upplifun - combi-camp · 2020. 10. 3. · tjaldað á 1 mínútu og legið í tjaldi 60 cm frá...
Post on 15-Mar-2021
5 Views
Preview:
TRANSCRIPT
Upplifun:
Það er hrein snilld að geta tjaldað á 1 mínútu og legið í tjaldi 60 cm frá jörðu sem er hugmyndin á bak við Combi Camp og hefur ekkert breyst síðan 1964 – aðeins hönnunin.
Frí snýst um fyrirvaralaust frelsi og einfaldleika. Þegar
ferðavagninn er klár og áfangastaður valinn er eftirleikurinn auðveldur. Það á að vera auðvelt að komast í frí. Fríið á að hefjast þegar ekið er úr innkeyrslunni.
Á tímum þegar farartæki og búnaður verða stöðugt
stærri og flóknari viljum við að fljótlegt og einfalt sé að pakka niður og komast af stað. Traustir vagnar og gæði án þess að burðast með of mikið. Hvers vegna að velja á milli náttúruupplifana og þæginda – þegar hvort tveggja er mögulegt?Upplifun:
Engar tjaldstangir og engir tjaldhælar. Engin takmörk eru fyrir því hvar Combi Camp er slegið upp, hvort sem það er á malbiki, grýttu undirlagi eða á möl. Þú ert alltaf fyrir ofan raka, vatn og kulda frá jörðu
auk þess sem fastur botninn tryggir að þú kemst ávalt í skjól fyrir veðri og vindum. Innbyggðar stangir auðvelda uppsetningu til mikilla muna án þess að setja saman eina einustu stöng.
»eg er svong«
Matur er mikilvægur hluti af fríinu – eini munurinn á börnum og fullorðnum er að börn eiga erfitt með að bíða 50 kílómetra. Fingramatur, köld djúskanna eða góð brauðsneið með osti getur gert kraftaverk. Þú kemst í eldhúsið hvar sem er, bara að leggja bílnum á fallegum stað og maturinn er tilbúinn í skúffum og kæliskápnum.
Eða tjalda og fá sér léttan hádegisverð og lúr eftir matinn? Markmiðið með fríinu er að ráða sér sjálfur. Í Combi Camp ertu aðeins bílstoppi frá nýsteiktri eggjaköku eða nýlöguðum kaffibolla.
Eldhúsið í Combi Camp er glæsilega útbúið og vinnuhæðin þægileg. Börnin geta setið á borðinu og fylgst með matnum verða til.
Fjölskyldan, ferska loftið, náttúran og kyrrðin segir allt sem segja þarf um frí. Út, burt og nægur tími. Tjaldið eykur skilningarvitin og nándina við náttúruna. Þess vegna elskum við tjaldið: Nóttin, vindurinn, fuglarnir og lækjarniðurinn ná til okkar.
Tjalddúkurinn í Combi Camp er gerður úr 100% bómull. Við notum bómul sem er framleiddur á umhverfisvænan hátt og þess vegna skartar hún Öko-tex merkinu. Bómullinn er svo sterkur að hann þolir rigningu sem samsvarar minnst 3000 mm.
Tjalddúkurinn hleypir súrefni og lofti í gegnum sig án þess að kuldinn, hitinn og rigningin fylgi með. Tjaldið ver án þess að það myndist saggi. Loftið í tjaldinu er hreint og ljósið mjúkt þegar það síast gegnum dúkinn.
loft:
COMBI-CAMP COUNTRY
COMBI-CAMP VALLEY
525 390
3445
2445
4150
2010
2720
425
1700 1260
1355 1355 AxelAxel
2700
2450 2010
535 4150
465
1260 1690
1230
120
0
525 390
3445
2445
4150
2010
2720
425
1700 1260
1355 1355 AxelAxel
2700
2450 2010
535 4150
465
1260 1690
1230
120
0
Aukabuna-dur :
ELDHÚS
DYRA- SÓL-TJALD
HLIÐAR-KÁLFUR
SÓLTJALD
▲ S
vefn
álm
a m
eð tw
in b
ed
ELDHÚS
BAKTJALD420
14
0
24
5
20
0
140
170 170
20
0
140
420
340
25
01
22
12
2
207 133
aukaBuna-dur:
Yfirbreiðsla fyrir vagninn Vindhlíf undir vagninn inní fortjaldi Geymslukassi
Stólar
Skyggni iglo
Einangrunarsett
Hjólagrind Vasahirslur Eldhús vasahirslur
Sama hvern þú tekur með, sama hvert þú ferð, með aukahlutunum frá Combi-Camps ert klár í hvaða ferðalag sem er.
Útilegumadurinn ehfBugðufljót 7 · 270 Mosfellsbær
Sími 551 5600sala@utilegumadurinn.is www.combi-camp.com
Changes reserved
top related