guðjón bragason haustfundur js og grunns 2015

14
STAÐAN Í MÁLEFNUM TÓNLISTARSKÓLA OG ÖRSTUTT UM VERKASKIPTINGU Guðjón Bragason Sviðsstjóri lögfræði- og velferðarsviðs 27. desember 2015 Samband íslenskra sveitarfélaga

Upload: margret2008

Post on 12-Apr-2017

205 views

Category:

Education


0 download

TRANSCRIPT

Page 1: Guðjón bragason haustfundur js og grunns 2015

STAÐAN Í MÁLEFNUMTÓNLISTARSKÓLA OG ÖRSTUTT UM

VERKASKIPTINGUGuðjón Bragason

Sviðsstjóri lögfræði- og velferðarsviðs27. desember 2015

Samband íslenskra sveitarfélaga

Page 2: Guðjón bragason haustfundur js og grunns 2015

SAMKOMULAG TIL TVEGGJA ÁRA 2011

• Ekki var vilji til þess af hálfu ríkisins að tengja fjárhæðir í samkomulaginu við þróun verðlags eða launa.– Samkomulagið gilti af þeirri ástæðu bara til loka ágúst 2013– Viðræður um enduskoðun/framlengingu áttu að hefjast ári fyrr en

samkomulagið rann út án endurskoðunar.– 520 m.kr. fjárheimild hefur verið óbreytt frá 2012.– Viðauki við samkomulagið var undirritaður í mars 2014. Hann gilti til

31. desember 2014. – Nýr viðauki hefur ekki verið gerður en lagabreyting í júní 2015

tryggði fjármögnun verkefna sem sveitarfélög tóku að sér til ársloka 2015.

Samband íslenskra sveitarfélaga

Page 3: Guðjón bragason haustfundur js og grunns 2015

SAMKOMULAGIÐ 2011 - MEGINATRIÐI

• Ríkið lagði fram 480 m.kr. á ári til að fjármagna nám á framhaldsstigi, auk miðstigs í söng. Síðar hækkað í 520 m.kr.

• Á móti tóku sveitarfélög yfir ýmis verkefni að jafnvirði 230 m.kr. þ.á m.:– fjármögnun Námsgagnasjóðs– fjármögnun Endurmenntunarsjóðs grunnskóla– ýmis verkefni í málefnum fatlaðs fólks o.fl.

• Nettóframlag ríkis til tónlistarfræðslu var því 250 m.kr. á ári en hækkaði fljótlega í 290 m.kr.

Samband íslenskra sveitarfélaga

Page 4: Guðjón bragason haustfundur js og grunns 2015

FORSENDUÞRÓUN - NEMENDAFJÖLDI

Miðað var við 711 nemendur við gerð samkomulagsins. • 480 m.kr. áttu að dekka kennslukostnað þeirra og vel það• Veturinn 2011-2012 reyndust nemendur vera 822, hækkun

framlags í 520 m.kr. átti að mæta því a.m.k. að hluta• Ítrekað var rætt um að stjórna þyrfti nemendafjölda en vegna

bráðabirgðaástands hefur ekkert verið gert í því• Veturinn 2015-2016 eru nemendur 987 (um 20% fjölgun frá 2011

og um 35% umfram forsendur samkomulagsins)• Kennsla á svonefndu 4. stigi sér kapituli, sem ekki var samið um,

en er inni í ofangreindum tölum um nemendafjölda.

Samband íslenskra sveitarfélaga

Page 5: Guðjón bragason haustfundur js og grunns 2015

FORSENDUR - LAUNAÞRÓUN

Ríkið vildi bara semja um fasta krónutölu en 2011 var áætlað að hófleg launahækkun tónlistarkennara rúmaðist innan 480 m.kr.• Kjarasamningur við FT reyndist vera mjög dýr, 13% hækkun

2011-2014; frekari 7,61% hækkun 2014, 4,44% 2015• Ósamið er við FT en hækkun verður líklega í takt við samninga

samanburðarhópa (kringum 23%?)• M.t.t. kjaraþróunar ættu 480 m.kr. 2011 að vera um 600 m.kr.

árið 2015 fyrir gerð nýs kjarasamnings

Samband íslenskra sveitarfélaga

Page 6: Guðjón bragason haustfundur js og grunns 2015

HALLI Á KERFINU – HVERNIG ER HONUM MÆTT?

a) Gengið á eigið fé skólannab) Eigendur (sveitarfélög) greiða hallannc) Hærri skólagjöld, þótt bannað sé að greiða kennslu með þeimd) Tilfærsla fjármagns frá grunn- og miðstigi (samningsbrot)e) Dregið úr kennslumagnif) SkuldasöfnunSkólar með marga nemendur á framhaldsstigi hafa komið verst út úr stöðunni en allir hafa fundið fyrir ókostum fyrirkomulagsinsEn markmið um jafnræði til náms hefur náðst, sem er nokkurs virði

Samband íslenskra sveitarfélaga

Page 7: Guðjón bragason haustfundur js og grunns 2015

LAUSN Á BRÁÐAVANDA 2015

Viðræður við STÍR 2015 leiddu til tillagna um lausn á bráðavanda tónlistarskólanna í ReykjavíkEkkert samkomulag hefur þó verið gert við ríkið en í fjáraukalagafrumvarpi 2015 er tillaga um 60 m.kr. sérstakt framlag til jöfnunarsjóðs, sem er það sem um var beðið frá ríkinuHeimild fyrir 30 m.kr. skv. lögum sem samþykkt voru í júníReykjavíkurborg kemur með 90 m.kr. á móti, með skilyrðum um aðkomu ríkisins og rekstrarúttektir á skólunum Björgunarpakkinn því alls 180 m.kr. vegna uppsafnaðs vandaMöguleiki á 60 m.kr. til viðbótar á vorönn 2016

Samband íslenskra sveitarfélaga

Page 8: Guðjón bragason haustfundur js og grunns 2015

BRÉF SAMBANDSINS OG BORGARINNAR TIL MENNTA- OG MENNINGARMÁLARÁÐHERRA 25. ÁGÚST 2015

• „Þörf er á því að árétta að ekkert samkomulag hefur verið í gildi frá árslokum 2014 á milli ríkis og sveitarfélaga um málefni tónlistarskóla eða breytta verkaskiptingu þessara aðila. Slík staða er að sjálfsögðu með öllu óviðunandi í samskiptum ríkis og sveitarfélaga.

• Þarf m.a. að huga sérstaklega að því við gerð frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2016 hvernig þau verkefni ríkisins, sem hafa á undanförnum árum verið fjármögnuð tímabundið af sveitarfélögum vegna samkomulagsins, verði fjármögnuð á því ári.“

Ekki enn hafnar formlegar viðræður um nýtt samkomulag, en þó samtöl. Önnur umræða um fjárlagafrumvarp er handan við hornið!

Samband íslenskra sveitarfélaga

Page 9: Guðjón bragason haustfundur js og grunns 2015

„GILDANDI“ FYRIRKOMULAG ER ÓMÖGULEGT!

Enginn samningur er í gildi milli ríkis og sveitarfélaga• Samskipti við ráðuneyti um endurskoðun/framlengingu hafa gengið illa.

Mikill tími hefur farið í mál sem ekki snýst um mjög háar fjárhæðir.• Mikil óvissa hefur verið frá árslokum 2013 um fjármögnun lögbundinna

verkefna sem falla undir samkomulagið. Veldur margháttuðum óþægindum fyrir marga.

• Lögbundin verkefni, líkt og Námsgagnasjóður og Endurmenntunar-sjóður, hafa verið í óvissu fram á sumar bæði 2014 og 2015. Enginn vilji er til þess að endurtaka sama leik árið 2016.

• Á engan hátt er hægt að segja að staðan samræmist góðum stjórnsýsluháttum, þrátt fyrir góðan ásetning allra aðila í upphafi verkefnisins.

Page 10: Guðjón bragason haustfundur js og grunns 2015

VERKASKIPTASAMKOMULAGIÐ - SJÓÐIRNIR

• Bæði Námsgagnasjóður og Endurmenntunarsjóður grunnskóla voru í fjársvelti fyrir 2011.

• Framlög hækkuðu ekki mikið í fyrstu– 40 m.kr. á ári 2012-2013 til Námsgagnasjóðs (óbreytt frá 2011)– 22,7 m.kr. árið 2011 til Endurmenntunarsjóðs en 2012-2013

hækkaði framlag til hans í 29,9 m.kr.• Veruleg hækkun náðist 2014 (óbreytt 2015):

– Námsgagnasjóður fékk 54,0 m.kr. á ári– Endurmenntunarsjóður fékk 44,6 m.kr. á áriNámsgagnasjóður er samt enn fjarri þeim framlögum sem hann fékk 2007-2008 (100 m.kr. á ári) og framlög til Endurmenntunarsjóðs grunnskóla rýrnuðu mikið að verðgildi frá 1996-2011.

Samband íslenskra sveitarfélaga

Page 11: Guðjón bragason haustfundur js og grunns 2015

STARFSHÓPUR UM FRAMTÍÐARFYRIRKOMULAG

• Soffía Vagnsdóttir, Sigfríður Björnsdóttir og Guðjón Bragason f.h. sveitarfélaga; Jón Vilberg Guðjónsson og Þórunn Jóna Hauksdóttir frá MMR, Ingunn Guðmundsdóttir frá FJR

• 10 fundir haldnir, mestur tími farið í að ræða um mögulegan „tónlistarframhaldsskóla“ (Nýi skólinn) en vinnan gengið of hægt

• Spennandi hugmynd en áhersla á að stofnun hans valdi ekki neikvæðum áhrifum fyrir starfandi tónlistarskóla

• Enn ákveðin óvissa um framhaldið en 135 m.kr. í fjárlagafrv. til að fjármagna ca. 200 nemenda skóla.

• Of margt óljóst um fjárhagslegar forsendur, m.a. um hve mikið fjármagn komi frá ríki til annarra tónlistarskóla.

Samband íslenskra sveitarfélaga

Page 12: Guðjón bragason haustfundur js og grunns 2015

ÓVISS STAÐA NÚNA

• Á fundi borgarstjóra og menntamálaráðherra í vikunni komu fram hugmyndir um 226 m.kr. framlag frá ríki til annarra tónlistarskóla en Nýja skólans

• Fálega tekið - mun lægri fjárhæð en rætt hafði verið um í starfshópnum og í stjórn sambandsins

• Frekari fundir fyrirhugaðir með ráðherra á næstunni• Mikilvægt er að skoða ekki bara hvað ríkið er tilbúið að greiða• Fjárhagsstaða sveitarfélaga fer versnandi, andstaða mikil við að

hækka framlög til tónlistarskóla og ómöguleiki hjá sumum svfél.• Niðurskurður á framhaldsstigi gæti verið hluti af lausn

Samband íslenskra sveitarfélaga

Page 13: Guðjón bragason haustfundur js og grunns 2015

HVAÐ ÞARF MIKIÐ FJÁRMAGN?

Fjárhagslegar forsendur enn í skoðun en fyrir um 780 nemendur (þ.e. 980-200) er kennslukostnaður nálægt 550 m.kr., • Miðað er við að öll kennsla verði fullfjármögnuð, í stað þess að

fletja út fjármagnið ef nemendum fjölgar • Ef ríkið greiðir bara 226 m.kr. þarf um 300-330 m.kr. frá

sveitarfélögum (í stað 230 m.kr. nú).• Það er óraunhæft – fjárhagsstaða sveitarfélaga er of þröngEkki nægir að semja við ríkið um fasta krónutölu, því kostnaður mun hækka vegna kjarasamninga

– Ef samkomulag næst er fyrirséð að mæta þurfi launahækkunum með niðurskurði, a.m.k. að hluta.

Samband íslenskra sveitarfélaga

Page 14: Guðjón bragason haustfundur js og grunns 2015

HVAÐ MEÐ VERKASKIPTASAMKOMULAGIÐ?

Miðað við forsendur MMR ætti því fyrirkomulagi að vera sjálfhætt.(Sveitarfélög munu ekki bæði fjármagna verkefni sem féllu undir samkomulagið og kennslukostnað á framhaldsstigi+miðstigi í söng)

• Engin svör borist frá ríki um hvort verkefnin færist aftur til ríkisins• Klukkan tifar, óþolandi að vita ekki í nóvember um fyrirkomulag

næsta árs. • Til framtíðar litið er það enn afstaða sambandsins að

framhaldsstig eigi að flytjast á ábyrgð ríkisins.• Ef lausn á að nást til skemmri tíma (tvö ár) þurfa ríki og

sveitarfélög að verða sammála um hvað verkefnið kostar og um markmið hvað varðar fjölda nemenda.

Samband íslenskra sveitarfélaga