Hafa starfsmenn fyrirtækisins áhuga á að tilnefna sinn vinnustað fyrir jákvætt viðmót til fjölskyldunnar og stuðla að því að fyrirtækið fái viðurkenningu Reykjanesbæjar sem fjölskylduvænt fyrirtæki?

Tilnefningar er hægt að senda á [email protected] fyrir 1. febrúar.

LIST ÁN LANDAMÆRALISTAHÁTÍÐList án landamæra er Listahátíð sem haldin er einu sinni á ári. Þar er pláss fyrir alls konar fólk og alls konar atriði. List án landamæra á Suðurnesjum, sem er samstarfsverkefni sveitarfélaganna á Suðurnesjum, leitar að atriðum og þátttakendum, til þátttöku í hátíðinni 2013 sem hefst 18. apríl 2013 og stendur yfir í um tvær vikur.Listafólk, aðstandendur listafólks, listnemar, leiðbeinendur, gallerýrekendur, leikhússtjórar, tónleikahaldarar, forsetar, hugmyndasmiðir, smiðir og aðrir þeir sem áhuga hafa á að leggja hönd á plóg eru sérstaklega hvattir til að hafa samband.

Áhugasamir hafi samband fyrir 1. febrúar á netfangið [email protected] eða í síma 863-4989.

TILKYNNING TIL EIGENDA FASTEIGNA UM ÁLAGNINGU ÁRSINS 2013

Álagningarseðlar fyrir árið 2013 verða eingöngu birtir rafrænt og ekki sendir út í bréfapósti.Nú geta fasteignaeigendur nálgast álagningarseðilinn á mittreykjanes.is og á upplýsinga- og þjónustuveitunni www.island.is. Reykjanesbær mun þó áfram senda einstaklingum 67 ára og eldri álagningarseðil í pósti.Þeir sem óska eftir að fá álagningarseðilinn sendan í pósti er bent á að senda póst á netfangið [email protected].

Gjalddagar og greiðsla fasteignagjaldaGjalddagar fasteignagjalda eru tíu. Fyrsti gjalddagi er 25. janúar 2013 til og með 25. október 2013. Eindagi fasteignagjalda er þrjátíu dögum eftir gjalddaga og falla öll gjöld ársins í gjalddaga ef vanskil verða. Reynist heildarálögð gjöld 20.000 krónur eða lægri er gjalddagi gjaldanna 25. janúar 2013.

Athygli er vakin á því að greiðsluseðlar vegna fasteignagjalda eru birtir í heimabönkum. Þeir sem vilja fá senda greiðsluseðla er bent á að senda póst á [email protected].

FUNDARBOÐ

Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi (SAR) boða til fundar um atvinnumál laugardaginn 19. janúar kl. 14:00 í húsi

Meistarafélags byggingarmanna á Suðurnesjum í Hólmgarði 2, annarri hæð, gengið inn sunnan megin.

Dagskrá: 1. Kynning á SAR.

2. Verkefni í farvatninu.3. Önnur mál.

Vinna við uppsteypu og annan áfanga fram-kvæmda við hjúkrunarheimilið á Nesvöllum í

Reykjanesbæ er í fullum gangi. Unnið var við steypu-vinnu í góðviðrinu síðustu daga.Hagstæð tíð síðustu daga hefur verið góð fyrir stærri framkvæmdir en það eru ekki margar slíkar í gangi á Suðurnesjum. Stórvirkar vinnuvélar voru við stórhýsið við Krossmóa í vikunni sem leið en vinna við bílastæði vegna flutnings Landsbanka í húsið, hefur staðið yfir að undanförnu.Á Nesvöllum er ÍAV hf verktaki annars áfanga, sem felst í að steypa upp þrjár hæðir og ganga frá húsinu að utan, með gluggum, klæðningu og þakfrágangi. Gert er ráð fyrir að vinnu við þennan áfanga verkefnisins

verði lokið haustið 2013. Ef aðstæður í veðurfari yfir vetrarmánuði hamla ekki framkvæmdum, er gert ráð fyrir að steypuvinnu verði að mestu lokið á vormán-uðum, en þá taki við klæðning hússins að utan.Næsta útboðsverk er við frágang hússins að innan, en í því felst fullnaðarfrágangur á gólfum, veggjum, loftum, lögnum, kerfum og innréttingum. Stefnt er að því að útboð þessa áfanga fari fram í febrúar næstkomandi.Í hjúkrunarheimilinu verða sex litlar einingar með 10 hjúkrunarrýmum, hver eining með sinni setustofu, eldhúsi, þvottahúsi og borðstofu. Samtals verður því aðstaða fyrir 60 einstaklinga, en gert er ráð fyrir að hægt verði að stækka það um 20 rými til viðbótar með því að bæta fjórðu hæðinni ofan á núverandi hús.

Framkvæmdir í Reykjanesbæ í hagstæðri tíð

Það er rétt, álagið er óhemju mikið alls staðar, sama hvert

litið er. Það fer sífellt vaxandi á slysa- og bráðamóttökunni, það er ekki óalgengt að þangað leiti um 100 manns á vöktunum,“ sagði Sigríður Snæbjörnsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. „Við erum með þriðju stærstu slysadeild á landinu og við höfum ekki meiri mannskap í augnablik-inu né fjármagn til að manna hana betur. Við höfum þó aukið talsvert við af fólki á síðustu tveimur árum.

Á heilsugæslunni er samfellt álag, biðin er oftast löng í venjulega mót-töku. Við getum þó vísað öllu fólki á síðdegisvaktir ef um bráðatilfelli er að ræða, símatíma og hjúkrunar-móttöku eftir því sem við á. Starfs-fólki fjölgar ekki frekar hjá okkur en annars staðar. Hér hlaupa allir og reyna að gera sitt besta þó.Á sjúkradeildunum hefur verið óvenju mikið álag þó flensan sé ekki farin að herja á okkur ennþá. Vonandi sleppum við við hana að mestu. Mikil veikindi bæði á sjúklingum og starfsfólki. Þreyta er

farin að gera vart við sig hjá starfs-fólki.“Sigríður sagði að öldrunarþjón-ustan væri best sett hjá HSS. „Við höfum getað tekið við öllum sem þurfa á öldrunar-/hjúkrunarþjón-ustu og eru vistunarmetnir.Til að setja í samhengi þá er ástandið hjá okkur heldur skárra en víða annars staðar en það þýðir ekki að það sé gott. Erfitt að sjá hvert stefnir, við eigum von á sendinefnd úr ráðuneytinu í næstu viku, ekki þó ráðherra,“ sagði Sigríður.

n Heilbrigðisstofnun Suðurnesja:

Óhemju mikið álag

Page 3: 2.tbl 2013

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 10. janúar 2013 3

Nánari upplýsingar á www.rsk.is

442 1000Þjónustuver 9:30-15:[email protected]

Launamiðar og verktakamiðar

Skilaskyldir eru allir þeir sem innt hafa af hendi launagreiðslur, hlunnindi, lífeyri, bætur, styrki, happdrættis- og talnavinninga (skattskylda sem óskatt skylda), greiðslur til verktaka fyrir þjón-ustu (efni og vinnu) eða aðrar greiðslur sem framtalsskyldar eru og/eða skattskyldar.

BifreiðahlunnindamiðarSkilaskyldir eru allir þeir sem í rekstri sínum eða annarri starfsemi hafa haft kostnað af kaupum, leigu eða rekstri fólks-bifreiðar.

HlutafjármiðarSkilaskyld eru öll hlutafélög, einkahlutafélög, samlagshluta-félög, samvinnuhlutafélög og sparisjóðir.

Viðskipti með hlutabréf og önnur verðbréf

Skilaskyldir eru bankar, verðbréfa-fyrirtæki og aðrir þeir aðilar sem

annast kaup og sölu, umboðs-viðskipti og aðra umsýslu með hlutabréf og önnur verðbréf.

BankainnstæðurSkilaskyldar eru allar fjármála-stofnanir og aðrir aðilar sem taka við fjármunum til ávöxtunar.

Lánaupp lýsingar Bankalán, fasteignaveðlán, bílalán og önnur lán. Skilaskyldar eru allar fjármálastofnanir (bankar, sparisjóðir, lífeyrissjóðir, trygg-ingafélög, fjármögnunarleigur o.s.frv.) sem hafa lánað fé til einstakl inga.

StofnsjóðsmiðarSkilaskyld eru öll samvinnufélög, þ.m.t. kaupfélög.

Takmörkuð skattskylda - greiðsluyfirlit

Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers konar greiðslur til erlendra aðila og annarra, sem bera takmarkaða skattskyldu hér á landi.

Greiðslumiðar – leiga eða afnot

Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers konar greiðslur fyrir leigu eða afnot af lausafé, fasteignum og fasteignarétt-indum eða öðrum réttindum.

Hlutabréfakaup skv. kaupréttarsamningi

Skilaskyld eru öll hlutafélög sem gert hafa kaupréttarsamninga við starfsmenn sína samkvæmt stað-festri kaupréttaráætlun. Sama á við um söluréttarsamninga.

FjármagnstekjumiðiÞeir aðilar sem innheimt hafa vexti skulu skila þessum miða og tilgreina þar sundurliðun á móttakendum og þá staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts sem haldið hefur verið eftir. Hér er einkum um að ræða smærri innheimtu-aðila, t.d. lögfræðistofur. Þessum miða er eingöngu hægt að skila rafrænt.

Skilafrestur á eftirtöldum gögnum vegna framtalsgerðar 2013 er til 30. janúar en þeir sem skila

á rafrænu formi hafa þó frest til 10. febrúar 2013

Skil á upplýsingum vegna skattframtals 2013

Vakin er athygli á nýjum launamiðareit, nr. 405, þar sem færa skal íþrótta- og líkamsræktarstyrki.Einnig er vakin athygli á nýjum launamiðareit, nr. 410, þar sem færa skal samgöngustyrki.Minnt er á að upplýsingum um húsnæðishlunnindi skal skila á launamiða. Húsnæðishlunnindi eru allt að 5% af fasteignamati íbúðarhúsnæðis 31. des. 2011, sem látið er launþega í té endurgjaldslaust eða með óeðlilega lágu endurgjaldi. Sjá nánar í lið 2.8 í skattmati ríkisskattstjóra vegna tekjuársins 2012.

Page 4: 2.tbl 2013

fimmtudagurinn 17. janúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR4

PÁLL KETILSSONvf.isvf.is

Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319Krossmóa 4, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000Páll Ketilsson, sími 421 0004, [email protected] Bragi Bárðarson, sími 421 0002, [email protected]þór Sæmundsson, [email protected]ón Júlíus Karlsson, [email protected], GSM 849 0154Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, [email protected]íkurfréttir ehf.Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0006, [email protected]Þorsteinn Kristinsson, [email protected], sími 421 0006Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, [email protected] Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, [email protected] eintök.Íslandspósturwww.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is

Útgefandi:afgreiðsla og ritstjórn:

ritstjóri og ábm.:fréttastjóri:

blaðamenn:

auglýsingadeild:umbrot og hönnun:

auglýsingagerð:

afgreiðsla:

Prentvinnsla:uPPlag:

dreifing:dagleg stafræn Útgáfa:

RITSTJÓRNARBRÉF

Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið [email protected]. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka

smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá

færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring.

Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið [email protected]. Aðsendar greinar birtast á vef Víkur-frétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prent-

aðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.

Ánægjuleg þróun í varnarbarÁttuNú á tímum varnarbaráttu í atvinnulífinu er ánægjulegt að sjá verulega grósku og sprotasprengju sem hefur átt sér stað eftir bankahrun. Hluti af því sem opinberir aðilar hafa gert í því sam-bandi er að veita styrki til nýrra hugmynda og verkefna.

Í síðustu viku fengu 14 nýsköpunar-verkefni styrki upp á samtals rúmar 25 milljónir króna en hæsta upphæðin til einstaks verkefnis hljóðaði upp á 4 millj. kr. Þrjátíu og eitt verkefni sótti um styrk til Vaxtarsamnings Suðurnesja sem er á vegum Sam-bands sveitarfélaga á Suðurnesjum, SSS. Verkefnin sem fengu styrk voru af ýmsum toga, s.s. fatahönnun og tónlistarhátíð á Ásbrú, hönnun og forritun á tölvukerfi sem nýtist rekstrararaðilum knattspyrnuvalla og próteinframleiðsla úr sjávarfangi, svo nokkur af verkefnunum séu nefnd. Við fjöllum einmitt nánar um próteinframleiðsluna í blaðinu í dag.

Í ræðu Ragnars Guðmunds-sonar, formanns stjórnar Vaxtarsamnings Suður-nesja segir hann að íslenskt atvinnulíf sem hvíli á megin-stoðum fiskveiða, álbræðslu og ferðaþjónustu verði aðeins að takmörkuðu leyti eflt með auknum veiðum, stærri ál-verum og fleiri ferðamönnum.

Til þess að ná raunverulegri aukinni framleiðni atvinnulífsins sé því nauðsynlegt að víkka út þessi svið atvinnulífsins sem og önnur svið þess. „Lykillinn er því ekki aukið magn, heldur fleiri tegundir og verðmætari afurðir úr magninu.Um þetta snúast einmitt frum-kvöðlun, nýsköpun og sprotar. Að þróa nýja vöru og/eða þjónustu sem oftar en ekki byggir á sterkum grunni meginstoða atvinnulífsins, menntun og þekkingu samfélagsins og sérstöðu viðkomandi svæðis.Það er því engin tilviljun sem réði því að í Vaxtarsamningi Suðurnesja er sérstaklega lögð áhersla á uppbygg-

ingu klasa og framgangs rannsókna og þróunar á sviði flugs, öryggis, heilsu, tækni, orku, sjávarútvegs og matvæla. Fjölbeytileiki atvinnulífsins verður hins vegar aldrei skrifaður í stein og á þeim þremur árum er liðin eru frá undirritun Vaxtar-samnings Suðurnesja hefur einnig mikil gróska átt sér stað hér á Suður-nesjum á sviði hvers kyns hönnunar.

Sannarlega vel að orði komist hjá Ragnari en hann segir það hafa verið ánægjulegt að sjá hvað mikil gróska hafi blundað á Suðurnesjum í nýsköpun. Undir það er hægt að taka. Þó það sé alls ekki ætlunin að tala nýsköpun niður þá er ljóst að uppbygg-ing atvinnulífs þarf að vera þannig að stór verkefni, hvort sem það er álver eða eitthvað annað sem skapar mörg störf, þurfa að koma til, fyrr en seinna, í bland við nýsköpun. Þegar stóru verkefnin verða að veruleika verður líka að halda áfram í nýsköpunar-verkefnum. Það er mjög mikilvægt.

Spennandi tími framundan hjá Þekkingarsetri SuðurnesjaMenning

Starfsemi Þekkingarseturs Suðurnesja er komin á fullt

á nýju ári og margt spennandi framundan. Hlutverk Þekk-ingarsetursins er fjölbreytt en Náttúrustofa Suðvesturlands og Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Suðurnesjum bera uppi rann-sóknarhluta þess.

Námskeið í samstarfi vi Miðstöð símenntunar á

SuðurnesjumEitt af markmiðum Þekkingarseturs Suðurnesja er að auka menntunar-möguleika á svæðinu í samvinnu við MSS, með sérstaka áherslu á náttúrufræði og menningu svæðis-ins. Sex spennandi námskeið verða haldin nú á vorönn og í sumar:

Uppstoppun dýra

Hafið gaf og hafið tók– Sjóslys á Suðurnesjum

Hver var Jean-Baptiste Charcot?

Fuglaskoðun– Hvar, hvenær og hvernig?

Kræklingatínsla

Tínum söl

Námskeiðin eru opin öllum og ókeypis. Lesa má nánar um þau á heimasíðu MSS þar sem skráning fer einnig fram.

Styrkur til uppbyggingar rannsóknastöðvar í

flokkun lífveraUndir lok árs 2012 samþykkti ráðherranefnd um atvinnumál að veita Þekkingarsetri Suðurnesja 20

milljóna króna styrk til uppbygg-ingar rannsóknastöðvar í flokkun og greiningu lífvera. Styrkurinn er til tveggja ára og verður nýttur til ráðningar tveggja líffræðinga. Fyrra árið mun fara í þjálfun þeirra og þróun stöðvarinnar en það seinna í öflun þjónustuverkefna og vinnu við rannsóknir. Stefnt er að því að rannsóknastöðin verði sjálfbær að þessum tveimur árum liðnum. Rannsóknastöðin hefur þegar fengið sitt fyrsta þjónustu-verkefni sem gaf svigrúm til ráðn-ingar þriðja líffræðingsins. Starfs-mannafjöldi Þekkingarsetursins hefur því tvöfaldast á fyrstu mán-uðum starfseminnar, úr þremur starfsmönnum í sex, sem er mjög ánægjulegt. Ráðningarnar hafa jákvæð áhrif á menntunarstig á svæðinu þar sem starfsmennirnir hafa allir lokið háskólanámi. Þau Íris Mýrdal Kristinsdóttir, Sunna Björk Ragnarsdóttir og Sölvi Rúnar Vignisson hafa tekið til starfa hjá setrinu.

Rannsókn á áhrifum olíu-mengunar á sjávarlífverur

Nú í janúar munu fjórir Norðmenn dvelja hjá okkur í Þekkingarsetr-inu í þrjár vikur við rannsóknir á áhrifum olíumengunar á sjávar-lífverur. Allir koma þeir frá Osló-arháskóla, tveir prófessorar og tveir meistaranemar. Rannsóknin er unnin í samstarfi við Rannsókna-setur Háskóla Íslands á Suður-nesjum og verður forstöðumaður þess, Dr. Halldór Pálmar Halldórs-son, meðleiðbeinandi meistara-nemanna. Rannsóknin snýst um að kanna áhrif olíumengunar í sjó á þorsk, sandhverfu og krækling.

Þekkingarsetrið býður skóla-hópa velkomna í heimsókn

Í Þekkingarsetrinu eru tvær sýningar sem eru fróðleg og skemmtileg viðbót við kennslu á öllum skólastigum, til dæmis í náttúrufræði, sögu og frönsku. Annars vegar er um að ræða nátt-úrugripasýningu og hins vegar sögusýninguna Heimskautin heilla. Líkt og kemur fram í Aðalnámskrá grunnskóla er eitt mikilvægasta hlutverk grunnskólakennslu í nátt-úrufræði að viðhalda þeirri forvitni sem börn hafa á fyrirbærum nátt-úrunnar. Útikennsla og vettvangs-nám, sem er sérstaklega mikilvægt í náttúrufræðinámi, fléttast saman við heimsókn á sýningarnar með fjöru- eða tjarnaferð. Nemendur safna þar lífverum sem þeir geta svo skoðað í víðsjám á Þekkingar-setrinu auk þess sem snerta má ýmis dýr á sýningunni, bæði lifandi og uppstoppuð, ef maður þorir!

Fylgist endilega með okkur á Facebook síðunni: http://www.facebook.com/thekkingarsetur-sudurnesja og heimasíðunni: www.thekkingarsetur.is

Hanna María KristjánsdóttirForstöðumaður

Þekkingarseturs Suðurnesja

tónleikar og myndlistarsýn-

ing í KeflavíkFimmtudaginn 17. janúar

verður Guðmundur R Lúðvíksson, myndlistar- og tónlistarmaður með mynd-listarsýningu og tónleika á Icelandair hótelinu í Keflavík ásamt Combó-sveitinni sinni.Þar sýnir hann 12 verk sem fara á sýningu í Þýskalandi í sumar á eina stærstu samsýningu sem haldin er ár hvert í Evrópu.Kl. 20.00 hefjast svo tónleikar þar sem flutt verða ný frumsamin lög við ljóð eftir Kristján Hreinsson, sem hann hefur birt á fésbókar-síðunni sinni síðastliðið ár.Í Combó-sveitinni eru, Adólf Marinósson á áslátt, Ágúst Ingvarsson á slagverk, Brynjar H Brynjólfsson á bassa, Hlöðver S Guðnason á klassískan gítar og söngkonan Birta Sigurjóns-dóttir.Hverjum aðgöngumiða fylgir geisladiskur með lögunum sem verða flutt á tónleikunum. Ice-landair hótelið mun bjóða upp á tilboð á gistingu og mat í tilefni þessa viðburðar.Miða má nálgast í móttöku Ice-landair hótelsins í Keflavík og kostar miðinn ásamt disknum aðeins 1.000.- kr.Hver diskur er númeraður og verður eitt númer dregið út og sá/sú heppna fær að velja sér eitt málverk í vinning sem er á sýningunni.

Í fjölskyldustefnu Reykjanes-bæjar er kveðið á um að

árlega skuli veittar viðurkenn-ingar til fjölskylduvænna fyrir-tækja í Reykjanesbæ. Með því vill Reykjanesbær hvetja stjórnendur fyrirtækja til að setja sér fjöl-skyldustefnu. Þetta er í tíunda sinn sem slíkar viðurkenningar

eru veittar og hafa fjölmörg fyrir-tæki þegar hlotið nafnbótina „fjölskylduvænt fyrirtæki“.Í blaðinu í dag er auglýst eftir til-nefningum frá STARFSMÖNNUM fyrirtækja sem telja sinn vinnustað fjölskylduvænan. Rökstuðningur og fjölskyldustefna fyrirtækisins þarf að fylgja. Sé fyrirtækið sem þú

vinnur hjá fjölskylduvænt, en ekki með formlega fjölskyldustefnu, er tekið við tilnefningu með rök-stuðningi og í framhaldinu boðin aðstoð við gerð fjölskyldustefnu.Viðurkenningar verða veittar á degi um málefni fjölskyldunnar sem haldinn verður þann 23. febrúar nk. á Nesvöllum.

Tilnefningar þurfa að hafa borist fyrir 1. febrúar 2013 til Fjölskyldu- og félagssviðs Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, 230 Reykjanesbæ, merktar FJÖLSKYLDUVÆN FYRIRTÆKI. Einnig má senda til-nefningar með netpósti á netfangið [email protected].

Félagamálastjóri

StarFar þÚ HjÁ FjÖlSKYlDuvænu FYrIrtæKI?

Page 5: 2.tbl 2013

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 10. janúar 2013 5

Rafmagnaðurbíladagur

ChevroletCruze hefur aldrei veriðglæsilegri

ChevroletSpark er bestasparnaðarráð

heimilisins

Allir velkomnir á laugardaginn milli kl. 10 og 16Léttar veitingar og heitt á könnunni

Chevrolet Volt á sýningu í Reykjanesbæ

Komdu í heimsókn og reynsluaktu

framtíðinni

Chevrolet Volt er langdrægur rafmagnsbíll með bensínrafal. Heildarökudrægi Volt er um 500 km. Á ra� leðslunni einni saman kemst Volt um 60 km, en það dugir í fl estum tilvikum fyrir allan daglegan akstur. Fólk hleður hann á nóttunni og ekur á daginn og getur jafnvel sagt bless við bensínið. Volt verður á sýningu hjá Bílabúð Benna í Reykjanesbæ á laugardaginn.

Með Volt verða á staðnum fl eiri glænýir kostir frá Chevrolet m.a. ennþá glæsilegri útgáfa af Chevrolet Cruze, 1700 dísel, með stórauknum búnaði, m.a. bakkmyndavél, snertiskjá og lyklalaust aðgengi. Þá verður líka kynntur til sögunnar Chevrolet Spark, einn vinsælasti smábíll landsins síðustu ára, sem birtist nú enn fl ottari og betur útbúinn en þekkist í þessum fl okki bíla.

Rafmagnaður

Volt á sýningu í Reykjanesbæ

Bílabúð BennaNjarðarbraut 9 • ReykjanesbæSími: 420 3330 • www.benni.is

Rafmagnið fær spennandi hlutverk á Suðurnesjum laugardaginn 19. janúar.

Við höfum opið á laugardaginnfrá 10:00 til 16:00

Spark 2013 - Nýtt útlit og aukinn búnaðurChevrolet Spark LS 1.0 • bensín • bsk Verð: 1.890 þús. kr.Chevrolet Spark LT 1.2 • bensín • bsk Verð: 2.090 þús. kr.

Cruze 2013 - Nýtt útlit og aukinn búnaðurChevrolet Cruze LTZ 1.7 • dísel • bsk Verð: 4.190 þús. kr.Chevrolet Cruze LTZ 1.8 • bensín • bsk Verð: 3.490 þús. kr.

Nesdekk20% afslátturNesdekk býður 20% af afslátt af vinnu við smurningu og umfelgun í tilefni dagsins.

útbúinn en þekkist í þessum fl okki bíla.

Cruze 2013 - Nýtt útlit og aukinn búnaðurChevrolet Cruze LTZ 1.7 • dísel • bsk Verð: 4.190 þús. kr.Chevrolet Cruze LTZ 1.8 • bensín • bsk Verð: 3.490 þús. kr.

Page 6: 2.tbl 2013

fimmtudagurinn 17. janúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR6

FRÁ HEILBRIGÐISSTOFNUN SUÐURNESJA

Vegna y�rvofandi �ensufaraldurs og annarra smitandi sjúkdóma sem nú herja á

landsmenn, vill starfsfólk HSS fara fram á að heimsóknir á sjúkrahúsið verði í lágmarki.

Þetta gerum við í þeim tilgangi að reyna að hefta útbreiðslu eins og mögulegt er.

Heimsóknartímar eru milli kl. 15:00 og 16:00 og milli kl. 18:00 og 19:00 alla daga ársins.

Við þökkum ykkur fyrir skilninginn.Sigríður Snæbjörnsdóttir

FLENSUFARALDUR

Fjölmenni í aFmælis-veislu vF

Góður hópur gesta fagnaði með eigendum Víkurfrétta

í afmælisveislu sem haldin var í tilefni 30 ára afmælis Víkurfrétta ehf.Veislan var haldin á fimmtu hæð í húsakynnum Urtusteins að Kross-móa 4 í Reykjanesbæ. Meðal gesta voru fyrrverandi og núverandi starfsmenn Víkurfrétta, viðskipta-vinir og fólk úr samfélaginu á Suðurnesjum.Systkinin úr Klassart, þau Smári og Fríða Dís Guðmundsbörn léku ljúfa tónlist og gestir áttu notalega stund á tímamótum VF.

Páll Ketilsson og Ásdís Pálmadóttir heiðruðu þrjá starfsmenn úr 30 ára sögu Víkurfrétta sem hafa starfað hjá fyrirtækinu í yfir tuttugu ár. F.v.: Ásdís Björk Pálmadóttir, Aldís Jónsdóttir, Hilmar Bragi Bárðarson, Stefanía

Jónsdóttir og Páll Hilmar Ketilsson. VF-myndir: Jón Júlíus Karlsson, Eyþór Sæmundsson og Páll Orri Pálsson.

Fleiri myndir úr aFmælishóFi VíkurFrétta eru á VF.is

n VíkurFréttir ehF. 30 ára

Page 7: 2.tbl 2013

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 10. janúar 2013 7P

IPA

R\T

BW

A-S

ÍA -

12

26

24

Verður þín hugmynd að veruleika á Ásbrú?

Sími 425 2100 | [email protected]

Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar

Þróunarsetrið Eldey á Ásbrú býður frumkvöðlum og fyrirtækjum með nýsköp un ar­verkefni sem þarfnast stærra rýmis að leigja frábæra aðstöðu á hag stæðu verði.

Í Eldey gefst skapandi einstaklingum og fyrir tækjum tækifæri til að fá stuðning, fræðslu og ráðgjöf til að hrinda hug myndum sínum í fram kvæmd, og um leið tækifæri til að efla tengs lanet sitt og finna mögu lega samstarf saðila.

Tæplega 30 fyrirtæki og samtök hafa í dag aðstöðu í Eldey sem gerir þetta að einu af mest spennandi þróunarsetrum landsins.

Þróunarsetrið Eldey er rekið af Heklunni, Atvinnuþróunarfélagi Suðurnesja.

Nánari upplýsingar á asbru.is og heklan.is

Stórar hugmyndirþurfa mikið pláss

Page 8: 2.tbl 2013

fimmtudagurinn 17. janúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR8

Stjórn Vaxtarsamnings Suður-nesja hefur úthlutað styrkjum

til verkefna í þriðja sinn. Mark-miðið er að efla nýsköpun og samkeppnishæfni atvinnulífs-ins á Suðurnesjum. Árið 2010 var samningur undirritaður milli Iðnaðarráðuneytis og At-vinnuþróunarráðs Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Af þeim samningi er ein úthlutun eftir. Nauðsynlegt er fyrir at-vinnulífið á Suðurnesjum að samningurinn fáist endurnýj-aður. Stuðningur við nýsköpun á svæðinu er afar mikilvægur og jafnframt þróun klasasam-starfs skilgreindra atvinnugreina á sviði flugs og öryggis, tækni og orku, sjávarútvegs og matvæla og ferðaþjónustunnar, eins og skil-greint er í samningnum. Mannabreytingar urðu á árinu 2012 í stjórn Vaxtarsamnings. Jóhanna Reynisdóttir sem verið hefur formaður stjórnar Vaxtar-samnings Suðurnesja frá upphafi samningstímabilsins, óskaði eftir lausn frá störfum sl. haust. Nýr for-maður hefur tekið til starfa sem er Ragnar Guðmundsson, flugvéla-verkfræðingur.Verkefnin sem sótt var um styrki fyrir að þessu sinni voru alls 31 talsins. Styrkbeiðnirnar hljóðuðu upp á rúmlega 96 milljónir. Var það niðurstaða stjórnar Vaxtar-samnings Suðurnesja að úthlutað skyldi 25 milljónum og 250 þúsund krónum til 14 verkefna.

Eftirfarandi verkefni hlutu styrk:

Nr. 1. Tónlistarhátíð á Ásbrú – Tómas Young verkefnastjóri

Fyrirtækið Ómstríð ehf er í sam-starfi við erlenda aðila um að halda tónlistarhátíð á Ásbrú. Markmiðið með verkefninu er m.a. að vekja athygli á Ásbrú sem ákjósanlegan kost fyrir tónleikahald af hvaða stærðargráðu sem er. Undirbún-ingur verkefnisins hefur staðið yfir um nokkurt skeið og hefur m.a. verið unnið í þróun klasasamstarfs-ins um verkefnið. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 500 þúsund.

Nr. 2. Markaðssetning Þekk-ingarseturs Suðurnesja –

Hanna María Kristjánsdóttir verkefnastjóri

Verkefnið snýst um markaðssetn-ingu á nýstofnuðu Þekkingarsetri Suðurnesja. Stofnuninni er ætlað að verða miðstöð rannsóknastarfs og rannsakenda í náttúrufræðum og tengdum greinum á Suðurnesjum. Þetta samstarfsverkefni lýtur að því að efla tengsl við erlenda háskóla. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 750 þúsund.

Nr. 3. Ásdís Ragna grasalæknir – Þóranna K. Jónsdóttir verk-

efnastjóriVerkefnið er að útvíkka starfsem-ina í kringum Ásdísi Rögnu grasa-lækni. Eitt megin viðfangsefnið er að setja fram viðskiptalíkan fyrir starfsemina sem leiðir til aukinnar veltu og sköpunar starfa. Verkefni hlýtur styrk að fjárhæð kr. 750 þúsund.

Nr. 4. Hönnunarklasi á Suður-nesjum – Heklan atvinnuþró-unarfélag, Dagný Gísladóttir

verkefnastjóriSú þróun hefur orðið í frumkvöðla-setrinu Eldey á Ásbrú að þangað hafa leitað í ríkum mæli hönnuðir. Mikilvægt er að efla þetta samstarf með formlegri hætti og víkka það út til allra hönnnuða á Suðurnesjum með stofnun hönnunarklasa og styrkja með því samstarf hönnuða á Suðurnesjum. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 750 þúsund.

Nr. 5. Grjótkrabbi – rannsóknir, markaðssetning og vinnsla

á Suðurnesjum – Rann-sóknarsetur HÍ á Suðurnesjum – Halldór Pálmar Halldórsson

verkefnastjóriVerkefnið gengur út á veiðar, vinnslu og markaðssetningu á Grjótkrabba sem er ný tegund hér við land. Niðurstöður rannsókna benda til þess að grjótkrabbastofn-inn sé lífvænlegur og í veiðanlegu magni hér við land. Í ljósi verð-mætrar reynslu sl. tveggja ára má segja að áherslur í vinnslu, vöru-þróun og markaðssetningu verði hnitmiðaðri, enda margt búið að gera og reyna í þessu þróunarstarfi. Verkefni hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1 milljón.

Nr. 6. Ferðaþjónustuklasi á Suðurnesjum – Berþóra Sigur-

jónsdóttir verkefnastjóriVerkefninu er ætlað að tengja saman ferðaþjónustuaðila á Suður-nesjum í klasasamstarfi. Með sam-stiltu átaki og samvinnu ferðaþjón-ustuaðila má bæta fagmennsku í greininni sem leiðir til betri af-komu ferðaþjónustufyrirtækja og fjölgar störfum í þessari vaxandi atvinnugrein á Suðurnesjum. Verk-efnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1 milljón.

Nr. 7. Markaðskönnun og mark-aðssetning á hvalaskoðun frá Keflavík – Helga Ingimundar-

dóttir verkefnastjóriVerkefnið lýtur að nýjum leiðum í markaðssókn varðandi hvala-

skoðunarferðir. Með auknu flugi erlendra flugfélaga til landsins aukast möguleikar á þessu sviði og er ætlunin að kynna hvala-skoðunarferðir fyrir farþegum sem koma snemma til landsins og/eða fara seint af landi brott. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 1,5 millj-ónir.

Nr. 8. KEFLANDING ehf – Guð-mundur Pétursson verkefna-

stjóriVerkefnið lýtur að samstarfi við bandarísku stofnunina military.com. Stofnunin gegnir því hlut-verki að bjóða félögum sínum ýmsa þjónustu, einkum á sviði ferðamennsku og námskeiðahaldi. Vinsælt er meðal félagsmanna að dvelja á og við núverandi og eða fyrrverandi herstöðvar og sækja ferðalög þaðan. Military.com hefur fallist á að auglýsa og kynna Ásbrú og nágrenni sem fýsilegan kost. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 2 milljónir.

Nr. 9. Fatahönnunarskóli Ís-lands – Keilir, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs – Berglind

Sigurðardóttir verkefnastjóriSkólinn byggir á danskri fyrirmynd. Ætlunin er að taka inn ár hvert 25 nemendur í skólann þannig að 50 nemendur verða að staðaldri í skól-anum. Nemendur læra hönnun, verkþjálfun, markaðsmál, stofnun

fyrirtækja, setja upp sýningar og fleira. Ætlunin er að vera miðstöð fatahönnunar á svæðinu. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 2 millj-ónir.

Nr. 10. Izzy Tours á Íslandi – Edda Hrund Halldórsdóttir

verkefnastjóriVerkefnið gengur út á að auka heimsóknir ferðamanna á Suður-nesin og auka vöruframboð og að-greiningu Izzy Tours á markaði í Bretlandi. Fyrst og fremst er horft til þriggja hópa ferðamanna, þ.e. námsferðir fyrir skólahópa, nem-endur, kennara og foreldra, fugla-skoðun og strandstangaveiði. Verk-efnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 2 milljónir.

Nr. 11. Efnaferlar og gæðaeftirlit fyrir framleiðslu á lífdísel – Bio

Diesel ehf, Gunnar H. Hasler verkefnastjóri

Meginmarkmið verkefnisins er framleiðsla lífdísels úr notaðri jurtaolíu sem til fellur hjá veit-ingastöðum og matvælaframleið-endum. Eigendur fyrirtækisins hafa þegar keypt mest allan tækjabúnað sem til þarf fyrir framleiðsluna og komið upp verksmiðju sem stað-sett er á Ásbrú. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 2 milljónir.

Nr. 12. GrasPro – Lauftækni ehf – Einar Friðrik Brynjarsson

verkefnastjóriVerkefnið lýtur að hönnun og forritun á tölvukerfi sem nýtist rekstraraðilum grasvalla/knatt-spyrnuvelli, varðandi viðhald slíkra valla. Verkefnið snýr að hönnun og markaðssetningu bæði hér heima og erlendis. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 3 milljónir.

Nr. 13. Reykjanes Geopark Proj-ect – Eggert Sólberg Jónsson

verkefnastjóriÍ mörg ár hefur verið unnið að stofnun einhverskonar auðlinda-garðs á Suðurnesjum. Þetta verk-efni lýtur að stofnun Jarðvangs. Markmið Jarðvanga er að bæta viðhorf og þekkingu á jarðminjum og sögu svæðisins. Að ferðamaður-inn upplifi söguna, samtímann og hefðbundna menningu, landslag, jarðfræði, matarmenningu, listir og handverk sem og staðbundið gróðurfar og dýralíf. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 4 millj-ónir.

Nr. 14. Prótein framleiðsla – Halldór Pétursson verkefna-

stjóriVerkefnið lýtur að próteinvinnslu úr sjávarfangi. Áherslan verður lögð á að nýta slóg og aðrar aukaafurðir sem ekki eru nýttar í dag. Ný verk-smiðja er staðsett í Sveitarfélaginu Garði. Verkefnið hlýtur styrk að fjárhæð kr. 4 milljónir.

Fjórtán verkefni fá 25 milljónir krónan VAXTARSAMNINGUR SUÐURNESJA

HÚÐLÆKNIRHÚÐLÆKNIRKem reglulega til Ke�avíkur vegna

fólks með húðsjúkdóma.Er með aðsetur á Suðurgötu 2

(fyrir ofan Lyf og heilsu)

Tímabókanir eru í síma 421 3200 virka daga.

ViðhaldsstjóriStolt Sea Farm (www.stoltseafarm.com), alþjóðlegt, leiðandi fiskeldisfyrirtæki reisir

fiskeldisstöð fyrir flúru (Senegal Sole) á Reykjanesi og er ráðgert að hefja framleiðslu í maí 2013. Fyrirtækið óskar að ráða viðhaldsstjóra fyrir fiskeldisstöð fyrirtækisins.

Starfið felur m.a. í sér að framfylgja viðhalds- og verkáætlunum, þjálfa starfsmenn, hafa eftirlit með öryggisbúnaði og sjá um daglegt viðhald húsnæðis, véla og tækja.

Hæfniskröfur: Rafmagns- eða vélfræði4 ára reynsla af viðhaldi.

Góð enskukunnátta. Haldbær tölvuþekking.

Umsóknarfrestur er til 20. janúar 2013.Umsókn sendist á íslensku og ensku á netfangið [email protected]

ATVINNA

Page 9: 2.tbl 2013

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 10. janúar 2013 9

HV

ÍTA

SIÐ

/SÍA

– 1

3-00

30

Stjörnurnar sýna sig

ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.isViðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi

Þú finnur „Mercedes-Benz Ísland“ á Facebook

Holtsgötu 52 · ReykjanesbæSími 420 5000 · ksteinarsson.is

Komdu á Mercedes-Benz sýningu hjá K. Steinarssyni laugardaginn 19. janúar og reynsluaktu meistarastykkjunum.

Nýi A-Class bíllinn verður kynntur í fyrsta sinn í Reykjanesbæ, en auk þess verða B-Class, E-Class metan, ML og GLK á svæðinu.

Tæknilegir yfirburðir og framúrskarandi hönnun einkenna bílana frá Mercedes-Benz. Við bjóðum þér að koma og skoða þá. Þú finnur örugglega þann rétta fyrir þig. Rjúkandi kaffi og nýbakaðar vöfflur. Opið milli 12 og 16.

Page 10: 2.tbl 2013

fimmtudagurinn 17. janúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR10

Ta l þ j á l f u n S u ð u r n e s j aer flutt að Hafnargötu 27a, 3. hæð í Keflavík.

Tímapantanir í síma 899-5372 eða á netfanginu [email protected]

Kristinn Hilmarsson, talmeinafræðingur

AUGLÝSING

UM LÓÐAÚTHLUTUNSveitarfélagið Vogar auglýsir lausa til úthlutunar 160 m² atvinnulóð fyrir söluturn að Hafnargötu 19 Vogum. Lóðin er auglýst laus til umsóknar á grundvelli úthlutunar-reglna fyrir atvinnuhúsnæði sem eru aðgengilegar á vef sveitarfélagsins HYPERLINK "http://www.vogar.is" www.vogar.is

Frestur til að skila inn umsóknum er til 31. janúar 2013 Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga að Iðndal 2, Vogum eða með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected] og á heimasíðunni www.vogar.is þar sem einnig má nálgast skipulagsuppdrátt ásamt skipulagsskilmálum.

Sveitarfélagið VogarIðndal 2, 190 VogarSími 440 6200

Að a l f u n d u r VG á Suðurnesjum sem

fram fór þriðjudaginn 8. janúar síðastliðinn, harmar eftirgjöf bæjar-stjórnar Sveitarfélagsins Voga í baráttu sinni fyrir því að nýjar háspennu-línur gegnum sveitar-félagið verði lagðar í jörð. Stjórnin bindur vonir við að væntanlegar niðurstöður jarð-strengjanefndar Alþingis muni

leiða í ljós að ekki sé þörf á jafn groddalegum há-spennulínum og Landsnet telur að þurfi. Aðalfundur VG á Suðurnesjum varar við ofurvæntingum um jákvæð áhrif Álvers í Helguvík á atvinnulíf hér, en fagnar þeirri fjölþættu

atvinnustarfsemi sem eflist hratt m.a. með þróttmiklum stuðningi Heklunnar, atvinnuþróunarfélags Suðurnesja.

Ályktun um raflínur og atvinnu-uppbyggingu á Suðurnesjum

Sparidagar á Örkinni 17. - 22. mars 2013

Verð: Kr. 42.000,- á mann í tveggja manna herbergi, aukagreiðsla fyrir eins manns herbergi kr. 6000,-

Örkin býður fría rútu frá Nesvöllum kl. 14:00 og til baka kl. 12:00, látið vita við skráningu.

Ath! Skráning hefst mánudaginn 21. janúar 2013 kl. 10:00 í símum hjá Jórunni 423 7601, 898 2540, Kristínu 426 8218,

895 1898, Ragnheiði 421 2236, 895 9936, Lellu 421 2177, 861 8133, Brynju 421 7177, 849 6284 og

Oddnýju 421 2474, 695 9474.

Áríðandi að láta vita ef hætt er við.

Ath! Tenerife farar fundur á Nesvöllum kl. 17:00 23. jan.

Bílabúð Benna frumsýndi í síðustu viku Chevrolet Volt sem er langdrægur rafmagnsbíll með bensínrafal. Heildarökudrægi

Volt er um 500 km og á rafhleðslunni einni saman kemst hann um 60 km, sem dugir oftast fyrir allan daglegan akstur. Fólk hleður bara bílinn á nóttunni og ekur á daginn. „Bíllinn er í stuttu máli þannig gerður að hann er knúinn rafmagni, en þegar rafmagnshleðslan nær lágmarki tekur bensínrafall við, hann framleiðir rafmagn inn á rafhleðsluna og fólk verður því aldrei stopp á vegum úti vegna raf-magnsleysis“ segir Benedikt Eyjólfsson hjá Bílabúð Benna. „Þetta er lykilatriðið, Volt leysir þau vandamál sem eru samfara takmörkuðu ökudrægi bíla sem eru eingöngu knúnir rafmagni.“Nú er komið að því að afhjúpa Volt á Suðurnesjum. Bílabúð Benna í Reykjanesbæ býður Suðurnesjamönnum á bílasýningu laugardaginn 19. janúar. Fyrir utan Volt verða á staðnum fleiri glænýir kostir frá Chevrolet, m.a. ennþá glæsilegri 2013 útgáfa af Chevrolet Cruze, 1700 dísel, með stórauknum búnaði, m.a. bakkmyndavél og snertiskjá með My Link upplýsingakerfi. Þá verður líka kynntur til sögunnar einn vin-sælasti smábíll landsins síðustu ára; Chevrolet Spark 2013, sem birtist nú enn flottari og betur útbúinn en þekkist í þessum flokki bíla. Allir eru velkomnir á Rafmagnaðan bíladag hjá Bílabúð Benna, Njarðar-braut 9, milli kl. 10 og 16, laugardaginn 19. janúar.

Rafmagnaður Volt á Chevrolet sýningu hjá Bílabúð Benna

Unnur Brá í 2 sæti!

Í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi laugardaginn 26. janúar

Stuðningsmenn

Unni Brá í 2. sæti

Þingmaðurinn Unnur Brá Konráðsdóttir hefur sýnt það með störfum sínum að hún stendur fast á sínu. Krafmikið fólk kemur málunum áfram.

Kjósum Unni Brá áfram inn á þing!

ALLSHERJARATKVÆÐAGREIÐSLA

Allsherjaratkvæðagreiðsla verður viðhöfð við kjör stjórnar og trúnaðarráðs Verslunarmannafélags Suðurnesja fyrir starfsárið

2013 - 2014. Kosið er um 3 fulltrúa í stjórn og 3 til vara, 7 fulltrúa í trúnaðarráð og 7 til vara, 2 félagslega

skoðunarmenn og 1 til vara.

Framboðslistum sé skilað á skrifstofu Verslunarmannafélags Suðurnesja, Vatnsnesvegi 14, Reykjanesbæ,

eigi síðar en kl. 12:00, föstudaginn 25. janúar 2013.

Öðrum listum en lista stjórnar skulu fylgja meðmæli 50 fullgildra félagsmanna.

Kjörstjórn

Page 11: 2.tbl 2013

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 10. janúar 2013 11

Umhverfissjóður Fríhafnarinnar

.

Umhverfissjóður Fríhafnarinnar auglýsir eftir umsóknum vegna styrkja á sviði umhverfismála.

Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar 2013.

Sjóðurinn er fjármagnaður með sölu poka í Fríhöfninnni og er tilgangur hans að styrkja samstarfsverkefni

í umhverfismálum, sem byggjast á sjálfboðaliðastarfi, frumkvæði félagasamtaka eða einstaklinga í

hreinsun, verndun gróðurs, ræktun og verndun svæða eða plöntu- og dýralífs með áherslu á nærsvæði

Fríhafnarinnar.

Áhugasamir eru hvattir til þess að sækja um styrki á heimasíðu Fríhafnarinnar, www.dutyfree.is/styrkur.

Page 12: 2.tbl 2013

fimmtudagurinn 17. janúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR12

n VIÐTALIÐ

Prófkjör sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi fer fram aðra helgi. Hvernig leggst þessi slagur í þig?Prófkjörið leggst mjög vel í mig. Ég sækist eftir umboði til að fá að leiða listann áfram. Ég hef verið oddviti sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi síðastliðin fjögur ár. Þetta hefur verið skemmti-legur tími en á sama tíma hefur hann einkennst af varnarbaráttu. Nú er kannski kominn tími til að fá að spila sókn og að því stefnum við sjálfstæðismenn.

Það er væntanlega talsvert öðruvísi að vera þingmaður í stjórn og stjórnarandstöðu?Það er vissulega öðruvísi að vera í stjórnarandstöðu. Við höfum ekki haft dagskrárvaldið á þinginu og höfum þurft að verjast ákvörðunum í sjávarútvegs- og orkumálum sem núverandi ríkis-stjórn hefur sett á dagskrá. Ég vona svo sannarlega að almenn-ingur velji sér nýja stjórnar-stefnu hér á landi í lok apríl.

Finnur þú fyrir meðbyr með Sjálfstæðisflokknum um þessar mundir?Við finnum fyrir meðbyr en það er mikil óvissa í íslenskum stjórnmálum. Ég finn að áhugi á stjórnmálum hefur ekki verið minni um árabil. Síðustu ár hafa einkennst af árangursleysi og miklum átökum. Fólkið í landinu hefur fengið leið á stjórnmálum og það er okkar hlutverk að skapa traust og trúnað í samfélaginu. Það er gríðarlega mikilvægt að koma á breytingum, breyttum vinnu-brögðum og fá alla að borðinu.

Hvernig finnst þér núverandi ríkisstjórn hafa staðið sig í málefnum Suðurnesja á þessu kjörtímabili?

Í einföldu máli þá hefur þetta kjör-tímabil einkennst af brostnum loforðum. Það hafa verið miklar yfirlýsingar. Ríkisstjórnin hélt ríkisstjórnarfund í Víkinga-heimum sem átti að vera boðberi nýrra tíma fyrir Suðurnesin. Það hefur verið staðið við fátt sem þar var lofað. Það eru fjölmörg mjög góð tækifæri hér á Suðurnesjum og því er það óásættanlegt að það sé tíundi hver einstaklingur sem gengur hér um án atvinnu. Á þessu svæði eru allir tilbúnir að leggjast á eitt við að byggja upp at-vinnu. Hér er allt til alls – frábærar hafnir og flugstöðin. Nú þarf einfaldlega að spýta í lófana. Ég er mjög óánægð með framkomu ríkisstjórnarinnar við Suður-nesjamenn á þessu kjörtímabili. Staðan á álverinu í Helguvík segir sína sögu og einnig var lofað að gera gangskör í menntamálum á Suðurnesjum. Ég fann fyrir því að það var engin innistæða fyrir þessum orðum þegar unnið var að fjárlagagerðinni fyrir jól og staða FS var í óvissu. Það þurfti að beita miklum þrýstingi á ríkisstjórnina til að ná þeirri fjárveitingu í gegn. Ríkisstjórnin hefði getað gert mun betur og við í Sjálfstæðis-flokknum munum gera betur.

Hvaða mál, er snertir Suður-nesin, myndir þú helst beita þér fyrir fari svo að Sjálfstæð-isflokkurinn verði í ríkisstjórn að loknum kosningum?Ég myndi beita mér fyrir því að verkefnið í Helguvík, sem bíður í startholunum, verði að veruleika. Ég tel að ef allir sem að því verk-efni koma, bæði opinberir aðilar og einkaaðilar, leggist á eitt og sýni það í verki að þeir standi á bak við þetta verkefni, þá munum við koma þessu í gang. Stuðningur stjórnvalda við þetta verkefni skiptir gríðarlegu máli. Sá stuðn-

ingur hefur ekki verið fyrir hendi á þessu kjörtímabili og það hefur valdið töfum. Það þarf að skapa hér þannig umhverfi að fjárfestar sé tilbúnir að hætta sínu fjármagni í verkefni sem geta skapað mjög verðmæt störf fyrir samfélagið á Suðurnesjum. Afleiddur iðnaður af álverinu í Helguvík verður einnig mikil lyftistöng fyrir svæðið og skapar fjölda starfa í ýmsum atvinnugreinum. Athygli mín hefur einnig verið vakin á því að verktakar hér á Suðurnesjum fái ekki tækifæri á að bjóða í stór verkefni hér á svæðinu. Það yrði auðvitað alveg óásættanlegt að stórar framkvæmdir hér á svæðinu yrðu eingöngu unnar af iðnaðarmönnum sem koma akandi eftir Reykjanesbrautinni frá höfuðborgarsvæðinu. Við eigum ekki að sætta okkur við það.

Hvaða skoðun hefur þú á þeim breytingum sem hafa verið gerðar á sjávarútvegskerfinu á þessu kjörtímabili?Ég hef sterka skoðun á þessum málum og er mjög andvíg þeim breytingum sem ríkisstjórnin hefur verið að knýja í gegn – ekki síst vegna þeirrar óvissu sem skapast hefur í sjávarútveginum. Það er verið að umbylta því kerfi sem við höfum haft, ekki með aukna arðsemi að leiðarljósi sem nýtist samfélaginu í heild, heldur pólitískar hugsjónir sem varð að knýja í gegn loksins þegar þetta fólk komst til valda. Þetta er gert þrátt fyrir að allir okkar helstu sérfræðingar í þessum málum hafi skilað neikvæðum umsögnum um tillögur ríkisstjórnarinnar. Sjávarútvegurinn er að mala þjóðinni gull. Það veiðileyfa-gjald sem búið er að samþykkja er alltof hátt og sett á með þeim hætti að það endurspeglar ekki afkomu fyrirtækjanna. Nú standa

vel rekin fyrirtæki frammi fyrir því að geta ekki farið í fjárfestingar og bætt við starfsfólki vegna þess að álögur ríkisins eru orðnar of miklar. Í Grindavík er gott dæmi um frábært nýsköpunarverkefni sem er að fara af stað. Fyrirtækin Vísir hf. og Þorbjörn hf. eru með mjög spennandi verkefni sem felst í því að auka virði aflans. Með því að vinna allt sem að þorskinum tilheyrir þá telja þessir aðilar sig geta fengið 5.000 kr.- fyrir hvern þorsk í stað þess að selja hann á 1.500 kr.- líkt og raunin er í dag. Til þess að þetta geti orðið að veruleika þá þarf að fjárfesta í rannsóknum og þróun. Það er augljóst að hækkun á veiðigjaldinu mun draga verulega úr tækifærum til að fara í verkefni eins og þetta.

Fari svo að þú munir leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og flokkurinn komist í ríkisstjórn – munt þú gera kröfu á ráðherrastól í næstu ríkisstjórn?Ef ég fæ það umboð að vera odd-viti listans í komandi kosningum, og að flokkurinn verði með það fylgi sem hann er að mælast með í dag í Suðurkjördæmi, þá tel ég að það verði erfitt að líta framhjá mér með ráðherrastól. Flokkurinn er hvergi á landinu að mælast með hærra fylgi í skoðanakönnunum en í Suðurkjördæmi og ég stefni auðvitað að því að sú niðurstaða skili sér upp úr kjörkössunum. Við höfum ekki átt marga ráðherra af Suðurnesjum á síðustu árum og nú er kominn tími til að eignast ráðherra sem berst fyrir málefnum Suðurnesja og kjördæmisins alls.

Andrúmsloftið á Alþingi hefur ekki verið upp á marga fiska á þessu kjörtímabili. Tekur það aldrei á að þurfa að mæta í vinnuna og hreinlega rífast?

Þetta hefur auðvitað ekki alltaf verið neitt sérstaklega skemmti-legur tími. Ég var þingmaður í 18 mánuði fyrir hrun og það var allt öðruvísi. Það hefur verið farið í mörg mjög erfið mál á þessu kjörtímabili sem grundvallará-greiningur er um. Ég hef trú á því að þetta sé að lagast og bind miklar vonir við það að eftir kosningar veljist inn fólk á þing sem er tilbúið að vinna saman. Okkur sem erum í stjórnmálum ber sú skylda að mynda starf-hæfa ríkisstjórn og verðum að vinna saman þvert á flokka.

Þú ert uppalin í Reykjanesbæ og fluttir hingað aftur fyrir nokkrum árum. Hvernig líkar þér lífið í Reykjanesbæ?Það er frábært að búa hér. Við fjölskyldan fluttum hingað fyrir tæpum þremur árum. Ég bjó í Garðabænum þegar ég var kjörin á þing í Suðvesturkjördæmi árið 2007. Ég er hins vegar Keflvík-ingur að upplagi og fjölskyldan mín er héðan. Það var eiginlega hugmynd eiginmanns míns, sem er reykvískur Akureyringur, að flytja hingað. Það var því auðsótt mál að fá fjölskylduna hingað. Strákarnir mínir tveir eru orðnir miklir Keflvíkingar og okkur í fjöl-skyldunni líður afar vel á Heiðar-brúninni. Hér viljum við vera.

brostnumloforðum

RAgnheIÐuR eLín ÁRnAdóTTIR sækist eftir því að fá að leiða áfram lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Ragnheiður Elín hefur verið á þingi frá árinu 2007 og hefur verið oddviti sjálfstæðismanna á þessu kjörtímabili. Hún er stjórnmálafræðingur að mennt með MS-próf í Alþjóðasamskiptum frá Georgetown háskólanum í Bandaríkjunum. Jón Júlíus Karlsson, blaðamaður Víkurf-rétta, ræddi við Ragnheiði um kjörtímabilið sem senn er á enda. Hún er ekki sátt við frammistöðu ríkisstjórnarinnar í málefnum Suðurnesja á þessu kjörtímabili. Jafnframt stefnir Ragnheiður Elín að því að verða ráðherra fari svo að Sjálfstæðisflokkurinn myndi ríkisstjórn eftir kosningar.

Suðurnesjaþingmaðurinn Ragnheiður Elín Árnadóttirstefnir á 1. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna

Kjörtímabilið einkennist af

Ítarlegt viðtalí Sjónvarpi

Víkurfrétta á vf.is

Page 13: 2.tbl 2013

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 17. janúar 2013 13

FERÐARÁÐGJAFAR Á SÖLUSKRIFSTOFUStarfssvið:- Sala á flugfargjöldum, hótelgistingu og bílaleigubílum- Upplýsingaveita, ráðgjöf og þjónusta- Útgáfa ferðagagna - Önnur tilfallandi verkefni sem fara fram í deildinni Hæfniskröfur: - Menntun í ferðafræðum, IATA-UFTAA próf er æskilegt- Þekking og reynsla í farseðlaútgáfu og Amadeus bókunarkerfi- Góð tungumálakunnátta er nauðsynleg- Góð almenn tölvuþekking er nauðsynleg- Jákvætt hugarfar, frumkvæði og rík þjónustulund- Færni í almennum samskiptum og samvinnu - Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

Hér er um sumarstarf og hlutastarf að ræða. Vaktafyrirkomulag er 2-2-3. Nánari upplýsingar veita: Ólafía G. Ólafsdóttir, netfang: [email protected] Kristín Björnsdóttir, netfang: [email protected]

STARFSMENN Í ÁHAFNAVAKTStarfssvið:- Dagleg áhafnavakt - Fylgjast með og uppfæra vinnuskrá áhafna- Samskipti við áhafnahótel - Halda utan um áætlunar- og leiguflugsskrá áhafna og áhafnir á erlendri grundu- Samskipti við viðskiptavini flugdeildar

Hæfniskröfur:- Góð menntun sem nýtist í starfi- Mjög góð enskukunnátta er nauðsynleg- Góð tölvufærni- Jákvætt hugarfar, frumkvæði og rík þjónustulund- Færni í almennum samskiptum og samvinnu - Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

Um er að ræða vaktavinnu þar sem unnið er á 12 tíma vöktum. Önnur hver vaktasyrpa er næturvakt. Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli.

Hér er um framtíðar- og sumarstörf að ræða.

Nánari upplýsingar veita:Guðni Ingólfsson, netfang: [email protected]ín Björnsdóttir, netfang: [email protected]

ICELANDAIR LEITAR AÐ ÖFLUGUM LIÐSMÖNNUM SEM HAFA ÁHUGA Á KREFJANDI STÖRFUM Í HRÖÐU

OG SÍBREYTILEGU ALÞJÓÐLEGU UMHVERFI Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI

UMSÓKNIR ÓSKAST FYLLTAR ÚT Á HEIMASÍÐU ICELANDAIR WWW.ICELANDAIR.IS/UMSOKN

EIGI SÍÐAR EN 25. FEBRÚAR.

Page 14: 2.tbl 2013

fimmtudagurinn 17. janúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR14

Kanill – Krydd fyrir heilsunaKanil þekkjum við flest

sem krydd til að bragð-bæta grautinn okkar en fæstir vita að kanill hefur verið not-

aður frá örófi alda víða um heim sem afar gagnleg lækningajurt gegn ýmsum kvillum. Síðustu árin hafa sí-fellt fleiri rannsóknir verið gerðar á kanil og notkun hans, byggð á aldagamalli þekkingu, stað-fest. Kanill er talinn hafa margvís-leg heilsubætandi áhrif á líkamann og þá sér í lagi fyrir fólk með áunna sykursýki og skert insúlínnæmni en kanill virðist koma jafnvægi á blóðsykur með því að auka fram-leiðslu insúlíns og með því að auka insúlínnæmni frumna.

Kanill hefur sýnt bakteríudrepandi virkni gegn ýmsum bakteríum, þar á meðal He-licobacter pylori magabakteríunni og einnig sveppadrepandi virkni gegn Candida albicans. Kanill hefur þar að auki krampastillandi áhrif

á meltinguna, eykur blóðflæðið í líkamanum og getur hugsanlega lækkað LDL kólesteról og þríglý-seríð. Kanill er líka talinn gagn-legur fyrir hormónakerfi kvenna og gegn kvefsýkingum. Vert er að nefna að fyrir þá sem eru á blóð-sykurslækkandi lyfjum er vissara að ráðfæra sig við fagaðila ef við-komandi notar kanil að staðaldri

í einhverju magni þar sem hann getur aukið á áhrif slíkra lyfja. Þar sem kanill inniheldur fjölda virkra efna þá er ekki ráðlagt að börn noti kanil í of miklu magni. Fyrir okkur hina þá er upplagt að nota kanil sem hluta af fæð-unni og njóta heilsubætandi eiginleika hans m.a. í hafragrautnum, í berjaboostinu, eftir-réttum, út í heitt vatn sem te, o.fl.Sætum tilveruna okkar með smá kanil!

Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir.www.facebook.com/grasalaeknir.is

www.pinterest.com/grasalaeknir

ÁsdísgrasalæKnirsKrifar

heIlsUhoRnIð

LOKAÐFöstudaginn 18. janúar 2013

Vegna jarðarfarar

Vesturbraut 14, 230 Reykjanesbæ

Hulda Guðmundsdóttir,Guðmundur Svavarsson, Sigríður V. Árnadóttir,Margrét Ágústsdóttir, Árni Ásmundsson,Skúli Ágústsson, Stella María Thorarensen,barnabörn og barnabarnabörn.

Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,

Ágúst Guðjónsson,blikksmíðameistari, Ásgarði 4, Reykjanesbæ,

verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 18. janúar kl. 14:00.

Svava Hallgrímsdóttir,Guðmundur Sigurðsson,Valgerður Sigurðardóttir,Svava Sigurðardóttir,Hallgrímur Sigurðsson,Ásdís Sigurðardóttir, Einir Guðjón Kristjánsson,barnabörn og barnabarnabörn.

Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,

Sigurður Hafstein Guðmundsson

Heiðargarði 16, Reykjanesbæ

lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fimmtudaginn 10. janúar. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju,

fimmtudaginn 24. janúar kl: 13:00

Útboð sem Samband sveitar-félaga á Suðurnesjum stóð

fyrir á akstri hópferðabifreiða til og frá Flugstöð Leifs Eiríks-sonar og átti að opna 4. jan. sl. var kært til kærunefndar útboðs-mála. Í kjölfarið var farið fram á að útboðið verði stöðvað þar til niðurstöður kærunefndar liggi fyrir. Berglind Kristinsdóttir framkvæmdarstjóri SSS vildi ekki tjá sig um málið þar sem það væri á viðkvæmu stigi. Hún segir að unnið sé að greinargerð um kæruna sem kemur út þann 18. janúar nk.Samkvæmt heimildum VF er pen-ingaleg velta á þessum rekstri árlega um milljarður króna. Í útboðinu gerir SSS ráð fyrir því að fá 35% af hverjum seldum farmiða.„Tilboð voru ekki opnuð vegna kröfu úrskurðarnefndar útboðs-mála um að stöðva útboðsferlið á meðan farið er yfir gögn,“ sagði Berglind sem vildi ekki tjá sig um efnisinnihald kærunnar. „Þetta er

á viðkvæmu stig og það þarf svo lítið að segja til þess að skemma hreinlega útboðið. Meðan þetta er í þessu ferli þá verðum við að sitja á strák okkar og tala varlega.“

Óánægja hjá rútufyrirtækj-unum með útboðið

Samkvæmt heimildum VF bárust tilboð í aksturinn frá eftirtöldum aðilum: Þingavallaleiðum ehf., Kynnisferðum ehf., SKB, Bílum og Fólki ehf., Hópbílum og Iceland excursion - Allrahanda.Samkvæmt upplýsingum sem Víkurfréttir hafa undir höndum kærðu Kynnisferðir ehf. útboð Sam-bands sveitarfélaga og voru kröfur Kynnisferða m.a. þær að auglýsa skuli útboð á nýjan leik. Einnig kemur þar fram að Kynnisferðir telji samningstíma vera of langan en hann getur mest orðið átta og hálfs árs með framlengingum, en rammasamning megi ekki gera til lengri tíma en fjögurra ára. Kynnisferðir segja að samningur-

inn sé rammasamningur um þjón-ustu en ekki sérleyfissamningur um þjónustu. Í skjalinu kemur fram að endanlega verði leyst úr öðrum kröfum kærunnar síðar.Tekið var við tilboðunum en þau ekki opnuð. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum stóð fyrir útboðinu, samkvæmt samningum við Vega-gerðina um að annast almennings-samgöngur á svæðinu. Óánægja hefur verið hjá rútufyrirtækjunum vegna útboðsins.Kynnisferðir hafa annast akstur til flugstöðvarinnar í áratugi, síð-ustu árin í samkeppni við Iceland Excursions Allrahanda, sem einnig hafa boðið upp á ferðir frá Flug-stöðinni. Fulltrúi Kynnisferða lýsti því jafnframt yfir að fyrirtækið myndi halda akstri áfram, hver sem niðurstaða útboðs yrði.

ekkert akstursleyfi í gangi– segja Allrahanda

Í bókun frá Iceland Excursions Allrahanda ehf. sem hefur undan-farin ár ekið með farþega til og frá Keflavíkurflugvelli í tengslum við komur og brottfarir segir að fyrirtækið hyggist ekki hætta að bjóða upp á þá þjónustu enda sé hún liður í íslenskri ferðaþjónustu. Þar segir að ferðir félagsins séu fullkomlega löglegar og að öllum aðgerðum sem reyni að hindra að-gengi félagsins að viðskiptavinum sínum verði mætt af fullri hörku og með öllum tilteknum löglegum ráðum. Þórir Garðarson sölu- og

markaðsstjóri hjá Allrahanda sagði í samtali við Víkurfréttir að ekkert leyfi sé í gildi varðandi akstur til og frá Flugstöðinni að þeirra mati.Þarna sé markaður sem lúti að almennum samkeppnislögum. Sérleyfi var áður fyrr á akstrinum hjá Kynnisferðum og um tíma hjá SBK þegar félagið var í eigu Reykjanesbæjar. Síðan var gefið út einkaleyfi sem gilti til aksturs innan lögsagnarumdæmis sveitarfélaga á Suðurnesjum. „Þegar það gerist þá fórum við að undirbúa okkur undir það að bjóða upp á þessa þjónustu. Sá undirbúningur tók okkur tvö ár og núna höfum við verið að keyra þessa leið síðastliðin tvö ár.“Þórir segir að eftir að Allrahanda hafi byrjað að bjóða upp á akstur milli Flugstöðvarinnar og höfuð-borgarinnar hafi verið farið í lagabreytingu sem átti að heimila sveitarfélögum akstur milli lög-sagnarumdæma. „Það getur ekki gilt um leiðir sem þegar eru komnar í samkeppni, það er andstætt Evr-ópureglum,“ segir Þórir og því hafi Allrahanda haldið áfram að bjóða upp á þessa þjónustu. Þórir segir að menn hafi vissulega skipst á skoð-unum og sitt sýnist hverjum í þessu máli en hann telur að starfsemi Allrahanda sé fullkomlega lögleg. Þjónustan sem Allrahanda býður upp á er að mestu leyti eins og hjá Kynnisferðum og njóta þeir sömu aðstöðu og allir aðrir. „Þetta er bara samkeppni,“ segir Þórir.Þórir segir að Allrahanda taki þátt

í útboðinu vegna þess að þeim þyki sanngjarnt að greiða eðlilegt gjald fyrir aðstöðusköpun og leigu við Flugstöðina og fyrir þjónustu við viðskiptavini sína. Allrahanda gerir þó ekki ráð fyrir því að vera með einkaleyfi á þjónustunni að hans sögn.

Árásir á samkeppniAðspurður um hvernig niðurstöðu Þórir vonaðist eftir í málinu, segist hann vilja sjá SSS láta af árásum á samkeppni sem er til þess gerð að sinna ferðamönnum sem koma til landsins. „Það er gjörsamlega óásættanlegur ásetningur að ætla sér að skattleggja ferðamenn sem koma til Íslands. Þetta er ekkert annað en tilburðir til einokunar og löngu liðin tíð. Það má segja að þetta sé stríðsyfirlýsing frá Sam-bandi sveitarfélaga á Suðurnesjum við samkeppni og ferðaþjónustu á Íslandi. Það væri óskandi að þetta mál myndi fjara út og menn taki sig saman um að efla ferðaþjón-ustuna.“Þórir tekur það fram að Kynnisferðir hafi ávallt sinnt þessari þjónustu vel en hins vegar sé samkeppni alltaf af hinu góða. Þórir vill meina það að Kynnisferðir séu á ólöglegum ríkis-styrk og að áfram hyggist Allra-handa bjóða upp á þessa þjónustu. „Við komum ekki til með að hætta og ef menn ætla sér að bregða fæti fyrir okkur þá verður því svarað með málaferlum.“

-Stríðsyfirlýsing SSS á ferðaþjónustu og sam-keppni, segir markaðsstjóri Allrahanda.

Kynnisferðir sem höfðu síðast sérleyfi á leiðinni kærðu útboðið. Árleg velta um milljarður króna.

n Útboð Sambands sveitarfélaga á akstri hópferðabíla til og frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar:

Útboðið kært og tilboðin ekki opnuð

Í útboðinu gerirSSS ráð fyrir því að fá 35% af hverjum seldum farmiða.

Page 15: 2.tbl 2013

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 10. janúar 2013 15

Page 16: 2.tbl 2013

fimmtudagurinn 17. janúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR16

Ísland er land þitt, og ávallt

þú geymir – Ís-land í huga þér, hvar sem þú ferð.Þetta ljóð kemst næst þjóðsöng í huga minnar kyn-slóðar. Þetta er lagið sem kemur

upp í hugann eftir erfiða fjallgöngu eða þegar horft er á fallegt sólarlag. Textinn fyllti okkur stolti yfir náttúru landsins og auðmýkt vegna krafta þess. Ísland varð tákn fyrir allt það góða sem við vildum standa fyrir.Í vikunni var samþykkt rammaáætlun um vernd og nýtingu orkuauðlinda. Margt gott er í þeirri áætlun en því miður hafa öfgasjónarmið náð þar yfirhöndinni á einstaka stað. En endurspeglar rammaáætlun það sem við raunverulega viljum sjá? Endur-speglar hún tilfinningar, skoðanir og sjálfsmynd Íslendinga? Skiptir það einhverju máli? Við sem bjóðum okkur fram til að taka ýmis konar ákvarðanir fyrir hönd almennings verðum að líta til þessara sjónarmiða. Sem fulltrúar almennings ættum við að nálgast landið með hugarfari bóndans og láta viðhorf og tilfinningar bóndans ráða afstöðu okkar. Bóndinn hugsar til framtíðar og gerir sér grein fyrir því að aðrir muni nýta landið á eftir honum og því ber honum skylda til þess að halda því í góðu horfi á meðan hann fer með það. Bóndinn er þannig vörslumaður landsins á meðan hans nýtur við. Bóndinn vill líka nýta landið, en þegar ónýtt land

er tekið til nýtingar, eiga það að vera bestu not.Bóndinn hugsar ekki eins og nútíma bankamaður, allt verður að skila arði í hvelli. Í rauninni lítur góður bóndi hugsunarhátt bankamannanna horn-auga. Hann hugsar til lengri tíma og honum er ekki sama, hvernig gróð-inn kemur til. Bóndinn ber virðingu fyrir landi sínu, veit, að það stendur, þótt hann hverfi á braut, og hann vill ekki láta annað um sig spyrjast en hann hafi leitast við að fara vel með sitt land.Brýnt er að á næsta kjörtímabili verði lögð áhersla á frekari rannsóknir á náttúrufari og menningarverðmæt-um þeirra svæða sem ekki hafa verið fyllilega rannsökuð. Nánari rann-sóknir og vöktun á svæðum eru mikilvægar til þess að hægt verið að gera sér grein fyrir áhrif landmótunar og nýtingar á landið okkar. Nú þegar hafa okkar færustu vísindamenn bent á að sum svæði eru ofnýtt og því þarf að skoða betur áætlun þeirra það á t.d. við um háhitasvæðin á Reykja-nesi.Landið er ekki hér bara til þess að skapa okkur stundargróða, það er hér fyrir okkur og framtíðina – og auðvitað vitum við minnst um það, hvernig það kann að vera hagnýtt í framtíðinni. Okkur ber að umgangast það af nærgætni á meðan við gæt-um þess – og treysta á þá, sem á eftir okkur koma. Leiðsögn okkar skiptir máli fyrir framtíðina.

Inga Sigrún Atladóttir,guðfræðingur og bæjarfulltrúi.

2. sæti á lista VG í Suðurkjördæmi

Í heimsóknum mínum í fyrir-

tæki og stofnanir í Reykjanesbæ á síðustu dögum hef ég tekið betur eft ir þv í hvað mi k i l l k r aftur e r í m ö r g u m fyrirtækjum og

sprotum nýsköpunar á svæðinu. Mörg fyrirtækjanna bíða eftir stærri verkum og menn vilja sjá verkefni lengra fram í tímann. Síðustu ár hafa verið ströggl en menn segja að núna vori í þjóðfélaginu. Það bíða allir eftir kosningunum í vor og breytingum í kjölfarið.Ég heimsótti Bryndísi Einarsdóttur skólastjóra í Bryn Ballett Akademí-una á Ásbrú. Þar má sjá hvernig alúð, smekkvísi og næmt auga fyrir gömlum hlutum hefur breytt kaldri vopnageymslu í lifandi skóla og hlýlegan vinnustað. Merkilegt að þetta fræ sem er að spíra sé eini viðurkenndi listdansskólinn á lands-byggðinni og hann er á Ásbrú. Bryn Ballett Akademían er viðurkenndur af mennta- og menningarmálaráðu-neytinu til kennslu í listdansi á grunn- og framhaldsskólastigi. Þar er hægt að útskrifast sem listdansari til stúdentsprófs í samvinnu við Fjöl-brautaskóla Suðurnesja. Í skólanum starfar einnig forskóli fyrir yngri kynslóðina og almenn braut. Þrátt fyrir viðurkenningu ráðuneytisins hefur skólinn ekki fengið framlög frá ráðuneytinu vegna framhaldsskóla-stigsins. Í fjármálaráðuneytinu hefur

skort á skilning fyrir þessari menntun hér á svæðinu og við verðum að leggjast á árarnar með skólanum og krefja ráðuneytið um jafnræði við aðra sambærilega skóla. Ég hef sagt það áður að við höfum verk að vinna fyrir Suðurnes.Skólanámskrá BRYN tók breytingum frá og með haustinu 2011 til sam-ræmis við kröfur menntamálaráðu-neytisins um kennslu í listdansi. Boðið er upp á fjölbreytt og metn-aðarfullt nám við skólann, en um tvö hundruð nemendur sækja nám í list-dansskólann frá þriggja ára aldri og upp úr. Listdansskólanum er skipt í fjórar námsleiðir: Klassíska listdans-braut, nútímalistdansbraut, tóm-stundabraut og forskóla.Við skólann starfa sautján manns: fjármálastjóri, námsstjóri, danskenn-arar, aðstoðarstúlkur í verslun og fleiri auk skólastjóra sem jafnframt er ballettmeistari. Einnig heimsækja ýmsir gestakennarar skólann yfir skólaárið.Hér er fræ sem þarf að hlúa að og þeir sem vilja efla menntun og atvinnu á Suðurnesjum sjá hér tækifæri til þess. Þar duga ekki innantóm orð um stuðning við konur í nýsköpun. Ég mun sem þingmaður, fái ég til þess stuðning, sýna það í verki að ég stend með nýsköpun og sprotum sem þarf að hlúa að. Ég mun láta verkin tala í því eins og öðru sem ég tek mér fyrir hendur.

Ásmundur FriðrikssonSækist eftir 3. sæti á lista

Sjálfstæðisflokksinsí Suðurkjördæmi 26. jan. nk.

Su ð u r k j ö r -dæmi er eitt

öflugasta kjör-dæmi landsins og hefur alla mögu-leika til að verða e n n ö f l u g r a . Saman getum við nýtt þau tækifæri sem kjördæmið

hefur upp á að bjóða. Við byggjum framtíð okkar á traustum grunni með mikið af ónýttum tækifærum. Má þar helst nefna þá fjölgun starfa sem mun fylgja frekari fullvinnslu á sjávarafurðum, frekari uppbygg-ingu í ferðaþjónustunni, uppbygg-ingu í tenglsum við orkunýtingu og nýsköpun í landbúnaði.Í þessari uppbyggingu megum við ekki gleyma grunninum að því að þetta gangi upp, sjálfri grunnþjón-ustunni. Hana þurfum við að efla um allt kjördæmið. Lögreglan hefur verið fjársvelt og er svo komið fyrir henni nú að hún getur ekki sinnt lögbundnu hlutverki sínu sem er að tryggja öryggi íbúanna. Heilsugæslan er lömuð vegna manneklu og ein-kennist af löngum biðlistum. Margir íbúar kjördæmisins þurfa síðan að fara um langan veg til að sækja heilsugæslu sem kostar bæði tíma og peninga. Þessar aðstæður auka svo álagið á þá fáu starfsmenn sem eru eftir og um leið eru laun þeirra skorin við nögl. Þetta hefur þær af-leiðingar að verkefnum fjölgar alls staðar í heilbrigðis- og öryggiskerf-inu. Þjónustuskerðing á sjúkrahús-unum fjölgar sjúkraflutningum og einnig verkefnum lögreglu. Fækkun lögreglumanna leiðir til aukins álags á björgunarsveitirnar. Við getum ekki endalaust níðst á þreki og fórnfýsi björgunarsveitanna sem nýta sín orlof í sjálfboðavinnu. Undanfarið hefur verkefnum björgunarsveita verið að fjölga samhliða því að fjármögnun þeirra hefur orðið erfiðari. Hvað gerum við þegar hjúkrunar-

fræðingar, læknar, lögreglumenn, sjúkraflutninga- og slökkviliðs-menn, björgunarsveitafólk og fleiri láta undan álaginu? Þetta fólk á líka heimili sem mörg hver eru í fjárhags-vanda og maki jafnvel atvinnulaus. Þetta fólk veit líka vel hversu alvarleg staðan er innan þessara málaflokka og vill því flytja sig um set.Ég hef kynnst þessu af eigin raun sem lögreglumaður í tæp 10 ár, stjórnar-maður í landssambandi lögreglu-manna í fjögur ár og sem verðandi faðir í tvígang sl. 3 ár. Það var búið að skerða fæðingaþjónustuna til muna á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja á milli þessarra tveggja fæðinga. Við fundum hvað þessi þjónustuskerðing olli okkur miklu óöryggi og vitum að samgöngur hjá okkur eru mun betri en víðast hvar í kjördæminu. Ég tel að hliðra megi til í embættis-mannakerfinu þannig að breyta megi forgangsröðuninni. Við þurfum að byrja á að efla grunnþjónustuna og draga frekar úr vægi minna mikil-vægari starfsemi ríkisins.Ég hef mikinn áhuga á að fylgja þessum málum eftir af krafti. Því hef ég ákveðið að bjóða mig fram í próf-kjöri Sjálfstæðisflokksins vegna kom-andi alþingiskosninga. Sú nánd sem við íbúar Suðurkjördæmis höfum við grunnatvinnuvegina, 10 ára starfs-reynsla sem lögreglumaður og það að vera tveggja barna faðir með verðtryggt íbúðarlán verður mikil-vægt veganesti í störfum mínum sem þingmaður. Það er einlæg von mín að þið viljið vinna að þessum verkefnum með mér og styðja mig í 4. sæti í prófkjörinu þann 26. janúar næstkomandi.

Vilhjálmur Árnason, lögreglumaðurwww.villiarna.is

Kjörtímabilið sem senn er

á enda hefur ein-kennst af miklum á t ö k u m o g hörðum deilum um stór mál. Ég hef sérstaklega lagt áherslu á b a r á t t u g e g n

aðildarumsókninni að Evrópusam-bandinu, orkumál, efnahagsmál, skuldavanda heimilanna og síðast en ekki síst atvinnumál. Ég vil halda áfram að vinna að þessum málum og óska því eftir stuðningi í 2. sæti í komandi prófkjöri Sjálfstæðis-flokksins í Suðurkjördæmi.

Hvað hefur verið gert?Á kjörtímabilinu og hef ég ítrekað kallað eftir svörum við því hvaða stefnu ríkisstjórnin hafi í atvinnu-málum. Öllum þingmönnum kjör-dæmisins hefur verið ljóst að átaks er þörf, sérstaklega á Suðurnesjum. Þingmannahópurinn hefur reynt að beita sér í sameiningu og m.a. fundað reglulega um framgang mála vegna Álversins í Helguvík. Að mínu mati hafa stjórnvöld brugðist Suðurnesja-mönnum í þessum málaflokki. Útspil ríkisstjórnarflokkanna var að kynna átak í atvinnusköpun fyrir Suðurnes á ríkisstjórnarfundi í Reykjanesbæ 9. nóvember 2010. Í október sl. beindi ég fyrirspurn til forsætisráðherra um hver væri staða þeirra verkefna sem boðuð voru á þeim fundi og hversu mörg störf átakið hefði skapað. Í svari forsætisráðherra kemur eftir-farandi fram: „Erfitt getur verið að meta nákvæmlega fjölda starfa sem verkefnunum tengjast, t.d. þar sem m.a. var ráðist í almennar aðgerðir, svo sem breytingar á skattalöggjöf og stofnun atvinnuþróunarfélags. Fyrir liggur að nú þegar hafa skapast 40–50 störf sem beint má tengja einstökum verkefnum en ekki er unnt að leggja mat á öll afleidd störf. Hins vegar er rétt að benda á að atvinnuleysi hefur

lækkað hlutfallslega mest á Suður-nesjum undanfarin tvö ár. Í nóvem-ber árið 2011 mældist atvinnuleysi á Suðurnesjum 12,9% og þá voru 1.384 á atvinnuleysiskrá en í október 2012 mældist atvinnuleysi þar 7,8% og 834 eru á atvinnuleysisskrá. Áfram verður fylgst með framgangi mála og einstakra verkefna á svæðinu.“Í nóvember 2012 mældist atvinnu-leysi á Suðurnesjum 9,593% en á landinu öllu 5,431% þannig að öllum má vera ljóst að enn er vandinn ekki leystur þrátt fyrir þau 40-50 störf sem forsætisráðherra telur átak ríkis-stjórnarinnar hafa skapað. Það að at-vinnuleysi hafi minnkað hlutfallslega mest á Suðurnesjum leysir ekki vanda þeirra sem enn eru án atvinnu.

Við getum gert beturÁ kjörtímabilinu hefur verið unnið að því að koma Rammaáætlun um nýtingu og vernd vatnsafls og jarð-varma í gegnum Alþingi en ég var skipuð í verkefnisstjórn um Ramma-áætlun árið 2007. Með gerð Ramma-áætlunar var ætlunin á grundvelli faglegrar vinnu að skapa sátt um hvar æskilegt er að virkja og hvar æskilegt sé að vernda. Ég hef trú á því að sú aðferðafræði gefist best fyrir þjóðina til lengri tíma litið og ég mun áfram berjast fyrir því að slík Rammaáætlun verði samþykkt á Alþingi. Sú tillaga sem ríkisstjórnarflokkarnir lögðu fram víkur hins vegar í veigamiklum atriðum frá hinni faglegu niður-stöðu s.s. vegna virkjana í neðri hluta Þjórsár og kallar því á breytingar.

Ég held því fram að við séum rík þjóð. Við eigum miklar auðlindir bæði í sjó og á landi sem við eigum að nýta á skynsaman hátt. Nýting auðlinda er forsenda þess að við náum að byggja upp öflugra atvinnulíf og þar með aukinn kaupmátt heimilanna.

Unnur Brá KonráðsdóttirHöfundur er þingmaður Sjálf-

stæðisflokksins í Suðurkjördæmi

[email protected]ÓSTKASSINNn Ásmundur friðriksson skrifar:

Sýnum stuðningvið nýsköpun í verki

n inga sigrún atladóttir skrifar:

Ísland er land þitt

n unnur brÁ konrÁðsdóttir skrifar:

Mínar áherslur – atvinnumál

n vilhjÁlmur Árnason skrifar:

Treystum grunninn meðöflugri grunnþjónustu

3.3.3.Munum að setja Ásmund í 3. sætií prófkjöri sjálfstæðismanna26. janúar 2013.

www.asmundurf.is

Ásmundur Friðriksson

sæti

Ég styðÁsmund Friðriks-

son í 3. sætið

Á Suðurnesjum er rekinn öflug útgerð og fiskvinnsla

sem vantar öfl-ugan málsvara á Alþingi. Mikil gróska er í upp-byggingu land-vinnslunnar en í Sandgerði og Reykjanesbæ er

verið að standsetja einar 5 fisk-vinnslur. Hráefnisþörf fyrirtækj-anna verður um 15.000 tonn á ári og búast má við hundruðum nýrra starfa ef rétt verður á spil-unum haldið.Lífsviðurværi þessara félaga mun að mörgu leyti ráðast af framboði fiskmarkaðanna og því mikil-vægt að treysta og auka framboð á hráefni í gegnum fiskmarkaði. Suðurnes er eitt fárra landsvæða þar sem keypt er meira magn af fiskmörkuðum til svæðisins en selt er frá því. Fiskmarkaðir eru okkur því mikilvægir og vægi þeirra eykst með tilkomu fleiri og stærri fiskvinnslustöðva. Fiskmarkaðir skapa líka fjölda starfa.Ég treysti Ásmundi vel til þess að leiða þá baráttu að efla fisk-markaðina enda er hann ákveð-inn og fylginn sér. Sjálfur hefur Ásmundur rekið fiskvinnslu og þekkir hann því vel til í þessum málum. Reynsla hans af sveita-stjórnarstörfum þar sem baráttan um fleiri störf í sjávarbyggðunum er lífsspursmál mun vega þungt á Alþingi Íslendinga.Það er okkur Suðurnesjamönnum mikilvægt að fá öflugan talsmann sem þorir og getur látið til sín taka.Ég treysti Ásmundi til góðra verka og styð hann i 3. sætið.

Gunnar Örn ÖrlygssonFiskútflytjandiReykjanesbæ

Söfnun fyrir Katrínu og

dætur hennarÞann 1. nóvember síðastliðinn

féll ungur maður Halldór Nils-son skyndilega frá. Hann skildi eftir sig eiginkonu, Katrínu Aðalsteins-dóttur, fósturdóttur, Guðbjörgu Emilíu 5 ára og ófæddar tvíbura-dætur. Litla fjölskyldan var skilin eftir í sárum og horfði þarna á eftir yndislegum eiginmanni og fóstur-föður. Aðal fyrirvinnan á heimilinu var fallin frá og var ákveðið að stofna styrktarreikning til styrktar Katrínu og dætrum hennar.Þann 6. janúar síðastliðinn fæddust svo dætur Katrínar og Halldórs eftir aðeins 25 vikna og 4 daga meðgöngu. Þóra Margrét var 676 g og 31,5 cm og Halldóra Gyða var 730 g og 33 cm. Þeim mæðgum heilsast vel og það er alveg ótrúlegt hvað það hefur gengið vel með þær frá því að þær fæddust.Næstu mánuðir eiga þó eftir að reyna mikið á Katrínu, gert er ráð fyrir að tvíburarnir verði á vökudeild LSH í að minnsta kosti 3 mánuði. Katrín hefur fengið leigða íbúð í Reykjavík á vegum barnaspítalans en hún þarf líka að vera dugleg að keyra á milli Reykjavíkur og Reykjanesbæjar til að vera með eldri dóttur sinni Guð-björgu Emilíu.Í ljósi þessara aðstæðna hafa vinir Katrínar ákveðið að endurvekja söfn-unina til að koma til móts við aukinn kostnað fjölskyldunnar.Reikningsnúmer söfnunar fjöl-skyldunnar er: 0121-05-407271, kt. 010483-4849.

Page 17: 2.tbl 2013

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 10. janúar 2013 17

Við bjóðum fjölbreytileg og skemmtileg störf í spennandi umhverfi flugheimsins.IGS leitar að öflugum einstaklingum í fjölbreytileg og skemmtileg störf hjá fyrirtækinu.Um er að ræða störf í Flugeldhúsi, Cateringu, Frílager, Frakt, Farþegaafgreiðslu, Hlaðdeild, Hleðslueftirliti, Ræstideild og Veitingadeild.Mikil áhersla er lögð á þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum, reglusemi,stundvísi, sveigjanleika og árvekni. Unnið er á vöktum.

Umsækjendur þurfa í sumum tilfellum að vera tilbúnir til þess að sækja undirbúningsnámskeið og standast próf, áður en til ráðningar kemur. Ráðningartími er breytilegur allt frá apríl til nóvember 2013.

Nánari upplýsingar um aldurstakmark og hæfniskröfur:

CATERING Starfið felst m.a. útkeyrslu og annarri tengdri þjónustu sem fer um borð í flugvélar. Lágmarksaldur 20 ár, almenn ökuréttindi, vinnuvélaréttindi æskileg ,enskukunátta

FRÍLAGER Lágmarksaldur 20 ár, tölvu- og enskukunnátta.

ELDHÚS Lágmarksaldur 18 ár, íslensku- og/eða enskukunnátta.

VEITINGADEILD Lágmarksaldur 20 ár, góð tungumálakunnátta.

FRAKTMIÐSTÖÐ Lágmarksaldur 19 ár, tölvukunnátta, almenn ökuréttindi, vinnuvélaréttindi æskileg, enskukunnátta.

FARÞEGAAFGREIÐSLA Starfið felst m.a. í innritun farþega og annarri tengdri þjónustu við þá. Lágmarksaldur 20 ár, stúdentspróf æskilegt en ekki skilyrði, góð tungumála-og tölvukunnátta. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir til þess að sækja undirbúningsnámskeið

HLAÐDEILD Lágmarksaldur 19 ár, almenn ökuréttindi, vinnuvélaréttindi æskileg, enskukunnátta.

RÆSTING FLUGVÉLA Lágmarksaldur 18 ár, almenn ökuréttindi, enskukunnátta.

HLEÐSLUEFTIRLIT Lágmarksaldur 20 ár, stúdentspróf æskilegt, góð tungumálakunnátta og tölvukunnátta. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir til þess að sækja undirbúningsnámskeið.

SUMARSTÖRF HJÁ IGS 2013

Umsóknum er skilað inn rafrænt á heimasíðu IGS sjá www.igs.is fyrir 5. febrúar 2013

Page 18: 2.tbl 2013

fimmtudagurinn 17. janúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR18

Sjálfhverfur – sá sem hyggur mest að sjálfum sér, sérhygginn (skv. íslenskri orðabók).Á það til að detta í sjálfhverfu en þá tek ég inn á mig hluti sem ég á ekkert í, les kolvitlaust í aðstæður og bregst við eftir því. Þetta hefur komið mér í vandræði og hefur hvarflað að mér að samkvæmt kenn-ingum Eriksson varðandi félagsþroska hafi ég staðnað á einhverju stiginu.

Þegar ég fór í nám í RVK á sínum tíma þurfti ég að finna mér nýjan hárgreiðslumeistara. Flestar kon-ur eru meðvitaðar um að þetta er mjög vandasamt verk því fyrir utan að sjá um hárið á manni þarf manni að líka sæmilega við meistarann því maður hleypir ekki hverjum sem er í hárið á sér eða inn í líf sitt. Já það á sér nefnilega stað ákveðin meðferð í stólnum hjá meistaranum – sem í besta falli báðir aðilar græða á. Ég valdi vel og var svo heppin að ég eignaðist góðan vin í meistar-

anum mínum. Samræðurnar voru djúpar, oft á tíðum mjög gagnlegar og ósjaldan vorum við með svör við ráðgátum lífsins þegar ég stóð upp úr stólnum. Einu sinni sem oftar pantaði ég tíma hjá honum en þar sem ég var nemi á þessum árum og fjárráðin í samræmi við það þurfti ég að afpanta tímann. Hann fékk skilaboðin frá móttökunni og hringdi um hæl – það kæmi ekki til greina að fresta tímanum, ég gæti bara borgað þegar ég hefði efni á því.

Ég var ánægð og þakklát og gerði eins og um var samið, setti peningana í umslag um mánaðamótin og skildi eftir í mót-tökunni. Líður svo og bíður og það kemur

að næsta tíma. Ég sest í stólinn en það var allt breytt. Meistarinn minn var ekki eins og hann átti að sér að vera og ég skildi ekki neitt í neinu. Samræðurnar voru frekar einræða af minni hálfu og engin dýpt eins og vanalega, engar ráðgátur leystar. Ég fór að hugsa (sem þýðir oft vandræði) og VISSI strax hvað hafði gerst. Hann hafði pottþétt ekki fengið að vita að ég kom og borgaði fyrir klippinguna og hélt að ég mætti svo aftur eins og ekkert hefði í skorist og ætlaðist til að við héldum „sam-bandinu“ áfram. Ég hugsaði: úff, hér sit ég í stólnum og hann örugglega miður sín vegna „framkomu“ minnar.

Ég hafði það ekki í mér að LEIÐRÉTTA þetta á staðnum. Ég fór heim og hugsaði meira (sem ég á alls ekki að gera) og komst að því að best væri að ég skrifaði honum bréf þar sem ég útskýrði fyrir honum að ég hafi vissulega komið um mánaðamótin og borgað skuldina en það væri ekki óeðlilegt að hann hafi misskilið þetta ef hann fékk

ekki réttar upplýsingar. Ég var heillengi að skrifa bréfið, það var upphaf, dramatísk miðja um mikilvægi heiðarleika þegar kemur að vinskap og svo kærleiksríkur endir. Því næst hringdi ég í móttökuna og bað móttökustjórann (sem var reyndar vinkona mín) um netfangið hjá vini mínum kæra. Hún lét mig fá það en spyr svo; bíddu eruð þið núna farin að skrifast á?? Ég útskýrði hratt mína kenningu ,,sko, ég kom í klippingu og hafði ekki efni á að borga, en gerði það um mánaðamótin, en hann hefur pottþétt ekki fengið að vita það og heldur núna að ég sé óheiðarleg frekjudolla sem kem og hlamma mér í stólinn og minnist ekki á skuldina.....verð að útskýra fyrir honum að hann hefur misskilið þetta allt“.

Það varð smá þögn á hinum enda línunnar, svo segir vinkonan; Anna Lóa, ég held að það sé ekki hann sem er að misskilja, datt þér einhvern tímann í hug að þetta snerist alls ekki um þig! Hann er búinn að vera niðurdreginn í svolítinn tíma – vissir þú ekki að hann var að skilja!

Þarna var komið að mér að þegja.....í smá stund. Kreisti svo upp tilgerðalegan hlátur og sagði; hva, AUÐVITAÐ var hann að skilja, það er ekki eins og ég sé búin að vera velta mér upp úr þessu. Jæja esskan, er ekki annars allt í góðu hjá þér.......

Ég náði botninum í sjálfhverfu einmitt þarna – engin leið nema upp á við eftir þetta!

Þangað til næst – gangi þér vel!Anna Lóa

Fylgstu með mér – http://www.facebook.com/Hamingjuhornid

Ég, um mig, frá mér...

ANNA LÓAÓLAFSDÓTTIRSKRIFAR

HamIngjUHoRnIðAnna Lóa

Á það til að detta í sjálfhverfu en þá tek ég inn á mig hluti sem ég á ekkert í, les kolvitlaust í að-stæður og bregst við eftir því.

VIÐ LEITUM AÐ DRÍFANDI MARKAÐSMANNI

Markaðsstofa Suðurnesja leitar að metnaðarfullum og öflugum verkefnastjóra markaðsmála.

Markaðsstofa Suðurnesja er sjálfseignarstofnun sem starfar náið með Heklunni, atvinnuþróunarfélagi Suðurnesja, ferðaþjónustufyrirtækjum, stuðningsstofnunum og sveitarfélögum á Suðurnesjum að markaðssetningu svæðisins,eflingu ferðaþjónustu, fjölgun ferðamanna og lengingu dvalar þeirra með heildarhagsmuni atvinnulífsins og samfélagsins á Suðurnesjum að leiðarljósi.

Umsóknarfrestur er til og með 27. janúar nk.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.Umsóknir skal senda til Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum/Heklunnar, Skógarbraut 945, 235 Reykjanesbæ, merktar „Markaðsstofa Suðurnesja – Verkefnastjóri“.

Allar frekari upplýsingar gefur Ásbjörn Björgvinsson [email protected] og Berglind Kristinsdóttir [email protected].

Helstu verkefni:• Dagleg stjórnun og rekstur Markaðsstofu Suðurnesja• Gerð verkefna- og fjárhagsáætlana í samvinnu við stjórn og hagsmunaaðila• Frumkvæði og umsjón með kynningar- og markaðsmálum • Samskipti við hagsmunaaðila, samstarfs- og stuðningsstofnanir • Skipulagning og þátttaka í sýningum og ráðstefnum innanlands og erlendis• Umsjón með heimsóknum blaðamanna og ferðaskrifstofa• Yfirumsjón með vefsíðu og samfélagsmiðlum Markaðsstofunnar

Menntunar- og hæfniskröfur:• Háskólamenntun sem nýtist í starfi• Reynsla af markaðs- og kynningarmálum mikilvæg• Metnaður í starfi ásamt leiðtoga- og skipulagshæfileikum• Mjög góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar• Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni til að tjá sig á þessum málum (önnur tungumál kostur)

• Góð tölvukunnátta og þekking á notkun samfélagsmiðla

Töluvert um hálkuslys

Fjögur umferðaróhöpp urðu vegna hálku um helgina í

umdæmi lögreglunnar á Suður-nesjum. Ökumaður sem ók eftir Garðskagavegi missti stjórn á bifreið sinni með þeim afleið-ingum að hún valt. Annar ók út af milli Voga og Kúagerðis. Þriðji ökumaðurinn ók utan í vegrið á Flugvallarvegi og sá fjórði missti stjórn á bifreið sinni á hring-torgi með þeim afleiðingum að hún fór upp á torgið og á um-ferðarskilti sem þar var. Ekki urðu alvarleg meiðsl á fólki en talsvert tjón á ökutækjunum.Þá var ekið á tvær mannlausar bifreiðar og létu þeir sem það gerðu sig hverfa, án þess að gera vart við sig. Lögregla hafði fljótlega upp á öðrum þeirra og hitt málið er í rannsókn.

Fann fíkniefni íbílnum eftir að hafa lánað hann

Lögreglunni á Suðurnesjum hefur að undanförnu verið

tilkynnt um tvo fíkniefnafundi. Í öðru tilvikinu fann öryggis-vörður hjá Securitas lítinn poka, með kannabisefnum í, fyrir utan verslun í umdæminu. Í hinu tilvikinu fann borgari nokkurt magn af kannabisefnum í bifreið sinni, sem hann hafði lánað, en fékk til baka með plastpoka með efnunum í. Lögregla tók efnin í sína vörslu og rannsakar málin.Lögreglan minnir á fíkniefnasím-ann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál.

Page 19: 2.tbl 2013

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 10. janúar 2013 19

SUZUKI Grand vitaraÁrgerð 2009, díselEkinn 53.000 km, beinskiptur

AUDI Q7 quattro premiumÁrgerð 2007, bensínEkinn 107.000 km, sjálfsk.

OPEL ZafiraÁrgerð 2006, díselEkinn 101.000 km, sjálfsk.

SKODA SuperbÁrgerð 2011, díselEkinn 69.000 km, sjálfsk.

MMC Pajero sportÁrgerð 2006, díselEkinn 176.000 km, beinsk.

HONDA JazzÁrgerð 2011, bensínEkinn 40.000 km, sjálfsk.

VW GolfÁrgerð 2010, bensínEkinn 55.000 km, beinsk.

HYUNDAI I 30Árgerð 2010, bensínEkinn 71.000 km, beinsk.

VW PoloÁrgerð 2011, bensínEkinn 45.000 km, sjálfsk.

VW TiguanÁrgerð 2012, díselEkinn 32.000 km, sjálfskiptur

Ásett verð

5.250.000,-

VW Transporter kasten. Árgerð 2007, díselEkinn 121.000 km, beinsk.

VW CrafterÁrgerð 2007, díselEkinn 150.000 km, beinsk.

VW Golf trendline 1,4Árgerð 2010, bensínEkinn 65.000 km, beinsk.

Ásett verð

1.650.000,- +VSK

Ásett verð

2.950.000,-Ásett verð

2.490.000,-

Ásett verð

3.550.000,-

Ásett verð

4.900.000,-

Ásett verð

2.120.000,-

Ásett verð

2.690.000,-

Ásett verð

4.200.000,-

Ásett verð

1.840.000,-

Ásett verð

2.590.000,-

Ásett verð

1.550.000,-

Ásett verð

2.390.000,-

Njarðarbraut 13 Reykjanesbæ Sími 420 3040

ÚRVALSNOTAÐIR BÍLAR

í REYKJANESBÆKomdu til okkar á Njarðarbraut 13 og prófaðu einn af

gæðingunum í notuðum bílum. Sölumenn taka vel á móti þér!

Page 20: 2.tbl 2013

fimmtudagurinn 17. janúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR20

Jens Valgeir Óskars-son er 18 ára Grind-

víkingur sem stundar nám á félagsfræðibraut í FS. Jens segir það vera bullandi leyndarmál hvað hann ætli sér að gera í framtíðinni en hans aðaláhugamál er körfubolti og því aldrei að vita hvort hann ætli sér fram á því sviði. Jens er FS-ingur vik-unnar hjá Víkurfréttum að þessu sinni.

Af hverju valdir þú FS?Vegna þess að ég vil bara hafa þetta stutt ferðalag.

Hvernig finnst þér félagslífið í skólanum?Félagslífið er bara mjög fínt.

Áhugamál?Körfubolti.

Hvert er stefnan tekin í framtíðinni?Það er bullandi leyndarmál.

Ertu að vinna með skóla?Nei.

Hver er best klæddur í FS?Egill Birgisson, af hverju að koma í úlpu

ef þú getur verið í 2 hettupeysum?

Hvað er skemmtilegast við skólann?Líklega bara félagsskapurinn.

Hvar hangirðu í eyðum og frímínútum?Grindavíkurborðið er minn heima-

völlur í eyðum og frímínútum.

Stundarðu íþróttir eða ert í öðrum tómstundum?

Ég stunda körfubolta.

Hvað borðar þú í morgunmat?Eggjahræran er í miklu uppáhaldi þessa dagana.

Hvaða FS-ingur er líklegurtil þess að verða frægur?

DJ big baby, sem er hann Egill Birgis-son eða fótboltahetjan Arnór Ingvi.

Hvað fær þig til að hlæja?Ólafur Ólafsson getur fengið mig til

að hlæja, mjög erfitt að einbeita sér að skjóta vítum á æfingum með honum.

Hvað er heitasta parið í skólanum?Bjarki Valdimars og Lovisa eru

svakalega ástfangin.

Hverju myndirðu breyta ef þúværir skólameistari FS?

FS er flottur eins og hann er.

Eftirlætis:

SjónvarpsþættirEr ekki mikið í þeim en ég reyni alltaf

að horfa á pepsi-mörkin á sumrinVefsíður

karfan.is og facebbokFlík

Úlpan kemur að góðum notumSkyndibiti

Langbest og American styleKennari

Símon og Atli Þorsteins eru fagmennFag

Passa þettaTónlistin

Ég get hlustað á allt, íslensk tón-list er orðin hrikalega góð

Hvað tónlist fílarðu í laumi (guilty pleasure)?Úff, Justin Bieber er nettur en Justin Timberlake er nettari

FS-INGUR VIKUNNAR

EFTIRLÆTIS...

Valþór Pétursson er nem-andi í 9. bekk í Holta-

skóla. Áhugamál hans eru leiklist, ræktin, fótbolti og kvenmenn og segir að þau merkilegustu sem hann hefur hitt eru þau nánustu.

Hvað gerirðu eftir skóla?Tölvuna og borða en á samt að fara beint að læra en...Hver eru áhugamál þín?Leiklist, ræktin, fótbolti og svo kvenmenn.Uppáhalds fag í skól-anum?Íþróttir og val eru uppáhalds fögin.En leiðinlegasta?Klárlega samfélagsfræði.Ef þú gætir hitt einhvern frægan, hver væri það?Get ekki valið á milli tveggja. En Það væru þeir Cory Mon-teith sem leikir Finn Hudson í

Glee og Avicii.Ef þú gætir fengið einn ofurkraft hver væri hann?Að getað galdrað.Hvað er draumastarfið í framtíðinni?Stefni hátt í leiklist...Hver er frægastur í sím-anum þínum?Ef að „frægastur“ gildir þá er

það Emmsjé Chongari haha.Hver er merkilegastur sem þú hefur hitt?Það eru bara þeir nánustu.Hvað myndirðu gera ef þú mættir vera ósýnilegur íeinn dag?No comment.Hvernig myndirðu lýsa fatastílnum þínum?Hann er misjafn.Hvernig myndirðu lýsa þér í einni setningu?Ekki gefast upp.Hvað er skemmtilegast við Holtaskóla?Bara að flestir eru vinir og að Holtaskóli er svo lang bestur í skólahreysti haha.Hvaða lag myndi lýsa þér best?Not giving inHvaða sjónvarpsþáttur myndi lýsa þér best?Er ekki viss.

Besta:Bíómynd?End Of WatchSjónvarpsþáttur?Glee, How I Met Your Mother og The Middle.Tónlistarmaður/Hljómsveit?Klárlega Avicii.Matur?Flest allt kjöt!Drykkur?Fresca er besti drykkurinn.Leikari/Leikkona?Það mun vera Ólafur Darri.Lið í ensku?Manchester UnitedLið í NBA?Boston CelticsVefsíða?Skoða aðallega vf.is, visir.is og svo er það Facebook...

Bryndís Björk Sveins-dóttir er nemandi í 9.

bekk í Holtaskóla. Hún fær sér að borða, lærir og fer á æfingar eftir skóla. Henni finnst íþróttir og stærfræði skemmtilegustu fögin í skól-anum og langar að verða arkitekt eða hárgreiðslukona í framtíðinni.

Hvað gerirðu eftir skóla?Ég fæ mér að borða, læri og fer á æfingar.Hver eru áhugamál þín?Fimleikar er helsta áhuga-málið mitt.Uppáhalds fag í skólanum?Íþróttir og stærðfræði eru þau skemmtilegustu.En leiðinlegasta?Íslenska og samfélagsfræði haha.Ef þú gætir hitt einhvern frægan, hver væri það?Klárlega Chris Brown.

Ef þú gætir fengið einn ofurkraft hver væri hann?Að geta flogið yrði frekar gaman.Hvað er draumastarfið í framtíðinni?Mig langar að verða arkitekt eða hárgreiðslukona í fram-tíðinni.Hver er frægastur í sím-anum þínum?

Malla Friðriksdóttir.Hver er merkilegastur sem þú hefur hitt?Örugglega bara Jón Jónsson eða eitthvað.Hvað myndirðu gera ef þú mættir vera ósýnileg í einn dag?Ég myndi fara til New York.Hvernig myndirðu lýsa fatastílnum þínum?Bara frekar venjulegur.Hvernig myndirðu lýsa þér í einni setningu?Glaðleg, hress og íþrótta-stelpa.Hvað er skemmtilegast við Holtaskóla?Félagsskapurinn.Hvaða lag myndi lýsa þér best?Let Me Love You með Ne-Yo.Hvaða sjónvarpsþáttur myndi lýsa þér best?Friends haha.

Besta:Bíómynd?Stick It haha, hún er fimleika-mynd.Sjónvarpsþáttur?Friends, klárlega.Tónlistarmaður/Hljóm-sveit?Það eru svo margir en ég er komin með æði fyrir One Direction síðustu mánuðina haha.Matur?Skólastjórasúpan sem mamma gerir.Drykkur?Vatn er alltaf best.Leikari/Leikkona?Josh Hutchersson.Fatabúð?Forever 21 og H&MVefsíða?Facebook og tumblr.

stefni hátt í leiklist

Friends lýsir mér best

n Valþór Pétursson // UNG

n bryndís björk sVeinsdóttir // UNG

UMSjóN: PÁLL oRRI PÁLSSoN • [email protected]

UMSjóN: PÁLL oRRI PÁLSSoN • [email protected]

Timberlake nettari en Bieber

Instagram: #vikurfrettir

Instagram: #vikurfrettir

Knattspyrnu- og körfuboltafólk sameinaði í annað sinn krafta sína

og bauð upp á þorrablót Keflavíkur tveimur vikum fyrir þorra samkvæmt tímatali. Auk ljúffengs þorramatar frá Réttinum var boðið upp á tónlist frá Memfis mafíunni og Baggalúti og danstónlist frá Alla diskó. Þá var fluttur annáll í máli og myndum þar sem sköpunargleðin fékk að njóta sín hjá Keflvíkingum.Veislustjóri var hinn höfuðstóri Njarðvík-ingur Jón Björn Ólafsson og fór hann á kostum að eigin sögn.Eins og sjá má á myndunum sem hér fylgja voru konurnar menn kvöldsins enda miklu sætari en þorrakarlarnir. Fleiri myndir má sjá á vf.is en allar mynd-irnar tók Kristján Jóhannsson.

Þorrafjör hjá Keflavík

Page 21: 2.tbl 2013

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 17. janúar 2013 21

InstagramVF

Hin 15 ára gamla Aníta Lind Róbertsdóttir Fisher úr Keflavík er sigurvegari þessa vikuna í Instagram leik VF. Hún tók mynd af Keflavíkurkirkju á gamlárskvöld sem sýndi mikla stemningu og fangaði andrúmsloftið algjörlega. Aníta sagði að hún ætlaði líklega að bjóða vinkonum sínum með sér að njóta verðlaunanna en hún var sérstaklega spennt fyrir því að fara með stelpunum í Bláa lónið.

Í öðru sæti er mynd frá Önnu Pálu Magnúsdóttur en þar er

á ferðinni sniðug mynd af Birgi Bragasyni sem tekin var

skömmu fyrir þorrablót Keflvíkinga sem fram fór um síðustu

helgi. Í þriðja sæti var svo Bára Þórisdóttir með fallega mynd frá

Grindavík.

Verðlaun eru veitt fyrir tvö efstu sætin hverju sinni en hægt er að

vitja þeirra á skrifstofu Víkurfrétta við Krossmóa 4 á 4. hæð eða

hafa samband í síma 421 0000.

Víkurfréttir eru farnar af stað með skemmtilegan leik þar sem

notast er við myndaforritið Instagram. Það eina sem þú þarft að

gera er að merkja þína mynd #vikurfrettir. Verðlaunin eru ekki af

verri endanum en fyrir sigurmyndina fær

sigurvegarinn aðgang fyrir fjóra í Bláa

lónið, bíómiða fyrir fjóra í Sambíóin

Keflavík og Pizzuveislu fyrir fjóra á

Langbest. Við leitumst töluvert eftir

því að í myndunum

s é l í f o g s t a r f á

Suðurnesjum haft

að leiðarljósi og

e k k i s a k a r a ð

þær séu örlítið

b r o s l e g a r o g

frumlegar.

1.

2. 3.

Laus störf í leikskólum hjá Skólum ehf.Allir leikskólar Skóla ehf. starfa eftir Heilsustefnunni og leggja ríka áherslu á heilsueflingu, jákvæðan skólabrag og öflugt lærdómssamfélag þar sem samvinna og gleði ríkir. Því leitum við að samstarfsfólki sem:• Er tilbúið til að tileinka sér starfsaðferðir leikskólans• Hefur áhuga á heilsueflingu, umhverfismennt og umhyggjusömum samskiptum• Er tilbúið til að taka þátt í öflugri starfsþróun• Er stundvíst, samviskusamt og leggur sig fram um að velja sér jákvæð viðhorf í dagsins önn.

Við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um!

Heilsuleikskólinn Háaleiti, Ásbrú í Reykjanesbæ

Auglýsir eftir:• Leikskólakennara og/eða uppeldismenntuðum starfsmanni í 100% stöðu• Leikskólakennara og/eða uppeldismenntuðum starfsmanni í 50% stöðu

Heilsuleikskólinn Háaleiti er þriggja deilda leikskóli með um 60 börn.

Nánari upplýsingar veitir:Þóra Sigrún Hjaltadóttir leikskólastjóri, sími 426-5276

Rafrænar umsóknir er hægt að leggja inn á http://www.leikskolinn.is/haaleiti/ undir „Um leikskólann“.

Heilsuleikskólar Skóla eru:Hamravellir í Hafnarfirði, Háaleiti á Ásbrú í Reykjanesbæ,

Kór í Kópavogi, Krókur í Grindavík og Ungbarnaleikskólinn Ársól í Reykjavík.

Í skýrslu sem u n n i n v a r

af bresku lög-r e g l u n n i o g breskum barna-v e r n d a r s a m -tökum, kemur fram að sjón-varpsmaðurinn

Jimmy Saviles sem nýlega komst upp um og RÚV og fleiri fjöl-miðlar hafa fjallað um hafi aðeins valið fórnarlömb sem voru mest varnarlaus: „Hann var nógu klár til að sjá hverjir væru ólíklegastir til að segja eitthvað gegn honum.“ segir David Gray annar höfundur skýrslunnar.Í viðtali við eitt fórnarlamba Karls Vignis Þorsteinsonar kom fram að Karl var hlýjasta manneskjan í hans lífi. Karl Vignir hefur viðurkennt að hafa níðst kynferðislega á tugum barna og ungmenna á síðustu áratugum. Ein leið til að skilgreina

varnarlaus börn er að þau eru ekki í sterkum tengslum við foreldra sína. Vert er að styrkja þau tengsl frá byrjun.Rannsóknastofnun í barna- og fjölskylduvernd, Reykjanesbæjar og fleiri bjóða öllum verðandi for-eldrum hið árangursríka Gottman helgarnámskeið „Að verða foreldri“ helgina 26. – 27. janúar. Rannsókn á námskeiðinu sýnir að námskeiðið hjálpar foreldrum að mynda og viðhalda sterkum tengslum við barn sitt.Hlutverk foreldra í verndun og eftirliti barna er mikilvægt, og traust samband foreldranna á milli gerir foreldra hæfari í uppeldis-hlutverkinu. Umrædd námskeið er verðandi foreldrum að kostnaðar-lausu. Sjá nánar á vf.is, rbf.is og á Facebook síðu undir yfirskriftinni „Að verða foreldri.“

Ólafur Grétar Gunnarssonfjölskyldu- og hjónaráðgjafi

[email protected]ÓSTKASSINNn Ólafur grétar gunnarsson skrifar:

Lengi býr að fyrstu gerð

Page 22: 2.tbl 2013

fimmtudagurinn 17. janúar 2013 • VÍKURFRÉTTIR22

„ Mé r l í s t v e l á að taka aftur við Grindavíkurliðinu,“ segir Milan Stefán Jankovic nýráðinn þjálfari karlaliðs Grindavíkur í knatt-spyrnu. Hann tekur við störfum eftir að samningi Grind-víkinga við Guðjón Þórðarson var rift núna um áramótin. Þetta er í þriðja sinn sem Milan Stefán tekur við sem þjálfari Grindavíkur en hann hefur starfað hjá félaginu um árabil. Hann hefur einnig þjálfað Keflavík og gerði liðið að bikar-meisturum árið 2004. Grindavík mun leika í 1. deild næsta sumar eftir að hafa fallið úr Pepsi-deild-inni síðastliðið haust.„Það eru margir leikmenn sem eru farnir úr leikmannahópi Grinda-

víkur. Við erum hins vegar með mjög spennandi leikmenn úr öðrum f lokki sem færast upp í meistaraflokk. Þar eru 2-3 mjög góðir leikmenn sem koma til greina í byrjunar-liðið næsta sumar,“ segir Milan Stefán.„Við erum að bíða eftir svari frá Tomi Ameobi. Hann fór í

aðgerð fyrir skömmu síðan og það er ekki langt í að hann gefi okkur svar hvort hann verði áfram hjá félaginu.“Mikael Eklund, Ólafur Örn Bjarnason, Ian Williamsson og Ray Anthony Jónsson hafa allir yfir-gefið herbúðir Grindavíkur og því er ljóst að Grindvíkingar þurfa að styrkja liðið ætli það sé upp í deild þeirra bestu á ný.

„Ég talaði við Ray fyrir skömmu og hann sagði mér að landsliðsþjálfari hans hjá Filippseyjum hefði viljað að hann léki með liði í efstu deild. Við skiljum þessa stöðu og það er líka fínt fyrir hann að breyta aðeins til. Við erum með leikmenn sem geta leyst hans stöðu og svo er Jósef (Kristinn Jósefsson) einnig að snúa aftur úr meiðslum,“ segir Milan Stefán.„Miðvarðarstaðan hjá okkur er í smá óvissu þar sem bæði Ólafur Örn og Eklund eru farnir frá okkur. Þetta er staða sem við þurfum að styrkja og erum að leita að leik-mönnum. Ég hef verið í sambandi við kollega mína sem ég hitti þegar ég var á FIFA Pro þjálfaranámskeiði og það eru góðar líkur á að ég geti fengið góða erlenda leikmenn fyrir sumarið. Við erum einnig að skoða íslenska leikmenn og það gætu komið einhverjar fréttir frá okkur í þeim efnum á næstu vikum.“

2 Fimmtudagurinn 14. apríl 2011VÍKURFRÉTTIR

Þjónustumiðstöðin Nesvöllum

Vikan 17. - 23. jan. nk.

• Bingó • Gler-, keramik- og leir-námskeið • Handavinna

• Leikfimi - dans- boltaleikfimi.• Línudans • Félagsvist • Bridge • Hádegismatur • Síðdegiskaffi

• Bókaútlán

Föstudaginn 18. janúar Léttur föstudagur kl. 14:00 UMFÍ kynnir landsmót 50+

Allir hjartanlega velkomnirNánari upplýsingar

í síma 420 3400

SMÁAUGLÝSINGAR

421 0000NÚ GETUR ÞÚ SENT VÍKURFRÉTTUM SMÁAUGLÝSINGAR Á VEFNUM VF.IS

TIL LEIGU

Einbýlishús220 fm 5 herb. einbýli í Innri Njarðvík til leigu frá 1. mars. Banka ábyrgð og 1 mán. fyrirfram skilyrði. 170 þús. utan rafmagns/hita. Langtímaleiga. Áhugasamir sendi póst á [email protected].

TAPAÐ/FUNDIÐ

Lítil taskaLítil blá taska tapaðist, þetta var á föstudagskvöld 4. jan. Í tösk-unni eru pílur og einhver pening-ur. Uppl. í síma 660 8172.

Nokkur uppgangur hefur verið hjá Íþróttafé-laginu Nesi undanfarin misseri. Félagið fagnaði

20 ára afmæli sínu haustið 2011 og í kjölfar þess var ákveðið að blása meira lífi í félagið. Iðkendafjöldi hefur verið að aukast en nú er um 70 manns sem æfa íþróttir hjá félaginu. Tilvera félagsins gefur fötl-uðum eða einstaklingum með röskun hér á Suður-nesjum tækifæri á að æfa íþróttir og njóta þess sem slík iðkun hefur í för með sér.„Félagið hefur vaxið og dafnað síðan við héldum upp á 20 ára afmælið,“ segir Katrín Ruth Þorgeirsdóttir við Víkurfréttir. „Við gerðum miklar breytingar á starfi félagsins haustið 2011 og í kjölfarið þá hefur árangur okkar félagsmanna orðið talsvert betri. Nes er mun sýnilegra í mótum. Við höfum alltaf gert góða hluti í boccia sem dæmi og eigum þar marga Íslandsmeistara. Síðastliðið haust urðum við fimmfaldir Íslandsmeist-arar í þeirri grein. Við höfum einnig gert fína hluti í frjálsum íþróttum.“

Hafa bætt sig mikið í sundiNes hefur bætt sig mikið í sundi á síðustu mánuðum. Ingi Þór Einarsson, landsliðsþjálfari fatlaðra í sundi, var ráðinn til starfa hjá Nesi árið 2011 og árangurinn

hefur ekki látið á sér standa. Fjórir iðkendur undir 18 ára aldri hjá Nesi náðu landsliðsmörkum á síðasta ári. Þrír þeirra eru í dag hluti af landsliðshópi Íþróttasam-bands fatlaðra í sundi. „Það hafði verið nokkur lægð yfir sundinu hjá okkur síðustu ár og við töldum okkur þurfa að spyrna þar við fótum. Árangur okkar fólks hefur fengið athygli og koma Inga Þórs til félagsins hefur haft jákvæð áhrif,“ segir Katrín.Búast má við að fjölgun verði á iðkendum hjá Nesi á komandi misserum. Frá og með áramótum verður tekið við iðkendum niður í fjögurra ára aldur. Vöntun hefur verið á íþróttastarfi fyrir fötluð börn á aldrinum 4-6 ára en nú getur þessi aldurshópur hafið æfingar hjá Nesi. „Við munum bjóða upp á æfingar í sundi og frjálsum íþróttum fyrir þennan aldurshóp. Við höfum skynjað að þessi aldurshópur hefur skort tækifæri á að stunda íþróttir og nú verður gerð bragabót á því,“ segir Katrín sem bætir við að Íþróttafélagið Nes sé mun meira en bara íþróttafélag.„Þetta er ekki bara íþróttafélag heldur líka félagssam-tök. Við hittumst mánaðarlega og reynum að gera eitt-hvað saman. Það er gott fyrir þennan hóp að eiga stað til að koma saman á. Við erum í dag með mjög færa þjálfara og framtíðin hjá félaginu mjög björt.“

Setjum Kjartan í forystusæti!Kjartan Ólafsson opnar kosninga skrifstofu, vegna prófkjörs sjálfstæðis manna í Tryggvaskála, Selfossi.

Opnun föstudaginn 18. janúar kl. 17-19Allir velkomnirLéttar veitingar

Komið og spjallið við frambjóð andann um málefni sem brenna á ykkur.

Skrifstofan verður opin alla daga fram yfir prófkjör.

Sjálfstæðisfélag Keflavíkur

AÐALFUNDUR verður haldinn þann 29. janúar í Sjálfstæðishúsi Holtsgötu Njarðvík og hefst fundurinn kl. 20:00.

Dagskrá:

Lagabreytingar, Val á Landsfundarförum og venjuleg aðalfundarstörf

Kveðja stjórn ssf Keflavíkur Sigurður R. Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna-liðsins í knattspyrnu, verður með opinn fund í

Andrews föstudaginn 1. feb. nk.Sigurður hefur náð einstökum árangri með lands-liðið okkar, m.a. komið því í úrslit Evrópumótsins. Einstakur árangur og er þáttur þjálfarans í þessum glæsilega árangri verulegur.Sigurður R. Eyjólfsson er líka sálfræðingur að mennt. Hann hefur haldið fyrirlestra fyrir almenning um það að ná árangri – ekki bara í íþróttum heldur í

lífinu almennt – hvort heldur er í starfi eða einkalífi. Hefur verið gerður mjög góður rómur að þessum fyrir-lestrum Sigurðar.Nú gefst Suðurnesjabúum öllum kostur á að hlýða á eldhugann Sigurð í Andrews föstudaginn 1. febrúar kl. 11-12. Keilir, Kadeco og SAR í samstarfi við fyrir-tæki á Suðurnesjum standa að þessum fundi og bjóða öllum áhugasömum að koma. Enginn efast um gagn af eldmessu Sigurðar. Hvernig náum við árangri?

Frítt að æfa hand-bolta hjá HKR

Kvennalandsliðsþjálfarinn á opnum fundi á Ásbrú

UppgangUr hjÁ nesI- JáKVæð UppsVeIFla HJá ÍþRóTTaFÉlagInU nesI á UndanFöRnUm mánUðUm

Landsliðsmaður til Keflvíkinga

Bakvörðurinn Ray Anthony Jónsson hefur skrifað undir 2

ára samning við Keflavík sem leikur í Pepsi-deild karla í knattspyrnu. Ray sem er 33 ára gamall hefur spilað allan sinn feril í Grindavík en hann á að baki 182 leiki í efstu deild. Hann er einn reynslumesti leikmaður Grindvíkinga frá upp-hafi. Ray hefur leikið 29 leiki með landsliði Filippseyja og á að baki leiki með 21 árs landsliði Íslands. Faðir hans er íslenskur en móðir hans frá Filipseyjum sem gerir hann gjaldgengan í landsliðið.Ray er fyrsti leikmaðurinn sem Keflvíkingar semja við fyrir komandi tímabil en frekari fregna er að vænta af leikmannamálum á næstunni. Lík-legt þykir að Andri Fannar Freysson komi til Keflavíkur frá Njarðvík og eins mun Bjarni Hólm Aðalsteinsson líklega ganga aftur í raðir Keflvíkinga en hann hefur dvalið í Noregi undan-farið.

Nú er frítt fyrir alla krakka að æfa handbolta með HKR á

meðan HM í handbolta stendur yfir. Einnig er frítt að æfa í allan vetur fyrir bæði stelpur og stráka sem eru í 1.-6. bekk.Það er mikill uppgangur í hand-boltanum hérna á svæðinu og er 4. flokkur karla (9.-10. bekkur) félagsins m.a. í toppbaráttu í 2. deild auk þess sem tveir af þeim strákum eru í 32 manna hópi 15 ára landsliðs Íslands. Það þykir frábær árangur hjá félagi sem aðeins hefur verið starfrækt í fjögur ár.

gRIndVÍKIngaR leITa aF leIKmönnUm FyRIR baRáTTUna Í 1. deIld

Milan Stefán tekur við Grindavík í þriðja sinn

Page 23: 2.tbl 2013

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 17. janúar 2013 23

Undanfarin ár hefur Lands-b a n k i n n v e r i ð h e l s t i

styrktaraðili Sundráðs ÍRB. Í vik-unni skrifuðu Einar Hannesson f.h. Landsbankans og Sigurbjörg Róbertsdóttir f.h. Sundráðs undir samstarfssamning til tveggja ára.Af þessu tilefni tók Einar fram hve stoltur Landsbankinn væri af því að tengjast starfi Sundráðs með þessum hætti og hve gaman væri að fylgjast með öflugum íþrótta-mönnum og mikilli uppbyggingu.

Sigurbjörg bætti við að stuðningur Landsbankann skipti sköpum fyrir starf Sundráðsins.Á hverju ári heldur Sundráð Landsbankamót í sundi og er það eitt stærsta mót ársins á landinu. Þangað koma um 500 keppendur og mótið hefur áunnið sér sess sem eitt skemmtilegasta mót ársins.Sunddeild Keflavíkur og Sunddeild UMFN starfa saman að sundmálum undir merkjum Sundráðs ÍRB.

Konur koma samanhjá Ragnheiði ElínuVertu velkomin í kosningamiðstöðina

að Brekkustíg 39, föstudaginn 18. janúar

milli 19-21. Okkur mun gefast tækifæri

til að spjalla saman og hafa gaman

í góðum félagsskap. Léttar veitingar

í boði.

Ég hlakka til að sjá þig...og taktu

vinkonu þína með!

Ragnheiður Elín

Prófkjör sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi26. janúar 2013

.

SUMARSTÖRF

Hæfniskröfur:• Góður sölumaður með ríka þjónustulund• Reynsla af verslunarstörfum• Hæfni í mannlegum samskiptum• Gott vald á íslenskri og enskri tungu

Fríhöfnin hefur sett sér það markmið að vera ávallt til fyrirmyndar í jafnréttismálum. Í jafnréttisáætlunfélagsins er unnið að því markmiði með margvíslegum hætti og leggur Fríhöfnin áherslu á að jafna hlutfall kynjanna í sambærilegum stöðum.

Samkvæmt reglugerð um flugvernd þá þurfa umsækjendur að fylla út og skila inn umsókn vegna bakgrunnsskoðunar, nánari upplýsinga er að finna á heimasíðunni.

Umsækjendur þurfa að geta hafið störf fyrir 1. júní. Umsóknafrestur er til 3. febrúar. Nánari upplýsingar veitir Sóley Ragnarsdóttir, mannauðsstjóri Fríhafnarinnar, [email protected]. Umsóknareyðublöð má finna á www.dutyfree.is/atvinna

Fríhöfnin ehf. var valin eitt af fyrirmyndarfyrirtækjum ársins 2012 á vegum SFR. Fríhöfnin er dótturfyrirtæki ISAVIA ohf. ogannast rekstur 6 verslana í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Félagið er stærsta verslunarfyrirtækið í Flugstöðinni með um 130starfsmenn. Stærstu vöruflokkarnir í verslunum félagsins eru áfengi, tóbak, snyrtivörur, sælgæti, fatnaður og fylgihlutir.Fríhöfnin er framsækið fyrirtæki í síbreytilegum ferðaheimi þar sem markmiðið er að bjóða upp á gæðavörur á góðu verði ísamkeppni við verslanir á erlendum flugvöllum.

Langar þig að starfa á spennandi vinnustað í alþjóðlegu umhverfi?

Fríhöfnin ehf. óskar eftir að ráða starfsfólk í vaktavinnu í verslanir Fríhafnarinnar og Dutyfree Fashion áKeflavíkurflugvelli. Leitað er að þjónustulunduðum, glaðlyndum, snyrtilegum og reyklausum einstaklingumsem hafa góða samskiptahæfileika, lipra og þægilega framkomu, eru sveigjanlegir, geta unnið undir álagi ogsýnt frumkvæði í starfi. Starfið felst í sölu og þjónustu við viðskiptavini fyrirtækisins og áfyllingum í verslun.Einnig er óskað eftir starfsfólki í dagvinnu á lager og er meirapróf æskilegt.Umsækjendur skulu ekki vera yngri en 20 ára.

Guðmundur Stein-a r s s o n t e l u r

minni líkur en meiri á því að hann leiki með Keflvíkingum á næsta tímabili í Pepsi-deild karla í knattspyrnu. Hann staðfesti það í samtali við Víkur-fréttir að hann sé að íhuga nokkur tilboð frá öðrum félögum en Guð-mundur er samningslaus eins og stendur.Guðmundur segir að hann sé með tilboð frá 5-6 liðum og þau séu ým-ist í úrvalsdeild eða neðri deildum. Guðmundur segir það ekkert laun-ungamál að hann hyggist stefna á frama í þjálfun og það geti vafalaust

haft áhrif á ákvörðun hans. Þessa dagana er hann að skoða málin í rólegheitunum og tekur væntanlega ákvörðun á næstunni. Sögusagnir hafa verið uppi um að Guðmundur gæti hugsanlega gengið til liðs við Njarðvíkinga þar sem hann fengi stöðu í

þjálfarateymi liðsins. Guðmundur hefur ekkert æft knattspyrnu síðan síðasta tímabili lauk og segist hann ekkert vera að flýta sér aftur á völl-inn. Guðmundur telur að hann eigi jafnvel 1-2 ár eftir sem leikmaður en eins gæti farið svo að hann leggi skóna á hilluna og snúi sér alfarið að þjálfun.

Landsbankinn styður áfram við sundfólk Reykjanesbæjar

- VIll snúa sÉR að þjálFUn

Guðmundur líklegaekki áfram í Keflavík

Page 24: 2.tbl 2013

vf.isvf.is

Sat á hljómleikum með Bubba haustið 2011 og fékk andann yfir mig. Skyndileg þörf til þess að

skrifa. Örvun sem ég hef haldið til streitu síðan. Vona að afrakstur-inn sé sæmilegur. Stundum þarf svo lítið til þess að hrista upp í sálartetrinu. Nokkru síðar bárust mér óvænt skilaboð. Sat við skrif-borðið mitt í vinnunni og sinnti erindum á síðasta degi ársins. Lá í símanum þegar þau bárust. Skýr skilaboð. Þakkir fyrir að vera ég.

Þakkir fyrir að gefa af mér. Viðkomandi naut þess auðsjáanlega að vera í samfélagi við mig. Nafnlaus. Hugulsamt og ljúft skeyti. Hreif mig til framtíðar og hvatti til mig áframhaldandi gjafmildis. Hét því að halda því áfram. Svo miklu skemmtilegra að gefa en þiggja.

Valsarnir nú orðnir ríflega sextíu talsins. Ég hef hleypt ykkur inn í lífið mitt í nútíð og fortíð.

Gefið af mér sem best ég gat. Svo ekki sé nú talað um skáldskapinn. Hlakka til hverrar stundar með ykkur og vonandi hafið þið upplifað sambærilegar stundir úr ykkar eigin lífi. Við erum nefnilega ekki svo ólík. Eigum það sammerkt að hafa upplifað sömu hlutina á einn eða annan hátt. Samsömum okkur á

jarðkringlunni hvar sem er. Með ættingjum, vinum, vandamönnum eða jafnvel ókunnugum.

Ég hef blessunarlegan átt kost á því að ferðast um heiminn. Atvinna mín býður upp á ferðalög. Bog-

maður í þeirri stöðu er í góðum málum. Þarf ekki stjörnuspá til þess að segja mér það. Líður afskaplega vel í vinnunni. Hef kynnst fólki frá öllum heimsálfum. Á síðastliðnu ári kynntist ég nýju fólki frá Norður- og Suður-Ameríku, Evrópu, Asíu og Afríku. Að ólöst-uðum Íslendingum og Norðurlandabúum. Allt þetta fólk átti það sameiginlegt að vera elskulegt og gefandi. Upplifði það með því að sýna þeim umhyggju og hlýju og fá hana margfalt tilbaka.

Lít yfir farinn veg á síðastliðnu ári. Hef bæði hlegið og grátið. Ánægðastur með börnin mín og hvernig

þau spjara sig. Stoltur og ánægður. Yndislegt að segja þeim það líka. Hreysti og heilsa eru ofarlega á blaði. Ekki sjálfsögð forréttindi. Mæti hverjum degi af æðru-leysi. Veikindi, andlát, tregi og tár eru hluti af lífinu en gleymum ekki gleðinni, gæskunni, birtunni og bjart-sýninni. Gefið af ykkur sem best þið getið. Réttið fram hjálparhönd. Ég leyfi góðvildinni að lýsa mér leiðina og hef uppgötvað að uppsprettan að lífsgleðinni er sáraeinföld. Ég fann hana í eigin sjálfi. Vona að þið finnið hana líka.

Fimmtudagurinn 17. janúar 2013 • 2. tölublað • 34. árgangur

auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001

Opið alla miðvikudaga frá kl. 8:00 – 16:00Tímapantanir í síma 426 8540

Opið virka daga frá kl. 8:00 – 17:00Frjáls mæting

VALUR KETILSSON SKRIFAR

FIMMTUDAGSVALS

HV

ÍTA

SIÐ

/SÍA

– 1

3-00

30

Stór, stærri, stærstur!Frumsýnum laugardaginn 19. janúar nýjan Mercedes-Benz Citan, harðduglegan vinnufélagaog öflugan Sprinter fyrir þá sem þurfa enn meira. Kíktu við hjá K. Steinarssyni og reynsluaktu.

Opið milli 12 og 16. Rjúkandi kaffi og nýbakaðar vöfflur.

ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.isViðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi

Þú finnur „Mercedes-Benz Ísland“ á Facebook

Holtsgötu 52 · ReykjanesbæSími 420 5000 · ksteinarsson.is

Í eigin sjálfi

Nú er inflúensan að ganga í garð af fullum þunga. Af

því tilefni vill Heilbrigðisstofnun Suðurnesja koma á framfæri nokkrum ábendingum.Inflúensa lýsir sér oftast með háum hita og beinverkjum, oft með höfuðverk og þurrum hósta. Sumir fá einnig sára hálsbólgu og stundum eru til staðar einkenni frá meltingarfærum. Verstu einkennin ganga yfir á 2 – 3 sólarhringum og undantekningalítið jafnar fólk sig án nokkurra vandkvæða. Ekki er til lækning við inflúensu en almenn verkjalyf svo sem parasetamól og bólgueyðandi lyf svo sem íbúfen geta mildað einkenni mikið. Til eru veirulyf sem draga úr einkennum svo sem tamiflu og relenza, sér-staklega ef þau eru gefin strax en flestir jafna sig fljótt og vel án nokk-urra inngripa og eru að fullu frískir á ca. viku.Inflúensa er gríðarlega smitandi og því er áríðandi að fólk takmarki eins og unnt er samskipti við annað fólk meðan á veikindum stendur og gæti sérstaklega að handþvotti og öðru hreinlæti. Almennt er ráðlegt

að halda sig heima við í að minnsta kosti viku í kringum einkenni, bæði til að ná að jafna sig og til að draga úr útbreiðslu flensunnar.Aldrei er of seint fyrir fríska ein-staklinga að bólusetja sig við inflú-ensu, bólusetningin minnkar líkur á smiti um ca. 60% og þeir sem eru bólusettir en veikjast fá yfirleitt mun vægari einkenni. Ekki er hægt að fá flensu gegnum bólusetningu.Til að draga úr álagi á vaktþjónustu HSS og draga úr útbreiðslu smits biðjum við fólk að íhuga fyrrgreind atriði áður en leitað er til heilsu-gæslunnar. Símaþjónusta HSS er ávallt boðin og búin að veita ráð-leggingar og aðstoða fólk án þess að það komi á staðinn.

Inflúensan gríðar-lega smitandi

Instagram: #vikurfrettir

vf.isvf.is