veidislod 5. tbl 2012

110
tímarit um sportveiði og tengt efni VEIÐISLÓÐ 5/2012

Upload: voetn-og-veidi

Post on 23-Mar-2016

292 views

Category:

Documents


20 download

DESCRIPTION

Hér gefur að líta ellefta tölublað Veiðislóðar, það fimmtaá þessu ári. Segja má að það sé komin ákveðin festa í þessa útgáfu, við rákum okkur á margvísleg hurðarhorn lengi vel, en nú kemur okkur fátt á óvart lengur.

TRANSCRIPT

Page 1: Veidislod 5. tbl 2012

tímarit um sportveiði og tengt efniVEIÐISLÓÐ

5/2012

Page 2: Veidislod 5. tbl 2012
Page 3: Veidislod 5. tbl 2012
Page 4: Veidislod 5. tbl 2012

LÉTTÖL

Í desember máttu dekra við þig...

Page 5: Veidislod 5. tbl 2012

8 Stiklað á stóru

Farið yfir það helsta sem gerðist síðustu vikur í máli og myndum.

16 Viðtal Linda Björk Hrafnkelsd.

Við fundum þessa hressu veiðikonu mokandi upp urriðum í Mývatnssveitinni s.l. sumar.

26 Veiðistaðurinn Arnarvatnsá/Helluvaðsá

Jón Eyfjörð kennir okkur á þessu litlu perlu.

34 Fluguboxið – Cyrillio Yellow Grub

Björn J. Blöndal gerði þessa flugu ódauðlega, en samt þekkja hana fáir.

38 Fluguboxið Hnýtingark. Hrygnunar

Sigurvegarar keppninar segja frá vinningsflugunum, Drápu grænni, Ásinum og Lóu hvítri.

42 Skotveiði – Hreindýr

Harpa Hlín Þórðardóttir skaut sitt fyrsta hreindýr á Grænlandi s.l. sumar, risavaxinn tarf.

52 Veitt erlendis Vatnakarpar

Eysteinn Orri Gunnarsson segir okkur frá vatnakarpa-veiðum á flugu í Kolóradó.

56 Eitt og annað Taumur snertur!

Okkur hefur borist til eyrna að til séu veiðimenn sem láti duga að snerta taum til að telja lax skráningar-hæfan....

58 Veiðisagan Úr ýmsum áttum

Veiðisagan núna er meira eins og smásagnasafn úr ýmsum áttum. Skrýtnar og skemmitlegar uppákomur.

62 Ljósmyndun

Pétri Alan Guðmundssyni er greinilega fleira til lista lagt en að stunda kaupmennsku í Melabúðinni...

84 Lífríkið

Guðni Guðbergsson fékkst til að svara ýmsum spurn-ingum um laxfiska, spurn-ingum sem vakna oft en stundum vantar svörin við.

88 Einu sinni var Draumreisa ABU

Árið 1969 bauð sænska veiðivörufyrirtækið ABU verðlaunahöfum sínum það árið í „Drömresa“ til Íslands.

90 Villibráðareldhúsið Vínin með villibráðinni

Við fengum vínspesíalista tveggja af stærstu víninn-flytjendunum, RJC og Bakkus, til að ráðleggja bestu vínin með villibráð um hátíðirnar.

94 Veiðihundar Jólin að koma

Það gengur ekki að besti vinur mannsins, hundurinn, fari í jólaköttinn....

96 Bækur Vötn og Veiði 2012

Það eru fáar veiðibækur þessi jól. Ein er þó ævinlega á sínum stað, árbókin Vötn og Veiði. Hér birtum við kafla úr bókinni þar sem Einar Falur segir frá bleikju-veiðiævintýrum í Vatnsdal.

102 Græjur og fleira

Hér þarf ekki að hafa mörg orð, á þessum síðum er hafsjór af frásögnum af nýjum og spennandi græjum...

Forsíðuljósmynd:

Heimir Óskarsson

efnið

frá ritstjórnGleðilegt haust og vetur og jól. Við horfum nú á bak athyglisverðs laxveiðisumars. Hugsanlega það slakasta

á heildina litið sem um getur. Ýmsir kepptust við að benda á að fyrrum hefðu

verið svo og svo mörg lakari ár eða svipuð, en þeir hinir sömu tóku ekki með í

reikninginn að það er margt breytt síðan þá sem skekkti myndina.

Í stað þess að velta okkur hér upp úr því sem betur hefði mátt fara á liðinni vertíð, skulum við hugsa með hlýju til þeirrar næstu sem verður án efa miklu betri. En þrátt fyrir litlar laxgöngur, þá áttu eigi að síður fjölmargir frábærar stundir á bökkum vatnanna sem endranær.

Í Veiðislóð nú er margvíslegt efni að venju, bæði skot- og stangaveiði. Vonum við að efnið falli sem flestum í geð og að allir nær og fjær eigi góðar og gleðilegar hátíðir.

Guðmundur Guðjónsson, ritstjóriHeimir Óskarsson, útlit og umbrot

Jón Eyfjörð Friðriksson, greinaskrif.

LÉTTÖL

Í desember máttu dekra við þig...

5

Page 6: Veidislod 5. tbl 2012
Page 7: Veidislod 5. tbl 2012
Page 8: Veidislod 5. tbl 2012

8 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

Að vanda látum við myndirnar tala sínu

máli hér í Stiklað á stóru og af þeim mætti

e.t.v. ráða að allt hefði verið að gerast. En svo var ekki.

Laxveiðivertíðin var sú slakasta sem um getur í raun þó

að tölur segi að einhver fyrri ár hafi verið slakari. Þar

var ekki gert ráð fyrir hinum svokölluðu hafbeitarám

sem hafa skekkt svoleiðis samanburð, sömuleiðis

fjölgun stanga og umtalsverðri endurveiði á slepptum

löxum. Þannig að þegar að er gáð, þá er það skoðun

okkar hér á Veiðislóð allavega, að 2012 hafi verið lakasta

laxveiðivertíð sem um getur.

stiklað á stóruLélegt laxasumar að baki en vonandi er framtíðin björt

Page 9: Veidislod 5. tbl 2012

9

Jóhann Rafnsson með einn nálægt tuttugu pundunum úr Víðidalsá..

Page 10: Veidislod 5. tbl 2012

Lengst af var þetta mikið harðlífi og

mikið um sögur af lélegum hollum

á dýrasta og besta tímanum í bestu

ánum. Vissulega voru margar lýsing-

arnar agalegar, og ekki hjálpaði að

hefðbundinn þurrkatími yfir hásum-

arið spilaði sína árlegu rullu. Öll kurl

eru ekki enn komin til grafar, en ljóst

er að það var eins árs laxinn sem brást

illilega, en hvers vegna liggur ekki

fyrir. Hvort að það var illt viðurværi á

hafbeitarslóðum, eða að kuldakastið á

göngutíma seiðanna í fyrra hafi slegið

niður árganginn, enginn veit enn og

kannski aldrei. Sumir vildu kenna

makríl um, að hann væri að éta seiðin

út á gaddinn. Aðrir bentu á að makríll-

inn hefur verið hér í iðandi kös í all

nokkur ár, en síðustu árin hafa verið

meðal þeim allra bestu.

Aflabresturinn hleypti af stað víð-

tækum viðræðum leigutaka og

veiðiréttareigenda um tilslakanir á

samningsbundnum krónutöluhækk-

unum, enda, eins og Bjarni Júlíusson

formaður SVFR orðaði það, þá hefur

orðið alger forsendubrestur fyrir sölu

á veiðileyfum á hækkandi verðlagi

fyrir komandi sumar(og sumur).

Ekki getum við þó greint frá neinum

niðurstöðum hér, en gerum Það

eftir föngum á fréttavef okkar, www.

votnogveidi.is

En það er sem betur fer fleira fiskur

en lax. Silungsveiði í vötnum var yfir

höfuð góð og sjóbirtingsveiðin hafði

verið lífleg í september þegar þetta var

ritað. Þá tók sjóbleikjuveiðin mikinn

og góðan kipp upp á við á nýliðnu

sumri. Kannski að hún sé að koma

myndarlega til baka!

stiklað á stóru

Örn Óskarsson með risalax úr Breiðdalsá.

Ólafur Guðmundsson með fallegan birting úr Tungufljóti.

Ásta Ólafsdóttir með fallega hrygnu úr Vatnsdalsá. Mynd Nils Folmer Jörgensen.

Orri Stefánsson í „óveðrinu“ á bökkum Vatnsdalsár s.l. haust.

Rosa bolti úr Þverá í Fljótshlíð.10 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

Page 11: Veidislod 5. tbl 2012

Hinn þýski Guido með stórlax úr Húseyjarkvísl.

Mynd Stjáni Ben. María Anna Clausen með rosalegan bleikjuhæng úr

Vatnsdalnum. Mynd Ólafur Vigfússon.

Mjöll Daníelsdóttir með stóra hrygnu úr Laxá í Aðaldal.

Svona var umhorfs víða við árnar í september, þetta er frá Álku í Vatnsdal. Mynd Orri Stefánsson.

Thelma Rut Jónsdóttir veiddi Maríulaxinn sinn í Grímsá. Mynd Jón Þór.

Ólafur Guðmundsson með fallegan birting úr Tungufljóti.

Tröllslegur birtingur, veiddur í Skóghyl í Geirlandsá. Mynd frá www.svfk.is

Page 12: Veidislod 5. tbl 2012

stiklað á stóru

12 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

Arnar Jón Agnarsson með stórlax, 100 cm, úr Fluguhyl í Laxá á Ásum. Mynd Theodór Erlingsson.

Róbert Haraldsson með stórlax úr Hofsá.

Kári Ársælsson með flotta hrygnu úr Svartabakka

í Straumfjarðará. Mynd gg.

Theodór Erlingsson með stórlax úr Langhyl í Laxá á Ásum. Mynd Arnar Jón Agnarsson.

Þórir Grétar með flottan hæng úr Stóru Laxá.

Asger Olesen hinn danski með fallegan Þingeyskan urriða. Mynd Jón Eyfjörð.

Haustmynd úr Vatnsdal. Ótrúlegt en satt, þetta er við Hnausastreng. Mynd Orri Stefánsson.

Page 13: Veidislod 5. tbl 2012

Guideline er leiðandi veiðivöruframleiðandi í Skandinavíu. Hjá Guideline vinna bestu veiðimenn Norðurlanda við hönnun á stöngum og línum. Við hjá Veiðiflugum erum með mikla veiðireynslu og okkar sérgrein eru línur og stangir. Það er ekki sama hvaða lína fer á stöngina þína, þar þarf að gæta mikillar nákvæmni svo þú fáir sem mest út úr veiðinni og köstunum. Vissir þú að línurnar frá Guideline eru hannaðar af bestu veiðimönnum Skandinavíu? Bullet skotlínan er hönnuð til að kasta langt með einu kasti og það mun koma þér verulega á óvart hvað hún flýgur mjúklega. 4Cast er einstök samsetning af skotlínu og langri belglínu og hefur 11 metra haus sem leggst mjúklega á vatnsflötinn. 4Cast línan var kosin besta línan hjá Trout&Salmon og er hrein bylting í hönnun á línum.

Í tvíhendulínum erum við með sérstöðu, við skerum og vigtum línuna fyrir stöngina þína svo þú náir því besta út úr köstunum. Það er mikilvægt að fá rétta ráðgjöf varðandi hvað hentar í línum og við fullyrðum að sú ráðgjöf er framúrskarandi hjá okkur í veiðiflugum. Vissir þú að ábyrgðin á stöngunum frá Guideline er fullkomin. Við hjá Veiðiflugum erum sjálf veiði-menn og vitum hvað það er slæmt að þurfa að bíða eftir stangarpörtum í marga mánuði eða ár. Ábyrgðin hjá okkur er einfaldlega 100% sem felst í því að við eigum alltaf alla stangar-toppa á lager í búðinni hjá okkur og afgreiðum þá samdægurs ef þú lendir í óhappi með Guideline stöngina þína. Komdu í Veiðiflugur og fáðu þjónustu og ráðleggingar frá þeim sem hafa reynsluna.Það styttir leiðina að góðum árangri.

Veiðikveðja!

111

Ó T V Í R Æ T T M E R K I U M G Æ Ð I

Page 14: Veidislod 5. tbl 2012

Jólabækur allra veiðimanna

Fást í flestum bókabúðum

NÝKOMIN ÚT

NÝKOMIN ÚT

Page 15: Veidislod 5. tbl 2012

Jólabækur allra veiðimanna

Fást í flestum bókabúðum

NÝKOMIN ÚT

NÝKOMIN ÚT

Page 16: Veidislod 5. tbl 2012

16 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

Ég fer til að veiða fisk en ekki til að standa í veseni og bulliTveir þriðju hlutar okkar í GHJ útgáfu sem gefur út þetta

vefrit og vefinn votnogveidi.is voru staddir á bökkum Laxár í

Mývatnssveit í ágúst síðast liðnum. Veiði var einstaklega lífleg

og í veiðihúsinu fyrsta kvöldið var enn fremur mjög líflegt

og þar hittum við einstaklega skemmtilegan veiðimann, eða

öllu heldur veiðikonu (konur eru líka menn). Sú heitir Linda

Björk Hrafnkelsdóttir og deildi hún þar stöng með norskum

veiðimanni. Þeim hafði gengið með afbrigðum vel og voru

lýsingar hennar á atburðum dagsins litríkar og skemmtilegar.

Sama má segja um flugurnar hennar sem við fengum

að skoða og hún hnýtir sjálf. Áður en við vissum

var þetta orðið að viðtali í Veiðislóð.

viðtalLinda Björk Hrafnkelsdóttir

Page 17: Veidislod 5. tbl 2012

17

Slakað á við Hafralónsá.

Ljósmynd: Kay Ingvar Ertzeid

Page 18: Veidislod 5. tbl 2012

18 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

í gljúfrið var alltaf hætt að veiða þegar

komið var nóg í soðið og ég fylgi þessu

enn í dag. Ég fer ekki út til að moka upp

fiski og fylla kistuna. Ég tek eitthvað,

en aldrei svo mikið að ég geti ekki nýtt

það og það er með því ömurlegra sem

ég lendi í, að gleyma fiski í kistunni og

finna hann ónýtan þar um vorið. Þá

eiga menn ekki að vera að hirða þessar

hrygnur þegar hallar sumri og haustar

og þá er ég ekki aðeins að tala um

laxinn, silunginn líka,“ segir Linda.

En hvað veiddi hún á þegar hún var með ömmu sinni í gljúfrinu?„Það voru bara þessir skítahaugsormar

sem maður fann heima við bæinn og

stangirnar voru þessar gömlu ABU

stangir með lokuðu hjólunum. En þetta

voru engar rosalegar veiðar, það er ekki

það mikill fiskur í fljótinu á þessum

slóðum. Þetta var nýtt afar hóflega með

Það er kannski ekki svo skrýtið að Linda

hafi heillast af stangaveiði því hún er

alin upp á bökkum Tungufljóts í Vestur

Skaftafellssýslu sem er á sinn dyntótta

og dularfulla hátt ein magnaðasta veiðiá

landsins. Ekki voru þó æskustöðvarnar

neðarlega í ríki sjóbirtingsins sem

fljótið er þekkt fyrir, heldur „á hjara

veraldar, Snæbýli“, eins og Linda orðar

það. Sá hluti árinnar sem helst liggur

að Snæbýli er að hluta hið svokallaða

efra gljúfur, en tvö gljúfur, hrikaleg í

meira lagi, eru ofan við Bjarnarfoss sem

telst vera efsti veiðistaður sjógöngu-

fisks í Fljótinu þó svo að margan gruni

að fiskar geti farið þar upp í ákveðinni

vatnshæð. Staðbundinn urriði er í ánni

ofan við Bjarnarfoss og þann fisk sótti

fjölskyldan í efra gljúfrið í soðið þegar

svo bar undir. Langafi Lindu bjó á Snæ-

býli, en byggð lagðist þar af um tíma

eftir Kötlugosið 1918. Búskapur hófst þar

síðan að nýju og þá var það sem móðir

Lindu kynntist fóstra hennar sem bjó á

Snæbýli. Hófu þau búskap og þar með

tengdist fjölskyldan Snæbýli öðru sinni.

„Ég var bara lítil stelpa þegar ég fór

að fara með ömmu minni í gljúfrið.

Hún rataði um einstigin þar og það

fer þangað enginn nema með fylgd.

Amma var mikill veiðigarpur og hún

og afi veiddu mikið saman. Hún var

meiri aflakló en afi og maður sá á þeim

þegar þau komu saman úr veiði þegar

hún hafði veitt meira en hann, sem var

oftast, því hann var þá þungur á brún,

en hún sagði hógvær, „við veiddum vel“.

Amma var orðin 74 ára þegar við fórum

síðast saman í gljúfrið, það fór allur

dagurinn í það í það skiptið og ég skil í

dag það sem ég kannski skyldie kki þá,

hversu hægt hún fór yfir, því árin taka

á. Amma kenndi mér það viðhorf í veiði

að veiða bara í soðið. Þegar við fórum

viðtalLinda Björk Hrafnkelsdóttir

Page 19: Veidislod 5. tbl 2012

19

þessum hætti til heimilisins. Við vissum

auðvitað af sjóbirtingnum og laxinum

neðar í fljótinu og það var alveg þekkt í

þá daga eins og nú fyrir stóra fiska. Við

fórum þangað nokkrum sinnum, ég og

bræður mínir og veiddum vel.“

Þegar Linda var yngri, stofnaði hún fjöl-

skyldu og bjó í Vestmannaeyjum. Lítið

fór fyrir veiðibakteríunni á meðan á því

öllu saman stóð, en þegar börnin voru

orðin stálpuð og farin að tínast í burtu,

gerðist það, árið 1997, að vinkona hennar

sem bjó á Akureyri, bauð henni að veiða

með sér í Laxá í Suður Þingeyjarsýslu,

nánar tiltekið á hinu fræga urriðasvæði

í Mývatnssveit. „Ég kunni nákvæmlega

ekkert á fluguveiði, hafði aldrei staðið

í því, þannig að ég fór í Veiðihornið og

bað um að vera gerð þar út með ung-

lingagræjum, sem að ég hélt að væri Skoðað í Gústa í Hafralónsá, einn albesta veiðistað árinnar.

Ljósmynd: Kay Ingvar Ertzeid

Flugur Lindu í umræðunni í veiðihusinu.

Ljósmynd:

Heimir Óskarsson

Nokkrar af flugum Lindu. Ljósmynd: Heimir Óskarsson

Page 20: Veidislod 5. tbl 2012

20 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

Segðu okkur frá því...„Ég hef afar gaman að því að veiða á

straumflugur þegar halla tekur degi, sér-

staklega í Geldingaey og Arnarvatni. Ég

var þarna að veiða með Norðmanni og

við lentum í hreint ótrúlegri stemningu

á Hagatá og þar í kring. Settum við-

stöðulaust í hvern fiskinn af öðrum. Það

var allt í keng allan tímann og ég held að

við höfum landað einum þrjátíu fiskum

auk þess að missa annað eins. Þetta voru

allt vænir fiskar, 47 til 65 cm. Þessir fiskar

komu á Black og Grey Ghost, Rektorinn

og síðan þá ljótustu flugu sem ég held að

ég hafi augum litið.“

Hvaða fluga er það?„Það er nú frumsamin fluga, ef flugu

skyldi kalla. Ég skýrði hana Peanuts.

Ég tengi saman tvo öngla með girnis-

spotta og úr verður löng fluga, alveg

á lengd við stóran Rektor. Þetta er líkt

Nobbler, eða öllu heldur tveimur Nob-

blerum og það má eiginlega segja að

þessi fluga, þó hún sé hönnuð af mér,

að hún sé frumsamin, stæld og stolin. Í

fyrra var ég með gula útgáfu, en núna

var ég komin með hvíta með fjólubláu

ívafi. Báðar hafa veitt gríðarlega vel, líka

í Veiðivötnum þar sem ég veiði líka á

hverju sumri.“

Er þá straumfluguveiðin þitt uppáhald?„Mér finnst hún mjög skemmtileg, sér-

staklega við vissar aðstæður. Ekki hvað

síst vegna þess að fiskurinn fer af stað

og eltist við straumflugurnar. Það er

ekki verið að moka upp í hann einhverri

platfæðu eins og í púpuveiðinni. En

mest veiði ég þó með andstreymisað-

ferðinni og finnst það skemmtileg veiði.

Þurrfluguveiði er ég aðeins að byrja á,

það er það sama með þann veiðiskap

og straumfluguveiðina að fiskurinn fer

hæfilegt fyrir einhvern eins og mig sem

kunni ekki neitt. Á þessum tíma voru að

koma hingað Cortlandstangirnar og ég

festi kaup á einni slíkri, 9 feta fyrir línu

7. Þá stöng er ég að nota enn þann dag í

dag, frábær stöng. Ég sagði þeim í búð-

inni síðan hvert ég væri að fara og þeir

röðuðu þá einhverjum flugum í box fyrir

mig. Því næst fór ég með frænku minni

í grunnkennslu í köstum og veiðiskap

hjá Gústa Morthens á Selfossi. Ég trúði

varla mínum eigin augum þegar ég

kom síðan í Mývatnssveitina, þvílík

fegurð þar og áin ótrúleg. Við vorum svo

heppnar að það var algert toppár í Laxá

á þessum tíma og við veiddum urriða

alveg vinstri hægri. Aðfarirnar voru samt

ekki beysnari en svo að vanur veiði-

kappi sem þarna var, gaf sér tíma til að

sýna okkur veiðistaði og leiðrétta tækni.

Alveg frábært að einhver skuli nenna

að eyða tíma sínum með þessum hætti

og við lærðum mikið af þessum manni,

sem ég veit ekki einu sinni hvað heitir

og hef ekki séð síðan. Hann hefur eitt-

hvað vorkennt okkur stelpunum þó svo

að við værum að setja í fiska. En þarna

varð ég gersamlega heilluð af flugu-

veiði og hef ekki veitt á annað síðan.

Það er svo mikið frelsi í því að vera bara

með eina stöng og eitt flugubox og bara

labba af stað. Ekkert ormavesen, engar

sökkur. Silungarnir eru sterkir, fullir af

próteinkrafti hvort sem þeir eru litlir eða

stórir. Síðan hefur silungur líka verið í

uppáhaldi og Laxá í Mývatnssveit líka

og þangað fór ég á hverju ári í mörg ár,

eða þangað til að ég gaf svæðinu pásu

þegar mér fannst verið að vera að hækka

of mikið fyrir minn smekk allra síðustu

árin. Þetta er ekkert smá ferðalag og það

má bæta miklum eldsneytiskostnaði

við veiðileyfin þegar þannig er. En nú í

sumar fór ég þó aftur og tók upp þráðinn

og það var ógleymanlegur veiðitúr.“

viðtalLinda Björk Hrafnkelsdóttir

Page 21: Veidislod 5. tbl 2012

21

og sækir fluguna. Ég er að fá einn og

einn á þurrflugu, byrjaði að nota mikið

Húsfluguna vegna þess að ég sé hana

svo vel í vatninu með gula toppinn, en

síðan er Black Gnat orðið mikið upp-

áhald hjá mér. Þetta er virkilega spenn-

andi veiði og þvílík hamingja þegar

maður er að ná fiski.“

En hvað með bleikju og lax?„Ég er ekki mikið í laxveiði, aðeins

þó. Við förum alltaf fjórar saman í

Rangárnar, ég og Sigurbjörg Kristins-

dóttir úr Vestmannaeyjum, Guðbjörg

Guðjónsdóttir úr Reykjavík og Anna

Kristín Ingvarsdóttir frá Selfossi. Oftast

veljum við frekar Eystri Rangá, hún

er dyntótt og erfiðari. Ég gleymi ekki

fyrsta skiptinu okkar í Eystri Rangá,

áin var kolmórauð og ég velti fyrir mér

hvernig fólki gæti dottið til hugar að

veiða í svona drullupolli. Áin verður

stundum skoluð, við vissum það seinna

og gáfum ánni sjens og höfum ekki séð

eftir því. Höfum oft veitt vel og þetta er

skemmtilegur hópur.

En silungurinn er meira fyrir mig og

fyrir utan urriðann hef ég aðeins lagt

mig eftir bleikju. Ég hef til dæmis reynt

fyrir mér í Brúará, farið ábyggilega

tuttugu sinnum í ána og aðeins fengið

fimm bleikjur og allar alveg óvart án

þess að ég vissi hvað hefði valdið því

að ég setti í fisk. Gruna helsta ð ég hafi

aðeins veitt í ánni bleikjur í sjálfsmorðs-

hugleiðingum, nú eða að ég sé að verða

svo gömul að ég hafi ekki þetta snögga

viðbragð lengur sem mér skylst á kunn-

ugum að skipti öllu máli með bleikjuna

í Brúará. Ég hef líka haft gaman að því

að veiða sjóbleikju. Veiddi hana fyrst

einhverju sinni í Blikalóni á Sléttu, fékk

þá fína veiði og seinna fór ég að veiða

bleikju að Hrauni í Fljótum, veiddi hana

Lindu finnst fátt betra en að grilla aflann á vatnsbakkanum. Ljósmynd: Úr safni Lindu

Linda búin að landa vænum urriða í Laxá í Mývatnssveit. Ljósmynd: Heimir Óskarsson

Page 22: Veidislod 5. tbl 2012

22 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

Þú nefndir áðan Veiðivötn, eru þau í uppáhaldi?„Já, ég er mjög hrifin af Veiðivötnum

og reyni að fara þangað á hverju sumri,

alla vega einu sinni, en það er svo mikil

aðsóknin þangað að það liggur við að

maður fylgist með dánarfregnum til

að sjá hvort að einhverjar smugur hafi

opnast. Hins vegar voru Veiðivötnin

vettvangur sérstakrar uppákomu á

veiðiferli mínum. Það er óhætt að segja

að ég hafi lent í ýmsum uppákomum í

veiði sem rekja má beint til þess að ég

er kona. Ég lendi eins og gengur oft

með karlmönnum í veiðihúsum og ég

verð að segja það strax áður en lengra er

haldið, að yfirleitt eru karlagreyin ein-

staklega kurteisir og almennilegir. En

það er stundum öðru vísi og á stundum

kemur það fyrir að mennvirðast vera

komnir í annars konar veiðiskap heldur

en upphaflega stóð til. Versta uppákom-

an er tengd Veiðivötnum, en þar var

mér boðið að kaupa forfallastöng innan

úr hópi sem fór saman árlega í vötnin.

Þetta er karlahópur og mjög samheld-

inn, það er keypt sameiginlega inn og

ýmsar seremóníur. Þeir vissu af þessu,

að ég hefí keypt leyfið, en enginn sagði

neitt þangað til að í vötnin var komið,

að ég fékk að heyra það að þeir myndu

ekki leyfa konu að gista undir sama þaki

og þeir. Þetta var nú heldur neyðarleg

uppákoma og óskemmtileg fyrir mig,

því ég var þarna í fullum rétti með ekki

aðeins veiðileyfi, heldur gistingu og

hlutdeild í sameiginlegum vistum, og

á sama tíma greinilega algerlega óvel-

komin í hópinn. Og mætt í Veiðivötn án

húsnæðis og matar! En þetta góða fólk,

Hermann og Bryndís og þau björguðu

mér, leyfðu mér að gista í hálfkláruðu

veiðihúsi og buðu mér að borða með

þeim. Ég heyrði utan að mér að karl-

arnir hafi fengið bakþanka og verið

þar sem hún kom inn í ósinn. Ég er nú

samt enginn sérfræðingur á sjóbleikj-

una. Annar staður þar sem ég hef fengið

sjóbleikju er í Haukadalsvatni, en því

kynntist ég með þeim hætti að ég hef

haft gaman að því að fara kannski svona

þriggja daga ferðir með Veiðikortið upp

á vasann. Mig langar alltaf til að kynn-

ast nýjum veiðistöðum og prófa eitt-

hvað nýtt. Þessar ferðir með Veiðikortið

byrjuðu í Hraunsfirðinum þar sem

var gjarnan sýnd veiði en ekki gefin. Í

framhaldinu kíkti ég á Haukadalsvatnið

og komst upp á lagið með að veiða

bleikjuna þar. Oftast sér maður hvar hún

er, annað hvort út af uppitökum, eða að

maður veit að hún leitar upp í vindinn

og er í æti þar sem upprótið safnast.

Þarna hef ég oft fengið fína veiði. Ég

er ekki að tala um einhvera mokafla,

kannski 5 til 6 fiska sem dugar mér

alveg. Ég hætti þá, enda er ég ekki að

þessu til að fylla kistuna eins og ég gat

um áðan. Mér finnst fátt skemmtilegra

eða betra en að elda fisk bara á staðnum,

beint uppúr vatninu með haus og öllu.

Grilla hann og hef með mér smjör og

salt og kaldar kartöflur.“

Með’ann á í Eystri Rangá.Ljósmynd úr safni Lindu.

Page 23: Veidislod 5. tbl 2012

V E I Ð I H O R N I Ð - S Í Ð U M Ú L A 8 - 1 0 8 R E Y K J AV Í K - S Í M I 5 6 8 8 4 1 0 - V E I D I H O R N I D. I S / / / F L U G A N . I S / / / V E I D I M A D U R I N N . I S

B A R A Þ A Ð B E S T A

Metnaður okkar er að þjónusta viðskiptavini af þekkingu og reynslu og tryggja þeim ánægjulega

og árangursríka veiðiferð.

Page 24: Veidislod 5. tbl 2012

24 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

sem heitir Bakkahylur. Þegar við kom-

um að Bakkahyl kom í ljós að hann var

algerlega stappaður af laxi og það var að

auki mikil hreyfing. Laxar á lofti um allt,

þeir voru m.a. að reyna að stökkva upp

í rörið þar sem rann frá sleppitjörninni.

Virtist augljóst að lax hefði gengið

uppúr Eystri Rangá í rigningunni. Við

vorum þarna þessar fjórar með tvær

stangir og fórum strax að velta fyrir

okkur hvernig við ættum að bera okkur

að. En það var ekkert annað en að við

bara byrjuðum og köstuðum ýmsum

flugum, stórum og smáum og reyndum

alls konar tilbrigði í línum, taumum og

drætti. Skemmst frá að segja að enginn

lax tók hjá okkur. Allt í einu var þó engu

líkara en að ég væri allt í einu komin

með töfraformúluna, rétta taumlengd,

eða rétta flugu, ég veit það ekki, en allt

í einu var ég að setja í laxa í nánast

hverju kasti. Við vorum að skiptast á

og þær settu sams konar flugu á hina

stöngina, léttann Skrögg og reyndu

að gera allt eins, en allt kom fyrir ekki.

Engin setti í lax nema ég og þetta voru

ábyggilega einar tuttugu tökur. En

þeir tóku grannt og ég missti þá flesta

fljótlega. Náði aðeins að landa tveimur

af þessum tuttugu. Það var engin leið

að sjá hvernig á því gat staðið að engin

setti í lax nema ég. Þær virtust gera allt

eins og notuðu jafnvel stöngina mína

með minni flugu og öllu, en það skipti

engu máli. Þetta var bara svona og þetta

kalla ég lygilega veiðisögu!“

að svipast um eftir mér, en þeir fréttu

aldrei hvar ég var og þekktu hvorki mig

eða bílinn minn í sjón. Leiðir sköruðust

því ekki. Ég fyrirgaf þeim þetta nú, hef

ekki áhuga á að erfa eitt eða neitt, enda

eru veiðiferðir algerlega heilagar fyrir

mér. Ég fer í þær til að veiða fisk en ekki til

að standa í veseni og bulli í veiðihúsum.

Það var fannst mér meira um svona

uppákomur hér áður fyrr, ekki svona

slæmar, en svona leiðindi sem rekja

mátti til þess að ég er kona, karlar voru

t.d. iðulega að ráðskast með svæða-

skiptingar eins og mér kæmi þær ekkert

við og þess háttar. Mér fannst þetta þó

vera að batna mikið, ár frá ári, þangað til

síðasta sumar að þessi uppákoma varð í

Veiðivötnum.“

Eina góða í lokin?Linda situr og þegir um stund og klórar

sér síðan í höfðinu. „Þetta rennur allt

saman,“ segir hún og hugsar sig um

aðeins lengur. „Og þó, ég man eftir

einni alveg lygilegri sögu sem gerðist

hjá okkur stelpunum í Eystri Rangá. Við

áttum svæði 1 um morguninn og svæði

9 á seinni vaktinni. Það rigndi einhver

reiðinnar býsn þennan dag, þannig að

þegar við áttum að fara upp á svæði

9 var áin orðin algerlega óveiðandi.

Við ákváðum því að líta á Fiská, sem er

falleg bergvatnsá sem rennur í Eystri

Rangá þarna upp frá. Neðarlega í henni

er sleppitjörn og veiðistaður þar niður af

Linda búin að landa vænum laxi. Ljósmynd úr safni Lindu.

Page 25: Veidislod 5. tbl 2012

Smelltu hér og lestu um bestu vínkaupin hverju sinni.

Mundu eftir að líka við síðuna ...

http://www.facebook.com/Bestu.vinkaupin

Bestu vínkaupinVantar þig hjálp við að finna réttu vínin

með jólamatnum og villibráðinni?

Page 26: Veidislod 5. tbl 2012

26 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

Á veiðistaðnum Myllu.. Myndir með grein: Jón Eyfjörð.

Page 27: Veidislod 5. tbl 2012

27

Frábær og full

af fiski en viðkvæmLaxá í Þingeyjarsýslu fellur fram af stalli við svokallaða

Kleif. Þar fyrir neðan kvíslast hún við Flathólma, rennur á

hraunstöllum þar neðan við og þar sem þessum hraunstöllum

sleppir, efst við Fótarhólma, byrjar Arnarvatnsá. Hún nefnist

þessu nafni, alla leið vestur að Arnarvatni en úr því vatni fellur

Helluvaðsá og svo nefnist kvíslin, uns hún fellur aftur í Laxá,

rétt neðan bæjarins Laxárbakka.

veiðistaðurinnArnarvatnsá/Helluvaðsá

Page 28: Veidislod 5. tbl 2012

28 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

Best er fyrir veiðimanninn að koma

neðan að, taka sér stöðu við lítið sker,

neðst við veiðistaðinn og láta fara lítið

fyrir sér. Alls ekki byrja að kíkja ofan í

hylinn, þess þarf ekki, þarna er alltaf

urriði. Best er að byrja að veiða nær-

svæðið, kasta við bakkana og láta þurr-

fluguna fljóta niður strauminn. Ekki

taka hana upp úr vatninu fyrr en hún

er komin niður fyrir brotið, þá er í lagi

að kasta aftur. Það er ekki nauðsynlegt

að kasta langt, betra að einbeita sér að

því að vera nákvæmur. Þennan stað er

að sjálfsögðu líka hægt að veiða með

púpu, andstreymis en gott er að hafa

í huga að sökum þess hve viðkvæmur

staðurinn er, getur verið nauðsynlegt að

leyfa honum að jafna sig eftir að búið er

að kjást við urriða þarna. Stundum rjúka

þeir líka niður úr veiðistaðnum og þá er

vænlegast að reyna að ná þeim, áður en

þeir komast í ræsið, sem þarna liggur

undir þjóðveginn. Komist silungurinn

þangað, er einsýnt um framhaldið.

Stutt er frá Steinboga, niður að næsta

veiðistað en hann er neðan við ræsið.

Reyndar má stundum rekast á urriða

í pollum á leiðinni frá Steinboganum,

þarna niðureftir.

Neðan við ræsið er ágætur veiðistaður.

Þar er lítill hryggur í miðri ánni og frekar

lygt er við norðurbakkann en þar og í

strengnum sjálfum er oftast hægt að næla

í fiska. Sé þessi staður veiddur af norður-

bakkanum er rétt að láta lítið fara fyrir

sér, staðsetja sig neðst og veiða upp með

bakkanum, mjög nálægt landinu, hvort

heldur sem er með þurrflugu eða púpu.

Hér er líka hægt að nota straumflugu en

þá er best að veiða frá suðubakkanum,

staðsetja sig alveg upp við veginn, kasta

að bakkanum að norðan og gæta þess að

koma flugunni yfir sem mest svæði.

Áin hefur notið sí meiri vinsælda nú í

seinni tíð en hún geymir sprettharða

urriða, silunga sem eftirminnilegt er að

kljást við. Oft eru þessir fiskar frekar sýnd

veiði en gefin en áin er gríðarlega við-

kvæm og það er áskorun að veiða hana.

Áin byrjar eins og fyrr segir við Fótar-

hólma og fyrsti veiðistaðurinn sem orð

er á gerandi er við Stíflubjörg. Þar kem-

ur áin í svolitlum streng, hægir á sér

og breiðir úr sér. Urriðinn getur verið á

öllu þessu svæði, niður með Fótarhólm-

anum, að stíflunni, sem er þarna um

300 metrum neðan við. Oft hefur gefist

vel að byrja alveg upp við strenginn, þar

sem hann er stríðastur,kasta alvega að

bakkanum við Fótarhólmann og veiða

alveg niður að stíflunni. Einnig er hægt

að byrja við stífluna og veiða með þurr-

flugu uppeftir. Silungurinn er ótrúlega

oft mjög nærri bakka, svo enn og aftur

er ítrekað að fara ofurvarlega.

Neðan stíflunnar er áin svo frekar

grunn og straumhörð, niður undir svo-

kallaðn Steinboga. Þó er rétt að minnast

á lítið og nett hringstreymi, skammt

ofan bogans. Þar er stundum hægt að

næla í ágæta fiska.

Næstur er Steinboginn, kyngimagnaður

veiðistaður og að öðrum stöðum í ánni

ólöstuðum, líklega sá gjöfulasti. Þarna

fellur lítill foss niður smá stall, ofan í hyl

og vatn streymir einnig undan hraun-

inu og hellar eru talsvert undir hraunið.

Allt árið um kring má sjá þarna stóra

urriða á sveimi og oft á tíðum mikið

af þeim. Stundum standa einungis

sporðar undan hrauninu en á góðum

degi dreifir silungurinn sér niður allan

staðinn, alveg niður undir lítið brot sem

þarna er.

veiðistaðurinnArnarvatnsá/Helluvaðsá

Bleik og blá virkar ekki síður á urriða en sjóbleikju.

Page 29: Veidislod 5. tbl 2012

Nokkrir pollar eru síðan á leiðinni frá

ræsinu að næsta eiginlega veiðistað.

Sá nefnist Mylla og er neðan við

bæjarhólinn á Arnarvatni I. Þarna er

líka óhætt að eyða talsverðum tíma.

Silungurinn heldur sig oftast meðfram

hólmanum litla sem þarna er, stundum

í strengnum sjálfum en stundum við

hólmahornið neðanvert. Þá skal nefnt

að stundum er urriði á breiðunni fyrir

neðan hólinn og þess vegna er rétt að

kasta aðeins á hana.

Næst taka við lygnur og lítill straumur en

oft á tíðum má fá fiska á svæðinu neðan

við Myllu, að gömlu brúnni við Arnar-

vatn 2. Það ber að fara varlega þarna,

sérdeilis varlega og kíkja eftir þrenging-

um. Við slíkar þrengingar dýpkar gjarn-

an og þar má oft finna urriða.

Næsti staður sem vert er að nefna er

svokallaður Skotbakki. Þar beygir áin,

rennur í sveig meðfram háum bakka,

þrengist og breiðir svo úr sér aftur.

Djúpur hylur er þar sem áin er þrengst

og það er oftast urriði það. Þá getur verið

gott að kasta straumflugu alveg upp að

háa bakkanum og láta hana leka niður í

hylinn, strippa hana svo ákveðið til baka.

Einnig getur verið árangursríkt að fara

niður fyrir hylinn og veiða hann and-

streymis. Rétt er að taka með í reikning-

inn að oft er urriði meðfram austurbakk-

anum þannig að best er að byrja dálítið

neðarlega og veiða sig varlega uppmeð,

þangað til komið er að hylnum.

Skammt fyrir neðan beygir svo áin

og rennur meðfram hárri brekku, rétt

áður en hún fellur undir gömlu brúna

við Arnarvatn 2. Þarna er líka undan-

tekningalítið urriði en bæði þar og

fyrir neðan brúna getur reynst þrautin

þyngri að fá hann til að taka.

29

Veiðimaður kastar andstreymis í Steinboga.

Page 30: Veidislod 5. tbl 2012

Stór hylur með talverðu hringstreymi

er svo neðan við brúna. Þetta er mjög

dyntóttur veiðistaður og en stundum

er urriðinn alveg við landið, við vestur-

bakkann og því er best að slæða það

svæði, áður en byrjað er að kasta í hinn

eiginlega hyl. Urriða er að finna um

hylinn allan. Stundum er hann alveg

þar sem straumkastið frá strengnum

endar að vestan og nánast alltaf er

fiskur við austurbakkann, en þar er

bakstraumur, líkt og við vesturbakk-

ann. Bæði er hægt að veiða þetta

með hefðbundnum straumflugum

og eins andstreymis, með þurrflugu

og púpum.

Rétt fyrir neðan hylinn eru hólmar og

þar meðfram er dýpi sem stundum

geymir fiska. Rétt er að lauma agni þar

ofan í og eins getur verið gott að kast

þurrflugu á þetta dýpi.

Frá þessum hólma taka svo við lygnur,

líkt og er neðan við Myllu. Hér eiga

menn að líta eftir straumbreytingu,

þrengingum og beygjum. Oft má finna

talsvert af fiski á þessu svæði, alveg

niður að að gamalli stíflu í ánni sem

nefnist Hólmavaðsstífla. Rétt neðan við

þessa stíflu er þrenging. Þar er hylur og

beygja fyrir neðan. Hér er mjög oft urr-

iði og hér, eins og annars staðar við ána

er hægt að veiða með þeim aðferðum

sem henta veiðimanninum best, hvort

sem um er að ræða veiðar með þurr-

flugu og púpu andstreymis eða hefð-

bundinni straumfluguveiði.

Nú er orðið stutt niður í ármótin en áin

breytir um nafn, eftir að hún sameinast

Helluvaðsá sem kemur úr Arnarvatni.

Þaðan, niður í Laxá við Helluvaðsbæi,

nefnist áin Helluvaðsá. Mýrartá nefnist

eyjan þar sem Helluvaðsáin kemur

úr vatninu og koma árnar saman við

svokallaðan Marðarhólma. Þar skammt

fyrir neðan heitir Marðarvað. Það er

mjög grunnur veiðistaður og oft má sjá

rákir eftir urriða, þar sem þeir skjótast

af vaðinu sjálfur upp undir bakkann við

vesturlandið. Þar heldur urriðinn sig

oftast og þarna ber að fara ofur varlega,

reyndar alveg sérstaklega varlega, því

þarna er grunnt og viðkvæmt og veiði-

maðurinn fær yfirleitt ekki nema einn

séns til að veiða þá fiska sem þarna eru,

oft á tíðum mjög sjáanlegir.

30 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

Tekist á við urriða neðan við Ræsið.

Page 31: Veidislod 5. tbl 2012

Ertu búinn að skrá þig?Tímaritið VEIÐISLÓÐ er ókeypis fyrir lesendur!

Ef þú lesandi góður ert ekki skráður fyrir ókeypis áskrift

þá getur þú sýnt okkur stuðning með því að skrá þig t.d. núna!

„... en hvernig skrái ég mig?“

Þú ferð inn á www.veidislod.is og skráir netfang

og nafn upp í hægra horninu, gangi þér vel!

Við notum skráninguna eingöngu til að senda þér tilkynningu um ný tölublöð!

Smelltu á kassann til að fara á veidislod.is og skrá þig!

Page 32: Veidislod 5. tbl 2012

32 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

Nú rennur áin til norðurs, meðfram

Helluvaðsbrekkum og skammt sunnan

við þann stað þar sem vegurinn kemur

niður á árbakkann er dálítið horn. Frá

þessu horni, norður með hlíðinni, alveg

þangað til áin þrengist er ágætis mögu-

leiki á að krækja í urriða. Sérstaklega

á að skoða vel svæðið við hornið, rétt

norðan vegarins. Þar er dýpi og ágætur

veiðistaður, alveg norður í þreng-

inguna. Þetta svæði nefnist Sundás-

stykkisbakki.

Um 800 metrar eru frá slóðanum,

norður að útihúsum við Helluvaðsbæi

og frá þessum slóða að útihúsunum eru

nokkrir staðir. Sérstaklega skal nefndur

einn en ekki hefur hann verið nefndur

neitt. Þessi staður er þar sem áin byrjar

aftur að breikka. Hún rennu í fallegum

sveig meðfram austurbakkanum, fyrir

lítið nef og sveigir þar aftur til norðurs.

Oft er urriði í sveignum, bæði ofarlega

og ekki síður alveg niður við hornið.

Skammt er að næsta stað. Honum

svipar mjög til þess sem hér var nefnd-

ur að framan. Áin kemur í gegnum litla

þrengingu, rennur í litlum sveig, fyrir

nef sem er á austurbakkanum. Urriðinn

getur verið bæði ofan og neðan við

þetta nef, ekkert síður fyrir neðan og

það er ráðlegt að kasta alveg niður

að litla hólmanum sem þarna er við

austurbakkann.

Næst ber að nefna stóran og fallegan

streng sem er neðan við útihúsin við

Laxárbakka. Þar er góður veiðistaður og

alveg þess virði að eyða þar nokkrum

tíma. Þarna er ágætt að kasta straum-

flugu aðeins uppstraums, láta fluguna

aðeins sökkva og strippa svo ákveðið í

gegnum strenginn eða uppmeð honum

meðfram bakkanum. Einnig er ágætt að

veiða þarna uppstraums, bæði á púpur

og þurrflugur.

Síðan má veiða norður með bökkunum,

alla leið að brúnni yfir þjóðveginn.

Helsti staðurinn á leiðinni þangað er

við brúna sem liggur yfir ána heim að

bæjunum. Bæði er urriði fyrir ofan og

neðan þessa brú.

Arnarvatnsá og Helluvatnsá eru ótrú-

lega ríkar af lífi. Þar er talsvert mikið af

urriða og oft má finna þar stóra fiska

sem ótrúlega gaman er að kljást við.

Þetta er því fínn kostur fyrir þá sem vilja

komast í fallegt umhverfi með góðri

veiðivon.

Dæmigert fyrir ána, kyrrar breiður með blómskrúði. Nánast alls staðar fiskur og oft í harðalandi.

Page 33: Veidislod 5. tbl 2012
Page 34: Veidislod 5. tbl 2012

fluguboxið

34 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

Ein gömul og góðTveir gamlir og góðir kunningjar minntu mig á fluguna

Cirillio Yellow Grub undir haustið. Hvað er nú það myndu

sumir kannski spyrja, en þeir sem að lesið hafa óviðjafnan-

legar bækur Björns J. Blöndal, vita að CYG er fluga af óljósum

uppruna sem að reyndist honum og fleirum gersamlega

mögnuð um og uppúr miðri síðustu öld. En svo slokknaði á

henni, „randaflugunni“ sem hann kallaði hana stundum, og

aðrar flugur tóku við. Nefndi hann flugur á borð við Golden

Parson, Gordon Ranger og fleiri. Enn og aftur flugur sem að

veiðimenn nútímans þekkja lítt.

Cirillio Yellow Grub

Hann gaf mér fáeinar flugur á sínum

tíma, ein þeirra var snjáð og gamalt

eintak af Cirillio Yellow Grub. flugu sem

hann vissi ekki almennilega um upp-

runan á, en reyndist fádæma vel bæði

við Svarthöfða og víðar fyrr á árum.

Björn nefnir sem dæmi í bók sinni

Hamingjudögum, að svo mögnuð hafi

CYG verið, að eitt sumarið hefði hann

veitt 82 laxa á stöng, þar af 80 á CYG! En

síðan segir hann að flugan hafi smátt

og smátt misst töfrana úr vængjum

sínum og vafningum og brátt tóku

aðrar flugur við.

Fyrir nokkrum árum tók ég upp á því að

fá snillinginn Örn Hjálmarsson í Útilífi

til að hnýta nútímalegar útgáfur af CYG

og nokkrum öðrum af gömlu flugunum

sem nefndar eru tíðum í bókum Björns

og voru að gefa vel, en hafa síðan tínst

í flóði nýrra og nýtískulegri flugna. Má

nefna auk CYG flugur á borð við Con-

nemara Black, Black Goldfinch, Golden

Þessi ábending kappanna tveggja,

Marinós Guðmundssonar og Bubba

Morthens, varð til þess að ég rifjaði

upp texta sem ég skrifaði um fluguna

og birti þegar vefurinn okkar www.

votnogveidi.is opnaði 1.apríl 2005. Já,

merkilegt nokk, áttunda árið okkar með

VoV er komið vel á veg. Tíminn flýgur,

sérstaklega þegar að það er gaman.

Skoðum fyrst það bitastæðasta úr

greininni forðum: „Sá er þetta ritarer

svo heppinn að vera tengdur inn í

Blöndalsættina og þegar ég var drengur

sá afi minn, Lárus Jóhannesson hrl, svo

um að ég fékk að hitta Björn J. Blöndal

bónda, stangaveiðimann og rithöfund í

Laugarholti. Dvaldi ég þá tvö haust, í þrjá

daga hvort sinn, og aðstoðaði Björn og

syni hans Þorvald og Jón, við klakveiði

við Svarthöfða. Bæði fyrr og síðar voru

bækur Björns biblíur mínar og þessar

stundir með Birni og lestur bóka hans

hafa mótað mig sem stangaveiðimann.

Page 35: Veidislod 5. tbl 2012

35

Ein gömul og góð

Parson, Gordon Ranger og fleiri. Vildi

ég með þessu heiðra minningu Björns

og athuga í leiðinni hvort að flugurnar

gætu ekki fengið framlengingu lífdaga

með nútímalegum búningum.

Er skemmst frá að segja að ég hef veitt

lax á allar þessar flugur síðustu ár. Allar

og sumar, eins og t.d. CYG og Connem-

ara Black hafa verið beinlínis magnaðar.

Örn hefur hnýtt þessar flugur á smáa

þríkróka, CYG á silfraða og svarta og

Connemara Black á svarta króka. Þessar

flugur hafa gefist gríðarlega vel í stripp-

veiði, bæði með flotlínu og intermediate.

Á myndinni eru þær saman, gamla

flugan hans Björns og nýja flugan frá

Erni. Þegar ég vígði nýju fluguna, var

ég staddur við Oddahyl í Gljúfurá með

dætrum mínum og eiginkonu. Við

höfðum beðið eftir ljósaskiptunum og

þegar þau voru að skríða yfir hófumst

við handa. Við tókum fjóra í beit og

lönduðum, misstum síðan tvo áður en

tíminn var úti. Síðan hafa margir lotið

í gras. Gömlu fluguna geymdi ég lengi

og tímdi aldrei að kasta henni. Lét það

loks eftir mér fyrir mörgum árum í

vatnsleysi og tregfiski í Álftá á Mýrum.

Slengdi henni þá út í Verpinu og 3

punda sjóbirtingur tók á móti henni

í vatnsskorpunni í fyrsta kasti. Hann

kokgleypti. Ég kastaði henni ekki aftur.

Þorði því ekki. Vildi ekki hætta henni.“

Það var og, gömlu fluguna á ég enn og

hef staðið við það að kasta henni ekki.

Lítið mál væri að brýna kvikindið og

róta nokkrum á land, en flugan á eigin-

lega meira heima á minjasafni en á

taumenda.

Vel man ég þegar Björn gaf mér fluguna

og við ræddum hana. Hann sagði mér

að hann þekkti ekki uppruna hennar en

að hann teldi nafnið banda til spænsks

uppruna. Hann hafði spurst nokkuð

Efri flugan er sú gamla úr boxi Björns, sú neðri nýrri týpa hnýtt af Erni Hjálmarssyni,

en eins og sjá má er flugan talsvert trosnuð, enda veiddi hún grimmt.

Page 36: Veidislod 5. tbl 2012

36 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

litir slitrana voru hinir sömu og bera

uppi CYG. Björn sagðist hafa ætlað

að varðveita slitrurnar og senda þær

suður til greiningar, en áður en til þes

kom hefði einhver kunningi verið með

fíflagang og fleygt þeim í ána án þess

að gera sér hina minnstu grein fyrir því

hversu mikilvægar Birni þótti þær.

Boxið með gömlu/nýju flugunum er

mér glatað. Það var rifa á vasa á gömlu

veiðivesti, rifa sem var ekki hættuleg.

En svo stækkaði hún þegjandi og

hljóðalaust og dag einn er grípa átti

til boxins þá var vasinn tómur og

ómögulegt að staðsetja hvar það hefði

smogið útúr. Þarna hurfu þær mér

CYG, Golden Parson, Black Goldfinch,

Gordon Ranger og Connemara black og

red. Líklega var rauða Connemaran sú

eina af þessu safni sem ég veiddi ekki

vel á þau ár sem ég gekk með þetta box

á veiðislóð. Líklega kominn tími til að

endurnýja kynnin.

fyrir og fundið flugu sem honum þótti

vera lík CYG, sú fluga heitir Humble-

horned. Þá flugu hef ég séð á myndum

og vissulega er hún lík CYG, er með

þennan sérkennilega randaflugubúk,

sem reyndar má finna í dag á flugunni

Ofsaboom eftir Hans Kristjánsson. Samt

er Ofsaboom einhvern vegin ekkert lík

hvorki CYG eða Humblehorned. Björn

kallaði fluguna ýmist Cirillio eða bara

„Randafluguna“. Hann sagði mér (og

skráði það í Hamingjudögum) að sig

hefði grunað að á þeim árum hefði

verið eitthvert sérstakt æti í hafinu sem

að laxinn hefði verið sérlega sólgin í.

Dag einn fékk hann vísbendingu upp í

hendurnar. Eins og menn vita þá étur

lax ekki í ánum og það er afar sjaldgæft

að það finnist matarleifar í mögum ný-

genginna laxa, enda hverfur maginn og

magasýrur laxins þegar hann gengur í

ferskt vatn. En vísbendingin var einmitt

í iðrum nýgengins lax. Þetta voru „bara

slitrur“ eins og Björn komst að orði, en

fluguboxiðCirillio Yellow Grub

Page 37: Veidislod 5. tbl 2012

00000

Eitt kort35 vötn6.900 kr

FLEIRI VÖTN ÓBREYTT VERÐ

Elliðavatn komið á kortið!

Veiðikortið 2013

www.veidikortid.is

Page 38: Veidislod 5. tbl 2012

Hér á myndunum má sjá verðlauna-

gripina, en það var Hjörleifur Steinars-

son sem átti sigurfluguna sem heitir

Drápa græn og er ein af fjögurra Drápu

fjölskyldu, en einnig eru til Drápur í

svörtu, bláu og grænu. „Þessa flugu hef

ég gengið lengi með í hausnum og í vor

bara datt hún útúr hausnum. Svo þegar

Kristín sagði mér frá keppninni ákvað

ég að senda fjölskylduna. En þetta eru

að upplagi laxaflugur og þar sem ég fór

bara í silungsveiði á liðnu sumri þá var

þessum flugum aldrei kastað í vatn,“

sagði Hjörleifur í samtali við Veiðislóð.

En hvað var hann að pæla með þessum flugum?„Eins og þið vitið jafnvel og ég þá erum

við veiðimenn miklir sérvitringar með

liti á flugum og ég hef mikla reynslu sem

leiðsögumaður veiðimanna. Þar hefur

komið fram ákveðin tilhneiging til að

haga litum eftir aðstæðum og árstíma.

Rauða Drápan er hugsuð fyrir fyrri part

sumars, flugan er skærleit og þá eru fiskar

að ganga og eru örir. Þegar kemur fram

á hásumar er oft veitt í sólríku og björtu

veðri og þá kemur blái liturinn sterkur

inn og þegar það er smá slykja á ánni þá

er það tími græna litarsins. Þegar haustar

taka dekkri litir við og þá er kominn tími

svörtu flugunnar. Það má eiginlega segja

að hugmyndafræðin í þessu sé að vera að

upplagi með sömu fluguna, bara í mis-

munandi litum, alla vertíðina.“

Skrælþurrar sigurflugur!Á nýliðnu sumri hélt veiðibúðin Hrygnan fluguhnýtingarkeppni

og var boðið upp á veglega vinninga fyrir þrjár bestu flugurnar,

en dómnefnd skipuðu tveir valinkunnir fluguveiðikappar,

enginn annar en Siggi Flæðarmús Páls og Valgarður Ragnarsson,

sem var lengi vel kenndur við Veiðibúðina við Lækinn en er nú

leiðsögumaður veiðimanna og leigutaki Húseyjarkvíslar. Þátttaka

var mjög góð að sögn Kristínar Reynisdóttur, eiganda Hrygnunnar,

en það er skemmtilegt frá því að segja, að engin hinna þriggja

verðlaunaflugna hefur komið í vatn enn sem komið er. Það á alveg

eftir að koma í ljós hvort að þeir Siggi og Valli voru að hugsa eins

og laxar og silungar eða hvort þeim þótti flugurnar bara fallegar.

fluguboxiðSigurflugur í hnýtingarkeppni Hrygnunnar

38 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

Ásinn

Lóa hvít.

Drápa græn.

Page 39: Veidislod 5. tbl 2012

Ljósmyndir: Heimir Óskarsson

Page 40: Veidislod 5. tbl 2012

Þingvöllum á flugu sem hafði þetta

efni í kinnunum. Þetta efni glansar og

vekur þannig athygli, líkt og maður

sér stundum speglast á gler í sólskini.

Ásinn er hugsaður bæði fyrir lax og

sjóbirting og hann er í aðalatriðum

bleikur með löngum væng og zonker,“

sagði Ásmundur um flugurnar, sem eru

veiðilegar eins og sjá má.

En því er fleygt að flugurnar hafi aldrei farið í vatn frekar en sigurflugan? „Já, það er alveg rétt, ég hnýtti þessar

flugur rétt fyrir keppnina, beinlínis eftir

að ég frétti af henni. Það má segja að

það sé ekki einus inni víst að ég hefði

hnýtt þær, nema vegna keppninnar.

Síðan höguðu atvik því þannig að ég

fór eiginlega ekkert að veiða s.l. sumar,

þurfti að einbeita mér að gömlum

vinnusvikum í viðhaldi á húsinu mínu

og lét það ganga fyrir. Hins vegar fer allt

í eðlilegan farveg aftur á næsta ári og ég

er gríðarlega spenntur að prófa þessar

nýju flugur og sjá hvort að fiskarnir eru

sammála dómnenfdinni,“ eru lokaorð

Ásmundar Ársælssonar.

En stóra prófið er eftir ekki satt ....að sannprófa fluguna?„Jú, og ég iða í skinninu að láta reyna á

þær. Aðalverðlaunin fyrir sigurinn var

veiðidagur í Jöklu og ég er búinn að

leggja drög að þeim túr og kaupi mér

2-3 daga þar í viðbót. Ég reikna með

því að Drápurnar verði frumreyndar

þar, en maður veit annars aldrei,“ sagði

Hjörleifur.

Lóa hvít og ÁsinnÍ öðru og þriðja sæti voru Lóa hvít og

Ásinn, báðar eftir sama hnýtara,Ás-

mund Ársælsson, og Veiðislóð hafði

einnig upp á honum. Um flugurnar

sínar sagði hann: „Það er engin saga

og engin tilurð. Ég fæ bara hugmyndir

og hnýti úr hausnum á öngulinn. Lóan

er hugsuð í silunginn og mönnum

finnst það kannski skrýtið að vængir

hennar vísa niður og það er raunar

dálítil hugsun þar á bak við. Hugsunin

er um lóuna sem maður er alltaf að

rekast á úti í haga. Hún reynir stöðugt

að beina manni frá ungunum sínum

og hleypur um með vængina niðri.

Einkenni við Lóuna er peacock liturinn

í bakinu. Þetta er sérstakt Peacock efni

kallað Or12 og ég hafði frétt af því að

veiðimaður nokkur veiddi grimmt á

40 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

Kristín Reynisdóttir eigandi Hrygnunnar, Hjörleifur Steinarsson og Ásmundur Ársælsson.

Page 41: Veidislod 5. tbl 2012

Á www.svfr.is er að finna upplýsingar um öll veiðisvæði og veiðileyfi sem Stangaveiðifélag Reykjavíkur býður í almennri sölu til félagsmanna sem og annarra. Kynntu þér málið!

Page 42: Veidislod 5. tbl 2012
Page 43: Veidislod 5. tbl 2012

43

Harpa Hlín Þórðardóttir

Það komast færri að en vilja til að skjóta hreindýr

á Íslandi og hvað er þá til ráða? Gera það bara í

Grænlandi og það þarf ekki að leita langt yfir skammt.

Heyra í Hörpu Hlín Þórðardóttur sölustjóra hjá Lax-á

sem hefur opnað veiðibúðir á Suðvestur Grænlandi.

Þar er ekki aðeins nóg af hreindýrum fyrir alla sem

komast þar að...og endalaus landrými Grænlands,

heldur geta menn ofan á hreindýraskytteríið veitt

stóra sjóbleikju þangað til að hún kemur útúr

eyrunum á mönnum, farið á sjóstöng og skotið seli.

Jafnvel veitt stórlaxa í sjó!

Ljósmyndir: Úr safni Lax-á ehf.

skotveiðiHefði verið til í að éta allt hreindýrið

Page 44: Veidislod 5. tbl 2012

44 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

dýrabúskap, en fjöldi dýra lifir þó villt

á svæðinu, margar hjarðir á víðfeðmu

svæði, ekki síst í hólmum og eyjum,

helst að þar finnist einhverjir hagar fyrir

dýrin. Við höfum fengið svo margar

fyrirspurnir um hreindýraveiðar síðustu

árin að það hlaut að koma að því að við

færum í svona verkefni,“ segir Harpa,

sem ásamt eiginmanni sínum Stefáni

Sigurðssyni, er einn eigenda fyrirtækis-

ins Lax-á.

Búðirnar samanstanda af tólf tveggja

manna svefnskálum, matsal og eld-

húsi. Þarna er rafmagn, rennandi vatn

Harpa fór á svæðið á liðnu sumri og

skaut ekki aðeins sitt fyrsta hreindýr,

heldur einnig stærsta hreintarfinn á

svæðinu á vertíðinni. Hún segir Græn-

land sækja að sér í vöku og draumi

síðan og nú sé aðeins velt fyrir sér hve-

nær gefist næst tími til að fljúga vestur

og endurtaka leikinn.

Við hittum Hörpu á dögunum og

báðum hana að segja okkur frá búðun-

um og veiðiferðinni. „Þetta landsvæði er

hluti af landareign Stefáns Magnússon-

ar hreindýrabónda sem kenndur hefur

verið við Isotorq. Hann rekur þar hrein-

skotveiðiHarpa Hlín Þórðardóttir

Page 45: Veidislod 5. tbl 2012

45

Harpa tekur mið.....

Búðirnar.

Page 46: Veidislod 5. tbl 2012

Tarfurinn dreginn að bátnum.

46 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

og allt til alls. Fyrstu gestirnir fóru á

liðnu sumri, auk þess sem lykilmann-

skapur úr röðum þeirra hjá Lax-á

fóru til að sannreyna veiðiskapinn.

„Veiðiskapurinn var alveg á pari við

það sem við væntum og umhverfið og

veðrið i samspili gera þetta að einhverri

mögnuðustu upplifun sem ég hef lent

í við veiðar. Svæðið er á svipuðu róli

landfræðilega og Olsó eða Helsinki og

sumrin eru gullfalleg og alveg laus við

þetta rok sem við þekkjum svo vel hér

á heimaslóðum. Leiðsögumenn okkar

voru feðgarnir Ottó og Inuteq, en þeir

eru innfæddir og sagðir fremstu veiði-

menn Grænlands. Þeir eru ótrúlega

fróðir og magnaðir náungar. Sama má

segja um fólkið og landið, en það er

áhrifamikið að koma þarna, þorpið hans

Ottó er t.d. afar smátt með einu pínulitlu

kaupfélagi og annað hvert kot virðist

standa autt.

Segðu okkur frá

hreindýraveiðinni...

„Jah, tarfurinn minn var ekki kannski

venjulegt dæmi um veiðiskapinn að því

leyti að hann var kominn í sláturhúsið í

Isotorq aðeins tveimur klukkustundum

eftir að við ýttum hraðbátnum úr vör.

Eins og ég gat um, þá eru þarna margar

eyjar og hreindýrahópar í þeim flestum

þar sem eitthvað er að bíta og brenna

fyrir dýrin. Við vorum komin að fyrstu

eyjunni eftir um tíu mínútna siglingu,

sáum þar nokkur dýr sem leiðsögu-

mönnunum leist ekki nógu vel á. Það

var stutt í næstu eyju og þar komum

við fljótlega auga á fimm stóra tarfa

sem héldu hópinn. Við fórum í land og

fórum í hefðbundinn eltingarleik við að

komast í færi án þess að styggja þá. Það

gekk eftir. Þeir voru allir mjög stórir, en

einn þeirra þó augljóslega stærstur. Úr

skotveiðiHarpa Hlín Þórðardóttir

Page 47: Veidislod 5. tbl 2012

47

varð að ég einbeitti mér að honum og

það vara bara búmm, hann féll í fyrsta

skoti af 120 metra færi, 120 kílóa tarfur

sem var sá stærsti þarna um sumarið.

Skaut hann í hálsinn, maður er hvattur

til þess þarna til að hlífa kjötinu sem

best. Það er lagt meira upp úr því þarna

heldur en að skjóta í bóginn til að

kannski drepa það fyrr. Stefán Páll félagi

minn á Lax-á sagðist hafa skotið einn

enn stærri seinna um sumarið, en hann

verður að leggja fram sannanir um að

hans hafi verið stærri. Þangað til, þá var

minn stærstur!“

Fyrsta hreindýrið, hvað var það stórt

og hvernig var upplifunin?

„Já, fyrsta hreindýrið og ég var ansi

ánægð með mig að hafa fellt það með

einu skoti. Þetta var 120 kg tarfur sem

þykir mjög stórt. Upplifunin? Þetta var

all svakalegt adrenalín kikk. Venjan er

sú að skera lifrina úr og éta af henni og

það gerði ég.“

...og, myndirðu mæla með því?

„Um það er ekki spurt, adrenalínið sér

til þess. Þetta var bara heitt blóðbragð,

en ég var í svoleiðis hugaræsingi að

ég hefði verið til í að éta allt hreindýrið

þarna á staðnum. Þetta grípur mig

þannig, þegar ég t.d. veiddi minn fyrsta

lax þá var ég búinn að bíta úr honum

allt bakstykkið áður en ég áttaði mig á

því að hann var ekki dauður.“

Hvað með afraksturinn

....mega menn fara heim með kjötið?

„Af öllu sem hægt er að veiða þarna, þá

er það hreindýrakjötið sem er kannski

verðmætast að mati veiðimanna. Það

má koma heim með eitthvað af kjöti

frosið, en magnið var eitthvað minnkað

á sínum tíma. Dæmigert svo sem, en við

erum að vinna í því að fá undanþágur til

að menn geti farið heim með meira kjöt,

hreindýrakjöt er jú dýrt og verðmætt og

umfram allt frábærlega gott.“

En hvað með annan

veiðiskap þarna?

„Það er ómæld sjóbleikjuveiði. Margar

ár á landssvæðinu sem eru meira og

minna fullar af fiski. Margar af þeim eru

varla veiddar vegna vegalengda, menn

eru jú komnir til að skjóta hreindýr.

Það þarf margt að smakka, volga hráa hreindýralifur t.v. og volgt hrátt selsspik t.h.

Page 48: Veidislod 5. tbl 2012

48 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

En það er ein á sem er aðeins í hálftíma

gang frá búðunum, eða tíu mínútna

siglingu ef menn þess kjósa. Áin rennur

út í lítið mjótt vatn áður en hún fer í

stuttum ós út í sjó. Við útfallið úr vatn-

inu er svart af stórbleikju og menn rölta

þetta gjarnan í lok dags eftir matinn.

Flestir eru ekki þreyttari en svo að þeir

standist svoleiðis freistingu. Það eru

bleikjur þarna af öllum stærðum, mikið

af 2-3 punda en líka mikið af stærri

fiski, allt að 6-8 punda. Bleikjan þarna er

að taka sömu flugur og heima, þannig

að menn koma bara með boxin sín.

Svo nefndi ég selveiði, þarna er auð-

vitað mikið um sel og sjálfsagt að reyna

sig í þeim veiðiskap. Það er hringanóri

sem er skotinn þarna og það er mjög

skemmtileg og krefjandi veiði, því

nórinn er styggur með afbrigðum. Það

er siglt í um hálftíma frá kampinum

upp að skriðjökli sem er genginn fram

í sjó og bara það eitt að sigla þangað

er upplifun út af fyrir sig. Ég fór þessa

leið oftar en einu sinni og þetta var

aldrei eins. Var bara land í mótun, jakar

að hrynja stöðugt í sjóinn. Nema hvað

selirnir eru þarna við ísröndina og það

er ekki létt verk að hitta, því báturinn

er að lyftast og lækka í bárunum. Fyrst

reyndi ég að styðja byssuna við þóftu,

en það gekk ekki, það var of mikil

hreyfing. Þá reyndi ég að standa bara

upprétt og miða, og reyna að reikna út

hreyfingu bátsins í bárunum. Þá gekk

þetta, ég hitti, en særði aðeins selinn.

Blóðflekkurinn leyndi sér ekki og leið-

sögumennirnri sigldu skjótt nær og þá

gekk ég frá honum af stuttu færi.

Annar veiðiskapur er t.d. sjóstöng, eða

kannski bara handfæri, því ég veiddi

nokkra þorska með gömlum græn-

lenskum handfærum. Þorskurinn er

ekki veiddur nema til matar og það er

ekki veitt til margra daga, leiðsögu-

mennirnir veiða bara fyrir daginn í dag.

Þeir borða ekki það sem veitt var í gær,

þeir telja það gamalt og lélegt hráefni.

Þá er þarna annars konar veiðiskapur

sem kom mér mjög á óvart og er

virkilega spennandi. Og það er lax-

veiði í sjónum. Það eru ekki laxveiðiár á

Grænlandi, en með störndunum ganga

laxatorfur annarra landa, ég hygg að

þarna við Suðvesturströndina séu það

laxar frá Kanadískum ám. Líklega er það

þannig, vþí þarna veiðast stundum risa-

vaxnir laxar sem einmitt veiðast í ám á

borð við Restigouch og fleiri í Kanada.

Þetta er ekki flókinn veiðiskapur, þetta

fer fram líkt og Danir og fleiri gera þetta

í Eystrasalti, trolla bara spún á eftir báti.

Við reyndum þetta stutta stund þótt

að veiðitíminn hafi ekki verið alveg

réttur. Settum samt í lax fljótlega sem

reyndar slapp við bátinn, en sannaði

að þetta er alveg inni. Þetta var enginn

svaka lax, en þó líklega um það bil 14

Þarna er líka úrvals sjóstanga- og/eða handfæraveiði.

Page 49: Veidislod 5. tbl 2012

... og Bullandi sjóbleikjuveiði.

Page 50: Veidislod 5. tbl 2012

50 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

kvöldinn, en tók síðan eftir því að þeir

voru að skófla í sig á daginn, m.a. úr

móunum þar sem berjalandið var eins

og á sterum...önnur eins krækiber hef

ég aldrei séð og heimamenn kunnu á

þetta og borðuðu berin stanslaust allan

daginn. Síðan voru veislur fyrir okkur á

kvöldin, en samt rosalega einföld elda-

mennska. Bara salt og pipar, kannski

Dijon sinep og hvítlaukur og Labradorte

sem er kryddjurt sem ég þekki ekki

heima og veit ekki heimanafnið á. En

þetta var allt sem notað var sem meðlæti,

hráefnið var algerlega látið njóta sín og

ég hef sjaldan fengið aðra eins rétti.“

Selurinn...það er talað um selspik,

er þetta einhver matur?

„Það er talað um selspik jú, það er hrein

og hörð dýrafita sem heimamenn nýta.

Að sjálfsögðu át ég spikið nýtt og volgt

úr hringanóranum mínum, en kjötið

er frábært þar fyrir utan. Það minnir á

nautakjöt en er enn meirara, þannig að

það er upplifun að prófa það.“

Sló út blóðbragðið af

hreindýralifrinni?

„Hmm...nei og já!“

Þannig að þú mælir með þessu?

„Svona veiðitúr ættu allir að láta eftir sér

að minnsta kosti einu sinni á ævinni.

Miklar líkur eru síðan á því að láti menn

það eftir sér einu sinni, þá vilji þeir gera

það aftur. Þetta er af þeirri stærðargráðu.“

punda fiskur. Bleikjuveiðin og laxveiðin

í sjónum er nánast hundrað prósent

veitt og sleppt, það er of mikið vesen að

vera að taka þetta heim, enda er þetta

allt til staðr heima í raun og veru. Það er

reyndar skemmtilegur punktur í þessu,

að þegar maður fer í svona veiðitúr

til nærliggjandi lands og upplifir allar

þessar dásemdir, þá gleymri maður sér

smá stund, en áttar sig síðan á því að

við erum með þetta allt hér heima!“

Öll þessi villibráð...er þetta

kannski veiðitúr fyrir matgæðinga?

„Jah, ég get alla vega sagt, að ég hef

aldrei farið í annan eins gúrmei veiði-

túr. Við erum að tala um sel, hreindýr,

bleikju og þorsk og þó að sumu af þessu

sé sleppt, þá er eigi að síður veitt í soðið

og uppistaðan í matnum í búðunum er

einmitt þessi villibráð, engin ástæða til

að leita langt yfir skammt. Það er bara

veitt í kvöldmatinn jafn óðum, enda af

nógu að taka. Ég tók eftir því að leið-

sögumennirnir vildu ekkert borða á

Vision, endalaus gleði

Hrygnan ehf. | Síðumúla 37 | Sími: 581-2121 | www.hrygnan.is

Page 51: Veidislod 5. tbl 2012

Vision, endalaus gleði

Hrygnan ehf. | Síðumúla 37 | Sími: 581-2121 | www.hrygnan.is

Page 52: Veidislod 5. tbl 2012

Eysteinn Orri með fyrsta vatnakarpann.

Page 53: Veidislod 5. tbl 2012

53

ekki veiða þennan fisk, fannst hann eitt-hvað undarlegur. Nú eru haldnar miklar keppnir meðal veiðimanna og er flugu-veiðin þar í farabroddi. Peningaverðlaun og stærri bikarar en konan leyfir í stofuna.

Það er þumalputtaregla veiðimanna að vippa sér í næstu boðlegu veiðibúð hvar sem er í heiminum og athuga hvað er um að vera. Fá sér kaffi, kíkja á Simms prísana og grúfa sig yfir flugubarinn. Þetta er nákvamlega það sem ég gerði. Fékk mér vont kaffi, keypti mér Simms stöff og grúfði mig yfir fluguúrvalið. Óþarfi er að taka það fram að hér eru flugurnar töluvert öðruvísi, enda er náttúran öðruvísi hér. Ég fór nú eitthvað að ræða við fagmennina og þeir byrjuðu á að lýsa áhuga sínum á

„Ég sit hérna á veröndinni, drekk vont kaffi og horfi á Klettafjöllinn hægt og rólega bæta á sig snjó. Haustið nálgast hér í Colorado. Heima eru flestir að þrífa stangir og línur eftir vægast sagt grátlegt sumar. Sjálfur setti ég í örfáa fiska og landaði færri. Eftir lélegt sumar drifu sig þó margir íí sjóbirting. Það er skemmti-legur fiskur, en mér er alveg sama hvað menn segja, sjóbirtingur er enginn Lax. Annar fiskur sem er ekki Lax en fjári skemmtilegur er Carp. Sem að öllum líkindum er kallaður Vatnakarfi á íslenzku. Undarlegur fiskur með yfirvaraskegg og stór stingandi augu. Í áraraðir hafa Evr-ópumenn verið duglegir að veiða hann. Hingað í klettafylkin hefur veiðin borist með miklum látum. Lengi vel vildu menn

Þarf að kasta „right on the money“Á meðan margir veiðimenn hér á landi sleikja sárin eftir

vonbrigðasumar á laxveiðislóðum getur verið hollt að rifja það upp

að það er fleira fiskur en lax. Hér á landi er til dæmis líka til silungur!

Erlendis er úrvalið víða mikið og jafnvel meira en hér á landi án þess

að farið sé út í meting um gæði. Það er hægt að láta sér renna til rifja

umkomuleysi þeirra sem hafa ekki völ á heimsins flottustu sportfiskum

og þurfa að sætta sig við fyrirbæri eins og „catfish“, „crappie“(já,

crappie heitir hann!), panfish, sunfish, að ógleymdum þeim fúla og

ljóta „carp“, eða vatnakarfa sem hefur þá ímynd að lifa og hírast í

fúlum pyttum og tjörnum og vera veiddur á beitu með stöngum sem

líkjast meira símastaurum en venjulegum veiðistöngum. En ætli það sé

í rauninni svo? Menn ættu kannski að spyrja Eystein Orra Gunnarsson

sem tók sig til og skrifaði fyrir okkur pistil um vatnakarfaveiði í

Kolórado.....með flugustöng! Við skulum leyfa Eysteini að hafa orðið:

veitt erlendisVatnakarfaveiðar í Kolórado – Eysteinn Orri Gunnarsson

Eysteinn Orri með fyrsta vatnakarpann.

Page 54: Veidislod 5. tbl 2012

54 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

„What are you looking at!“ sagði ég. Þá sá ég einn stærsta sporð sem ég hef séð gægjast uppúr grugginu. Reif út línu og kastaði á hann. Ég er ágætur kastari, en ég átti ekki von á að ég þyrfti að kasta á blett sem er ekki meira en góður matardiskur úr eld-húsi móður minnar í þvermál, í réttri línu við fiskinn. Ég átti ekki sjéns í þessu kasti. Stressaðist allur upp af æsingi. Kastaði þrisvar og í lokakastinu negldi ég fluguna í bakið á dýrinu, sem tók á rás í dýpið.

Við héldum áfram ferð okkar meðfram vatninu og Brian kom aftur auga á fisk. Nú vandaði ég mig töluvert betur og náði að lenda flugunni í línu við fiskinn, 30cm frá honum. “Right on the money”. Brian stóð átekta og sagði mér hvernig ég ætti að stippa „slow, slow, strip,strip, sit... strip slow.. get ready, get ready he‘s coming, get ready..“ Ekkert, fiskurinn synti rólegur yfir fluguna. Við héldum áfram og sáum annan fisk, minni. Ég gerði mig tilbúinn og kastaði. „to long, to much on his right“, kastaði aftur en aðeins of lang í burtu „that‘s ok, let it sit“. Ég beið og fylgdi strip skip-unum Brians. Allt í einu fann í svakalegan kipp, línan þeyttist út. „don´t touch the reel“ hrópaði Brian. Fiskurinn rauk út, þvílíkt átak, stöngin bognaði niður að hnjám. Eftir einhvern tíma náði ég að landa honum, hef ekki hugmynd um hversu lengi ég var að landa honum, ég hafði svo gaman af þessu. Losaði fluguna og tók hann upp til myndatöku. Ég gat varla haldið á honum, stirtlan var svo sver, og fiskurinn blautur. Tveir aðrir komu upp á þessum hálfa degi við McIntoshvatn í Colorado fylki. Ég neita því ekki að ég kastaði á líklega 15- 20 fiska þennan dag, suma vel yfir 15pundin. Þetta er nákvæmnisveiði og styggð kemur að fiskinum mjög auðveldlega.“

Svo mörg voru þau orð Eysteins Orra og greinilegt að vatnakarfaveiði getur leynt verulega á sér og þessar fluguveiðar eiga ekkert skylt við stórstanga ímynd Vatna-

karfans austan úr Evrópu.

íslenskum ám og þá sérstaklega laxinum. Ég sagði þeim pent að bíða í tvö sumur eða svo áður en pantað er. Mér var minni-stæður eldri maður í Kjósinni í sumar. Sá hafði safnað í langan tíma fyrir viku ferð í ána. Þegar ég var þar, þá var hann búinn að vera við veiðar í tvo daga og ekki fengið högg. Þegar ég fór var hann högglaus, hann átti þó einn og hálfan dag eftir.

Allavega, þeir fóru að tala um Carp. Ég vissi ekkert hvað í fjáranum það var. Fór heim og fletti upp á þessum fiski. Varð nokkuð hrifinn af veiðinni og hringdi í sjoppuna og bað þá um að gæda mig hálfan dag. Tveimur dögum síðar var ég við bakka McIntosh vatns í og við bæinn Longmont í Colorado (30 mínutur frá bænum mínum Boulder, klukkutíma frá Denver). 26 stiga hiti og ekki ský á himni, hefði ekki viljað vera við veiða í þessum aðstæðum á Íslandi. Gædinn minn Brian Harris, ungur strákur, líklega einn færasti flugukastari sem ég hef séð a.m.k. í hans aldursflokki. Á meðan við röltum með-fram vatninu spurði ég hann hvernig hann hefði komist í kast við fluguveiðina. Brian sagði að hann hefði verið að veiða frá því að fyrsta bleyjan var sett á hann. Þó hefði hann gert veiðina að lífsviðurværi sínu fyrir níu árum eftir að hafa verið á snjóbretti, dottið fram af hengju beint á tré, legið meðvitundarlaus á sjúkrahúsi í hálfan dag og brotinn nánast í tvennt. Hann var svo hakkaður að hann hafði ekki getað gert neitt af viti nema hnýtt flugur á væs föður síns. Síðan hafði hann, eins og svo margur, farið að venja komur sínar í hverfisveiðibúðina og á endanum hafði eigandinn sagt „dude you are always here, I can just start paying you“ .

Þarna stóðum við og ég reyndi að koma auga á einhverja hreyfingu í vatninu. „There, on your one o´clock, 30 feet out, cast on his left no more than a foot away!“. Ég stóð þarna eins og asni með stöngina í hendinni og horfði á gruggugt vatnið.

veitt erlendisVatnakarfaveiðar í Kolórado – Eysteinn Orri Gunnarsson

Page 55: Veidislod 5. tbl 2012

00000

Eitt kort35 vötn6.900 kr

FLEIRI VÖTN ÓBREYTT VERÐ

Elliðavatn komið á kortið!

Veiðikortið 2013

www.veidikortid.is

Page 56: Veidislod 5. tbl 2012

56 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

þessa iðju, þ.e.a.s. að snerta tauminn með fingrunum og bóka síðan laxinn þótt hann sleppi í framhaldinu. Það vita allir veiðimenn að þetta er einmitt ögur-stundin í fluguveiði og flestir laxa sleppa einmitt þegar stutt er í löndun

Erum við á VoVog Veiðislóð nokkuð einir um að átta okkur ekki á þeirri hringa-vitleysu sem hér er á ferðinni? Hvernig er hægt að skrá lax veiddann sem er ekki veiddur? Og dettur einhverjum í hug að gera það?

Greinilega.

Þeir eru ófáir sem að telja að það eigi ekki einu sinni að skrá lax sem er sleppt aftur,

Ritstjóri velti þessu ekkert fyrir sér í fram-haldinu, um nóg annað að hugsa, en af og til síðan hefur þetta þó borist til eyrna og helst að skilja að lítill hópur sérvitringa stundi það að snerta tauminn og takist það, þá sé laxinn bókaður þó að hann leki af flugunni áður en að löndun kemur.

Sem sagt, bóka lax sem náðist ekki á land. Vegna þess að það tókst að snerta tauminn! Nú í sumar hefur það síðan gerst, einmitt í laxleysinu, að orðrómur um að svona lagað sé stundað hefur vaxið mjög fiskur um hrygg og það er jafnvel staðhæft í okkar eyru að í einstaka ám sé það beinlínis regla sett af leigutökum og framfylgt af leiðsögumönnum að stunda

Eru menn að skrá í bók laxa sem þeir misstu?

eitt og annaðTaumur snertur

„Taumur snertur!“ er víst kallað hátt og snjallt á bökkum vatnanna. Hvað skyldi það nú þýða? Fyrir þremur árum eða svo var ritstjóri staddur á ár-bakka að horfa á veiðimann glíma við fallegan vorlax. Mannfjöldi fylgdist með og mikið í húfi að laxinn næðist á land því vertíðin var að hefjast og hvað er betra fyrir hið almenna geðslag veiðimanna en að það veiðist vel strax í byrjun vertíðar. Aðstoðarmaður var þarna á höttunum til að grípa laxinn þegar og ef hann kæmi bröltandi upp í fjöru. Þegar laxinn fór að gefa sig og koma nær fór aðstoðarmaðurinn að bera sig eftri taumnum og sá græni, ritstjórinn, hugsaði hvern fjandann er hann að gera, ætlar hann að rífa í tauminn? Veit hann ekki betur? En skyndilega blakaði kappinn fingurgómunum í tauminn og æpti: „Taumur snertur“. Ritstjórinn var enn ekki að fatta hvað þarna var í gangi, en hugsaði ekki nánar út í það þar sem laxinum var landað stuttu seinna og athygli allra beindist að honum.

Page 57: Veidislod 5. tbl 2012

57

því hann veiðist kannski aftur og aftur og skekki skráningar. Látum það nú liggja á milli hluta, menn hafa þó landað þeim fiskum, mælt þá og myndað. En að skrá lax í bók vegna þess að aðstoðarmanni tókst að pota fingri í tauminn. Nei andsk.....

Einn sem við ræddum við og rasaði yfir vitleysunni sagði að framvegis myndu menn væntanlega lengja tauma sína. Hann sagði líka: „Það vita það allir að það eru vel fylltar veiðibækur sem selja veiðileyfin og selja þau dýru verði. Ef þetta er satt og rétt, þá er enn minna að marka veiðibækurnar heldur en fyrr, því þær töpuðu þá þegar gildi sínu að ein-

hverju leyti þegar menn fóru að sleppa laxi í vaxandi mæli og bóka einstaka laxa tvisvar eða þrisvar út af endurveiði. Og nú bætist við að menn séu að bóka laxa sem þeir misstu af því að taumur var snertur. Endar það ekki með því að menn bóka laxa sem að þeir tylltu í eða misstu fljótt. Bóka jafnvel laxa sem að eltu hjá þeim eða tóku viðbragð undir flugunni? Kannski eru menn nú þegar að stunda það, hver veit?“

Eru menn að skrá í bók laxa sem þeir misstu?

Karl Marinósson að landa laxi í Laxá í Leirársveit. Myndin er tekin af Heimi Óskarssyni og tengist umfjöllun ekki neitt,

þ.e.a.s. þessi fór alveg upp á land!

Page 58: Veidislod 5. tbl 2012

58 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

Kría

Gamall kunningi kom að orði við okkur

og greindi frá tveimur skrýtnum upp-

ákomum hjá sér á bökkum vatnanna

fyrir fáum árum. Bæði atvikin áttu sér

stað við Straumana í Borgarfirði, þar sem

Norðurá, ásamt Gljúfurá, rennur í Hvítá.

Þessi vinur okkar var þarna með son

sinn ungan og var mikið lagt undir að

standa vaktina með sóma, kenna gutt-

anum réttu handtökin og sjá til þess að

fiskur tæki agnið. Drengurinn var eitt-

hvað að drolla yfir flugukastinu þegar

pabbinn greip af honum stöngina,

þandi sig og sagði hátt og snjallt þegar

hann reif línuna upp í það sem átti að

vera stórglæsilegt kast, “svona áttu að

gera þetta!”

En hann náði varla að sleppa síðasta

orðinu og upphafinn sjálfsánægju-

svipurinn stirðnaði, því eitthvað hrifsaði

í fluguna í háloftunum. Það næsta

sem gerðist var að frekjulegt en jafn-

framt sjokkerað kríugarg barst að vitum

manna úr háloftunum og þegar þeir litu

upp var þar kría með fluguna í sér og í

miklum vanda stödd.

Nú voru góð ráð dýr og veiðimaður

fór að reyna að stytta línuna. Ekki kom

annað til greina en að reyna að bjarga

frekjugreyinu ef þess var nokkur kostur.

En sú stutta tók í, reif út línu, féll tvisvar

til jarðar, komst atfur á flug og reif út

meiri línu. Þetta gerðist vandræðalegra

með hverri sekúndunni. En svo, til þess

að bjarga málum, náði krían loks að losa

sig er hún féll til jarðar í þriðja skiptið.

Hún drattaðist eitthvað flögrandi niður

eftir, settist á stein og hóf að snurfusa

sig. Henni virtist ekki hafa orðið meint

af ævintýrinu, en veiðimaður vissi ekki

þá og veit ekki enn hvort að hann húkk-

aði kríuna, hvort að línan bara flæktist

í henni eð ahvort hún greip fluguna í

gogginn í loftinu.

Þær geta verið margvíslegar uppákomurnar þegarstangaveiðin er annarsvegar

veiðisaganÚr ýmsum áttum

Page 59: Veidislod 5. tbl 2012

Ljósmynd: Einar Falur

59

Smyrill

Seinna í þessum sama veiðitúr sátu

menn letilega úti á verönd og sól skein

í heiði. Kaststöng hallaðist upp að gafli

við enda verandar, á enda línunnar

var Devon og hann hafði losnað af

festingu og bara dinglaði í lausu lofti.

Skyndilega var háður Hildarleikur fyrir

framan veröndina er smyrill gerði sig

líklegan til að næla sér í þúfutitling. Sá

litli leitaði ásjár upp á verönd, en það

var runnið æði á smyrilinn og hann

stakk sér glannalega yfir smáfuglinn

og fólkið sem sleikti sólina. Skyndilega

kom illfylgið auga á Devonin sem lafði

frá stangartopppinum, lagði saman

tvo og tvo og fékk út rangt svar. Hann

réðist hún af hörku á Devoninn, greip

hann í klærnar og hugðist hafa hann á

brott með sér. Þetta varð aftur til þess

að hann sat nú fastur á önglunum og

hóf hann nú að draga út lína og stöngin

skall á jörðina. Smyrlinum varð nú ekki

um sel og veiðiæsingurinn rann af

honum og hræðslukennt æði tók við.

Þetta varð ekkert dramatískara en hér er

komið sögu, það næsta sem gerðist var að

smyrillinn náði að losa sig af önglunum

og var ekki seinn á sér að forða sér. Eftir

nokkur andartök, er viðstaddir máttu loks

mæla eftur, tóku menn eftir því að eng-

inn hafði náð að hreyfa legg eða lið.

Page 60: Veidislod 5. tbl 2012

60 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

Alltaf til í tuskið

Og úr því að gráðugir laxar eru til um-

ræðu, þá veiddist fyrir nokkrum árum

einn úr úrvalsflokki allra gráðugustu

við Skarastaðabrú í ofanverðri Austurá.

Sá var 15 pund og kokgleypti spón.

Þegar honum var landað og veiðimaður

fór upp í kjaftinn á honum til að losa

spóninn, rak hann augum í fjóra lín-

ustubba. Hann hafði sum sé kokgleypt

fjóra maðkaöngla fyrr um sumarið,

og kokkurinn í Laxahvammi kunni af

honum sögurnar. Þær voru allar eins.

Hann hafði gleypt og sakkað svo niður

með steininum sem hann lá við, farið

fyrir hann að neðanverðu og sagað

línurnar í sundur. En hann þurfti að elta

spóninn og þess vegna náðist hann.....í

fimmtu tilraun.

Tveir fyrir einn

Einkennileg saga hefur verið sögð af

manni sem var að veiðum í ofanverðri

Laxá í Aðaldal. Hann kom að veiðistað

og kastaði út maðki. Þarna var undir

afar ólmur og gráðugur lax sem þusti

þegar til og svalg maðkinn svo græðgis-

lega í sig að beitan spýttist út um annað

tálknlokið og vingsaði maðkurinn þá

til og frá niður með hlið laxins. Það var

meira en annar lax á svæðinu þoldi,

hann rauk til og hrifsaði í orminn og

festi öngulinn í kjaftvikinu. Glímdi nú

veiðimaður við tvo væna og nýrunna

laxa sem létu ófriðlega. Þrátt fyrir að

aðstæður hlytu að teljast veiðimanni í

óhag, tókst honum að landa löxunum

og var sá fyrri sem tók 15 punda hæng-

ur, en sá seinni um 10 pund, hrygna. Í

raun og veru þvældust laxarnir svo fyrir

hvor öðrum að veiðimaðurinn reiknaði

með því að miklu erfiðara hefði verið að

ná bara öðrum í einu, sérstaklega þeim

15 punda. Þegar fór að líða á glímuna

óttaðist veiðimaðurinn mest að línan

myndi slitna við tálknlokið. Það gekk þó

ekki eftir.

veiðisaganÚr ýmsum áttum

Page 61: Veidislod 5. tbl 2012

61

Lax-, silungs- og skotveiði

Hrútafjarðará, Breiðdalsá, Jökla,

Minnivallalækur og Fögruhlíðará

www.strengir.is

Page 62: Veidislod 5. tbl 2012

62 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

Page 63: Veidislod 5. tbl 2012

Ljósmyndagalleríið að þessu sinni er frá Pétri Alan Guðmundssyni, kaupmanni í Melabúðinni í Vesturbæ Reykjavíkur og greinilegt að kaupmennskan er ekki það eina sem í hann er spunnið. Pétur er fyrst og fremst Skot- og stangveiðimaður, æfir og veiðir með vorsteh veiðihund en alla tíð hefur myndavél verið með.

„Þessi áhugi á ljósmyndun jólst jafnt og þétt með aldrinum og þegar stafræna myndakerfið hélt innreið sína varð sprenging í þessu hjá mér. Nú er ég alltaf með myndavélina hangandi mér, hvort sem það er 20 stiga frost eða 20 stiga hiti í fjallgöngu, veiði eða öðru.. Ég er ekki að leita að neinu sérstöku, er fyrst og fremst að freista þess að fanga augnablikin. Mest er ég í hundum og fuglum, en þar fyrir utan er mér svo sem fátt óviðkomandi ef mér líst á myndefnið,“ segir Pétur.

Pétur notar aðallega Canon 7D og oftast er hann með linsu sem heitir Canon EF 70-200mm F/2,8L II AF IS USM. Oft verður einnig Canon 24-105mm F/4L IS EF USM AF fyrir valinuog stundum jafnvel enn aðrar Canon linsur. En „vinnur“ Pétur myndir sínar?

„Já, ég vinn lang oftast myndir mínar, laga oftast eitthvað og „kroppa“ og hentar mér vel að nota Picasa enda er ég bara amatör í þessum málum og hef ekki tíma til að læra á Photoshop eða Lightroom eins og er“ segir Pétur. Og nú skuluð þið lesendur góðir njóta næstu opna þessa blaðs, því þær prýða glæsilegar myndir Péturs Alans Guðmundssonar.

Er fyrst og fremst að fanga augnablikin

63

ljósmyndunPétur Alan Guðmundsson

Page 64: Veidislod 5. tbl 2012

ljósmyndun

64 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

C.I:B. Zetu Jökla sem er snögghærð vorstehtík í minni eigu.

Page 65: Veidislod 5. tbl 2012

65

Page 66: Veidislod 5. tbl 2012

Karri að vori

ljósmyndunPétur Alan Guðmundsson

66 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

Page 67: Veidislod 5. tbl 2012

67

Page 68: Veidislod 5. tbl 2012

Rjúpa ofan við Árskógssand.

ljósmyndunPétur Alan Guðmundsson

68 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

Page 69: Veidislod 5. tbl 2012

Karri í Skálafelli.

69

Page 70: Veidislod 5. tbl 2012

ljósmyndun

70 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

Írski setinn Valaskjalvs Tokk reisir rjúpu sem Kristinn Einarsson skaut í Einunndalen í Noregi .

Page 71: Veidislod 5. tbl 2012

71

Page 72: Veidislod 5. tbl 2012

ljósmyndun

72 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

Pétur Alan Guðmundsson

Page 73: Veidislod 5. tbl 2012

73

Page 74: Veidislod 5. tbl 2012

ljósmyndun

74 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

Fjalldalafífill

Pétur Alan Guðmundsson

Page 75: Veidislod 5. tbl 2012

75

Page 76: Veidislod 5. tbl 2012

Grjót í hveralæk í Kerlingarfjöllum

ljósmyndun

76 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

Page 77: Veidislod 5. tbl 2012

Leirhversskvetta í Námaskarði

77

Page 78: Veidislod 5. tbl 2012

ljósmyndun

78 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

Kríur við Langá á Mýrum

Pétur Alan Guðmundsson

Page 79: Veidislod 5. tbl 2012

79

Page 80: Veidislod 5. tbl 2012

ljósmyndun

80 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

Eggjaþjófur í Heiðmörk.

Page 81: Veidislod 5. tbl 2012

81

Page 82: Veidislod 5. tbl 2012

ljósmyndunPétur Alan Guðmundsson

82 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

Friðþjófur Adolf Ólason og ég með afla eftir fyrsta túr vorsins á Iðu.

Page 83: Veidislod 5. tbl 2012

Ertu örugglega búinn að skrá þig?Tímaritið VEIÐISLÓÐ er ókeypis fyrir lesendur!

Ef þú lesandi góður ert ekki skráður fyrir ókeypis áskrift

þá getur þú sýnt okkur stuðning með því að skrá þig t.d. núna!

„... en hvernig skrái ég mig?“

Þú ferð inn á www.veidislod.is og skráir netfang

og nafn upp í hægra horninu, gangi þér vel!

Við notum skráninguna eingöngu til að senda þér tilkynningu um ný tölublöð!

Smelltu á kassann til að fara á veidislod.is og skrá þig!

Page 84: Veidislod 5. tbl 2012

Lax að stökkva og lenda ofan á línunni í Gljúfrahyl í Setbergsá.. Mynd GG

Page 85: Veidislod 5. tbl 2012

Spurt og svarað um margvíslegt viðkomandi laxfiskum

lífríkiðGuðni Guðbergsson

85

Það eru margvíslegar spurningar sem að ýmist eru

síkviknandi í hópi veiðimanna eða kvikna af einhverjum

sérstökum gefnum tilefnum á vertíðum. Spurningar er

varða veiði og veiðidýrin. Af hverju þetta og af hverju

hitt? Við þurftum aðeins þrjár mínútur til að hripa

niður eftirfarandi spurningar og við báðum Guðna

Guðbergsson hjá Veiðimálastofnun að svara þeim eftir

sinni bestu vitund.

Guðni brást vel við eins og hann gerir ævinlega, en það

eru samt alltaf einstök atriði sem erfitt er að svara. Og í

öðrum tilvikum þarf að athuga hlutina vandlega, skoða

gögn og þess háttar. En um það sagði Guðni: „Hér er

tilraun til svara við spurningunum. Það er ekki alltaf

auðvelt að gefa tæmandi svör við svona lista. Við erum

að fara yfir gögn sumarsins og reynum að gera okkur

grein fyrir stöðunni og horfunum. Reynum að draga það

saman áður en langt um líður með frekari greiningu á

ástandinu.“

Page 86: Veidislod 5. tbl 2012

86 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

árganga gróið að einhverju leyti saman.

Það er því ekki ástæða til að hafa miklar

áhyggjur ef niðursveifla er í stuttan

tíma. Ef hún stendur lengur getur

það vissulega haft áhrif til minnkandi

seiðaframleiðslu. Frjósamari ár þar sem

vaxtarhraði er mikill fyrir og fáir árgang-

ar eru í ánum á hverjum tíma eru við-

kvæmari fyrir en þar sem þeir eru fleiri

og þar geta lægðir komið fyrr fram. Það

sem hægt er að hafa áhrif á er það hvað

veitt er úr stofnum. Þegar hátt hlutfall er

veitt og sleppt hefur veiðin minni áhrif.“

Er ekki frekar hætt við að stórlax verði fáliðaður á næsta sumri eftir að smálax klikkaði svo afgerandi í sumar?

„Það eru tengsl á milli fjölda laxa með

eins árs sjávardvöl og laxa með tveggja

ára sjávardvöl. Þegar laxar með eins árs

sjávardvöl eru fáliðaðir eru líkur til þess

að sú minnkun komi hlutfallslega fram

hjá tveggja ára laxi. Það eru því líkur til

að laxar með tveggja ára sjávardvöl verði

fáliðaðir á næsta ári. Það hversu hátt

hlutfall tveggja ára laxa er, er mismikið

milli landshluta. Á Vesturlandi er megn-

ið af laxinum með eins árs sjávardvöl

en hlutfallslega er meira af tveggja ára

laxi í ám á Norður- og Austurlandi. Oft

hefur komið upp sú kenning að kyn-

þroskaaldur sé ákvarðaður úti í sjó og ef

að skilyrði eru þar óhagstæð geti það leit

til þess meira komi af stórum laxi árið

eftir. Á þeim tíma sem við höfum gögn

um eru ekki vísbendingar um að um

slíkt hafi gerst.“

Miðað við heimtur á merkjum í löxum í Elliðaánum í sumar, sem sýndu svipaðar heimtur og vant er, virðist það ekki benda alfarið á að aðstæður í ánni (og þá kannski ánum) hafi valdið þessum miklu afföllum?

„Á þessari stundu liggur ekki fyrir

hverjar endurheimtur hafa verið í

Nýlega hefur það komið uppá að laxar, sérstaklega hængar lengist í ánum vegna þess að krókurinn tognar hressileg. Sér-staklega virðist þetta eiga við um stærri fiska. Er til einhver meðaltalstala í þessum efnum og hvað veldur þessari tognun?

„Hér brestur mig þekkingu. Líklegt er

að laxahængar lengist og breyta um

lögun þegar dregur að hrygningu en

ég þekki ekki hve mikið það er. Um-

breytingin tekur einhvern tíma í ánum

og er væntanlega að breytast frá því að

lax gengur og fram að hrygningu og

því tæpast um neitt meðaltal að ræða

þar sem göngutími og veiðitími geta

skipt máli. Stærð laxa er m.a. notuð til að

greina lengd sjávardvalar sem er mest

eitt eða tvö ár í ám hér á landi. Einnig

til að meta viðkomugetu mælda í fjölda

hrogna, en það á við um hrygnur en

ekki hænga.“

Í framhaldi af spurningu 1, fer þetta ekki ansi illa með lengd-versus þyngd kvarðann ykkar góða?

„Hér eru fleiri þættir eins og að fiskar

leggja af í ánum. Hér er því vandamál

sem erfitt er að gera við. Það sem á móti

getur komið er að eiga mælingar sem

gerðar eru á annan hátt s.s. með mæl-

ingum á stærð fiska í teljurum eins og

sumstaðar er gert í ám.“

Í framhaldi af svo laxlitlu sumri....er að ykkar mati hætta á slakri hrygningu í framhaldinu, þ.e.a.s. að árgangurinn sem sprettur af þessu sumri verði lélegur?

„Það er vissulega hætta og fer eftir því

hve stór hrygningarstofninn er (fjöldi

hrogna). Hér kemur einnig til að hver

árgangur er nokkur ár í ánni. Það eru

því möguleikar til að afföll minnki ef

samkeppni minnkar og vöxtur aukist

sem getur verkað upp að ákveðnu

marki og því getur seiðaframleiðsla milli

lífríkiðGuðni Guðbergsson

Page 87: Veidislod 5. tbl 2012

Elliðaánum í sumar. Það er því ekki

ástæða til að fjölyrða mikið um það

fyrr en þær upplýsingar liggja fyrir.“

Í framhaldi af spurningu 5....ef svo er, er þá ekki frekar líklegt að næsta sumar verði betra smálaxasumar þar sem skilyrði voru betri á þessu vori heldur en í fyrra?

„Það er nær útilokað að draga þessa

ályktun eins og er. Hlutur árferðis í

ánum er ekki ljós nú en verður það

frekar með greiningu á vaxtargögnum

úr hreistri en með því er hægt að sjá

hvort vöxtur hafi verið hægur eftir út-

göngu. Ef svo er bendir það til aukinna

affalla. Það stafar hinsvegar af ástandi á

átuslóð í sjó á þeim svæðum sem laxinn

heldur sig. Seiðaárgangar hafa almennt

mælst stórir síðustu ár í kjölfar góðrar

laxgengdar og veiði undanfarin ár

(2008-2010).“

Alþekkt er að laxinn étur ekki í fersku vatni. En þegar hoplax bregður hart við á vorin og tekur af mikilli græðgi gæti það bent til að laxinn byrji að éta í fersku vatni áður en hann fer aftur út...gerir hann það?

„Hér þarf að hafa í huga af hverju laxinn

étur ekki í ánum. Þegar lax er í göngu

og er að þroska hrogn og svil er hann

ekki að éta. Í ánum er fæða takmörkuð

og yfirleitt smásæ. Það sem þar er að

éta fyrir hoplaxa er því af afar skornum

skammti og fátt í stöðunni annað en að

koma sér til sjávar þar sem áta er fjöl-

breyttari og ríkulegri.“

Sömu spurningu má einnig spyrja um sjó-birting....er hann byrjaður að éta í fersku vatni í apríl og mai áður en hann fer út....

„Hér er í sama svar í gildi.“

...og hvað með birtinginn sem kemur um hásumar og fram eftir hausti.....er hann að éta í ánni eða er hann með sama kerfi og

laxinn?.....og í framhaldi af því.....hvað með geldbirtinginn, er hann að éta í ánni?

„Hér er í sama svar í gildi.“

Ef þessir fiskar eru allir að éta í ánni, eru þeir þá ekki í seiðum?

„Hér er í sama svar í gildi.“

Hvað með sjóbleikjuna.....hún er að éta í ósnum, en étur hún á göngu sinni upp ána? „Varðandi bleikju eru hlutirnir kannski

heldur flóknari. Sjóbleikjan leitar í ósa

til átu eftir hrygningu. Þær éta eitthvað

í ánum á göngu en þar er takmarkað að

hafa fyrir stóra fiska. Bleikja er gjarnan á

öðrum búsvæðum en lax og sjóbirting-

ur, bæði í kaldari ám og á svæðum þar

sem straumur er minni. Þar sem vötn

eða ísölt lón eru neðarlega á vatna-

kerfum leirar hún þangað í fæðuleit og

heldur sig þar sem selta er viðráðanleg.“

Page 88: Veidislod 5. tbl 2012

Drömresa ABU 1969 á LaxárbökkumJafnan fjallaði ABU um draumareisuna

í ársbæklingi sínum þar sem vörur

fyrirtækisins voru kynntar. Bæklingur-

inn var (og er kannski enn) frægur og

hét (og heitir kannski enn) Napp og

Nytt. Frásögn af Íslandsferðinni kom í

Napp og Nytt 1970, en draumareisan til

Íslands var 1969, eða fyrir 43 árum!

Draumareisan 1979 var farin á bakka

Laxár í Aðaldal, nánar tiltekið á Nes-

veiðarnar. Greinin í Napp og Nytt er

mjög myndskreytt og ljóst að sænski

hópurinn veiddi mjög vel. Greinilegt að

margt hefur breyst, því laxahrúgunni

er allri raðað dauðri á árbakkann og

augljóst a sumum myndanna að Sví-

unum þótti gaman að veiða á spón.

88 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

Sænska veiðivörufyrirtækið ABU stóð lengi

fyrir „Drömresan“ og gerir kannski enn.

Drömresan er eins og liggur í augum uppi

draumareisan, þ.e.a.s. draumaveiðiferðin, en

árlega bauð fyrirtækið verðlaunaviðskiptavinum

í draumareisu. Veiðimenn sendu inn myndir og

skýrslur af sér með stóra fiska og ABU hólfaði

niður í flokka eftir því hvaða fiskitegund var

dregin á þurrt. Þeir sem skiluðu skýrslum yfir

stærstu fiskana voru boðnir í veiðitúrinn og var

hann farinn hingað og þangað. Árið 1969 var

hann farinn til Íslands. All mörgum árum seinna

komu Svíarnir aftur með sína verðlaunahafa til

Íslands, en það er önnur saga.

einu sinni varDraumreisa ABU

Page 89: Veidislod 5. tbl 2012

Drömresa ABU 1969 á LaxárbökkumSem kunnugt er þá er aðeins veitt á flugu

í ánni í dag og öllumlaxi sleppt. Mikið er

rætt um fegurð Laxár og frægð hennar

einnig og síðan er drjúgu rými rennt

undir Jónas litla sem var að kasta fyrir lax

í fyrsta skipti, nánar tiltekið í Vitaðsgjafa

með mömmu sína Elnu Linn og pabbann

Finn að gefa góð ráð. En síðan kvað við

óp, Mamma og pabbi, hjálp, ég er með

fisk á, sem síðan reyndist vera 20 punda

Maríulax. Hvar ætli Jónas litli sé í dag?

Síðan er löng tala um Mývatn, Goðafoss,

Kröflu og hrifningu gestanna á því sem

fyrir augu bar, enda flestir eða allir að

koma til landsins í fyrsta skipti og þá

kemur vissulega margt mönnum spánkst

fyrir sjónir.

89

Ekki ætlum við að rekja textann nánar,

en leyfum myndunum frekar að tala

sínu máli, en þær eru skemmtileg

heimild um fyrri tíma á bökkum

íslenskra laxveiðiáa

Page 90: Veidislod 5. tbl 2012

90 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

Vínin sem passa best við villibráðinaVillibráð er á hátíðarborðum margra Íslendinga.

Aðallega er það rjúpa og hreindýr, en margir

eru einnig farnir að leggja sér til munns innflutta

villibráð á borð við elg, hjört og fleira í þeim dúr.

Þá nota margir laxfiska frá liðinni vertíð í forrétti

þannig að villibráðin ræður algerlega ríkjum.

Við gerum ráð fyrir því að eldamennskan sé

meira og minna fastmótuð hjá flestum, en

menn eru margir hverjir frekar tilbúnir að gera

breytingar þegar kemur að því að velja hvað

skal drekka með villibráðinni. Í Villibráðareldhúsi

Veiðislóðar að þessu sinni ætlum við því að benda

á heppileg borðvín með villibráðinni og fengum

við til þess vínspesíalista frá tveimur af stærri

innflutningsaðilunum á víni, RJC (Rolf Johansen)

og Bakkusi.

Hér fara á eftir tillögur þeirra m.t.t. hvað er á

borðum og lýsing á hverjum drykk, eiginleikum

þeirra og gæðum, njótið vel.

villibráðareldhúsiðvillibráðarvínin

Sartori Amarone

Amarone er toppurinn á vínunum frá Valpolicella-héraðinu utan við Verona á Ítalíu. Þrúgurnar eru þær sömu og í hefðbundnum Valpolicella en í stað þess að pressa þær strax eftir tínslu eru þrúgurnar sem notaðar eru í Amarone-vínin þurrkaðar í um þrjá mánuði.

Sartori Amarone 2008 hefur angan af trönuberjum, kirsuberjum og dökku súkkulaði, nokkuð eikað. Það hefur mjúka, þægilega áferð, ferska sýru og ágætis lengd

Bestu kaupin á Amarone í vínbúðunum.

3.750 krónur

Page 91: Veidislod 5. tbl 2012

La Planta

Bodegas Arzuaga er tiltölulega ungt vínhús í einu helsta gæðahéraði Spánar, Ribera del Duero. Það var stofnað árið 1993 af Arzuaga Navarro fjölskyldunni sem keypti ekrur við hlið Vega Sicilia, þektktasta vínhúss Spánar.

Bestu víninin frá Arzuaga eru þung og mikil Ribera-vín í klassískum stíl en fjöl-skyldan hefur jafnframt sett á markað vínið La Planta sem er Tempranillo í mjög nútímalegum stíl.

Vínið er mjög dökkt, eikin áberandi með vanillu og púðursykri. Kröftugur og massívur sólbetjaávöxtur, nokkuð kryddaður.

2.599 krónur. Mjög góð kaup.

Marques de Riscal Reserva

Marques de Riscal er eitt af þeim Rioja-vinum sem eiga sér hvað lengsta sögu á íslenska markaðnum enda er um að ræða eitt helsta vínhús svæðisins. Vín-hús á sér langa sögu og er eitt af þeim vínhúsum svæðisins sem blómstruðu í kjölfar þess að tækni og víngerðarmenn streymdu til Rioja frá Bordeaux á síðari hluta nítjándu aldar.

Reserva 2006 er klassískur Rioja, þrosk-aður ávöxtur og mikil eik, í nefi leður, kandís, vanilla og reykur í bland við mjög þroskaðan rauðan ávöxtinn.

3.399 krónur.

Tavernelle Cabernet Sauvignon 2006

Castello Banfi er með bestu vínhúsum Montalcino en auk þess að framleiða afbragðsgóðan Brunello gerir vínhúsið nokkur önnur einstaklega frambærileg vín úr „erlendum“ þrúgum. Tavernelle er hreint Cabernet Sauvignon, þrúgurnar ræktaðar á hæð við þorp með sama nafni syðst í Montalcino.

Þetta vín sýnir og sannar að Cabernet á svo sannarlega erindi á þessu rækt-unarsvæði. Dökkt og djúpt á lit, lítið farið að sýna aldur. Angan af eik, tóbaki og dökkum berjum, mjög þroskuðum sólberjum og bláberjum. Þarna er líka kaffi og angan af kryddi. Í munni öflugt og þéttriðið, kröftug en mjúk tannín, góður bragðmassi, nokkuð kryddað. Flottur Cabernet úr heitu loftslagi, með ítölskum elegans. Enn töluvert ungt, á mörg góð ár eftir.

Þetta er vín fyrir góða steik, manni dettur í hug T-Bone eða Ribeye. Hvers vegna ekki nautasteik Fiorentina að hætti þeirra í Toskana? Einnig með þurrum ostum á borð við Parmigiano.

3.799 krónur. Góð kaup.

91

Page 92: Veidislod 5. tbl 2012

92 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

Með laxi

Bernard Defaix Chablis 2011

Vín frá Chablis eru flokkuð gæðalega eftir staðsetningu ekranna. Einföldust eru Petit Chablis og algengust eru Cha-blis. Bestu vínin koma svo af tilteknum ekrum sem bera nöfn og eru kallaðar Premier Cru og Grand Cru. Skarpt þétt, sýrumikið. Sítrónubörkur, sætur greipávöxtur, smjör og möndlur.

2.795 krónur. Mjög góð kaup.

Með laxi

Dr. Loosen Riesling Gray Slate 2011

Riesling vín frá Moseldalnum í Þýska-landi, þetta er vín úr smiðju Ernst Loosen sem kosinn var víngerðarmaður ársins hjá hinu virta víntímariti Decanter árið 2005, hálfsætt vín en afar ferskt , sítrus epli og blóm.

1.795 krónur. Mjög góð kaup.

Fordrykkur

Ferrari Maximum Brut

Ferrari Maximum Brut er hið sígilda flaggskip Lunelli-fjölskyldunnar. Hreint Chardonnay-freyðivín, tært og brakandi ferskt. Ristað brauð, ger, brioche og hnetur í nefi. Frábærlega uppbyggt, stendur góðum kampavínum ekkert að baki en kostar töluvert minna.

4.250 krónur.

Page 93: Veidislod 5. tbl 2012

Villibráð/hreindýr og gæs

Grant Burge Miamba Shiraz 2009

Grant Burge Miamba Shiraz er nánast dökkt sem blek, mjög kröftugt með þykkum vanilluhjúpuðum krækiberja-safa, þarna er kókos og súkkulaði og þroskaður og massaður svartur ávöxtur. Feitt og langt í munni. Hörkuvín, með þeim betri í sínum verðflokki.

3.350 krónur. Góð kaup.

Villibráð/rjúpa og önd

Isole e Olena Chianti Classico 2010

Vín úr smiðju Paolo di Marchi í Toskana en hann er sannkallaður galdramaður með sangiovese þrúguna. Hér er einn af hans bestu árgöngum af Isole e Olena Chianti Classico. Mikill karakter í þessu víni, fínleiki og bragðlengd. Dökk ber og ávextir, krydd. Þetta vín fékk frábæra dóma í Decanter nýverið en þar skoraði það hæst allra Chianti vína sem smökkuð voru.

3.650 krónur.

93

Villibráð/fuglar

GD.Vajra Nebbiolo Langhe 2009

Og hér nýtur Nebbiolo-þrúgan sín svo sannarlega, hreint og kraftmikið vín. Dökk ber, mjög þroskuð kirsuber og sólber, kryddað með þykkum ávexti, leður og örlítill vottur af ekvalyptus. Nokkuð tannískt en fínlegt og elegant, þarf helst að mýkja með umhellingu í karöflu nokkru áður en borið er fram. Engu að síður Nebbilo sem nýtur sín vel nú ólíkt stóru Barolo-vínunum sem þurfa yfirleitt ansi mörg ár til að toppa,

3.695 krónur.

Page 94: Veidislod 5. tbl 2012

veiðihundar

Margt hægt að gefa besta vininum í jólagjöf Á jólum má ekki gleyma hundinum. Þetta eru bráðvitrar skynsemdar verur og þeir vita hvað klukkan slær. Hundar elska að fá gjafir fyrir utan að vera með afbrigðum forvitnir. Fjölskyldumeðlimur má ekki koma heim frá útlöndum með ferðatösku að Hvutti sé ekki mættur, vitandi að í töskunni leynast gjafir. Og hvað hann óskar þess að hann fái eitthvað!

Við heyrðum í Einari Páli Garðarssyni í

hundabúðinni Bendi í Kópavogi og það

var að heyra að þar sem hann þekkti til

þá gleymdist sá ferfætti ekki og í búðinni

kennir margra grasa. Það er margt sem

hægt er að gefa hundinum í jólagjöf, en

eins og Einar Páll orðaði það, þá má skipta

jólagjöfum hunda í tvo megin flokka.

Annars vegar einfaldar gjafir þar sem

hundurinn fær eitthvað sem hann ræður

vel við að opna sjálfur og étur síðan, og

síðan praktískari gjafir þar sem hundur-

inn eignast eitthvað eins og t.d. nýtt bæli,

nýjan bakpoka eða eitthvað þvíumlíkt,

og jafnvel eitthvað sem hann rétt fær að

snuðra af áður en því er skellt inn í skáp

til geymslu þangað til að notagildi þess

rennur upp. Þá má segja að um sé að ræða

gjöf sem gagnast báðum hundaeiganda

og hundi. Til að jólin verði fullkomin fyrir

hundinn er líklega best að hann fái gjafir

af báðum sortum.

Einar Páll benti á nokkrar sniðugar

jólagjafir handa hundinum og benti fyrst

á neoprene vesti frá Dokken sem allir

veiðihundar þurfa að eiga, sérstaklega

þeir sem eru mikið í skurðum og vatni,

enda eru vesti þessi sniðin til að verja aðal

líffæri hunda, lungu, hjarta, nýru o.s.frv.

Hann benti og á annað slíkt vesti, svo-

kallað Flecta hitavarmavesti frá Petlife, en

þar er á ferðinni vandaður og vatnsheldur

hlífðarfatnaður með varma eiginleikum.

Á milli innra og ytra lags er Flectalon

aluminum einangrun, en filman endur-

veiðihundarEinar Páll Garðarsson

Bæli

Bakpoki

Neoprene vesti frá Dokken

Önd

Page 95: Veidislod 5. tbl 2012

95

Margt hægt að gefa besta vininum í jólagjöf Á jólum má ekki gleyma hundinum. Þetta eru bráðvitrar skynsemdar verur og þeir vita hvað klukkan slær. Hundar elska að fá gjafir fyrir utan að vera með afbrigðum forvitnir. Fjölskyldumeðlimur má ekki koma heim frá útlöndum með ferðatösku að Hvutti sé ekki mættur, vitandi að í töskunni leynast gjafir. Og hvað hann óskar þess að hann fái eitthvað!

kastar allt að 95% af líkamshita sem leitað

hefur burt aftur niður að líkamanum. Gott

endurskin er á hliðum jakkans og má þvo

hann í þvottavél á 40°.

Þá dró Einar fram skemmtilega gerviönd

sem má einnig fá sem rjúpu ef því er að

skipta. Leikfang þetta er framleitt í Banda-

ríkjunum og Einar Páll lýsti fyrir okkur

sérstökum eiginleikum þessa leikfangs.

„Öndin er rosalega sniðug, Ameríkanarnir

sem hönnuðu hana voru með allt á hreinu.

Þannig er mál vexti, að höfuð og fætur

andarinnar eru grjóthörð en miðstykkið er

úr mjúku fómi. Aftast er síðan spotti með

kúlu. Þannig er öndin auk þess að vera

leikfang, kennslutæki í því hvernig hund-

urinn á að taka rétt í bráð því ef maður

kastar öndinni í vatn og hundurinn sækir,

þá grípur hann um mjúku miðjuna og ef

hann ætlar að hrista sig ferlega umleið og

hann kemur uppúr, þá slást hörðu hlutar

andarinnar í hann. Hann á nefnilega að

skila fyrst, hrista sig svo, þannig að þetta

kennir honum að losa sig við öndina áður

en hann hristir af sér vatnið.“

Og Einar heldur áfram: „Nú, nýtt bæli er

klassísk gjöf handa hundi og þarf ekki

nein orð um það. Sama má segja um

bakpokann sem við erum með, hann er

gríðarlega góð gjöf handa hundi. Hundur

á að geta borið þriðjung þyngdar sinnar

og ef maður fer út að ganga með hundinn

og hann er bara í ól, þá fær hann ekkert

út úr því annað en frískt loft og hundinn

vantar alla útrás. Setji maður hæfilega

þyngd í slíkan bakpoka og fer síðan í

hálftíma göngutúr, þá vinnur hundurinn

og hann verður þannig miklu sáttari því

hann er að gera skyldu sína með því að

vinna. Loks er það sambyggða flautan og

ljósið. Nefni það síðast því það er kannski

meira fyrir hundaeigandann. Þetta er lítið

og nett verkfæri, en getur skipt sköpum

og eflaust bjargað lífi ef því er að skipta.

Þetta þolir 40 stiga frost, 50 stiga hita

og 100 metra dýpi. Ljósið sést í þriggja

mílna fjarlægð og flautan sjálf nær 110

desíbelum.“

BendirVERSLUN MEÐ HUNDAVÖRUR

511-4444 www.bendir.is

Ljós og flauta Kong Classic

Page 96: Veidislod 5. tbl 2012

96 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

Kafli úr árbókinni

VÖTN & VEIÐI Stangveiði a Íslandi 2012

Í Stangaveiðiárbókinni Vötn og Veiði 2012 eru að venju kaflar þar sem lýst

er viðskiptum okkar við nokkur valin forvitnileg veiðisvæði. Hér birtum

við einn kaflann sem er skrifaður af Einari Fal Ingólfssyni ljósmyndara og

blaðamanni um heimsóknir hans á vit sjóbleikja í Vatnsdalsá í Húnaþingi.

Auk þess skrifa all margir veiðimenn og konur pistla um hápunkta

veiðisumra sinna og má þar nefna Sigurð Árna Sigurðsson, Ragnar Hólm

Ragnarsson, Mjöll Daníelsdóttur, Ragnheiði Thorsteinsson, Árna Friðleifsson

og marga fleiri svo einhverjir séu nefndir að öðru ólöstuðum.

Þá prýða bókina að vanda mikill fjöldi ljósmynda sem eru bæði af kátu

veiðifólki á góðum stundum og magnaðar stemmingar af bökkum

vatnanna. Þess má og geta, að þetta er 24. árið sem árbók þessi kemur út í

einni mynd eða annarri og má því segja að næsta ár eigi bókin stórafmæli.

bækurVötn & veiði

Page 97: Veidislod 5. tbl 2012

97

Það þarf mikið að ganga á til að Vatnadalsá verði nánast óveiðandi, en í haust upplifði ég það í fyrsta skipti. Við kom-um til veiða í septemberhollið okkar á laxasvæðinu daginn eftir að slotaði sannkölluðu hamfaraveðri, sem barið hafði á norðurlandi. Bændur og björgunarsveitamenn héldu til fjalla, eða bara á heimatúnin, að leita þúsunda fjár sem grafist hafði í fönn eða hrakist í skjól undan veðurofsanum, en við söfnuð-umst saman tólf veiðimenn í veiðihúsinu Flóðvangi þar sem hrímhvítt Jörundarfellið blasti við okkur og eftir dalnum flæddi Vatnsdalsá bólgnari og skolaðri en við höfðum nokkru sinni séð hana. Fyrir neðan brúna á hringveginum flæddi hún yfir bakka sína og yfir úthagana á stóru svæði. En þótt áin væri þetta mikil, og ísköld af allri þessari snjóbráð, þá hvarflaði ekki annað að okkur en að leita að fiskum. Þótt laxinn kynni að vera rólegur í þessu kalda vatni, og hafa leitað á ólíklega staði í flóðinu, þá vissum við að það væri gríðarmikið af vænum sjóbirtingi og sjóbleikju á svæðinu og það mætti alltaf reyna að finna hvar silungurinn héldi sig.

Þetta var þriðja og síðasta heimsókn mín með veiðistöng á laxasvæðið í Vatnsdal þetta sumarið. Eins og alkunna er þá var þetta ekki eitt af gjöfulustu laxveiðisumrum sem fregnir fara af, þvert á móti, og í þessari einstaklega fallegu veiðiá var minna að sjá af laxi en undanfarið, eins og víðast hvar annars-staðar. En samt var alltaf von á góðri veiði þar í sumar; ég hef nefnilega ekki síður gaman af að eltast við vænan silung en laxinn, og svo býður Vatnsdalsá upp á allt sem gleður mitt

veiðimannshjarta: náttúrufegurð, ríkulega sögu og fjölbreyti-leikann, urriða, bleikju og laxinn – sem getur orðið afar stór þar eins og menn vita.

Ég er einn af þeim sem nýt þess að þekkja veiðisvæði betur og betur, að koma að þeim aftur og læra sífellt betur hvernig fiskarnir haga sér á ólíkum tímum og við ólíkar aðstæður. Á undanförnum árum hef ég þannig kynnst Vatnsdalsá býsna vel, laxa- og silungasvæðunum, og hef lent í allnokkrum eftir-minnilegum ævintýrum – ekki síst í silungsveiði á laxasvæð-inu. Og nokkur þeirra gerðust á þessu sumri þegar laxinn varð svo liðfár.

Í nokkur ár höfum við þrír félagar, Sigurður Árni Sigurðs-son og Þórsteinn J. Vilhjálmsson auk mín, unnið að bók um ána og umhverfi hennar. Við þá vinnu hefur tilfinningin fyrir sögu svæðisins og náttúrunni dýpkað enn meira og styrkst, og þegar ég fer þar um með stöng auk myndavélar hefur ég reynt að veiða sem víðast og kanna sem mest. Í flóðunum í haust fannst mér ég búa að þeirri nálgun, auk þess sem ég upplifði náttúruna í alveg nýjum ham að hausti.

Sumarið 2011 þótti heimamönnum sjóbleikjan vera furðu seint á ferðinni; þrátt fyrir að stöku vænir fiskar hafi verið að veiðast fram eftir sumri komu torfurnar ekki fyrr en um um miðjan ágúst af einhverjum krafti. Þá var ég ásamt Steen Johanssyni við veiðistaðinn Bleikjufljót í Forsæludal, við óðum út og ætluðum að reyna fyrir okkur á sama tíma og ég var að taka við hann viðtal. Skyndilega lægði þar sem

Bleikjuævintýri í Vatnsdal

Dökkur sjóbleikjuhængur úr Húnaþingi. Myndir með grein: Einar Falur Ingólfsson.

Page 98: Veidislod 5. tbl 2012

98 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

Steen var að gera sig kláran til að kasta, og sólargeisli braust gegnum ský. Þá blasti við okkur undursamleg sjón. Það voru bleikjur um alla breiðu og engir smáfiskar. Mikið 2 til 5 pund, giskuðum við á. Steen kastaði straumflugu og var innan skamms búinn að landa tveimur vænum. Þá hnýtti ég Krók á stuttan taum og kastaði uppfyrir mig, þar sem braut á steini: tvö köst gáfu tvær bleikjur, ekki minni. Þá settumst við við niður á bakkann og nutum þess að spjalla og horfa á dýrðina niðri við botn.

Sumarið 2012 gekk bleikjan fyrr á laxasvæðið í Vatnsdal, og kannski má segja sem betur fer, því þá gladdi hún margan veiðimanninn í laxaleysinu. Og stórir og gríðaröflugir birt-ingar tóku að birtast í mörgum hyljanna þegar leið á sumarið, allt að átta og níu punda fiskar í bland.

Við Þorsteinn J. veiddum fyrst á svæðinu snemmsumars og þá voru fallegir laxar teknir að veiðast á neðra laxasvæðinu, í Hnausastreng neðan flóðs, en uppi í dal fengum við afar fallegar bleikjur. Þorsteinn hefur verið að gera kvikmynd um ána og fannst hann vanta myndir af bleikjuveiði. Ég lagði til að við færum á einn af mínum eftirlætisstöðum, Efri-Ármót þar sem þveráin Álka sameinast Vatnsdalsá. Þar hnýtti ég hinn gamalreynda Krók á tauminn og var á skömmum tíma búinn að setja í og kljást við þrjár fallegar og sprettharðar nýgengnar bleikjur. Þorsteinn fékk strax þau myndbandsskot sem hann þurfti.

Seinna þessar vaktir fengum við fleiri sjógengna silunga á veiðistöðum þarna á miðsvæðinu, meðal annars bleikjur sem lágu í furðu hröðum straumi í Árnahyl en Þorsteinn komst upp á lagið með að fá þær til að taka.

Seint í júlí var ég aftur komin í Vatnsdal þeirra erinda að taka viðtal við gamalreyndan bandarískan veiðimann, sem kemur árlega þangað ásamt stórum hópi félaga sinn. Ég var mættur norður í býtið og við ræddum lengi saman yfir kaffi-bolla, auk þess að fara í bílferð um nágrennið. Þetta var síðasti morgunn hópsins og þeir hættu snemma að veiða, þurftu að halda suður að ná flugi. Þegar við kvöddumst um tíuleytið, spurði viðmælandinn: „Ertu ekki með stöngina þína?“

„Jú,“ sagði ég hissa, „hún er nú skottinu allt sumarið.“„Fínt,“ sagði hann. „Við erum með ána til klukkan eitt,

leiðsögumennirnir ætla að veiða Hnausastreng en það er eng-

inn uppfrá. Þú hefur svæðið út af fyrir þig. Reyndu nú að ná einhverju.“

Ég gat ekki annað en þakkað kærlega fyrir og þegar veiði-mennirnir beygðu til norðurs, í átt að hringveginum, þá stefndi ég suður dalinn með kitlandi veiðiskjálfta í skrokknum: ég ætlaði ekki á frægar laxaslóðir heldur beint á bleikjuslóð. Ók að miklum eftirlætisstað, þar sem von er á silungi allt sumarið, læddist þar fram á eyrina því fiskurinn getur legið ansi nærri og byrjaði að kasta. Eftri fjörutíu mínútur var ég búinn að fá nóg, og þvílík skemmtun! Fyrstu sex bleikjurnar hirti ég, og þær voru allar vænar. Þá tóku tvær minni sem ég sleppti, og síðan fjórar „kusur“ til. Þeim gaf ég einig líf. Þetta var ævin-týralegt og ég var líka búinn að fá nóg af silungi og kominn tími til að reyna við laxinn í tvo tíma. Ég ók þá inn Forsæludal, skyggndi Stekkjarfoss og sá tvo smálaxa á brotinu, kastaði þremur flugum fyrir þá, án árangurs, og gekk þá þennan kíló-meter inn þröngt gljúfrið þar fyrir ofan, að Dalsfossi. Þegar ég fór meðfram rennunni þar sem fellur úr Djúphyl sá ég nokkra laxa en ákvað að hvíla staðinn ef þeir hefðu séð mig og gekk inn að fossi. Þar kastaði ég um stund í fosshylinn og við Neðri-Stein, og varð ekki var, en renndi mér þá varlega niður brekkuna að Djúphyl. Þar reyndi ég nokkrar flugur í rennunni en sá þá í tvígang lax sýna á sér bakið til hliðar við mig, aftast í

bækurVötn & veiði

Þorsteinn J. Vilhjálmsson að þreyta bleikju í Árnahyl í Vatnsdalsá.

Page 99: Veidislod 5. tbl 2012

99

sjálfum hylnum. Ég var með litla Black-and-blue undir, kast-aði henni þvert á hylinn og dró hratt að mér. Laxinn negldi hana í fyrstu tilraun og dansaði síðan trylltur um í nokkrar sekúndur áður en hann losnaði af. Mér var slétt sama, þetta hafði verið óvænt og frábær þriggja stunda veiðiferð.

Síðasta heimsókn sumarsins á laxasvæðið í Vatnsdal var síðan strax þarna eftir norðan áhlaupið í september. Þá var félagi minn Helgi Þorgils Friðjónsson með mér á stönginni, hans fyrsta heimsókn á laxasvæðið og aðstæður svo sannarlega ekki eins og maður hafði vonast til. En ég ætlaði að kynna hann fyrir dalnum og allir ætluðu veiðimennirnir að veiða; verkefnið var að finna fiska í þessum kalda og brúna flaumi.

Það var erfitt, ekki síst til að byrja með. En daginn áður en við komum, í hörku gaddi og byl, hafði veiðimönnunum sem voru á undan okkur auðnast að draga eldrauðan stóran hæng upp úr Þórhöllustaðahyl. Það sýndi okkur að þetta var mögulegt við þessar aðstæður.

Lax gaf sig ekki fyrstu vaktirnar en á nokkrum stöðum tók hinsvegar sjóbirtingur, hann var greinilega viljugastur við þessar aðstæður. Og það var til að mynda mikið af honum í Hólakvörn, þar sem hann skvetti sér og bylti, og tók stundum flugurnar með látum. Hnausastrengur var hinsvegar svo til

óveiðandi, þar sem vatnið flæddi yfir bakkana og upp að plötunni á borði sem þar er fyrir veiðimenn að sitja við. Efsti hluti árinnar var líka óveiðandi, gilið fyrir ofan og neðan Stekkjarfoss, þar sem straumbeljandinn var ógnvekjandi, og Álka var eins og ískaldur kakóvellingur á að líta; bar með sér krapa og gróður. Það var helst miðsvæðið sem við einbeittum okkur að og eins og fyrr segir, tóku af og til birtingar, en stóra spurningin á vörum okkar veiðimannanna þegar við hittumst var sú sama: hvar er bleikjan? Við vissum að það var mikið af henni í ánni, en hvar var hún við þessar aðstæður?

Einhverjir tóku eftir því að á meðan allir lækir og þverá sem féllu niður í dalinn voru skolaðir, þá var ein undantekn-ing. Gilá var vissulega meiri en sú spræna sem hún er allajafna á sumrin, en hún virtist tær.

Á haustin er veitt á sex stangir á laxasvæðinu, tvær saman á svæði, og þegar við Helgi Þorgils áttum efri hluta mið-svæðisins á þriðju vakt, þá lögðum við bílnum við Línufljót, þar sem við reyndum fyrst fyrir okkur, og ákváðum að ganga síðan niður með ánni, niður að Gilárós að austan. Ég vildi at-huga hvort það gæti verið að fiskurinn safnaðist ekki saman á þessum eina stað sem við vissum um með tæru vatni á svæð-inu; það hlyti að vera vænlegt, rétt eins og að veiða í skilum fersk- og jökulvatns í Skaftafellssýslunum.

Bleikjan komin á land.

Page 100: Veidislod 5. tbl 2012

100 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

Á þessari leið tekur hver fallegi veiðistaðurinn við af öðrum, og þeir voru líka vænlegir í þessu flaumi, sem þó dró nú heldur úr. Ásbrekkuhylur, Hornafljót, Forsetahylur; við urðum ekki varir. Þegar við gengum með kyrru síki fyrir ofan Forsetahyl sprakk vatnsflöturinn og vænir fiskar ruddust burt eftir að hafa orðið okkar varir. Í Neðri-Búbót höfðu veiðst sjóbirtingar dag-inn áður og þar fékk Helgi einn lítinn. En ég var spenntur að skoða Gilárósinn og það var rétt sem sagt hafði verið; lækurinn var mikill og tær, og myndaði svona tuttugu metra löng skil meðfram malareyri, áður en skolið tók aftur yfir. Ég var með sökkenda á línunni og litla þýska Snældu á taumnum, en hún hefur oft reynst vel þegar ég leita að fiskum, öllum tegundum. Og ég var varla byrjaður að kasta efst í skilin þegar rifið var í, alveg við bakkann. Sá fiskur lak strax af og spenntur kastaði ég stax aftur, stutt út í straumskilin og dró hægt að bakkanum. Hann var á um leið, falleg bleikja. Og skömmu síðar önnur, en svo komu nokkur árangurlaus köst. Þá tísti síminn í vasa mínum og í honum voru skilaboð frá félögum okkar neðar á svæðinu, að þeir væru búinir að landa 75 cm sjóbirting og 84 cm laxahrygnu í Vaðhvammi. Slepptu báðum eftir myndatöku. Það var eins og tökustundin væri komin.

Helgi Þorgils kastaði Bleikri-og-blárri straumflugu og fékk bleikju nánast strax; hann hefur lengi stundað stangveiði

en starði á þennan 57 cm fisk, hafði aldrei fengið svona stóra bleikju fyrr. Kastaði aftur, æði kappsamur, og flugan flaug yfir meginstrenginn. Þar sem hún barst aftur yfir að bakkanum til okkar, þar sem bleikjurnar voru í ferska vatninu, var rifið í og línan rauk út af hjólinu á ofurhraða. Það gat ekki verið bleikja enda hreinsaði stór lax sig upp úr ánni langt fyrir neðan og losnaði af þegar hann skall aftur niður. Helgi dró inn, bölv-andi en æstur, kastaði strax aftur og þá tók bleikja.

Þannig gekk þetta í hátt í klukkustund, annar lax gerði ekki vart við sig, en við höfðum fundið bleikjurnar og vorum lentir í veislu. Ég skipti yfir í appelsínugulan nobbler og fékk töku eftir töku, missti sumar, og hélt öðrum. Nokkrum sleppti ég en stórum bleikjunum fjölgaði á bakkanum og þegar þær voru orðnar fjórtán fannst okkur vera komið nóg, enda ætl-uðum við að hitta félagana við gamla félagsheimilið Móhellu og borða hádegismat saman. Bleikjurnar fylltu laxaslönguna okkar og við skiptumst á að bera hana á herðunum, aflinn seig í. Helgi Þorgils hafði aldrei lent í viðlíka bleikjuævintýri – mig grunaði að hann hafi jafnvel ekki trúað sögum mínum um slík aflabrögð. En nú veit hann að ég lýg ekki þegar norðlensku stórbleikjuna ber á góma.

bækurVötn & veiði

Pattaralegir sjóbirtingar eru einnig í boði.

Page 101: Veidislod 5. tbl 2012

101

Sigurður Árni Sigurðsson með fallegan sjóbirting úr Vatnsdalsá.

Page 102: Veidislod 5. tbl 2012

102 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

græjur ofl.

Hrygnan býður nú upp á fínasta úrval af veiðitöskum frá Vision. Hönnuðir Vision hafa unnið heimavinnuna sína, því nýju töskurnar eru úr þynnra og mýkra vatnsheldu efni en fyrri týpur. Þá eru nýir litir. Töskurnar hafa netvasa bæði innan og utan á og auðvelt er að hengja hluti á

Hrygnan býður nú upp á snjalla jólagjöf fyrir stangaveiðimann-inn hvort heldur hann er vanur eða óvanur. Hægt er að kaupa „sérvalin“ fluguböx, ýmist með 10 flugum eða 20 flugum og ýmist bara í silung eða bara í lax, nú eða blandað, allt eftir óskum viðskiptavina.

Eigendur Hrygnunnar hafa sett upp sérdeilis glæsilegar og smekklegar veggskreytingar í versluninni og má segja að það sé heimsóknarinnar virði í verslunina þó ekki ætti annað að gera en að skoða listaverkin. Umrædd verk eru neðan-vatnsborðsmyndir eftir Rík-harð Hjálmarsson. Ríkharður er þekktur fluguveiðimaður og aflasæll með afbrigðum. En fyrir nokkrum misserum var hann heltekinn ljósmyndadellunni og

axlarólarnar og D-hringina. Áföst vatnsheld ábreiða toppar síðan töskurnar og fljótvirkar smellur opna og loka þeim. Kíkið á úr-valið, það svíkur ekki og verðið er afar hagstætt.

Flugurnar eru sérvaldar af sér-fræðingum Hrygnunnar og er óhætt að segja að fiskar jafnt sem veiðimenn muni eiga erfitt með að standast það flugnaúrval sem í boði er.

hefur í vaxandi mæli einbeitt sér æ meira að því að festa vatna-búana á filmu. Þeir sem þekkja hann þekkja einkum myndir úr Þingvallavatni, Hlíðarvatni og Brynjudalsá, en sjón er sögu ríkari, hér er um stórglæsilegar ljósmyndir að ræða.

Ný töskulína frá Vision – Hrygnan

Sérvalin flugubox Hrygnunnar

Glæsileg sýning í Hrygnunni

Page 103: Veidislod 5. tbl 2012

103

græjur ofl.

Korkers vöðluskórnir er skrefi framar en aðrir vöðluskór á markaðnum, enda eru þeir mjög vinsælir meðal þeirra sem vita hvað þeir vilja. Þeir eru reimalausir, í stað reima er vír og strekkihjól. Þetta er sama kerfi og er á snjóbrettaskóm og hefur þetta löngu sannað sig sem mjög öruggt „reima“ kerfi. Með þessum hætti er mun fljótlegra og auðveldara að klæða sig í og úr skónum auk þess sem þú losnar við að slíta reimarnar í vöðluskónum eins og vill gjarnan gerast með hefðbundna reimaða vöðluskó.

Hægt er að fá gjafabréf á nám-skeið í fluguhnýtingum, flugu-köstum og svo verður haldið nýstárlegt ljósmyndanámskeið fyrir veiðimenn.

Hnýtinganámskeiðin verða haldin í verslun Veiðiflugna í vetur, og boðið verður upp á nokkur fjölbreytt námskeið sem hægt er að velja úr. Vinsælast er alltaf byrjendanámskeiðið í silungaflugum, en einnig er hægt að skrá sig á framhalds-námskeið þar sem farið er í laxaflugur og túpur og að lokum verður haldið sérstakt námskeið í þurrfluguhnýtingum. Óskar Páll Sveinsson og Tommi Za sjá um hnýtinganámskeiðin.

Næstkomandi vor verða svo haldin geysivinsæl námskeið í fluguköstum. Námseiðin eru tvenns konar: annars vegar einhendu og svo tvíhendu. Klaus Frimor er kennari á námskeið-unum. Klaus er þekkt nafn í fluguveiðiheiminum en hann er einstaklega fær kastari og góður

Korkers skórnir eru með skiptan-legum botnum. Með skónum fylgja tvö sett af botnum, annars vegar gúmmíbotnar og svo negldir gúmmíbotnar. Hægt er að fá aukalega neglt filt fyrir þá sem kjósa það. Korkers skórnir fást hjá veiðiflugum á Langholts-vegi 111

kennari sem nær vel til fólks. Námskeiðin hjá Klaus henta öllum, hvort sem menn eru vanir eða óvanir. Með kastnámskeiði hjá Klaus fylgir DVD diskur þar sem Klaus sýnir grunnreglurnar í fluguköstum svo auðvelt er fyrir menn að rifja upp það sem fram kemur á námskeiðinu.

Minningar okkar eru best geymdar í formi ljósmynda og flottar veiðimyndir eru ómetan-legar í minningabankanum okk-ar. Þess vegna bjóða Veiðiflugur nú námskeið í veiðiljósmyndun. Sigurjón Ragnar ljósmyndari fer yfir tæknilegu atriðin og reglur í ljósmyndun og Hilli Hans verður honum innan handar. Hilli er þekktur fyrir flottar „fiska pósur“ og mun meðal annars sýna mönnum nokkur trikk í þeim efnum. Virkilega flott námskeið sem hentar öllum veiðimönnum.

Korkers vöðluskór – Veiðiflugur

Jólagjöf ... Gjafabréf á námskeið – Veiðiflugur

Mynd Sigurjón Ragnar.

Page 104: Veidislod 5. tbl 2012

104 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

græjur ofl.

Í Veiðihorninu Síðumúla 8 eru margar gerðir af vöðlum fyrir veiðimenn og konur á boðstólum. Simms hefur um langt árabil skapað sér það nafn að vera áreiðanlegasta merkið þegar kemur að vöðlum og veiðifatnaði. Allar Simms Gore-tex vöðlur eru handgerðar í Bozeman, Montana í Bandaríkj-unum og hvert par er lekaprófað áður en varan er send í verslanir.

Simms er ávalt fyrsti valkostur vandlátra veiðimanna þegar gera þarf kröfur til hlífðarfatnaðar.

Simms vöðlur eru fáanlegar á breiðu verðbili eða frá 39.900. Simms vörurnar fást í Veiðihorn-inu Síðumúla 8 og Veiðibúðinni við lækinn í Hafnarfirði en einnig í veiðibúðinni á netinu www.Veidimadurinn.is

Smekkbuxur og jakki á ómót-stæðilegu verði. Settið er fóðrað, vatnshelt og með útöndun. Góð hetta er á jakkanum sem er með stillanlegri teygju í mitti. Góðir vasar eru bæði á jakka og buxum. Buxurnar eru háar og með axlaböndum. Þessi skot-veiðigalli hefur nú verið fáan-legur á Íslandi í þrjú ár þannig að góð reynsla er kominn á

Allir veiðimenn verða að eiga reyksuðukassa. Auðvelt og fljót-legt er að töfra fram veislumáltíð með reyksuðukassanum hvort heldur sem hráefnið er fiskur eða kjöt. Kassarnir eru sterkir og úr ryðfríu stáli. Brennarar til að kveikja upp í saginu fylgja. Ron Thompson reyksuðukassar

hann í íslenskum haustveðrum. Felumynstrið er MAX4 sem fellur vel að haustlitum. Verðið er óviðjafnanlegt eða aðeins 29.995 fyrir þennan góða skotveiðigalla. Prologic skotveiðigallinn er fáan-legur í Veiðihorninu Síðumúla 8, Sportbúðinni Krókhálsi 4 og Veiðibúðinni við Lækinn í Hafn-arfirði en einnig í veiðibúðinni á netinu www.Veidimadurinn.is

hafa um langt árabil verið vinsæl gjafavara í Veiðihorninu. Beyk-isag í kassana er einnig fáanlegt í Veiðihorninu. Þessa vinsælu kassa og sagið má ennfremur fá í veiðibúðinni á netinu www.Veidimadurinn.is .

Simms Gore-tex vöðlur, skór, vesti og jakkar – Veiðihornið

Prologic Thermo skotveiðigalli – Veiðihornið

Ron Thompson reyksuðukassi – Veiðihornið

Page 105: Veidislod 5. tbl 2012

105

græjur ofl.

Flestir veiðimenn hafa á síðustu árum fært sig úr neoprenvöðlum yfir í öndunarvöðlur. Þessi þróun hefur orðið hröð á allra síðustu árum ekki síst vegna þess að í nú má fá gott úrval af vönduðum öndunarvöðlum á mjög við-ráðanlegu verði. Í Veiðihorninu Síðumúla 8 er hægt að velja úr fjölbreyttu úrvali af öndunar-vöðlum og skóm. Til þess að einfalda valið hafa starfsmenn Veiðihornsins sett saman nokkra vandaða pakka á verði sem á sér enga hliðstæðu. Hér eru fjögur dæmi um vandaða vöðlupakka frá Veiðihorninu.

a) Ron Thompson Hydrowave öndunarvöðlur og Scierra Contour skór með filtsóla. Traustur og vandaður pakki á afar hagstæðu verði. Það er góð reynsla af þessum pakka í á þriðja ár hér á landi. Pakkaverð aðeins 27.995

b) DAM Hydroforce öndunar-vöðlur og fisléttir en sterkir DAM skór með gúmmísóla. Vandaður pakki frá DAM í Þýskalandi. Vöðlurnar eru með góðum brjóstvasa og fylgir belti. Pakkaverð aðeins 27.995

Vinsæl úr sem eru sniðin að veiðimanninum. Úrin sem eru vatnsheld eru í nælu (karabínu) sem festist utan á jakka eða vesti. Angler II úrin sýna tvo tíma og eru búin ljósi, dagatali, hitamæli og áttavita. Úrin eru einnig með innbyggðu önglabrýni og þeim fylgir klippa fyrir girnið. Dakota útivistar- og veiðiúrin koma í vatnsheldu boxi. Dakota útivistar- og veiðiúrin fást í úrvali í Veiðihorninu Síðumúla 8 og í veiðibúðinni á netinu. www.Veidimadurinn.is

Líklega eru SLV fluguhjólin ein-hver þau mest keyptu á Íslandi á liðnum árum. Okuma SLV hjólin eru úr sterku áli. Hjólin eru með breiðum kjarna eða „large arbour“ sem gerir það að verkum að fljótlegt er að spóla inn slaka á línu auk þess sem minni hætta er á að lína hringist mikið á hjólinu. Bremsubúnaður hjólanna er góður og vel varinn fyrir salti og sandi í innsigluðu bremsuhúsinu.

Okuma SLV hjólin eru fáanleg í fjölmörgum stærðum eða frá línuþyngd 2/3 til 10/11.

Okuma SLV fluguhjólin eru fáanleg í Veiðihorninu Síðumúla 8, Sportbúðinni Krókhálsi 4 og Veiðibúðinni við Lækinn í Hafn-arfirði. Okuma SLV fluguhjólin eru einnig fáanleg í veiðibúðinni á netinu www.Veidimadurinn.is

Þykkar og hlýjar neoprenvöðlur í felumynstri. Steelshank stígvél með grófum sóla. Hné eru með styrkingu. Á vöðlunum er stór og góður brjóstvasi og þægileg, stillanleg neoprenaxlabönd

c) Scierra CC3 öndunarvöðlur og Scierra Contour skór með filtsóla. Margra ára reynsla við íslenskar aðstæður. Á þessum vöðlum eru engir innanfóta-saumar sem er kostur. Scierra skórnir sem eru fisléttir og sterkir eru með filtsóla. Pakkaverð aðeins 29.995

d) Simms Freestone öndunar-vöðlur og Simms Freestone skór með filtsóla. Vöðlurnar eru með fjögurra laga jap-anskri Toray öndunarfilmu en þetta er með betri öndunar-filmum á markaðnum. Skórnir eru úr sterku vinyl efni með góðum og stömum filtsóla. Frábært pakkaverð. Þennan Simms vöðlupakka færðu á aðeins 49.900 í Veiðihorninu Síðumúla 8, Sportbúðinni Krókhálsi 4 og Veiðibúðinni við Lækinn í Hafnarfirði en einnig í veiðibúðinni á netinu www.Veidimadurinn.is

Þetta eru aðeins örfá sýnishorn af þeim fjölda tilboða sem eru fáanleg í Veiðihorninu Síðumúla 8, Sportbúðinni Krókhálsi 4 og Veiðibúðinni við Lækinn í Hafnarfirði. Vöðlupakkarnir eru einnig fáanlegir í veiðibúðinni á netinu www.Veidimadurinn.is

með smellu. Fullt verð á þessum skotveiðivöðlum er 28.995 en þær eru nú á sérstöku jólatilboði aðeins á 19.995. Þessar vönduðu skotveiðivöðlur fást í Veiðihorn-inu Síðumúla 8, Sportbúðinni

Öndunarvöðlupakkar Veiðihornsins

Dakota Angler II veiðiúr – Veiðihornið

Okuma SLV fluguhjól – Veiðihornið

MAD neopren skotveiðivöðlur – VeiðihorniðKrókhálsi 4 og í Veiðibúðinni við Lækinn í Hafnarfirði en einnig í veiðibúðinni á netinu www.Veidimadurinn.is

Page 106: Veidislod 5. tbl 2012

106 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

græjur ofl.

Einhver albesta jólagjöf sem hægt er að gefa veiðimanni eru hlý og góð undirföt. Fá ef nokkur slá út Merinu ullina frá Simms, sem fæst í Veiðivon í Mörkinni.

Haukur í Veiðivon segir þetta það besta sem í boði er, mýktin sé undursamleg og engin slík föt sem hann hafi prófað á löngum ferli í veiðimennsku hafi betri rakastýringu og hitajöfnun. „Einfaldlega frábær vara,“ segir Haukur.

Þess má geta, að auk hinna sérstaklega fíngerðu trefja sem gefa flíkunum alla hina góðu eiginleika, þá er bæði hægt að þvo Merino ullina í vél eða í höndunum.

Veiðivon er fjölskylduvæn í meira lagi. Þar fæst veiðibún-aður fyrir alla aldurshópa. Meðal þess sem boðið er upp á eru veiðivesti á börnin, en þeim þykir fátt skemmtilegra en að finna að þau séu fullgildir meðlimir í veiðiferðinni. Vestin eru kennd við teiknimynda-persónuna Elias og eru fram-leidd hjá norska fyrirtækinu Elbe Normark. Þetta eru traust og góð veiðivesti með nógu mörgum vösum fyrir börnin, en stæðrirnar sem í boði eru henta allt frá 3 og upp í 6-8 ára.

Merino ullin frá Simms – Veiðivon

Elías barnavestin frábæru – Veiðivon

Page 107: Veidislod 5. tbl 2012

107

græjur ofl.

Sú var tíðin að menn horfðu agndofa á svissneska her-mannahnífinn sem öll sín margvíslegu blöð og græjur. Ekki skal dregið úr þeirri merku græju, en hún bliknar nú samt við hliðina á „fjölgræjunni“, Multitool frá Leatherman. „Mér brá eiginlega þegar ég kynntist þessari vöru. Það eru nokkrar útgáfur af þessum tækjum og það er hægt að gera nánast allt saman með þetta, allt frá því að stanga úr tönnunum og yfir í að gera við bílinn. Það er gríðarlega margt sem ein svona græja getur bjargað manni með, manni dettur það ekki einu sinni allt í hug,“ sagði Haukur í Veiðivon.

Veiðimenn og hnífar eiga alltaf samleið og hnífur er lítils virði nema að hann sé flugbeittur. Það er hálf sneypulegt aað vera kannski í veiðitúr og ætla að slægja og flaka nokkra silunga og átta sig þá á því að hnífurinn er bitlaus. Það er því ágætis dægrastytting heima fyrir að eiga gott brýni og passa uppá það að

veiðihnífarnir séu boðlega beittir. Í Veiðivon fást slík tæki, frábær hnífabrýni frá hinu leiðandi fyrir-tæki Work Sharp. Afar hagkvæmt eign fyrir alla veiðimenn.

Sjá hér myndband sem kynnir það í boði er >>>

„Fjölgræja“ eða hvað eigum við að kalla þetta? – Veiðivon

Work Sharp hnífabrýni – Veiðivon

http://youtu.be/N6GVHHNjMgE

Page 108: Veidislod 5. tbl 2012

108 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 5. tbl. 2012

græjur ofl.

Orvis kynnir til sögunnar „Orvis SonicSeam“ tæknina. Þetta eru einhverjar flottustu saumalausu vöðlur á markaðinum í dag. Þú helst þurr allan daginn. Þessi nýja Orvis SonicSeam tækni gerir það að verkum að nú eru ekki notaðir neinir þræðir eða saumar til að sauma vöðlurnar saman heldur eru þær soðnar saman með tvöfaldri vatnsvörn sem lengir til muna endingartíma þeirra.

Þessar vöðlur eru gerðar fyrir ýtrustu kröfur alvöru veiðimanna sem veiða allan veiðitímann. Neðri hluti þeirra eru gerðar úr 4 laga vatnsheldu öndunarefni, það sama og er í „Orvis Pack and Travel“vöðlunum en efri hlutinn er hannaður út frá 4 laga Orvis ProGuide vöðlunum og er sérlega léttur og þjáll. Þessi hönnun gefur þér möguleika á að lengja í axlarböndunum og gera vöðlurnar að mittisvöðlum án þess að taka axlaböndin af þegar heitt er í veðri. Vasi framan á vöðlunum er með rennilás sem er rúmgóður til að geyma t.d flugubox í, en til viðbótar er annar algjörlega vatnsheldur poki þar inn í til að geyma t.d

farsíma eða myndavél. Vöðlurnar eru með áföstum sandhlífum sem einnig eru festar á með Orvis SonicSeam tækninni. Sérstaklega var lagt mikið í að Neoprene sokkurinn myndi passa vel og er hann með skriðvörn undir til að draga úr núningi. Belti er á öllum vöðl-unum og lengjanleg axlabönd.

Orvis Silver Sonic vöðlur – Vesturröst

https://vimeo.com/46309723

Samantekt:

•OrvisSonicSeamtæknisemOrvisermeðeinkaleyfiá.

•4lagavatnsheldöndunarefni

•Vandaðurneoprensokkur

•Vatnsheldurinnrivasifyrirsímaofl.

•Áfastarsandhlífar

Nú er Veiðikortið 2013 að koma út en áætlað er að byrjað verði að dreifa því fyrstu viku desemb-ermánaðar, þannig að kortið verður klárt í jólapakka lands-manna. Byrjað er að selja kortið á vefnum www.veidikortid.is og verða pantanir sendar um leið og bæklingurinn kemur úr prentun.

Það er sérstaklega ánægjulegt að kynna Elliðavatnið inn sem nýjan mögulegan áfangastað fyrir veiðikortshafa við borgarmörkin. Auk Elliðavatns er heimilt að veiða í Hólmsá og Nátthagavatni.

Í Hólmsá verður þó einungis heimilt að veiða á flugu. Með tilkomu Elliðavatnsins í Veiði-kortinu verður ennþá auðveldara fyrir höfuðborgarbúa að skjótast í veiði t.d. fyrir eða eftir vinnu.

Vatnasvæðið í Svínadal, þ.e.a.s. Þórisstaðavatn, Geitabergsvatn og Eyrarvatn munu ekki vera í Veiðikortinu 2013.

Veiðikortið 2013 kostar aðeins 6.900 kr en verðið var búið að standa óbreytt síðustu 4 ár.

Elliðavatnið komið á Veiðikortið! – Veiðikortið

Page 109: Veidislod 5. tbl 2012

109

græjur ofl.

Við vorum svo spenntir að kynna nýju Helios 2 stöngina að við getum ekki beðið til vorsins með að frumsýna nýja myndbandið sem fylgir með þessum pistli. Meðfylgjandi myndband sem nú kemur fyrir sjónir íslendinga segir ekki allt sem hægt er að segja um nýju Helios stöngina svo við ætlum að bæta nokkru þar við.

Nýja Helios 2 stöngin er jafn létt og eldri stönginn ( létt-asta flugustöng í heimi) en við höfum bætt hleðsluna í stangar-endanum sem fyrir vikið verður nákvæmari. Stöngin er sterkari en upprunalega Helios stönginn og toppurinn er helmingi sterkari. Helios 2 er framleidd í verksmiðju Orvis í Manchester , Vermont í Bandaríkjunum. Gagnrýnendur og atvinnumenn eru á einu máli um hversu næm og nákvæm þessi nýja Helios2 er . Fyrir okkur er það allt sem skiptir máli að stönginn sé létt, skemmtileg að kasta og skili fluguni nákvæmlega þangað sem þú ætlast til. Veiðar eiga að vera skemmtilegar.

Erum við að kynna nýtt efni í stöngina? Nei eiginlega ekki því Orvis fann upp ofur-létta blöndu (ekki carbon fiber)sem notuð hefur verið í nýjustu Orvis stangirnar og Orvis er með einkaleyfi á og gerði okkur kleyft að gera Helios að léttustu stöng í heimi. Galdurinn við að ná fram þessari ofur-léttu tilfinningu og nákvæmu kasteiginleikum liggur í hvernig fíberinn er blandaður saman við tækni Orvis í hita-þolnu plasti.

Samskonar tækni er að ryðja sér til rúms í öðrum hátækni íþróttavörum eins og í keppnis-reiðhjólum sem tímaritið „Men’s Journal“ lýsti sem byltingu í þróun efnisnotkunar.

Shawn Combas, flugustangar-hönnuður hjá Orvis, lýsir nýju Helios2 þannig: „Við höfum

aukið styrkin í stangartoppnum um 100% og gert hann léttari, um leið og hann verður næmari. En það sem er miklvægara fyrir veiðimanninn er að hleðslan í stöngini verður oflugri við minni áreynslu. Við hönnun á stöngini var hver partur þróaður til þess að skila flugunni nákvæmlega á þann stað sem veiðimaður ætlar sér. Einhver sagði við prufu að nákvæmnin væri eins og laser. Þetta er bylting í flugustangarhönnun“

Þú getur séð nokkur myndbönd frá prófunum á Helios H2 hér.

Helios is here

Auðvitað er sama hvað skrifað er um nýju Helios H2 stöngina. Það sem skiftir máli er hvernig hún virkar við veiðar.

Í stuttu máli :

•20%sterkarienfrumgerðin

•20%léttariíhendi

•100%sterkariítoppenda

•Framúrskarandinákvæmni og hleðslueiginleikar.

Nýja Helios 2 getur ekki beðið vorsins – Vesturröst

https://vimeo.com/46309723

Umsagnir nokkura heimsþekktra fluguveiðimanna sem okkur þótti réttast að fylgdu með á móður-máli þeirra þar sem erfitt er að þýða innlifun umsagna þeirra:

...............

HOLY SH*T!!!

No BS, damn thing is like casting with a laser pointer.

Bubba Smith,

Fisheads of the San Juan

...............

Power - yes! Great, effortless casting with a 14’ leader, double leech set up hung under indica-tor, even into stiff headwinds this week. Amazing backbone to fight these fish, especially to pull them out of the reeds where we were hooking up.

Dave Jensen Fly Fish Alberta

...............

Loving the 9 and 10wt H2s. Been handling tuna, trevally, queenfish and an array of other species. All good so far, super light, super strong, great cas-tability and fighting sticks.

Jono Shales Australia

The 966 is vastly more sensitive than the Helios version and much easier to load for the inexperienced angler.

Toby Swank Montana Fins & Feathers

...............

That is the finest casting tool I have ever used. It is just unreal how the tip doesn’t jump no matter how much line or how hard I threw it. It dampens superbly. Loads effortlessly.

Chuck Hawkins Hawkins Outfitters, Michigan

...............

Með kveðju frá okkur í Vesturröst

Ingó Vesturröst Jón Ingi Veiðivatnaskelfir

Gulli fjallagarpur

Page 110: Veidislod 5. tbl 2012

VEIÐISLÓÐtímarit um sportveiði og tengt efni

Útgefandi:GHJ útgáfa ehf.

Ritstjórn:Guðmundur Guðjónsson, ritstjóriHeimir Óskarsson, útlit og umbrotJón Eyfjörð Friðriksson, greinaskrif

Netfang: [email protected]