Download - í takt við náttúruna?
Stígum við íí takt við náttúruna?
Sævar Skaptason, aðalfundur SAF 22. mars 2012 á Hilton Nordica Reykjavík
Í hvaða átt stefnum við? Vitum við hvert við erum að fara? Hvar við viljum vera? Erum við að nýta og hlúa að auðlindinni sem
dregur fólk til landsins? Ferðamönnum fjölgar en gjaldeyristekjur
aukast ekki í samræmi við aukinn fjölda
Viljum við að aðgangur að landinu okkar sé óhindraður og eiga það á hættu að skerða gæði einstakra áfangastaða?
Fjöldinn og álagið! 2011: 600 þúsund ferðamenn 2020: 1 milljón ferðamanna (áætlað) Svo eru það skemmtiferðaskipin:
100.000 farþegar er áætluð fjöldi í sumar og er um 42 % aukningu að ræða á milli ára
18. júní koma 3 skip til Reykjavíkur með um 8.000 farþega.
Þá er úr vöndu að ráða!
Hvað gerist svo árið 2015? Á árinu 2015 ganga í gildi ECA (Emmision
Control Area).
Ísland er ekki með og því verður ódýrara að sigla hingað en til Evrópu.
Hver verður þróunin í flugheiminum?
Berum við ÖLL ábyrgð? Við erum öll að selja náttúru landsins, varan
er okkar og mikilvægt að hún skaðist ekki til lengri tíma litið.
Hvað viljum við, getum við og gerum? Getum við fundið nálgun á stýringu? EÐA Gerum ekki neitt, þ.e. þetta kemur okkur ekki
við!
Hvað getum við gert? Stuðlað að auknu fjármagni til rannsókna,
stefnumörkunar og áætlanagerðar fyrir landið í heild sinni og einstök svæði.
Nálgast viðfangsefnið eins og hvert annað áhættumat með tilheyrandi viðbragðsáætlun.
Skoða hvernig önnur lönd hafa brugðist við sömu þróun í fjölgun ferðamanna.
Hvað getum við gert strax í dag? Fjölga áhugaverðum viðkomustöðum
ferðamanna Dreifa álaginu, sér í lagi á milli daga t.d. vegna
komudaga skemmtiferðaskipa Skipuleggja stórviðburði utan háannatíma Varast ber að byggja upp til að mæta
eftirspurn „hæstu toppanna“ – mikil uppbygging getur fælt þá frá sem vilja njóta óspilltrar náttúru
Þörf á auknu fjármagni Gistináttagjaldið skilar um 110 milljónum Þegar búið að úthluta 69 milljónum úr
Framkvæmdasjóð ferðamannastaða Ferðamálastofa hefur 44 milljónir til
ráðstöfunar í umhverfismálum Metnaðarfull uppbygging einkaaðila Væri ekki sanngjarnt að farþegar
skemmtiferðaskipa greiði líka sinn hluta, t.d. 500 kr. á mann myndu skila 50 milljónum í tekjur?
....ALLA LEIÐ!
Myndskeiðið
Að lokum Fyrirtæki í Vakanum þurfa að samþykkja
siðareglur, m.a. „Fyrirtækið sýnir í verki ábyrgð gagnvart íslenskri náttúru, umhverfi og samfélagi.
Hvað ætlum við að selja í framtíðinni ef við stöndum eftir með sviðna jörð?
Ábyrgðin er okkar og nú er tímabært að taka þetta viðfangsefni föstum tökum.......