BORGARHLUTI 5 HÁALEITI – BÚSTAÐIR
HVERFISSKIPULAG
KYNNING Íbúafundur í Breiðagerðisskóla
27.01 2016
hornsteinar arkitektar - landlínur – urban arkitektar
1954 Gerðin
1965 Múlarnir
Mýrarnar
Hvassaleiti
Gerði
1971 Fossvogurinn
HVERFI - HVERFISEININGAR
5.1 Háaleiti-Múlar 5.3 Bústaðir- og smáíbúðahverfi
5.2 Kringlan-Leiti-Gerði 5.4 Fossvogur-Grófir
TIL GRUNDVALLAR........
Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2013
SAMRÁÐ / HAGSMUNAAÐILAR - ÍBÚAR - HVERFISRÁÐ
GÁTLISTAR - GREINING BORGARHLUTANS
GILDANDI SKIPULAGSÁÆTLANIR OG SKILMÁLAR
GREINING BORGARHLUTANS
HELSTU NIÐURSTÖÐUR ÚR GÁTLISTA
....................gegnum gangandi þráður Í GREININGU
Samfélag
Orka og auðlindir
Gæði byggðar Samgöngur
Vistkerfi og minjar
Styrkleikar
Samfélag
• Fastmótuð, gróin , heildstæð íbúðabyggð með ágætri samsetningu íbúðategunda á flestum
svæðum.
• Aldursdreifing er ágæt, en þó hlutfallslega margir í yngsta og elsta aldurflokknum.
• Skilgreind skólahverfi þjóna ágætlega framboði og eftirspurn, og nýting skólamannvirkja er góð, en undantekning er hverfi 5-4 Fossvogur-Grófir.
• Öll helsta verslun og þjónusta er innan borgarhlutans - eða í nágrenni hans - . Einkum eru hverfi 5-1 Háaleiti-Múlar og 5-2 Kringlan-Leiti-Gerði vel sett (Miðbær – Kringlan – Austurver).
Veikleikar
Samfélag • Þéttleiki byggðar er undir meðallagi á ákv. svæðum, einkum í hverfi 5-2 Kringlan-Leiti-Gerði
og 5-4 Fossvogur-Grófir.
• Víða vantar framboð á verslun og þjónustu í göngufjarlægð innan hverfanna sjálfra – einkum í hverfi 5-3 Bústaðir- og smáíbúðahverfi og 5-4 Fossvogur-Grófir. • Umferðaröryggi mjög ábótavant og lítil samfélagstengsl milli hverfa.
• Staðarandi litill og hverfisandinn rýr.
• Hverfin skorta “miðju”/ kjarna/ samkomustað
• Almenningsrýmin mörg hver illa nýtt og gleymd.
Styrkleikar
Gæði byggðar • Hverfin almennt með heildstætt yfirbragð. Íbúðabyggðin fremur lágreist og fellur ágætlega
að staðháttum og landslagi , undantekning er hverfi 5-1 Háaleiti-Múlar.
• Göngufjarlægðir/nálægð við verslun og þjónustu góðar í hverfum 5-1 Háaleiti-Múlar, 5-2 Kringlan-Leiti-Gerði og 5-3 Bústaðir- og smáíbúðahverfi.
• Framboð almenningsrýma, leik-og íþróttasvæða er ásættanleg að stærstum hluta, undantekningar eru hverfi 5-1 Háaleiti-Múlar og 5.2 Kringlan-Leiti-Gerði.
• Gróðurþekja almennt góð (undantekningar í hverfum 5.1 og 5.2)
Veikleikar
Gæði byggðar • Miklar umferðagötur eru umhverfis borgarhlutann – fara í gegnum hann og þvera hann – og
margslíta hann í sundur.
• Takmarkaðir möguleikar á þéttingar byggðar innan hverfa – fyrir utan þau þróunarsvæði sem þegar hafa verið tilgreint í ASK.
• Nálægð við Kringlu og Skeifu hefur orðið til þess að dregið hefur verulega úr fjölda verslana
innan hverfanna sjálfra.
• Skortur er á minni eða millistórum íbúðum.
• Skortur er á samhangandi almenningsrýmum og tengingu milli þeirra.
• Breyting á húsum í elsta hluta byggðarinnar of oft illa gerðar. Byggingararfurinn að hverfa.
Styrkleikar
Samgöngur • Hátt hlutfall 30 km gatna innan borgarhlutans, undantekning er hverfi 5-4 Fossvogur-Grófir.
• Fá slys innan íbúðahverfa.
• Nær öll þjónusta innan við 15 mín. hjólafjarlægðar (ekki gangandi)
• Skipulag almenningssamgangna og tenging við aðra borgarhluta ágæt. Staðsetning biðstöðva og göngufjarlægð góð (-nema hverfi 5-4)
• Bílastæði : 1-1,5 stæði /íbúð (hverfi 5-1 og 5-2). Í hverfum 5-3 og 5-4 2 stæði/ íbúð.
• Flest bílastæði við verslun/þjónustu/stofnanir standa auð á kvöldin og eru opin þeim sem vilja nýta þau.
Veikleikar
Samgöngur
• Sundurtættur borgarhluti stórra umferðaæða; umferðamengun. • Umferðaröryggi; aðgerða þörf í þágu óvarinna vegfarenda.
• Stórbæta þarf tengingar milli hverfa (yfir/undir) innan borgarhlutans. Fleiri þrengingar
gatna- þverun gatna. Börn þurfa t.d. að fara yfir stórar umferðargötur í skóla og í frístundastarf.
• Lítið um aðstöðu fyrir hjólreiðafólk. Hjólreiðamenn geta hjólað á gangstígum og gangbrautum en svo til ekkert er um sérstaka hjólreiðastíga.
• Stæði fyrir reiðhjól eru nær engin við verslanir og þjónustufyrirtæki.
• EKKI auðvelt að ferðast um borgarhlutann – gangandi og /eða hjólandi
Í HNOTSKURN
Það sem er sammerkt með ÖLLUM hverfum
borgarhlutans
eru
SAMGÖNGUMÁLIN
Í 14.000 manna borgarhluta sem er sundurtættur af stofnbrautum
og öðrum stórum umferðagötum,
eru aðeins ein undirgögn og þrjár göngubrýr -
og þá yfir sömu stofnbraut.
3 hættulegustu gatnamót höfuðborgarsvæðisins
eru innan borgarhlutans eða í jaðri hans
Bústaðavegurinn ER Akkilesarhællinn
?
Draga úr Veikleikum
Styrkleikar festir í sessi
Ógnunum breytt í tækifæri
FRAMTÍÐARSÝN
Meginmarkmið
er að auka sjálfbærni hverfanna innan borgarhlutans
ásamt því að viðhalda heildaryfirbragði byggðar.
SAMFÉLAG Fölga búsetutækifærum fyrr ungt fólk og auka fjölbreytni íbúðagerða.
Rjúfa einangrun hverfanna t.d. með bættu stígakerfi, staðsetningu almenningsrýma og aukinni
nærþjónustu. Sérstaklega að bæta tengingu milli hverfa vegna skóla og frístundastarfs.
Hvetja til vistvænni ferðamáta og hægja á umferð, t.d. með því að þrengja götur og fegra með
gróðri og götugögnum þar sem við á.
Draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum þeirra stóru umferðaræða er slíta hverfin í
sundur.
Stuðla að aukinni „hverfisvitund“ t.d með uppbyggingu almenningsrýma, leiksvæða og aukinni
nærþjónustu.
GÆÐI BYGGÐAR Efla hverfisanda og samfélagsvitund, t.d.með hverfistorgum/görðum, sem geta stuðlað að ýmsum
árstíðabundnum uppákomum. Nýjum kennileitum t.d. listí almenningsrýmum.
Viðhalda byggðarmynstri hverfanna / standa vörð um byggingararfinn. Vinna heildstæða stefnu og gera tillögu um hverfisvernd húsaraða, húsaþyrpinga og hverfa.
Stuðla að uppbyggingu verslunar og þjónustu innan hverfanna.
Stytta göngufjarlægðir og aðgengi að þeim.
Borgargötur - endurskilgreina götuna sem fjölbreytileg almenningsrými.
Virkja notkun almenningsrýma og skapa ný (t.d. ónýtt jaðarsvæði byggðar).
Gera þau eftirsóknarverð og hluta af daglegum lífsstíl íbúanna.
Huga betur að útfærslu gönguleiða, einkum gagnvart minnihutahópum.
Mótvægisaðgerðir gegn hljóðmengun
Auka borgarskógrækt
Stuðla að borgarbúskap
SAMGÖNGUR Draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum bílaumferðar og
stuðla að vistvænum samgöngum, þ.e.a.efla almenningssamgöngur.
Bæta öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda - einkum skólabarna sem þurfa að þvera stofnbrautir
vegna skólagöngu eða íþróttaæfinga.
Draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum þeirra stóru umferðaræða er slíta hverfin í sundur
með jákvæðum umhverfisbótum og auknu umferðaröryggi, t.d. með vistvænum
gróðurspöngum/vistloki og/eða undirgögnum/stokk og stuðla þar með að tengingu milli hverfa – og borgarhluta - .
VISTKERFI OG MINJAR
Draga fram þau gæði sem finnast í minjum og vistkerfi. Gera sýnilegri og tengja þær
göngu - og hjólaleiðum.
Standa vörð um heildaryfirbragð byggðar og byggingararf hverfanna.
ORKA OG AUÐLINDIR Auka vægi almenningssamgangna til þess að draga úr orkunotkun vegna samgangna,
t.d. bæta hjóla- og gönguleiðir og auka skjólmyndun.
Stuðla að frekari sorpflokkun og endurvinnslu innan íbúðahverfanna og þá einkum á
atvinnu- og verslunarlóðum.
Mæla að jafnaði segulsvið umhverfis þær spennustöðvar sem eru í hverfunum og
lagfæra jarðtengingar.
Byggja upp ný gróðursvæði til að auka kolefnisbindingu innan borgarlandsins, auka
sjálfbærni hverfanna og þar með lífsgæði íbúanna.
TAKK FYRIR