staðkennsla í blönduðu námi: hlutverk, þörf og skipulag

59
Staðkennsla í blönduðu námi: hlutverk, þörf og skipulag Sólveig Jakobsdóttir Erindi flutt á vegum Rannsóknarstofnunar KHÍ 22.11.2006 Útsetning lags (Árans Kjóinn hann Jóhann): Stefán Jökulsson Viðlag (Ég elska Kennó): Ingvar Sigurgeirsson og vísur: Kennarar og nemendur á tölvu- og upplýsingatæknibraut 2000

Upload: jaeger

Post on 13-Jan-2016

47 views

Category:

Documents


9 download

DESCRIPTION

Staðkennsla í blönduðu námi: hlutverk, þörf og skipulag. Sólveig Jakobsdóttir Erindi flutt á vegum Rannsóknarstofnunar KHÍ 22.11.2006. Útsetning lags (Árans Kjóinn hann Jóhann): Stefán Jökulsson Viðlag (Ég elska Kennó): Ingvar Sigurgeirsson - PowerPoint PPT Presentation

TRANSCRIPT

Page 1: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Staðkennsla í blönduðu námi: hlutverk, þörf og skipulag

Sólveig JakobsdóttirErindi flutt á vegum

Rannsóknarstofnunar KHÍ 22.11.2006

Útsetning lags (Árans Kjóinn hann Jóhann): Stefán JökulssonViðlag (Ég elska Kennó): Ingvar Sigurgeirsson

Myndir og vísur: Kennarar og nemendur á tölvu- og upplýsingatæknibraut 2000-2006

Page 2: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Mikilvægi staðarins?

Page 3: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag
Page 4: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Staðsetning

• Fegurð við hvert fótmál.. (Laugarvatn)

• Fagráð við hvert fótmál.. (Bolholt?)

Page 5: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

En ég elska Kennó hann er svo spennó...

Í fjarnámi í Kennó er svakalegt stuð....

Page 6: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

...en staðbundin lota er sviti og puð

Page 7: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Hópefli – stuðningshópar

Í hópefli sit ég og hristi minn hausþví þetta er það sem ég yfir mig kaus

Page 8: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Á trúnaðarstiginu átum við matí megrunarkúrana gáfum við frat.

Page 9: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Hópefli, verkefnahóparKátt er í Kismó með sín megabæt

enda er hópurinn óvenjubræt(Kismó - B1)

Hin fræknu og fjörugu það erum viðvið getum allt, vitum allt, betur en þiðAuðmýkt og hæversku þekkjum við ei

Seifaðu, enter og ýttu á plei

Kátar við förum á laugarvatnsþing Þar glaðar við snúumst í hring eftir hring

(Hringurinn )

B2 við hétum það var út úr kú því við erum hetjurnar B-52

Page 10: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

En ég elska Kennó hann er svo spennó...

Á morgun við förum í Laugarvatnsferð

Og hún verður alls ekki af lélegri gerð.

Page 11: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

En ég elska Kennó hann er svo spennó...

Það stefnir í snjóalög, slyddu og slark

Samt ótrauð við höldum, þó verði það hark

Page 12: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

En ég elska Kennó hann er svo spennó...

Magnaðar glærurnar sýndum við þar

Allt þar til rafmagnið fór bara af

Page 13: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

En ég elska Kennó hann er svo spennó...

Við kertaljós hlustuðum kynningar á

En fljótlega fórum þó kaffið að þrá– (tölvupp-hópur 2001)

Page 14: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

En ég elska Kennó hann er svo spennó...

Ég orku úr læðingi leysi nú hér og á þetta langþráða réttarball fer

Page 15: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

En ég elska Kennó hann er svo spennó...

Enginn er gáfaður aleinn og sérsvo saman við stöndum og sama er mér

Page 16: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Blandað nám?

• Blandað saman fjar/netnámi og staðnámi• (fremur en að um sé að ræða blöndu af

kennsluaðferðum og miðlum)• Sloan Concortium 2003

– Hefðbundið nám: 0% á neti– Vef-stutt (web-facilitated): 1-29% á neti (s.s.

Kennsluáætlun og einhver verkefni)– Blandað/samsett (blended/hybrid): 30-79% á Neti,

einhverjir tímar/fundir á staðnum– Á neti (online): 80%+

Page 17: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Staða við KHÍ 2005-2006

Miðað við skilgreiningar Sloan Concortium

2005-6: Flestallir? framhaldsáfangar á mörkum þess að vera blandaðir/samsettir og geta kallast fjarnám. Og e.t.v. um 50% af grunnáföngum? Framhaldsdeild: 1-3 staðlotur í 5 eininga áfanga (um 40 tímar af 200 eða um 20% staðnám).

Skyndileg aukning á blönduðu námi í grunnnámi með samkennslu stað- og fjaráfanga. Samtímalausnir á Neti nýttar.

Page 18: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Dreifing staðkennslu

Hvað er/gæti verið á milli staðkennslunnar?

Hvað er/gæti verið á milli staðkennslunnar?

Page 19: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Hvers vegna netnám?

• Aðgengi að námi!!!!• Sveigjanleiki í rými og tíma• Margar tegundir samskiptaleiða • Margir kostir við netumræður (t.d. hægt að

leggja meiri vinnu/hugsun í framlög; hverfa ekki um leið og eru sögð, auðveldara að meta)

• Orka dreifð (net-) vs. samleitin (stað), getur verið kostur en líka galli?

Page 20: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Hlutverk staðnáms (“áru”funda)

• Fyrirlestrar (gesta)kennara og nemenda ásamt umræðum

• Rödd kennarans sýnilegri

• Tæknimál, verklegir tímir

• Vinna með viðhorf og tilfinningar

• Félagslegt! – Samfélagsmyndandi, sameiginlegar minningar verða lím!

Page 21: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

“Sveigjanlegt nám”? 2006-2007

Nýtt M.Ed.nám með 7 námsleiðum: Grunnnemar komast beint í það, gert ráð fyrir að nemi í fullu námi ljúki B.Ed. og M.Ed. gráðu á 5 árum. Hugmyndir um að slíkur nemi sé í um 10 tímum á viku í staðkennslu (sé í 3 áföngum og mæti ca. 3 í viku).

Page 22: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Ástæður fyrir vikulegu staðnámi

• Betra fyrir nema í fullu námi?

• Heppilegra til að mynda námssamfélag?

• Grunnnemar vanir vikulega staðnámi?

• Flestir nemendur (um 85%) búa hvort eð er á höfuðborgarsvæðinu eða í innan við tveggja tíma radíus frá borginni?

Page 23: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Fagráð í UT og miðlun við KHÍ

• 10 tímar af vikulegri kennslu – ekki sveigjanlegt nám í fullorðinsfræðslu – beðið um endurskoðun á áætlun – amk ekki gera mætingu að kvöð

• Label dropped, some flexibility allowed for courses within sub-programs. One core course out of two offered both DE and F2F

Page 24: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Tölvu- og upplýsingatæknibrautin í framhaldsdeild

• Ákvörðun tekin vorið 2006, að halda áfram með sama módel af blönduðu námi og áður, þ.e. Netnám með 1-3 staðlotum per 5 eininga áfanga.

Page 25: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Könnun

• Vefkönnun 1* send á neti júní 2006 til 144 nemenda úr sjö árgöngum sem verið hafa á brautinni (98,99,00,01,02,04,05); um 50% þátttökuhlutfall (27-61% eftir árg.)

• Sama könnun send á neti ágúst 2006 til 17 nemenda skráðir í inngangsnámskeið á braut haust 2006; um 76% þátttaka

• Vefkönnun 2** send til starfsmanna KHÍ á augl (142 kennarar+) nóvember 2006; um þriðjungsþátttaka

*http://tolvupp.khi.is/stadkennsla.htm ** http://soljak.khi.is/stadkennslakhi

Page 26: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Þátttaka – nemar 98-05

33%

41% 39%

27%

43%

61%

45%

0%

10%

20%

30%

40%

50%

60%

70%

%

144 students from 7 cohorts invited, 72 answered (50%)

Page 27: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Búseta nemenda 98-05

13%

24%

63%

0%

10%

20%

30%

40%

50%

60%

70%

Langt utanhöfuðborgarsvæðis

(meira en 2ja tímakeyrslu frá)

Utanhöfuðborgarsvæðis ennálægt (30-120 mín. frá)

Á höfuðborgarsvæðinu

%

23%; 15% og 62% hjá þátttakendum úr 2006 árgangi

Page 28: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Kennarahópur

49%

88%

57%

18%

0%

20%

40%

60%

80%

100%

Bæði g+f Í grunndeild Í framhaldsdeild Annars staðar

Fjarkennslureynsla

%

2%

14%

31%

53%

0%

10%

20%

30%

40%

50%

60%

Hef enga reynslu affjarkennslu

Hef smáreynslu affjarkennslu (ca. 1-2

misseri)

Hef 1-5 ára reynsluaf fjarkennslu

Hef meira en fimmára reynslu affjarkennslu

Fjarkennslureynsla

%

Page 29: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Hversu mikið staðnám?

Langflestir nemendur telja hæfilegt magn staðnám; og mikill meirihluti kennara. Þó fjórðungur kennarar sem telur meira staðnám æskilegt.

4%

90%

6%0%

92%

8%

25%

71%

4%

0%10%20%30%40%50%60%70%80%90%

100%

Of lítið Nokkurn veginnhæfilega mikið

Of mikið

Magn staðkennslu

Hlu

tfal

l Nemar 98-05 s06

Nemar h06

Kennarar h06

Page 30: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Dreifing staðnáms

Töluverður meirihluti vill 1-3 staðlotur í áfanga, þar af mikill meirihluti úr hópi fyrri árganga

90%

6% 4%

54%

38%

8%

63%

19% 19%

0%10%20%30%40%50%60%70%80%90%

100%

Hæfileg dreifing1-3 skipti perönn (1 til 3

dagar í senn)

Betra að hafavikulega

kennslu (2-4tíma í senn)

Önnur dreifingheppilegri

Dreifing staðkennslu

Hlu

tfal

l Nemar 98-05 s06

Nemar h06

Kennarar h06

Page 31: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Staðsetning staðnáms

74%

20%6%

31%

69%

0%

31%44%

26%

0%10%20%30%40%50%60%70%80%

Nauðsynlegt aðhafa amk einastaðlotu utanReykjavíkur

með kvöldvökuog tilheyrandi

Hafa allastaðbundna

kennslu íReykjavík

Annað

Staðsetning staðkennslu

Hlu

tfal

l Nemar 98-05 s06

Nemar h06

Kennarar h06

Page 32: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

„ Lotan á Laugarvatni var ógleymanleg“

Page 33: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Viðhorf nema (98-05)

• Ef markmiðið með vikulegum kennslustundum á að vera að halda fólki frekar að námi þá tel ég það þröngsýni. Í námi á Netinu er alveg eins hægt að hafa aðhald og verkefnaskil. Með því að byggja þar upp og skipuleggja samfélag og samskipti nemenda er frekar hægt að veita stuðning en ef treyst er á vikulega tíma. [Karl búsettur á höfuðborgarsvæði, úr árgangi 2000].

• Einnig auðveldar fyrirkomulagið jafnrétti til náms óháð búsetu, en það hefur einmitt verið aðalsmerki náms við KHÍ og gert fleirum kleift að stunda það. [Kona búsett á höfuðborgarsvæði, úr árgangi 1998].

Page 34: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Viðhorf nema,dreifing staðkennslu

• Endilega að hafa áfram lotur, ekki vikulega tíma. Það hlýtur að vera mjög erfitt fyrir alla að fara svona oft frá því sem þeir eru að gera að ég tali ekki um þá sem búa utan höfuðborgarsvæðisins. [Kona búsett á höfuborgarsvæði, úr árgangi 1999].

• Fyrir utan hvað vikulegir tíma í Rvk. útiloka fólk utan af landi þá er öruggt að námlotur nýta tíma fólks betur. Þar sem flestir í þessu námi eru í vinnu og með fjölskyldu, þá er aukið álag og stress að vera að sækja 3 kennslustundir vikulega. Fleiri staðbundnar lotur eða kennsla einu sinni í viku á staðnum er mjög slæmt fyrir fólk utan af landi það myndi drepa niður fjarkennslu, allavega hefði ég aldrei farið í fjarnám nema vegna þess að staðloturnar voru svona fáar. [Kona búsett í nágrenni höfuðborgarsvæðis (30-120.mín. akstursfjarlægð, úr árgangi 2004].

• Ég hefði alls ekki viljað hafa vikulega kennslu, mér fannst fyrirkomulagið gott eins og það var. Ég held það henti ákaflega illa fyrir utanbæjarfólk að þurfa að mæta í hverri viku. Ég er ekki viss um að námið hefði höfðað eins vel til mín ef það hefði þurft að mæta í hverri viku. [Kona búsett á höfuborgarsvæði, úr árgangi 2001].

• Ég hefði alls ekki verið jafn ánægð með að fara vikulega til Reykjavíkur. Ég bý á Selfossi og þó að vegalengdin sé ekki mikil þá er það álag að keyra oft til Reykjavíkur, það er kostnaðarsamt og stundum er færðin slæm, jafnvel hættuleg. [Kona úr árgangi 2001].

• Mér finnst svona blandað fyrirkomulag eins og hefur verið í fjarnámi yfirhöfuð í Kennó alveg frábær leið .... Eins og þetta hefur verið gert er þetta alveg frábært og kemur til móts við okkur á landsbyggðinni, sem ég tel skipta gríðarmiklu fyrir þróun skólamála í landinu. Kennurum á landsbyggðinni er með þessu gert kleift að endurmennta sig og það hlýtur að skila sér í skólana og til nemenda. [Kona búsett á landsbyggð, úr árgangi 1998].

• ...Svo vil ég benda á að vikuleg staðkennsla útilokar fólk sem býr annars staðar en á stórhöfuðborgarsvæðinu, nema einnig verði boðið upp á samtímakennslu á Neti. Það væri mjög góður kostur að nota það meira. [Einstaklingur af landsbyggð].

Page 35: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Utanbæjarlotur – samfélags og tenglsamyndun

Fólk kynntist miklu betur en annars væri (í 50% svara) sem kæmi t.d. til af því að nemendur gætu ekki horfið af vettvangi vegna annarra málefna og nefndu einnig sumir að Reykvíkingar hefðu gott af að þurfa að hverfa af bæ. Gott þótti að lifa og hrærast í því sama í nokkra daga. Dæmi um svör:

Page 36: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Utanbæjarlotur – samfélags og tenglsamyndun, dæmi

.... þá hefur kennari nemendur út af fyrir sig 100%. Nemendur eru ekki að hverfa af vettvangi til að sinna persónulegum málum, hafa græjað það fyrirfram. Kosturinn er einnig fyrir nemandann sá að hann nær frekari tengslum við kennara og samnemendur og það var þannig í mínu tilviki að samnemendur mínir ýttu við mér þannig að ég sjálf hélt áfram (tók meira en ég ætlaði í upphafi) því það var gaman að umgangast þá. Einnig náðust góð samskipti við kennara sem skiptir miklu máli í fjarnámi.

1. Nemendur eru 100% einbeittir2. Einangrun er minni í fjarnámi og persónuleg kynni komast á sem

eru mikilvæg í hópvinnu.

[Kona úr 1999 árgangi, búsett á höfuðborgarsvæði].

Page 37: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Utanbæjarlotur – mikilvægi vegna náms, verkefnavinnu

• helmingur þeirra sem svöruðu opinni spurningu sem lýstu skoðun sinni nánar um áhrif staðbundinnar lotu utan við bæinn á námið síðar á brautinni. Talið var m.a. að netsamskipti síðar í námi yrðu miklu greiðari, minni hætta væri á að nemendur flosnuðu úr náminu, mjög drægi úr félagslegri einangrun fjarnema, samhjálp ykist og tengsl mynduðust sem stuðluðu að aukinni samvinnu í verkefnum og héldu jafnvel eftir að námi lyki auk þess sem að nemendur yrðu óhræddari að miðla hvorir öðrum af þekkingu sinni og reynslu.

Page 38: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Utanbæjarlotur – mikilvægi vegna náms, verkefnavinnu, dæmi

• Med thvi ad fara ut fyrir baeinn kynnist folk naid og samvinnan verdur arangurrikari og skemmtilegri fyrir alla. Folk hefur jafnvel haldid afram ad vinna saman ad spennandi verkefnum eftir ad nami lykur. Eg maeli eindregid med thvi goda og arangursrika skipulagi sem hefur verid a naminu hingad til. [Kona úr 1999 árgangi, af höfuðborgarsvæði].

• Fólk kynnist betur og það þá auðveldara með samstarf og samvinnu í námi síðar meir. [Karl úr 2001 árgangi, af höfuðborgarsvæði].

• Þjappar hóp saman og samvinna í hópvinnu verður því auðveldari og skemmtilegri á eftir! [Kona úr 2005 árgangi, úr nágrenni höfuðborgarsvæðis].

Page 39: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Utanbæjarlotur – samskipti, minningar sem sameign

• Talað var um að mikilvægi samskipta og hversu mikið þau efldust (í 30% svaranna) við að fara út fyrir bæinn. Og einnig að hópurinn hristist svo vel saman (í 24% svara) og/eða þjappaðist svo vel saman (í 14% svara). Nefnt var að góðar minningar sköpuðust sem væru uppretta umræðu þegar einstaklingar úr hópnum hittust síðar og að alveg sérstök tengsl eða sérstakur andi myndaðist meðal hópfélaga sem hefðu farið saman í staðlotu út fyrir bæinn. Dæmi:

Page 40: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Utanbæjarlotur – samskipti, minningar sem sameign,dæmi

• Lotan á Laugarvatni var ógleymanleg. Mjög heppileg leið til að kynnast samnemendum og kennurum á námsbrautinni. [Einstaklingur, búsettur nágrenni höfuðborgarsvæðis].

• Ekki spurning að draga fólk út fyrir bæinn til að hrista það saman. Við, okkar hópur sem fór á Laugarvatn, lifðum lengi á því. Ferðin var oft uppspretta umræðu þar sem hópurinn, sem samanstóð af fólki alls staðar að og með ólíkan bakgrunn, átti hana sem sameign. [Kona úr 2002 árgangi, búsett nágrenni höfuðborgarsvæðis].

• Mikilvægt í upphafi til að hrista hóp saman, mæli með því sem við fórum í á Laugarvatni. Þeir sem voru með mér þar eru alltaf nær mér en þeir sem komu inn síðar. [Kona úr árgangi 2004, búsett í nágrenni höfuðborgarsvæðis].

Page 41: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Utanbæjarlotur – minnihlutinn sem var ekki eins sannfærður um gildi

• Ég hef sjálf ekki prófað “hitting” utan R.víkur en tel það einfaldara að nota höfuðstöðvarnar í þessum tilgangi. Það fyrsta sem mér dettur í hug í því sambandi er aðgangur að stoðþjónustu eins og bókasafni, tölvuaðstöðu og slíku sem er eins og best verður á kosið þar. [Kona úr 1998 árgangi af landsbyggð].

• Staðsetning lota er best í Reykjavík því þangað er þægilegast að komast fyrir þá sem búa utan Reykjavíkur, t.d. er innanlandsflugvöllurinn þar. [Kona úr 1999 árgangi úr nágrenni höfuðborgar].

• Ekki mikið fyrir kvöldvökur og hópefli hvers kyns, en það er bara ég. [Karl úr 2000 árgangi, af höfuðborgarsvæði].

• Fyrir mína parta er það ágæt leið að fara út fyrir bæinn í staðlotu og hrista hópinn ærlega saman. Það eflir kynnin og greiðir fyrir öflugari samskiptum á Netinu. Ef hópurinn er fámennur er kannski betur heima setið en af stað farið. [Kona úr 2005 árgangi af höfuðborgarsvæði].

Page 42: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Viðhorf kennara, magn of lítið6 af 12 svara opnum sp.

• Er reyndar að kenna á 3 eininga námskeiði svo þetta passar kannski ekki alveg við það. Ég hitt nemendur 4 sinnum, 2 tíma í senn samtals 8 tíma sem er ansi lítið.Og lítill möguleiki til að skipta hópum ef þeir eru stórir. Og ef upp koma veikindi hjá kennara er lítið hægt að gera til að bæta þeim upp missinn.

• Ég nota mikið dæmisögur og myndbönd í kennslu og glími við að koma því vel fyrir á vefnum, myndbönd á streymi hjálpa mikið

• Fjarkennsla erfið í greinum þar sem tilraunir skipa drjúgan sess. • Listgreinar í fjarnámi hafa yfirleitt fengið of lítinn tíma í staðnámi

(staðlotum). Árekstrar í töflum valda því að nemendur hafa ekki getað mætt í staðlotur. Það hefur sýnt sig í listgreinum að skilningur nemenda á náminu skýrist og verður oft til í staðlotum þegar verkefnin eru lögð fram, unnin og rædd þegar allir eru á staðnum, þ.e. í augnablikinu.

• Sérstaklega of lítið í grunndeild• Þetta fer að vísu eftir tengslum nem. og kenn. á milli staðlota

Page 43: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Viðhorf kennara, magn hæfilegt10 af 34 svara opnum sp.

• 2-3 staðlotur í 1-3 daga hafa hentað mjög vel. Það næst mjög góður vinnuandi til þess að læra ákveðna hluti á lengri lotum.

• Fjöldi staðtíma á aðallega að vera misjafn eftir efni, ekki allir í sama flokki.• Hef bara einu sinni átt aðild að einu svona námskeiði.• Hef takmarkaða reynslu af framhaldsdeild• Hef vanist 40 tímum fyrir 5 einingar.• Í sumum námskeiðum er vel hægt að komast af án staðlotu, einkum á seinni

stigum fjarnáms og ef nemendur þekkjast og þekkkja kennarann af fyrri námskeiðum.

• Líklega afstætt, háð því hvers konar námskeið er um að ræða• Mætti jafnvel vera minna• mætti þó vera aðeins meira• Undanfarin ár hefur kennslustundum í staðnámi fækkað mikið og mig

grunar að það sé jafnvel lítið meira en þetta. Viðmiðið er komið ansi langt niður (8st/ein sá ég einhvers staðar) og við í raungreinunum sem höfðum alltaf nær 20 höfum þurft að skera það mikið niður vegna stundatöflu (þetta er´ju frjálst á bilinu 8-20 en það þarf að vera til tími), en

Page 44: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Viðhorf kennara, magn of mikið eða skila auðu,4 af 5 svara opnum sp.

• Fér eftir hönnun og framsetningu námskeiða•• Fer eftir eðli og innihaldi námskeiðs • Ég hef mjög litla reynslu af fjarkennslu í framhaldsdeild. • Hef ekki skoðun á magni að óræddu eðli þess sem gert er og hvaða

nemendur er um að ræða.

Page 45: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Viðhorf kennara, dreifing önnur?

Nokkurn veginn sama?• 3 skipti a.mk. 3 dagar • 1-2 skipti 3-5 dagar í senn• 1-3 skipti 2 dagar í senn• 3 skipti á önn og 1-2 dagar ísenn• Tvö skipti pr. Önn• Það nægir að mínu mati að hafa góða staðlotu í byrjun náms og aðra um

miðbik annar (eða aðeins seinna). Það er grundvallar atriði að listgreinar fái góðan tíma í þessum staðlotum.

Örar?• Mánaðarleg kennsla eða hálfsmánðarleg• 4 - skipti• T.d. tvisvar í mánuði• einn dag aðra hverja vikuEftir námskeiðum?• Sveigjanlegt eftir námskeiðum hvernig dreifing hentar

Page 46: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Viðhorf kennara, dreifing önnur?

Staðlotufólk• Ég er að hugsa um leiklist sem krefst þó tíma í staðlotu• Almennt er ágætt að hafa slíkar lotur. En undirbúningurinn, bæði fyrir stök

námskeið og ekki síður lotuna í heild þarf að vera í lagi.• Er háð kennsluformi• Mér finnst aftur á móti sjálfsagt að bjóða LÍKA upp á málstofur,

umræðutíma í sumum tilfellum. Það vinnst LÍKA ýmislegt við það að hittast einu sinni í viku til að ræða það sem maður er að læra. Sumir nemenda minna hafa saknað þessa (þótt fáir séu). Ég vil gjarnan geta boðið upp á það líka.

• Mér líst vel á þennan möguleika - en hef ekki reynt hann á Íslandi. Hef hins vegar unnið svona í doktorsnámi í Noregi.

Málsvarar vikulegrar kennslu• eða 3 til 5 dagar á önn - 4 til 6 klst í senn• Hef ekki reynslu af þessu, held að þetta væri heppilegast en það hins vegar

hindrar það að fólk sem býr úti að landi geti farið í námið sem er náttúrulega aðalmarkmiðið með fjarnámi

Page 47: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Viðhorf kennara, dreifing önnur?

Annað eða skila auðu• En þetta er eflaust háð aðstæðum nemenda o.fl.?• Mér finnst eðlilegt að bjóða blöndu af þessu• stundum truflar það að nemendur eru að sinna ýmsum málum í Reykjavík

og það er sérlega áberandi þegar þau koma sjaldan• Að fjarnemandi komi a.m. k. tvisvar inn á önn og að staðlota vari a.m.k. í

10 daga• Hef enga hugmynd um þessa nýju braut• Það er ómögulegt að svara þessari könnun því hrært er saman grunnnámi

og framhaldsnámi

Page 48: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Viðhorf kennara, samtímanetkennsla

Hafa ekki prófað samtímakennslu á Neti og hafa ekki áhuga á því

• Geri mér ekki grein fyrir því• Get ekki séð að það komi í stað staðlotu þar sem hópurinn er saman kominn

á sama stað. Nálgun einstaklingsins við listgreinafögin í gegnum tölvu geta ekki orðið þau sömu og þau eru "á staðnum". Þó listgreinakennsla í fjarnámi hafi marga góða kosti skipta staðlotur geysilega miklu máli.

• Það er ekki hægt að ganga að fjarnemum vísum á sömu tímum og staðnemum

• mér finnst óþarfi að minnka sveigjaleika fólks í fjranámi um hvenær það sinnir náminu

Page 49: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Viðhorf kennara, samtímanetkennsla

Hef áhuga á að prófa samtímakennslu á Neti

• Það þarf að breyta staðkennslunni og leggja áherslu á þau atriði sem ekki er auðvelt að gera í fjarnámi.

• Flesta fyrirlestra má flytja á netinu og spara þannig tíma í staðlotum til samskipta og samvinnu.

• Hef ekki haft tíma til að prófa það á þessu námskeiði.• Erfitt að svara án þessa að prófa og meta• Þetta er það sem ég átti við að ofan að samtímakennsla, sjónræn nánd og

því um líkt kemur í stað staðkennslu að hluta, en ekki alveg því að best er að stofna til persónulegra tengsla í nálægð, Svo er spurning hvort við viljum stofna til þeirra í námi?

• Hentar e.t.v. ekki vel í stærðfræði

Page 50: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Viðhorf kennara, samtímanetkennsla

Hef notað samtímakennslu á Neti,og er ánægð(ur) með þá reynslu (eða skila auðu)

• Ég er bæði ánægð og ekki ánægð með reynsluna. Gékk seint að fá alla með og svo er vandamál með Wimbu að fjarnemar heyra ekki í staðnemum

• Mér finnst þessir svarmöguleikar ekki alveg passa. Mér finnst að samtímakennsla gefur báðum námsleiðum aukið gildi, aukna dýpt. Ég vil gjarnan haf hvort tveggja því að kennslan/nemendurnir hagnast af því.

• Reyndar ekki Wimba o.þ.u.l. heldur myndráðstefnur og með góðum árangri.• vantar þó persónulega þáttinn sem ég tel mjög mikilvægan• Þetta er spennandi aðferð sem ég hef ekki prófað nóg. Ég myndi gjarnan

vilja prófa vikulega fundi, þannig að við lærum að vinna svona saman! Mér finnst að við ættum TVÍMÆLALAUST að prófa meira á þessu sviði, og styðja enn betur við kennara sem vilja það.

• Hef notað kamsjaka og virðist það vera góð viðbót í fjarkennslunni og draga úr þörf minni fyrir staðlotur

Page 51: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Staðsetning staðkennslu Viðhorf kennara

Telja æskilegt að hafa amk eina staðlotu utan R-víkur (5/12 svara opinni sp.)

• Ég hef MJÖG góða reynslu af þessu. Það þarf að taka þetta fram með fyrirvara, helst áður en fólk sækir um námið, einkum hvað varðar kostnaðinn.

• Ég segi nú ekki að nauðsynlegt sé að fara út fyrir Reykjavík, en víst er það betra. Þó held ég að það kæmi svolítill færibandastíll á ef öll námskeið færu í þann farveg. En kannske á að skilja þetta sem svo að mörg námskeið sem nemar sækja á sinni fyrstu önn ættu að sameinast. Það er hins vegar ekki vandalaust að búa til góða dagskrá á þann hátt!

• Hef margra ára góða reynslu af því að stofna til hóptengsla utan Rvíkur í upphafi náms.

• Kannski ekki nauðsynlegt en æskilegt• M.a. mikilvægt að nemendur myndi tengsl sín á milli svo þeir geti unnið

hópverkefnið með aðstoð netsins og það ýtir líka undir skoðanaskipti þeirra á WebCT sem virðast vera mest skömmu eftir staðlotur.

Page 52: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Staðsetning staðkennslu Viðhorf kennara

Telja æskilegt að öll staðkennsla sé í R-vík (4/17 svara opinni sp.)

• Engu að síður er gott að fyrsta lota með nýjum hópi sé utan Reykjavíkur og sólarhringsvist á staðnum

• Ég legg ekki svo mikið upp úr "sósílöm". Ekki skilja það svo að ég sé ekki sósíal... Eitt af því sem er mikilvægt - sérstaklega fyrir fjarnema er að "finna sig" í skólanum sínum. Sjá aðstæður og starfsfólk. BEst er að það gerist sem fyrst í náminu. Þess vegna finnst mér að staðlotur ættu vera í skólanum.

• Hæpið að stefna ausfirðingum til Vestfjarða• Sjálfsagt gott að hrista hópa saman en það verða einhverjir ákveðnir að taka

það að sér.

Page 53: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Staðsetning staðkennslu Viðhorf kennara

Merkja við Annað (4/17 svara opinni sp.)

• Að hafa alla staðbundna kennslu í Reykjavík er ekki nauðsynlegt en erfitt (en eflaust af því góða) er að fastsetja að hafa amk eina staðlotu fyrir hvern hóp sem er að hefja sitt nám utan Reykjavíkur með kvöldvöku og tilheyrandi

• Er ekki viss, ef kennarinn er í Reykjavík verður þá ekki kennslan að vera þar. Nema hann fari í ferð út á landsbyggðina sem er kannski ágætur kostur?

• Gæti verið gott að láta þau hittast einhvers staðar en það á bara við hóp manna sem á eftir að vera´oft saman í kúrsi

• Mér finnst það fara eftir hópnum. Er bara verið að spyrja um framhaldsdeildina?

• Nauðsynlegt er að hafa staðlotu þar sem fólk hittist og kynnist en ekki nauðsynlegt að það sé utan Reykjavíkur

• Það mætti hafa einhverjar staðbundnar lotur úti á landi t.d. að Laugarvatni. Ágætt væri að byrja með kvöldvöku. En að mínu mati ætti að leggja áherslu á að gefa nemendum tækifæri á að kynnast á persónulegan hátt, t.d. með leikrænni tjáningu og- eða hópefli.

Page 54: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Staðsetning staðkennslu Viðhorf kennara

Skila auðu um staðsetningu• Ég er óviss um að nauðsynlegt sé að hafa staðlotur utan Reykjavíkur en það

væri vissulega til bóta enda fælist í því meira jafnræði gagnvart nemendum.• Ég get ekki séð að það skipti máli• "Ég kenni útivist og þá erum við í Reykjavík, Snæfellsnes, í Skagafirði, á

Úlfljótsvanti og viðar. • Kvölsamvera er feyki mikilvæg. "• það er kannski ekki nauðsynlegt að hafa eina staðlotu utan Reykjavíkur, en

gæti gæti verið góður kostur og fer eftir eðli og áhersluþáttum í námsskeiði• Þetta hlýtur að vera mismunandi eftir námskeiðum og brautum.

Hef ekki myndað mér skoðun á þessu.....Hef ekki sérstaka skoðun á þessuTek ekki afstöðu

Page 55: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Mikilvægi staðnáms/kennslu Viðhorf kennara

Þetta félagslega!

• Ná persónulega sambandi/kynnum, tengslum 15 • (8, 43, 41, 5, 4, 6, 31, 2, 24, 19, 18, 3, 36, 27, 39)• Samvera, nánd, hittast í eigin persónu, félagsleg þörf 10

(49, 44, 5, 22, 4, 10, 21, 15, 36, 40)• Hópefli 2

(38, 5)• Samvinnu, hópvinnu 2

(38, 14)• Öryggi að hafa hitt k. 1

(10)• Hlæja saman og glettast 1

(40).

Page 56: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Mikilvægi staðnáms/kennslu Viðhorf kennara

Umræður• Ræða námsefni í hóp, djúpumræður, vinna úr 10• (8, 20, 28, 29, 22, 24, 33, 15, 27, 40)• Skiptast á skoðunum um námið/námsþætti, vinnulag, kennsluhætti 3

48, 38, 29

Æfingar verkleg færni 7 (38, 34, 44, 37, 22, 19, 27)

.

Page 57: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Mikilvægi staðnáms/kennslu Viðhorf kennara

Annað (1-4 með hvert atriði)• Aðferð: Koma á óvart; hræra upp í 1 42• Einstaklingar: Ekki allir jafnir í skriflegri tjáningu/lestri 2 23,

51• Ferðir/útivist, vettfangsheimsóknir 3 20, 49, 37• Fyrirlestrar: Gestafyrirl, dýpkun með fyrirl. 2 44, 10• Hvenær: Heppilegt til að byrja og ljúka 1 18• Efla kunnáttu 1 42• Efla vinnuaðferðir, fjölbreytt og skapandi vinnubrögð 3 42,

38, 22• Nemaverkefni 2 14, 15• Mat Mat á framlögum annarra 1 14• Skýrleiki: Skilaboð betur áleiðis augliti til auglits/meðtaka betur, staðfesta

efnið 4 51, 31, 11, 15, 41• Stofnun Tengsl við stofnun, bókakostur 2 6, 2• Tími/rými Rými/tími í lífi 1 16

Page 58: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Mikilvægi staðnáms/kennslu Viðhorf kennara – ekki í stað!

Glærur (á Neti), hefðbundnir fyrirlestrar, einhliða miðlun 9 (48, 43, 20, 28, 29, 22, 2, 19, 33)

Fara yfir námsefni 1

Page 59: Staðkennsla í blönduðu námi:  hlutverk, þörf og skipulag

Mikilvægi staðnáms/kennslu Viðhorf kennara