dr. guðmundur sigurðsson er breytinga þörf? björn l. bergsson hrl

41
10.10.2003 1 Dómur Hæstaréttar 18. september 2003 í máli nr. 520/2002. Tengsl skaðabótaréttar og bótaréttar frá almannatryggingum. Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

Upload: fawzia

Post on 05-Jan-2016

56 views

Category:

Documents


1 download

DESCRIPTION

Dómur Hæstaréttar 18. september 2003 í máli nr. 520/2002. Tengsl skaðabótaréttar og bótaréttar frá almannatryggingum. Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl. Atvik máls nr. 520/2002, varanlegar afleiðingar slyss, greiðslur frá almannatryggingum. - PowerPoint PPT Presentation

TRANSCRIPT

Page 1: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 1

Dómur Hæstaréttar 18. september 2003 í máli nr. 520/2002.

Tengsl skaðabótaréttar og bótaréttar frá almannatryggingum.

Dr. Guðmundur Sigurðsson

Er breytinga þörf?

Björn L. Bergsson hrl

Page 2: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 2

Atvik máls nr. 520/2002, varanlegar afleiðingar slyss, greiðslur frá

almannatryggingum

• Um var að ræða mjög alvarlegt vinnuslys• Slysdagur var 9. júlí 1999• Stöðugleikatímapunktur í skilningi skaðabótalaga nr.

50/1993 var 9. júlí 2000• Varanlegur miski og fjárhagsleg örorka tjónþola var 70% • Aðilar voru sammála um að heildartjón vegna

varanlegrar örorku var kr. 11.409.764,00. • Tjónþoli fékk greitt kr. 3.602.880,00 í örorkubætur úr

slysatryggingu launþega. – Óumdeilt var að sú fjárhæð átti að koma til frádráttar heildartjóni

Page 3: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 3

Ágreiningsefni í máli nr. 520/2002

• Ágreiningsefnið var hvernig bæta skuli tjón vegna metinnar 70% varanlegrar fjárhagslegrar örorku.

• Ágreiningurinn varðaði nánar tiltekið túlkun á 1. ml. 4. mgr. 5. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 eins og henni var breytt með lögum nr. 37/1999, þ.e. túlkun á orðalaginu: “Frá skaðabótakröfu vegna líkamstjóns dragast greiðslur sem tjónþoli fær frá almannatryggingum.”

Page 4: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 4

Bótaréttur, mánaðargreiðslur, tjónþola hjá Tryggingastofnun þann 9. júlí 2000. Útreikningur

byggði á að tjónþoli nýtti 30% vinnugetu sína

• Örorkulífeyrir, kr. 17.952,00, sbr. almannatryggingalög nr. 117/1993

• Tekjutrygging, kr. 27.610,00, sbr. almannatryggingalög nr. 117/1993

• Heimilisuppbót, kr. 12.842,00, sbr. lög nr. 118/1993 um félagslega aðstoð

• Tjónþoli átti ekki bótarétt hjá lífeyrissjóði sökum þess að hún hafði unnið mjög stutt hér á landi er hún slasaðist.

Page 5: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 5

Ætlaðar bótagreiðslur frá almannatryggingum

Örorku-lífeyrir

Tekju-trygging

Heimilis-uppbót

Samtals

Mánaðarlega 17.592 27.610 12.842

Árlega 211.104 331.320 154.104

Margfeldi 13,786 13,786 13,786

Höfuðstóls-verðm.

2.910.273 4.567.567 2.124.473

Til frádráttar 2.910.273 4.567.567 2.124.473 9.602.313

Frádráttur að teknu tilliti til 33,3% skattgr.

1.941.152 3.046.567 1.417.023 6.404.742

Page 6: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 6

Eingreiðsluútreikningur byggir á sömu meginforsendum og útreikningur margfeldisstuðuls skv. skaðabótalögum, eins

og þeim var breytt með lögum nr. 37/1999

• Tekið er mið af bótarétti tjónþola frá almannatryggingum á stöðugleikatímapunkti

• Miðað er við 4,05% vexti, þ.e. 4,5% fyrir fjármagnstekjuskatt, og vaxtavexti.

• Lífslíkur fara eftir reynslu áranna 1991-1995 • Eingreiðsluverðmæti frádráttarfjárhæðar er lækkað um

33,3% vegna tekjuskattshagræðis og eingreiðslu• Ekki er hægt að taka inn í eingreiðsluútreikning

meðaltekjudreifingu þá sem lögð er til grundvallar margfeldisstuði skaðabótalaga þar sem bætur frá almannatryggingum eru þær sömu til tjónþola með sama áverka óháð aldri

Page 7: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 7

Nánar um ágreiningsefni í máli nr. 520/2002

• Átti að reikna örorkulífeyri, tekjutryggingu og heimilisuppbót til eingreiðslu og draga frá heildartjóni vegna varanlegrar fjárhagslegrar örorku?

• Tjónþoli taldi svo ekki vera enda myndi sú niðurstaða leiða til þess að tjónþoli fengi tjón sitt ekki að fullu bætt, sjá næstu glærur.

• Þá taldi tjónþoli að ákvæði 1. ml. 4. mgr. 5. gr. stæðist ekki 65. gr. og 72. gr. stjórnarskrárinnar.

• Í sjálfu sér var ekki ágreiningur milli aðila um hvernig reikna bæri til eingreiðslu greiðslur frá almannatryggingum

Page 8: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 8

Ef skaðabótalögin eins og þeim var breytt 1996 hefðu gilt um tjónið

• Heildartjón vegna 70% varanlegrar

örorku (1.780.800 x 10 x 70%) kr. 12.465.600,00– Til frádráttar:– Lækkun skv. 9. gr.

skaðabótalaga (19%) kr. - 2.368.464,00– Örorkubætur úr slysatryggingu

launþega kr. -3.602.880,00• Skaðabótakrafa á hendur

hinum bótaskylda kr. 6.494.256,00

Page 9: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 9

Tjónið reiknað skv. skaðabótalögum eins og þeim var breytt 1999. Lög nr. 37/1999 tóku gildi 1. maí

1999, en slysið varð 9. júlí 1999

• Heildartjón vegna 70% varanlegrar

örorku (1.780.800 x 9,153 x 70%) kr. 11.409.764,00– Til frádráttar:– Örorkubætur úr slysatryggingu

launþega kr. -3.602.880,00– Greiðslur frá almannatryggingum kr. -6.404.742,00

• Skaðabótakrafa á hendur

hinum bótaskylda kr. 1.402.142,00

• Mismunur (6.494.256,00 - 1.402.142,00) kr. 5.092.114,00

Page 10: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 10

Nánar um túlkun 1. ml. 4. mgr. 5. gr. skaðabótalaga

• Frádráttur greiðslna frá almannatryggingum/frádráttur eingreiðsluverðmætis örokulífeyris frá lífeyrissjóði– 1. ml. 4. mgr. 5. gr.: Frá skaðabótakröfu vegna

líkamstjóns dragast greiðslur sem tjónþoli fær frá almannatryggingum

– 4. ml. 4. mgr. 5. gr: Jafnframt skal draga frá skaðabótakröfu 40% af reiknuðu eingreiðsluverðmæti örorkulífeyris frá lífeyrissjóði og skal við útreikninginn miðað við 4,5% ársafvöxtun

Page 11: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 11

Nánar um túlkun 1. ml. 4. mgr. 5. gr. skaðabótalaga

• Ef ætlun löggjafans var sú að reikna skuli mánaðarlegar greiðslur frá almannatryggingum til eingreiðslu og draga frá skaðabótakröfu, hvers vegna er þá ekki að finna í ákvæðinu jafn skýra reiknireglu hvað þetta varðar og gildir um örorkulífeyri frá lífeyrissjóði?

• Ég tel að hér hefði mátt gera betur við lagasetninguna. Það hefði sparað mönnum mörg heilabrotin.

• Þetta hefði mátt leysa með ítarlegri umfjöllun í greinargerð en gert var.

Page 12: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 12

Bréf Sambands Íslenskra Tryggingafélaga til allsherjarnefndar Alþingis, dags. 7. desember 1998

• “Frumvarpið er í senn óljóst og fámált varðandi það, hvernig taka beri tillit til bótagreiðslna skv. almannatryggingalögum við uppgjör skaðabótakröfu, þótt ljóst sé, að fyrir frumvarpshöfundum vakti að slíkt skuli gert. Brýnt er að þessi atriði verði skýrð.”

Page 13: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 13

Svar þeirra Guðmundar Jónssonar fyrrverandi hæstaréttardómara og Gests Jónssonar hrl., til

allsherjarnefndar Alþingis, dags. 9. desember 1998

• “Við erum ekki sammála því að óljóst sé af frumvarpinu hvernig tekið skuli tillit til bótagreiðslna frá almannatryggingum, sbr. athugasemdir með 4. gr. á bls. 7. Þar er tekið fram að við frádráttinn skuli þess gætt að greiðslur séu sambærilegar með því að taka tillit til skattskyldu og greiðsluforms, áður en dregið er frá skattfrjálsum og afvöxtuðum bótum fyrir varanlega örorku.”

Page 14: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 14

Hugmynd að breyttu ákvæði um frádrátt greiðslna frá almannatryggingum.

Gæti verið 2. ml. 4. mgr. 5.gr.

• Frá skaðabótakröfu dragast einnig allar greiðslur, eða reiknað eingreiðsluverðmæti þeirra, sem tjónþoli fær frá almannatryggingum og skal við eingreiðsluútreikninginn miða við 4,5% ársafvöxtun.

• Að gengnum dómi í máli nr. 520/2002 ætti slík lagabreyting þó ekki að vera nauðsynleg

Page 15: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 15

Hvað segja lögskýringargögn um túlkun 1. ml. 4. mgr. 5. gr. skaðabótalaga?

• Héraðsdómur:• Í athugasemdum með frumvarpi, sem varð að lögum nr.

37/1999, segir: “Samkvæmt gildandi lögum dragast bætur frá almannatryggingum og lífeyrissjóði ekki frá bótum fyrir varanlega örorku. . . Margföldunarstuðull 5. gr. frumvarpsins er annars eðlis en í gildandi lögum og við það miðaður að tjónþoli fái að fullu bætt það tekjutap sem hann verður fyrir vegna varanlegrar örorku. Vegna þessa er lagt til að til frádráttar bótum komi greiðslur af félagslegum toga sem koma í hlut tjónþola vegna örorkunnar.

• Við frádráttinn þarf að huga að því að greiðslur séu sambærilegar með því að taka tillit til skattskyldu og greiðsluforms, áður en dregið er frá skattfrjálsum og afvöxtuðum bótum fyrir varanlega örorku. . .

• Annars vegar skal samkvæmt frumvarpinu draga frá greiðslur frá almannatryggingum. Hins vegar er gerð tillaga um að frá bótum dragist 40% af verðmæti örorkulífeyris.”

Page 16: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 16

Hvað segja lögskýringargögn um túlkun 1. ml. 4. mgr. 5. gr. skaðabótalaga? -áframhald

• Hæstiréttur:• Í 6. gr. skaðabótalaga, eins og henni var breytt með 5.

gr. laga nr. 37/1999, er mælt fyrir um hvernig meta skuli varanlega örorku til fjárhæðar á grundvelli örorkustigs tjónþola, árslauna hans og margfeldisstuðuls sem þar er ákveðinn.

• Í athugasemdum með frumvarpi að lögum nr. 37/1999 er því lýst, svo sem í héraðsdómi greinir, að stuðull þessi sé annars eðlis en áður gilti samkvæmt skaðabótalögum og sé við það miðaður að tjónþoli fái að fullu bætt tekjutap sitt vegna varanlegrar örorku.

• Vegna þessa sé miðað við að til frádráttar komi greiðslur af félagslegum toga.

Page 17: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 17

Hæstiréttur - áframhald

• Með greindum ákvæðum skaðabótalaganna er leitast við að bæta áætlað framtíðartjón tjónþola.

• Útreikningurinn er reistur á örorkustigi hans á þeim tíma sem upphaf örorkunnar miðast við og tekjum fyrir slysdag, en staðlaður að öðru leyti.

• Samkvæmt orðalagi ákvæðis 4. mgr. 5. gr. laganna og greindum lögskýringargögnum verða lögin ekki öðruvísi skýrð en að miða beri framtíðarfrádrátt vegna greiðslna af félagslegum toga við þann tíma sem tjónþoli geti ekki vænst frekari bata.

• Verður það ekki gert nema mið sé tekið af því hvernig mál tjónþola standa á þeim tíma og ætla út frá því hvernig mál þróist í framtíðinni samkvæmt meðaltalslíkindareglu.

Page 18: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 18

Hæstiréttur - áframhald

• Lögin eru sett með stjórnskipulegum hætti með það í huga að fjárhagsskaði tjónþola verði fullbættur og samkvæmt þeim er farið eins með alla tjónþola, sem eins háttar til um að þessu leyti.

Page 19: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 19

Hvað stöndum við í dag, hvað segir þessi dómur okkur um gildandi rétt

• Hvaða greiðslur af félagslegum toga frá almannatryggingum geta komið til frádráttar skaðabótakröfu?

Page 20: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 20

Hvaða greiðslur af félagslegum toga frá almannatryggingum geta komið til frádráttar

skaðabótakröfu?

• Lög nr. 117/1993 um almannatryggingar– 10, 12, 14. og 17. gr.,örorkulífeyrir, barnalífeyrir,

tekjutrygging og tekjutryggingarauki– 28-29. gr., dagpeningar, örorkubætur/örorkulífeyrir

• Lög nr. 118/1993 um félagslega aðstoð– t.d. 8., 9., 10. og 11. gr., endurhæfingarlífeyrir,

heimilisuppbót, uppbót á lífeyri, bensínstyrkur• Ekki tæmandi upptalning

Page 21: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 21

Félagslegar greiðslur frá almannatryggingum

• Eftirfarandi félagslegar greiðslur eru ekki tekjutengdar:– Slysaörorkulífeyrir– Slysaörorkubætur– Barnalífeyrir– Bensínstyrkur

Page 22: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 22

Félagslegar greiðslur frá almannatryggingum

• Eftirfarandi félagslegar greiðslur eru tekjutengdar:– Slysadagpeningar– Tekjutrygging og tekjutryggingarauki– Endurhæfingarlífeyrir– Heimilisuppbót– Uppbót á lífeyri

• Í dag eru áhrif tekna á bótarétt hins slasaða frá almannatryggingum minni en var 9. júlí 2000

Page 23: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 23

Hafa lög nr. 37/1999 leitt til lakari bótaréttar tjónþola í alvarlegum vinnuslysum?

• Er þetta praktísk spurning?• Lægri örorka en 50% veitir t.d. ekki rétt til

slysaörorkulífeyris skv. almannatryggingalögum• Sambærilegur réttur hjá lífeyrissjóðum er

miðaður við 40% (Lífeyrissjóður sjómanna) eða 50%.

• Í 17 af 191 vinnuslysamálum sem ég afgreiddi á tímabilinu 1999 til 2003, var varanleg örorka metin 50% eða hærri.

Page 24: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 24

Hafa lög nr. 37/1999 leitt til lakari bótaréttar tjónþola í alvarlegum vinnuslysum?

• Hvert var upphaflega markmið skaðabótalaga? – Bæta stöðu þeirra sem verst slösuðust.

• Var ætlunin að víkja frá þessu markmiði með 1999 breytingunni?– Varla.

• Var það engu að síður gert?

Page 25: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 25

Hafa lög nr. 37/1999 leitt til lakari bótaréttar tjónþola í alvarlegum vinnuslysum?

• Breytingin frá 1999 felur í vissum mæli í sér “gamla kerfið”, þ.e. upp að vissu marki er verið að færa mál í þann farveg sem þau voru í fyrir lögfestingu skaðabótalaga 1993.– Frádráttur eingreiðsluverðmætis greiðslna frá

almannatryggingum• H 1997:2312

Page 26: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 26

Hafa lög nr. 37/1999 leitt til lakari bótaréttar tjónþola í alvarlegum vinnuslysum?

• Breytingin 1999 veldur því að uppgjör alvarlegustu slysamálanna verða flóknari og tryggingastærðfræðingar gegna aftur mikilvægu hlutverki

• Aukin krafa verður gerð til þekkingar lögmanna á bótaréttinum í heild sinni, ekki dugar lengur að þekkja skaðabótaréttinn í þrengri skilningi þess orðs – Þekking á bótarétti frá almannatryggingum og

lífeyrissjóðum verður því nauðsynleg þeim lögmönnum sem ætla að fást við þessi mál

Page 27: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 27

Hafa lög nr. 37/1999 leitt til lakari bótaréttar tjónþola í alvarlegum vinnuslysum?

• Fyrir tjónþola í máli nr. 520/2002 er svarið já• Er svarið já fyrir alla hina líka?

Page 28: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 28

Er svarið já fyrir alla hina líka?-áframhald

• Ég skoðaði nokkra tjónþola útfrá eftirfarandi forsendum:– Slysdagur var í öllum tilvikum sá sami og í máli nr. 520/2002,

svo og stöðugleikatímapunktur og metnar afleiðingar, þ.e. 70% varanleg örorka

– Ég gerði ráð fyrir bótarétti úr slysatryggingu launþega kr. 3.602.880,00

– Ég gerði ráð fyrir að tjónþoli nýtti 30% metna vinnugetu sína – Ég reiknaði bótarétt tjónþola á aldrinum 20, 30, 40, 50 og 60

ára, bæði karla og kvenna, annarsvegar skv. 1996 útgáfu skaðabótalaga og hinsvegar skv. 1999 útgáfunni

– Ég gerði ráð fyrir að tjónþoli ætti aðeins rétt til greiðslna frá almannatryggingum en ekki lífeyrissjóði

Page 29: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 29

Ég skoðaði nokkra tjónþola útfrá eftirfarandi forsendum - áframhald

– Ég gerði ráð fyrir bótarétti frá stöðugleikatímapunkti þ.e. 9. júlí 2000 til 67 ára aldurs tjónþola

– Útreikningur miðar við 4,05% ársvexti, þ.e. 4,5% fyrir fjármagntekjuskatt, og vaxtavexti.

– Lífslíkur fara eftir reynslu áranna 1996 – 2000. Lífslíkur kk. og kvk. eru ekki þær sömu.

– Ég notaði þrennskonar tekjuviðmiðun:1. Þá sömu og í máli nr. 520/2002

2. Árstekjur kr. 3.180.000,00

3. Árstekjur kr. 4.770.000,00

Page 30: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 30

Samanburður bóta til tjónþola úr hendi hins skaðabótaskylda samkvæmt skaðabótalögum 1996 og

1999. Greiðslur frá almannatryggingum.Tekjuviðmiðun kr. 1.780.800,00

Aldur tjónþola Kyn. 1996 1999

20 kk. 8.862.720,00

8.072.946,00

30 kk. 8.239.440,00 3.394.452,00

40 kk. 6.992.880,00

1.994.494,00

50 kk. 5.123.040,00

598.266,00

60 kk. 1.383.360,00 0,00

Page 31: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 31

Samanburður bóta til tjónþola úr hendi hins skaðabótaskylda samkvæmt skaðabótalögum 1996 og

1999. Greiðslur frá almannatryggingum. Tekjuviðmiðun kr. 1.780.800,00

Aldur tjónþola Kyn. 1996 1999

20 kvk. 8.862.720,00

7.966.123,00

30 kvk. 8.239.440,00 3.294.017,00

40 kvk. 6.992.880,00

1.897.394,00

50 kvk. 5.123.040,00

514.570,00

60 kvk. 1.383.360,00 0,00

Page 32: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 32

Samanburður bóta til tjónþola úr hendi hins skaðabótaskylda samkvæmt skaðabótalögum 1996 og

1999. Greiðslur frá almannatryggingum. Tekjuviðmiðun kr. 3.180.000,00

Aldur tjónþola Kyn. 1996 1999

20 kk. 18.657.120,00 28.936.767,00

30 kk. 17.544.120,00 19.437.605,00

40 kk. 15.318.120,00 15.255.162,00

50 kk. 11.979.120,00 10.327.206,00

60 kk. 5.301.520,00 5.209.752,00

Page 33: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 33

Samanburður bóta til tjónþola úr hendi hins skaðabótaskylda samkvæmt skaðabótalögum 1996 og

1999. Greiðslur frá almannatryggingum. Tekjuviðmiðun kr. 3.180.000,00

Aldur tjónþola Kyn. 1996 1999

20 kvk. 18.657.120,00 28.875.445,00

30 kvk. 17.544.120,00 19.379.950,00

40 kvk. 15.318.120,00 15.199.423,00

50 kvk. 11.979.120,00 10.279.161,00

60 kvk. 5.301.520,00 5.191.460,00

Page 34: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 34

Samanburður bóta til tjónþola úr hendi hins skaðabótaskylda samkvæmt skaðabótalögum 1996 og

1999. Greiðslur frá almannatryggingum. Tekjuviðmiðun kr. 4.770.000,00

Aldur tjónþola Kyn. 1996 1999

20 kk. 29.787.120,00 50.589.986,00

30 kk. 28.117.620,00 35.814.689,00

40 kk. 24.778.862,00 28.765.602,00

50 kk. 19.770.120,00 20.252.456,00

60 kk. 9.753.120,00 10.962.011,00

Page 35: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 35

Samanburður bóta til tjónþola úr hendi hins skaðabótaskylda samkvæmt skaðabótalögum 1996 og

1999. Greiðslur frá almannatryggingum. Tekjuviðmiðun kr. 4.770.000,00

Aldur tjónþola Kyn. 1996 1999

20 kvk. 29.787.120,00 50.557.610,00

30 kvk. 28.117.620,00 35.783.649,00

40 kvk. 24.778.862,00 28.736.173,00

50 kvk. 19.770.120,00 20.227.089,00

60 kvk. 9.753.120,00 10.949.353,00

Page 36: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 36

Er svarið já fyrir alla hina líka?-áframhald

• Hefur það e-r grundvallaráhrif ef tjónþoli á bæði rétt á bótum frá almannatryggingum og lífeyrissjóði?

• Reiknað fyrir kk. tjónþola á aldrinum 20, 40 og 60 ára.

• Gengið útfrá því að mánaðargreiðslur frá lífeyrissjóði séu kr. 25.000 til þess 20 ára, 75.000 til þess 40 ára og kr. 100.000 til þess 60 ára.

• Að öðru leyti gilda sömu forsendur og að framan

Page 37: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 37

Samanburður bóta til tjónþola úr hendi hins skaðabótaskylda samkvæmt skaðabótalögum 1996 og 1999. Greiðslur frá

almannatryggingum og kr. 25.000,00 pr. mán frá lífeyrissjóði. Tjónþoli 20 ára

Tekju-viðmiðun

Kyn. 1996 1999

1.780.800,00Sjá glæru nr. 30

kk. 8.862.720,00 8.331.848,00

3.180.000,00Sjá glæru nr. 32

kk. 18.657.120,00 29.070,175,00

4.770.000,00Sjá glæru nr. 34

kk. 29.787.120,00 48.109.153,00

Page 38: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 38

Samanburður bóta til tjónþola úr hendi hins skaðabótaskylda samkvæmt skaðabótalögum 1996 og 1999. Greiðslur frá

almannatryggingum og kr. 75.000,00 pr. mán frá lífeyrissjóði. Tjónþoli 40 ára

Tekju-viðmiðun

Kyn. 1996 1999

1.780.800,00Sjá glæru nr. 30

kk. 6.992.880,00 1.449.584,00

3.180.000,00Sjá glæru nr. 32

kk. 15.318.120,00 9.087.462,00

4.770.000,00Sjá glæru nr. 34

kk. 24.778.862,00 23.123.078,00

Page 39: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 39

Samanburður bóta til tjónþola úr hendi hins skaðabótaskylda samkvæmt skaðabótalögum 1996 og 1999. Greiðslur frá

almannatryggingum og kr. 100.000,00 pr. mán frá lífeyrissjóði. Tjónþoli 60 ára

Tekju-viðmiðun

Kyn. 1996 1999

1.780.800,00Sjá glæru nr. 30

kk. 1.383.360,00 0,00

3.180.000,00Sjá glæru nr. 32

kk. 5.301.520,00 3.382.352,00

4.770.000,00Sjá glæru nr. 34

kk. 9.753.120,00 8.481.005,00

Page 40: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 40

Niðurstaða

• Dómur Hæstaréttar gaf okkur svar við ákveðnum grundvallarspurningum– Eingreiðsluverðmæti ákveðinna greiðslna af félagslegum toga

frá almannatryggingum kemur til frádráttar skaðabótum– Réttur til greiðslna frá almannatryggingum miðast við

stöðugleikatímapunkt• Hann svarar því hinsvegar ekki með endanlegum hætti

hverjar greiðslur frá almannatryggingum komi til frádráttar og hverjar ekki

• Breyting með lögum nr. 37/1999 hefur t.d. leitt til lakari bótaréttar tjónþola á miðjum aldri með lágar tekjur

• Breytingin hefur hinsvegar leitt til betri bótaréttar sumra tjónþola t.d. yngri tjónþola með meðal- eða hærri tekjur

Page 41: Dr. Guðmundur Sigurðsson Er breytinga þörf? Björn L. Bergsson hrl

10.10.2003 41

Er breytinga þörf?

• Spurningin á vissulega rétt á sér þó svarið blasi e.t.v. ekki við