ingvar sigurgeirsson hvað einkennir góðan skólabrag? morgunverðarfundur náum áttum, 14....

14
Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Morgunverðarfundur Náum áttum, 14. apríl 2010

Post on 20-Dec-2015

231 views

Category:

Documents


1 download

TRANSCRIPT

Page 1: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Morgunverðarfundur Náum áttum, 14. apríl 2010

Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag?

Morgunverðarfundur Náum áttum, 14. apríl 2010

Page 2: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Morgunverðarfundur Náum áttum, 14. apríl 2010

Rannsókn á hegðunarvanda í grunnskólum Reykjavíkur

skólaárið 2005–2006

Rannsóknarskýrsla: Ingvar Sigurgeirsson og Ingibjörg Kaldalóns:

„Gullkista við enda regnbogans“

http://starfsfolk.khi.is/ingvar/agi/Skyrsla_Hegdun_Lokagerd.pdf

Page 3: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Morgunverðarfundur Náum áttum, 14. apríl 2010

Rannsóknin í hnotskurn

Aðferð: Hópviðtöl við starfsmenn í 35 skólum (alls 40 viðtöl, 233 viðmælendur; stjórnendur, kennarar, annað starfsfólk) – Spurningalisti (208 svör)

Meginniðurstöður•Mikill meirihluti nemenda (89%) á yfirleitt góð samskipti við félaga og starfsfólk•Mikill munur á umfangi mála eftir skólum (einnig eftir kyni og aldri)•Erfiðustu máli sligandi

Page 4: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Morgunverðarfundur Náum áttum, 14. apríl 2010

Mikill munur eftir skólum

Greindir með röskun (%) Hlutfall (%) Fjöldi í bekk

Hlutfall drengja (%)

Meðaltal 7,5 11,1 2,6 81Lágmark 1 1 0 40Hámark 22 37,5 8 100

Page 5: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Morgunverðarfundur Náum áttum, 14. apríl 2010

Skólunum mátti skipta gróflega í þrjá meginflokka (?)

• Lítil eða engin vandamál (sjö skólar)

• Nokkur vandi, en starfsfólk telur sig almennt hafa tök á málum (21 skóli)

• Mörg erfið mál sem hvíla þungt á starfsfólki (sjö skólar)

Page 6: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Morgunverðarfundur Náum áttum, 14. apríl 2010

Dæmi um ólíkt ástand

Mér finnst ekki nein sérstök hegðunarvandamál. Mér finnst þetta ganga mjög vel. Kannski hávaði í matsalnum – það eina sem er þreytandi ... Samband kennara og nemenda er einstaklega gott ... nemendur flykkjast að manni í frímínútum til að spjalla ...

Fara ekki að fyrirmælum … hleypa upp … taka alla einbeitingu kennarans … þessi áreiti jafnt og þétt… ógna öðrum nemendum … … leiðinlegar athugasemdir … hnoð og pot … svo er það líka skemmdarverk … reyna að eyðileggja … frammíköll ef kennarinn er að tala … almenn ókurteisi … dagleg vandamál … alla daga … í hverri kennslu-stund.

Page 7: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Morgunverðarfundur Náum áttum, 14. apríl 2010

Þreyta og bið ... vonleysi… allar greiningar og annað eða beiðnir um greiningar fara í gegnum nemendaverndarráðið. Og þar er mættur sálfræðingur skólans sem … tekur við greiningunum og svo fer ákveðinn tími í að fjalla um börnin … það pirraði mig svolítið í fyrra … að þetta bar engan árangur. Við vorum alltaf að tala um sömu börnin … og í einhverju ergelsi mínu því ég er fundaritari taldi ég hve oft ákveðin tvö börn hefðu verið nefnd þennan veturinn á nemendverndararáðsfundi. Þá var annað fimmtán sinnum og hitt sautján sinnum … þetta eru vikulegir fundir … og allir að tala um sömu hlutina vegna þess að það gerðist ekkert. Við erum að kalla á hjálp – við öskrum á hjálp. Og það eru einn og tveir og alveg upp í þrír aðilar frá … [þjónustumiðstöðinni] á fundi hjá okkur. Og það gerðist ekki neitt.

Page 8: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Morgunverðarfundur Náum áttum, 14. apríl 2010

Lítill eða enginn vandi: Jákvæð viðhorf

Page 9: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Morgunverðarfundur Náum áttum, 14. apríl 2010

Jákvæð viðhorf: Lítill eða enginn vandi:

Þetta byggist á viðhorfum ... Fyrir hvern er skólinn? Hann er fyrir nemendurna ... Við eigum að sníða okkur að þeirra þörfum. Það er ekki þannig að ef þau passa ekki „boxin“ að þau eigi að vera annars staðar. Það er bara ekki þannig ... Þeim er strokið réttsælis og sagt að þau séu frábær. Ekki endalaust verið að pikka í þau fyrir það sem þau geta ekki ... Það geta allir blómstrað einhvers staðar ... Hér er ríkjandi það viðhorf að velferð barnsins sé til grundvallar. Það er það viðhorf sem gerir þennan skóla að því sem hann er.

Page 10: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Morgunverðarfundur Náum áttum, 14. apríl 2010

Jákvæð viðhorf

• Gagnkvæm virðing. Við virðum þau og þau okkur. [Jákvæður skólabragur] helgast af því að þau finna að okkur þykir vænt um þau. Viljum þeim vel, berum virðingu fyrir þeim. Þá verður líka auðveldara að stýra þeim fyrir vikið.

• Við sendum skýr skilaboð og reynum að vera fyrirmyndir. Áhersla á samvinnu og traust. Að þau finni sig örugg í skólanum. Við erum vinir þeirra. Við erum hérna til að vinna með þeim.

Page 11: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Morgunverðarfundur Náum áttum, 14. apríl 2010

Fleiri skýringar á góðum skólabrag• Nemendalýðræði, hlustað eftir röddum nemenda

– Nemendasamtöl (sbr. starfsmannasamtöl), bekkjarfundir, matsfundir

• Nemendum falin ábyrgð– Ábyrgðarstörf– Unglingar aðstoða við gæslu eða kenna leiki

(frímínútnavinir)

• Hlýlegt og fallegt umhverfi

• Viðburðir í skólalífinu: Samverustundir, samkomur, uppákomur

Page 12: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Morgunverðarfundur Náum áttum, 14. apríl 2010

• Útikennsla, útivist, íþróttir, leikir, hreyfing• Söngur• Uppeldisstarf: Markviss lífsleiknikennsla –

námsefni um samskipti• Vinaverkefni (vinabekkir, leynivinaverkefni,

vinavikur ...)• Blöndun innan árgangs eða milli aldurshópa• Samstaða kennara

Fleiri skýringar

Page 13: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Morgunverðarfundur Náum áttum, 14. apríl 2010

Að lokum: Viðhorf til ofvirkra barna!

ADHD = GOSI = Geislandi ofvirkur einstaklingur

Það er eins og það er með þessa ofvirku nemendur. Þeir skemma alltaf út frá sér.

Það er eins og það er með

þessa krakka í hjólastólum. Maður

kemst ekkert áfram með þá!!!

=

Page 14: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Morgunverðarfundur Náum áttum, 14. apríl 2010

Lokaályktun

Jákvæð viðhorf – trú á nemendum og virðing draga langt – svo langt að við hljótum að undrast það!