dr%c3%b6g a%c3%b0 fors%c3%b6gn samkeppnisl%c3%bdsingar

11
Reykjavíkurborg Umhverfis- og skipulagssvið SKIPULAGSFULLTRÚI BORGARTÚN 12-14 105 REYKJAVÍK SÍMI 411 1111 BRÉFASÍMI 411 3071 NETFANG: [email protected] Drög að forsögn fyrir samkeppnislýsingu Janúar 2015 Reykjavíkurborg og RÚV í samstarfi við Arkitektafélag Íslands

Upload: jonas-steinsson

Post on 08-Apr-2016

260 views

Category:

Documents


4 download

DESCRIPTION

http://hugmyndasamkeppni.is/images/skjalasafn/R%C3%9AV_l%C3%B3%C3%B0/Dr%C3%B6g_a%C3%B0_fors%C3%B6gn_samkeppnisl%C3%BDsingar.pdf

TRANSCRIPT

Page 1: Dr%c3%b6g a%c3%b0 fors%c3%b6gn samkeppnisl%c3%bdsingar

Reykjavíkurborg Umhverfis- og skipulagssvið

SKIPULAGSFULLTRÚI

BORGARTÚN 12-14 105 REYKJAVÍK

SÍMI 411 1111 BRÉFASÍMI 411 3071

NETFANG: [email protected]

Drög að forsögn fyrir samkeppnislýsingu

Janúar 2015

Reykjavíkurborg og RÚV í samstarfi við Arkitektafélag Íslands

Page 2: Dr%c3%b6g a%c3%b0 fors%c3%b6gn samkeppnisl%c3%bdsingar

Efnisyfirlit

1 Forsagan 3

1.1 Inngangur - almennt um svæðið 3

1.2 Forsaga 3

2 Forsendur 4

2.1 Borgarhluti 4

2.2 Hverfið/svæðið 5

2.3 Samkeppnissvæði 5

2.4 Orkuveita Reykjavíkur 7

2.5 Efstaleiti 1 / RÚV lóðin 7

2.6 Íbúðasamráð 7

3 Viðfangsefni samkeppninnar 8

3.1 Meginmarkmið 8

3.2 Einkenni skipulags 8

4 Tilhögun samkeppni 9

4.1 Almennt um tilhögun 9

4.2 Lykildagsetningar (áætlun) 9

4.3 Forval 9

4.4 Keppnisgögn 10

4.5 Skipun dómnefndar 11

4.6 Skil á gögnum 11

4.7 Fyrirspurnir og skil 11

Page 3: Dr%c3%b6g a%c3%b0 fors%c3%b6gn samkeppnisl%c3%bdsingar

bls. 3

1 Aðragandi

1.1 Inngangur - almennt um svæðið

Reykjavíkurborg og RÚV efna til hugmyndasamkeppni um svæðið sem afmarkast af Listabraut í

norðri, Háaleitisbraut í austri, Bústaðavegi í suðri og Efstaleiti í vestur samkvæmt forsögn þessari og

gildandi samkeppnisreglum Arkitektafélags Íslands.

Yfirlitsmynd af samkeppnissvæðinu

Ætlunin er að endurskoða uppbyggingamöguleika á lóð RÚV við Efstaleiti og samliggjandi lóðum

innan reitsins. Endurskipuleggja á svæðið með þéttingu og gæði byggðar að leiðarljósi.

1.2 Forsaga

Í bréfi borgarstjóra, Dags B. Eggertssonar til borgarráðs þann 14. október er varðar viðræður

Reykjavíkurborgar og Ríkisútvarpsins um húsnæðismál og nýtingu lóðar við Efstaleiti 1 gefur að líta

eftirfarandi texta:

„Lagt er til að settur verði á laggirnar vinnuhópur Ríkisútvarpsins og Reykjavíkurborgar og í honum

eigi sæti tveir fulltrúar frá umhverfis- og skipulagssviði, tilnefndir af sviðsstjóra umhverfis- og

skipulagssviðs og einn frá skrifstofu eigna- og atvinnuþróunar, tilnefndur af skrifstofustjóra skrifstofu

eigna og atvinnuþróunar, auk þeirra fulltrúa sem RÚV skipar. Hópurinn skal gera lýsingu/forsögn að

skipulagi þar sem þarfir RÚV auk áherslna Reykjavíkurborgar í skipulagi um þéttingu og gæði byggðar

verði hafðar að leiðarljósi. Eftir samþykkt lýsingar í umhverfis- og skipulagsráði yrði hún síðan hluti af

samkeppnislýsingu fyrir skipulagssamkeppni um svæðið sem hópurinn myndi undirbúa. RÚV yrði í

forsvari fyrir samkeppninni en með aðkomu Reykjavíkurborgar til að mynda í formi fulltrúa í

dómnefnd samkeppninnar. Samhliða skipulagsvinnunni verði gengið frá nýjum samningum milli RÚV

og Reykjavíkurborgar um lóðina og þær heimildir sem kunna að verða til við breytingar á

deiliskipulagi“

Í framhaldinu var skipaður undirbúningshópur um verkefnið með fulltrúum RÚV og

Reykjavíkurborgar:

Ásgeir Ásgeirsson arkitekt hjá T.ark (RÚV)

Borghildur Sturludóttir, arkitekt, verkefnisstjóri hjá skipulagsfulltrúa (RVK)

Jón Kjartan Ágústsson, skipulagsfræðingur, verkefnisstjóri hjá skipulagsfulltrúa (RVK)

Lilja Grétarsdóttir, arkitekt, verkefnisstjóri hjá skipulagsfulltrúa (RVK)

Page 4: Dr%c3%b6g a%c3%b0 fors%c3%b6gn samkeppnisl%c3%bdsingar

bls. 4

Óli Örn Eiríksson deildarstjóri, SEA skrifstofa eigna og atvinnuþróunar (RVK)

Margrét Magnúsdóttir lögfræðingur, skrifstofustjóri (RÚV)

Ríkharð Ottó Ríkharðsson rekstrarhagfræðingur, sjálfstætt starfandi ráðgjafi (RÚV)

Borgarráð samþykkti þann 29.janúar 2015 drög að forsögn fyrir samkeppnislýsingu vegna

hugmyndasamkeppni um lóðina að Efstaleiti 1. Í þeim drögum kemur m.a. fram í meginmarkmiðum

eftirfarandi: Að huga að nánasta umhverfi svæðisins og tengingum við það. Hæðir húsa skulu taka mið af aðliggjandi byggð

sem er allt að sex hæðir að vestanverðu og 2-3 hæðir að austanverðu. Á öðrum nærliggjandi þróunarsvæðum er

gert ráð fyrir 40 - 150 íbúðum á hektara, sem þýðir um 170 til 660 íbúðir á lóðinni. Eflaust yrðu þær eilítið færri sé

tekið tillit til grunnflatar Útvarpshússins. Sé gert ráð fyrir sambærilegri nýtingu og á öðrum þéttingarsvæðum, þar

sem nýtingarhlutfall er allt að 1,0-2,5 yrði mögulegt heildarbyggingamagn á lóðinni á bilinu 45 til 112 þús. m2 (er

Útvarpshúsið hluti af þessari stærð). Ef litið er til nágrannalóða eins Kringluna (Þ54) er áætluð aukning

atvinnuhúsnæðis um 100 þúsund fermetrar, miðað við fullbyggt svæði, eða 100 íbúðir á hektara.

Þessi meginmarkmið hafa tekið breytingum , þannig að nú er stuðst við lágmark Aðalskipulagsins og

að allar tillögur sem berast verða skoðaðar með almennum markmiðum AR að leiðarljósi, svo sem

gæði byggðar og byggðarmynstur nærliggjandi reita. (sjá kafla 3.1 um „megin markmið“).

Þann 23.02 2015 gerðu Reykjavíkurborg og Ríkisútvarpið með sér samkomulag um lóðarréttindi og

byggingarrétt í tengslum við skipulagssamkeppnina. Reykjavíkurborg fær 20% af samþykktu

byggingarmagni/íbúðareiningum til uppbyggingar leigumarkaðar en þó aldrei fleiri en 40 íbúðir.

Búsetuform á þessu svæði verður blandað; leiguíbúðir, stúdentaíbúðir, búseturéttaríbúðir,

félagslegar íbúðir og/eða nýtt búsetuform Reykjavíkurborgar sem nefnt er „Reykjavíkurhús“.

Félagsbústaðir hf. munu hafa kauprétt á markaðsverði, fyrir allt að 5% af íbúðum á lóðinni fyrir

félagslegt leiguhúsnæði.

2 Forsendur

2.1 Borgarhluti

Saga og þróun

Það svæði sem fellur undir borgarhlutann Háaleiti-Bústaði tilheyrði aðallega tveimur jörðum þegar

Reykjavík byrjar að byggjast upp, þ.e. jörðunum Bústöðum og Laugarnesi. Grensásinn liggur í

norðursuður stefnu eftir hverfinu og hallar landi frá honum til austurs og vesturs. Fram undir seinni

heimsstyrjöld þróaðist Reykjavík að mestu sem samfelld og heilsteypt byggð út frá einni þungamiðju í

gömlu miðbæjarkvosinni. Borgarhlutinn liggur í um 50 – 60 m hæð yfir sjávarmáli.

Staðhættir

Landslag borgarhlutans einkennist af holtum og ásum en á milli þeirra voru eitt sinn mýrar sem hafa

verið þurrkaðar upp. Mýri sem var í norðvestur hluta Háaleiti-Bústaða nefndist Kringlumýri. Langt og

mikið holt sem liggur eftir borgarhlutanum miðjum frá vestri til austurs ber heitið Bústaðaholt (einnig

nefnt Bústaðaháls). Stórar umferðagötur umlykja borgarhlutann, þvera, og skipta honum upp í hverfi

og minni hverfiseiningar. Þau fjögur hverfi sem mynda borgarhlutann eru Háaleiti-Múlar, Kringlan-

Leiti-Gerði, Bústaða- og Smáíbúðahverfi og Fossvogshverfi-Grófir.

Page 5: Dr%c3%b6g a%c3%b0 fors%c3%b6gn samkeppnisl%c3%bdsingar

bls. 5

Starfsemi:

Eftirtaldir grunnskólar eru í borgarhlutanum: Breiðagerðisskóli (1.-7. bekkur), Háaleitisskóli í Álftamýri

(1.-10. bekkur), Háaleitisskóli í Hvassaleiti (1.-7. bekkur), Fossvogsskóli (1.-7. bekkur) og

Réttarholtsskóli (8-10. bekkur). Leikskólar eru 9 talsins, en dreifing þeirra er reyndar frekar ójöfn í

hverfunum Kringlan-Leiti-Gerði og Bústaða- og Smáíbúðahverfi.

Í Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 er gert er ráð fyrir að núverandi grunn- og leikskólar á þessu

svæði geti tekið við auknum fjölda nemenda, en gera má ráð fyrir að hlutfall barna yngri en 16 ára

lækki í hverfinu þegar líður á skipulagstímabilið.

Mikil og fjölbreytt atvinnustarfsemi er í næsta nágrenni við svæðið þar sem m.a. má finna aðra af

tveimur stærstu verslunarmiðstöðvum Reykjavíkur; Kringluna, auk ýmissa opinberra stofnana, svo

sem framhaldsskóla, leik- og barnaskóla, heilbrigðisstofnanir, þjónustumiðstöð eldri borgara, auk

skrifstofu og þjónustustarfsemi. Aðgengi að verslun og þjónustu telst því gott á þessu svæði

Reykjavíkur.

2.2 Hverfið/svæðið

Byggðarmynstur

Hverfið Hvassaleiti-Kringlan-Leiti-Gerði er 82 ha að stærð og er fjöldi skráðra íbúða 1508

(Borgarvefsjá jan. 2014). Samkvæmt því er íbúðaþéttleiki 18,4 íbúðir/ha. Sé aðeins horft á skilgreind

íbúðarsvæði í aðalskipulagi (61 ha) þá er íbúðaþéttleikinn í hverfinu 24,8 íbúðir/ha. Hvoru tveggja

telst vera undir lágmarki viðmiðunargilda Reykjavíkurborgar. Áberandi er hversu margir íbúar eru yfir

67 ára aldri í Hvassaleiti Kringlan-Leiti-Gerði en hlutfall þeirra er 25% af íbúum sem er 14% hærra en

hlutfall þessa aldurshóps í allri borginni.

Lágt hlutfall er af minni fjölbýlishúsum (undir fjórum hæðum) í hverfinu samanborið við Reykjavík í

heild en þar munar 17%. Fjöldi fermetra í atvinnuhúsnæði í hverfinu er um 138.100m2.

Samgöngur

Almenningssamgöngur gagnast íbúum fremur vel þar sem strætisvagnar ganga eftir öllum

aðalgötunum sem umlykja svæðið auk þess sem strætisvagnaleið er eftir Háaleitisbraut og Listabraut.

Biðstöðvar eru með 250-500 metra millibili sem telst vera gott með tilliti til viðmiðunargilda

borgarinnar. Göturýmið almennt í hverfinu er breitt og því er hægt að gera á því breytingar íbúum,

vegfarendum og umhverfi til heilla. Göturými Háaleitisbrautar er breitt og mögulegar þrengingar líkt

og gert hefur verið á móts við Smáagerði við Austurver.

2.3 Samkeppnissvæði

Reiturinn sem samkeppnissvæðið afmarkast af er Listabraut í norðri, Háaleitsbraut í austri,

Bústaðavegur í suðri og Efstaleiti í vestri og er svæðið 58.774m2/5,9 ha að stærð, en sjálf RÚV lóðin

er 43.915m2 eða 4,4 ha. Lóðin er vel staðsett miðsvæðis í borginni og bíður upp á mikla möguleika á

hagkvæmri nýtingu á innviðum borgarinnar.

Page 6: Dr%c3%b6g a%c3%b0 fors%c3%b6gn samkeppnisl%c3%bdsingar

bls. 6

Kort af umhverfi samkeppnissvæðis ásamt lóðarmörkum

Aðalskipulag

Hluti þéttbýlisuppdráttar Aðalskipulags Reykjavíkur 2010-2030

RÚV reiturinn er skilgreindur sem þróunarsvæði Þ58 með landnotkunina miðsvæði M21. Í

Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 segir um þessar landnotkunarskilgreiningar:

Þ58 „Samfélagsþjónusta og miðsvæði. Einkum stofnanir og opinber þjónusta. Áætluð aukning

byggingarmagns um 5.000-10.000 fermetrar. Landnotkun nyrst á svæðinu breytist í miðsvæði.“

M21 „Listabraut. Skrifstofur og þjónusta. Einnig möguleiki á íbúðum.“

Í Aðalskipulagi segir ennfremur um miðsvæði (M): Á miðsvæðum er fyrst og fremst gert ráð fyrir

verslunar- og þjónustustarfsemi, stjórnsýslu og skrifstofum, veitingahúsum og hótelum. Einnig er gert

ráð fyrir íbúðum á fjölmörgum miðsvæðum, einkum þó á efri hæðum bygginga. Miðsvæði þjóna ýmist

öllu landinu, höfuðborgarsvæðinu öllu eða nokkrum íbúðarhverfum. Á miðsvæðum er almennt

fjölbreyttari starfsemi en rúmast á verslunar- og þjónustusvæðum.

Page 7: Dr%c3%b6g a%c3%b0 fors%c3%b6gn samkeppnisl%c3%bdsingar

bls. 7

Jafnframt segir um skilgreiningar á íbúðarbyggð (ÍB) í Aðalskipulaginu (AR2010-2030 bls. 204): “Á

íbúðarsvæðum er almennt gert ráð fyrir íbúðarbyggð ásamt tilheyrandi nærþjónustu.* Helstu

þjónustukjarnar og stofnanir og útivistarsvæði eru afmörkuð sérstaklega á uppdrætti. Innan

skilgreindra íbúðarsvæða er mögulegt að gera ráð fyrir fjölbreyttri atvinnustarfsemi enda sé um að

ræða þrifalega starfsemi sem ekki veldur ónæði.

*Undir nærþjónustu getur, auk opinberrar grunnþjónustu og dagvöruverslana, m.a. fallið almenn þjónustustarfsemi (s.s.

hárgreiðsla), veitingastaðir í flokki I og eftir atvikum í flokki II, menningarhús, íþróttahús, gallerí og þrifalegur smáiðnaður.“

Deiliskipulag

Í gildi eru deiliskipulagsáætlanir fyrir Efstaleiti, samþykkt 25. júlí 2007 og Efstaleiti 3, 5, 7 og 9

samþykkt 2. maí 2014. Á samþykktum lóðaruppdrætti fyrir Efstaleiti er kveðið á um frekari

stækkunarmöguleika útvarpshúss en með þessari forsögn er hætt við þá stækkunarmöguleika. Í

deiliskipulagi fyrir Efstaleiti 3, 5, 7 og 9 kemur meðal annars fram að heimildir séu fyrir fullar tvær

hæðir og 3. hæð allt að 50% af grunnfleti núverandi húss.

Stefnt er að því að gera nýtt deiliskipulag fyrir samkeppnissvæðið sem tekur mið af sigurtillögu

hugmyndasamkeppnarinnar.

2.4 Orkuveita Reykjavíkur

Kvöð er um hitaveitulögn og aðkomu að henni, dreifistöð RR og aðkomu, jarðstrengi og gröft RR á

nokkrum stöðum á lóð nr.1 við Efstaleit. Sjá nánar mæliblað. Hafa ber í huga að ef lögnin er færð þá

er slíkt kostnaðarsamt (um 300.000 á meter) auk kostnaðar við að fjarlægja eldri lögn.

2.5 Efstaleiti 1 / RÚV lóðin

Á lóðinni stendur Útvarpshúsið, höfuðstöðvar Ríkisútvarpsins, 16.300 m2 að flatarmáli. Húsið er í

grunnin 2 hæðir auk kjallara og turns sem er mest sex hæðir. Gert er ráð fyrir að hægt sé að breyta,

byggja við eða breyta notkun Útvarpshússins. Áformað er að Ríkisútvarpið haldi áfram starfsemi í

hluta húsnæðisins en aðrir hlutar þess verðir leigðir út til annarrar starfsemi.

Útvarpshúsið er kennileiti í dag, keppendum er í sjálfsvals vald sett hvort þeir viðhaldi byggingunni

sem kennileiti eða felli það inn í fyrirhugað byggingamynstur. Hér á landi og í nágrannalöndunum fá

mikilvægar bygggingar, kennileiti, oft ákveðið helgunarsvæði. Lega Útvarpshússins, staðsetning og

umfang þess gerir það að verkum að huga þarf vel að því hvernig byggt er að eða við húsið til að

kennileitið fái áfram að njóta sín.

2.6 Íbúðasamráð

Nú þegar hefur svæðið verið kynnt sem þróunar / uppbyggingarsvæði, en frekari kynning og fundir

verða haldnir þegar að tillögur liggja fyrir.

Page 8: Dr%c3%b6g a%c3%b0 fors%c3%b6gn samkeppnisl%c3%bdsingar

bls. 8

3 Viðfangsefni samkeppninnar

3.1 Meginmarkmið

Áhersla er lögð á að samkeppnissvæðið verði með yfirbragði góðrar byggingarlistar og að

skipulagstillögur í samkeppni taki mið af meginmarkmiðum og framtíðarsýn Aðalskipulags

Reykjavíkur 2010-2030 um þéttingu byggðar, græna borg og borg fyrir fólkið.

Að koma með framsæknar skipulagshugmyndir um nýja blandaða byggð, spennandi

almenningsrými og fyrirkomulag vistvænna samgöngumáta.

Að nýta þær byggingar sem fyrir eru í nýju og/eða breyttu samhengi, eftir því sem kostur er

og við á.

Að huga að nánasta umhverfi svæðisins og tengingum við það. Hæðir húsa skulu taka mið af

aðliggjandi byggð sem er allt að sex hæðir að vestanverðu og 2-3 hæðir að

norðanverðuaustanverðu

Að eitt af megin viðfangsefni samkeppninnar verður að horfa til skipulags svæðisins með tilliti til fyrirkomulags og þéttleika byggðarinnar, keppendur eru hvattir til þess að skoða vel möguleika er þetta varðar. Ef þéttleiki verður meiri en fram kemur í AR (þar sem kveðið er á um lágmark 60 íbúðir á hektara) verður tekin afstaða til þess út frá öðrum megin markmiðum svo sem gæðum byggðarinnar og byggðamynstri nærliggjandi reita.

3.2 Einkenni skipulags

Eftirfarandi þættir skulu einkenna skipulag svæðisins:

Samfélag:

Byggja skal í samræmi við Húsnæðisstefnu Reykjavíkurborgar 2020 og stuðla þannig að uppbyggingu

leigumarkaðar og félagslegri blöndun íbúa. Búsetuform verði blönduð; eignaríbúðir, leiguíbúðir og

búsetuíbúðir. Stefnt verði að því að 20-25% íbúða í hverfum verði leiguíbúðir, stúdentaíbúðir,

búseturéttaríbúðir og/eða Nýju Reykjavíkurhúsin. Einnig verði stefnt að því að Félagsbústaðir hf. hafi

kauprétt fyrir allt að 5% íbúða fyrir félagslegt leiguhúsnæði.

Rökréttar tengingar nýrrar byggðar við nærliggjandi umhverfi.

Fjölbreytt fyrirkomulag íbúðarhúsnæðis og ber því að taka tillit til aldursamsetningar innan hverfisins

þegar farið er í að þétta byggð og ákvarða tegund íbúða fyrir svæðið.

Gæði byggðar:

Áhersla er lögð á 2-6 hæða byggð.

Heildstæðar götumyndir og blönduð, fjölbreytt byggð íbúðarhúsnæðis, skrifstofa, verslana og

þjónustu.

Hagkvæm borgarþróun sem styður við vistvæna ferðamáta og hagkvæma nýtingu innviði

borgarinnar.

Samgöngur:

Virkir samgöngumátar verði í fyrirrúmi, þ.e. umferð gangandi og hjólandi.

Aðgengi fyrir almenningssamgöngur verði sett í forgang.

Tengja svæðið við miðsvæði Kringlunnar og nágrenni, ásamt grænum svæðum í kring.

Samgöngulausnir sem styðja við samgöngumarkmið í nýju Aðalskipulagi Reykjavíkur.

Page 9: Dr%c3%b6g a%c3%b0 fors%c3%b6gn samkeppnisl%c3%bdsingar

bls. 9

Vistkerfi og minjar:

Að tryggja náttúrulegan fjölbreytileika lands, lífríkis og menningaminja með markvissri verndun og

viðhaldi.

Orka og auðlindir:

Stuðla þarf að sjálfbærri nýtingu orku og auðlinda, svo sem vatns, rafmagns og lands.

Auka kolefnisbindingu með gróðri.

Sýna lausnir um endurvinnslu og markvissri úrgangsstjórnun.

Mannvirki:

Vistvænar lausnir í byggingartækni og mannvirkjagerð.

Blöndun af fjölbreyttum íbúðastærðum og gerðum.

4 Tilhögun samkeppni

4.1 Almennt um tilhögun

Stefnt er að því að samkeppnin verði lokuð hugmyndasamkeppni um skipulag svæðisins og að valdir

verði fimm aðilar/teymi að undangengnu forvali. Allir þátttakendur fá greitt fyrir tillögur sínar

kr.750.000 auk vsk. RÚV í samstarfi við Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að nýta hverja tillögu að

hluta eða í heild. Greitt verður aukalega kr. 1.500.000 auk vsk. fyrir verðlaunatillögu.

Áframhaldandi skipulagsvinna á svæðinu verður ekki bundin við þátttakendur eða verðlaunahafa

eingöngu. Keppnin stendur yfir í 2 mánuði frá afhendingu gagna til skila. Allar tillögur verða til sýnis

almenningi meðan dómnefnd er að störfum. Nafnleynd hvílir á framlögðum tillögum þar til dómnefnd

hefur skilað áliti sínu. Gert er ráð fyrir að ein tillaga verði valin Verðlaunatillaga. Allar tillögur og öll

samskipti verða á íslensku. Þátttakendur fá greitt eftir að skilagögn hafa borist og tillögur dæmdar, að

því gefnu að teymið hafi unnið tillögur sínar í samræmi við keppnislýsingu og kröfur sem lagðar hafa

verið fram þar. Valin teymi fá afhent gögn og eftir það skulu öll samskipti vera við trúnaðarmann.

4.2 Lykildagsetningar (áætlun)

Samráð og forval auglýst janúar 2015

Forvals umsóknarfrestur febrúar 2015

Niðurstöður forvals mars 2015

Samkeppni hefst mars 2015

Fyrirspurnarfrestur mars 2015

Svör við fyrirspurnum apríl 2015

Skil á gögnum maí 2015

Dómnefnd lýkur störfum júní 2015

4.3 Forval

Gerðar eru lágmarkskröfur um hæfni aðila/teymi (umsækjenda) til að öðlast þátttökurétt. Gefin eru

stig fyrir þátttöku og árangur í samkeppnum á liðnum árum. Þeir sem flest stig hafa eru valdir til

Page 10: Dr%c3%b6g a%c3%b0 fors%c3%b6gn samkeppnisl%c3%bdsingar

bls. 10

þátttöku í keppninni. Krafa er um að aðilar/teymi séu sérfræðingar og hafi rétt til að leggja inn

aðaluppdrætti eða skipulagsuppdrætti.

Aðilar/teymi fylla út töflu sem er aðgengileg á uppgefnu vefsvæði í auglýsingu. Tafla þessi og stigagjöf

verður mat umsækjenda á eigin hæfi. Forvalsnefndin mun fara yfir matstöflur.

Stigagjöf í forvali:

a) Hvert sambærilegt verkefni við það sem hér um ræðir - (þróun skipulags á byggðu svæði -í

sambærilegu umfangi): 6 stig, hámarksstigafjöldi 18 stig.

b) 1.-3. sæti í : í hönnunar/skipulagssamkeppni 5 stig, hámarksstigafjöldi 15 stig.

c) Innkaup eða viðurkenning fyrir athyglisverða tillögu hönnunar/skipulagssamkeppni: 3 stig,

hámarksstigafjöldi 9 stig. Síðustu 15 ár

d) Þátttaka í samkeppni 1 stig, hámarksstigafjöldi 5 stig.

e) Önnur störf - (t.d fræðistörf (útgáfa), störf á opinberum vettvangi, (hámark 5 stig)

Heimilt er að leggja fram fleiri en eitt verkefni fyrir hvern lið.

(lágmark 35 -hámark 52 stig)

Í forvalinu er miðað er við að velja 5 umsækjendur sem uppfylla 35 stig til þátttöku í

hugmyndasamkeppninni. Ef fleiri en fimm umsækjendur uppfylla 35 stig verða tveir stigahæstu valdir

til þátttöku. Ef fleiri en tveir verða stigahæstir verður dregið um þessi tvö efstu sæti þeirra á milli.

Dregið verður um hin þrjú sætin sem eftir eru úr hópi allra umsækjanda sem uppfylla 35 stig. Ef færri

en 5 umsækjendur uppfylla 35 stig eru valdir 5 stigahæstu umsækjendurnir til þátttöku.

Forvalsnefnd skipa eftirfarandi aðilar:

Borghildur Sturludóttir arkitekt - RVK

Lilja Grétarsdóttir arkitekt - RVK

Margrét Magnúsdóttir skrifstofustjóri - RÚV

Þórarinn Þórarinsson arkitekt - AÍ

Arkitektafélag Íslands tilnefnir ráðgjafa úr röðum félagsmanna sinna til að fylgjast með framkvæmd

forvalsins fyrir hönd AÍ.

4.4 Keppnisgögn

Auk keppnislýsingar verða keppendum útveguð eftirtalin gögn, sem verða gerð aðgengileg á

samkeppnissvæði borgarinnar www.hugmyndasamkeppni.is

► Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, ásamt greinargerð.

Gildandi deiliskipulags áætlanir á svæðinu.

► Stafrænn kortagrunnur ásamt loftmynd af samkeppnissvæði.

Þess utan er bent á eftirtalin lög og reglugerðir:

► Skipulagslög nr. 123/2010.

► Lög um mannvirki nr 160/2010.

Page 11: Dr%c3%b6g a%c3%b0 fors%c3%b6gn samkeppnisl%c3%bdsingar

bls. 11

► Skipulagsreglugerð nr. 90/2013.

► Byggingarreglugerð nr. 112/2012.

► Lög um menningarminjar nr. 80/2012.

► Lög um náttúruvernd nr. 44/1999.

► Menningarstefna í mannvirkjagerð.

4.5 Skipun dómnefndar

Stefnt er að því að fimm aðilar verði í dómnefnd og verður hún skipuð að loknu forvali.

4.6 Skil á gögnum

Stefnt er að því að skilað verði 2 uppdráttum í A1 með greinargerð, uppdráttum skal skila á pappír

límdum á frauð og jafnframt sem pdf á diski. Nánar verður gerð grein fyrir framsetningu á því sem ber

að skila í keppnislýsingu, svo sem mælikvörðum, grunnkortum og sneiðingum.

4.7 Fyrirspurnir og skil

Arkitektafélag Íslands skipar trúnaðarmann keppenda. Keppni hefst þegar gögn hafa verið afhent

þeim sem eru valdir til þátttöku. Nánari upplýsingar munu verða settar fram um fyrirspurnir og skil

þegar valdir hafa verið aðilar til þátttöku.