eiríks saga rauða, 1. kafli sagt er frá landnámi auðar (unnar) djúpúðgu, í dölunum. auður...
Post on 20-Dec-2015
229 views
TRANSCRIPT
Eiríks saga rauða, 1. kafli
• Sagt er frá landnámi Auðar (Unnar) djúpúðgu, í Dölunum.
• Auður gaf Vífli, leysingja sínum, Vífilsdal til ábúðar. Synir Vífils hétu Þorbjörn og Þorgeir.
Eiríks saga rauða, 2. kafli
• Eiríkur rauði Þorvaldsson flutti frá Noregi til Íslands ásamt föður sínum. Þeir námu land á Hornströndum.
• Eiríkur kvæntist Þjóðhildi. Síðan fluttu þau að Eiríksstöðum í Haukadal.
• Eiríkur lenti fljótlega í útistöðum við nágranna sína og var dæmdur burt út Haukadal.
Eiríks saga rauða, 2. kafli, frh.
• Eiríkur nam þá nokkrar eyjar í Breiðafirði og settist að í Öxney.
• Hann lánaði Þorgesti setstokka og sótti þá sjálfur þegar Þorgestur skilaði þeim ekki.
• Þorgestur móðgaðist, elti Eirík og Eiríkur drap tvo syni hans.
• Fyrir þessi víg var Eiríkur rauði dæmdur sekur.
Eiríks saga rauða, 2. kafli, frh.
• Eiríkur bjó skip sitt og leyndist í Dímonarvogi meðan hans var leitað í Breiðafjarðareyjum. Hann hugðist finna Gunnbjarnarsker, sem hann hafði heyrt af.
• Eiríkur rauði sigldi svo til Grænlands, kannaði landið og tók sér bústað í Brattahlíð.
• Hann nefndi landið Grænland til að lokka menn þangað.
Eiríks saga rauða, 3. kafli
• Þorbjörn Vífilsson kvæntist og settist að á Laugarbrekku á Snæfellsnesi.
• Dóttir hans hét Guðríður. Hún dvaldist löngum í fóstri hjá Ormi bónda á Arnarstapa.
• Einar Þorgeirsson, sonur Þorgeirs leysingja, bað Guðríðar. Þorbjörn faðir hennar tók ekki í mál að gifta hana þrælssyni.
Eiríks saga rauða, 3. kafli, frh.
• Þorbjörn er blankur en fremur en draga saman seglin vill hann flytja af landi á brott.
• Hann ákveður að fara á fund Eiríks rauða, vinar síns. Með honum fara um 30 manns, þ.á.m. Ormur og kona hans.
• Fólkið lendir í miklum hrakningum, margir látast úr sótt (m.a. Ormur og kona hans) en loks nær það landi á Herjólfsnesi á Grænlandi.
Eiríks saga rauða, 4. kafli
• Á þessum tíma ríkti mikið hallæri á Grænlandi.• Þorbjörg lítilvölva er fengin til að spá fyrir um
framtíðina.• Hana aðstoðar Guðríður Þorbjarnardóttir.• Um vorið flytur Þorbjörn með fjölskyldu sína til
Eiríks rauða í Brattahlíð.
Eiríks saga rauða, 5. kafli
• Eiríkur og Þjóðhildur áttu tvo syni: Þorstein, sem dvaldi heima í Brattahlíð, og Leif, sem var í Noregi, með Ólafi konungi Tryggvasyni.
• Á leið úr fríi á Grænlandi dvelst Leifur um sumar í Suðureyjum. Þar kynnist hann náið konu sem heitir Þórgunna.
Eiríks saga rauða, 5. kafli, frh.
• Leifur vill ekki hafa Þórgunnu með sér frá Suðureyjum en hún segist vera ólétt og spáir því að sonurinn verði til lítils gagns; segist munu senda hann til Grænlands í fyllingu tímans.
• Leifur fer til Noregs og dvelur þar einn vetur. • Næsta vor sendir Ólafur Tryggvason hann í
kristniboð til Grænlands.
Eiríks saga rauða, 5. kafli, frh.
• Leifur villist af leið og finnur land nokkurt þar sem vex hveiti (=villirís), vínviður og mösur (= hlynur).
• Leifur bjargar mönnum af skipsflaki.• Leifur kemst til Grænlands og kristnar
landsmenn.• Eftir þetta er hann kallaður Leifur hinn heppni.
Eiríks saga rauða, 5. kafli, frh.
• Þjóðhildur tekur kristni og lætur reisa kirkju. Hún neitar að sænga hjá Eiríki því hann vill ekki taka kristna trú.
• Þorsteinn Eiríksson hyggst sigla til landsins sem Leifur fann, ásamt föður sínum. Eiríkur slasast á fæti þegar hann felur silfur sitt en fer samt.
• Þá rekur víða um höf og taka loks land aftur á Grænlandi.
Eiríks saga rauða, 6. kafli
• Þorsteinn Eiríksson kvænist Guðríði Þorbjarnardóttur.
• Þau fara í Lýsufjörð í Vestri-byggð og búa þar félagsbúi móti hjónunum Þorsteini og Sigríði.
• Mikil sótt kemur upp á bænum og margir deyja; ganga flestir herfilega aftur.
Eiríks saga rauða, 6. kafli, frh.
• Meðal þeirra sem deyja úr sótt eru Þorsteinn Eiríksson og Sigríður, kona hins Þorsteins.
• Þorsteinn Eiríksson vaknar upp eftir andlátið, biður um að fá leg í vígðri mold og spáir fyrir Guðríði. Leggst svo aftur niður dauður.
• Þorsteinn er jarðaður í Brattahlíð.• Eiríkur rauði tekur við Guðríði enda lést faðir
hennar um svipað leyti.
Eiríks saga rauða, 7. kafli
• Þorfinnur karlsefni kemur til Grænlands, úr Skagafirði. Hann dvelur með Eiríki rauða í Brattahlíð.
• Eiríkur leggst í þunglyndi því hann á ekkert öl fyrir jólin. Þorfinnur karlsefni leysir úr þeim vanda.
• Þorfinnur biður Guðríðar og þau giftast.
Eiríks saga rauða, 8. kafli
• Þorfinnur karlsefni býr skip sitt til Vínlands. Með honum fara um 160 manns, þ.á.m.:
• Guðríður, kona hans• Snorri, vinur hans• Freydís Eiríksdóttir og Þorvarður maður hennar• Þórhallur veiðimaður
• Þau finna Helluland, Markland og Furðustrandir.
Eiríks saga rauða, 8. kafli, frh.
• Haki og Hekja, skoskir þrælar, fara í könnunarleiðangur og finna vínvið og hveiti.
• Þórhallur veiðimaður galdrar hval á land. Hvalkjötið fer illa í menn.
Eiríks saga rauða, 9. kafli
• Þórhallur veiðimaður vill í norður en Karlsefni í suður. Þeir skilja og fara 8 manns með Þórhalli en allir hinir fylgja Þorfinni karlsefni.
• Þórhall og félaga rekur til Írlands og þar lét Þórhallur líf sitt.
Eiríks saga rauða, 10. kafli
• Karlsefni og hitt fólkið sigla suður og taka sér bústað við stórt vatn sem þau nefna Hóp. Þar eru landkostir feikilega góðir.
• Einn morguninn kemur fjöldi húðkeipa siglandi. Innfæddir eru forvitnir en gera norrænu mönnunum ekkert mein og sigla svo brott.
Eiríks saga rauða, 11. kafli
• Um vorið kemur fjöldi skrælingja (innfæddra) siglandi á húðkeipum.
• Karlsefni og félagar hafa vöruskipti við þá, skipta á rauðu klæði og skinnum, en Karlsefni bannar mönnum að láta skrælingja hafa vopn.
• Naut Þorfinns karlsefnis fælir skrælingja á brott.
Eiríks saga rauða, 11. kafli, frh.
• 3 vikum seinna koma skrælingjar aftur.• Nú slær í harðan bardaga og er útlit fyrir að
norrænir menn lúti í lægra haldi enda beita skrælingjar göldrum.
• Freydís hræðir skrælingjana á brott með því að leggja sverð á nakin brjóst sín.
• Karlsefni og félögum líst orðið illa á að setjast að við Hóp en halda áfram að kanna landið.
Eiríks saga rauða, 12. kafli
• Karlsefni og félagar rekast á einfæting sem skýtur Þorvald Eiríksson til bana.
• Á veturna dvelja norrænu mennirnir í Straumfirði. Fyrsta haustið fæddist Þorfinni karlsefni og Guðríði sonur, sem nefndur var Snorri.
• Snorri er 3 ára þegar þau ákveða að sigla aftur til Grænlands.
Eiríks saga rauða, 12. kafli, frh.
• Á leiðinni taka þau land á Marklandi. Þar taka hinir norrænu tvö innfædd börn til fanga. Innfæddu börnin segja þeim sögur af kóngi sínum og landi þegar þau hafa lært íslensku.
• Þau komast heilu og höldnu aftur til Grænlands og fara til Eiríks rauða í Brattahlíð.
Eiríks saga rauða, 13. kafli
• Bjarni Grímólfsson hafði orðið viðskila við Karlsefni og rak skip hans í Írlandshaf. Þar lenti það í maðksjó.
• Ljóst er að ekki komast allir fyrir í björgunarbát og er dregið um hverjir komast. Bjarni lætur eftir sitt pláss í björgunarbátnum.
• Þeir sem komust í bátinn björguðust en hinir fórust í maðksjónum.
Eiríks saga rauða, 14. kafli
• Eftir tveggja vetra dvöl í Grænlandi halda þau Þorfinnur karlefni og Guðríður til Íslands.
• Þau setjast að í Reyninesi í Skagafirði.• Af Snorra Þorfinnssyni / Karlsefnissyni er
komið margt mætra manna, þ.á.m. þrír biskupar.