hssr | kynning á nýliðaþjálfun 2012-14

12
Nýliðaþjálfun 2012-14 Almennar upplýsingar um nýliðaþjálfun Hjálparsveitar skáta í Reykjavík tímabilið 2012-2014.

Upload: olafur-jonsson

Post on 21-Mar-2016

227 views

Category:

Documents


5 download

DESCRIPTION

Hér er nýliðaþjálfun HSSR kynnt í máli og myndum.

TRANSCRIPT

Page 1: HSSR | kynning á nýliðaþjálfun 2012-14

Nýliðaþjálfun 2012-14Almennar upplýsingar um nýliðaþjálfunHjálparsveitar skáta í Reykjavíktímabilið 2012-2014.

Page 2: HSSR | kynning á nýliðaþjálfun 2012-14

Inngangur

Á haustin gefst almenningi kostur á að hefja nýliðaþjálfun með Hjálparsveit skáta í Reykjavík (HSSR). Yfirlýstur tilgangur nýliðaþjálfunar er að fá inn nýtt fólk áútkallsskrá til virkrar þátttöku í leitar- og björgunarstarfi.

Nýliðaþjálfun HSSR er fyrir þig ef þú:

- sérð fram á að geta tekið þátt í útköllum eftir að þjálfun lýkur - hefur áhuga á að stunda útivist og ferðamennsku af ólíkum gerðum - getur tekið fullan þátt í fjáröflunarstarfi sveitarinnar - hefur áhuga á að kynnast og starfa með skemmtilegu fólki

Í þessum bæklingi er nýliðaþjálfun HSSR kynnt. Við hvetjum þig til að kynna þér dag skrána sem og þær kröfur sem gerðar eru til fólks í nýliðaþjálfun og kanna hvort þú eigir ekki samleið með okkur.

Nýliðateymi HSSR

Hjálparsveit skáta í Reykjavík

2

Page 3: HSSR | kynning á nýliðaþjálfun 2012-14

Kynningarbæklingur fyrir nýliða 2012-14

3

Kynning á HSSR

Hjálparsveit skáta í Reykjavík var stofnuð 1932 og er í dag ein stærsta björgunarsveit landsins.

Hún er aðili að Slysa varna félaginu Lands-björgu og er heildarfjöldi fél aga um 300.

Útkallskerfi sveit ar innar er virkjað af lögreglu og er sveitin hluti af kerfi almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Sveitin er landbjörgunarsveit og

miðast búnaður og þjálfun við það. Félagar skiptast í hópa eftir áhugamálum hvers og eins. Gefin er út dagskrá með yfirliti

yfir æfingar, ferðir og fyrirlestra auk annarra liða. Fyrir utan nýliðadagskrá eru hvert ár farnar fjölmargar ferðir á vegum útkallshópa auk almennra ferða.

Sjö manna stjórn er yfir starfsemi HSSR, en mikil áhersla er lögð á sjálfstæði og frumkvæði útkallshópa og félaganna sjálfra. Sveitin er að mestu rekin fyrir sjálfsaflafé og er fjáröflun því stór hluti af starfi félaga og nýliða. Húsnæði sveitarinnar er að Malarhöfða 6 og er það um 1.200 m2 að stærð. Þar er búnaður sveitarinnar geymdur, en hún er vel tækjum búin.

Nánar má fræðast um starfsemi sveitarinnar á vefnum hssr.is, en að auki er starfræktur innri vefur fyrir félaga. Allar upplýsingar um útkallshópa má finna í bæklingi sem liggur frammi í húsnæði sveitarinnar að Malarhöfða 6.

Á grafinu má sjá skiptingu útkalla HSSR starfsárið 2011-12, en samtals var farið í 48 útköll. Þarna sést að um 3/4 útkalla eru leitar- og björgunaraðgerðir.

Yfirlit yfir útkallshópa - Alþjóðasveitarhópur - Bílahópur - Búðahópur - Bækistöðvarhópur - Fjallahópur - Léttsveit - Sérhæfður leitarhópur - Sjúkrahópur - Sleðahópur - Snjóbílshópur - Undanfarar

HSSR í hnotskurnFj. félaga: 300Fj. útkalla á síðasta starfsári: 48Fjöldi útkallshópa: 11Bækistöð: Malarhöfði 6

Björgun, láglendi

Aðstoð í ófærð

Annað / flug, eldur

Leit innanbæjar

Leit utanbæjar

Björgun, fjalllendi

Skipting útkalla

Page 4: HSSR | kynning á nýliðaþjálfun 2012-14

Hjálparsveit skáta í Reykjavík

4

Spurningar og svör

Hverjir geta hafið nýliðastarf?Aldurstakmark er 18 ár, en þjálfunin hentar fólki á öllum aldri. Þú þarft nauðsynlega að vera í góðu líkamlegu og andlegu formi, en einnig er mjög mikilvægt að eiga gott með að vinna í hópi fólks og að vera félagslega

hæfur. Reynsla af útivist er kostur, en ekki nauðsyn. Námskeið, sem

og í raun öll útköll á vegum sveitarinnar, fara fram á íslensku og er íslenskukunnátta því ófrávíkjanlegt skilyrði.

Stelpur eða strákar?Aldrei hefur verið gerður munur á hlutverkum kvenna og karla innan HSSR. Þar ganga

allir í öll verk.

Er þetta tímafrekt? Dagskráin er þétt og miklar kröf-ur eru gerðar um mætingu á nám-

skeið, í gönguferðir og fjár aflanir. Þar að auki er ætlast til að þú undirbúir þig fyrir stóru námskeiðin með því að lesa námsgögn. Dagskrá vetrarins er á síðu 8.Til viðbótar því sem hér er upp talið er gert ráð fyrir að nýliðar gefi sér góðan tíma til æfinga utan reglubundinnar dagskrár og að þeir hafi sjálfir frum kvæði að því að æfa það sem þeim er kennt á námskeiðum.Nýliðaþjálfun miðar að þátttöku í útköllum, en þau eiga sér stað alla daga ársins og á hvaða tíma sólarhringsins sem er.

Þarf maður að vera í góðu formi?Á flestum námskeiðum er gengið töluvert, oft með miklar byrðar. Allir sem eru í þokka-legu formi eiga að geta ‘gengið’ í gegnum nýliða þjálfunina. Snemma í þjálfun inni verður form nýliða metið með ferð á Esjuna.

Þarf að mæta í alla dagskrárliði?Allir dagskrárþættir hafa tilgang og ekkert er óþarft. Ef upp koma sérstakar aðstæður sem hamla þér frá því að mæta á einstaka viðburði er slíkt metið hverju sinni. Fyrir alla viðburði gerir fólk grein fyrir sér með því að senda póst á sérstakt netfang, svarar „mæti“ eða „mæti ekki“ og tilgreinir ástæðu forfalla. Þetta er viðlíka háttur og hafður er í útköllum fullgildra félaga sem svara útkallsboðum með SMS. Í mætingu á dagskrárliði er mikil áhersla lögð á stundvísi. Áhersla er lögð á góða mætingu í fjáröflun sveitarinnar.

Page 5: HSSR | kynning á nýliðaþjálfun 2012-14

Kynningarbæklingur fyrir nýliða 2012-14

5

Frekari mætingarkröfur verða kynntar sérstaklega síðar.

Kostar þetta peninga?Nýliðar greiða á kostnaðarverði námsbækur, gistigjöld og mat sem oftast er sameiginlegur á lengri námskeiðum. Sá kostnaður sem eftir stendur vegna þátttöku í námskeiðum og ferðum er greiddur af HSSR. Þar koma á móti fjáraflanir sem nýliðar taka virkan þátt í.

Þarf ég að eiga allar græjur?Fullgildir félagar á útkallsskrá verða að eiga allan sinn persónubúnað. Nýliðar þurfa að hafa allan almennan búnað til umráða á þjálfunartímanum, en sérstaklega er mælt með því að sérhæfðan búnað eins og snjóflóða- og klifurbúnað reyni nýliðar af fremsta megni að fá lánaðan.Ef ómögulegt er að fá búnað að láni hjá

kunningjum á HSSR takmarkað magn af búnaði til útláns. Búnaðarlisti er á síðu 7.

Fara nýliðar í útköll?Nei, aðeins fullgildir félagar eru sendir í útköll á vegum sveitarinnar. Öllum, nýliðum sem fullgildum félögum, ber að gæta þagmælsku um það sem viðkemur útköllum HSSR og þeir kunna að verða áskynja.

Hvað tekur nýliðaþjálfun langan tíma?Fyrstu 9 mánuði í þjálfun eru einstaklingar í hópnum Nýliðar 1. Eftir þann tíma eru tekin ein staklingsviðtöl og þeir sem hafa staðist settar kröfur eru færðir yfir í hópinn Nýliðar 2.Þjálfunin tekur í heild 18 mánuði. Gangi hún vel getur nýliði vænst þess að verða full-gildur félagi í mars á öðrum starfsvetri. Ef einstaklingar hafa reynslu úr öðrum björgunarsveitum er það metið hverju sinni.

Hvernig er þjálfunin uppbyggð?Mikil áhersla er lögð á liðsheild, en jafn framt á að byggja upp frumkvæði og sjálfs bjargar-viðleitni einstaklingsins.Ferðamennska og fyrsta hjálp er lang stærsti þátturinn í dagskrá nýliða 1. Í undir stöðu-námskeiðunum Rötun og ferða mennska og Fyrstu hjálp eru haldin stutt próf í nám-skeiðs lok, en að öðru leyti er frammi staða metin af leiðbeinendum.Á öðru ári snýst starfið að miklu leyti um að kynna sér sérhæfingu innan sveitarinnar með beinu og virku starfi í útkallshópum.

Page 6: HSSR | kynning á nýliðaþjálfun 2012-14

Spurningar og svör, frh.

Hvernig er framvindan metin?Nokkrum sinnum á þjálfunarferlinu er hver nýliði metinn af nýliðaforingjum og leið-bein endum. Matskröfur byggja á því að fólk nýtist í björgunarstarfi. Þeim sem hafa ekki sýnt nægilega ástundun eða viðundandi frammistöðu verður, eftir atvikum, gefið færi á að bæta sig ella verða vísað úr þjálfun.

Eru nýliðar gjaldgengir í almennt starf sveitarinnar?Nýliðar er velkomnir í almennar ferðir, á fundi og fjár aflanir á vegum HSSR. Einu undan tekn ing arnar eru ferðir sem krefjast sér stakrar þjálfunar eða hæfni á einhverjum sviðum og er það þá sérstaklega tekið fram.

Hvernig er haldið utan um nýliðastarf?Nýliðaforingjar halda utan um nýliðastarf með nýliðateymi HSSR sér við hlið. Stöðu-fundir eru haldnir með nýliðum nokkrum sinnum á þjálfunartímabilinu þar sem farið er yfir það sem á undan er gengið og það sem í vændum er.

Er þetta eintómt púl og strit?Brennandi áhugi á björgunarmálum sameinar félaga í HSSR. Það sem knýr okkur þó ekki síður áfram er mikill áhugi á hvers konar útivist og ferðamennsku og samheldni fjölbreytilegs hóps af skemmtilegu fólki, bæði á léttum stundum og við erfiðari og krefjandi kringumstæður.

6Hjálparsveit skáta í Reykjavík

Page 7: HSSR | kynning á nýliðaþjálfun 2012-14

Kynningarbæklingur fyrir nýliða 2012-14

7

Búnaðarþörf nýliða

Hér er að finna yfirlit yfir þann búnað sem nýliðar þurfa að nota í þjálfuninni. Mikilvægt er að hver nýliði verði sér út um þann búnað sem hann ætlar að nota, enda er nauðsynlegt að kynnast og venjast eigin búnaði vel. Megnið af búnaðinum nýtist fólk vel í almennri ferðamennsku þannig að það er síður en svo glatað fé sem fer í búnað af þessu tagi.

Oft er hægt að fá búnað lánaðan hjá fjölskyldu og vinum, en þá er nauðsynlegt að hafa í huga að hann er mikið notaður á þjálfunartíma og þarf því yfirleitt að vera laus til notkunar. Í byrjun er nýliðum ráðlagt að reyna að fá lánaðan allan dýran og sérhæfðan búnað, s.s. snjóflóða-, klifur- og sigbúnað, ef nokkur kostur er. Hjálparsveitin á svo nokkurt magn búnaðar sem hægt er að fá lánaðan, ef í nauðirnar rekur.

Sept. Okt. Nóv. Feb.Fatnaður

Göngubuxur xGönguskór xJakki úr öndunarefni (skel) xBuxur úr öndunarefni (skel) xPeysa, flís eða ull xBolur, helst ull (2 stk.) xFöðurland, helst ull (2 stk.) xSokkar (3 pör) xÞunnir fingravettlingar xÞykkir, þæfðir ullarvettlingar xSkel yfir vettlinga xHúfa xLambhúshetta x

Almennur búnaður

Áttaviti xHitabrúsi xEnnisljós og auka rafhlöður xSjúkragögn x

Ferðabúnaður

Svefnpoki xEinangrunardýna xVatnsheldur innri poki xBakpoki, lítill (20-40 l.) xBakpoki, stór (50-90 l.) xTjald (eitt f. hóp) xPrímus/pottur (einn f. hóp) x

Sept. Okt. Nóv. Feb.Vetrarbúnaður

Sólgleraugu xSkíðagleraugu xMannbroddar xÍsexi xSnjóflóðaýlir xSnjóflóðastöng xSkófla xGönguskíði og stafir x

Klifur- og sigbúnaður

Hjálmur xSigbelti xSigtól xKarabínur (3-4 stk.) xSlingar, prússikbönd (4-5 stk.) x

Yfirlit yfir búnað

Page 8: HSSR | kynning á nýliðaþjálfun 2012-14

Hjálparsveit skáta í Reykjavík

8

Dagskrá fyrra kennslutímabils (2012-13)

Í dagskránni hér á eftir eru öll námskeið fyrir

utan reglubundið stöðumat, fjöll mánaðarins og

almenna dagskrá sveitarinnar.

Fjall mánaðarins - kynningarferð / 6. sept. 2012

Létt kvöldganga í fylgd fullgildra félaga.

Ferðabúnaður / 11. sept.

Fjallað um persónulega búnað sem þarf til að taka

þátt í nýliðastarfi HSSR og ferðabúnað almennt.

Lokafrestur til þess að skila umsókn.

Ferðamennska og rötun / 14.-16. sept.

Kennd eru undirstöðuatriði ferðamennsku ásamt

kortalestri, notkun áttavita og grunnatriði GPS.

Gist í skála.

Dagsgönguferð / 22. sept.

Dagsferð í nágrenni borgarinnar.

Esju-próf / 2. okt.

Gengið á Esjuna með skeiðklukkuna í gangi.

Pakkað, tjaldað og eldað á fjöllum / 23. okt.

Kennt að pakka og raða í bakpoka sem og að

tjalda. Þátttakendur mæta með allan búnað

(nema mat) fyrir tjaldferð næstu helgar. Farið er

yfir hagnýt atriði. Rætt verður um fjallamat og

matreiðslu á fjöllum.

Helgarferð í tjaldi / 26.-28. okt.

Fyrsta helgarferðin, þar sem gist er í tjöldum og

látið reyna á það af ferðamennskunni sem búið er

að kenna. Gengið er utan alfaraleiða

Fyrirlestur um snjóflóðamat / 30. okt.

Farið er yfir helstu atriða er varða mat á snjó-

flóðahættu.

Neyðarkallinn / 1.-4. nóv.

Nýliðar taka þátt í einu mikilvægasta fjáröflunar-

átaki HSSR.

Fjallamennska 1 / 13, 16.-18. og 20. nóv.

Undirbúningskvöld fyrir fjalla mennsku 1, spotta-

vinna, hnútar og sig æfing ar innandyra. Nám-

skeiðið sjálft sem er erfið helgarferð með bak-

poka við vetraraðstæður. Undirstöðuatriði í

vetrar fjallmennsku kennd verk lega. Gist í skálum.

Loks er stöðufundur og matsgjöf vegna nám-

skeiðsins.

Öryggismál flugelda / 4. des.

Kynning á vinnu- og umgengnisreglum við flug-

elda sölu og frágang.

Flugeldasala / 27.-31. des. og 6. jan. 2013.

Nýliðar taka fullan þátt í flugeldasölu sem og

undirbúningi fyrir hana.

Page 9: HSSR | kynning á nýliðaþjálfun 2012-14

Kynningarbæklingur fyrir nýliða 2012-14

9

Göngu-GPS / 8. jan.

Markmið námskeiðsins

er að gera þátt takendur

hæfari til að nota göngu-

GPS tæki sem við bótar útbúnað við

rötun í gönguferðum.

Broddaganga / 13. jan.

Þátttakendur öðlast færni í því að ganga á

broddum.

Stöðumat / 14., 16.-17. jan.

Farið er yfir stöðu mála með nýliðum.

Fjarskipti 1 / 15. jan.

Farið er yfir helstu atriði er varða fjar skipti í

útköllum og starfi sveitar innar.

Fyrsta hjálp 1 / 25.-27. jan.

Þátttakendur öðlast grunn þekk ingu

í fyrstu hjálp sem byggist á því að

ekki er alltaf hægt að hringja í 112

og fá aðstoð fagfólks. Kennt í

Reykjavík.

Veðurfræði til fjalla -

skíðamennska / 5. feb.

Erindi um hvernig við

lesum og metum veður-

spár. Einnig verða undur

skíðamennskunnar kynnt í

máli og myndum.

Snjóflóð, bóklegt og verklegt

/ 12. og 16. feb.

Bók- og verklegt námskeið um

snjóflóð og snjó flóðaleit. Kennt í

Reykjavík og nágrenni.

Fjallamennska 2 / 5., 8.-10. og 12. mars

Erfið vetrarferð í fjalllendi með bakpoka. Þetta

er fram halds námskeið í fjallamennsku. Gist er í

tjöldum. Undirbúningskvöld fyrir ferð og mats-

gjöf eftir heimkomu.

Fyrstu hjálpar æfing / 9. apr.

Nýliðar taka þátt í æfingu á vegum sjúkrahóps.

Stóri dagurinn / 13. apr.

N2 bjóða nýliðum til leiks í liðakeppni þar sem

markmiðið er að leysa fjölda þrauta og hafa

gaman af!

Page 10: HSSR | kynning á nýliðaþjálfun 2012-14

Dagskrá fyrra kennslutímabils (2012-13), frh.

Nýliðaviðtöl / 21.-23. og 30. maí

Að loknum fyrsta vetri í nýliða þjálfun inni setjast

nýliðinn og nýliðaforinginn niður ásamt fulltrúa

stjórnar og ræða stöðu mála.

Fjall ársins / 24.- 26. maí

Hvannadalshnúkur er fjall ársins, hæsta fjall

landsins sem nýliðar munu toppa með

glans.

Klettaklifur og bergtryggingar /

28.-29. maí

Farið er í uppsetningu hinna

margvíslegu berg trygginga fyrir

kletta klifur og björg un. Nýliðar

spreyta sig í klettaklifri

og sigi við auð veldar

aðstæður undir leiðsögn

sér fræðinga.

Tvö kvöld í nánd við

borgina. Verklegar

æfingar.

Sumarferð / jún.-ág.

Tjaldgönguferð að

sumri sem nýliðar

skipu leggja og fara

á eigin vegum í 2-5

manna hópum.

Stikuvinna / jún.-ág.

Nýliðar láta sitt

ekki eftir liggja í

fjáröfluninni og

sinna viðhaldi á stikuðum gönguleiðum á Hengils-

svæðinu í þessari náttúruperlu sem er rétt við

borgarmörkin.

Menningarnótt / ágúst.

Sinna þarf fótboltagæslu og máské einhverju öðru

þennan dag.

Hjálparsveit skáta í Reykjavík

10

Hjálparsveitin er að mestu leyti rekin fyrir sjálfsaflafé og er þátttaka allra félaga í fjáröfluninni því mikilvægur þáttur í starfinu.Í raun má segja að þátttaka í fjáröflun sé jafn mikilvæg og önnur verkefni því hún myndar grunninn undir rekstri sveitarinnar.

Page 11: HSSR | kynning á nýliðaþjálfun 2012-14

Helstu þættir seinna kennslutímabils (2013-14)

Þverun straumvatna

Verklegt dagsnámskeið í leiðarvali um jökulvötn.

Heimsókn í Skógarhlíð

Fyrirlestur, undirbúningur fyrir Leitartækni.

Leitartækni

Kennd eru undirstöðuatriði í leit að týndu fólki

í byggð og óbyggðum. Námskeiðið byggir á röð

fyrirlestra og verklegra æfinga í birtu og rökkri.

Ferðast á jökli

Námskeið um leiðarval og ferðalög á jökli. Nýliðar

prófa ísklifur við auðveldar aðstæður.

Tetra-fjarskipti

Farið yfir undirstöðuatriði í notkun Tetra-stöðva.

Fyrsta hjálp 2

Framhaldsnámskeið í fyrstu hjálp. Þátt tak-

endur eru búnir undir að takast á við stóráföll og

eftirköst þeirra. Stjórnun á vettvangi og fleira.

Kort og tölvuvinnsla

Hugbúnaðurinn Ozi Explorer er notaður í sveitinni

til þess að halda utan um GPS gögn og við

kortavinnslu.

Útkallsmál og bækistöðvahópur,

persónulegur útkallsbúnaður

Farið yfir ferli útkalla og per sónu legan útkalls-

búnað.

Vetrarferð

Vetrarferð þar sem ný liðar skipta sér í 2-5 manna

hópa og skipuleggja ferðina alfarið sjálfir. Gist í

a.m.k. eina nótt í snjóhúsum eða tjöldum.

Nýliðaraunin

Síðasta prófraunin fyrir inngöngu inn í sveit ina

sem reynir á flesta þætti þjálf unarinnar. Bún að-

ur skv. einstak lings bún aðar lista björgunarmanns.

11Kynningarbæklingur fyrir nýliða 2012-14

Page 12: HSSR | kynning á nýliðaþjálfun 2012-14

CMYKPantone 287

Malarhöfði 6 | 110 Reykjaví[email protected] | hssr.is