Íbúinn 31. tbl 2012

4

Click here to load reader

Upload: oskar-birgisson

Post on 10-Mar-2016

224 views

Category:

Documents


3 download

DESCRIPTION

frettablað í Borgarbyggð

TRANSCRIPT

Page 1: Íbúinn 31. tbl 2012

ÍBÚINNfrétta- og auglýsingablað

31. tbl. 7. árgangur 25. október 2012

Hönnun prentgripa &

alhliða prentþjónustaFjölritunar- og útgáfuþjónustan

Getum við aðstoðað þig?

sími: 437 2360

Hollt & gott í hádegi

alla daga!

Er með laus pláss í tamningu og þjálfun frá 1.nóv. Vönduð Vinnubrögð

Ingvar Þór Jóhannsson FT félagi Borgarnesi Sími: 843-9156

TAMNING! ÞJÁLFUN!

@AuðurÓsk

Menntaskóli Borgarfjarðar (MB) og Landbúnaðarháskólinn (Lbhí) hafa undirritað samstarfssamning um tilraunakennslu náttúru fræði-brautar með búfræðisviði til stúdentsprófs.

Allt að fimm nemendur sem innritast á brautina hjá MB árin 2012 – 2015 eiga vísa skólavist í búfræði hjá LbhÍ eftir að hafa lokið þeim hluta námsins sem fram fer í MB. Við inntöku nemenda á hina nýju braut er miðað við að þeir hafi reynslu af störfum í landbúnaði og uppfylli önnur inntökuskilyrði LbhÍ.

Nýtt í BorgarsportLores Concorde sokkabuxur- 60 den

Lores Concorde eru hágæða Ítalskar sokkabuxur fáanlegar í 22 litum og fj órum stærðum

Kynningartilboð

aðeins 990 kr.

Náttúrufræði

í Menntaborg

Page 2: Íbúinn 31. tbl 2012

Auglýsingasími: 437 2360

Netfang: [email protected]Útgefandi: Fjölritunar- og útgáfuþjónustan

Ritstj. og áb.: Olgeir Helgi RagnarssonÍbúanum er dreift með Íslandspósti á öll

heimili og fyrirtæki í póstnúmer 301, 310, 311, 320 & 356. Upplagið er 2.000 eintök.

Íbúinn kemur að jafnaði út á fi mmtudögum.

ÍBÚINNfrétta- og auglýsingablað

Viðburðadagatalfi 25/10-9.00 Hvanneyri, námskeið;

Skjól, skógur og skipulag

fö 26/10-13.30 Félagsstarf eldri

borgara; Tónlistarskólinn í heimsókn

fö 26/10-19.15 „Fjósið“ Skallagrímur-ÍR

takast á í meistarafl okki kk í körfu

fö 26/10-20.00 Félagsbær; félagsvist

la 27/10-20.00 Landnámssetur;

Geðveiki í Egilssögu

su 28/10-11.15 Bgnkirkja; Barnaguðsþj.

su 28/10-15.00 Félagsbær; Opið hús

FEBBN fyrir 60 ára og eldri

su 28/10-16.00 Landnámssetur;

Geðveiki í Egilssögu

þr 30/10_10-17 Hyrnan; Blóð banka-

bíllinn verður í Borgarnesi

þr 30/10-10.00 Hvanneyri; Vinnu-

verndar og réttindanámskeið f. bændur

fö 2/11-15.00 Miðfossar, námskeið;

Frumtamning

Annað í gangi:Börn í 100 ár í Safnahúsi 13-18 alla dagaHamarsvöllur; pútt fyrir eldri borgara miðvikudaga kl. 14.00Íþróttamiðst.Bgn. Frjálsíþróttaæfi ngar

þri & fi kl. 17.00-18.30Íþróttamiðst.Bgn. Boccia lau 11-12Landbúnaðarsafnið opið eftir samkomul.Landnámssetur sýningar daglega 11-17Laxárbakki opið alla daga 10-22Nytjamarkaður Brákarey laugd. 12-16Páll á Húsafelli opið eftir samkomulagiSamgöngusafnið fi 20-22, lau 13-17Snorrastofa sýningar alla dagaVeiðisafnið Ferjukoti eftir samkomulagiÞórisstaðir húsdýragarður fö 15-18 laugard. og sunnud. 10-16

BARNAHORNIÐ

Samantekt: Borgarbyggð og ÍbúinnBirting viðburða er án endurgjalds og

tímasetningar ekki sannreyndar

Byrjun

Endir

Opið hús 60+Félag eldri

borgara

Borgarnesi og

nágrenni

Opið hús fyrir 60 +

Félag eldri borgara í

Borgarnesi verður með Opið hús í Félagsbæ

sunnudaginn 28. október kl. 15:00.Aðgangseyrir kr.

500 innifalið kaffi og meðlæti.

Þessi samkoma er

fyrir ALLA 60 ára

og eldri.

Hlökkum til að sjá

sem fl esta.

Stjórn og skemmtinefnd FEBBN

Bók eftir Ágúst um

menningarhagfræði

Háskólinn á Bifröst hefur gefið út bókina Menningarhagfræði eftir dr. Ágúst Einarsson prófessor og fyrrverandi rektor skólans. Þetta er fyrsta bókin sem kemur út á íslensku um hagfræði menningar. Í bókinni er m.a. fjallað um virði, skapandi atvinnugreinar, eftirspurn og framboð innan menningar, hlutverk stjórnvalda og markmið og mótun menningarstefnu. Fjallað er jafnframt um menningarlega arfleifð og tengsl menningar við þróunarmál sem og alþjóðlega verslun, markaðsmál, fjármál og stjórnun í menningariðnaði. Framleiðsla og sala á menningarlegum afurðum getur verið enn umfangsmeiri í íslensku efnahagslífi en nú er sem felur í sér margvísleg tækifæri til betri lífskjara í framtíðinni. Bókin er 232 bls. og mikill fengur er að þessari bók fyrir alla sem láta sig menningu varða.

Page 3: Íbúinn 31. tbl 2012

ÍBÚINNfer inn á öll heimili og

fyrirtæki í póstnúmerum 301, 310, 311, 320 og 356

Láttu vita af þér! - Auglýsing í Íbúanum kemst til skila

Auglýsingasími: 437 2360

Á bekknum sitja brúnaþungir Njarðvíkingar og fylgjast með þegar Birgir Þór Sverrisson

undirbýr eina af mörgum körfum Skallagríms í „Fjósinu“ í fyrsta heimaleik meistarafl okksins

í haust. Sá leikur varð ógleymanlegur háspennuleikur áður en yfi r lauk - jafnt milli liða þegar

tvær sekúndur voru til leiksloka. Verður spennan jafn mikil annað kvöld þegar strákarnir mæta

ÍR í „Fjósinu“? Mynd: Olgeir Helgi

Strákarnir í meistaraflokki Skallagríms í körfu öttu kappi við íslandsmeistara Grindavíkur á Suðurnesjum síðasta mánudag en höfðu ekki erindi sem erfiði þrátt fyrir að vera yfir í hálfleik.

Næsti leikur er annað kvöld en þá heimsækir lið ÍR „Fjósið“ og má búast við fjörugum leik og sprækum stuðningsmönnum.

Stelpurnar í 1. deild tóku á móti Ísfirðingum síðasta sunnudag og áttust liðin við í hörkuleik þar sem hvort um sig hefði getað farið með sigur af hólmi.

Þrátt fyrir harða baráttu okkar stúlkna höfðu Ísfirðingarnir nauman sigur en lokatölurnar voru 65-66.

Næsti leikur kvennaliðsins verður fyrir norðan, við Þór á Akureyri 17. nóvember nk.

Barátta í körfunni

Page 4: Íbúinn 31. tbl 2012

gdsggdfggf

Blóðbankabíllinn verður í Borgarnesi

við Hyrnuna þriðjudaginn 30. október

frá kl. 10:00-17:00. Allir velkomnir.

Glæsilegt ungt danspar, Erna Dögg Pálsdóttir frá Signýjarstöðum í Hálsasveit og Ármann Hagalín Jónsson frá Kjaransstöðum í Hvalfjarðarsveit, sem lært hafa dans hjá Dansskóla Evu Karenar undanfarin ár vöktu verðskuldaða athygli í Dans-dans-dans sjónvarpsþættinum sem sýndur var á laugardag á RUV. Erna Dögg og Ármann hafa náð góðum árangri og vakið athygli fyrir glæsilegan dans á undanförnum árum.

Þau eru bæði 19 ára. Erna Dögg hefur verið í dansnámi frá 9 ára aldri en Ármann frá því hann var 16 ára. „Okkur datt í hug að gera eitthvað öðruvísi, þetta er semsagt sjóræningjaþema,“ segir Erna Dögg í samtali við Íbúann um atriðið sem þau sömdu fyrir sjónvarpsþáttinn, en í þættinum dansa þau við lag úr kvikmyndinni Pirates of the Carabian. Næsta laugardag tekur alvaran við, en þá keppa þau um að komast áfram í lokakeppnina. Það munu aðeins tvö atriði komast áfram, annað valið af dómnefnd en hitt af áhorfendum í símakosningu: „Við erum ótrúlega spennt, pínu stress en aðallega spenna,“ segir Erna Dögg. Íbúinn hvetur Borgfirðinga til að styðja sitt fólk á laugardaginn enda eiga þessir flottu fulltrúar héraðsins á dansgólfinu það virkilega skilið.

Borgfi rðingar keppa

í Dans-Dans-Dans

Glæsilegt ungt danspar, Erna Dögg Pálsdóttir frá Signýjarstöðum í Hálsasveit og Ármann Hagalín Jónsson frá Kjaransstöðum í Hvalfj arðarsveit, tekur þátt

í Dans-dans-dans í RUV næsta laugardag. Meðfylgjandi mynd var tekin af þeim á íslandsmeistaramóti í dansi síðasta vetur. Mynd: Olgeir Helgi