Ísland - hvíta rússland leikskrá a kvenna 2015

24
ÍSLAND HVÍTA-RÚSSLAND 22. september - Kl. 18:45

Upload: ksiisland

Post on 23-Jul-2016

234 views

Category:

Documents


2 download

DESCRIPTION

Ísland - Hvíta Rússland leikskrá A kvenna 2015

TRANSCRIPT

Page 1: Ísland - Hvíta Rússland leikskrá A kvenna 2015

ÍSLAND HVÍTA-RÚSSLAND22. september - Kl. 18:45

Page 2: Ísland - Hvíta Rússland leikskrá A kvenna 2015

landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn

Þú kemst alltaf í bankann á L.is

Farsímabanki Landsbankans hefur fengið nýtt útlit og viðbætur sem veita þér enn betri yfirsýn yfir fjármálin. Á L.is geturðu framkvæmt allar helstu bankaaðgerðir og þarft engan auðkennislykil.

Page 3: Ísland - Hvíta Rússland leikskrá A kvenna 2015

Þá eru stelpurnar okkar mættar til leiks eftir landsleikjahlé. Við tekur undankeppni EM 2017 en lokakeppni mótsins verður að þessu sinni haldin í Hollandi sumarið 2017. Riðillinn sem Ísland er í er spennandi en sum liðin eru nokkuð óskrifað blað og ekki þýðir að vanmeta neinn mótherja.

Ísland er í riðli með Hvíta-Rússlandi, Slóveníu, Skotlandi og Makedóníu. Ef hinn margrómaði heimslisti FIFA er skoðaður þá er Ísland hæst á listanum í 18. sæti en næst koma Skotar í 20. sæti. Fyrirfram má því búast við að þessi tvö lið komi til með að berjast um efsta sætið, sem gefur beinan þátttökurétt á lokamótinu í Hollandi.

Hvíta-Rússland er í 49. sæti listans, Slóvenía í 64. sætinu og Makedónía nánast á botni listans eða í 117 sæti. Fyrirkomulag undakeppninnar er þannig að efsta lið hvers riðils fer beint áfram sem og 6 lið sem eru með besta árangur í 2. sæti. Tvö lið með lakasta árangur í 2. sæti fara í umspil um sæti í lokakeppninni og Holland bætist síðan við sem gestgjafi. 16 lið leika í lokakeppninni í 4 riðlum og fara 2 efstu liðin úr hverjum riðli í undanúrslit.

Það er því mikilvægt að ná góðum úrslitum í hverjum leik enda eru markmið Íslands skýr. Að tryggja sér sæti á lokakeppni EM sem sigurvegari okkar riðils.

Góða skemmtun!

KNATTSPYRNUSAMBAND ÍSLANDS | FOOTBALL ASSOCIATION OF ICELANDLAUGARDAL | 104 REYKJAVIK | +354 510 2900 | [email protected] | WWW.KSI.IS

FACEBOOK.COM/FOOTBALLICELAND | TWITTER @FOOTBALLICELAND | INSTAGRAM @FOOTBALLICELAND

STELPURNAR ERU MÆTTAR!

Page 4: Ísland - Hvíta Rússland leikskrá A kvenna 2015

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu sneri í dag bökum saman í baráttunni gegn einelti. Af því tilefni færði Landsbankinn öllum leikmönnum landsliðsins glæsilegt Á allra vörum-varasett, en bankinn er bakhjarl bæði landsliðsins og landssöfnunarinnar. Kynningar- og fjáröflunarátak Á allra vörum gegn einelti og fyrir bættum samskiptum meðal barna og ungmenna stendur nú sem hæst en það nær hápunkti með landssöfnun á Rás 2 og í sjónvarpinu föstudaginn 25. september.

Landsliðskonurnar eru mjög stoltar af því að styðja baráttu Á allra vörum gegn einelti – utan vallar sem innan. Markmið söfnunarinnar er að opna samskiptasetur þar sem aðstandendur í eineltismálum geta fengið ráðgjöf og þjónustu frá fagaðilum. Samskiptasetrið verður sett á stofn í samvinnu við samtök fagfólks á sviði uppeldis-, lýðheilsu- og menntunarfræða sem nefnast Erindi. Þau hafa það markmið og hlutverk að miðla fræðslu og skapa almenna umræðu um málefni sem varða hag barna og ungmenna á öllum skólastigum.

KVENNALANDSLIÐIÐÁ ALLRA VÖRUM

Page 5: Ísland - Hvíta Rússland leikskrá A kvenna 2015

Landsliðshópur kvenna í knattspyrnu er á allra vörum.

Með landsliðinu eru Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir framkvæmdastjóri

hjá Landsbankanum og Gróa Ásgeirsdóttir, Guðný Pálsdóttir og

Elísabet Sveinsdóttir forsvarskonur Á allra vörum en þær færðu öllum í

liðinu varasett að gjöf.

Page 6: Ísland - Hvíta Rússland leikskrá A kvenna 2015
Page 7: Ísland - Hvíta Rússland leikskrá A kvenna 2015

Kvennalandsliðið hefur leik í undankeppni EM á þriðjudaginn. Það munaði ekki miklu að liðið kæmist á HM. Liðið er reynslunni ríkari eftir undankeppni HM og ætlar sér lengra núna. Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, er bjartsýnn fyrir undankeppnina og segir markmið Íslands skýrt.

Fyrsti leikur eftir langt hlé, hvernig leist þér á liðið?Mér leist mjög vel á marga þætti og 4-1 sigur fín úrslit. Gott að hefja leik og hrista okkur saman fyrir fyrsta leik í undankeppninni.

Eftir svona langt hlé, tekur tíma að fínstilla liðið?Já það gerir það, ég held að það sé eðlilegt að það taki smá tíma eftir svona langt leikjahlé. Þannig að þessi tími sem við höfum átt saman og Slóvakíu leikurinn hefur verið okkur dýrmætur.

Hvernig fannst þér leikurinn gegn Slóvakíu spilast?Leikurinn var kaflaskiptur. Við byrjum leikinn gríðarlega vel, skorum gott mark

snemma og eigum fullt af frábærum köflum fyrstu 20 mínútur leiksins. Við slökum svo full mikið á og tökum frekar lélegan kafla undir lok fyrri hálfleiks. Við spilum svo aftur vel í upphafi seinni hálfleiks en svo verður full mikið rót á leiknum og hann fjarar svolítið út eins og gerist oft í æfingaleikjum.Við fengum fín svör í leiknum og náðum að vinna vel úr honum daginn eftir leik. Við erum því betur undirbúin fyrir undankeppnina eftir leikinn en fyrir hann.

Sami kjarni af leikmönnum - ertu ánægður með stöðuna á leikmönnum?Já við erum mjög ánægð með stöðuna á hópnum, nokkrir leikmenn aðeins lemstraðir eftir erfitt tímabil en heilt yfir mikið sjálfstraust og leikmenn í góðu líkamlegu standi.

Riðillinn sem Ísland er í, má segja að við ættum að vera sterkasta liðið?Það er hægt að líta á málin þannig og ekkert óeðlilegt við það. Við teljum okkur geta unnið riðilinn og stefnum á það en við berum virðingu fyrir öllum okkar andstæðingum og undirbúum okkur vel fyrir hvert verkefni.

FREYR ALEXANDERSSONTELJUM OKKUR GETAUNNIÐ RIÐILINN

Page 8: Ísland - Hvíta Rússland leikskrá A kvenna 2015

Hvað veistu um um Hvít-Rússana, erfitt lið að keppa við?Þetta er snúið verkefni, Hvíta-Rússland spilaði mjög vel gegn Englandi í undankeppni HM til dæmis og veitir flestum liðum mjög góðan leik. Hvíta- Rússland eins og margar aðrar þjóðir frá þessu svæði í Evrópu eru á uppleið og okkur ber að virða þær og undirbúa okkur eins vel og kostur er á.

Hversu mikilvægt er að byrja vel og hversu mikilvægur er stuðningur áhorfenda?Það er gríðarlega mikilvægt að byrja á sigri, það er í raun það eina sem kemur til greina og til þess að gera leikinn skemmtilegri fyrir alla sem koma að honum þá er stuðningurinn gríðarlega mikilvægur. Ég er viss um að Tólfan mætir og tekur þátt í verkefninu með okkur og skemmtir sjálfum sér og öðrum konunglega. Hvet alla til að taka þátt í verkefninu með okkur frá upphafi.

Page 9: Ísland - Hvíta Rússland leikskrá A kvenna 2015

Óvænt úrslit eða algjörlega fyrirsjáanleg? Tippaðu!

Stoltur styrktaraðili KSÍ

Page 10: Ísland - Hvíta Rússland leikskrá A kvenna 2015

Margrét Lára Viðarsdóttir er mætt aftur til leiks en hún tók sér árs frí frá fótboltanum til þess að eignast erfingja. Hún er komin á fullt aftur en hún leikur með Kristianstad í Svíþjóð og er aftur búin að reima á sig landsliðsskóna. Þessi markaskorari segist njóta þessa að vera komin aftur og ætlar að leggja sitt á vogarskálarnar til að íslenska liðið nái sem lengst.

Hvernig er að vera komin aftur af stað með landsliðinu? Það er frábært að vera komin aftur. Ég nýt hverrar mínútu og hlakka til komandi ára hjá liðinu.

Eftir leikinn við Slóvaka, hvernig er stemningin í hópnum? Stemmningin var mjög góð eins og alltaf hjá íslenska landsliðinu. Við unnum leikinn sem var mjög gott en það voru samt margir hlutir sem við hefðum getað gert betur. Við höfum lært af mistökum okkar og ætlum okkur að gera enn betur gegn Hvíta Rússlandi á þriðjudag.

Ef þú skoðar riðilinn sem við erum í. Eigum við að teljast sterkasta liðið? Já, það segir allavega UEFA-listinn. Staðreyndin er hins vegar sú að einhver listi gefur okkur ekki neitt þegar inn í leikina er komið. Við þekkjum það af fyrri

reynslu að við þurfum að hafa mikið fyrir hverjum sigri og því mikilvægt að við komum einbeittar í hvert einasta verkefni. Það eru margar hættur á leiðinni og því er mikilvægt að bera virðingu fyrir hverju verkefni fyrir sig. Við ætlum okkur stóra hluti en það þarf lítið út af bregða til að illa fari þannig að við verðum að toppa í hverjum leik til þess að markmiðin náist.

Finnst þér liðin í kvennaboltanum vera að jafnast, eru færri „slök” lið? Mér finnst það. Austur-evrópsku liðin sérstaklega eru í mikilli sókn. Við erum ekki að sjá eins stórar tölur í leikjum eins og áður þannig að kvennaboltinn er að verða jafnari sem er bara jákvætt. Það segir okkur það líka að við þurfum að halda áfram að bæta okkur svo við sitjum ekki eftir. Mikilvægt að huga að grasrótinni og fjölga verkefnum fyrir A-liðið.

Hversu mikilvægt er að byrja undankeppnina vel? Skiptir miklu máli fyrir okkur að byrja vel og fá liðið til að geisla af sjálfstrausti í komandi verkefnum. Í kvennaboltanum getur verið mjög dýrt að tapa stigum í riðlakeppni sem þessari þannig að við verðum að vinna Hvíta-Rússland ef við ætlum að ná markmiðum okkar sem er að vinna riðilinn. Við reiknum með að

MARGRÉT LÁRA

NÝT HVERRARMÍNÚTU

Page 11: Ísland - Hvíta Rússland leikskrá A kvenna 2015
Page 12: Ísland - Hvíta Rússland leikskrá A kvenna 2015

Skotland vinni alla sína leiki þannig að við verðum að fara í hvern leik til að vinna. Þetta verða allt erfiðir leikir en markmiðin eru skýr og við erum ekkert hræddar við að setja markið hátt.

Vitum við eitthvað um Hvít-Rússana? Því miður vitum við lítið. Við vitum hins vegar það að þær eru að bæta sig og verða sýnd veiði en ekki gefin. Við berum mikla virðingu fyrir þeim og reiknum með hörkuleik á þriðjudag. Þær ætla sér væntanlega jafn mikið og við að komast á EM þannig að þær koma eflaust

vel skipulagðar og áræðnar til leiks. Undankeppnin er að byrja þannig að það eiga allir möguleika. Á meðan svo er gera allir allt til að vinna sína leiki.

Er ekki málið að fólk fjölmenni á leikinn? Ekki spurning. Við hvetjum alla sem að geta og vilja koma og styðja okkur. Stuðningur áhorfanda getur skipt sköpum, hann verður okkar tólfti maður í þessari undankeppni. Ég get allavega lofað því að við leikmenn munum leggja líf okkar og sál í að komast á EM í Hollandi árið 2017.

Page 13: Ísland - Hvíta Rússland leikskrá A kvenna 2015
Page 14: Ísland - Hvíta Rússland leikskrá A kvenna 2015
Page 15: Ísland - Hvíta Rússland leikskrá A kvenna 2015
Page 16: Ísland - Hvíta Rússland leikskrá A kvenna 2015

Nafn Félag Leikir Mörk

Guðbjörg Gunnarsdóttir Lilleström 35 0

Sandra Sigurðardóttir Stjarnan 10 0

Sonný Lára Þráinsdóttir Breiðablik 0 0

Anna Björk Kristjánsdóttir Stjarnan 13 0

Arna Sif Ásgrímsdóttir Gautaborg 7 1

Ásgerður S. Baldursdóttir Stjarnan 8 0

Berglind Björg Þorvaldsdóttir Fylkir 8 0

Dagný Brynjarsdóttir Selfoss 54 11

Elísa Viðarsdóttir Kristanstad 21 0

Fanndís Friðriksdóttir Breiðablik 61 5

Glódís Perla Viggósdóttir Eskilstuna 31 1

Guðrún Arnardóttir Breiðablik 1 0

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir Stabæk 19 1

Hallbera Guðný Gísladóttir Breiðablik 63 1

Harpa Þorsteinsdóttir Stjarnan 51 8

Hólmfríður Magnúsdóttir Avaldsnes 98 36

Margrét Lára Viðarsdóttir Kristanstad 99 71

Rakel Hönnudóttir Breiðablik 70 5

Sandra María Jessen Þór 8 4

Sara Björk Gunnarsdóttir Rosengård 84 17

Leikmenn Íslands

Page 17: Ísland - Hvíta Rússland leikskrá A kvenna 2015

www.n1.is facebook.com/enneinn

Hluti af sterkri liðsheildN1 er bakhjarl Knattspyrnu-sambands Íslands

Áfram Ísland!N1 er stoltur bakhjarl íslensku landsliðanna í knattspyrnu.

Page 18: Ísland - Hvíta Rússland leikskrá A kvenna 2015

Gott er að minna gesti Laugardalsvallar á að það er fjöldi bílastæða í Laugardalnum er aðeins lítill hluti þeirra beint fyrir utan Laugardalsvöllinn. Á myndinni hér að neðan má sjá hvar hægt er að finna bílastæði í göngufæri við Laugardalsvöll. Við minnum svo vallargesti á að mæta tímanlega á leik Íslands og Hvíta Rússlands sem hefst kl. 18:45.

Það er gott að vera á góðum tíma til að forðast óþarfa biðraðir. Þá er minnt á að strætisvagnar stoppa víðsvegar í kringum Laugardalinn og geta verið afar góður kostur fyrir marga vallargesti.Mörg hlið verða opin á leiknum til að koma fótboltaþyrstum stuðningsmönnum sem fyrst í sætin sín og biðjum við alla að dreifa álaginu á hliðin.

LaugardalurLaugardalur-enginn skortur á bílastæðum!

SUNDLAUGAVEGUR

RE

YK

JA

VE

GU

R

LA

UG

AR

ÁS

VE

GU

R

SU

ÐU

RLA

ND

SB

RAU

TEN

GJA

VEG

UR

Skautahöll, Grasagarður173 stæði

World Class110 stæði

Laugardalsvöllur530 stæði

Íþróttasvæði Þróttar130 stæði

ÍSÍ50 stæði

Á bak við Laugardalshöll160 stæði

Austan við Laugardalshöll115 stæði

Ofan við Fjölskyldu- og húsdýragarð100 stæði

TBR húsið80 stæði

Laugardalshöll100 stæði

Í Laugardal, einu allra vinsælasta Íþrótta- og útivistarsvæði landsins

er að finna yfir 1800 bílastæði.

Þó svo að ekki séu laus stæði næst þeim stað í dalnum sem þú ætlar á,

bendum við á að víða í Laugardal er að finna næg bílastæði.

Sýnum sjálfsagða tillitssemiog leggjum aldrei á gangstígum.

Laugardalslaug190 stæði

Bílastæðamál við Laugardalsvöll

Page 19: Ísland - Hvíta Rússland leikskrá A kvenna 2015

Borgun býður fjölbreyttar lausnir og góða þjónustu fyrir þá sem vilja

taka við öllum greiðslukortum gegnum vefsvæði eða app.

Kannaðu málið á borgun.is.

Ertu með vefverslun?

Borgun er stoltur styrktaraðili íslenska landsliðsins.

Page 20: Ísland - Hvíta Rússland leikskrá A kvenna 2015
Page 21: Ísland - Hvíta Rússland leikskrá A kvenna 2015
Page 22: Ísland - Hvíta Rússland leikskrá A kvenna 2015
Page 23: Ísland - Hvíta Rússland leikskrá A kvenna 2015

Hvar er sætið þitt?

Page 24: Ísland - Hvíta Rússland leikskrá A kvenna 2015

+ icelandair.is Vertu með okkur

ÍSL

EN

SK

A S

IA.I

S I

CE

761

75 0

9/15

VIÐ ERUM ÖLL Í SAMA LIÐI