Íbúinn

8
ÍBÚINN frétta- og auglýsingablað 12. tbl. 8. árgangur 24. apríl 2013 Opið alla daga til kl 21:00 Verið velkomin! Regnboginn NV S: 862 8347 [email protected] www.regnboginn.is Gísli Árnason Barbara Ósk Guðbjartsdóttir Ólöf Húnörð Snjólaug Guðmundsdóttir Arnþrúður Heimisdóttir Sigurður Oddur Ragnarsson X J Við getum treyst Jóni Tryggjum öflugum málsvara okkar, Jóni Bjarnasyni áframhaldandi setu á alþingi Hættum innlimunarferli í ESB og tryggjum fullveldi Íslands. Eflum íslenskan landbúnað, matvælaöryggi og innlenda matvælaframleiðslu. Stöndum vörð um heilbrigðisstofnanirnar okkar og aðra grunnþjónustu. Eflum strandveiðar og svæðisbundnar sjávarnytjar. Fjölgum tækifærum ungs fólks til atvinnu og búsetu með fjölbreyttu atvinnulífi og góðum búsetuskilyrðum. Treystum mennta- og rannsóknarstarf á landsbyggðinni. Nýtum og njótum náttúrunnar með sjálfbærum hætti. Bæta þarf samgöngur um allar byggðir landsins, þar er verk að vinna.

Upload: oskar-birgisson

Post on 15-Feb-2016

218 views

Category:

Documents


0 download

DESCRIPTION

Íbúinn fréttabréf Borgarbyggðar og nágr.

TRANSCRIPT

Page 1: Íbúinn

ÍBÚINNfrétta- og auglýsingablað

12. tbl. 8. árgangur 24. apríl 2013

Opið alla daga til kl 21:00

Verið velkomin!

Regnboginn NV

S: 862 8347 [email protected]

www.regnboginn.is

Gísli Árnason

Barbara Ósk Guðbjartsdóttir Ólöf Húnfjörð

Snjólaug GuðmundsdóttirArnþrúður Heimisdóttir

Sigurður Oddur Ragnarsson

XJVið getum treyst Jóni

Tryggjum öflugum málsvara okkar, Jóni Bjarnasyni áframhaldandi setu á alþingi

Hættum innlimunarferli í ESB og tryggjum fullveldi Íslands.

Eflum íslenskan landbúnað, matvælaöryggi

og innlenda matvælaframleiðslu.

Stöndum vörð um heilbrigðisstofnanirnar okkar og aðra grunnþjónustu.

Eflum strandveiðar og svæðisbundnar sjávarnytjar.

Fjölgum tækifærum ungs fólks til atvinnu og búsetu með fjölbreyttu atvinnulífi og góðum búsetuskilyrðum.

Treystum mennta- og rannsóknarstarf á landsbyggðinni.

Nýtum og njótum náttúrunnar með sjálfbærum hætti.

Bæta þarf samgöngur um allar byggðir landsins, þar er verk að vinna.

Page 2: Íbúinn

Netfang: [email protected]

Útgefandi: Fjölritunar- og útgáfuþjónustan

Ritstj. og áb.: Olgeir Helgi Ragnarsson

ÍBÚINNfrétta- og auglýsingablað

Auglýsingasími: 437 2360

Viðburðadagatalmi 24/4-20:00 Borgarneskirkja; Tón-

listar félag Borgarfj arðar - Ljóðatónleikar:

Harald Björköy tenór og Selma

Guðmundsdóttir píanóleikari

mi 24/4-21:00 Edduveröld; Tónleikar

Halli Reynis

fi 25/4 Hvanneyri; Skeifudagur Grana

fi 25/4 Safnahús Borgarfj arðar; opnun

sýningar á verkum Tolla Morthens

fi 25/4-14:00 Borgarneskirkja;

Skátaguðsþjónusta

fi 25/4 14-17 Bjarnarbraut 8; Sýning

- list án landamæra

la 27/4 Kjördagur

su 28/4-18:00 Kaffi stofa Límtré-Vírnet;

Aðalfundur Stangveiðifélags Borgarness

þr 30/4-19:30 Edduveröld; Skóg ræktar-

félag Borgarfj arðar - fræðsluerindi og

aðalfundur

þr 30/4-20:00 Alþýðuhúsið; Aðalfundur

Grímshúsfélagsins

Annað í gangi:Börn í 100 ár í Safnahúsi 13-18 alla dagaEdduveröld o.vd. 10-23 & 10-01 helgar Risið; pútt fyrir eldri borgara fi mmtudaga kl. 11.00RKÍ fatabúð Bgn o. fö 12-18 & lau 12-15Heiðarborg; Vatnsleikfi mi opin öllum

þri kl. 15 og lau kl. 10Hverinn opið fö-su 12-18:30Íþróttamiðst.Bgn. Frjálsíþróttaæfi ngar

þri & fi kl. 17.00-18.30Íþróttamiðst.Bgn. Boccia lau 11-12Landbúnaðarsafnið opið eftir samkomul.Landnámssetur opið daglega 10-21Laxárbakki opið alla daga 10-22Nytjamarkaður Brákarey laugd. 12-16Páll á Húsafelli opið eftir samkomulagiSamgöngusafnið fi 20-22, lau 13-17Snorrastofa sýningar alla dagaVeiðisafnið Ferjukoti eftir samkomulagiÞórisstaðir húsdýragarður fö 15-18 laugard. og sunnud. 10-16

- Grímshúsfélagið -

Aðalfundur

Grímshúsfélagsins verður haldinn í Alþýðuhúsinu í Borgarnesi

þriðjudaginn 30. apríl 2013 kl. 20.00.

Dagskrá: Aðalfundarstörf samkv. 11. gr. laga Grímshúsfélagsins. Áhugafólk um endurbyggingu Grímshúss í Brákarey er hvatt til að mæta. - Grímshúsfélagið -

BARNAHORNIÐ

Það getur

verið erfi tt

að koma sér í

bólið á kvöldin þegar

farið er að birta...

Upphaf

Page 3: Íbúinn

Fræðslufundur — Aðalfundur30. apríl 2013

Þriðjudagskvöldið 30. apríl mun Skógræktarfélag Borgarfjarðar standa fyrir fræðsluerindi og í framhaldi halda aðalfund.

Staðsetning: Edduveröld í Englendingavík, Borgarnesi (Skúlagata 17).

Kl. 19:30 Fræðsluerindi.Kristinn H. Þorteinsson, garðyrkjufræðingur, fl ytur erindi sem hann nefnir

Skyggnst inn í framtíðina – hvert stefnirÍ erindi sínu ætlar Kristinn að fj alla um trjágróður í görðum og á útivistasvæðum í og í kringum þéttbýli.

Kl. 21:00 Aðalfundur Skógræktarfélags Borgarfjarðar.Dagskrá fundarins verður með hefðbundnu sniði.

Allir velkomnir!

Page 4: Íbúinn

Skyggnst inn í framtíðina

Hvert stefnir?Miklar breytingar hafa orðið á trjágróðri

hér á landi síðustu ár. Aukinn gróður hefur á margvíslegan hátt breytt umhverfi okkar á jákvæðan hátt, en ræktun í görðum er einnig farin að verða ýmsum til ama á síðari árum.

Kristinn H. Þorteinsson, garð yrkju-fræðingur, flytur erindi 30. apríl n.k. kl 19:30 í Edduveröld sem hann nefnir ”Skyggnst inn í framtíðina – hvert stefnir”. Í erindi sínu ætlar Kristinn að fjalla um trjágróður í görðum og á útivistasvæðum í og í kringum þéttbýli. Þá mun hann huga að hlutverki garðeiganda, en ekki síst sveitarfélaga, í ræktun og varðveislu trjágróðurs.

Það er Skógræktarfélag Borgarfjarðar sem stendur fyrir komu Kristins en félagið mun halda aðalfund sinn á Edduveröld kl. 21.00 sama kvöld.

Stefnumót við frambjóðendur

Bjartrar framtíðará Hótel Borgarnesimiðvikudaginn 24. apríl kl. 20.00

Komdu og kynntu þér málin!

Íbúum Borgarbyggðar er ge nn kostur á að taka á leigu matjurtagarða í Borgarnesi til að rækta sitt eigið grænmeti í sumar. Matjurtagarðarnir eru í landi Gróðrastöðvarinnar Gleymérei.

Boðið er upp á tvær stærðir garða, 15 m2 á kr. 4.148 og 30 m2 á kr. 5.880. Ráðgjöf er á staðnum á opnunartíma gróðrastöðvarinnar.

Þeir sem hafa áhuga á að leigja sér matjurtagarð í Borgarnesi eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við Björgu Gunnarsdóttur, umhver s- og landbúnaðarfulltrúa Borgarbyggðar í síma 433-7100 eða með því að senda póst á netfangið [email protected].

Garðarnir fást afhentir í maí um leið og búið er að tæta þá og merkja. Haft verður samband við þá sem hafa pantað garða um leið og þeir eru tilbúnir. Plöntur og útsæði fylgja ekki görðunum. Hægt er að komast í vatn við garðana. Af gefnu tilefni eru leigjendur beðnir um að láta ekki vatnið renna að óþörfu og að hreinsa garðana að notkun lokinni af steinum, spýtum, y rbreiðslum og öðru því sem þeir hafa borið í þá.

Matjurtagarðar sumarið 2013

Page 5: Íbúinn

Kosningaskrifstofa

Framsóknarflokksins í Félagsbæ Borgarnesi

Sumardagurinn fyrsti - Fögnum sumri kl. 14-22 •Vöfflukaffi •Unglingahljómsveitin Brosbandið frá Laugagerði treður upp Föstudagur 26/4 - opið kl. 14-22 •Upphitun fyrir kjördag – létt spjall og lifandi tónlist •Hægt að fylgjast með lokaspretti sjónvarpsviðræðna á skjá Kjördagur 27/4 - opnum með morgunkaffi kl. 9.00 Kosningakaffi fram eftir degi og kosningavaka um kvöldið!

Fjölskyldusvið Borgarbyggðar leitar að starfsmönnum til að halda utan um sumarnámskeið fyrir börn frá byrjun júní til byrjun júlí.

Um er að ræða tvö störf: umsjón sumarstarfs fyrir 7- 10 ára börn og umsjón sumarstarfs fyrir 11- 13 ára börn.

Skilyrði er að umsækjendur ha reynslu af vinnu með börnum. Launakjör eru skv. kjarasamningi Kjalar og launanefndar sveitarfélaga.

Umsóknarfrestur er til 3. maí n.k.

Nánari upplýsingar veita Ásthildur Magnúsdóttir eða Hjördís Hjartardóttir í s: 4337100, netfang: [email protected] eða [email protected].

Fjölskyldusvið Borgarbyggðar

Starfsmenn óskast til að hafa umsjón með sumarstar barna er skóla lýkur í vor

Page 6: Íbúinn

Þorlákur Morthens, b e t u r þ e k k t u r sem Tolli, s ý n i r málverk og teikningar í Safnahúsi s u m a r i ð 2013 og

verður sýning hans opnuð á sumardaginn fyrsta kl. 13.00. Þar segir Tolli stuttlega frá verkum sínum og Bubbi Morthens flytur nokkur lög. Tolli verður síðan viðstaddur á sýningunni til kl. 16.00.

Tolli er fæddur 1953. Hann stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og Hochschule der Künste í Vestur-Berlín og kom fyrst fram á samsýningu sjömenninga úr Myndlista- og handíðaskólanum í Norræna húsinu 1982. Verk hans njóta mikilla vinsælda og eru í eigu listasafna bæði hérlendis og erlendis.

Megin stefið í verkum Tolla er íslensk náttúra í kröftugu samspili ljóss og lita. Sýningin í Safnahúsi ber heitið Mýrar, móar, fjöll og verkin sem þar eru sýnd eru innblásin af töfrum borgfirskra sveita.

Sýningin stendur frá 25. apríl til 5. ágúst 2013. Þess má geta að báðar fastasýningar Safnahúss verða opnar þennan dag, Börn í 100 ár og Ævintýri fuglanna. Opið verður til 17.00.

Tolli og Bubbi í Safnahúsi

Vel heppnað

menntaþing

Þær stöllur sem áttu frumkvæðið að menntaþinginu; Kristín Gísladóttir leiksólastjóri, Steinunn

Baldursdóttir leikskólasjóri, Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir grunnskólastjóri og Theodóra

Þorsteinsdóttir tónlistarskólastjóri.

„Skólar eru samfélög, ekki stofnanir“

sagði Katrín Jakobsdóttir, mennta- og

menningarmálaráðherra í ræðu á þinginu og

hrósaði frumkvöðlunum fyrir þeirra framtak við

skipulagningu á vel heppnuðu menntaþingi.

Um 200 manns frá öllum skólastofnunum Borgarbyggðar mættu á menntaþing í Menntaskóla Borgarfjarðar. Vonast skipuleggjendur mennta-þingsins til þess að með þinginu hafi náðst að vekja athygli á Borgarfirði sem menntahéraði og því framsækna og fjölbreytta skólastarfi sem þar er.

Page 7: Íbúinn

STYRKIR TIL AUKINNAR FRAMLEIÐNI Í MATVÆLAIÐNAÐI Á VESTURLANDI

Framkvæmdaráð sóknaráætlunar Vesturlands auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna sem auka framleiðni í matvælaiðnaði á Vesturlandi. Til ráðstöfunar í verkefnið eru 5 mkr. og er fyrirhugað að veita 2- 3 mkr. styrki til fyrirtækja eða einstaklinga með áhugaverð verkefni á þessu sviði. Gert er ráð fyrir að umsækjandi leggi á móti jafn háa fjárhæð til verkefnisins og sá styrkur sem veittur verður. Skila þarf inn umsókn með lýsingu á verkefninu, grófri áætlun um hversu mörg störf það getur skapað ásamt tímasetningu um framvindu. Umsókn skal skila á rafrænu formi til Atvinnuráðgjafar Vesturlands á netfangið [email protected], eigi síðar en föstudaginn 10. maí n.k., en nánari upplýsingar veitir

STYRKIR TIL MARKAÐSSETNINGAR OG NÝSKÖPUNAR Í FERÐAÞJÓNUSTU Á VESTURLANDI

Framkvæmdaráð sóknaráætlunar Vesturlands auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna sem bæta markaðssetningu og auka nýsköpun í ferðaþjónustu á Vesturlandi. Til ráðstöfunar í verkefnið eru 5 mkr. og er fyrirhugað að veita 2- 3 mkr. styrki til fyrirtækja eða einstaklinga með áhugaverð verkefni á þessu sviði. Gert er ráð fyrir að umsækjandi leggi á móti jafn háa fjárhæð til verkefnisins og sá styrkur sem veittur verður. Skila þarf inn umsókn með lýsingu á verkefninu, grófri áætlun um hversu mörg störf það getur skapað ásamt tímasetningu um framvindu. Umsókn skal skila á rafrænu formi til Atvinnuráðgjafar Vesturlands á netfangið

Page 8: Íbúinn

Við alþingiskosningar laugardaginn 27. apríl 2013 er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð sem hér segir:

Borgarneskjördeild í Hjálmakletti (menntaskólanum) í BorgarnesiÞar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Gljúfurár.

Kjörfundur hefst kl. 9,oo og lýkur kl. 22,oo

Lindartungukjördeild í félagsheimilinu LindartunguÞar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Haffjarðarár.

Kjörfundur hefst kl. 10,oo og lýkur kl. 20,oo

Lyngbrekkukjördeild í félagsheimilinu LyngbrekkuÞar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Hítarár.

Kjörfundur hefst kl. 10,oo og lýkur kl. 20,oo

Þinghamarskjördeild í félagsheimilinu Þinghamri, VarmalandiÞar kjósa íbúar í Stafholtstungum, Norðurárdal, Bifröst og Þverárhlíð.

Kjörfundur hefst kl. 10,oo og lýkur kl. 22,oo

Brúaráskjördeild í félagsheimilinu BrúarásiÞar kjósa íbúar Hvítársíðu og Hálsasveitar.

Kjörfundur hefst kl. 10,oo og lýkur kl. 20,oo

Kleppjárnsreykjakjördeild í grunnskólanum að KleppjárnsreykjumÞar kjósa íbúar Hvanneyrar, Andakíls, Bæjarsveitar, Lundarreykjadals,

Flókadals og Reykholtsdals. Kjörfundur hefst kl. 10,oo og lýkur kl. 22,oo

Vinsamlega athugið mismunandi tíma á lokun kjördeildanna.

Kjósendur eru hvattir til að athuga í hvaða kjördeild þeir eiga að kjósa og hafa persónuskilríki með sér á kjörstað.

Á kjördag verður kjörstjórn Borgarbyggðar með aðsetur í Hjálmakletti í Borgarnesi. Sími hennar er 433-7705.

Kjörstjórn Borgarbyggðar

AUGLÝSINGUM SKIPAN Í KJÖRDEILDIR Í BORGARBYGGÐ