orð af orði - orðaforði
DESCRIPTION
Orð af orði - orðaforði. Aníta Jónsdóttir Hrafnagilsskóla. Upphafið. Markmið. Orðaforðakennslu er ætlað að auka lesskilning og að nemendur efli orðaforða og hæfni til að ráða í merkingu orða, nýti orðasafnið á fjölbreyttan hátt og efli þannig skilning. Framkvæmd. - PowerPoint PPT PresentationTRANSCRIPT
ANÍTA JÓNSDÓTTIRHRAFNAGILSSKÓLA
Orð af orði - orðaforði
Upphafið
Markmið
Orðaforðakennslu er ætlað að auka lesskilning og að nemendur efli orðaforða og hæfni til að ráða í merkingu orða, nýti orðasafnið á fjölbreyttan hátt og efli þannig skilning.
Framkvæmd
Námskeið fyrir kennara, fræðilegar undirstöður og áætlanir. Kennsluleiðir og útfærsluhugmyndir.
Markviss orðaforðakennsla í 10 vikur, minnst þrisvar í viku í tveimur fögum.
Lesskilningspróf I lagt fyrir nemendur. Ráðgjöf til kennara (litlir hópar)
mánaðarlega.Lesskilningspróf II lagt fyrir nemendur.Skýrsla um verkefnið.
Kennslan
Kennarar 3. – 7. bekkjar, auk kennara í bóklegum fögum annarra bekkja tóku þátt í verkefninu og hófust strax handa.
Útbúnar voru kennsluáætlanir, verkefni framleidd og út um allan skóla mátti sjá afraksturinn.
Unnið með –ing orð í 3. og 4. bekk
Áhuginn leynir sér ekki
Helstu niðurstöður - nemendur
Áhugi og vitund nemenda um orð jókst, vitund um hvernig við notum orðhluta í málinu og hvernig hægt er að finna leiðir til skilnings.
Nemendur urðu áhugasamari um orð. Nemendur taka orð til skoðunar þegar
þeir skilja ekki með því að skoða orðhlutana.
Nemendur eru vakandi fyrir orðum og taka eftir ef þeir rekast annars staðar á orð sem tekin hefðu verið til umfjöllunar í skólanum.
Helstu niðurstöður - kennarar
„..ég sá áhuga nemenda á orðum og orðaforða glæðast með hverjum degi eftir að ég fór að vinna markvisst með verkefnið.“
„Með orði dagsins notuðum við okkur mikið að fara í málfræðiþætti, eins og samheiti, andheiti, rím, kyn orða og tala, tvöfaldur samhljóði, sérnöfn og samnöfn.“
„Almennur áhugi á lestri hefur aukist samhliða yndislestri.“
„Þessi vinna féll mjög vel að íslenskukennslu 10. bekkjar þar sem á sama tíma var verið að vinna með forskeyti, rót, viðskeyti, hljóðskipti og beygingarendingar.“
Framhaldið
„Kennsluaðferðir í íslensku næsta vetur verða byggðar á orði af orði og höfum við hugsað okkur að bæta við aðferðum í stafsetningarkennslu. Yndislestur verður áfram, svo og vinna við gagnvirkan lestur og hugtakakort.“