34 tbl 2015

48
vf.is vf.is Víkurfréttir Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: [email protected] Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001 Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR einföld reiknivél á ebox.is FÍTON / SÍA FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2015 34. TÖLUBLAÐ 36. ÁRGANGUR Gleðilega Ljósanótt með Víkurfréttum X X Auk hefðbundinnar útgáfu Víkurfrétta sem reyndar er mjög vegleg eða 48 bls. gefa VF út sérstakt dagskrárrit sem dreift er í hús í Reykjanesbæ en einnig víðar, m.a. liggur það frammi á mörgum sýn- ingarstöðum og verslunum. Í ritinu sem er í handhægu broti er að finna alla dag- skrárliði Ljósanætur 2015, kort af sýningarsvæðinu og auglýsingar. Ljósmyndaleikur á Ljósanótt X X Víkurfréttir efna til ljósmyndaleiks á Ljósa- nótt. Valdar verða þrjár myndir sem fá vegleg verðlaun. Greint verður frá því í næsta blaði og á vf.is. Settu mynd eða myndir frá Ljósa- nótt 2015 á Facebook síðu þína og merku þær #vikurfrettir. Þá áttu möguleika á vinningi. Rafræn Helguvíkurkosn- ing verður ekki bindandi X X Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að fela bæjarstjóra að undirbúa íbúakosningu vegna deiliskipulags í Helguvík. Lagt til að kosningin fari fram á tímabilinu frá 8. til 20. nóvember nk. og standi í 10 daga og að miðað verði við 18 ára aldur kjósenda. Þá var samþykkt á fundi bæjarráðs í morgun að niðurstaða kosninganna verði ekki bindandi. Bæjarráð samþykkti einnig að óska eftir því við ráðherra að íbúakosningin fari eingöngu fram með rafrænum hætti og að kjörskrá vegna kosninganna verði á rafrænu formi. X X Það hefur verið mikið makrílfjör við og í Keflavíkurhöfn síðustu daga og þessum sprett- harða fiski verið landað í miklu magni frá bátum og þá hafa stangveiðimenn ekki látið sitt eftir liggja og einnig rifið hann upp. „Það er búið að vera gaman að vera hér á bryggj- unni undanfarið. Menn róta makrílnum upp og svo hefur selur verið hér í sömu veislu. Honum hefur ekki leiðst,“ sagði einn af nokkrum bryggju- gestum við VF. Sem sagt makrílfjör í hæstu hæðum þó verð hafi lækkað og erfiðar gangi að selja hann. X X Ljósanótt var þjófstartað í gærkvöldi með söngskemmtun Bliks í auga, „Lög unga fólksins“ í Andrews salnum á Ásbrú. Hús- fyllir var á tónleikunum og stemmningin frábær. Ljósanótt var síðan formlega sett með blöðrusleppingum grunnskólabarna við Myllubakkaskóla í morgun. Við tekur gríðarlega umfangsmikil menn- ingar- og fjölskyldudagskrá sem stendur fram á sunnudagskvöld. „Við erum stolt af því að heimamenn eru í aðalhlutverkum í dag- skránni. Undirbúningur hefur gengið vel og við erum tilbúin í þessa sextándu ljósahátíð okkar,“ sagði Valgerður Guðmundsdóttir, menningarfulltrúi Reykjanesbæjar. Sjónvarp Víkurfrétta tók aðeins forskot á sæl- una og leit við á aðalsýningu Ljósanætur 2015, „Andlit bæjarins“ í aðalsýningarsal Duus- húsa. Björgvin Guðmundsson, ljósmyndari í áhugaljósmyndarafélaginu Ljósopi var í óða önn að setja upp 300 myndir af bæjarbúum sem hann myndaði í sumar. Hann stefnir að því að gera ljósamyndabók með myndunum. Fyrirsæturnar geta keypt myndirnar á sýning- unni en peningana ætlar Björgvin að nota til að fjármagna bókaútgáfuna.Þá ætlar hann að bjóða fleirum að koma í myndatöku á Ljósa- nótt. „Það fór eiginlega allt sumarið í þetta en verkefnið var gríðarlega skemmtilegt.“ Hann lýsir því í viðtali við Sjónvarp Víkurfrétta í vikulegum þætti sem er sýndur á ÍNN frá kl. 21.30 (og svo á 2 klst. fresti í sólarhring) og einnig á vf.is. VF-mynd/pket. Andlit bæjarbúa á aðal sýningu Ljósanætur Makrílveisla í Keflavíkurhöfn ljosanott.is Dagskrá Ljósanætur dagana 2. til 6. september n.k. Reykjanesbær 2015

Upload: vikurfrettir-ehf

Post on 23-Jul-2016

247 views

Category:

Documents


3 download

DESCRIPTION

34. tbl. 36. árg. 2015

TRANSCRIPT

Page 1: 34 tbl 2015

vf.isvf.is

VíkurfréttirKrossmóa 4a, 4. hæð,

260 Reykjanesbær

Sími: 421 0000

Póstur: [email protected]

Afgreiðslan er opinvirka daga kl. 09-17

Auglýsingasíminner 421 0001

Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.isauðveldar smásendingar

eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.

Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR

einföld reiknivélá ebox.is

FÍT

ON

/ S

ÍA

FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2015 • 34. TÖLUBLAÐ • 36. ÁRGANGUR

ÞJÁLFUNLAUS PLÁSS

Gleðilega Ljósanótt með Víkurfréttum

XXAuk hefðbundinnar útgáfu Víkurfrétta sem reyndar er mjög vegleg eða 48 bls. gefa VF út sérstakt dagskrárrit sem dreift er í hús í Reykjanesbæ en einnig víðar, m.a. liggur það frammi á mörgum sýn-ingarstöðum og verslunum. Í ritinu sem er í handhægu broti er að finna alla dag-skrárliði Ljósanætur 2015, kort af sýningarsvæðinu og auglýsingar.

Ljósmyndaleikur á Ljósanótt

XXVíkurfréttir efna til ljósmyndaleiks á Ljósa-nótt. Valdar verða þrjár myndir sem fá vegleg verðlaun. Greint verður frá því í næsta blaði og á vf.is. Settu mynd eða myndir frá Ljósa-nótt 2015 á Facebook síðu þína og merku þær #vikurfrettir. Þá áttu möguleika á vinningi.

Rafræn Helguvíkurkosn-ing verður ekki bindandiXXBæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt

að fela bæjarstjóra að undirbúa íbúakosningu vegna deiliskipulags í Helguvík. Lagt til að kosningin fari fram á tímabilinu frá 8. til 20. nóvember nk. og standi í 10 daga og að miðað verði við 18 ára aldur kjósenda.Þá var samþykkt á fundi bæjarráðs í morgun að niðurstaða kosninganna verði ekki bindandi.Bæjarráð samþykkti einnig að óska eftir því við ráðherra að íbúakosningin fari eingöngu fram með rafrænum hætti og að kjörskrá vegna kosninganna verði á rafrænu formi.

XXÞað hefur verið mikið makrílfjör við og í Keflavíkurhöfn síðustu daga og þessum sprett-harða fiski verið landað í miklu magni frá bátum og þá hafa stangveiðimenn ekki látið sitt eftir liggja og einnig rifið hann upp.„Það er búið að vera gaman að vera hér á bryggj-unni undanfarið. Menn róta makrílnum upp og svo hefur selur verið hér í sömu veislu. Honum hefur ekki leiðst,“ sagði einn af nokkrum bryggju-gestum við VF. Sem sagt makrílfjör í hæstu hæðum þó verð hafi lækkað og erfiðar gangi að selja hann.

XXLjósanótt var þjófstartað í gærkvöldi með söngskemmtun Bliks í auga, „Lög unga fólksins“ í Andrews salnum á Ásbrú. Hús-fyllir var á tónleikunum og stemmningin frábær. Ljósanótt var síðan formlega sett með blöðrusleppingum grunnskólabarna við Myllubakkaskóla í morgun. Við tekur gríðarlega umfangsmikil menn-ingar- og fjölskyldudagskrá sem stendur fram á sunnudagskvöld. „Við erum stolt af því að heimamenn eru í aðalhlutverkum í dag-

skránni. Undirbúningur hefur gengið vel og við erum tilbúin í þessa sextándu ljósahátíð okkar,“ sagði Valgerður Guðmundsdóttir, menningarfulltrúi Reykjanesbæjar.Sjónvarp Víkurfrétta tók aðeins forskot á sæl-una og leit við á aðalsýningu Ljósanætur 2015, „Andlit bæjarins“ í aðalsýningarsal Duus-húsa. Björgvin Guðmundsson, ljósmyndari í áhugaljósmyndarafélaginu Ljósopi var í óða önn að setja upp 300 myndir af bæjarbúum sem hann myndaði í sumar. Hann stefnir að

því að gera ljósamyndabók með myndunum. Fyrirsæturnar geta keypt myndirnar á sýning-unni en peningana ætlar Björgvin að nota til að fjármagna bókaútgáfuna.Þá ætlar hann að bjóða fleirum að koma í myndatöku á Ljósa-nótt. „Það fór eiginlega allt sumarið í þetta en verkefnið var gríðarlega skemmtilegt.“ Hann lýsir því í viðtali við Sjónvarp Víkurfrétta í vikulegum þætti sem er sýndur á ÍNN frá kl. 21.30 (og svo á 2 klst. fresti í sólarhring) og einnig á vf.is. VF-mynd/pket.

Andlit bæjarbúa á aðal sýningu Ljósanætur

Makrílveisla í Keflavíkurhöfn

ljosanott.is

Dagskrá Ljósanætur dagana2. til 6. september n.k.

Reykjanesbær 2015

Page 2: 34 tbl 2015

2 fimmtudagur 3. september 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-fréttir pósturu [email protected]

Vörur hafa lækkað í verði milli ára í 60% tilvika hjá Nettó. Þetta er meðal þess sem komið hefur

út úr verðlagseftirliti ASÍ. Þar á bæ hefur vöru-verð verið kannað Bónus, Krónunni, Nettó, Iceland, Fjarðarkaupum, Samkaupum Úrval, Víði og Hag-kaupum með árs millibili. Tvær þessara verslana eru starfræktar á Suðurnesjum, þ.e. Nettó og Bónus. Verðlag í Bónus hefur hins vegar verið að hækka samkvæmt þessari könnun.Stærstur hluti af þeirri matvöru sem verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á þann 24. ágúst sl. hefur hækkað í verði frá sambærilegri könnun sem gerð var í byrjun september 2014. Verð í verslunum Bónus, Krónunni, Iceland, Fjarðarkaupum, Samkaupum-Úrval og Hag-kaupum hefur hækkað. Í verslunum Víðis og Nettó hefur verð frekar verið að lækkað en hækkað, en í báðum verslunum er um verðlækkun að ræða í 60% tilvika, segir í tilkynningu frá verðlagseftirliti ASÍ.

Verðhækkanir í flestum vöruflokkumÁberandi er að vöruflokkurinn ostur, viðbit og mjólkurvörur er að hækka í öllum verslunum þrátt fyrir einstöku verðlækkanir. Sem dæmi um vörur sem hafa hækkað í verði má nefna að stoðmjólk frá MS hefur hækkað um 4-10%, undarrenna um 2-9%,

Stóri Dímon um 1-9% og smjörvi um 1-25%. Af öðrum vörum sem hækka í verði má nefna „spelt flatkökur“ frá Ömmubakstri sem hafa hækkað um 7-19%. Kindabjúgu frá Búrfelli hafa hækkað í verði um 3-18%. Þurrvaran Tilda basmalti grjón 4*125 gr. hefur hækkað um allt að 16% og BKI kaffi classic hækkað um allt að 12%.

Sjáanlegar verðlækkanirEins og fram hefur komið voru vörugjöld feld niður um áramótin og var sykurskattur hluti af þeim. Afnám hans má sjá í lækkun um 60-65% á ódýrasta kílóinu af sykri. Aðrar vörur sem innihalda mikinn sykur eða sætuefni hafa einnig lækkað í verði eins og gosdrykkir, m.a. hefur 2 l. af Mix lækkað um allt að 10%.Um áramótin var hækkun á virðisaukaskatti úr 7 í 11%, sem gaf tilefni til 3,7% hækkunar á mat- og drykkjarvörum. Samanburðurinn sýnir í mörgum til-vikum hækkun umfram það.Þær verðbreytingar sem hér eru birtar miða við breyt-ingar á verði verslana milli verðkannana verðlagseftir-lits ASÍ þann 1.9.14. og 24.8.15. Rétt er að árétta að mæld eru þau verð sem eru í gildi á hverjum tíma í versluninni og geta tilboðsverð haft áhrif á verðbreyt-ingar einstakra vara, segir jafnframt í tilkynningunni.

60% vöru lækkar í verði hjá Nettó

Úr Nettó í Njarðvík.

Verksmiðja United Silicon í Helguvík rís hratt þessa dag-

ana. Einn af ofnum kísilversins hefur verið settur saman á lóð United Silicon. Talsvert hefur verið steypt af undirstöðum verk-smiðjuhússins og nú eru starfs-menn ÍAV byrjaðir að reisa stál-grind verksmiðjunnar.Sl. föstudag kom skip til hafnar í Helguvík með mikið af búnaði fyrir kísilverksmiðjuna.

Kísilverksmiðja rís hratt í Helguvík

Stálgrind verksmiðjunnar rís í Helguvík. VF-mynd: Hilmar Bragi.

Búnaður fyrir verksmiðjuna kom með skipi til Helguvíkurhafnar sl. föstudag.

TÓNLISTARSKÓLI REYKJANESBÆJAR

NÝJAR NÁMS-GREINAR Í VETUR

FRAMLENGDUR OPNUNARTÍMI

FÉLAGSRÁÐGJAFI ÓSKAST

NOTUM STRÆTÓ Á LJÓSANÓTT

Tónlistarskólinn mun í vetur bjóða upp á eftirfarandi nýjar námsgreinar:

Blokkflautunám skv. Suzuki-aðferðinni: Námið er ætlað ungum börnum. Skilyrði er að forráðamaður geti fylgt barni sínu í náminu.

Rytmískur söngur: Nám í djass- og dægurlagasöng skv. námskrá tónlistarskóla í hryntónlist.

Barnakór: Ætlaður börnum á aldrinum 9-11 ára (4. til 6. bekk), bæði nemendum Tónlistarskólans sem og öðrum börnum búsettum í Reykjanesbæ.

Nánari upplýsingar um fyrirkomulag námsins og námsgjöld eru á vefsíðu skólans www.tonlistarskoli.reykjanesbaer.is.

Opnunartími Rokksafns Íslands og sýningarinnar „Einkasafn poppstjörnu“ um Pál Óskar verður fram-lengdur á föstudegi og laugardegi Ljósanæturhátíðar.Opið verður frá kl. 11:00-21:00 4. og 5. september, aðra daga kl. 11:00-18:00. 

Aðgangseyrir er 1.500 kr. Frítt fyrir börn 16 ára og yngri í fylgd með fullorðnum. 1.200 kr fyrir eldri borgara og öryrkja. VERIÐ VELKOMIN!

Velferðarsvið Reykjanesbæjar óskar eftir að ráða félagsráðgjafa til starfa í fullt starf. Starfið felur í sér vinnu í teymi sem hefur það meginmarkið að efla virkni notenda sem eru á fjárhagsaðstoð, ásamt því að veita ráðgjöf og stuðning við fólk sem leitar til sviðsins. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Umsóknarfrestur er til og með 17. september nk. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun liggur fyrir.

Umsóknum skal skilað rafrænt á www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf, þar sem einnig er að finna nánari upplýsingar um menntunar- og hæfniskröfur.

Nánari upplýsingar veitir Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri Velferðarsviðs í síma 421-6700 eða á netfangið [email protected].

Reykjanesbær minnir á að að AUKAFERÐ verður farin á föstudagskvöldið sem hér segir. Frá Miðstöð R1 kl.21.00 , R2 kl.21.30, R3 kl.21:30 og R4 (Hafnir) 21:30.

Á laugardeginum er keyrt sem hér segir:Frá Krossmóa á klukkutíma fresti frá kl. 11:00 - 24:00 laugardag. Ath. ferð kl. 19:00 laugardag fellur niður.

Strætó ekur leiðina (mínútur yfir heila tímann):Frá Krossmóa (00) - Grænásbraut 1220 (07) - Engja-dalur (15) - Akurskóli - (17) - Krossmói (30) - Holtaskóli - Vatnsholt (36) - Heiðarsel (41) - Norðurtún (45) - Kross-mói (50). Stoppað á öllum stoppistöðvum á leiðinni.

Page 3: 34 tbl 2015

Landsbankinn 410 4000landsbankinn.is

NS

SO

N &

LE

’MA

CK

S

• J

L.I

S

• S

ÍA

landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn

Gleðilega Ljósanótt

Landsbankinn er aðalstyrktaraðili Ljósanætur, menningar- og fjölskylduhátíðar

Reykjanesbæjar. Við óskum Suðurnesjamönnum og öðrum gestum Ljósanætur

gleðilegrar hátíðar.

Föstudagur kl. 15:00 – 16:00

Bjóðum gesti velkomna í útibú okkar við Krossmóa 4. Tónlistarmaðurinn Axel Flóvent mun sjá um að skapa létta og skemmtilega stemmingu, veitingar í boði.

Laugardagur kl. 11:00 – 18:00

Hoppukastali Sprota verður á hátíðarsvæðinu, Sproti kíkir í heimsókn og heilsar upp á káta krakka kl. 15.00 og 16.00.

Við hlökkum til að sjá ykkur. Við hvetjum alla til að kynna sér dagskrá Ljósanætur á vefnum www.ljosanott.is.

Page 4: 34 tbl 2015

4 fimmtudagur 3. september 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-fréttir pósturu [email protected]

„Það hefur verið mikið að gera það er víst. Bæði núna í sumar og í fyrra. En það er svo sem engin nýlunda. Það sem mestu máli skiptir í ferðaþjónustunni er að fá meiri dreifingu, þann-ig að það sé líka nóg að gera yfir vetrarmánuðina og það er að takast ágætlega,“ segir Margeir Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri Bílaleigunnar Geysis í Reykja-nesbæ. Margeir segir árið hafa verið annasamt. „En eins og með allan annan rekstur skiptast á skin og skúrir. Umræðan í þjóðfélaginu um bílaleigur er svolítið á gull-æðisstiginu. Því er ekki að neita að miklar tekjur eru í bílaleigustarf-semi en kostnaðurinn er líka mjög mikill. Við höfum lent í nokkrum slæmum áföllum í sumar t.a.m. höfum við misst 5 húsbíla í altjón á þessu ári en síðustu 6 ár á undan höfðum við ekki misst einn ein-asta. Svo er líka alltaf erfitt þegar ferðamenn drekkja dýrum jeppum eða jepplingum í ám, loka kredit-kortunum sínum, láta sig hverfa úr landi og við sitjum uppi með skaða sem hleypur á milljónum. Slík atvik koma upp á hverju ári, því miður.Margeir segir að Geysir segist afar ánægður með samstarf við mörg góð fyrirtæki á Suðurnesjum og

það hafi mikið að segja í rekstr-inum.„Við erum með góða samstarfsaðila í Reykjanesbæ eins og Bílbót, Bif-reiðaverkstæði Þóris, Bílaflutninga Kristjáns, Bílrúðuþjónustuna, Skiftingu ofl. sem eru alltaf á vakt-inni og veita okkur góða þjónustu svo við getum aftur veitt okkar við-skiptavinum góða þjónustu.Fjölmargir nýir aðilar hafa komið inn á markaðinn á síðustu tveimur árum enda ferðaþjónustan í sókn. Samfara mikilli aukningu ferða-manna þarf nú að manna starfs-stöðvar allan sólarhringinn. Við

erum með rúmlega 50 manns í vinnu nú í sumar á vöktum en lykillinn af því að allt gangi vel er að vera með gott starfsfólk og það höfum við svo sannarlega.“

Ýmsar hliðar á bílaleigu-gullæðinu:

Dæmi um að ferðamenn hafi drekkt jeppum og stungið af

- Annasamt ár hjá bílaleigunni Geysi

Algeng sjón á bílaleigunni Geysi í sumar.

Öflugt stuðningsnet fyrir lögreglumenn

sem lent hafa í alvarlegu áfalli

Xu Í dag eru starfandi við emb-ætti Lögreglustjórans á Suður-nesjum tólf stuðningsfulltrúar sem hafa fengið sérstaka fræðslu í félagastuðningi. Fulltrúarnir eru í öllum deildum embættis-ins. Þeir sem taka að sér félaga-stuðning hafa það hlutverk að vera stuðningsaðilar fyrir vinnu-félaga, sem hafa lent í alvarlegu áfalli eða ráða ekki lengur við að-stæður vegna uppsafnaðs álags. Þetta kemur fram í ársskýrslu lögreglustjórans á Suðurnesjum fyrir árið 2014.Í skýrslu um félagastuðning 2014 voru fimm atvik tilgreind sérstak-lega þar sem slíkum stuðningi var beitt í tengslum við erfið út-köll sem lögreglumenn fóru í. Haldnir voru viðrunarfundir eftir atvik og mönnum bent á úrræði um stuðning ef þörf væri á. Auk þessara fimm atvika tilgreindu stuðningsfulltrúar stuðning við einstaka lögreglumenn vegna uppsafnaðs álags og streitu.Það er samdóma álit þeirra sem koma að félagastuðningi að tilvist hans sé mikilvæg fyrir lögreglu-menn.

Ör yggismyndavélar voru settar upp í fangaklefum

á lögreglustöðinni í Keflavík á síðasta ári. Einnig var slíkum vélum komið fyrir á fangagangi og í fangamóttöku. Fyrirmyndin að þessari rafrænu eftirlitsvöktun er fengin hjá lögreglunni á Sel-fossi, segir í ársskrýrslu lögreglu-stjórans á Suðurnesjum.Í sama ti lgangi var sett upp myndavél í afgreiðslu lögreglu-stöðvarinnar ásamt myndavélum utan á byggingunni til eftirlits með bifreiðastæðum og á lóð stöðvar-innar.Með þessum tækjabúnaði er unnt að fylgjast með ástandi fanga sem oft eru ofurölvi eða undir áhrifum fíkniefna. Þá er og þekkt að ein-staklingar sem verið hafa í lang-varandi neyslu áfengis, lyfja eða fíkniefna eru líklegri til að vinna sjálfum sér mein. Þeir eru að auki í hættu vegna bráðaveikinda. Annað sem varðar þessa vöktun er að af og til hendir það að kvartað er undan meðferð lögreglumanna á handteknum mönnum. Rafrænt eftirlit gerir það að verkum að unnt verður að upplýsa um slík mál strax og eykur þar með öryggi fangans annars vegar og lögreglumannsins

sem kvartað er undan hins vegar ef ekki er farið með rétt mál.Reynsla af upptökubúnaði í lög-reglubifreiðum hefur sýnt að með tilkomu hans hefur kvörtunum vegna málsmeðferðar lögreglu fækkað.Handtökum hjá embætti lögreglu-stjórans á Suðurnesjum fækkaði um 16,5 % milli áranna 2013 og 2014. Lögreglan á Suðurnesjum hefur yfir að ráða tíu fangaklefum. Sjö þeirra eru á lögreglustöðinni í Reykjanesbæ, þar af einn klefi sem er sérhannaður til vistunar aðila sem grunaðir eru um að smygla fíkniefnum innvortis. Þá eru þrír fangaklefar á lögreglustöðinni í Grindavík en þeir eru einungis notaðir í undantekningartilfellum.Af og til eru gæsluvarðhaldsfangar vistaðir á lögreglustöðinni þegar fangelsi ríkisins eru fullsetin. Tals-vert af vistunum í fangahúsinu tengist málum sem koma upp á alþjóðaflugvellinum.401 innsetning var í fangaklefum lögreglustöðvarinnar í Reykja-nesbæ og þurfa ávallt tveir lög-reglumenn að vera til staðar á lögreglustöðinni þegar aðilar gista klefana.

Öryggismyndavélar vakta fangaklefa á Hringbraut

Meðal verkefna bílstjóra eru útkeyrsla sendinga á Suðurnesjum og höfuðborgar-svæðinu. Innheimta greiðslna og samskipti við viðskiptavini.

UPS er stærsta og öflugasta hraðsendingafyrirtæki heims með þjónustunet til rúm-lega 200 landa um allan heim. Undanfarin ár hefur UPS verið í mikilli sókn í Evrópu. Daglega eru afhentir tæplega 16 milljónir pakka um allan heim.

UPS óskar eftir bílstjóra

AuthorizedServiceContractor

Mikilvægt er að umsækjendur séu jákvæðir og þjónustulundaðir. Aldurstakmark er 20 ár. Vinsamlega sendið umsókn í gegnum heimasíðu okkar www.express.is fyrir 15. september 2015.

Starfsmaður með lyftarapróf óskast til starfa hjá fiskvinnslu- og útgerðarfyrirtækinu Einhamar Seafood ehf., í Grindavík.

Nánari upplýsingar veitir: Alda Gylfadóttir í síma 867 0370 eða [email protected]

ATVINNA

BREYTTUR ÚTIVISTARTÍMIÍ Barnaverndarlögum nr. 80/2002 kemur fram að frá 1. september mega börn 12 ára og yngri ekki vera úti lengur en til kl. 20.00 nema í fylgd með fullorðnum og börn á aldrinum 13-16 ára skuli ekki vera ein á almannafæri eftir klukkan 22.00.

 Ég heiti Gyða og er snyrtifræðingur og förðunarmeistari  að mennt. Ég verð starfandi á snyrtistofunni Laufinu sem er á  Nesvöllum  í vetur.

Ég býð upp á  allar hefðbundnar snyrtimeðferðir auk brasilian vaxmeðferðar. Í tilefni Ljósanætur þá langar mig að bjóða ykkur

20% AFSLÁTT af meðferðum hjá mér út september.  Síminn minn er 770-5281 og hægt er að ná í mig alla virka daga milli 9:00 - 17:00. 

Verið velkomin

LJÓSANÆTURDEKUR

Page 5: 34 tbl 2015

Opið: 3. sept. kl. 09 til 18 4. sept kl. 09 til 18 5. sept kl. 11 til 18

LJÓSANÓTT 2015

SÍMI 421 3811 –

Fríar sjónmælingar

afsláttur af öllum vörum

KAUPAUKIMeð öllum margskiptum glerjum fylgir annað par FRÍTT með í sama styrkleika.

Tilvalið sem sólgleraugu eða gleraugu til skiptanna.

Módel: Kristjana Dögg Jónsdóttir. Umgjörð: Chrome Hearts

Page 6: 34 tbl 2015

6 fimmtudagur 3. september 2015 • VÍKURFRÉTTIR

Menningar- og fjölskyldu-hátíðin Ljósanótt í Reykja-

nesbæ verður haldin í 16. skiptið í ár og hefst n.k. fimmtudag 3. sept-ember og stendur til sunnudags 6. september. „Ljósanótt telst til einnar stærstu fjölskylduhátíðar landsins og lögð er áhersla á að öll fjölskyldan njóti saman.Heimafólk er að venju í öllum helstu hlutverkum, hvort heldur um tónlist eða myndlist er að ræða og margar sýningar og fjölbreyttir tónleikar í boði alla dagana. Stór hópur fólks kemur að undirbún-ingnum eins og venjulega og eru þar á ferðinni bæði íbúarnir sjálfir, ýmis félagasamtök og stofnanir og svo auðvitað starfsmenn. Vefur Ljósanætur ljosanott.is er tilbúinn og fjöldi viðburða nú þegar kominn inn en íbúar og fyrirtæki eru enn að setja inn upplýsingar um nýja viðburði því alltaf bætist eitthvað við. KarfaN hefur að venju umsjón með sölutjöldum á hátíðarsvæðinu og kennir þar ýmissa grasa, hand-verk, matasala o.fl.“ segir Valgerður Guðmundsdóttir ferðamálafulltrúi Reykjanesbæjar.

ÞjófstartValgerður segir að á undanförnum árum hafi hátíðin verið að lengj-ast með dagskrárliðum á mið-vikudegi og þá hafi sunnudagur verið að koma sterkari inn. „Við þjófstörtum að venju á miðviku-deginum 2. september með kvöl-dopnun verslana við Hafnargötu og frumsýningu tónleika í And-rew´s á vegum Með Blik í auga sem í ár bera heitið Lög unga fólksins þar sem ýmsir stórsöngvarar halda áfram að rekja fyrir okkur tónlist-arsögu Íslendinga. Þessir tónleikar verða einnig á sunnudeginum.

Sýningar opnaÁ fimmtudeginum er hátíðin sett við Myllubakkaskóla kl. 10.30 með aðstoð allra leik- og grunnskóla bæjarins. Seinni partinn þann dag opna svo flestar listsýningarnar og bæjarbúum öllum er boðið í Duus Safnahús kl. 18.00 þann dag en þá verða opnaðar þar fjórar nýjar sýningar. Þar ber hæst ljósmynda-sýningin í Listasalnum, Andlit bæjarins sem er samstarfsverk-efni Listasafnsins og Ljósops sem gengur út á það að ná ljósmyndum

af öllum bæjarbúum. Í gryfjunni sýnir ungur hönnuður héðan úr bænum Arna Atladóttur verk sín, í Stofunni í Bryggjuhúsinu verður finnskur textíllistamaður, Eija Pirt-tilahti og í Bíósalnum verður sýn-ing í tilefni 100 ára afmælis Kefla-víkurkirkju sem er samstarfsverk-efni Byggðasafnsins og kirkjunnar. Upplýsingar um aðrar sýningar má sjá á ljosanott.is.

Fjöldasöngur með Ingó veðurguðÁ föstudeginum fer fram tónlistar-dagskrá á smábátabryggjunni við Duus og þar býður Skólamatur upp á sína árlegu Ljósanætursúpu við undirleik Bæjarstjórnarbandsins en það er eins og nafnið bendir til hljómsveit samansett úr bæjarfull-trúum. Ingó veðurguð mun svo stjórna fjöldasöng í lokin. Ungl-

ingaball verður haldið í Stapa og veitingahúsin í bænum eru flest með skemmtilega dagskrá. Áhuga-verð nýjung verður svo í boði síðar þetta kvöld þegar íbúar í gamla bænum bjóða til heimatónleika og er þetta einmitt skemmtilegt dæmi um sjálfsprottin verkefni íbúa bæjarins.

Hápunktur á laugardegiLaugardagurinn er eins og áður stærsti dagurinn með sinni ein-stöku árgangagöngu, sögugöngu, leiktækjum, barnadagskrá í um-sjón Leikhópsins Lottu og stór-tónleikum á útisviðinu á Bakklág um kvöldið. Á tónleikunum ber hæst að við fáum að heyra valda kafla úr tónlistarsviðburðinum Sveitapiltsins draumur, Rúnar Júl 70 ára sem færri en vildu sáu í Stapa í vor. Einnig koma fram

keflvísku böndin Kolrassa krók-ríðandi, Sígull og Pakkið. Eftir flugeldasýninguna, sem er í boði HS Orku eins og áður, mun Jónas Sig og ritvélarnar leika nokkur lög áður en fjölskyldufólkið tygjar sig heim og hinir koma sér á djammið í veitingahúsunum en búast má við góðri dagskrá hjá þeim að venju.

Menning á sunnudegiÁ sunnudeginum verða öll sölu-tjöld enn opin og einnig allar sýn-ingar þannig að fólk hefur tíma til að njóta í rólegheitunum þess sem það missti af í fjörinu á laugardeg-inum. Einnig er í undirbúningi skemmtileg menningardagskrá í Höfnunum þennan dag þar sem íbúar bjóða gestum til myndlistar-sýninga, sögudagskrár og tónleika þar sem Elíza Newman kemur m.a. fram.“

AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0001

vf.isvf.is

Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000Páll Ketilsson, sími 421 0004, [email protected] Bragi Bárðarson, sími 421 0002, [email protected]ðrik K. Jónsson, [email protected]ý Gísladóttir, [email protected]ður Friðrik Gunnarsson, [email protected]ús Aðalsteinsson, sími 421 0001, [email protected]íkurfréttir ehf.Þorsteinn Kristinsson, [email protected], sími 421 0006

Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, [email protected]ís Jónsdóttir, sími 421 0000, [email protected] eintök.Íslandspósturwww.vf.is og kylfingur.is

ÚTGEFANDI:AFGREIÐSLA OG RITSTJÓRN:

RITSTJÓRI OG ÁBM.:FRÉTTASTJÓRI:

BLAÐAMENN:

AUGLÝSINGASTJÓRI:UMBROT OG HÖNNUN:

AFGREIÐSLA:

PRENTVINNSLA:UPPLAG:

DREIFING:DAGLEG STAFRÆN ÚTGÁFA:

Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið [email protected]. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáaug-lýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðju-

dögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring.

Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið [email protected]. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri

útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.

HILMAR BRAGI BÁRÐARSON

RITSTJÓRNARPISTILL

Minna karp - meira gaman!Ljósanótt 2015 er gengin í garð, sextánda hátíðin. Fyrstu hátíðin var haldin árið 2000 og er óhætt að segja að mjór hafi verið mikils vísir því hátíðin er nú orðin lang stærsti viðburður á Suður-nesjum ár hvert.Það s em er ánægju legt

með Ljósanótt er að heimamenn taka saman höndum um að gera hátíðina veglega. Þeir eru í öllum helstu hlutverkum og stjórna eða koma að stærstu viðburðunum og einnig þeim minni.Það er erfitt að tína út markverða atburði því þeir eru svo margir. Þó held ég að ekki verði á neinn hallað þó Björgvin Guðmundsson ljós-myndari fái stærsta hrósið. Sýningin „And-lit bæjarins“ þar sem hann myndaði yfir 500 manns og sýnir 300 þeirra í listasal Duus-húsa í Keflavík, er ákaflega skemmtileg hugmynd og hana ætlar ljósmyndarinn að þróa áfram. Það verður spennandi að fylgjast með því.Í blaðinu í dag er að finna umfjöllun í fréttum og myndum um atburði úr dagskrá en hápunktur-inn verður að venju myndarleg flugeldasýning á laugardagskvöld. Það þarf ekki að orðlengja

hvað þessi hátíð spilar orðið stórt hlutverk í því að styrkja ímynd Reykjanesbæjar auk þess sem hún sameinar bæjarbúa í verki og fjöri.Þó er ekki að neita að undirrituðum finnst það sérstakt þegar einn skóli í bæjarfélaginu tekur sig til og mótmælir blöðrusleppingum vegna „mengunar“ en svona er þetta. Mótmæli eru vinsæl í dag hversu skrýtið það kann að hljóma. Hins vegar má vel huga að breytingum á form-legri opnun Ljósanætur. Menn ættu að geta sæst á það þó svo það sé orðið ansi margt sem ekki má í dag eða tilefni er til að mótmæla. Umhverf-issinnar hafa keyrt í gegn kosningu gegn kísil-veri í Helguvík, sem mun kosta slatta af millj-ónum úr tómum kassa Reykjanesbæjar, heyrst hafa mótmæli vegna hávaða frá flugvélum og þá hefur einnig verið kvartað yfir vondi lykt vegna fiskibræðslu í Helguvík. Það er vandlifað í þessum heimi. Eitt af stóru lúxusverkefnunum á næstunni er hvernig hægt verður að manna fleiri störf á Suðurnesjum. Það þarf að snúa við vondri umræðu um svæðið og bæjarbúar þurfa að vinna að því verkefni saman. Minnka karpið.

Gleðilega Ljósanótt!

LJÓSANÓTT HALDIN Í SEXTÁNDA SINN:

STENDUR UNDIR NAFNI SEM MENN-INGAR- OG FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ

HEIMAFÓLK AÐ VENJU Í ÖLLUM HELSTU HLUTVERKUM

Ljósanótt er ein stærsta bæjarhátíðin á Íslandi.

Page 7: 34 tbl 2015
Page 8: 34 tbl 2015

Tilboðin gilda 03. – 06. september 2015Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.

www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Búðakór· Grandi · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |

Mar

khön

nun

ehf

ciabatta 300 gr tómat/hvítlauks

199 ÁÐur 398 kr/stk

okkar skúffukakam/kókos

482 ÁÐur 742 kr/stk

kleinuhringirusa

100 ÁÐur 199 kr/stk

lambasúpukjöt kjarnafæÐi

599 ÁÐur 998 kr/kg

-40%

rúgbrauÐ fitty

248 2 fyrir 1

pizza baguette skinka/ostur

259 ÁÐur 379 kr/stk

-32%

lambarib-eye ferskt

2.836ÁÐur 4.727 kr/kg

-40%

hangiframpartur sagaÐur

1.291 ÁÐur 1.898 kr/pk

-32%

dönsk lifrarkæfa 380 gr

269 ÁÐur 359 kr/stk

grísahryggur 1/2

1.249 ÁÐur 2.498 kr/kg

lamba innralæri ferskt

2.670 ÁÐur 4.450 kr/kg

-40%

spínatsalat, 140 gr

235ÁÐur 469 kr/pk

-50%

lambagúllas ferskt

1.739 ÁÐur 2.898 kr/kg

-40%

-50%

kræsingar & kostakjör

lambakótilettur ferskar í raspi

1.928 ÁÐur 2.754 kr/kg

-30%

café prem. púÐar 36 stk2 teg, 4 í pakka

495 ÁÐur 589 kr/pk

10%afsláttur

Maarud flögur!

Líttu á verðið!

stór poki36 stk!

-25%

Líttu á verðið!

Líttu á verðið! Líttu á verðið!

Líttu á verðið!

Ljósanæturtilboð!

2 fyrir 1

jacobs club kexorange, 6 í pk, 300 gr

199 ÁÐur 258k kr/pk

Gleðilega ljósanótt!heilsu&lífstílsblað Nettóstútfullt af fróðleik!

heilsudagar Nettó gilda 3-13 september, frábær tilboð!

-35% -50%-50%

Líttu á verðið!

Líttu á verðið!

Page 9: 34 tbl 2015

Tilboðin gilda 03. – 06. september 2015Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.

www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Búðakór· Grandi · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |

Mar

khön

nun

ehf

ciabatta 300 gr tómat/hvítlauks

199 ÁÐur 398 kr/stk

okkar skúffukakam/kókos

482 ÁÐur 742 kr/stk

kleinuhringirusa

100 ÁÐur 199 kr/stk

lambasúpukjöt kjarnafæÐi

599 ÁÐur 998 kr/kg

-40%

rúgbrauÐ fitty

248 2 fyrir 1

pizza baguette skinka/ostur

259 ÁÐur 379 kr/stk

-32%

lambarib-eye ferskt

2.836ÁÐur 4.727 kr/kg

-40%

hangiframpartur sagaÐur

1.291 ÁÐur 1.898 kr/pk

-32%

dönsk lifrarkæfa 380 gr

269 ÁÐur 359 kr/stk

grísahryggur 1/2

1.249 ÁÐur 2.498 kr/kg

lamba innralæri ferskt

2.670 ÁÐur 4.450 kr/kg

-40%

spínatsalat, 140 gr

235ÁÐur 469 kr/pk

-50%

lambagúllas ferskt

1.739 ÁÐur 2.898 kr/kg

-40%

-50%

kræsingar & kostakjör

lambakótilettur ferskar í raspi

1.928 ÁÐur 2.754 kr/kg

-30%

café prem. púÐar 36 stk2 teg, 4 í pakka

495 ÁÐur 589 kr/pk

10%afsláttur

Maarud flögur!

Líttu á verðið!

stór poki36 stk!

-25%

Líttu á verðið!

Líttu á verðið! Líttu á verðið!

Líttu á verðið!

Ljósanæturtilboð!

2 fyrir 1

jacobs club kexorange, 6 í pk, 300 gr

199 ÁÐur 258k kr/pk

Gleðilega ljósanótt!heilsu&lífstílsblað Nettóstútfullt af fróðleik!

heilsudagar Nettó gilda 3-13 september, frábær tilboð!

-35% -50%-50%

Líttu á verðið!

Líttu á verðið!

Page 10: 34 tbl 2015

10 fimmtudagur 3. september 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-mannlíf pósturu [email protected]

Ljósanætursýning Listasafns Reykjanes-bæjar í Duus Safnahúsi, Andlit bæjar-

ins, er að þessu sinni unnin í samstarfi við Ljósop, félag áhugaljósmyndara í Reykja-nesbæ. Það hefur verið stefna Listasafnsins að á Ljósanótt, menningar- og fjölskyldu-hátíð Reykjanesbæjar sé heimafólk í fyrir-rúmi og hafa listamennirnir hverju sinni tengst Reykjanesbæ með einum eða öðrum hætti. Að þessu sinni eru hvoru tveggja, viðfangsefnin og ljósmyndarinn heimafólk og á sýningunni sem opnar fimmtudaginn 3. september verða rúmlega 300 myndir af bæjarbúum til sýnis og um helgina verða teknar fleiri myndir af íbúum og brott-fluttum á fyrirfram auglýstum tímum því takmarkið er að ná sem flestum.Ljósop er einn af menningarhópum Reykjanesbæjar og hefur ávallt staðið fyrir skemmtilegum sýningum á Ljósanótt og þannig lagt sitt af mörkum til öflugs menn-ingarlífs bæjarins . Upphaflega varð verk-efnið Andlit bæjarins til eftir áramótin 2015 þegar Ljósop ákvað að setja upp litla sýningu fyrir Safnahelgi á Suðurnesjum sem haldin var í mars síðastliðnum. „Við byrjuðum á

því að mynda vini og vandamenn en fórum fljótlega að hafa upp á fólki sem gaman væri að mynda. Suma fundum við í kirkjunni, aðra í Sporthúsinu og úti á götu. Auk þess mynduðum við gesti sem komu til okkar á Safnahelginni. Bæjarbúar tóku verkefninu mjög vel, og aðsóknin í myndatöku verið vonum framar! Verkefnið hefur spurst út og smám saman hefur það aldeilis undið upp á sig. Verkefnið hefur mikið og skemmtilegt sögulegt gildi, þá sérstaklega fyrir komandi kynslóðir,“ segir Björgvin Guðmundsson sem tekið hefur allar myndirnar.

Fagurfræði uppsöfnunarAðalsteinn Ingólfsson er sýningarstjóri og tengir þetta verkefni fagurfræði uppsöfn-unar. „Í sjónlistum hefur meira að segja orð-ið til eins konar „fagurfræði uppsöfnunar“, þar sem áhrifamáttur listaverka og um leið listræn gæði eru mæld eftir því hversu mikið listamaðurinn kemst yfir að skrásetja. Af praktískum ástæðum eru það helst listamenn með áhuga á ljósmyndum sem ástundað hafa uppsöfnunarmyndlist af þessu tagi. Hún er ein helsta forsenda konseptmyndlistarinnar,

s j á t .d . verk-smiðjuturnana sem Berndt og Hilla Becher ljós-my n du ð u u m gjörvallt Þýska-land á sjöunda áratugnum. Upp-söfnunarmynd-l i s t i n k e m u r einnig við sögu popplistar, gott dæmi eru málverk Andys Warhol og ljósmyndir Eds Ruscha af hverju einasta húsi við Sunset Strip, aðalgötuna í Los Angeles, sem er öðrum þræði tilraun til skrásetningar á þreyttum „glamúr“ banda-rísku kvikmyndaborgarinnar.Metnaður þeirra Björgvins Guðmunds-sonar ljósmyndara og félagsskaparins Ljósop í Reykjanesbæ stendur til enn umfangs-meiri uppsöfnunar. Upprunaleg áform þeirra snerust um almenna hyllingu íbúa Reykja-nesbæjar, gerð andlitsmynda af ákveðnum fjölda bæjarbúa á öllum aldri. Framkvæmdin hefur nú undið upp á sig. Sú sýning sem kynnt er hér á Ljósanótt er fyrsti kafli mik-

illar herferðar, hverrar endanlegt markmið er að taka ljósmyndir af öllum núlifandi Reyk-nesingum, heimamönnum jafnt sem burt-fluttum íbúum bæjarins. Vissulega er hér ekki tjaldað til einnar nætur, en takist þeim Björgvin og félögum hans þetta ætlunar-verk sitt, að öllu eða langmestu leyti, er hér lagður grunnur að mikilsverðu framlagi til uppsöfnunarmyndlistar, og ekki síður til áttahagabundinnar sagnfræði, mannfræði og félagsfræði.“Opnuð hefur verið sérstök vefsíða í kringum verkefnið http://andlitbaejarins.com/Sýningin er opin alla daga frá 12.00-17.00 og er ókeypis aðgangur.

300 andlit bæjarins í Listasal Duus

– Ljósanætursýning Listasafns Reykjanesbæjar í samstarfi við Ljósop

Árgangagangan er ein af fjölmennustu einstöku viðburðum Ljósanætur ár hvert. Gangan verður

eins og áður á laugardeginum og hefst kl. 13:30„Misstu ekki af einstakri skrúðgöngu, Árgangagöng-unni. Þar sem mannkynssaga nútímans tekur á sig mynd. Málið er einfalt: Sértu fæddur ´65 mætir þú fyrir framan Hafnargötu 65 o.s.frv. Yngsta kynslóðin hefur gönguna og marserar niður Hafnargötu í gegnum heilt æviskeið. Þeir eldri bíða og horfa á æskuna renna hjá þar til röðin kemur að þeim að bætast við. „Hringnum“ er lokað þegar hópur heldri borgara stígur inn í gönguna og gætir þess, sem fyrr, að enginn heltist úr lestinni. Allt undir dynjandi lúðrablæstri lúðrasveita Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og Lúðrasveitar Hafnarfjarðar,“ segir í dagskrárkynningu.

Árlega taka þúsundir þátt í göngunni en þeir sem eru fimmtugir á árinu eru ávallt heiðursgestir göngunnar. Fyrirliði árgangsins mun svo halda ræðu við hátíðar-sviðið þegar allir þátttakendur göngunnar hafa náð í mark.

Árgangagangan er einstök skrúðganga

Frá árgangagöngunni 2014

Menningarfélag Keflavíkur stendur fyrir heimatón-

leikum í gamla bænum á Ljósa-nótt þar sem íbúar bjóða fólki heim í tónleikaveislu.Fjórar hljómsveitir spila í jafn-mörgum húsum í gamla bænum í Keflavík föstudaginn 4. september. Hver hljómsveit leikur tvisvar, 40 mínútur í senn. Dagskrá hefst kl. 21:00 og aftur kl. 22:00. Gestir geta því valið a.m.k. tvenna tónleika eða gengið á milli og fengið brot af öllu.

Fram koma þessir listamenn af Suðurnesjum en þær eru Æla, Trí-logía, Gálan og SíGullMiðasala fer fram á Tix.is og er miðaverð kr. 1500. Gestir fá arm-band til að rölta á milli húsa og kort af svæðinu, gegn framvísun mið-anna/kvittunar/bókunarnúmers, í Duus Safnahúsum á opnunartíma frá kl. 12 - 17 alla daga. Frekari upplýsingar veitir Sara Dögg Gylfa-dóttir í síma 699 2604.

Heima í gamla bænum– tónleikar í heimahúsum í gamla bænum í Keflavík

Frá heimatónleikum á Ljósanótt 2014.

2 ÁRA AFMÆLIFimmtudaginn 3. september kl. 16:00 ætlar Rauðakrossbúðin að halda uppá Ljósanótt og 2 ára afmælið sitt. Í boði verða léttar veitingar og tónlist. HERBERT GUÐMUNDSSON ætlar að koma og taka nokkur lög, meðal annars nýja smellinn sinn „Í þér býr það besta“Smellinn er hægt að nálgast á tonlist.is á Kr. 200,-

Breyttur opnunartími frá og með 9. september.Búðin verður opin á miðvikudögum og fimmtudögum frá kl. 13:00 - 17:00.

LJÓSANÆTURTILBOÐ

Í VERSLUN OKKAR DAGANA

20% AFSLÁTTUR

AF ÖLLU.

Heima í

gamla bænum

2

3

4

1

2

3

4

ÍSHÚSSTÍGUR 6

BRUNNSTÍGUR 3

VALLARGATA 22

MELTEIGUR 8

Gálan

SíGull

Æla

Trílógía

FYRRI UMFERÐ TÓNLEIKA KL 21 SEINNI UMFERÐ KL 22

1 DAGSKRÁ LÝKUR 23

C

M

Y

CM

MY

CY

CMY

K

heimagamlabeanum.pdf 1 8/18/15 3:42 PM

Page 11: 34 tbl 2015

KrossmóiReykjanesbæ

VELKOMIN Í VERSLUNARMIÐSTÖÐINA

KROSSMÓA

GLÆSILEG LJÓSANÆTURTILBOÐ

Í VERSLUNUMF Ö S T U D A G U R 4 . S E P T E M B E R

M Y N D L I S TA S Ý N I N G F R Á L E I K S K Ó L A N U M G A R Ð A S E L I

F R Á K L . 1 0 : 0 0 - 1 8 : 0 0 .

A N D L I T S M Á L U N O G B LÖ Ð R U D Ý R

K L . 1 5 : 0 0 - 1 7 : 3 0 .

S I R K U S Í S L A N D K L . 1 7 : 0 0 .

F j ö l d i g l æ s i l e g r a t i l b o ð a .

2 0 % A F S L ÁT T U R a f s n y r t i v ö r u m , i l m u m

o g b æ t i e f n u m .F i m m t u d a g u r : S é r f r æ ð i n u g u r f r á

C l i n i q u e á s t a ð n u m o g v e g l e g u r k a u p a u k i í b o ð i f r á k l . 1 2 : 0 0 - 1 8 : 0 0 .

Fö s t u d a g u r : S é r f r æ ð i n g u r f r á L o r e a l , M a y b e l i n e o g O r o b l u v e r ð u r á

s t a ð n u m f r á k l . 1 2 : 0 0 - 1 8 : 0 0 .

F U L L B Ú Ð A F T I L B O Ð U M O G

F LO T T T I L B O Ð Á H E I L S U D Ö G U M

2 0 % A U K A A F S L ÁT T U R

A F Ö L L U M S K Ó M

1 0 - 2 0 % A F S L ÁT T U R A F

V Ö L D U M V Ö R U M

1 5 % A F S L ÁT T U R A F Ö L L U M V Ö R U M

2 0 % A F S L ÁT T U R A F V Ö R U M

Malai-Thai

Page 12: 34 tbl 2015

12 fimmtudagur 3. september 2015 • VÍKURFRÉTTIR

ljosanott.is

Velkomin á björtustu fjölskylduhátíð landsins Ljósanótt, menningar- og fjölskylduhátíð Reykjanesbæjar

verður haldin dagana 2.–6. september

Dagskrá á útisviðiBlönduð fjölskyldudagskrá á útisviðinu allan daginn

Ingó Veðurguð • Bæjarstjórnarbandið • Jóhanna Ruth • Leikhópurinn LottaLéttsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar • Bestu vinir í bænum • Sígull

Bryn Ballett Akademían • Taekwondo • Danskompaní • Pakkið Kolrassa Krókríðandi • Jónas Sig og ritvélar framtíðarinnar • Líf og friður

Sveitapiltsins draumur, tónleikar til heiðurs Rúnari Júlíussyni

Listsýningar um allan bæ og hin ómissandi ÁrgangagangaTónlistarveisla • Kjötsúpa • Heimatónleikar • Sagnakvöld • Lög unga fólksins Bryggjusöngur • Bíla- og bifhjólasýning • Hátíð í Höfnum • Hjólbörutónleikar

Gospel og læti • Rokksafn Íslands • Leiktæki • Hoppukastalar Brúðubíllinn • Skessulummur og dúndur Ljósanæturtilboð í verslunum

Sjá dagskrá á ljosanott.is

HS Orka lýsir upp Ljósanótt!Landsbankinn er aðalstyrktaraðili Ljósanætur

Láttu sjá þig!

Reykjanesbær 2015

-mannlíf pósturu [email protected]

Kirkjan mín, kirkjan þín, kirkjan okkar allra er afmæl-

issýning Keflavíkurkirkju sem fagnar 100 ára afmæli á þessu ári. Sýningin er í bíósal Duus Safna-húsa.Sýning þessi er sett upp í tilefni af aldarafmæli Keflavíkurkirkju sem

vígð var árið 1915. Rifjuð er upp byggingarsaga kirkjunnar og sagt frá þeim breytingum sem gerðar hafa verið á kirkjunni í gegnum tíðina. En kirkjan er meira en bygg-ing, hún er líka fólk og gefin er inn-sýn í öflugt kirkjustarf í heila öld þar sem margir lögðu hönd á plóg.

Zumba í Reykjanesbæ á LjósanóttZumba er skemmtileg líkamsrækt þar sem dansað er við Suður-Ameríska tónlist. Í Sporthúsinu að Ásbrú eru fjórir zumbatímar í viku og þar ræður ríkjum Aneta Grabowska, gjarnan kölluð Aneta Zumba og hefur hún kennt Zumba í Sporthúsinu síðan það var stofnað haustið 2012.Það er alltaf gleði og gaman í tímum hjá Anetu og ekki skemmir fyrir að það hafa myndast vinatengsl í hópnum og fyrir utan að dansa fjórum sinnum í viku þá hittast konurnar heima hjá hver annarri eða ferðast saman. Hópur-inn hefur gert talsvert af því að dansa úti á víðavangi í Reykjanesbæ m.a. á undan Kvennahlaupinu og á Ljósanótt.Næsta Ljósanótt verður engin undantekning á því. Þær munu dansa nk. laugardag kl. 15 á horni Hafnargötu og Tjarnargötu og hvetjum við áhuga-sama til að koma og dansa með eða horfa á.

Þingkonur og ráðherra á

Sagnakvöldi á Nesvöllum

XuFimmtudaginn 3. september kl 20:00 verður haldið Sagna-kvöld á Nesvöllum sem Fé-

lag eldri borgara á Suðurnesjum efnir til. Í ár verður þess minnst að 100 ár eru liðin frá því konur á Íslandi fengu kosn-ingarétt.Svanhildur Eiríks-dóttir verkefnastjóri mun stjórna kvöldinu og hafa stutta fram-sögu um efni kvölds-ins.Þingkonurnar Oddný G.Harðardóttir, Ragn-heiður Elín Árnadóttir og Silja Dögg Gunn-

arsdóttir mæta og flytja stutt ávörp í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá því konur fengu kosn-ingarétt.Allir velkomnir.

Með óhreint mjöl í poka

XuÖkumaður um tvítugt sem lögreglan á Suðurnesjum stöðv-aði um helgina við hefðbundið eftirlit reyndist ekki aðeins vera undir áhrifum fíkniefna heldur var hann einnig með kannabis í poka í bílnum. Hann viður-kenndi eign sína á fíkniefn-unum.Annar einstaklingur sem lögregla hafði afskipti af var með fíkniefni í tóbaksdós, sem hann vísaði lög-reglumönnum á.

Kirkjan mín, kirkjan þín, kirkjan okkar allra

Keflavíkurkirkja fagnar 100 ára afmæli á þessu ári.

Í sumar hafa staðið yfir fram-kvæmdir við nýjan göngustíg,

sem tengir byggðina í Vogum á Vatnsleysuströnd við skógræktar- og útivistarsvæðið að Háabjalla. Þar hefur skógrægtarfélagið Skógfell byggt upp myndarlega aðstöðu, bæjarbúum til yndis-auka.

Nýi stígurinn liggur um undirgöng undir Reykjanesbraut, og því mun öruggari leið en áður, segir Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Vogum, í vikulegu fréttabréfi sínu.

„Því miður eru vegirnir að stígnum beggja megin í lélegu ástandi, ann-ars vegar Stapavegurinn frá Voga-laxi að spennistöðinni (þar sem stígurinn byrjar) og hins vegar línuvegurinn frá stígnum að Há-abjalla. Sveitarfélagið hefur óskað eftir því við Landsnet hf. (sem á línuveginn) að þeir lagfæri hann á þessum kafla, svo hann verði greið-færari. Einnig er leitað leiða til að lagfæra gamla Stapaveginn, þótt svo ekki sjái enn fyrir endann á því hvernig úr rætist,“ segir Ásgeir jafnframt í fréttabréfinu.

-fréttir pósturu [email protected]

Nýr göngustígur frá Vogum að Háabjalla

Hafnargata 29 - s. 421 8585

20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM SKÓM

frá MIÐVIKUDegi TIL SUNNUDAGS

ljósanótt

OpiðMiðvikdag, fimmtd., föstud. og laugard. 11:00 - 22:00Sunnud. 13:00 - 18:00

20% aukaafsláttur af öllum skóm í

opið á laugardeginum í skólagernum

Page 13: 34 tbl 2015

ljosanott.is

Velkomin á björtustu fjölskylduhátíð landsins Ljósanótt, menningar- og fjölskylduhátíð Reykjanesbæjar

verður haldin dagana 2.–6. september

Dagskrá á útisviðiBlönduð fjölskyldudagskrá á útisviðinu allan daginn

Ingó Veðurguð • Bæjarstjórnarbandið • Jóhanna Ruth • Leikhópurinn LottaLéttsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar • Bestu vinir í bænum • Sígull

Bryn Ballett Akademían • Taekwondo • Danskompaní • Pakkið Kolrassa Krókríðandi • Jónas Sig og ritvélar framtíðarinnar • Líf og friður

Sveitapiltsins draumur, tónleikar til heiðurs Rúnari Júlíussyni

Listsýningar um allan bæ og hin ómissandi ÁrgangagangaTónlistarveisla • Kjötsúpa • Heimatónleikar • Sagnakvöld • Lög unga fólksins Bryggjusöngur • Bíla- og bifhjólasýning • Hátíð í Höfnum • Hjólbörutónleikar

Gospel og læti • Rokksafn Íslands • Leiktæki • Hoppukastalar Brúðubíllinn • Skessulummur og dúndur Ljósanæturtilboð í verslunum

Sjá dagskrá á ljosanott.is

HS Orka lýsir upp Ljósanótt!Landsbankinn er aðalstyrktaraðili Ljósanætur

Láttu sjá þig!

Reykjanesbær 2015

Page 14: 34 tbl 2015

14 fimmtudagur 3. september 2015 • VÍKURFRÉTTIR

Tryggingamiðstöðin Hafnargötu 31 Sími 515 2620 [email protected] tm.is

Góða skemmtun á Ljósanótt!

250 300 350 400 450 500

HEILSUFAREINBEITINGDEPURÐ

SAMSKIPTIFJÁRHAGUR

ÞREKKVÍÐI

LÍKAMSHEILSAVERKIR

SJÁLFSSTJÓRNSVEFNLÍÐAN

LÍFSGÆÐI

HEILSA OG LÍÐAN EFTIR FYRIR

-viðtal pósturu [email protected]

Hreystu er frábært leið til að ná jafnvægi á milli and-

legrar og líkamlegrar heilsu

Hvað er Hreysti?Hreysti er ný endurhæfingarleið hjá Samvinnu sem er starfsendur-hæfingardeild innan Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum. Hreysti er byggð upp á þrem meginþáttum: Hreyfingu, Nú-vitund og Fræðslu. Ásamt því er fjölþætt heilsutengd fræðsla stór partur af námsskeiðinu. Fyrsti hópurinn í Hreysti fór af stað hjá Samvinnu í febrúar 2015 og stóð námsskeiðið í átta vikur en verk-efnið er þróunarverkefnið styrkt af VIRK starfsendurhæfingarsjóði. Árangur verkefnis var góður og bæði andleg og líkamleg líðan þátt-takanda batnaði til muna.Hreysti er sérsniðin endurhæfing ætluð þeim sem þurfa að byggja sig upp líkamlega og auka and-lega vellíðan en þátttakendum er

vísað í Hreysti af ráðgjöfum VIRK. Endurhæfingin er góð leið fyrir þá einstaklinga sem eru að koma sér af stað í hreyfingu og þurfa til þess aðstoð og utanumhald. Einnig þá sem eru að glíma við stoðkerfis-vanda eða jafna sig eftir slys eða veikindi.

Heildstæð úrlausn á vanda hvers þátttakandaNiðurstöður úr matslistanum Heilsutengd Lífsgæði sem þátttak-endur sem lagðir voru fyrir þátt-takendur fyrir og eftir námsskeiðið má sjá á meðfylgjandi mynd.

Er orkumeiri, verkjaminni og meðvitaðri um takmörkin mínHarpa Hauksdóttir var ein þeirra sem að tóku þátt í námsskeiðinu og náði frábærum árangri.

„Ég lenti í vinnuslysi þegar ég fékk fiskikar ofan á höfuðið sem hafði þær afleiðingar að ég tognaði í hálsi, herðablaði og taugar urðu fyrir hnjaski. Hreyfigeta mín skertist, ég þjáist af verkjum sem leiddi til þess að ég varð óvinnufær í kjölfar slyssins. Í svona ástandi er oft erfitt að halda í jákvæðnina og andleg líðan mítn versnaði. Læknir vísaði mér til VIRK starfsendur-hæfingarsjóðs og var mér svo vísað í Hreysti af ráðgjafanum mínum hjá VIRK. Ég var ekki í góðum málum líkamlega né andlega og óskaði þess að fá betri líðan. Ég hef alltaf stundað einhverja hreyfingu með góðum hléum en í Hreysti náði ég að koma hreyfingunni inn og stundaði hana af kappi fjórum sinnum í viku. Fyrir nokkrum árum hóf ég að vinna mikið með

andlega líðan mína, í Hreysti fékk ég svo kærkomin verkfæri til þess að ná enn betri árangri í þeirri vinnu. Að taka þátt í Hreysti hefur hjálpað mér að ná jafnvægi á milli andlegrar og líkamlegrar heilsu, við erum öll svo ólík og þurfum að læra að hlusta á okkur sjálf og þekkja takmörkin okkar, það var svo sannarlega nálgunin sem við fengum í Hreysti. Stuðningurinn af kennurunum var frábær og svo var hópurinn náinn og hvetjandi.“

„Ég náði góðum árangri á náms-skeiðinu, er orkumeiri, verkja-minni og meðvitaðri um takmörk mín. Ég er komin með skýra fram-tíðarsýn, stefni á djáknanám, með stoppi í Háskólagáttinni á Bifröst og hugsa hlýtt til þess að hjálpa fólki í framtíðinni með verkefni lífsins,“ segir Harpa að lokum.Næsta námsskeið af Hreysti hefst 14.september. Sé Hreysti eitthvað fyrir þig ekki hika við að hafa sam-band og fá frekari upplýsingar á netfangið [email protected].

Leikfélag Keflavíkur hefur ráðið Víking Kristjánsson

sem leikstjóra næsta verks sem frumsýnt verður í byrjun nóv-ember í Frumleik-húsinu. Þetta kemur fram á fésbókarsíðu leikfélagsins.Víkingur útskrifaðist frá leiklistardeild LHÍ vorið 2001. Hann er einn af stofnendum Ve s t u r p or t s s e m hefur sett upp fjöl-mörg verk á Íslandi og um allan heim.Víkingur hefur leikstýrt í atvinnu-leikhúsi, hjá áhugaleikhópum og

í framhaldsskólum. Síðustu verk-efni eru Allir á svið! með Leikfélagi

Flateyrar (2013) og Þið munið hann Jör-und með Litla leik-klúbbnum á Ísafirði (2014).

Fyrsti fundur með leikstjóra og kynn-ing á verki, verður miðvikudaginn 9. september í Frum-leikhúsinu kl.19.00. Fyrir al la þá sem

áhuga hafa á að taka þátt og starfa í leikhúsi. Eina skilyrðið er að vera orðinn 16 ára og hafa áhuga á leik-hússtarfi.

Víkingur til Leik-félags Keflavíkur

Víkingur Kristjánsson leikstýrir hjá Leikfélagi Keflavíkur í vetur.

Harpa Hauksdóttir var ein þeirra sem að tóku þátt í námsskeiðinu og náði frábærum árangri.

HARMONIKKUBALL FÖSTUDAGINN 4. SEPTEMBER KL. 20:00.

Á NESVÖLLUM

Hljómsveitinn Suðurnesjamenn leika fyrir dansi.

Aðgangseyrir kr. 1000,-

20%Ljósanæturafsláttur

miðvikudag til mánudags

Opnunartími Miðvikudaginn, fimmtudaginn, föstudaginn 11:00 - 22:00

Page 15: 34 tbl 2015

Skólamatur ehf. | Iðavellir 1 | 230 Reykjanesbær

Skólamatarkjötsúpan frá kl. 19 til 21 á föstudaginn!

Skólamatur

Vaxandi fyrirtæki

Sími 420 2500 www.skolamatur.is

Fjölskyldufyrirtækið Skólamatur ehf. hefur frá árinu 1999 þróað skipulag skólamáltíða í grunnskólum. Þetta frumkvöðlastarf

hefur skilað því að í dag sér fyrirtækið mat í 30 skólamötuneytum á suðvesturhorni landsins. Þar eru um 90 starfsmenn sem

elda fyrir 9000 nemendur og starfsfólk skólanna. Þjónustusamningar um máltíðirnar og rekstur mötuneytanna eru gerðir

við sveitarfélögin. Aðallega er um að ræða grunnskólamötuneyti en einnig mötuneyti leikskóla, öldrunarheimila og

framhaldsskóla.

kjötsúpan er í boði

Skólamatar og Goða.

Hollt, gott og heimilislegt

Page 16: 34 tbl 2015

16 fimmtudagur 3. september 2015 • VÍKURFRÉTTIR

Þeir eru ekki margir sem leggja fyrir sig brúðugerð en einn

þeirra er Jón Bjarni Ísaksson sem margir þekkja sem Imma ananas í Ávaxtakörfunni eða ræfilinn Chris í Killer Joe, hvorutveggja nýlegar uppfærslur Leikfélags Keflavíkur. Brúðurnar heilluðu hann ungan að árum og að sjálf-sögðu kemur innblásturinn frá Prúðuleikurunum.„Áhuginn kviknaði eiginlega upp úr þurru þegar ég var lítill“, segir Jón Bjarni sem hefur lært margt um brúðugerð af netinu. „Alltaf þegar ég horfði á þetta gat ég ekki hætt að hugsa „hvernig virkar þetta?“ eða „hvernig er þetta gert?“

En hvað er það sem heillar við brúðugerð?„Ég myndi segja að það væri skemmtanagildið og áskorunin. Það er ekki auðvelt að búa til brúðu en það er alltaf gaman þegar maður er búinn með verkefni og orðinn vel sáttur. Svo hafa allir gaman af brúðum, skiptir engu máli á hvaða aldri, enda eru til brúðumyndir og þættir fyrir börn og fyrir full-orðna“ segir Bjarni en að hans sögn eru þeir ekki margir sem vinna að brúðgerð á Íslandi. „Við erum kannski 4-8 sem ég veit af. Við höfum samt ekki öll sama stíl, sumir vinna t.d. aðallega með síli-kon og latex og aðrir með tré og strengi“.Brúðugerð getur verið vandasöm og oft getur það tekið langan tíma að gera eina brúðu.

„Ef ég ætti að lýsa þessu á ein-faldan hátt myndi ég segja: taktu svamp og brúðuform, skerðu það út, límdu saman og skelltu yfir það flís – bættu svo við tveimur plast-skeiðum fyrir augu og þú ert kom-inn með brúðu. En þetta er mun flóknara en svo, það tekur stundum langan tíma að búa til brúðu og mikla þolinmæði. Þá á ímyndunar-aflið mikinn hluta í að búa til kar-akterinn og gera hann einstakan.“

Brúðuþættir í Stundinni okkarÞað felast margir möguleikar í brúðugerð og nefnir Jón Bjarni kvikmyndagerð, leikhús, auglýs-ingar og kvikmyndir svo eitthvað sé nefnt. Jón Bjarni hefur staðið í ströngu að undanförnu við tökur á brúðuþáttum sem notaðir verða í Stundinni okkar næsta vetur en þar sér hann um hreyfingar og á þar jafnframt nokkrar brúður, kóngu-lær sem hafa verið vinsælar. Sam-starf hans við Stundina okkar nær langt aftur í tímann eða frá því að Jón Bjarni var í 10. bekk.„Ég var mjög forvitinn um það hver kom að gerð Búbbanna sem voru íslenskir brúðuþættir á Stöð 2. Ég komst að því að þetta var hann Bragi Þór Hinriksson leikstjóri og fékk að skoða brúðurnar og hitta hann. Hann hafði svo samband við mig í nóvember 2013 og bað mig um að koma og stjórna nokkrum brúðum í Stundinn okkari og þetta fór bara lengra þaðan.“Jón Bjarni vann að brúðuþáttum með Stundinni okkar síðasta sumar

og vinnur nú að þriðju seríunni í góðu samstarfi við „Keflvíking-inn“ Góa, Guðjón Davíð Karlsson. „Þetta hefur gengið vel en þetta er mikið strit þar sem við erum að taka upp 22 þætti á 20 dögum. En þetta eru miklir fagmenn og það hefur verið mikill heiður að vinna með þeim Braga og Góa.“Viðbrögð fólks við brúðugerðinni eru yfirleitt mjög góð en Jón Bjarni segir þó nokkuð ljóst að fólk sé ekki að búast við því að hann sé í þessu enda sé þetta ekki eitthvað sem margir velja sér. Verkefnin hafa verið fjölbreytt og má þar nefna víkingabrúðu sem Jón Bjarni gerði fyrir Fasteignasölu Reykjavíkur og verkefni í Bandaríkjunum svo eitt-hvað sé nefnt og þess má geta að brúða Jóns Bjarna lék stórt hlutverk í síðustu revíu Leikféags Keflavíkur.Framhaldi er óráðið að sögn Jóns Bjarna en hann stefnir að því að halda áfram og verða betri í brúðu-gerðinni. „Ég ætla að halda áfram með þau verkefni sem ég er með og taka að mér ný verkefni sem ég fæ. Núna er ég t.d. að vinna að leyni-legu brúðuverkefni sem verður sýnt síðar. Svo gæti alltaf verið að ég og Arnór Sindri félagi minn byrjum aftur með sketsaþættina okkar Tvíeggja.“

Jón Bjarni stefnir á leiklistarnám en hann er ákveðinn að halda áfram með brúðgerðina. „Hver veit nema ég kenni einn daginn brúðgerð, aldrei að vita“.

-viðtal pósturu [email protected]

Það hafa allir gaman af brúðumKeflvíkingurinn Jón Bjarni Ísaksson er brúðugerðarmaður

Page 17: 34 tbl 2015

©2015 Doctor’s Associates Inc. SUBWAY® er skráð vörumerki Doctor’s Associates Inc.

Page 18: 34 tbl 2015

18 fimmtudagur 3. september 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-fréttir pósturu [email protected]

Verkefni Reykjanesbæjar „Framtíðarsýn í mennta-

málum“ er á meðal útvalinna verkefna sem tilnefnd eru til Evrópskra verðlauna í opinberri stjórnsýslu. Verkefnið komst í gegnum fyrstu tvö þrepin, en úr-vinnsla umsókna fer í gegnum fjögur þrep. Á haustmánuðum verður ljóst hvort verkefnið kemst lengra.„Framtíðarsýn í menntamálum“ í Reykjanesbæ er verkefni sem byrjað var að vinna að árið 2011 og var samstarfsverkefni Fræðslusviðs og allra þeirra sem koma að leik- og grunnskólum í sveitafélaginu og á þjónustusvæði þess. Að sögn Guð-nýjar Reynisdóttur skólaráðgjafa á Fræðslusviði, var lagt upp með það metnaðarfulla markmið, að grunn- og leikskólar svæðisins kæmust í fremstu röð á landsvísu. „Eins og mörgum er nú þegar kunnugt um hefur sú vinna skilað sér í bættum árangri nemenda í íslensku og stærðfræði" sagði Guðný. Árið 2014 hlaut verkefnið viður-kenningu fyrir nýsköpun í opin-berri stjórnsýslu. Viðurkenningin veitti jafnframt tækifæri til að sækja um „Evrópsku verðlaunin í opin-berri stjórnsýslu“ (EPSA, European Public Sector Award). EPSA eru verðlaun sem hafa verið veitt annað hvert ár síðan 2007. EPSA er hluti af stóru tengslaneti sem veitir að-gang að áhugaverðum verkefnum og mikilvægri þekkingu í opinberri stjórnsýslu þar sem tilgangurinn er fyrst og fremst að miðla upplýs-ingum og stuðla að bættri stjórn-sýslu. Jafnframt veitir það starfs-fólki á Fræðslusviði tækifæri til að kynna verkefni sín á breiðum vettvangi opinberrar stjórnsýslu í hinum ýmsu löndum Evrópu.

Í ár var auglýst eftir verkefnum sem féllu undir þemað; „Hið opinbera sem hluti af betra samfélagi“ (The Public Sector as Partner for a Bet-ter Society). „Framtíðarsýnin fellur vel að því þema og var ákveðið að sækja um. Sótt var um í apríl sl. en 266 verkefni frá 36 Evrópulöndum og Evrópusambandsstofnunum uppfylltu skilyrði fyrir umsókn. Öll þessara verkefna miða að því að þróa nýjar aðferðir til að takast á við hinar ýmsu samfélagslegu áskor-anir í opinberri stjórnsýslu, s.s. heilbrigðismál, atvinnuleysi ung-menna, byggðaþróun, menntamál, félagslega aðstoð og fólksflutninga. Alls voru 64 verkefni valin úr hópi umsækjenda sem talin voru upp-fylla skilyrði um bestu vinnubrögð (Best Practice Certificate) og var Framtíðarsýnin eitt af þeim," sagði Guðný.Úrvinnsla umsókna fer í gegnum fjögur þrep. Á fyrsta og öðru þrepi eru valin úr verkefni sem þykja uppfylla skilyrði um bestu vinnu-brögð. Á þriðja þrepi er síðan val-inn úr enn smærri hópur verkefna sem þykja skara fram úr og val-nefnd EPSA kemur í heimsókn til að kynna sér verkefnið enn frekar. Í fjórða þrepi kemur valnefndin síðan saman og kynnir tilnefningar og vinningshafana.Verkefnið „Framtíðarsýn í mennta-málum“ komst í gegnum fyrstu tvö þrepin og er von á fréttum á haust-mánuðum um hvort það kemst lengra eður ei. „Hver sem fram-vindan verður, er þetta mikilvæg viðurkenning fyrir skólasamfélagið á Suðurnesjum og veitir því frá-bært tækifæri til að kynna starf sitt og um leið sannfærir okkur sem vinnum að skólamálum um að við séum á réttri leið,“ sagði Guðný að lokum.

Viðurkenning fyrir skólasamfélagið

í Reykjanesbæ

„Framtíðarsýn í menntamálum“ í Reykjanesbæ er verkefni sem byrjað var að vinna að árið 2011.

Síðastliðinn vetur var unnið af krafti að því að iPad væða

ýmsar stofnanir Grindavíkur-bæjar. Yfir 100 tæki hafa verið tekin í notkun, langsamlega flest í grunnskólanum, eða 81 iPad. Kennarar velja sér iPad eða fartölvur sem vinnutæki og meirihlutinn hefur valið að nota iPad. Guðmundur Hjálm-arsson, tölvuumsjónarmaður Grindavíkurbæjar, hefur unnið hörðum höndum að því að tryggja notagildi þessara tækja undanfarin misseri.

Búið er að setja upp Apple TV í öllum kennslustofum í báðum starfsstöðvum grunnskólans og þá er búið að bæta og tryggja þráðlaus netsamband í öllum starfsstöðvum bæjarins. Nú er því ekkert að vanbúnaði að nýta krafta þessara tækja eins og kostur er. Síðastliðinn vetur fengu flestir kennarar iPada í sínar hendur og kennarainnleiðingu því lokið og nokkrir bekkir fengu einnig að prufa sig áfram með tækin, segir á grindavik.is.

Yfir 100 iPadar komnir í gagnið– hjá stofnunum Grindavíkurbæjar

STÆRSTI

ÍSBAR Á

SUÐUR-

NESJUM

Eitthvað fyrir alla fjöl-skylduna

FJÖLBREYTT TILBOÐ Á GRILLINU!

KÓK MEÐ ÖLLUM TILBOÐUM

Verið velkomin í glæsilegu ísbúðina

okkar að Iðavöllum 14

20%

LJÓSANÆTUR-

AFSLÁTTUR

AF KRAPI

4 tegundir af krapa-ís

Vanilluís

Jarðaberjaís

Gamaldagsís

Súkkulaðiís

Karamelluís

Vanillu-jarðberja tvistur

Bananaís

40 tegundir af kurli

Banana og karamellutvistur

FJÓRAR HAGNÝTAR NÁMSBRAUTIR

Fisktækniskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám í sjávarútvegi á framhaldsskólastigi. Námið er hagnýtt tveggja ára nám sem er byggt upp sem önnur hver önn í skóla og hin á vinnustað. Nemendur geta valið sér námsleiðir í sjómennsku, fiskvinnslu og fiskeldi.Verkefni og vinnustaðir eru valdir með hliðsjón af áhuga hvers og eins.

Nám í skóla - nám á vinnustað

Víkurbraut 56 240 Grindavík, [email protected]

FISKTÆKNI

Inntökuskilyrði: Grunnskólapróf.Á Fisktæknibraut er hægt að velja þrjár línur:- Sjómennska/veiðar - Fiskvinnsla- - FiskeldiHvert námsár skiptist í eina önn í skóla og eina á vinnustað undir leiðsögn tilsjónamanns .

MAREL VINNSLUTÆKNINám við vélar og hugbúnað frá Marel.Inntökuskilyrði: Hafa lokið námi í Fisktækni eða sambærilegu námi.

Námsárið skiptist í fagbóklegar greinar og vinnustaðanám undir leiðsögn tilsjónamanns.

Spennandi blanda bóklegs og verklegs náms sem gefur mikla starfsmöguleika eða til frekari menntunnar.

Nánari upplýsingar hjá starfsmönnum Fisktækniskóla Íslands í síma 412-5966 eða á www.fiskt.is

Tveggja ára hagnýtt framhaldsskólanám til starfa í sjávarútvegi og fiskeldi.

Page 19: 34 tbl 2015

Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar | Sími 425 2100 | www.asbru.is

REYKJANESBÆR

ÁSBRÚ

REYKJAVÍK

Góða nótt!Ljósa-

PIPA

R\TB

WA

· S

ÍA ·

15

24

19

Starfsfólk Kadeco óskar íbúum Reykjanesbæjar og gestum ánægjulegrar Ljósanætur. Góða skemmtun!

Page 20: 34 tbl 2015

20 fimmtudagur 3. september 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-ljósanótt pósturu [email protected]

Sýning á sjö kjólum Örnu Atla-dóttur fatahönnuðar opnar á

vegum Listasafns Reykjanesbæjar í Gryfjunni í Duus Safnahúsum fimmtudaginn 3. september n.k. og verður ein af Ljósanætursýn-ingum safnsins. Arna fæddist í Re ykjav ík árið 1984 en ólst upp frá 6 ára aldri í Reykjanesbæ. Hú n s t u n d a ð i nám í textíl við Te x t i l s k o l e n í Holte, Danmörku og fór síðar í nám í fatahönnun í Instituto Europa di Design í Madr-íd.Á þessari fyrstu e i n k a s ý n i n g u Örnu sem nefnist „The balance between natural and artificial“ not-ast hún við mannshár og hrosshár í textíl ásamt perlum og kristöllum. Innblástur sýningarinnar eru þær kröfur sem samfélagið setur á út-lit kvenna. Sérstaklega er Örnu hugleikin mótsagnakennd viðhorf til hárvaxtar kvenna þar sem þær leitast oftar en ekki við að hafa þykkt og mikið hár á höfði en að sama skapi þykir snyrtilegt að fjar-

lægja öll önnur líkamshár. Margar spurningar vakna hjá hönnuði í sambandi við viðfangsefnið og hér fæst Arna við að blanda saman hefðbundnu skrauti og prjáli við hár og setur þannig líkamshár í

nýtt samhengi sem eins konar prýði kvenna. Óteljandi háralykkjur, perlur og annað efni er notað í textílinn, en hönnuðurinn situr löngum stundum við að bródera og vinna hárin sem að lokum eru fest við efnið. Sam-hliða þessu skissar Arna og gerir litlar text i lprufur en einnig þykir hönn-uði spennandi að

beita saumnálinni á efnisstrangann líkt og um málarastriga og pensil væri að ræða.Arna hefur tekið þátt í samsýn-ingum erlendis en hluti af þessari sýningu fór á samsýningu fata-hönnuða í Philip Stark safninu í Bilbao, Spáni.Sýningin stendur til 18. október og er opin alla daga frá kl. 12.00-17.00, ókeypis aðgangur.

XuListasafn Reykjanesbæjar fór í samstarf við Sandgerðisbæ um að kynna verk finnsku listakonunnar Eiju Pirttilathi og opnar af því tilefni sýningu á verkum hennar í Stofunni í Duus Safnahúsum fimmtudaginn 3. september n.k. Eija hefur verið í samvinnu við kennara og listafólk í Sandgerði um nokkurn tíma.Eija er textíl listakona og vinnur verk sín í þæfða ull. Vinnustofa Eiju er staðsett í þorpinu Pohjaslahti í lista-bænum Mänttä-Vilppula og fyrir-tæki hennar Sammallammas hefur verið starfrækt síðan 1994. Fyrir-tækið er staðsett í miðjum skógi og þangað sækir Eija sinn mikilvægasta innblástur. Þekktustu vörur Sam-

mallamma eru vínkælar í formi dýra og eru þeir þæfðir úr finnskri ull og sýnir hún nokkra slíka við þetta tæki-færi. Einnig sýnir Eija veggteppi sem líka eru unnin úr þæfðri ull.Eija hefur ferðast nokkrum sinnum til Íslands og er heilluð af þessu dularfulla landi. Hún segir: ,,Náttúra okkar er mjög ólík en sum áhugaverð smáatriði eru lík og hefur það verið innblástur minn í þessari sýningu”. Verkin á sýningunni sýna hughrif úr ferðum hennar um Ísland eins og nöfnin Mosi, Flétta, Ís og Reyniviður gefa til kynna.Sýningin stendur til 11. október og er opin alla daga frá 12.00-17.00, að-gangur er ókeypis.

Sveitarfélagið Vogar:

Fasteignamatið lækkar 2016

XuÞjóðskrá Íslands gefur árlega um mitt ár út nýtt fasteignamat sem gildir fyrir næsta ár. Nú liggur fyrir hvert matið verður árið 2016. Í Vogum lækkar fast-eignamatið um 1,9% frá árinu 2015. Landmat 2016 hækkar um 0,7% árið 2016 miðað við landmatið 2015. Á landinu öllu hækkar fasteignamatið um 5,8%, á Suðurnesjum er hækk-unin 4,2%. Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Vogum, greinir frá þessu í vikulegu fréttabréfi sínu.

Fram kemur hjá Þjóðskrá að fast-eignamatið byggi á upplýsingum úr þinglýstum kaupsamningum auk fjölmargra annarra þátta sem hafa áhrif á verðmæti fasteigna.

„Tekjur sveitarfélagsins af fast-eignasköttum munu því að óbreyttu lækka á næsta ári. Fjár-hagsáætlun ársins 2015 gerir ráð fyrir að fasteignaskattar skili sveitarfélaginu tæpum 80 m.kr. Góðu fréttirnar fyrir fasteigna-eigendur eru auðvitað þær að fasteignaskatturinn verður eilítið lægri á næsta ári en í ár,“ segir Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Vogum.

Jafnvægið milli hins náttúrulega og hins tilbúna

Hughrif náttúrunnar – Þæfð verk eftir finnsku listakonuna Eiju Pirttilathi

Leikur, söngur, glens og gleði.

Byrjenda- og framhaldsnámskeið (einnig eru námskeið í boði fyrir lengra komna).

Takmarkaður fjöldi í hvern hóp.

Allar nánari upplýsingar í síma 869 1006.- Guðný Kristjánsdóttir.

Skráning á www.gargandisnilld.is.

Skráning er hafin á ný námskeið hjá Gargandi snilld.

Námskeiðin hefjast í september.

Page 21: 34 tbl 2015

LJÓSANÓTT | ÁSBRÚ

PIZZUR & HLAÐBORÐFULLT AF SPENNANDI OG

KLASSÍSKUM PIZZUMFERSKUR OG HOLLUR SALATBAR

MEXÍKÓSK KJÚKLINGASÚPA GOSGLAS

ATH: TÖKUM EKKI VIÐ BORÐAPÖNTUNUMLOKUM KLUKKAN 21:00 Á LAUGARDEGI OG OPNUM 12:00 Á SUNNUDEGI

Page 22: 34 tbl 2015

22 fimmtudagur 3. september 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-fréttir pósturu [email protected] -ljósanótt pósturu [email protected]

Myndlistin skipar stóran sess á Ljósanótt að venju

en sýningarnar skipta nokkrum tugum. Fríða Rögnvaldsdóttir myndlistarkona er ein af þeim sem lætur sig ekki vanta og hún verður með sýningu á Kaffihús-inu Stefnumóti í Keflavík en auk þess mun Ásdís Friðriksdóttir sýna þar á Ljósanótt. Fríða er

þekkt fyrir „steypumyndirnar“ sínar en það er svokallað steypa á strika. Hún hefur einnig verið að þróa olíuverk sem eru fígúru-myndir, afar áhugaverðar. Hún mun sýna þrettán myndir og eins og sjá má á ljósmyndinni af henni á vinnustofunni er ein aðal-myndin með tengingu til Ljósa-nætur. VF-mynd/pket.

Trausti Trausta sýnir á Icel-andair Hótelinu í Keflavík

á Ljósanótt. Trausti úskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1987 (Listaháskóla Íslands).Trausti hefur komið víða við í list sinni og má þar nefna grafíska hönnun, myndlist og höggmynda-list.Á sýningu þessari sem nefnist Hetj-urnar Mínar sýnir Trausti Poplista-verk frá árinu 2000 til dagsins í dag, en Trausti hefur málað Poplista-verk allt frá árinu 1980 og hélt sýna fyrstu Popsýningu árið 1990.Sýning þessi er til heiðurs Hergé, Morris og Goscinny. Sýningin opnar fimmtudaginn 3. september kl 19:00 - 23.00 í stóra-

salnum (Gamla bókasafninu) og eru allir velkomnir.

Sýningin verður opin 3.- 6. sept:Fimmtudag kl: 19:00 – 23:00Föstudag kl:15:00 – 21:00Laugardag kl: 13:00 – 21:00Sunnudag kl: 13:00 – 17:00.

MYNDLISTIN STÓR AÐ VENJU Á LJÓSANÓTT

TRAUSTI TRAUSTA SÝNIR Á ICELANDAIR HÓTELINU

Tónlistarskóli Reykjanes-bæjar er að hefja kennslu í

þremur nýjum greinum, sem eru nám á blokkflautu samkvæmt Suzuki-aðferðinni, nám í rytm-ískum söng og barnakór.Tónlistarskólinn bauð um árabil upp á fiðlunám samkvæmt Su-zuki-aðferðinni, en af óviðráðan-legum ástæðum varð að leggja það nám niður fyrir nokkrum árum. Nú ætlar skólinn að endurvekja Suzukinámið en í formi blokk-flautukennslu. Námið er ætlað börnum á aldrinum 3-6 ára og skilyrði er að forráðamaður fylgi barni sínu í náminu, en það hefst með foreldrafræðslu fyrstu vik-urnar. Aðeins örfáir nemendur verða teknir inn.

Skólinn býður nú upp á nám í Rytmískum söng sem er djass- og dægurlagasöngur. Námið er ætlað nemendum frá 12 ára aldri og þurfa umsækjendur að mæta í raddprófun áður en skólavist er staðfest. Auk þess sem nemendur læra raddtækni og fleira því tengt, er m.a. kennt að syngja í míkró-fón. Nemendur í rytmískum söng tilheyra rytmísku deild skólans og munu því taka þátt í þeim hljómsveitum sem starfræktar eru innan deildarinnar þegar þeir hafa orðið kunnáttu til þess. Einungis örfáir nemendur verða teknir inn að þessu sinni. Skólinn er að stofna barnakór sem ætlaður er börnum á aldrinum 9-11 ára (í 4. til 6. bekk). Barna-kórinn er ætlaður fyrir bæði nem-

endur Tónlistarskólans og önnur börn á þessum aldri sem búsett eru í Reykjanesbæ. Þau börn þurfa ekki að vera nemendur Tónlistar-skóla Reykjanesbæjar að öðru leiti en ber að greiða kórgjald sem er stillt mjög í hóf. Almennir nem-endur Tónlistarskólans greiða ekki kórgjaldið. Æfingar verða á mánudögum og fimmtudögum frá kl.16-16.45 í Tónlistarskól-anum, Hjallavegi 2. Umsækjendur verða teknir í raddprófun áður en inntaka í kórinn verður staðfest og hámarksfjöldi eru 40 börn.Nánari upplýsingar um þessar þrjár námsgreinar, m.a. um um-sóknir og námsgjöld, eru á vef-síðu skólans tonlistarskoli.reykja-nesbaer.is undir hlekknum „Nýtt nám 2015“.

Tónlistarskóli Reykjanesbæjar:

Með þrjár nýjar námsgreinar– Suzuki-blokkflauta, Rytmískur söngur og barnakór

Nú er unnið að lagningu göngu- og hjólreiðastígs

milli Eyjavalla í Keflavík og Flug-stöðvar Leifs Eiríkssonar. Verk-efnið er samstarfsverkefni Vega-gerðarinnar, Isavia og Reykjanes-bæjar en bærinn hefur umsjón með verkefninu.Það er fyrirtækið GóðGæði ehf. sem er verktaki en nú þegar hefur verið lokið við að malbika stíginn frá flugstöðinni og að Rósasel-storgi. Guðlaugur Helgi Sigur-jónsson, sviðsstjóri umhverfissviðs Reykjanesbæjar, segir að lokið verði við stíginn frá Reykjanesbraut og að Eyjavöllum í október nk. Notast verði að hluta til við slóða við Rósa-selstjarnir sem lagðir hafa verið vegna lagningar á jarðstreng til Helguvíkur. Þá verði aðrir slóðar byggðir upp og leiðin malbikuð. Þá verður stígurinn upplýstur með led-ljósum.Nýi göngu- og hjólastígurinn er mikil samgöngubót fyrir þann ört vaxandi hóp sem kýs að fara á milli flugstöðvarinnar og Reykjanes-bæjar gangandi eða á hjóli. Kostn-aður við framkvæmdina er rúmar 80 milljónir króna.

Göngu- og hjólreiðastígurinn liggur með flugvallargirðingunni frá Flugstöð Leifs Eiríks-sonar og að Reykjanesbraut við Rósaselstorg. Lokið verður við stíginn í október nk.

Upplýstur stígur milli Keflavíkur og flugstöðvar kostar 80 milljónir kr.

LJÓSANÆTUR-AFSLÁTTUR

20% FULL BÚÐ AF NÝJUM

VÖRUM

TÍSKUSÝNING LAUGARDAGINN KL. 16:00.

OPNUNARTÍMI :MIÐVIKUDAG TIL LAUGADAGS ER OPIÐ TIL 22:00. SUNNUDAG 13:00 TIL 18:00.

Föstudaginn 4. september mun Hnefaleikafélag Reykja-

ness halda hnefaleikamót. Box á Ljósanótt var áður árlegur við-burður hér í Keflavík en hefur ekki verið síðastliðin fjögur ár. Núna er það komið aftur til að vera, með nýjum AIBA reglum sem hafa breytt íþróttinni hvað varðar hanska og höfuðbúnað. Því er þetta með stærri íþrótta-viðburðum sem verða haldnir í Keflavík í ár. Núna munu sækja að reynslumiklir keppendur frá

Reykjavík, Kópavogi, Hafnafirði og Akranesi.Tómas hefur stigið inn í hring-inn fimm sinnum áður á meðan Björn Lúkas er að stíga sín fyrstu skref í hnefaleikum. Hann er þó þaulvanur bardagamaður, en hann hefur átt stórgóðan árangur í júdó, brasilísku jui juitsu og Taekwondo. Félagarnir hafa æft af kappi síðustu mánuðina, en þeir fá báðir mjög harða andstæðinga frá Hnefaleika-félagi Reykjavíkur.

Tómas og Björn Lúkas keppa í hnefaleikum á Ljósanótt

Page 23: 34 tbl 2015

TJARNARGÖTU 2 • 230 REYKJANESBÆ • S: 421-3377 • WWW.BUSTOD.IS • BÚSTOÐ EHF

OPNUN YFIR LJÓSANÓTT: Fimmtudag - föstudag 10-22, laugardag 11-18, sunnudag 13-16

LJÓSANÆTURTILBOÐ20-70% afsláttur

af allri gjafavöru

30%AFSLÁTTUR

DREAMWORLD RÚM

20%AFSLÁTTUR

SÓFASETT FRÁ CONSOFA

20%AFSLÁTTUR

ÖLL LJÓS

20%AFSLÁTTUR

HNETTIR

Fjöldi annarra tilboða á húsgögnum

Page 24: 34 tbl 2015

Tilboð gilda 24. ágúst – 5. september.

byko.is

Velkomin á ljósanótt

Ljósanótt

25%afsláttur

af ljósum, perum, luktum og seríum

Jóhann Ólafsson & Co

Guðný Helgadóttir verður með kynningu og aðstoðar viðskiptavini við val á perum á fimmtudaginn 3. september frá kl. 14:00 - 17:00.

Page 25: 34 tbl 2015

Tilboð gilda 24. ágúst – 5. september.

byko.is

Velkomin á ljósanótt

Ljósanótt

25%afsláttur

af ljósum, perum, luktum og seríum

Jóhann Ólafsson & Co

Guðný Helgadóttir verður með kynningu og aðstoðar viðskiptavini við val á perum á fimmtudaginn 3. september frá kl. 14:00 - 17:00.

Page 26: 34 tbl 2015

26 fimmtudagur 3. september 2015 • VÍKURFRÉTTIR

Hópur starfsfólks Heiðar-skóla í Reykjanesbæ afhenti

í sl. viku fræðslustjóra Reykjanes-bæjar undirskriftir sínar þar sem þeir tjá honum að starfsmenn-irnir ætli ekki að taka þátt í af-hendingu á blöðrum fyrir setn-ingu Ljósanætur fimmtudaginn 3. sept. Starfsmenn Heiðarskóla komu saman á starfsmannafundi þann 20. ágúst sl. Þar varð mikil umræða um setningu Ljósanætur. Starfs-mennirnir sem skrifuðu undir bréf til fræðslustjóra bæjarins telja það stríða gegn umhverfisáætlun Heiðarskóla að sleppa blöðrum á Ljósanótt og hafa því ákveðið að taka ekki þátt í afhendingu á blöðrum.

Þess í stað leggur starfsfólkið til að nemendur verði með fána sem þeir hafa búið til sjálfir og veifi þeim við setninguna. Þá ætlar starfsfólkið að fara í sérstaka fræðslu um þau um-hverfisáhrif sem setningin hefur.

Umhverfisáætlun Heiðarskóla er svona:Samkvæmt aðalnámskrá grunn-skóla er ekki gert ráð fyrir um-hverfismennt sem stökum náms-þætti heldur eiga skólar að útfæra umhverfismennt í skólanámskrá.Heiðarskóli stefnir að því að gera nemendur sína meðvitaða um mikilvægi þess að bera virðingu fyrir umhverfinu og leggur áherslu á að upplýsa nemendur og starfs-fólk um að þeir geti lagt sitt af

mörkum við að vernda umhverfið og náttúruna. Nemendur og starfs-fólk vinna saman að því að halda skólalóð þrifalegri.Við einsetjum okkur að bera virð-ingu fyrir öllu umhverfinu• nemendur geri sér grein fyrir mikilvægi þess að endurnýta og endurvinna ýmislegt sem annars færi í ruslið• nýta vel pappír og önnur efni• draga úr notkun á einnota vörum og vörum í einnota umbúðum• flokka sorp t.d. pappír, rafhlöður, dósir, plast og fernur• ganga vel um bæði úti og inni• nota rafræn boðskipti, sé þess kostur, frekar en pappír• spara rafmagn, og vatn• velja umhverfisvænni vörur

-fréttir pósturu [email protected]

Nokkrir ástríðufullir mark-þjálfar sem starfa undir

heitinu Markþjálfahjartað eru að fara af stað með áhugavert tilraunaverkefni í samstarfi við grunnskóla á Suðurnesjum. Einlægur áhugi þeirra er að koma markþjálfun sem upp-byggilegu afli inn í skólastarfið. Markþjálfarnir hafa ákveðið að gefa alla vinnu sína við þetta tilraunaverkefni og veita nem-endum þannig tækifæri á að uppgötva nýjar aðferðir til að ná markmiðum sínum og bæta námsárangur.„Við viljum gefa nemendum kost á að nýta markþjálfun til þess að styrkja sjálfsmyndina“ segir Ing-ólfur Þór Tómasson, markþjálfi í Reykjanesbæ og meðlimur Mark-þjálfahjartans. Verkefnið snýst um að bjóða nemendum 8. til 10. bekkja

á Suðurnesjum að taka þátt í þessu tilraunaverkefni. Akur-skóli, Holtaskóli, Stóru-Voga-skóli ,Grunnskólinn í Sandgerði og Myllubakkaskóli hafa þegar ákveðið að taka þátt. Markþjálfa-hjartað vill einnig hvetja stjórn-endur skóla sem hafa áhuga á að nýta Markþjálfun í sínum skóla að hafa samband.„Við í Markþjálfahjartanu viljum hvetja alla sem koma að skóla-starfi á einn eða annan hátt að nýta tækifærið og sjá hvernig markþjálfun getur komið að upp-byggilegum notum í skólastarfi,“ segir Ingólfur Þór.Allar nánari upplýsingar veitir Ásta Guðrún Guðbrandsdóttir verkefnastjóri verkefnisins í síma 866-8450 eða með því að senda henni tölvupóst á netfangið [email protected]

Taka ekki þátt í af-hendingu á blöðrum

- í Heiðarskóla fyrir Ljósanótt

Markþjálfun fyrir 8. til 10. bekk í grunnskólum á Suðurnesjum

Á myndinni eru Kristín Hákonardóttir,Ingólfur Þór Tómasson,Ásta Guðrún Guð-brandsdóttir,Katrín Júlía Júlíusdóttir,Margrét Birna Garðarsdóttir

og Sara Kristinsdóttir.

Clinique dagar í Lyfju Reykjanesbædagana 3. - 9. september.

Kaupauki fylgir ef keyptar eru vörur frá Clinique fyrir 6.900 kr eða meira.*

Kaupaukinn inniheldur:Turnaround overnight revitalizing Moisturizer NÝTT

Turnaround dagkrem NÝTT

Liquid facial soap mildDuo eyeshadowCubby stick glossHigh impact mascara

*á meðan byrgðir endast .

Sérfræðingur frá Clinique verður íLyfju fimmtudag og föstudag.

20%afsláttur af Clinique vörumfimmtudag og föstudag.

Page 27: 34 tbl 2015

Iðavöllum 14, Reykjanesbæ

Page 28: 34 tbl 2015

28 fimmtudagur 3. september 2015 • VÍKURFRÉTTIR

Skrúðgarðurinn að Bræðra-borg í Garði verður endur-

lífgaður næsta vor. Það er meðal v iðbragða sem Unnar Már Magnússon, sonur Magnúsar Magnússonar frá Bærðraborg, hefur fengið. Víkurfréttir greindu frá því í síðustu viku að þessar mundir væru liðin 10 ár frá því Unnur Björk Gísladóttir afhenti Sveitarfélaginu Garði skrúðgarð við Bræðraborg í Garði til minn-ingar um Magnús Magnússon frá Bræðraborg. Magnús var mikill áhugamaður um ræktun og um-hverfi. Hann var fæddur 29. ágúst árið 1915 og hefði því orðið 100 ára sl. laugardag.Skrúðgarðurinn við Bræðraborg í Garði var áratuga starf Magnúsar en uppbygging garðsins tók 55 ár. Eftir fráfall Magnúsar árið 1994 hélt Unnur Björk, ekkja Magnúsar, áfram að hugsa um skrúðgarðinn þar til hann var gefinn Sveitarfélag-inu Garði þann 29. ágúst 2005 á 90 ára árstíð Magnúsar.

Þegar sveitarfélagið tók við skrúð-garðinum hófst hins vegar sorgar-saga því umhirða í garðinum hefur verið lítil og er skrúðgarðurinn nú orðinn að hryllingsgarði eins og Unnar Már lýsti garðinum í síðasta blaði Víkurfrétta. Eins og staðan er í dag hefur þessi margverðlaunaði skrúðgarður dáið í höndum sveitarfélagsins, sagði Unnar Már m.a. í samtali við blaðið.

Unnar Már segist hafa fengið mikil og góð viðbrögð við frétt Víkurf-rétta í síðustu viku og er ánægður með að heyra að skrúðgarðurinn verði „endurlífgaður“ næsta vor og óræktinni sagt stríð á hendur. M.a. er unnið að því að útbúa prúttvöll fyrir eldri borgara í skrúðgarðinum og hann mun njóta sín betur í vel ræktuðum garði.

-fréttir pósturu [email protected]

Bræðraborg í Garði:

Skrúðgarður verður endurlífgaður í vor

Úr skrúðgarðinum í Garði sem hefur verið að drukkna í órækt síðustu ár.

Skemmtiferðaskipið Ocean Nova kom til Grindavíkur-

hafnar í gær. Skipið er sérútbúið til siglinga á norðurslóðum og er ekki stórt en það tekur aðeins 78 farþega. Þetta er í fyrsta skipti sem skemmtiferðaskip leggst að bryggju í Grindavík eftir því sem fram kemur á grindavik.is.

Skipð var sérstaklega smíðað til að sigla innan um ísjaka á Grænlands-hafi og var sjósett árið 1992. Það er þrátt fyrir smæð sína vel búið og í því er vegleg aðstaða, m.a. sérstak-lega til að fylgjast með náttúrunni en auk þess er stór veitingasalur, bókasafn og fleira.

Skemmtiferðaskip til Grindavíkur í fyrsta skipti

Ocean Nova í Grindavíkurhöfn. VF-mynd/HG.

Áframhaldandi samstarf milli Sandgerðisbæjar og Sveitar-

félagsins Garðs í umhverfis-, skipulags- og byggingarmálum hefur verið tryggt en Magnús Stefánsson bæjarstjóri í Garði og Ólafur Þór Ólafsson forseti bæjarstjórnar í Sandgerði undir-rituðu samning þess efnis síðasta fimmtudag.Samstarf sveitarfélaganna í mála-flokknum sem hófst árið 2012 er styrkt enn frekar með þessum nýja samningi með það að markmiði að ná fram hagræði um leið og góð þjónusta er tryggð bæði í Sand-

gerði og Garði. Umsvif hafa aukist töluvert innan bæjarmarka beggja sveitarfélaganna síðan upphaflegi samningurinn var gerður og því mikilvægt að endurskoða sam-starfið og gera nýjan samning sem mun taka gildi 1. september 2015.Í nýja samningnum er aukin áhersla á umhverfismál auk þess sem bætt verður við starfsmanni til að mæta vaxandi verkefnum. Jón Ben Einarsson verður áfram sviðsstjóri umhverfis-, skipulags- og byggingasviða beggja sveitar-félaganna en með haustinu mun nýr starfsmaður bætast við á sviðið.

Sandgerði og Garður áfram í samstarfi í umhverfis-, skipu-

lags- og byggingarmálum

Um helmingur túnfiskkvótans veiddur

Áhöfn línuskipsins Jóhönnu Gísladóttur GK frá Grindavík hefur veitt um helming túnfiskkvótans þetta árið. Fimmtán tonn af tún-

fiski eru komin á land nú í ágúst en kvótinn er 32 tonn.Fiskarnir sem Jóhanna Gísladóttir GK hefur veitt suður af landinu eru orðnir 92 talsins en þeir eru sendir með flugi á markað erlendis. Flestir fara þeir til Japan og eru seldir á stærsta fiskmarkaði Japans til sushi-veitinga-húsa fyrir um 10.000 krónur kílóið.

Page 29: 34 tbl 2015

HS Orka lýsir upp Ljósanótt

Stórkostlegt sjónarspilFlugeldasýningin á Ljósanótt er án alls vafa hápunktur hinnar árlegu menningar- og fjölskylduhátíðar í Reykjanesbæ. Fjórða árið í röð kemur HS Orka að flugelda-sýningunni sem undir styrkri stjórn Björgunarsveitar Suðurnesja er stórkostlegt sjónarspil. HS Orka óskar íbúum Reykjanesbæjar og gestum þeirra til hamingju með Ljósanótt 2015.

www.hsorka.is

Page 30: 34 tbl 2015

30 fimmtudagur 3. september 2015 • VÍKURFRÉTTIR

Sumarið hefur verið gott og úti-vistarfólk nýtur lífsins með

ýmsu móti. Golfvellir landsins iða af lífi frá morgni og langt fram á kvöld. Víkurfréttir hitti golfparið Jón Pétursson og Sigurrós Hrólfs-dóttur sem hafa stundað golfið að miklu kappi þetta sumarið og lagði fyrir þau nokkrar spurningar varð-andi golfið.

Hvenær byrjuðu þið í golfi? Sigurrós: „Ég byrjaði 2013 af alvöru. Ég hafði farið nokkra hringi sem kylfuberi fyrir systur mína og hún náði að smita mig af þessari bakteríu. Hún lét mig hafa byrjendasettið sitt og ég fór út á gamla æfingasvæði GS, Jóel, að æfa mig og eftir það var ekki aftur snúið. Ég kem úr mikilli golf-fjölskyldu og var lítið annað rætt í fjölskylduboðum en golf. Við erum með árlegt fjölskyldugolfmót og það eru alltaf fleiri fjölskyldumeðlimir að bætast í hóp kylfinga.“ Jón: „Ég var eitthvað að slá árið 2013 með litlum árangri en byrjaði á fullu vorið 2014 eftir að ég hitti Sigurrós.“

Af hverju golf? Sigurrós: „Golf er frábær og krefj-andi íþrótt. Ég elska að vera utan-dyra, sérstaklega á sumrin. Átján holu hringur tekur fjóra klukkutíma og er um það bil 10-12 km. ganga sem er frábær hreyfing, holl og góð brennsla og mikið súrefni sem maður fær í skrokkinn. Fátt sem toppar það. En golfið getur líka tekið ansi mikið á taugarnar og þolinmæðina ef illa gengur. Maður er alltaf að reyna að bæta sjáfan sig á hverri holu og alltaf að keppa við sjálfan sig sem gengur misvel.“Jón: „Útiveran,hreyfingin, félags-kapurinn, já og þessi fáu högg sem maður hittir, þá langar manni að koma aftur. Þetta togar í mann, ótrú-legt!“

Hvað er það sem heillar ykkur mest við golfið? Sigurrós: „Ætli það sé ekki útiveran og fjölbreytileikinn við golfið sem heillar mest. Það er enginn dagur eins í golfi. Einnig er það félagsskapur-inn sem er svo skemmtilegur. Það

er fátt skemmtilegra en að spila með góðu fólki á góðum degi. Við höfum kynnst mikið af fólki í gegnum þessa íþrótt.Jón: „Útiveran, hreyfingin, kyrrðin, góðu höggin og já að spila með skemmtilegu fólki.“

Hvort ykkar er betra?Sigurrós: „Við höfum lítið verið að hugsa um forgjöfina. Við fengum bæði forgjöf síðasta sumar, ég er með 36. Ég stefni á að lækka eitthvað núna í sumar en Jón spáir lítið í forgjöfina, aðallega að ná sveiflunni og réttu gripi.“Jón: „Sigurrós er betri. Það er unun að horfa á hana slá, hún er með svo fallega sveiflu. Ég er að vinna í þessu“, segir Jón hlægjandi

Spilið þið mikið saman? Sigurrós: „Já við spilum oftast saman eða með golfhópnum okkar en við erum níu saman í þeim hóp. Við kon-urnar í hópnum förum á kvennamót til að hafa gaman af, þar skiptir skorið ekki höfuðmáli heldur hinn frábæri félagsskapur, flottar teiggjafir, góður matur og að eiga þann möguleika á að fá vinning þegar dregin er úr skor-kortum,“ segir Sigurrós brosandi.Jón: „Já við spilum mikið saman, það eru forréttindi að vera með kærust-unni í golfi.“

Er mikil samkeppni ykkar á milli? „Nei við samgleðjumst bara ef öðru okkar gengur vel og erum dugleg að hrósa hvort öðru fyrir góð högg,“ segja þau saman.

Eruð þið orðin miklir golfsjúklingar? Sigurrós: „Já lífið snýst mikið um golf hjá okkur og notum við mikið af okkar frítíma í golfið, en ræktin fær líka sinn tíma og hefur alltaf verið lífsstíll hjá okkur báðum. Enda er líka mikilvægt að vera í góðu formi ef þú ætlar að vera góður í golfi.“Jón: „Ég held ekki. Jú, kannski, maður er svo öfgafullur í öllu sem maður gerir,“ segir Jón og hlær við.

Látið þið léleg högg fara í skapið á ykkur?

Sigurrós: „Það fer eftir aðstæðum. Ég tek bara eina holu í einu og er oftast fljót að jafna mig á lélegum höggum. Kannski ef allur hringurinn hefur verið lélegur, þá hvíli ég mig í tvo til þrjá daga og fer á æfingavöll-inn, Jóel, eða á æfingasvæðið til að æfa og finna sveifluna aftur.Jón: „Nei það gerist eiginlega aldrei, þá væri ég svo oft brjálaður,“ segir Jón og hlær. „Það er ótrúlegt af því að ég er alls ekki skaplaus, en þeim fer fækkandi lélegu höggunum.“

Hafið þið farið á marga velli innanlands? Sigurrós: „Við höfum farið á nokkra velli innanlands og eru þeir misjafn-lega skemmtilegir og erfiðir en við spilum oftast í okkar klúbbi í Leir-unni eða í Setberg en í þeim klúbbi er hluti af golfhópnum okkar.“Jón: „Ég veit ekki hvort það teljast margir vellir, en við höfum farið á fimm til sjö golfvelli.“

En erlendis? Sigurrós: „Við erum að fara saman i okkar fyrstu golfferð til Flórída í nóv-ember og erum mjög spennt.“Jón: „Ég fór til Flórída með frábæru fólki fyrir fjórum árum en ég fór lítið í golf þá, kannski tvisvar sinnum. Við ætlum hins vegar í haust í sautján daga, það verður sko spilað golf þá!“

Hver er uppáhalds golfvöllurinn ykkar?

Sigurrós: „Leiran auðvitað, get nú ekki sagt annað þar sem ég er nú í aðalstjórn GS og meðstjórnandi í kvennastarfi GS,“ segir Sigurós hlægjandi. „Annars er völlurinn í Vestmannaeyjum ótrúlega fallegur.“Jón: „Leiran, engin spurning.”

Hver er uppáhalds golfholan ykkar? Sigurrós: „Uppáhalds holan mín er 9. holan í Leirunni en þar fékk ég minn fyrsta fugl og hefur mér oftast gengið vel með þá holu. Hola númer þrjú í Leirunni eða Bergvíkin, er skemmti-legust og fallegust.“Jón: „Það er þriðja holan í Leir-unni, Bergvíkin. „Ég fékk fugl þar um daginn. Hún er svo krefjandi og skemmtileg.“Hver er ykkar helsti styrkleikur í golfinu? Sigurrós: „Minn helsti styrkleiki eru upphafshöggin, þau eru oftast á braut en púttin mættu vera betri og eru að telja mest hjá mér.“Jón: „Minn styrleiki er hvað ég er með gott geðslag, kemur mér meira að segja sjálfum mjög á óvart,“ segir Jón og hlær.

Er golfið gott fyrir sambandið? Sigurrós: „Já, við kynntumst síðasta vor í ræktinni þar sem Jón pikk-aði í öxlina á mér í einu tækinu og bauð mér á stefnumót og við fórum að deita. Ég var golfsjúk og ef hann vildi vera með mér þá þurfti hann að koma út á golfvöll því ég eyddi öllum

mínum frítíma þar,“ segir Sigurrós hlægjandi. „Það má eiginlega segja að ég hafi smitað hann af golfbakt-eríunni þó svo að hann hafi nú farið eitthvað í golf áður. Golfvöllurinn er frábær vettvangur til að kynnast nýju fólki.Jón: „Já það er engin spurning, það eru algjör foréttindi ef pör geta verið saman í golfi.”

Kunnið þið einhverja skemmtilega sögu af ykkur af golfvellinum?Sigurrós: „Já, já nokkrar,“ segir Sigurrós og hlær. „Eitt sinn var ég á sjöttu braut á Leirunni og sló í vatnið. Ég lagði golfkerruna frá mér og sótti veiðarann og um það leiti sem ég er að ná kúlunni upp úr vatninu þá fór kerran mín af stað og rann beint út í vatnið. Það var mikil drulla í vatn-inu og síminn minn og allt sem var í golfpokanum, fór á kaf. Ég hljóp út í og reyndi að ná kerrunni uppúr. Jón hjálpaði mér að ná öllu dótinu upp úr og rúllum við af stað upp í golfskála með drullutaumana á eftir okkur um allan völlinn! Við fundum slöngu upp við skála og smúluðum allt saman. Ég þurfti að henda golf-pokanum mínum sem var gegnsósa af drullu en síminn virkar fínt í dag,“ segir Sigurrós og hlær dátt að þessari lífsreynslu.Jón: „Ég hef tvisvar slegið golfkúlu í rassinn á Sigurrós! Fyrra skiptið gerðist það á æfingarsvæðinu, kúlan fór í 90 gráður frá mér og beint í bossann á henni, ég var búinn að þekkja hana í fjóra daga,“ segir Jón hlægjandi. „Hún jafnaði sig nú fljótt, það kom bara smá marblettur. Ég man ekki alveg seinna skiptið til að segja frá því.“

Er þetta góð íþrótt fyrir hjón og pör?Sigurrós: „Já golf er frábær íþrótt fyrir hjón og pör og dregur fólk enn meira nær hvort öðru. Það er ekk-ert skemmtilegra en að daðra smá á golfvellinum hvort við annað,“ segir Sigurrós hlægjandi.Jón: „Engin spurning, þetta hjálpar manni með gjafirnar, engir skart-gripir og ekkert vesen. Núna eru það bara golfkúlur eða annað tengt golf-inu,“ segir Jón og brosir breitt.

Golfvöllurinn er frábær vettvangur til að kynnast nýju fólki:

Sigurrós betri og með fallegri sveiflu-pör í íþróttum pósturu [email protected]

-notum mikið af okkar frítíma í golfið, segja þau Sigurrós Hrólfsdóttir og Jón Pétursson

Jón og Sigurrós í Leirunni, þeirra uppáhaldsstað.

Page 31: 34 tbl 2015

Við óskumgestum Ljósanætur góðrar skemmtunar

Page 32: 34 tbl 2015

32 fimmtudagur 3. september 2015 • VÍKURFRÉTTIR

www.apotekarinn.isSími: 421 3200

Alla virka dagafrá 9–19Um helgar10–14

Opið fyrir þig

- lægra verð

afsláttur gildir til 6. september 2015.20%

Ljósanæturtilboðí Apótekaranum Keflavík

20% afsláttur af snyrtivörum, sokkabuxum og vítamínum

Svokallaðar margföldunartröppur eru að verða vinsælar og er okkur kunnugt um að þær séu

a.m.k. í þremur skólum á Suðurnesjum.Stigar í Grunnskóla Grindavíkur við Ásabraut, Njarð-víkurskóla og Stóru-Vogaskóla hafa verið skreyttir með margföldunartöflunni sem auðveldar ungum

námsmönnum sem eiga leið um tröppurnar að leggja margföldunartöfluna á minnið.

Myndin úr Grunnskóla Grindavíkur er af vef skólans. Myndirnar úr Stóru-Vogaskóla og Njarðvíkurskóla eru frá traustum lesendum vf.is.

-fréttir pósturu [email protected]

Margföldunartröppur í skólum á Suðurnesjum

Þróun íbúafjöldans í Vogum:

Vogamönnum fjölgað um 22 frá áramótum

XuSamkvæmt vef Hagstofunnar voru íbúar Sveitarfélagsins Voga 1.102 um síðustu áramót. Í síðustu viku var talan komin upp í 1.124. Voga-mönnum hefur því fjölgað um 22 frá áramótum, eða um 2%, samkvæmt upplýsingum sem Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri í Vogum hefur aflað.Kynjahlutfallið er í þokkalegu jafnvægi, karlarnir eru 588 en konurnar 544. Aldurssamsetningin er að breytast, sem best má sjá á því að meðalfjöldi í árgöngum barna á grunnskólaaldri er 19, en meðalfjöldi barna á leikskóla-aldri eru innan við 14. Í aldurshópnum 67 ára og eldri eru nú 95 íbúar, en til samanburðar voru þeir 53 talsins árið 2000. Á fimmtán árum hefur því íbúum 67 ára og eldri fjölgað um 42 einstaklinga, eða um 79%.

Vilja fund um hjúkrunarþjónustu aldraðara

XuMagnús Stefánsson, bæjarstjóri í Garði, hefur sent sveitarstjórnum á Suðurnesjum tölvupóst þar sem komið er á framfæri beiðni bæjar-stjórnar Garðs að haldinn verður sameiginlegur fundur bæjarstjórna sveitarfélaganna á Suðurnesjum, þar sem fjallað verði um hjúkrunar-þjónustu aldraðra á svæðinu.Í póstinum er lagt til að fundurinn verði haldinn 17. september 2015.Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga lýsir yfir áhuga á málinu og er reiðubúið til þátttöku á fundinum og þá hefur bæjarstjórn Voga staðfest afgreiðslu bæjarráðs með öllum greiddum atkvæðum.

Loftrýmisgæsla að hefjast að nýjuXuDanski flugherinn tók við loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins

við Ísland sl. mánudag. Alls munu um 60 liðsmenn taka þátt í verkefn-inu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center. Flugsveitin kemur til landsins með fjórar F-16 orrustuþotur.Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í sam-ræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Ráðgert er að verkefn-inu ljúki 2. október. Verkefnið er framkvæmt af Landhelgisgæslu Íslands.

Auglýsingasími Víkurfrétta er 421 0001

Page 33: 34 tbl 2015
Page 34: 34 tbl 2015

fimmtudagur 3. september 2015 • VÍKURFRÉTTIR34

Gunnar Gestur Geirmundsson er fæddur og uppalinn í Keflavík en býr í Sandgerði. Hann hefur haft áhuga á ljósmyndun frá því hann var unglingur. „Það var þó ekki en það var ekki fyrr en í lok 2008 sem vinnu-félagar mínir náðu að plata mig í að kaupa mína fyrstu góðu myndavél. Ég man hvað mig langaði að henda henni út í sjó um tíma vegna þess að ég náði ekki myndum eins og allir þessu flottu ljósmyndarar. Eftir fjögurra daga ljósmyndanámskeið fékk ég grunnskilning á hlutunum og þá fóru hlutirnir að rúlla smátt og smátt fyrir mig.“

Eldgos og portrait myndirReykjanesið er í miklu uppá-h a l d i s e m myndefni hjá Gunnari Gesti. „Landslagið er án efa merkast o g n át t ú r a n e r ó b or g a n -lega falleg hér. Einnig hefur

ég sérhæft mig í portrait-/model-myndum ef svo má kalla en eld-gosin og portrait heilla mig mest eftir gosið 2010 í Eyjafjallajökli. En eftir gosið þótti mér venjulegar landlags- og norðurljósamyndir ekki eins spennandi og áður. Það mætti segja að góðir vinir mínir þau Anna Ósk Erlingsdóttir og Ólafur Harðarsson ljósmynd-arar hafi komið mér út í módel/portrait-töku áhugann.“

Eldgosin eftirminnilegustSpurður um eftirminnilegasta ljósmyndaverkefnið segir Gunnar Gestur þar vera eldgosin sem hann hann hefur myndað á Fimmvörðu-hálsi, Eyjafjallajökli og Holuhrauni. „Nándin og krafturinn sem maður upplifir eru ólýsanleg. Ég vona að

ég nái að upplifa og mynda Kötlugos eða hraungos á Reykja-nesi. Annars eru allar tökur ef t irminni-legar á einhvern hátt og alltaf gaman að kynnast nýju fólki og nýjum stöðum. Mest gefandi og skemmti-l e g a s t v i ð l j ó s -myndunina er fólkið sem ég kynnist og ferðalögin sem fylgja þessu.“

-viðtal

Áhugaljósmyndarinn Gunnar Gestur fékk snemma áhuga á ljósmyndun:

„Vona að ég nái að upplifa hraungos á Reykjanesi“

Gunnar Gestur Geirmundsson

Page 35: 34 tbl 2015

35VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 3. september 2015

pósturu [email protected]

Page 36: 34 tbl 2015

36 fimmtudagur 3. september 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-aðsent pósturu [email protected]

Eftir erfið atvinnuár hér í Reykjanesbæ þar sem at-

vinnuleysi fór hæst á landinu í kringum brotthvarf varnarliðsins og efnahagshrunið, reynist nú at-vinnuleysi hið minnsta í 20 ár. Skyldum við þá ekki ætla að skatt-tekjur aukist í bænum okkar? Nei, því miður er staðan enn sú að skatttekjur bæjarins hafa nánast ekkert hækkað af þeim sökum. Raunverulegasta skýringin er að of lítill munur er á atvinnu-leysisbótum og þeim launum sem fyrrum atvinnulausir eru að þiggja í nýjum störfum. Þetta er alvarleg staðreynd.

Styrkjum stoðir bæjarins með fjölbreyttum störfumVið þurfum betur launuð störf – ekki láglaunastörf. Barátta okkar fyrir betur launuðum störfum heldur því áfram. Uppbygging hundruða starfa í Helguvík þar sem meðallaun verkafólks eru nær 600 þúsund kr. er enn áhersluverk-efni okkar sjálfstæðismanna. Við styðjum fjölbreytni starfa í ferða-þjónustu, fiskvinnslu, samgöngum og gagnaverum um leið og við viljum styrkja atvinnugrunninn sem búinn hefur verið til í Helgu-vík. Við megum alls ekki sofna á verðinum við það að atvinnuleysi hafi minnkað.Í Helguvík eru nú í uppbyggingu tvö kísilver. Hið fyrra, United Sili-con hafði fyrst áform uppi um stór-fellda uppbyggingu strax við upp-haf framkvæmda. Staðreyndin er sú að það byrjar með aðeins rétt um þriðjung þeirra framkvæmda og því þriðjung starfa, sem það áformaði og kynnti fyrir okkur

í upphafi. Vonandi þroskast það fyrirtæki með árunum. Annað kísilver, Thorsil, hefur uppi áform um stærri framkvæmdir og því vel launuð störf fyrir hundruð manna strax í fyrsta áfanga. Þannig má segja að þessi tvö kísilver byrji á svipuðum stað í stærð og fjölda starfsmanna og við áformuðum að fyrsta kísilverið myndi áorka, þegar það var upphaflega samþykkt.

Framkvæmdir í Helguvík eru vel innan mengunarmarkaEftirlitsstofnanir ríkisins, sem eiga að gæta að umhverfismálunum, hafa farið yfir alla þætti meng-unar- og umhverfismála áður en leyfi eru gefin fyrir kísilverunum. Niðurstaða þeirra er skýr - að þau standist allar mengunarvarnir. Oftast eru eftirlitsstofnanir ríkisins sakaðar um að vera of kröfuharðar þegar kemur að mengunarvörnum. Þessar sömu stofnanir telja að jafn-vel þó öll þau verkefni sem nú eru í undirbúningi yrðu að veruleika og af þeirri stærðargráðu sem þau geta stærst orðið til langrar framtíðar, séu sameiginleg áhrif þeirra allra, vel innan allra mengunarmarka.Samt rís upp hópur sem mótmælir framkvæmdunum og ber m.a. við mengunarástæðum. Hann hefur fengið fjórðung kosningabærra bæjarbúa til að skrifa undir að það eigi að kjósa um deiliskipulagið, eða í raun hvort fyrirtæki sem upp-fyllir öll mengunarskilyrði og skilar hundruðum vel launaðra starfa, eigi að fá að starfa í Helguvík. Þeim sem beðnir voru að skrifa undir var ýmist sagt að þetta snúist ekk-ert um að útvega betur launuð störf, menn séu ekki á móti því,

heldur eigi fólk að hafa rétt til að segja sína skoðun í kosningum. Þá er sagt að eitt kísilver nægi, þótt enginn ræði um stærð þess! Fólki hefur einnig verið sagt að hestum stafi ógn af mengun – og eru þá að rugla saman flúor mengun álvera við kísilver þar sem ekki er slík mengun.

Vinnum áfram að því að tryggja vel launuð störfNú liggur fyrir að íbúakosning mun fara fram í nóvember um hvort ákvörðun um breytingu á deiliskipulagi í Helguvík hafi verið rétt. Ákvörðun sem tekin var fyrst með breytingu á aðalskipu-lagi 2006 og hefur verið unnið eftir allar götur síðan þá. Ákvörð-un sem kynnt var á tugum íbúa-funda og með yfirlýsingum m.a. fyrir sveitarstjórnarkosningar og ekki voru gerðar neinar athugs-emdir við á þeim tíma, þegar þær áttu hugsanlega rétt á sér. Það er því mikilvægt að bæjarbúar segi nú skoðun sína – Viljum við betur launuð og örugg störf í bæinn okkar?. Störf sem fjölskyldur geta treyst á? Störf sem eftirlitsstofnanir ríkisins hafa metið að séu innan allra mengunarmarka. Viljum við láta tala bæinn okkar niður, gera lítið úr öllu því sem byggt hefur verið upp og undirbúið á síðustu árum ? Við sjálfstæðismenn tökum ekki þátt í því.

Árni Sigfússon, Magnea Guð-mundsdóttir, Böðvar Jónsson

og Baldur Guðmundsson, bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-

flokksins í Reykjanesbæ.

■■ Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ skrifa:

Við þurfum betur launuð störf!

ALLIR Í KÖRFUÆ�ngar eru byrjaðar hjá yngri �okkum

körfuknattleiksdeildar UMFN Æ�ngata�an og skráning er á

heimasíðu félagsins, www.umfn.is

Nánari upplýsingar á [email protected]

Komdu í körfu - Unglingaráð KKD UMFN

TIL SÖLU EINBÝLISHÚSIÐ BREKKA Í GARÐI.

Til sölu einbýlishús á frábærum stað í Garði með miklu útsýni og jarðrými. Húsið er 124,5m2 að stærð, fimm

herbergi, baðherbergi og eldhús.

Um er að ræða eign á góðum stað, gott tækifæri. Erfðaábúðarjörðin Brekka fylgir ekki með sölu eignarinnar.

Þakka auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður og afa,

Sverris Hákonarsonar,Stapavöllum 17 í Njarðvík,

Guð blessi ykkur öll.

Fyrir hönd aðstandenda,Ásdís Kristinsdóttir.

TIL LEIGU TIL LEIGU

ÓSKAST

Til leigu 96m2 3 íbúð í Kefla-vík. 3 svefnherbergi. nánari upplýsingar í síma 8623853 eftir kl. 16. Gæludýr leyfð.

Hrein húsgögn án ryks, lyktar og bletta! Djúphreinsun á borðstofu-

stólum, hægindastólum, sófa-settum, rúmdýnum og teppum.

Einnig leðurhreinsun. s. 780 8319.

Óska eftir 3ja herbergja íbúð til leigu í Reykjanesbæ. Er reyk-laus og reglusöm. Skilvísum

greiðslum heitið. Nánari upp-lýsingar í síma: 894-6267.

Óska eftir 3ja herbergja íbúð til leigu í Reykjanesbæ. Er reyk-laus og reglusöm. Skilvísum

greiðslum heitið. Nánari upp-lýsingar í síma: 894-6267.

Bílaviðgerðir // PartasalaKaupum bilaða og tjónaða bíla

Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ // www.bilarogpartar.is

sími 421 7979

- smáauglýsingarVerið velkomin

á samkomu alla sunnudaga

kl. 11.00

Hvítasunnu-kirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84

Page 37: 34 tbl 2015

Tryggingamiðstöðin Hafnargötu 31 Sími 515 2620 [email protected] tm.is

Góða skemmtun á Ljósanótt!

Page 38: 34 tbl 2015

38 fimmtudagur 3. september 2015 • VÍKURFRÉTTIR

ATVINNAArctic Pet ehf óskar eftir að ráða starfsfólk í framleiðslu.

Starfssvið: Hefðbundin framleiðslustörf í verksmiðju fyrirtækisins á

Iðngörðum í Garði. Hæfniskröfur:

JákvæðniSamviskusemi

Stundvísi Frumkvæði í starfi

Umsóknir og ferilskrár sendist á [email protected] Öllum umsóknum verður svarað

-fréttir pósturu [email protected]

Hringrás hf. hefur óskað eftir heimild hafnaryfirvalda

til þess að athafna sig á hafnar-svæðinu í Njarðvík við tæmingu spilliefna úr togaranum Orlik. Togarinn liggur við hafnarkant í Njarðvíkurhöfn og hefur verið þar síðustu mánuði. Spilliefnin um borð eru m.a. asbest, sem er krabbameinsvaldur.Atvinnu- og hafnarráð Reykjanes-bæjar hefur samþykkt beiðnina með þeim skilyrðum að fram-kvæmdin trufli ekki starfsemi hafnarinnar og uppfylli þau opin-beru leyfisskilyrði sem henni fylgja.Þegar spilliefni hafa verið tekin úr togaranum verður hann dreginn til Helguvíkur þar sem hann verður rifinn í brotajárn. Áður hafa skip eins og flutningaskipið Fernanda og gamla varðskipið Þór verið rifin í brotajárn í Helguvík.

Kaupfélag Suðurnesja fagnar 70 ára afmæli um þessar

mundir og í síðustu viku var efnt til afsláttardaga og netfangaleiks í Nettó Njarðvík og Nettó Grinda-vík. Harpa Rós Guðmundsdóttir í Njarðvík var dregin út í netfanga-leiknum og hlaut gjafabréf uppá kr. 250.000,- í Nettó.Félagsmenn KSK fá gegn fram-vísun félagskorts afslátt af við-skiptum sínum í verslunum Nettó, Kaskó Samkaup úrval og Samkaup strax og að sögn Skúla námu af-slættir til félagsmanna á s.l. ári 243 milljónum króna.

Garður 100 ára - Heimild um merkisár í sögu Garðs

Þann 15. júní 2008 náði sveitar-félagið Garður þeim merka áfanga að verða 100 ára. Afmælisnefnd skipulagði viðburði í hverjum mánuði ársins 2008 í tilefni þessa.Hápunkturinn var á afmælisdag-inn sjálfan. Steinbogi kvikmynda-gerð kvikmyndaði alla þessa við-burði, ásamt því að taka viðtöl við fólk á svæðinu.Guðmundur Magnússon í Stein-boga hefur lokið við útgáfu efnis-ins á DVD diski sem hann hefur verið að selja að undanförnu.Hægt er að panta diskinn í síma 422-7040 eða [email protected].

Fjarlægja spilliefni úr Rússatogara í Njarðvík

Togarinn í höfninni í Njarðvík. VF-mynd: Hilmar Bragi

DREGIÐ Í NET-FANGALEIK KSK:

HARPA RÓS VANN GJAFA-BRÉF UPP Á 250.000 KR.

Í NETTÓÁ myndinn er Skúli Skúlason formaður KSK að afhenda Hörpu gjafabréfið. Með þeim á myndinni er Snorri sonur Hörpu. VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson

Hópsnes ehf. óskar eftir að ráða meiraprófsbílstjóra í fullt starf hjá fyrirtækinu. Um er að ræða fjölbreytt

starf á ýmsum sviðum fyrirtækisins.

Nánari upplýsingar veitir Otti Rafn Sigmarsson á [email protected] eða í síma 8231118

ATVINNA

KYNNING TILLÖGU AÐ DEILISKIPULAGI

fyrir Nesbú á Vatnsleysuströnd, Sveitarfélaginu Vogum.

Sveitarfélagið Vogar auglýsir hér með kynningu tillögu að deiliskipulagi fyrir Nesbú á Vatnsleysuströnd vegna áforma

um lagfæringar á húsakosti alifuglabúsins, skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Tillagan verður til sýnis og umræðu hjá skipulags- og byggingarfulltrúa þriðjudaginn 8. september nk. á milli

kl. 15:30-16:30 á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga að Iðndal 2. Tillagan er einnig aðgengileg á vef Sveitarfélagsins Voga,

www.vogar.is.

Í kjölfar kynningarinnar verður tillagan tekin til um�öllunar hjá umhver�s- og skipulagsnefnd og að henni lokinni lögð fyrir bæjarstjórn til samþykktar fyrir formlega auglýsingu

hennar. Gefst þá tækifæri til að gera formlegar athugasemdir við tillöguna innan tilskilins athugasemdafrests.

Vogum, 3. september 2015Skipulags- og byggingarfulltrúi

KYNNING Á VETRARSTARFI

ÍÞRÓTTAAKADEMÍUNNIÞRIÐJUDAGINN 8. SEPTEMBER KL. 20:00

ÞRÍÞRAUTARDEILDAR UMFN

Sundhópurfyrir byrjendur

eða lengra koma

Hjólahópurfyrir götuhjól,

hvort sem þú viltkomast í betra formeða taka þátt í WOW

Hlaupahópurfyrir alla

hvort sem þú viltná að hlaupa

5km eða 50km

SUND

KOMDU OG KYNNTU ÞÉRÞRJÚ SKEMMTILEG SPORT

HJÓL HLAUP

Page 39: 34 tbl 2015

HV

ÍTA

SIÐ

/ S

ÍA -

13

-23

96

Gleðilega Ljósanótt

Við óskum íbúum Suðurnesja og öðrum gestum góðrar skemmtunar á Ljósanótt.

Starfsfólk Isavia

/ / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / /

Page 40: 34 tbl 2015

40 fimmtudagur 3. september 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-viðtal pósturu [email protected]

Veitingahúsið Vitinn í Sand-gerði hefur skapað sér sér-

stöðu á meðal veitingahúsa á Ís-landi með vinsælum krabba- og sjávarréttamatseðli sínum. Grjót-krabbi hefur verið á matseðli Vitans síðan árið 2011 og í dag er veitingahúsið þéttsetið alla daga og bókað fram á næsta vor. Vitinn hefur tekið virkan þátt í þeim aukna ferðamannastraumi sem er til landsins allt árið og verið með í ferðakaupstefnum til að láta vita af sérstöðu Vitans.Eigendur Vitans eru hjónin Stefán Sigurðsson matreiðslumeistari og Brynhildur Kristjánsdóttir, sem er framkvæmdastjóri veitingahússins. Þau hafa í nógu að snúast, enda mikið að gera. Bókanir eru þétt-ar. Nú þegar er mikið bókað fram á næsta vor. Þá sjá þau Stefán og Brynhildur fram á að verja bæði jólum og áramótum á Vitanum þar sem stórir hópar hafa bókað sig í mat.

Veitingahús á fertugsaldriVeitingahúsið Vitinn hefur verið starfrækt frá því árið 1982 og er því 33 ára á þessu ári. Mikið hefur breyst í Sandgerði frá því veitinga-húsið opnaði fyrst, bæði umhverfi og atvinnulíf. Það þurfti að ryðja í burtu bobbingum og lóðaelgjum svo hægt væri að handmoka fyrir grunni veitingahússins. Með því að staðsetja Vitann á hafnarsvæðinu

má segja að sú tenging hafi smitast inn á veitingastaðinn.

„Stefán byrjaði að safna ýmsum munum fljótlega eftir að við opn-uðum staðinn. Ég sagði í upphafi að þetta væri gamalt rusl, en ég kalla þetta ekki rusl í dag. Þetta eru skemmtilegir munir sem skreyta staðinn og vekja alveg gríðarlega mikla athygli og þá sérstaklega hjá útlendingunum sem koma hingað. Þeir eru rétt komnir inn fyrir dyrnar þegar þeir eru byrjaðir að taka myndir,“ segir Brynhildur í samtali við Víkurfréttir

Útlendingar skipta ykkur tölu-verðu máli og eru í dag stór hluti af viðskiptavinum ykkar.„Já, nú er þetta þannig að það er alveg gríðarleg aukning og okkur sýnist að í þau 33 ár sem við höfum rekið Vitann að þetta verði stærsta árið frá upphafi. Sumarið hefur verið alveg svakalega fínt og vetur-inn er mikið bókaður. Það er verið að bóka alla daga og við höfum gengið frá bókunum fram í miðjan apríl á næsta ári. Það eru að koma til okkar margir hópar í viku og mikið að gera,“ segir Brynhildur.

Markaðssetning eða lokaÞessi breyting hefur verið nokkuð hröð og það má segja að það hafi opnast flóðgáttir með erlendum ferðamönnum.

„Við höfum verið dugleg við að markaðssetja okkur. Við höfum farið á ferðaráðstefnur eins og Mid Atlantic og Vestnorden. Þar höfum við kynnt veitingastaðinn og það sem hann stendur fyrir. Við stóðum frammi fyrir því árið 2011 að annað hvort loka veitinga-staðnum eða finna eitthvað nýtt og öðruvísi en aðrir veitingastaðir. Á þessum tíma voru menn nýbyrj-aðir að rannsaka grjótkrabbann á Þekkingarsetrinu sem er hér í næsta húsi. Þeir tóku okkur opnum örmum með það að fá þetta á mat-seðil og síðan þá höfum við verið með þennan krabba. Það er sá við-snúningur sem hefur orðið. Við erum öðruvísi en önnur veitinga-hús og erum með sérstöðu. Við erum eina veitingahúsið á landinu sem er að bjóða upp á þennan krabba í dag, eftir því sem við best vitum. Það er heldur enginn annar sem getur haldið honum lifandi eins og við gerum. Þessi sérstaða er að færa okkur öll þessi viðskipti í dag,“ segir Brynhildur.

Hvernig matur er þessi grjótkrabbi?„Þetta er mjög góður matur og í Bandaríkjunum er hann talinn mjög mikið lostæti. Hann er kall-aður Rock Crab eða Piggy Toe og í New York er grjótkrabbinn eitt það dýrasta sem þú getur fengið. Við erum með meira á disknum en bara grjótkrabba. Á honum er einnig humar, rækja, öðuskel, kúskel, bláskel og beitukóngur og þetta er allt borið fram í skelinni,“ segir Stefán og bætir við: „Þú verður að hafa fyrir því sjálfur að taka þetta úr skelinni. Við höfum verið í samvinnu við líffræðingana hjá Þekkingarsetri Suðurnesja um að fá grjótkrabbann. Þeir skaffa okkur krabbann og við styrkjum þá í staðinn í því sem þeir eru að gera. Sigurður sonur okkar er at-vinnukafari og hann kafar eftir öðuskelinni, kúskelina fáum við frá

Þórshöfn, beitukóngurinn kemur úr Njarðvík en er veiddur í Breiða-firði“.

Mata gestinaKemur fólk langt að til að bragða á þessum réttum?„Já. Íslendingar sem hafa verðast um allan heim og hafa kynnst þessu í útlöndum hafa komið til okkar til að gæða sér á krabbanum. Við áttum ekki von á því að það yrði svona mikið af Íslendingum sem myndu sækja í þetta. Þá er vin-sælt hjá ferðamönnum að koma til okkar síðasta kvöldið fyrir flug og fá sér krabba- og sjávarréttamál-tíðina. Japanir vita nákvæmlega hvernig á að borða þetta og sömu sögu er að segja af Frökkum. Fyrir þá sem eru að prófa þetta í fyrsta skipti þá erum við inni í sal að kenna þeim á áhöldin og hvernig á að bera sig að við að borða þennan mat. Við höfum einnig lent í því að vera með viðskiptavini að þegar þeir áttuðu sig á því að það þyrfti að snerta skeljarnar og brjóta, að ég hef þurft að standa við borðið og hreinlega mata gestina. Svona er fólk misjafnt,“ segir Brynhildur.

Hráefnið er mjög ferskt. Það er lifandi í kerjum fyrir utan staðinn ykkar.

„Fyrir um tveimur árum síðan létum við bora 50 metra djúpa bor-holu við veitingastaðinn þar sem við sækjum sjó sem við notum í búrum fyrir lifandi skeldýr hér utan við staðinn. Áður höfðum við aðstöðu hjá Þekkingarsetri Suður-nesja þar sem við nýttum ker og borholu þar. Sjórinn streymir í holuna á 42 metra dýpi og er mjög góður en í lítra af sjó eru 29 grömm af salti. Sjóinn notum við í kerin með skeldýrunum og snemma á vorin, þegar það er rólegt hjá okkur, þá sjóðum við sjóinn niður í stórum potti og vinnum saltið úr honum til matargerðar hjá okkur. Við reynum að vera sjálfbær með marga hluti og það er gaman að gera þetta. Við höfum m.a. hug-leitt að setja upp gróðurhús og rækta grænmeti fyrir veitinga-staðinn en höfum sett það á bið um stund. Hins vegar erum við að rækta kryddjurtir í garði við veit-ingahúsið“,“ segja hjónin Stefán og Brynhildur í samtali við Víkur-fréttir.

Veitingahúsið Vitinn í Sandgerði hefur skapað sér sérstöðu. Stefnir í stærsta árið frá upphafi í 33 ára sögu staðarins:

Grjótkrabbinn kom Vitanum á kortið

Hjónin Bryn-hildur Krist-jánsdóttir og Stefán Sigurðsson voru í viðtali við Sjónvarp Víkurfrétta í síðustu viku.

Krabba- og sjávarréttaveisla Vitans nýtur vinsælda.

Veitingahúsið Vitinn í Sandgerði.

Page 41: 34 tbl 2015

Þú þarft ekki lengur að pakka tösku í tösku þegar þú ferðast með okkur til Minneapolis/Saint Paul. Ef þú bókar pakkaferð með Icelandair færðu gefins fallega og rúmgóða Samsonite tösku þegar þú kemur á áfangastað, sem er hlaðin tilboðum frá Mall of America*.

+ icelandair.isTaska fylgir á meðan birgðir endast. Ferðatímabilið er frá 1. október 2015 - 11. janúar 2016 og verð er frá 83.900 á mann í fjórar nætur í tvíbýli. Innritaður farangur er að sjálfsögðu innifalinn.

*

EIN ÚT – TVÆR HEIMBókaðu pakkaferð til Minneapolis/Saint Paul í haust og fáðu tösku að gjöf

Verð frá 83.900 kr.

Page 42: 34 tbl 2015

42 fimmtudagur 3. september 2015 • VÍKURFRÉTTIR

Knattspyrnufélagið Reynir fagnaði 80 ára afmæli á

Sandgerðisdögum um síðustu helgi. Var tímamótunum m.a. fagnað með glæsilegri afmælis-veislu þar sem núverandi og fyrr-verandi Reynismenn gerðu sér glaðan dag saman.Félagið var stofnað 15. sept. 1935 þegar Magnús Þórðarson, Trausti Jónsson, Karl Jónsson, Stefán Franklín og Páll Ó. Pálsson lögðu grunn að frkari íþróttastarfi í Sand-gerði en þeir voru aðalhvatamenn að stofnun félagsins og skipuðu fyrstu stjórn þess.

Ari Gylfason flutti ávarp ítilefni 80 ára afmælisins og sagði þar m.a.:Í fyrstu var knattspyrnufélagið stofnað til að halda úti knattspyrnu í sveitarfélaginu, aðstaða til knatt-spyrnuiðkunar var eins og gefur að skilja lítilfjörleg á þessum tíma

miðað við aðstöðuna í dag en æft var í fjörunni. Árið 1944 var farið í byggingu félagsheimilis og þótti það merki um djörfung en skýra framtíðarsýn, byggingu lauk árið 1946 eftir mikla fórn sjálfboðaliða sem stóðu að félaginu.Þó menn hafi fljótt fengið augastað á möguleika á að iðka knattspyrnu í Gulllánni þá varð það ekki fyrr en árið 1950 sem þar var kominn nýtanlegur keppnisvöllur. 1979 er tekið í gangið nýtt íþróttahús en við það tækifæri gafst tilefni til iðkunar fleiri íþróttagreina en knattspyrnu á vegum félagsins, á áttunda ártug síðustu aldar færðist knattspyrnu-iðkun Reynismanna og Reynis-kvenna af mölinni og á grasvöllinn við íþróttamiðstöðina.Reynisheimilið okkar í dag var tekið í notkun 1996 og sama ár byrjað að keppa á svæðinu sunnan við veg. Aðstaða í dag til knatt-

spyrnuiðkunar í Sandgerði er mjög góð.Árið 1957 er stofnað til vinafélags-sambands við Vágs Boltfélag í Fær-eyjum og erum við Reynismenn stoltir af því að hafa átt í góðu sam-bandi við vini okkar í 58 ár.Frá 1935 til 1979 er Knattspyrnu-félagið og knattspyrnudeildin sam-ofin eða þangað til stofnaðar voru fleiri sérdeildir innan knattspyrnu-félagsins.Handknatt le iksdei ld Reynis var stofnuð 1979 að frumkvæði Heimis Morthens, Olgeirs Andrés-sonar og Margeirs Sigurðssonar. Fyrsta stjórn var undir forystu Heimis sem var formaður. Æfingar deildarinnar hófust í samkomu-húsinu en færðust síðar í íþrótta-húsið í Njarðvík á meðan á bygg-ingu íþróttahússins í Sandgerði stóð. Handknattleiksdeildin hélt síðast út starfi veturinn 1989–1990.

Sandgerðingar fögnuðu 80 ára afmæli Reynis

-mannlíf pósturu [email protected]

Páll Óskar og Ingó veðurguð í stuði.

Axel Jónsson frá Skólamat gaf 150 þús. kr. í sjúkra- og uppbygginasjóð Knd. Reynis sem Sævar Halldórsson stofnaði og er nefndur eftir Reynismanninum Hafsteini

Guðnasyni. Ari Gylfason formaður Reynis tók við gjöfinni.

Page 43: 34 tbl 2015

6 HRINGIR Í KASSA

1.500 KR

DunkinDonutsISL Laugavegur 3 Opið alla daga frá 7-22

Branden

burg

Gleðilega ljósanótt!Fimmtudag, föstudag og laugardag færð þú kippu af kleinuhringjum í 10-11, Hafnargötu 55, Reykjanesbæ á aðeins 1.500 kr.

Page 44: 34 tbl 2015

44 fimmtudagur 3. september 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-sandgerðisdagar pósturu [email protected]

Sandgerðisdagar náðu hámarki sl. laugardagskvöld með útitón-leikum á sviði við íþróttamiðstöðina í Sandgerði þar sem bæjarbúar

söfnuðust saman til að njóta samveru og tónlistar. Sólmundur Hólm sá um að kynna dagskrá þar sem m.a. komu fram hljómsveitirnar Trílógía og svo eina og sanna Stjórnin með Siggu og Grétari. Kenneth Máni kom og heilsaði upp á bæjarbúa og virtist þekkja mjög marga þeirra. Þá sá Ólafía Lind um að skjóta upp fyrstu flugeldunum í flugeldasýningu Björgunarsveitarinnar Sigurvonar. Meðfylgjandi myndir tók Hilmar Bragi á lokakvöldi Sandgerðisdaga.

Litskrúðugir Sandgerðisdagar

Page 45: 34 tbl 2015

45VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 3. september 2015

Viltu vinna í ferðaþjónustu?

Gray Line Iceland leitar að sjálfstæðum og drífandi einstaklingum sem búa yfir mikilli þjónustulund.

Keflavíkurflugvöllur – framtíðarstarf

Í boði er:• 100% starf• Unnið er á 12 klst. næturvöktum • Unnið 7 nætur í einu 21:00-09:00 og 7 nætur frí.Helstu verkefni:• Upplýsingagjöf til ferðamanna• Sala á ferðum• Önnur tilfallandi störfMenntunar- og hæfniskröfur:• Góð enskukunnátta• Önnur tungumálakunnátta kostur• Góð almenn tölvukunnátta

Gray Line Iceland er leiðandi íslenskt ferðaþjónustufyrirtæki í örum vexti. Fyrirtækið er handhafi viðskiptasérleyfis Gray Line Worldwide sem er stærsta skoðunarferðafyrirtæki í heimi. Félagið er ferðaskipuleggjandi, ferðaskrifstofa og hópferðafyrirtæki með starfsemi einkum í skipulögðum dagsferðum með yfir 60 áfangastaði víðs vegar um Ísland. Gray Line á Íslandi á einn yngsta rútubílaflota landsins, 65 hópferðabíla sem taka frá 9 til 71 farþega. Félagið flutti rúmlega 510 þúsund ferðamenn árið 2014 í eigin ferðum. Fyrirtækið kappkostar að veita góða og persónulega þjónustu við ferðamenn á Íslandi.

Gray Line Iceland Gæði – Öryggi – Þjónusta

Umsóknir berist til: Elínar Hlífar Helgadóttur, mannauðsstjóra, [email protected]. Umsókn þarf að fylgja kynningarbréf ásamt ferilskrá. Umsóknarfrestur er til og með 10. september 2015.

Bjöl lu kór Tónlistarskóla R e y k j a n e s b æ j a r h l a u t

Hvatningarverðlaun fræðsluráðs Reykjanesbæjar 2015 en verð-launin voru afhent í bíósal Duus-húsa sl. fimmtudag. Kórinn hlaut 100 þús. kr. peningaverðlaun.Átta aðilar voru tilefndir en Hvatn-ingarverðlaun fræðsluráðs Reykja-nesbæjar eru ætluð kennurum, kennarahópum og starfsmönnum í leikskólum, grunnskólum og Tón-listarskóla Reykjanesbæjar. Verð-launin eru veitt fyrir starf eða verk-efni sem þykja skara fram úr og vera öðrum til eftirbreytni.

Bjöllukór Tónlistarskóla Reykja-nesbæjar hefur s.l. þrjú ár tekið þátt í jólatónleikum Sinfóníuhljóm-sveitar Íslands og verið þar eitt af aðalatriðum tónleikanna. Sin-fóníuhljómsveitin hefur óskað eftir þátttöku Bjöllukórsins að nýju á jólatónleikum 2015 og er það mik-ill heiður fyrir Tónlistarskólann og Reykjanesbæ. Stjórnandi Bjöllu-kórsins er Karen J. Sturlaugsson.Bjöllukór Tónlistarskóla Reykja-nesbæjar mun í lok júní halda til Bandaríkjanna til þátttöku í stóru bjöllukóramóti í Boston en mun sömuleiðis fara til New York og

mun taka þátt í umfangsmiklum tónleikum ásamt sinfóníuhljóm-sveit, kór og barnakór í einu virtasta tónleikahúsi heims, Carnegie Hall. Tónleikarnir eru haldnir á vegum Yale University. Þetta er einstök viðurkenning, mikill heiður og ein-stakt tækifæri fyrir Bjöllukór Tón-listarskóla Reykjanesbæjar.

„Tilgangur Hvatningarverðlaun-anna er að veita áhugaverðum skólaverkefnum í Reykjanesbæ eftirtekt. Og hvetja þannig til þróunar og nýbreytni í skólasam-félaginu. Verkefnin sem þið eruð tilnefnd fyrir sýna svo ekki verður um villst að það er af nógu að taka í þeim efnum. Þau bera vott um fjölbreytni, frumkvæði og fag-mennsku en einnig um gagnrýna og skapandi hugsun. En sköpunin er að mínu viti einn mikilvæg-asti þátturinn í öllu skólastarfi,“ sagði Helgi Arnarson, sviðsstjóri fræðslusviðs Reykanesbæjar.

Tilnefningar:Guðbjörg Ingimundardóttir. Upp-bygging Eikarinnar í HoltaskólaTónlistarskóli Reykjanesbæjar. Uppsetning óperunnar Brúðkaup Fígarós eftir W.A. Mozart

Njarðvíkurskóli. Vinaliðar.Foreldrar og börn leikskólans Tjarnarsels. Umbreyting útisvæðis leikskólans Tjarnarsels.Gísli Kjartansson. Hönnun og smíði í Akurskóla.Leikskólinn Gimli. Þróunarverk-efnið „Leikur að læra“Kennararnir Lóa Rut Reynisdóttir og Marsibil Lillý Guðlaugsdóttir í Holtaskóla. Kennsla á yngsta stigGunnar Valdimarsson kennari í Fjölbrautarskóla Suðurnesja. Kennsla í áfanganum SSM 106, smíðasmiðja í FS.

Hanna Rúna Kristínardóttir, Ragna Finnsdóttir og Sigurbjörg Ásdís Snjólfsdóttir. Fjölbreyttir kennslu-hættir í 4. bekk í AkurskólaGísli Kjartansson - Hönnun og smíði í Akurskóla.Helga Lára Haraldsdóttir og stjórn-endur Akurskóla. Rauðhöfði – listaverk á lóð skólans.

Agnes Ásgeirsdóttir, Ester Inga Al-freðsdóttir og Katrín Jóna Ólafs-dóttir. Samþætt kennsla með áherslu á byrjendalæsi.Bryndís Guðmundsdóttir tal-meinafræðingur. Námsefnið / Lærum og leikum með hljóðinLeikskólinn Hjallatún. Í hringekju eru allir snjallir.

-mannlíf pósturu [email protected]

BJÖLLUKÓRINN HLAUT HVATNINGARVERÐ-

LAUN REYKJANESBÆJAR

Fulltrúar þeirra aðila semvoru tilnefndir til hvatningarverðlaunanna 2015.

Karen Sturlaugsson stjórnandi bjöllukórsins og Haraldur Á. Haraldsson, skólastjóri Tónlistarskóla Reykjanesbæjar

með Elínrósu Bjarnadóttur, formanni fræðsluráðs.

Page 46: 34 tbl 2015

46 fimmtudagur 3. september 2015 • VÍKURFRÉTTIR

Það eru fleiri en bara leikmenn sem munu stíga á stokk á Evr-

ópumótinu í körfubolta. Lítið væri leikið ef dómara nyti ekki við og eins og gildir fyrir leikmenn og lið þá eru það aðeins þeir bestu sem komast á stórmót. Njarðvíkingur-inn Sigmundur Már Herbertsson verður fyrsti íslenski dómarinn sem fær þann heiður að dæma á Evrópumóti en hann er einn af reynslumestu dómurum landsins. Sigmundur verður þó ekki staddur í Berlín að sinna dómgæslu, heldur mun hann dæma í d-riðli sem leik-inn er í Riga í Lettlandi.

„Það er óhætt að segja að ég sé orðinn spenntur þó þetta verði kannski ekki raunverulegt fyrr en ég er kominn til Riga,“ sagði Sigmundur um eftir-væntinguna fyrir mótinu þegar blaðamaður náði af honum tali. Eins og með leikmenn íslenska liðsins hefur Sigmundur verið í ströngum undirbúningi í sumar. „Ég var í Eist-landi með íslenska liðinu í 5 daga, komum svo heim í 2 daga eftir það. Fór svo af stað með íslenska liðinu síðastliðinn miðvikudag til Pól-lands þar sem ég dæmdi 3 æfinga-leiki. Þaðan fór ég beint til Frankfurt í Þýskalandi þar sem allir dómarar sem dæma á EuroBasket mæta. Þar fer fram undirbúningur fyrir mótið og þaðan fer ég beint til Riga í Lett-landi ásamt öðrum dómurum sem dæma í þeim riðli og kem ekki heim fyrr en verkefnum mínum á Euro-Basket er lokið.“

Mikill heiður að fá að dæma á stórmótiSigmundur segist meðvitaður um hversu stórt það er að fá úthlutað verkefni á slíku móti og nefndi að aðeins Ólympíuleikar og Heims-meistaramót geti talist ofar í virð-ingarstiganum. „Þetta er gríðarlega

stórt. Það eru mörg hundruð FIBA dómarar og stór hópur þeirra kemst aldrei á svona stórmót. Ég hef einu sinni dæmt í A-deild U20 ára karla sem margir telja litla EuroBasket svo maður hefur fengið nasaþefinn af þessu en ekki meira en það.“

Ekki allar keppnisþjóðirnar sem eiga dómara á mótinu„Ég hef verið FIBA dómari í 12 ár og eins og farið í ýmis verkefni sem telja í reynslubankann, t.d. A-deild U20 karla sem ég nefndi. Það fer heldur enginn á svona mót sem hefur ekki getuna til þess. Sem dæmi eiga ekki allar þjóðir sem eru á EuroBasket dómara í mótinu svo það er ekki nóg að liðið komist á mótið, dómarar þurfa að hafa getuna til að geta dæmt á þessu sviði. En svo á nú eftir að koma í ljós hversu marga leiki maður dæmir á mótinu.“

Blaðamanni lék forvitni á að vita hvort að dómurum sé verðlaunuð góð frammistaða þegar þeir eru kall-aðir til í verkefni og var Sigmundur nokkuð bjartsýnn á að góð frammi-staða myndi veita honum fleiri verk-efni á þessu kaliberi.„Ég hef fulla trú á að ef ég geri mitt besta og jafnvel aðeins betur þá muni ég fá enn fleiri tækifæri innan FIBA. Ég á enn 4 ár eftir í alþjóðadómgæslu og það eru oftast bestu árin, komin mikil reynsla í sarpinn.“

Nálægð við leikmenn og þjálfara mun meiri á Íslandi Þegar talið barst að muninum á því að dæma í Domino´s deildinni og á stóra sviðinu í landsleikjum á er-lendri grundu sagði Sigmundur að meginmuninn væri að finna í sam-félagsgerðinni sem við búum í.Hér heima er ég alltaf að dæma hjá sömu leikmönnunum og sömu þjálfurunum, sem maður jafnvel hittir fyrir út í búð. Við þekkjumst öll og nálægðin er því mikil. Leikmenn og þjálfarar kalla bara „Simmi“ þegar þeir vilja athygli. Erlendis er þetta öðruvísi og kannski sökum þess að menn þekkjast ekki og fjarlægðin er meiri. Þá fær maður meira næði við dómgæsluna. Hins vegar eru oftast mikið fleiri áhorfendur á leikjum er-lendis og þeir alltaf sýndir í beinni útsendingu. Ég tala nú ekki um í Riga þar sem má reikna með um 11 þúsund áhorfendum á hverjum leik. Þær eru þarna allar Eystrasaltsþjóð-irnar og því stutt fyrir fólk að koma og má reikna með mikilli stemningu í húsinu.“

Riðillinn sem Ísland leikur í er svakalegurAð lokum fengum við Sigmund til að spá fyrir um gengi íslenska liðsins á mótinu en Sigmundi verður að nægja að horfa á leiki Íslands í sjónvarpinu þar sem hann verður í Lettlandi. „Nú er ég búinn að sjá alla æfingaleiki þeirra fyrir mótið og ég hef fulla trú á þeim, þeir hafa spilað vel á þessum mótum í Póllandi og Eistlandi, jafn-vel án Jóns Arnórs, Hauks og Pavels. Ég geri mér grein fyrir að þessi riðill er svakalegur og ef ég horfi raun-sæjum augum á þetta þá ættu þeir ekki að eiga séns í neinn leik. En ég held að þeir gætu alveg strítt þessum liðum eitthvað og vonandi ná þeir að stela einum sigri.“

-íþróttir

Okkar menn á Evrópumótinu í körfuboltaFlautað til leiks á laugardag í Berlín

Evrópumótið í körfubolta, Eurobasket, hefst með pompi og prakt um helgina og verður þetta í fyrsta sinn sem að íslenskt A-landslið verður með á slíku stórmóti. Strákarnir okkar munu leika sinn riðil í Þýskalandi, nánar tiltekið í Berlín, þar sem búist er við að rúmlega 1000 Íslendingar muni styðja við liðið. Suðurnesjamenn munu

ekki láta sig vanta á mótið, en þrír góðkunnir menn úr körfuboltaheiminum verða í eldlínunni. Logi Gunnarsson, Sigmundur Már Herbertsson og Gunnar Einarsson verða á meðal fulltrúa Íslands á mótinu en þó allir í ólíkum hlutverkum.

í A-landsliðshópnum er Njarðvík-ingurinn Logi Gunnarsson fasta-

maður og má búast við að hann verði í veigamiklu hlutverki hjá lið-inu ásamt öðrum stjörnum liðsins. Logi kvaðst gríðarlega spenntur fyrir verkefninu þegar Víkurfréttir slógu á þráðinn til hans.„Það er bara mikil tilhlökkun í manni. Við höfum í rauninni verið að bíða alveg frá þeim degi sem við unnum okkur inn rétt til að fara á Eurobasket, núna er þetta að skella á og við allir vel stemmdir og tilbúnir. Ég er búinn að vera í liðinu í yfir 15 ár og þegar ég byrjaði var þetta ekki einu sinni í umræðunni, þetta var í rauninni bara fjarlægur draumur hjá manni sjálfum sem gutta en kannski ekki neitt sem maður talaði um. Ég fylgist alltaf með þessum stórmótum og það er ótrúlegt að maður sé að fara á gólfið og spila á móti þessum risaþjóðum.“

Undirbúningurinn gengið vel„Ég tel okkur vera á mjög góðum stað sem lið og höfum verið að bæta okkur með hverjum leik. Við áttum

góða leiki á móti Hollandi hér heima og okkur gekk vel í stóru móti í Eist-landi og náðum 2. sætinu þar. Þetta eru allt eru allt miklar körfubolta-þjóðir og eru allar að fara á Euro-basket. Þó að þær séu kannski ekki eins stórar og þjóðirnar sem við munum spila við í riðlinum okkar þá gerir þetta okkur tilbúna í átökin. Ég tel okkur geta strítt þessum liðum og jafnvel að vinna einn leik. Ef við trúum því ekki þá gerist það ekki. Kannski vinnum við jafnvel tvo eða fleiri,“ sagði Logi og viðurkennir að fátt annað hafi komist að í sumar en undirbúningur fyrir Berlín.„Það hefur allt sumarið farið í þetta og í rauninni alveg frá þeim degi sem ég spilaði síðasta leikinn á tímabilinu fyrir Njarðvík. Maður varð að æfa vel fram að þeim tíma sem hópurinn kom saman, þannig að þetta er búið að vera langur tími í undirbúning, bæði persónulega og frá því að liðið byrjaði.“

Deilir herbergi með Jóni Arnóri Logi segist ánægður með andann í liðinu og segir mikinn vinskap vera

á milli allra leikmanna, enda væri sennilega erfitt að eyða svo miklum tíma með einhverjum sem erfitt væri að vera í kringum. Hann kveðst ánægður með sambýlismann sinn á keppnisferðalögum. „Ég er í her-bergi með Jóni Arnóri, við byrjuðum saman í liðinu á Norðurlandamótinu árið 2000 og höfum spilað marga leiki saman. Jón er góður vinur minn utan vallar og við náum vel saman. Erum á svipuðum aldri og rólegir fjölskyldumenn, núna á seinni árum allavega.“

Skemmtilegasti tími ferilsins„Já já, allir eru að koma, Birna konan mín, mamma og pabbi, Ægir bróðir minn og síðan kemur margt af frænd-fólki og vinum,“ segir Logi aðspurður um hvort að einhverjir ætli að fylgja honum út á mótið. Hann hefur verið lengi með landsliðinu og er ekki vafa um hversu mikið gildi þátttaka í mótinu hafi fyrir honum. „Ég nálgast þetta bara sem mest spennandi og skemmtilegasta tíma ferilsins. Ég ætla að njóta hverrar sekúndu við að fá að kljást við þá bestu í heimi.“

Fjarlægur draumur að rætast

Verður ekki raunverulegt fyrr en ég er kominn til Riga

Gunnar Einarsson hefur marga fjöruna sopið bæði sem leik-

maður Keflavíkur og landsliðs-ins. Hann verður í nýju hlutverki í Berlín en snemma á árinu gekk Gunnar til liðs við þjálfarateymi landsliðsins sem styrktarþjálfari liðsins.„Það var haft samband og mér boðið að taka þetta að mér. Auðvitað þáði ég starfið, þetta er mikill lær-dómur og mjög gaman að því að vinna með teyminu í kringum liðið og auðvitað með leikmönnunum sjálfum. Á landsliðsæfingum hef ég stýrt upphitun, teygjum og niður-lagi á æfingum. Samhliða þessu passa ég uppá það að æfingaálag sé ekki of mikið þar sem þetta eru margir leikir á fáum dögum og það þarf að passa uppá hvíldina, næringuna og að menn séu að hugsa vel um sig á meðan þessum tíma stendur.“

Förum í alla leiki til þess að vinna þáSpekingar gefa íslenska liðinu ekki mikla möguleika gegn hinum þjóð-unum í riðlinum og kannski er full ástæða til. 12 NBA leikmenn eru á meðal leikmanna annarra liða og fjöl-margir ef ekki flestir aðrir leikmenn á mála hjá stórum liðum í Evrópu. Gunnar segist raunsær á gengi liðsins en er viss um að íslensku víkingarnir komi til með leggja allt í sölurnar. „Þetta eru stór lið, stór nöfn og óhætt

að segja að við erum litla liðið í þessu móti og möguleikarnir okkar ekki ýkja miklir. Við auðvitað förum út í alla leiki til þess að vinna en ætli ég myndi ekki halda að liðin nýti okkar leik til þess að hvíla sína bestu menn og þar af leiðandi gæti vanmat af þeirra hálfu komið sér vel.“

Er partur af hópnum„Ég hef bæði spilað gegn flestum ef ekki öllum og einnig verið í lands-liðinu með heldri og reyndustu leik-mönnunum. Í raun finnst mér þetta alls ekkert skrítið, er bara partur af hópnum og þekki þetta inni og út. Heilt yfir hafa leikmenn verið mjög duglegir að æfa aukalega bæði í lyft-ingasalnum og á vellinum enda er þetta hápunktur íslensks körfubolta og væri vitleysa að vera ekki í sínu besta formi þegar þú mætir sterkustu þjóðum í Evrópu,“ sagði Gunnar aðspurður um hvort honum þætti ekkert skrýtið að vera orðinn þjálfari margra leikmanna sem hann hefur sjálfur glímt margoft við á vellinum.

En lifir Gunni sig inn í leikina þegar hitinn er orðinn mikill? „Ég lifi mig inní leikina en verð að halda mig á mottunni þar sem það yrði ansi pínlegt að fá tæknivillu á bekknum. Það er samt spurning hvort ég fái ekki skráðan á mig lands-leik ef ég læt dómarann heyra það.“

Passar uppá að menn hugsi vel um sig

Gunnar Einarsson og Logi Gunnarsson í Þýskalandi.

Gunnar með nokkrum körfuboltaköppum í Sporthúsinu á Ásbrú

Page 47: 34 tbl 2015

47VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 3. september 2015

pósturu [email protected]

Þriðja og síðasta stigamót Under Armour Þrekmótar-

raðarinnar 2015 var haldið í Mos-fellsbæ sl. laugardag með keppni í „Útileikum“. Keppt var í hlau-ump, réttstöðulyftum, lóðas-nörun, uppstigi, uppsetri, veggja-hoppi, sleðadrætti, dekkjar-veltum, hjólbörugöngu og fl. Líkamsræktarstöðin Lífsstíll í Reykjanesbæ er einn af móts-höldurum Þrekmótarraðarinnar, en frá Lífsstíl hafa ávallt komið sterkir keppendur. Kristjana Hildur Gunnarsdóttir (Kiddý) hlaut titil-inn „Hraustasta kona landsins 39+“ fimmta árið í röð, með saman-lögðum árangri sínum úr þremur mótum sem haldin hafa verið yfir árið (Crossfitkeppni, 5x5 og Úti-leikar). Kristjana náði einnig 2. sæti í opnum flokki. Árdís Lára Gísla-dóttir varð í 2. sæti í flokki 39+ og Þuríður Þorkelsdóttir í 3.sæti. Þuríður Þorkelsd. og Þórður Þor-

björnsson hlutu titilinn „hraustasta 39+ parið 2015“. Liðið 5 fræknar+ (Kiddý, Þurý, Ásta, Árdís, Elsa og Laufey) máttu sætta sig við 2.sætið að þessu sinni en þær hafa unnið titilinn fjórum sinnum áður.

Frábær árangur Lífsstílsfólks

Keflvíkingar eru einu töpuðu stigi frá falli niður í 1. deild en þeir steinlágu 3-0 gegn ÍBV í síðustu umferð sem gerir holuna nær ókleifanlega uppúr þessu og aðeins stærðfræðilegir möguleikar eru fyrir hendi fyrir lærisveina Hauks Inga Guðnasonar og Jóhanns Birnis Guðmundssonar. Keflvíkingar þurfa að stóla á að ÍBV og Leiknir nái ekki í stig í síðustu fjórum leikjum sínum, vinna upp hræðilega markatölu sína og sigra alla leiki sem eftir eru til að gera hið nánast ómögulega. Keflvíkingar mæta Valsmönnum á útivelli eftir landsleikjahlé, þann 13. september.

Grindvíkingar misstu nær endanlega af 2. sæti 1. deildar karla á þriðjudagskvöldið þegar liðið var kjöld-regið af toppliði Víkings frá Ólafsvík 2-7 á Grindavíkurvelli. Grindavík þarf að vinna upp 7 stig í þremur leikjum og stóla á mörg úrslit til að slíkt geti orðið að veruleika og má því telja Grindavík úr leik í toppbaráttunni. Ásgeir Ingólfs-son fyrirliði Grindvíkinga segir slæma byrjun á Íslandsmótinu hafa orðið liðinu dýrkeypt. „Við töpum fyrstu leikj-unum og byrjum mótið á því að elta, sem er aldrei gott. Við missum leiki niður í jafntefli og tap úti gegn Gróttu vó þungt. Við sýndum samt karakter með því að blanda okkur í baráttuna aftur,“ sagði Ásgeir þegar hann var spurður út í hvaða þættir höfðu áhrif á gengi liðsins í sumar. Það er því allt útlit fyrir Suðurnesjarimmu í 1. deildinni á næsta ári.

Njarðvíkingar töpuðu naumlega fyrir ÍR í 2. deild karla á þriðjudagskvöld en lokatölur urðu 1-0 fyrir Breiðhyltinga en tapið gerir það að verkum að Njarðvíkingar eru stigi frá fallsæti þegar þrjár umferðir eru eftir af mótinu. Njarðvík mætir KV á laugardag á Njarðtaksvellinum og segir Theódór Guðni Halldórsson leikinn gríðarlega mikilvægan. „Við getum farið langleiðina með að tryggja sæti okkar í deildinni. Eina sem þarf til að fá 3 stig úr þessum leik er góður undirbúningur, að allir hugsi vel um kroppinn og sofi og borði vel. Því við erum gott fótbolta-lið.“ Theódór er ekki í nokkrum vafa hvar liðið fór útaf sporinu eftir frábæra byrjun á mótinu: „Vendipunkturinn var í bikarnum á móti Fylki þegar við missum niður stöðuna 0-2 fyrir okkur í 3-2 á síðustu tíu mínútum leiksins. Í næsta leik vorum við svo rassskelltir 6-0. Við misstum trúna á sjálfum okkur en við erum mjög ungt lið og lærum af þessu.“

Reynir og Víðir munu mætast í sannkölluðum nágrannaslag í 3. deildinni á laugardaginn en leikið verður á K&G vellinum í Sandgerði. Reynismenn þurfa á öllum stigunum að halda en jafntefli gegn Kára í síðustu umferð hleypti Völsungum einu stigi upp fyrir Reyni og í 2. sætið en Völsungur lagði einmitt Víði að velli í Garðinum og stöðvaði þar með taplaust gengi Víðis frá því 2. júlí. Víðismenn hafa þó tryggt sæti sitt í deildinni með frammi-stöðu sinni að undanförnu en munu þó ekki hafa nokkra lyst á því að gera Sandgerðingum neinn greiða, svo von er á hörkuleik. „Það er verulega góð tilfinning að vera búnir að tryggja okkar sæti og gerir okkur pressulausa fyrir leikinn. Þrátt fyrir það verður ekkert erfitt fyrir okkur að gíra okkur upp í þennan leik, það er ekkert rosalegur kær-leikur á milli félaganna.“ -segir Árni Þór Ármannsson, spilandi aðstoðarþjálfari Víðis og kveðst spenntur fyrir leik helgarinnar. „Við töpuðum fyrir þeim 0-1 á heimavelli og viljum svara fyrir það. Þeir hafa staðið sig vel í sumar, eru með góða blöndu af ungum strákum og svo reynsluboltum og hafa til að mynda ekki tapað nema einum leik á heimavelli í sumar. Við ætlum að breyta því. Það er vonandi að sem flestir sjái sér fært um að mæta á leikinn því ég býst við hörkuleik.“

Við bjóðum fjölbreytileg og skemmtileg störf í spennandi umhverfi flugheimsins.IGS leitar að öflugum einstaklingum í fjölbreytileg og skemmtileg störf hjá

fyrirtækinu.

Um er að ræða störf í cateringu, hlaðdeild og flugvélaræstingu.Mikil áhersla er lögð á þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum,

reglusemi, stundvísi, sveigjanleika og árvekni. Unnið er á vöktum.

Nánari upplýsingar um aldurstakmark og hæfniskröfur:

RÆSTING FLUGVÉLALágmarksaldur 18 ár, almenn öku-réttindi, íslensku og/eða enskukunnátta.

FLUGELDHÚSAlmenn störf m.a. catering, framleiðsla matar, lager og ræstistörf í boði.Aldurstakmark 20 ár, almenn ökuréttindi, vinnuvélaréttindi æskileg í cateringu,íslensku- og/eða enskukunátta.

STÖRF HJÁ IGS 2015

Umsóknum er skilað inn rafrænt á heimasíðu IGS sjá www.igs.is

HÖLLIN VIÐ SUNNUBRAUT LAUGARDAGINN 5. SEPTEMBER FRÁ KL. 10:00 - 13:00.

KÖRFUKNATTLEIKSDEILDAR

KEFLAVÍKUR

Þuríður á fullu í Mosfellsbæ um síðustu helgi.

Page 48: 34 tbl 2015

vf.isvf.is

-mundiHvernig væri að

sleppa þessum blöðrum...FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER • 34. TÖLUBLAÐ • 36. ÁRGANGUR

Setið sem bæjar-stjóri í eitt ár

– „gæti haft áhyggjur allan sólarhringinn ef maður vildi“

XXKjartan Már Kjartansson hefur setið sem bæjarstjóri Reykjanesbæjar í eitt ár en hann tók við embættinu þann 1. sept-ember í fyrra.„Þessi tími hefur verið viðburðar-ríkur og liðið ótrúlega hratt. Margar ákvarðanir, sumar snúnari en aðrar, hafa verið teknar enda staðan flókin og til mikils að vinna að ná tökum á henni. Ég tók þá afstöðu strax að hafa gaman af þessu verkefni og það hefur að mestu leyti tekist enda heppinn að vinna með mjög skemmtilegu og hæfu samstarfsfólki á bæjarskrif-stofunum.Einnig hefur ríkt góð samstaða í bæjarstjórninni um nauðsynlegar aðgerðir. Staðan er samt þann-ig að maður gæti haft áhyggjur allan sólarhringinn ef maður vildi. Það hefur hins vegar aldrei hjálpað neinum. Þess vegna ætla ég að halda áfram að vera bjart-sýnn og hvet vini mína og alla íbúa Reykjanesbæjar að vera það einnig,“ segir Kjartan Már á fés-bókarsíðu sinni í morgun um leið og hann óskar lesendum gleði-legrar Ljósanætur.

Óheimilt að nota vellina eftir kl. 22XXÓheimilt er að nota spark- og

körfuboltavelli í Reykjanesbæ eftir kl. 22 á kvöldin. Unnið er að því að setja upp skilti við vellina til að vekja athygli á þessu.Hafþór Barði Birgisson, íþrótta- og tómstundafulltrúi Reykjanes-bæjar, segir í samtali við Víkur-fréttir að töluvert sé kvartað til bæjaryfirvalda um að ungt fólk komi á bílunum sínum, kveiki á háværri tónlist og fari í körfu- og eða fótbolta um og eftir miðnætti þegar að barnafólk í nágrenni við skólana er gengið til náða.

Á meðfylgjandi mynd má sjá skilti sem sett hefur verið upp við Njarð-víkurskóla. Svipuð skilti verða sett

upp við aðra velli í Reykjanesbæ til að vekja athygli á reglunum.

ALV

ÖR

U G

JUR

FY

RIR

NEM

AN

DA

NN

:-)

REY

KJA

NESB

ÆH

AFN

AR

GATA

40 - S. 422 2200

HP

ProB

ook 455

Verð 119.9

00

kr.Ö

rgjörvi AM

D Q

uad Core A

8-7100 1.8 G

Hz, Turbo Speed: 3.0 G

Hz M

inni 8GB

(D

DR

3) 1600

MH

z Skjár 15,6” LE

D H

D

Anti-glare skjár D

iskur 500

GB

Sm

art S

ATA

DE

LL

Inspiron 15

Verð 154

.90

0 kr.

Örgjörvi Intel C

ore i7-5500U 5G

en (4M

, allt að 3.30GH

z) Minni 8G

B

1600

MH

z DD

R3L S

kjár 15.6” HD

W

LED

True-Life skjár Diskur 1T

B

harður diskur

LE

NO

VO

Y50

Verð 209

.90

0 kr.

Örgjörvi Intel C

ore i7 4710

HQ

2,5

-3,5GH

z quad core 64bit M

inni 16G

B 160

0M

Hz D

DR

3 Skjár 15,6”

FHD

LED

VibrantV

iew m

. innbyggðri m

yndavél Diskur 1 T

B H

DD

LE

NO

VO

Yoga3

Verð 179.9

00

kr.Fartölva og spjaldtölva í söm

u græ

junni, Örgjörvi Intel C

ore 5 D

iskur 500

GB

diskur Stýrikerfi

Window

s 8.1 64 bita

Macbook

Air 13

Verð 209

.99

0 kr.

Örgjörvi D

ual-core Intel Core i5

Minni 4 G

B vinnslum

inni Skjár 13”

LED

-baklýstur breiðtjaldsskjár (háglans) D

iskur 128GB

flash. Inn-

byggð 720 p FaceT

ime H

D m

yndavél

LE

NO

VO

B50

Verð 59.9

90

kr.

Örgjörvi Intel C

eleron N2840 2,16-2,58G

Hz dual

core 1MB

Minni 4

GB

(8GB

mest) S

kjár 15,6” HD

m.

myndavél U

pplausn: 1366x768 punkta Diskur 50

0 G

B

Skjákort Intel H

D

Úrva

lið af tölv

u

og f

ylgihlu

tum

eru í O

mnis