ingvar sigurgeirsson hvað einkennir góðan skólabrag? spjall við kennara giljaskóla, ágúst,...

22
Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Spjall við kennara Giljaskóla, ágúst, 2010

Post on 19-Dec-2015

230 views

Category:

Documents


6 download

TRANSCRIPT

Page 1: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Spjall við kennara Giljaskóla, ágúst, 2010

Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag?

Spjall við kennara Giljaskóla, ágúst, 2010

Page 2: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Spjall við kennara Giljaskóla, ágúst, 2010

Rannsókn á hegðunarvanda í grunnskólum Reykjavíkur

skólaárið 2005–2006

Rannsóknarskýrsla: Ingvar Sigurgeirsson og Ingibjörg Kaldalóns:

„Gullkista við enda regnbogans“

http://starfsfolk.khi.is/ingvar/agi/Skyrsla_Hegdun_Lokagerd.pdf

Page 3: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Spjall við kennara Giljaskóla, ágúst, 2010

Spurningar• Hvernig lýsið þið hegðun og framkomu nemenda? • Eru hegðunarvandkvæði í skólanum og hvernig lýsa

þau sér? Hversu þungt brenna þau á ykkur? • Hversu margir nemendur koma við sögu?• Hverjar eru helstu orsakir og áhrifavaldar

hegðunarvanda?• Hvernig er tekið á hegðunarvandkvæðum í skólanum?

Hvaða aðferðum hefur helst verið beitt? Hvernig hafa þessar aðferðir gefist?

• Hvernig gengur samstarf við foreldra? • Hvaðan fá starfsmenn ráðgjöf eða stuðning? • Hvað vantar helst til að starfsfólk skóla nái tökum á

hegðunarmálum? Hugmyndir til úrbóta? 

Page 4: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Spjall við kennara Giljaskóla, ágúst, 2010

Meginefni

• Skoða skólabrag í þeim skólum þar sem hegðunarvandamál voru lítil sem engin – eða þar sem þau voru auðleyst

• En fyrst um rannsóknina ...

Page 5: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Spjall við kennara Giljaskóla, ágúst, 2010

Rannsóknin í hnotskurn

Aðferð: Hópviðtöl við starfsmenn í 35 skólum (alls 40 viðtöl, 233 viðmælendur; stjórnendur, kennarar, annað starfsfólk) – Spurningalisti (208 svör)

Meginniðurstöður•Mikill meirihluti nemenda (89%) á yfirleitt góð samskipti við félaga og starfsfólk•Mikill munur á umfangi mála eftir skólum (einnig eftir kyni og aldri)•Erfiðustu máli sligandi

Page 6: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Spjall við kennara Giljaskóla, ágúst, 2010

Mikill munur eftir skólum

Greindir með röskun (%) Hlutfall (%) Fjöldi í bekk

Hlutfall drengja (%)

Meðaltal 7,5 11,1 2,6 81Lágmark 1 1 0 40Hámark 22 37,5 8 100

Hvernig er þessu háttað í Giljaskóla?

Page 7: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Spjall við kennara Giljaskóla, ágúst, 2010

Munur eftir aldursstigum?

• Yngsta stigið: Erfiðari eða kotrosknari?– Sex ára stjórnunarreynsla!

• Miðstigið: Oft erfiðustu málin – oftast drengir – Óþekkt, vesen og vandamál. Þar er fimmti til

sjöundi bekkurinn algjörlega afgerandi. Það er þessi aldurshópur sem ekki er að höndla Ísland í dag … Þessi hópur er ekki að höndla tölvutæknina, msn-ið. sms-ið og …

• Unglingastigið: Öðruvísi vandi

Page 8: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Spjall við kennara Giljaskóla, ágúst, 2010

Skólunum mátti skipta gróflega í þrjá meginflokka (?)

• Lítil eða engin vandamál (sjö skólar)

• Nokkur vandi, en starfsfólk telur sig almennt hafa tök á málum (21 skóli)

• Mörg erfið mál sem hvíla þungt á starfsfólki (sjö skólar)

Hvar í flokki er Giljaskóli?

Page 9: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Spjall við kennara Giljaskóla, ágúst, 2010

Dæmi um ólíkt ástand

Mér finnst ekki nein sérstök hegðunarvandamál. Mér finnst þetta ganga mjög vel. Kannski hávaði í matsalnum – það eina sem er þreytandi ... Samband kennara og nemenda er einstaklega gott ... nemendur flykkjast að manni í frímínútum til að spjalla ...

Fara ekki að fyrirmælum … hleypa upp … taka alla einbeitingu kennarans … þessi áreiti jafnt og þétt… ógna öðrum nemendum … … leiðinlegar athugasemdir … hnoð og pot … svo er það líka skemmdarverk … reyna að eyðileggja … frammíköll ef kennarinn er að tala … almenn ókurteisi … dagleg vandamál … alla daga … í hverri kennslu-stund.

Page 10: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Spjall við kennara Giljaskóla, ágúst, 2010

Þreyta og bið ... vonleysi… allar greiningar og annað eða beiðnir um greiningar fara í gegnum nemendaverndarráðið. Og þar er mættur sálfræðingur skólans sem … tekur við greiningunum og svo fer ákveðinn tími í að fjalla um börnin … það pirraði mig svolítið í fyrra … að þetta bar engan árangur. Við vorum alltaf að tala um sömu börnin … og í einhverju ergelsi mínu því ég er fundaritari taldi ég hve oft ákveðin tvö börn hefðu verið nefnd þennan veturinn á nemendverndararáðsfundi. Þá var annað fimmtán sinnum og hitt sautján sinnum … þetta eru vikulegir fundir … og allir að tala um sömu hlutina vegna þess að það gerðist ekkert. Við erum að kalla á hjálp – við öskrum á hjálp. Og það eru einn og tveir og alveg upp í þrír aðilar frá … [þjónustumiðstöðinni] á fundi hjá okkur. Og það gerðist ekki neitt.

Page 11: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Spjall við kennara Giljaskóla, ágúst, 2010

Lítill eða enginn vandi: Jákvæð viðhorf

Page 12: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Spjall við kennara Giljaskóla, ágúst, 2010

Jákvæð viðhorf: Lítill eða enginn vandi:

Þetta byggist á viðhorfum ... Fyrir hvern er skólinn? Hann er fyrir nemendurna ... Við eigum að sníða okkur að þeirra þörfum. Það er ekki þannig að ef þau passa ekki „boxin“ að þau eigi að vera annars staðar. Það er bara ekki þannig ... Þeim er strokið réttsælis og sagt að þau séu frábær. Ekki endalaust verið að pikka í þau fyrir það sem þau geta ekki ... Það geta allir blómstrað einhvers staðar ... Hér er ríkjandi það viðhorf að velferð barnsins sé til grundvallar. Það er það viðhorf sem gerir þennan skóla að því sem hann er.

Í þeim skólum þar sem agavandamál eru minnst eru viðhorf til foreldra mjög jákvæð

og mikil áhersla lögð á öflugt foreldrasamstarf

Page 13: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Spjall við kennara Giljaskóla, ágúst, 2010

Jákvæð viðhorf

• Gagnkvæm virðing. Við virðum þau og þau okkur. [Jákvæður skólabragur] helgast af því að þau finna að okkur þykir vænt um þau. Viljum þeim vel, berum virðingu fyrir þeim. Þá verður líka auðveldara að stýra þeim fyrir vikið.

• Við sendum skýr skilaboð og reynum að vera fyrirmyndir. Áhersla á samvinnu og traust. Að þau finni sig örugg í skólanum. Við erum vinir þeirra. Við erum hérna til að vinna með þeim.

Page 14: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Spjall við kennara Giljaskóla, ágúst, 2010

Fleiri skýringar á góðum skólabrag• Nemendalýðræði, hlustað eftir röddum nemenda

– Nemendasamtöl (sbr. starfsmannasamtöl), bekkjarfundir, matsfundir

• Nemendum falin ábyrgð– Ábyrgðarstörf– Unglingar aðstoða við gæslu eða kenna leiki

(frímínútnavinir)

• Hlýlegt og fallegt umhverfi

• Viðburðir í skólalífinu: Samverustundir, samkomur, uppákomur

Page 15: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Spjall við kennara Giljaskóla, ágúst, 2010

• Útikennsla, útivist, íþróttir, leikir, hreyfing• Söngur• Uppeldisstarf: Markviss lífsleiknikennsla –

námsefni um samskipti• Vinaverkefni (vinabekkir, leynivinaverkefni,

vinavikur ...)• Blöndun innan árgangs eða milli aldurshópa• Samstaða kennara

Fleiri skýringar

Page 16: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Spjall við kennara Giljaskóla, ágúst, 2010

Dæmi: Öflug samstaða kennaraVið höldum fundi tvisvar sinnum í viku – alltaf. Allt árið í kring. Og þar tökum við bara fyrir allt sem brennur á kennurum bæði sem við kemur nemendum og öllu því … sem hugsast getur. Þannig að við vitum nákvæmlega hvað er að gerast hjá öðrum kennurum og allir taka eins á öllum málum og við ákveðum nákvæmar leiðir… Sérgreinakennarar koma þarna inn líka þannig að það eru allir … meðvitaðir um vandamálin … það er alveg útilokað, til dæmis, að það gerist að einhver einn kennari lendi í einhverjum algjörum ógöngum sem enginn fréttir neitt af eða er kominn út í móa með málið. Kominn í einhverjar ógöngur með foreldra eða eitthvað slíkt … við bara gerum þetta í sameiningu. Gjörsamlega. Leggjum sameiginlegar línur sem við stöndum saman um algjörlega. Og ef að eitthvað gengur ekki upp þá ræðum við það og finnum einhverja aðra lausn. Þetta er team-vinna algjörlega.

Page 17: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Spjall við kennara Giljaskóla, ágúst, 2010

Hlutfall þeirra sem eru mjög eða frekar sammála

8

11

12

16

20

26

28

29

31

34

51

51

51

59

64

65

70

81

0 20 40 60 80 100

Fíkniefnavandi nemenda

Veik stjórnun agamála

Skortur á samstöðu starfsfólks

Einhæfar kennsluaðferðir

Starfsmenn kunna ekki nægilega vel til verka

Slæmur félagsskapur

Erfitt samstarf við foreldra þeirra barna sem um ræðir

Röng stefna í skólamálum (t.d. Skóli án aðgreiningar)

Fjölbreytni nemendahópsins

Húsnæði ábótavant

Of mörg börn í bekk/rymi

Skortur á sérhæfðu starfsfólki

Óheppilegar uppeldisaðferðir foreldra

Slæmur félagslegur aðbúnaður (erf iðleikar heima fyrir)

Skortur á úrræðum

Skortur á utanaðkomandi stuðningi sérfræðinga

Geðræn vandamál nemenda

Skortur á f járveitingum

Skýringar á vanda

skólanna

Hlutfall þeirra sem eru mjög eða frekar sammmála

Page 18: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Spjall við kennara Giljaskóla, ágúst, 2010

Kennsluhættir og hegðun

• Hegðunarvandi var yfirleitt ekki tengdur kennsluháttum

• Aðeins 16% svarenda taldi einhæfa kennsluhætti skýra hegðunarvanda

• Áhugaverðar undantekningar

Page 19: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Spjall við kennara Giljaskóla, ágúst, 2010

Kennsluhættir og hegðun!?V1: Ekki spurning. V2: Ég sé gjörbreytingu á miðstigi. Breyttum kennsluháttum …Sp: … hvaða breytingar voru þið að gera á kennsluháttum?V2: Þá vorum við meira með einstaklingsmiðað nám. Tókum … verkefni þannig að hver og einn … gat unnið verkefnið út frá eigin forsendum. Og þá sáum við agamálin eins flugu út um gluggann … …Nei, ég segi það ekki alveg en við sáum mikinn mun.

Page 20: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Spjall við kennara Giljaskóla, ágúst, 2010

Efling list og verkgreina… við kennum meiri list og verkgreinar en nokkur annar skóli í borginni, … þegar við fórum yfir í það þá fannst mér agamál minnka til muna … þegar við fengum allar þessar stofur þá bara ákváðum við að demba okkur í að kenna svona mikið list og verkgreinar, mér finnst það skipta miklu máli. Það skiptir miklu máli fyrir þessa krakka ... Enda kemur það líka í ljós að … nemendur sem eiga við hegðunarerfiðleika að stríða … eru oft að plumma sig rosalega vel í svona greinum.

Page 21: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Spjall við kennara Giljaskóla, ágúst, 2010

Að lokum: Viðhorf til ofvirkra barna!

ADHD = GOSI = Geislandi ofvirkur einstaklingur

Það er eins og það er með þessa ofvirku nemendur. Þeir skemma alltaf út frá sér.

Það er eins og það er með

þessa krakka í hjólastólum. Maður

kemst ekkert áfram með þá!!!

=

Page 22: Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Spjall við kennara Giljaskóla, ágúst, 2010

Lokaályktun

Jákvæð viðhorf – trú á nemendum og virðing draga langt – svo langt að við hljótum að undrast það!