eystrahorn 6. tbl. 2013

10
Fimmtudagur 14. febrúar 2013 www.eystrahorn.is Eystrahorn 6. tbl. 31. árgangur www.eystrahorn.is Hafin er söfnun mynda af öllum fiskiskipum, stórum sem smáum, sem gerð hafa verið út frá Hornafirði. Einnig er leitað eftir myndum sem varpa ljósi á líf og starf sjómanna á hafi úti. Vitað er að skipa- og bátamyndir liggja víða: í albúmum, hanga uppi á vegg, geymdar í kössum, í tölvum o.s.frv. Það er því ósk undirritaðs að allir, sem telja sig eiga slíkar myndir í sínum fórum, hafi samband við hann, símar 861-3185 og 478-1479, netfang: [email protected]. Myndirnar verða færðar yfir á tölvutækt form til varðveislu og þeim skilað að því verki loknu. Við varðveislu myndanna verður ljósmyndara/eigenda getið ef þeir eru þekktir. Myndirnar verða varðveittar hjá Héraðsskjalasafni. Ráðgert er að afraksturinn verði aðgengilegur almenningi en ekki hefur verið tekin ákvörðun um með hvaða hætti það verður. Samhliða þessu verkefni er einnig ætlunin að safna sögum og vísum sem fjalla um sjómenn og þeirra líf. Þar er reyndar rennt blint í sjóinn en þó er ljóst að margir sjómenn kunna frá ýmsu að segja bæði í bundnu og óbundnu máli. Stefán Ólafsson Myndir af fiskiskipum sem gerð hafa verið út frá Hornafirði Í tilefni af því að 12. mars næstkomandi er 125 ára afmæli Þórbergs Þórðarsonar ætla Nýheimar að standa fyrir maraþonupplestri úr verkum hans á afmælisdaginn frá því klukkan 10 um morguninn og fram á kvöld. Upplesturinn fer fram í kaffistofunni í Nýheimum og er öllum frjálst að koma og lesa. Jafnframt verður bæjarbúum boðið upp á afmælistertu í tilefni dagsins. Þórbergsmaraþonið er skipulagt af Háskólasetrinu í samvinnu við Menningarmiðstöð Hornafjarðar, FAS og Grunnskóla Hornafjarðar og vonast er eftir öflugri þátttöku bæjarbúa í upplestrinum.Á bókasafninu í Nýheimum er hægt að skrá sig til leiks, þ.e. skrá nafn sitt við ákveðinn tíma ef það hentar, en einnig er hægt að mæta bara á svæðið og lesa uppáhaldskaflann sinn úr verkum Þórbergs þegar færi gefst. Fólk er hvatt til að koma og skrá sig sem fyrst! Þórbergsmaraþon Á humarveiðum á Ólafi Tryggvasyni Ingólfur SF 51. Eigandi var Rafnkell Þorleifsson Jóna Eðvalds SF 200 Á dögunum færði Svava Kristbjörg Guðmundsdóttir þjónustustjóri VÍS veglegan og sérvalinn sjúkrakassa til að hafa í Bárunni. Gunnar Ingi Valgeirsson umsjónarmaður íþróttamannvirkja tók við gjöfinni og þakkaði fyrir. Drengirnir í 6. flokk í fótboltanum voru á æfingu þegar afhendingin fór fram og fengu að vera með á myndinni. Það er mikil ánægja með aðstöðuna í Bárunni og áberandi hvað betur er mætt á æfingar og sömuleiðis hefur þátttakendum á öllum aldri fjölgað. VÍS gefur sjúkratösku í Báruna

Upload: heradsfrettabladid-eystrahorn

Post on 09-Mar-2016

240 views

Category:

Documents


7 download

DESCRIPTION

Eystrahorn 6. tbl. 2013

TRANSCRIPT

Page 1: Eystrahorn 6. tbl. 2013

Fimmtudagur 14. febrúar 2013 www.eystrahorn.is

Eystrahorn6. tbl. 31. árgangur www.eystrahorn.is

Hafin er söfnun mynda af öllum fiskiskipum, stórum sem smáum, sem gerð hafa verið út frá Hornafirði. Einnig er leitað eftir myndum sem varpa ljósi á líf og starf sjómanna á hafi úti. Vitað er að skipa- og bátamyndir liggja víða: í albúmum, hanga uppi á vegg, geymdar í kössum, í tölvum o.s.frv. Það er því ósk undirritaðs að allir, sem telja sig eiga slíkar myndir í sínum fórum, hafi samband við hann, símar 861-3185 og 478-1479, netfang: [email protected]. Myndirnar verða færðar yfir á tölvutækt form til varðveislu og þeim skilað að því verki loknu. Við varðveislu myndanna verður ljósmyndara/eigenda getið ef þeir eru þekktir. Myndirnar verða varðveittar hjá Héraðsskjalasafni. Ráðgert er að afraksturinn verði aðgengilegur almenningi en ekki hefur verið tekin ákvörðun um með hvaða hætti það verður.Samhliða þessu verkefni er einnig ætlunin að safna sögum og vísum sem fjalla um sjómenn og þeirra líf. Þar er reyndar rennt blint í sjóinn en þó er ljóst að margir sjómenn kunna frá ýmsu að segja bæði í bundnu og óbundnu máli.

Stefán Ólafsson

Myndir af fiskiskipum sem gerð hafa verið út frá Hornafirði

Í tilefni af því að 12. mars næstkomandi er 125 ára afmæli Þórbergs Þórðarsonar ætla Nýheimar að standa fyrir maraþonupplestri úr verkum hans á afmælisdaginn frá því klukkan 10 um morguninn og fram á kvöld. Upplesturinn fer fram í kaffistofunni í Nýheimum og er öllum frjálst að koma og lesa. Jafnframt verður bæjarbúum boðið upp á afmælistertu í tilefni dagsins. Þórbergsmaraþonið er skipulagt af Háskólasetrinu í samvinnu við Menningarmiðstöð Hornafjarðar, FAS og Grunnskóla Hornafjarðar og vonast er eftir öflugri þátttöku bæjarbúa í upplestrinum.Á bókasafninu í Nýheimum er hægt að skrá sig til leiks, þ.e. skrá nafn sitt við ákveðinn tíma ef það hentar, en einnig er hægt að mæta bara á svæðið og lesa uppáhaldskaflann sinn úr verkum Þórbergs þegar færi gefst. Fólk er hvatt til að koma og skrá sig sem fyrst!

Þórbergsmaraþon

Á humarveiðum á Ólafi Tryggvasyni

Ingólfur SF 51. Eigandi var Rafnkell Þorleifsson

Jóna Eðvalds SF 200

Á dögunum færði Svava Kristbjörg Guðmundsdóttir þjónustustjóri VÍS veglegan og sérvalinn sjúkrakassa til að hafa í Bárunni. Gunnar Ingi Valgeirsson umsjónarmaður íþróttamannvirkja tók við gjöfinni og þakkaði fyrir. Drengirnir í 6. flokk í fótboltanum voru á æfingu þegar afhendingin fór fram og fengu að vera með á myndinni. Það er mikil ánægja með aðstöðuna í Bárunni og áberandi hvað betur er mætt á æfingar og sömuleiðis hefur þátttakendum á öllum aldri fjölgað.

VÍS gefur sjúkratösku í Báruna

Page 2: Eystrahorn 6. tbl. 2013

2 EystrahornFimmtudagur 14. febrúar 2013

Vildaráskriftina má greiða í LandsbankanumHornafjarðarMANNI Rnr. 0172 - 26 - 000811 Kt. 240249-2949

Eystrahorn

Vesturbraut 25 • Sími: 862-0249

Útgefandi: ........... HornafjarðarMANNI

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: . Albert EymundssonNetfang: ............. [email protected]ófarkalestur .... Guðlaug HestnesLjósmyndir: ........ Maríus SævarssonUmbrot: ............. Heiðar SigurðssonPrentun: ............. Litlaprent

ISSN 1670-4126

HafnarkirkjaKyrrðarstund á föstu

alla miðvikudaga kl. 18:30.

Prestarnir

Vaktsími presta: 894-8881

bjarnanesprestakall.is

Þökkum auðsýnda samúð vegna andláts og útfarar elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður,

afa og langafa,

Bjarna Gunnars Sigurðssonar Holtaseli á Mýrum

Helga Ingibjörg Bjarnadóttir og fjölskylda

Í marsmánuði ætlar Sólrún Bragadóttir söngkona að heimsækja Höfn og bjóða upp á tveggja daga námskeið í söngheilun, auk þess sem hún heldur tónleika í Nýheimum þann 6. mars. Námskeiðið, sem verður haldið dagana 8. og 9. mars, kallar Sólrún Söngheilun og þroski með gleði og þar kynnir hún nýja leið til sjálfshjálpar þar sem tvinnað er saman svokallaðri Bel Canto söngtækni og aðferð sem heitir á ensku Joyful Evolution, eða þroski með gleði.

Hvað er söngheilun?Að sögn Sólrúnar byggist vinnan á námskeiðinu annars vegar á hugleiðslu og vinnu með sál, vitund og undirvitund og hins vegar á öndun, tónun, spuna og ýmisskonar orkuvinnu. Námskeiðið er útfært í tvennu lagi. Á föstudagskvöldinu 8. mars fer fram söngheilun, þar sem fyrst er farið í gegnum ákveðið undirbúningsferli og síðan taka þátttakendur á móti söngheilum. Laugardaginn 9. mars er síðan farið vel ofan í Joyful Evolution aðferðina auk þess sem kennd er hugleiðsla, tónun og öndun. Sólrún segir vinnuna með Joyful Evolution byggast á því að mjaka sér upp úr hjólförum gamalla munstra og skapa pláss fyrir nýja orku og nýjar leiðir. Þessi vinna getur haft sterk og jákvæð áhrif á sjálfið og jafnvel valdið stórbreytingum í lífi þátttakenda. Þar að auki getur þessi leið leyst upp ýmiss konar hindranir sem hafa verið manni lengi fjötur um fót. Svo sem lofthræðsla, barátta við kílóin, sjálfsgagnrýni og fleira. Sólrún segir þessa leið hafa breytt lífi sínu og almennri líðan til mikils batnaðar á stuttum tíma. Tæknina lærði Sólrún í Kaliforníu og lauk hún námi sem Joyful Evolution leiðbeinandi fyrir tæpu ári. Sólrún hefur verið búsett á dönsku eyjunni Mön undanfarin ár þar sem hún rekur tónlistarmiðstöðina Soloperasalen þar sem haldin eru námskeið og tónleikar, auk þess sem tekið er á móti hópum – t.d. kórum – sem vilja koma í æfingabúðir og dekur af ýmsu tagi. Salurinn er staðsettur í uppgerðri hlöðu á heimili Sólrúnar á Mön og býður upp á mikla ró og náttúrufegurð. Sólrún hefur heimsótt Höfn nokkrum sinnum áður, til að mynda hélt hún tónleika með Sigurði Flosasyni saxafónleikara undir heitinu „Dívan og djassmaðurinn“ fyrir fimm árum. Allir eru velkomnir á námskeið Sólrúnar. Skráning fer fram hjá Nínu Sybil Birgisdóttur hjá Austurbrú ([email protected], sími: 4703840). Námskeiðið kostar 20 þúsund krónur og minnt er á að mörg stéttarfélög taka þátt í námskeiðskostnaði félaga sinna.

Samverustund verður í Ekru föstudaginn 15. febrúar kl.17:00.

Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur ræðir um uppáhaldsbækur

Þórbergs Þórðarsonar, Alþýðubók Þórarins Böðvarssonar og Lækningabók Jónassens.

Félag eldri Hornfirðinga

Samverustund

Kjötmarkaðurinn á Miðskeriverður opinn á laugardaginn

eins og venjulega kl. 15:00 - 17:00. Fullt af fersku grísakjöti, lundir og margskonar steikur í helgarmatinn

og mart fleira beint frá býlinu.

Velkomin í sveitina, Pálína og Sævar Kristinn

Söngheilun

Er tjara á bílnum þínum?

Bjóðum þér upphitaða aðstöðu til þrifa og efni ef þarf gegn vægu gjaldi

Bugðuleiru 2 • Sími 894-1616

Árshátíð Karlakórsins Jökuls verður haldin 23. febrúar á Hótel Höfn.

Kórinn heldur uppá 40 ára afmæli á þessu ári.

Gamlir félagar hvattir til að mæta.Látið vita í síma 866-6253 (Brói)

eða 893-5463 (Finnur)

Page 3: Eystrahorn 6. tbl. 2013

3Eystrahorn Fimmtudagur 14. febrúar 2013

-Viðhaldsfríir

gluggarHentar mjög vel íslenskri veðráttu

Viðhaldsfríir sólskálar og svalalokanir

Við höfum framleitt viðhaldsfría glugga og hurðir í 28 ár

Nánari upplýsingar á www.solskalar.is

Yfir 40 litir í boði!

Menningarverðlaun Hornafjarðar

Auglýst er eftir tilnefningum til Menningarverðlauna Hornafjarðar fyrir árið 2012

Í reglum um verðlaunin segir:Verðlaunin eru veitt einstaklingi, stofnun eða samtökum sem viðurkenning fyrir eftirtektarvert framtak á sviði lista og menningar á nýliðnu ári. Hlutverk verðlaunanna er einnig að vera almenn hvatning til eflingar menningar- og listastarfs í sveitarfélaginu.

Frestur til að tilnefna er föstudagur 15. febrúar 2013. Tilnefningar ásamt stuttum rökstuðningi skal skila á Bæjarskrifstofur Hornafjarðar, Hafnarbraut 27 Höfn Hornafirði merkt, Menningarverðlaun.

Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri

Lokað vegna veikindaOpna aftur 13.mars kl. 8:00 - 12:00 og 17:00 - 20:00

Katrín Birna • Sími: 615 1231

Ást í ýmsum myndumÍ tilefni Valentínusardags verður Samkórinn

með söngkvöld í safnaðarheimilinu á fimmtudagskvöld kl 20:00

Söngur, kaffi og með þvíAðgangseyrir kr. 1.500

en kr. 1.000 fyrir eldriborgara.Hlökkum til að sjá ykkur

Samkór Hornafjaðar

Frá Ferðafélagi Austur-Skaftfellinga

Lokaáfangi strandgöngu í Öæfin DAgSFerð lAugArDAgINN 16. FebrúAr

Mæting á tjaldstæðið á Höfn kl. 9:00 eða í Skaftafelli kl. 10:30. Gengið verður hringur upp að upptökum Skeiðarár og vestur með jöklinum svo niður sand og þar í bíla. Gangan tekur u.þ.b. 6 klst.+ akstur.

Einnig er í boði að fara styttri leið og fara hægar.

Í lok ferðar verður boðið upp á kaffi og meðlæti.

Dregið verður í strandgöngupottinum, glæsilegir vinningar.

Verð kr. 500,- Munið nesti og hlýjan fatnað.

Hlökkum til að sjá sem flesta og ljúka þessu 5 ára verkefni.

Allir velkomnir.

Frekari upplýsingar veitir Ragna í síma 662-5074

Page 4: Eystrahorn 6. tbl. 2013

4 EystrahornFimmtudagur 14. febrúar 2013

Hún Natalía Sól Malarz er fyrsti Hornfirðingur ársins 2013. Hún fæddist þann 4. janúar á Sjúkrahúsi Suðurnesja og vó 4100 gr. og var 52 cm. að lengd. Foreldrar hennar eru þau Malwina og Arkadiusz Malarz en fyrir áttu þau dótturina Gabrielu Björg sem verður fjögurra ára á þessu ári. Malwina og Arkadiusz eru uppalin í borginni Wrocław í Póllandi sem er við landamæri Þýskalands og því stutt að skreppa til Berlínar. Þau hjónin fluttu hingað til lands árið 2006 og bjuggu til að byrja með á Breiðdalsvík en fluttu síðan til Hafnar árið 2008 og líkar hér vel. Þau heimsækja heimalandið reglulega og mun Natalía Sól njóta blíðunnar í Póllandi í sumar með fjölskyldu sinni. Við óskum fjölskyldunni til hamingju með stúlkuna.

Fyrsta Hornfirðingur ársins 2013

TónleikarLúðrasveit Hornafjarðar verður með tónleika í Sindrabæ

þriðjudaginn 19. febrúar kl. 20.00. Spilað verður úr smiðju Herb Alberts og félaga, Bert Campferts o.fl.

aðgangur ókeypis!

Ráðstefna um orkumálá Hótel Höfn 28. febrúar 2013 kl. 15:00 - 18:30

Dagskrá:Setning ráðstefnu • Ingvi Már Pálsson, skrifstofustjóri í atvinnu og nýsköpunarráðuneyti

Sjávarhverfill • Valdimar Össurarson, framkvæmdastóri Valorku ehf.Jarðhitaleit við Hoffell, önnur verkefni RARIK • Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK

Vindtúrbínur fyrir íslenskar aðstæður IceWind • Sæþór Ásgeirsson, verkfræðingur IceWind.Umræður – kaffihlé • Ásgerður Gylfadóttir, forseti bæjarstjórnar Hornafjarðar

Repjutilraunir • Sveinn Rúnar Ragnarsson, verkefnisstjóri Gagnaver á Hornafirði og flöskuhálsar • Eymundur Sigurðsson, verkfræðingur hjá Verkfræðistofu Jóhanns Indriðasonar

Aðgerðir í loftlagsmálum • Hugi Ólafsson, skrifstofustjóri umhverfis og auðlindarráðuneytiTilraun með varmadælur • Kristinn Jónsson, bæjarstjóri Snæfellsbæ

Orkubóndinn • Jón Snæbjörnsson verkfræðingur Verkís Umræður og samantekt • Ásgerður Gylfadóttir, forseti bæjarstjórnar Hornafjarðar

Ráðstefnustjóri: Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og gæðastjóri Hornafjarðar.

Page 5: Eystrahorn 6. tbl. 2013

5Eystrahorn Fimmtudagur 14. febrúar 2013

SKRÁÐU ÞIG NÚNA!

www.lbhi.is/namskeid - síma 433 5000 [email protected]

Fóðrun og fóðurþarfir sauðfjár Jóhannes Sveinbjörnsson dósent við LbhÍ Haldið 25. feb. á Smyrlabjörgum

Vinnuverndar- og réttindanámskeið fyrir bændur Í samstarfi við Vinnueftirlitið og Búnaðarsamböndin Kennarar eru ýmsir sérfræðingar frá Vinnueftirlitinu Hefst 26. feb. á Höfn Hefst 28. feb. á Vopnafirði Hefst 5. mars á Egilsstöðum Hefst 19. mars á Þórshöfn

Endurmenntun LbhÍ

Bifreiðaskoðun á Höfn 25., 26. og 27. febrúarTímapantanir í síma 570 9090

fyrir kl. 16:00 föstudaginn 22. febrúar.

Næsta skoðun 8., 9. og 10. apríl.

Þegar vel er skoðað

FAAS, félag áhugafólks og aðstandenda Alzheimerssjúklinga og annarra með skylda sjúkdóma heldur fræðslufund fimmtudaginn 21. febrúar n.k.

Fundurinn sem hefst kl. 19.30 verður haldinn í sal Ekrunnar

Dagskrá:

Fréttir af starfsemi FAAS•

Framkvæmdastjóri FAAS, Svava Aradóttir flytur erindi sem • hún nefnir: „Af hverju lætur hún mamma svona?“ Í erindinu verður fjallað um heilabilunarsjúkdóma, einkenni þeirra og hvernig hægt er að halda góðum og gefandi samskiptum við fólk með sjúkdómana

Ásgerður Gylfadóttir, hjúkrunarstjóri kynnir starfsemi og • umbótarvinnu hjúkrunardeildar HSSA

Umræður og fyrirspurnir•

Eitt af markmiðum FAAS er að efla fræðslu- og upplýsingastarf á landsbyggðinni. Stofnað hefur verið tenglanet á Höfn og verður það starf kynnt á fundinum

Félagsmenn og aðrir velunnarar félagsins eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum um málefni fólks með heilabilun

Allir áhugasamir eru velkomnir

Bestu kveðjur, Stjórn FAAS

Sveitarfélagið Hornafjörður

Endurskoðun aðalskipulags, lýsing verkefnisins og matslýsingBæjarstjórn Hornafjarðar auglýsir að nýju Lýsingu verkefnis og matslýsingu fyrir endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar með vísan í 30 grein skipulagslag nr. 123/2010 og laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana.

Auglýsingin er endurtekin vegna reglugerðarskila við gildistöku nýrrar skipulagsreglugerðar nr.90/2013.

Ábendingar sem borist hafa við lýsingu verkefnis og matslýsingu við fyrri auglýsingu eru teknar gildar. Þeir sem skiluðu inn ábendingum við fyrri auglýsingu þurfa því ekki að skila inn nýjum ábendingum

Lýsing verkefnis og matslýsing verða til sýnis í Ráðhúsi Sveitarfélagsins Hornafjarðar, Hafnarbraut 27, 780 Höfn frá og með 11. febrúar 2013 til og með 11. mars 2013 og á heimasíðu sveitarfélagsins. http://www2.hornafjordur.is/stjornsysla/

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, er hér með gefinn kosturá að gera athugasemdir við Lýsingu verkefnis og matslýsingu. Frestur til að skila inn ábendingum/athugasemdum er til mánudagsins 11. mars 2013 og skal senda þær á netfangið [email protected] eða skila þeim í Ráðhús Hornafjarðar, Hafnarbraut 27, 780 Höfn.

F.h. Sveitarfélagsins Hornafjarðar 10. febrúar 2013Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson

yfirmaður umhverfis- og skipulagsmála

Page 6: Eystrahorn 6. tbl. 2013

6 EystrahornFimmtudagur 14. febrúar 2013

Karlar sem elska konurKonudagurinn er sunnudaginn 24. febrúar.

Konudagsblómin fáið þið hjá Lionsklúbbi Hornafjarðar.

Fallegur blómvöndur og kort með texta að eigin vali.

Verð kr. 3.900,-Blómvendirnir verða bornir út á konudaginn

Pantanir þurfa að berast í síðasta lagi þriðjudaginn 19. febrúar til Sigurðar í síma 894-3497.

Sýningu áhugaljósmyndara sem stóð yfir í desember og janúar er nú lokið. Sýningin var haldin utan dyra og var myndunum varpað upp utan á Listasafnið. Þetta er í fyrsta sinn sem sýningin fer fram úti og var ákveðið að halda hana á þessum árstíma til þess að brjóta upp skammdegið og einnig nutu myndirnar sín betur í myrkrinu. Sýningar af þessu tagi hafa tvisvar farið fram áður hjá Menningarmiðstöð með góðum árangri en þær voru haldnar árið 2009 og 2010 og fóru fram í Pakkhúsinu. Þemað í ár var Landið og Fólkið og hundrað og ein mynd var til sýnis í þetta sinn, en þátttakendurnir voru átta talsins. Veitt voru verðlaun fyrir bestu myndina en hana átti Axel Bragi Andrésson og fékk hann að gjöf bókina Stafræn ljósmyndun - skref fyrir skref, bókin er hagnýt og ítarleg handbók um ljósmyndun og myndvinnslu fyrir bæði byrjendur og lengra komna og kom út núna fyrir jólin. Axel er 27 ára og hefur verið að taka myndir í frítíma sínum síðustu árin. Hann hefur einu sinni haldið ljósmyndasýningu en hún fór fram hér á Höfn og hét „Úr Umhverfinu“. Hann notast við Canon EOS 5D myndavél og myndin sem Axel fékk verðlaun fyrir sem bestu mynd er svarthvít og er tekin í Munkaþverárstræti á Akureyri, iso var stillt á 400, linsan var 5 mm linsa og ljósopið 1.8. Við óskum Axeli innilega til hamingju með myndina. Að lokum þökkum við Skinney-Þinganesi, Sparisjóði Hornafjarðar, Landsbankanum og Nettó Höfn kærlega fyrir stuðninginn við sýninguna.

Sýningu áhugaljósmyndara lokið

Umboðsaðili

Dansnámskeið í febrúar með lilju björk

Spennandi dansnámskeið fyrir alla aldurshópa þar sem kennt verður m.a. nútímadans, jazzballett og skapandi dans.

Námskeiðið fer fram í Sindrabæ og Mánagarði

dagana 18. febrúar - 1. mars

Skipt verður í aldhurshópa og hver hópur með 2-3 tíma

á viku.

Allar nánari upplýsingar er að finna á www.dansstudiolilju.

wordpress.com

Skráning á [email protected]

Komið og dansið!

Vorum að fá skósendingu frá TAMARIS

Nýir dömuilmir tilvalið fyrir konudaginn

Vorlínan farin að kíkja í hús

70% afsláttur af völdum skóm í

útsöluhorninu.Verið velkomin

Page 7: Eystrahorn 6. tbl. 2013

7Eystrahorn Fimmtudagur 14. febrúar 2013

VATNAJÖKULSÞJÓÐGARÐUR

SUMARSTÖRF 2013

Vatnajökulsþjóðgarður óskar eftir að ráða fólk í fjölbreytt sumarstörf. Um er að ræða landvörslu, upplýsingagjöf og afgreiðslu,

afgreiðslustörf í veitingasölu, ræstingar og almenn verkamannastörf.

• Skaftafell: Landverðir, starfsfólk í upplýsingagjöf og afgreiðslu, í ræstingar og í veitingasölu.

• Lónsöræfi: Landvörður.

• Höfn í Hornafirði: Landverðir og starfsfólk í upplýsingagjöf og afgreiðslu.

• Jökulsárgljúfur: Landverðir, starfsfólk í upplýsingagjöf og afgreiðslu, í ræstingar og í almenn störf.

• Askja og Ódáðahraun: Landverðir.

• Snæfellsstofa á Skriðuklaustri: Landverðir, starfsfólk í upplýsingagjöf, afgreiðslu og ræstingar.

• Snæfell: Landverðir.

• Kverkfjöll: Landverðir og skálaverðir í samvinnu við Ferðafélag Fljótsdalshéraðs og Ferðafélag Húsavíkur.

• Hvannalindir: Landvörður.

• Hólaskjól, Nýidalur og Lakagígar: Landverðir.

Ofangreind störf eru flest á tímabilinu frá byrjun júní til loka ágúst. Nokkur störf eru þó til lengri (maí – september) eða skemmri (júlí – ágúst) tíma. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og Starfsgreinasambands Íslands. Bæði konur og karlar eru hvött til að sækja um.

Ítarlegri upplýsingar um störfin, hæfniskröfur og aðbúnað starfsmanna má finna á heimasíðu Vatnajökulsþjóðgarðs; www.vjp.is og hjá þjóðgarðsvörðum á viðkomandi svæðum.

Umsóknum skal skilað á sérstökum umsóknareyðublöðum sem nálgast má á heimasíðu Vatnajökulsþjóðgarðs. Umsóknarfrestur er til og með 4. mars n.k. og skulu umsóknir sendar á netfangið: [email protected] eða í pósti merktum: Vatnajökulsþjóðgarður, Klapparstíg 25-27, 101 Reykjavík.

PORT

hön

nun

Ert þú að kaupa eða selja skip eða bát?

Þá erum við reiðubúnir til þjónustu.

bátar og búnaður www.batarb.is • [email protected]

Sími 562-2551Með kveðju frá vinnuhópi um heilbrigði og velferð

gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup

Page 8: Eystrahorn 6. tbl. 2013

8 EystrahornFimmtudagur 14. febrúar 2013

Góuhóf í ÖræfumOkkar árlega Góuhóf

verður haldið í Hofgarði laugardaginn 2.mars

Veislustjóri: Guðlaug Matthildur Jakobsdóttir

Kokkur: Benedikt Jónsson

Hljómsveit: Danshljómsveit Friðjóns Jóhannssonar

Miðaverð: kr. 6.000

Húsið opnar kl. 19:00 og borðhald hefst kl. 20:00

Miðapantanir eru hjá Sigrúnu í síma 864-5456

eða á [email protected]

Góunefnd 2013

Verkefnisstjóri vöruþróunar og rannsókna á ferðaþjónustu í Ríki Vatnajökuls

Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Hornafirði og Ríki Vatnajökuls ehf leita eftir verkefnisstjóra til að annast vöruþróun og rannsóknir á ferðaþjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði. Verkefnin eru fjölþætt og fela m.a. í sér stjórnun vöruþróunar- og nýsköpunarverkefna, ráðgjöf fyrir hluthafa Ríkis Vatnajökuls, söfnun og úrvinnslu grunngagna um ferðaþjónustu og hönnun og framkvæmd markaðs- og gæðakannana. Verkefnisstjórinn verður í hálfu starfi hjá Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Hornafirði og í hálfu starfi hjá Ríki Vatnajökuls ehf, ferðaþjónustu-, matvæla- og menningarklasa Suðausturlands.

Leitað er að einstaklingi með háskólagráðu, helst framhaldsmenntun, í ferðamálafræði eða aðra háskólamenntun sem nýst getur í starfi. Hæfni í mannlegum samskiptum, áreiðanleiki, frumkvæði og sjálfstæði eru nauðsynleg. Reynsla af rannsóknarstörfum og/eða verkefnastjórnun er æskileg. Gott vald á íslensku og ensku í rituðu og töluðu máli er mikilvægt. Um fullt starf er að ræða með aðsetur á Hornafirði og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun eru skv. kjarasamningi fjármálaráðherra og viðeigandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til 3. mars 2013. Með umsókninni skal fylgja greinargott yfirlit um námsferil og fyrri störf, ásamt ritaskrá ef við á. Umsóknum skal skila til starfsmannasviðs Háskóla Íslands, Aðalbyggingu við Suðurgötu, 101 Reykjavík, eða á netfangið: [email protected]. Öllum starfsumsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.

Nánari upplýsingar um starfið veita: Dr. Þorvarður Árnason, forstöðumaður Rannsóknasetursins (470-8040, 895-9003, [email protected]), eða Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ríkis Vatnajökuls (896-7084, [email protected]).

Sjálfstæðisfólk Föstudaginn 15. febrúar kl. 20:00 ætla

sjálfstæðismenn að koma saman, skemmta sér og borða í Pakkhúsinu.

“Smáréttahlaðborð“ í efri sal á 3500- kr.

Nú tökum við upp gamla takta og höldum húllumhæ.

Von er á góðum gestum, m.a. Ragnheiður Elín Árnadóttir alþingismaður

Skráning hjá: Hrafnhildi Magnúsdóttur sími 860-4055 Sigurður Guðmundsson sími 866-2318 Þorbjörgu Helgadóttur sími 846-7219.

netfang [email protected]

Skemmti- og gleðinefnd Sjálfstæðisfélaga A-Skaft.

Page 9: Eystrahorn 6. tbl. 2013

9Eystrahorn Fimmtudagur 14. febrúar 2013

Sveitarfélagið Hornafjörður

Tillaga að deiliskipulagi fyrir þjónustusvæði í Skaftafelli í Öræfum

Bæjarstjórn Hornafjarðar auglýsir að nýju tillögu að deiliskipulagi fyrir þjónustusvæði í Skaftafelli í Vatnajökulþjóðgarði í Sveitafélaginu Hornafirði, skv. 1. mgr. 41 gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 og 7 gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.

Deiliskipulagssvæðið nær til þjónustuhlaðs í Skaftafelli – þjónustumiðstöðvar, gistiflata og Sandasels á aurnum framan við Bæjarsker og Bölta – og syðsta hluta Skaftafellsheiðar –bæjarhlaða Hæða, Sels og Bölta og brekkufótarins og giljanna austan og sunnan við þau. Deiliskipulagstillagan ásamt greinargerð og umhverfisskýrslu tillögunnar, verður til sýnis í Ráðhúsi Hornafjarðar, Hafnarbraut 27 frá og með mánudeginum 11. febrúar 2012 til og með þriðjudagsins 25. mars 2013 og á heimasíðu bæjarins http://www2.hornafjordur.is/stjornsysla/.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við deiliskipulagstillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til mánudagsins 25. mars 2013 og skal senda þær á netfangið [email protected] eða skila þeim í Ráðhús Hornafjarðar Hafnarbraut 27, 780 Höfn. Athugsemdir sem bárust við fyrri auglýsingu eru teknar gildar. Hver sá er ekki gerir athugasemdir við breytingartillöguna innan tilskilins frests telst henni samþykkur.

F.h. Sveitarfélagsins Hornafjarðar 10. febrúar 2013.

Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson yfirmaður umhverfis- og skipulagsmála

Sveitarfélagið Hornafjörður

Tillaga að deiliskipulagi fyrir fyrsta áfanga verslunar- og þjónustusvæðis fyrir ferðaþjónustuá Lambleiksstöðum, MýrumTillagan eru auglýst að nýju vegna niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfi- og auðlinda í úrskurði nr. 30/2012 í máli 80/2011 þar sem vísað er til 3. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en þar segir „Birta skal auglýsingu um gildistöku deiliskipulags í B-deild Stjórnartíðinda innan þriggja mánaða frá endanlegri afgreiðslu sveitarstjórnar á tillögunni. Hafi slík auglýsing ekki verið birt innan þess frests telst tillagan ógild og fer um hana í samræmi við 41. gr.“ Þar sem tímafrestur á auglýsingu deiliskipulags Frístundasvæði Lambleiksstaða í B-deild Stjórnartíðinda var of langur er tillaga auglýst að nýju.

Deiliskipulagstillögurnar verða til sýnis í Ráðhúsi Sveitarfélagsins Hornafjarðar Hafnarbraut 27, 780 Höfn frá og með 11. febrúar 2013 til og með 25. mars 2013. Athugsemdarfrestur er til sama tíma. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við deiliskipulagstillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til mánudagsins 25. mars 2013 og skal senda þær á netfangið [email protected] eða skila þeim í Ráðhús Hornafjarðar Hafnarbraut 27, 780 Höfn. Hver sá, sem ekki gerir athugasemdir við breytingartillöguna innan tilskilins frests, telst henni samþykkur.

F.h. Sveitarfélagsins Hornafjarðar 10. febrúar 2013.

Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson yfirmaður umhverfis- og skipulagsmála

Page 10: Eystrahorn 6. tbl. 2013

EMERGEORKUDRYKKUR

Tilboðin gilda 14. - 17. feb.Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.

Kræsingar & kostakjörLANGSKORINN

LAMBAHRYGGUR

MIKIÐ ÚRVAL AF FOLALDAKJÖTI

BERJADAGAR Í NETTÓ

50% AFSLÁTTUR50% AFSLÁTTUR

26% AFSLÁTTUR 1.398ÁÐUR 1.889 KR/KG

2.878ÁÐUR 3.198 KR/KG

60ÁÐUR 119 KR/STK

FOLALDASNITSEL áður 2.398 NÚ 1.559 KR/KG

FOLALDALUND áður 3.789 NÚ 2.993 KR/KG

FOLALDARAGÚ áður 1.898 NÚ 949 KR/KG

FOLALDAGÚLLAS áður 2.198 NÚ 1.429 KR/KG

- 35%

- 21%

- 21%

- 35%

FOLALDAFILE

JARÐARBER 250GBLÁBER 125GHINDBER 125GKIRSUBER 200GBRÓMBER 125GRIFSBER 125G