eystrahorn 10. tbl. 2015

10
Fimmtudagur 12. mars 2015 www.eystrahorn.is Eystrahorn 10. tbl. 33. árgangur www.eystrahorn.is Samfélagsvefurinn www.hornafjordur.is Föstudaginn 13. mars verður Menntalest Suðurlands á ferðinni í Nýheimum með vísindakynningu frá kl. 10:00 – 13:00. Markmið viðburðarins er að auka áhuga á raunvísindum. Dagskrá kynningarinnar: Eðlisfræði Leikur að ljósi og hljóði, tilraunavísindi og óvæntar uppgötvanir. Kristbjörg Anna Þórarinsdóttir, eðlisfræðinemi og starfsmaður Vísindasmiðju kynnir. Efnafræði Efni í efnafræðing? Efnilegar blöndur leiða ýmislegt í ljós. Katrín Lilja Sigurðardóttir, stundakennari við HÍ og forsprakki Sprengjugengisins kynnir. Forritun Frábær áskorun - forritun er málið. Martin Swift, eðlisfræðikennari og starfsmaður Vísindasmiðjunnar kynnir. Jarðvísindi Hvað er að gerast undir fótunum á þér? Snæbjörn Guðmundsson, doktorsnemi og starfsmaður Vísindasmiðjunnar kynnir. Stjörnufræði Horfðu til himins. Sólmyrkvar, árstíðir og fleira stjarnfræðilega skemmtilegt. Sævar Helgi Bragason kynnir. Verkfræði Viltu smíða kappakstursbíl? Við hjálpum þér. Aðalheiður Guðjónsdóttir félagi í smíði kappakstursbíls (TeamSpark) kynnir. Nemendum, gestum og gangandi gefst tækifæri til að skoða, fikta, prófa og spyrja um forvitnilega hluti. Íbúar sveitarfélagsins eru hvattir til að líta við og kynna sér skemmtilega dagskrá. Flugfélagið Ernir hefur nú þjónað okkur Hornfirðingum í átta ár. Almenn ánægja hefur ríkt með þjónustu þeirra. Vegna frétta af erfiðri veðráttu og samgöngum, jafnt í loft sem á jörðu og á sjó, lék ritstjóra forvitni að vita hvernig hljóðið væri í Ásgeiri Erni Þorsteinssyni sölu- og markaðsstjóra hjá flugfélaginu. Erfitt tíðarfar Frá upphafi áætlunarflugs okkar, sem hófst í ársbyrjun 2007, hefur áætlunarflugið gengið mjög vel. Við fengum mjög góðar viðtökur frá íbúum svæðisins og öðrum sem nýta þurfa flugsamgöngur til og frá Hornafirði. Við fáum mjög gott umtal frá fólki og hvar sem maður kemur er þakkað fyrir góða þjónustu heilt yfir. Það er frábært að heyra það góða umtal sem við fáum og það ber að þakka. Þetta hvetur okkur til að gera betur og betur með hverjum deginum. Síðustu misseri hafa verið frekar erfið við að eiga sökum veðurfars. Veðurfarið hefur þau áhrif að aflýsa hefur þurft ferðum til næsta dags, frestanir hafa verið á flugum en ávallt höfum við reynt að hanga á hverju flugi eins og kostur er til að koma farþegum til og frá. Einnig höfum við flogið einstaka daga sem ekki eru áætlunardagar og þá reynt að koma til móts við farþega sem ekki komust leiðar sinnar sökum veðurs. Óvænt sjúkraflug Eins og fólk var vart við síðasta mánudag þá þurfti að aflýsa morgunfluginu til Hornafjarðar. Ástæða þessa var að upp kom sjúkraflug með manneskju sem komast þurfti til Svíþjóðar í líffæraígræðslu. Slík flug koma upp nokkrum sinnum á ári og þarf að sinna þeim hið snarasta þar sem verið er að keppa við tímann við að koma sjúklingi undir læknishendur. Vegna þessa var eingöngu ein vél Flugfélagsins Ernis til taks til að sinna því flugi sem var þennan mánudag. Félagið hefur yfir að ráða þremur Jetstream flugvélum, og er ein þeirra ekki til taks næstu tvær vikurnar sökum stórrar mótoryfirhalningar á þremur mótorum. Slíkt yfirhal kemur upp á mótorum með um sex ára millibili og á þeim tíma myndast smá millibilsástand þar sem svigrúm til að bregðast við óvæntum atvikum og neyðarflugum verður aðeins minna en flesta aðra daga. Bjart framundan Útlitið fyrir þetta ár er mjög gott og gerum við ráð fyrir að auka farþegastreymi næstu mánuði. Farþegum í janúar og febrúar fækkaði aðeins milli ára en ástæðan er aðallega veðurfarsleg. Við lítum hins vegar framtíðina björtum augum og má ætla að sumarið verði það stærsta frá upphafi. Þess má geta að búið er að ganga frá mjög stórum samningi við erlenda ferðaskrifstofu um 48 flug næsta sumar frá júní-ágúst og er þetta hrein viðbót við allt sem fyrir var. Ánægðir með launþegasamninginn Fyrir tæpu einu og hálfu ári gerðum við samning við launþegasamtök um verð á farmiðum. Við vildum reyna hvað við gátum að gera flug eftirsóttara hjá almenningi og gera fólk meðvitaðra um hversu nauðsynlegt og þægilegt flug er sem almenningssamgöngur. Viðtökurnar leyndu sér ekki og erum við að sjá fólk fljúga sem ekki flaug áður og höfum við fengið mjög jákvæð viðbrögð. Þetta gerir fólki kleift að fljúga frekar en keyra og er þetta ekkert annað en kjarabót fyrir einstaklinga sem þurfa að ferðast á eigin vegum. Góð samskipti við heimamenn Við hjá Flugfélaginu Erni munum halda áfram að veita góða og persónulega þjónustu á flugi til Hornafjarðar. Það góða samstarf sem við eigum við fyrirtæki og stofnanir fyrir austan og það jákvæða viðhorf fólks í okkar garð drífur okkur áfram í að veita bestu mögulegu þjónustu sem völ er á hverju sinni. Við vonumst til að sjá sem flesta á flugi með okkur í framtíðinni og vonum að þið njótið flugsins með okkur. Góða ferð. Gerum okkar besta þegar bregðast þarf við óvæntum atvikum Vísindatorg í Nýheimum

Upload: heradsfrettabladid-eystrahorn

Post on 08-Apr-2016

270 views

Category:

Documents


3 download

DESCRIPTION

 

TRANSCRIPT

Page 1: Eystrahorn 10. tbl. 2015

Fimmtudagur 12. mars 2015 www.eystrahorn.is

Eystrahorn10. tbl. 33. árgangur www.eystrahorn.is

Samfélagsvefurinn www.hornafjordur.is

Föstudaginn 13. mars verður Menntalest Suðurlands á ferðinni í Nýheimum með vísindakynningu frá kl. 10:00 – 13:00. Markmið viðburðarins er að auka áhuga á raunvísindum.

Dagskrá kynningarinnar:

EðlisfræðiLeikur að ljósi og hljóði, tilraunavísindi og óvæntar uppgötvanir. Kristbjörg Anna Þórarinsdóttir, eðlisfræðinemi og starfsmaður Vísindasmiðju kynnir.

EfnafræðiEfni í efnafræðing? Efnilegar blöndur leiða ýmislegt í ljós. Katrín Lilja Sigurðardóttir, stundakennari við HÍ og forsprakki Sprengjugengisins kynnir.

ForritunFrábær áskorun - forritun er málið.Martin Swift, eðlisfræðikennari og starfsmaður Vísindasmiðjunnar kynnir.

JarðvísindiHvað er að gerast undir fótunum á þér? Snæbjörn Guðmundsson, doktorsnemi og starfsmaður Vísindasmiðjunnar kynnir.

StjörnufræðiHorfðu til himins. Sólmyrkvar, árstíðir og fleira stjarnfræðilega skemmtilegt. Sævar Helgi Bragason kynnir.

VerkfræðiViltu smíða kappakstursbíl? Við hjálpum þér. Aðalheiður Guðjónsdóttir félagi í smíði kappakstursbíls (TeamSpark) kynnir.

Nemendum, gestum og gangandi gefst tækifæri til að skoða, fikta, prófa og spyrja um forvitnilega hluti. Íbúar sveitarfélagsins eru hvattir til að líta við og kynna sér skemmtilega dagskrá.

Flugfélagið Ernir hefur nú þjónað okkur Hornfirðingum í átta ár. Almenn ánægja hefur ríkt með þjónustu þeirra. Vegna frétta af erfiðri veðráttu og samgöngum, jafnt í loft sem á jörðu og á sjó, lék ritstjóra forvitni að vita hvernig hljóðið væri í Ásgeiri Erni Þorsteinssyni sölu- og markaðsstjóra hjá flugfélaginu.

Erfitt tíðarfarFrá upphafi áætlunarflugs okkar, sem hófst í ársbyrjun 2007, hefur áætlunarflugið gengið mjög vel. Við fengum mjög góðar viðtökur frá íbúum svæðisins og öðrum sem nýta þurfa flugsamgöngur til og frá Hornafirði. Við fáum mjög gott umtal frá fólki og hvar sem maður kemur er þakkað fyrir góða þjónustu heilt yfir. Það er frábært að heyra það góða umtal sem við fáum og það ber að þakka. Þetta hvetur okkur til að gera betur og betur með hverjum deginum. Síðustu misseri hafa verið frekar erfið við að eiga sökum veðurfars. Veðurfarið hefur þau áhrif að aflýsa hefur þurft ferðum til næsta dags, frestanir hafa verið á flugum en ávallt höfum við reynt að hanga á hverju flugi eins og kostur er til að koma farþegum til og frá. Einnig höfum við flogið einstaka daga sem ekki eru áætlunardagar og þá reynt að koma til móts við farþega sem ekki komust leiðar sinnar sökum veðurs.

Óvænt sjúkraflug Eins og fólk var vart við síðasta mánudag þá þurfti að aflýsa morgunfluginu til Hornafjarðar. Ástæða þessa var að upp kom sjúkraflug með manneskju sem komast þurfti til Svíþjóðar í líffæraígræðslu. Slík flug koma upp nokkrum sinnum á ári og þarf að sinna þeim hið snarasta þar sem verið er að keppa við tímann við að koma sjúklingi undir læknishendur. Vegna þessa var eingöngu ein vél Flugfélagsins Ernis til taks til að sinna því flugi sem var þennan mánudag. Félagið hefur yfir að ráða þremur Jetstream flugvélum, og er ein þeirra ekki til taks næstu tvær vikurnar sökum stórrar mótoryfirhalningar á þremur mótorum. Slíkt yfirhal kemur upp á mótorum með um sex ára millibili og á þeim tíma myndast smá

millibilsástand þar sem svigrúm til að bregðast við óvæntum atvikum og neyðarflugum verður aðeins minna en flesta aðra daga.

Bjart framundanÚtlitið fyrir þetta ár er mjög gott og gerum við ráð fyrir að auka farþegastreymi næstu mánuði. Farþegum í janúar og febrúar fækkaði aðeins milli ára en ástæðan er aðallega veðurfarsleg. Við lítum hins vegar framtíðina björtum augum og má ætla að sumarið verði það stærsta frá upphafi. Þess má geta að búið er að ganga frá mjög stórum samningi við erlenda ferðaskrifstofu um 48 flug næsta sumar frá júní-ágúst og er þetta hrein viðbót við allt sem fyrir var.

Ánægðir með launþegasamninginn

Fyrir tæpu einu og hálfu ári gerðum við samning við launþegasamtök um verð á farmiðum. Við vildum reyna hvað við gátum að gera flug eftirsóttara hjá almenningi og gera fólk meðvitaðra um hversu nauðsynlegt og þægilegt flug er sem almenningssamgöngur. Viðtökurnar leyndu sér ekki og erum við að sjá fólk fljúga sem ekki flaug áður og höfum við fengið mjög jákvæð viðbrögð. Þetta gerir fólki kleift að fljúga frekar en keyra og er þetta ekkert annað en kjarabót fyrir einstaklinga sem þurfa að ferðast á eigin vegum.

Góð samskipti við heimamennVið hjá Flugfélaginu Erni munum halda áfram að veita góða og persónulega þjónustu á flugi til Hornafjarðar. Það góða samstarf sem við eigum við fyrirtæki og stofnanir fyrir austan og það jákvæða viðhorf fólks í okkar garð drífur okkur áfram í að veita bestu mögulegu þjónustu sem völ er á hverju sinni. Við vonumst til að sjá sem flesta á flugi með okkur í framtíðinni og vonum að þið njótið flugsins með okkur. Góða ferð.

Gerum okkar besta þegar bregðast þarf við óvæntum atvikum

Vísindatorg í Nýheimum

Page 2: Eystrahorn 10. tbl. 2015

2 EystrahornFimmtudagur 12. mars 2015

Vildaráskriftina má greiða í Landsbankanum

HornafjarðarMANNI Rnr. 0172 - 26 - 000811

Kt. 240249-2949

Eystrahorn

HafnarkirkjaSunnudaginn 15. mars

á blús- og rokkhátíð. Messa og sunnudagaskóli

kl. 11:00. Blúsarar taka þátt í messunni.

Kyrrðarstund á föstu kl. 18:15 alla miðvikudaga fram að páskum.

Prestarnir

Vaktsími presta: 894-8881

bjarnanesprestakall.is

BjarnaneskirkjaSunnudaginn 15. mars

Messa kl. 14:00

Aðalfundur Bjarnanessóknar verður haldinn í kirkjunni eftir messu.

Sóknarnefndin og prestarnir

EystrahornVesturbraut 25 • Sími: 862-0249

Útgefandi: ........... HornafjarðarMANNI

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: . Albert EymundssonNetfang: ............. [email protected]ófarkalestur .... Guðlaug HestnesLjósmyndir: ........ Maríus SævarssonUmbrot: ............. Heiðar SigurðssonPrentun: ............. Litlaprent

ISSN 1670-4126

Hafnarsókn - AðalsafnaðarfundurAðalsafnaðarfundur Hafnarsóknar verður að lokinni messu sunnudaginn 15. mars kl. 12:00 á Hótel Höfn. Venjuleg aðalfundarstörf ásamt umræðu um afmælisár Hafnarkirkju en 50 ár verða liðin frá vígslu hennar á næsta ári.

Boðið verður uppá súpu og meðlæti á fundinum.

Sóknarnefnd Hafnarsóknar

Til sölu góður fjölskyldubíllHyundai Trajet. Árgerð 2007. Nýskráður 3/2007. 5 dyra – 7 manna. Ekinn 173 þús. km. Bensín. Sjálfskiptur. Grár. Verð 590 þús. kr.Upplýsingar Sævar s. 899-0569

Óska eftir íbúð til leiguFimm manna fjölskylda auglýsir eftir 3-4 herbergja íbúð eða húsi til leigu á Höfn. Greiðslum heitið og reglusemi. Upplýsingar veitir Davíð í síma 852 8820 og [email protected]

Samúðarkort Hafnarkirkjueru til afgreiðslu hjá:Ástu Sveinbjörnsdóttur í sími 478-1479 / 847-8918Guðrúnu Þorsteinsdóttur í sími 478-1646 / 864-4246

Sóknarnefnd Hafnarsóknar

Hugi Einarsson var fæddur á Höfn 14. febrúar 1965. Hann lést á heimili sínu 4. mars síðastliðinn. Foreldrar Huga eru Unnur Kristjánsdóttir frá Einholti f. 8. febrúar 1923 og Einar Sigurjónsson frá Brunnhól f. 4. ágúst 1920. d. 15. júlí 2004. Hugi ólst upp á Lambleiksstöðum á Mýrum yngstur í fimm systkina hópi. Systkini Huga eru: Steinþór f. 19. janúar 1949, Sigurjón f. 12. mars 1950, Rannveig f. 24. janúar 1956 og Kristján f. 12. nóvember 1957. Eftirlifandi kona Huga er Sigrún Kapitola Guðrúnardóttir f. 24. nóvember 1977. Saman eiga þau þrjú börn, Unnar Frey f. 6. febrúar 2003, Vigdísi Dröfn f. 28. apríl 2006 og Kristján Darra f. 30. júní 2014. Einnig á Hugi son frá fyrra sambandi, Örvar f. 1. október 1987. Eiginkona Örvars er Elín Dögg Haraldsdóttir. Börn þeirra eru: Haraldur Aron f. 1. júní 2011 og Brynja Sif f. 10. júlí 2013. Hugi stundaði ýmsa verkamannavinnu til sjós og lands en síðastliðin 15 ár hafa þau Hugi og Sigrún rekið saman fyrirtæki um rekstur tjaldsvæðis og smáhýsagistingu á Höfn. Hugi var ástríkur fjölskyldumaður, hugulsamur og sannur vinur vina sinna. Þökkum auðsýnda samúð. Útför Huga fer fram frá Hafnarkirkju laugardaginn 21. mars næstkomandi.

Andlát

Hugi Einarsson

Félagsstarf Félags eldri Hornfirðinga í Ekru

Félagsvistin hefst í kvöld kl. 20:00. Fyrsta kvöldið af þremur.

Samverustundin er á morgun föstudag kl. 17:00. Samkórinn kemur í heimsókn. Stjórnandi er Kristín Jóhannesdóttir. Söngur glens og gaman.

Dansiball með vöfflukaffi er á sunnudaginn 15. mars kl. 16:30. Hilmar og fuglarnir leika fyrir dansinum. Endilega mætið í dansinn og rjómavöfflurnar !

Page 3: Eystrahorn 10. tbl. 2015

3Eystrahorn Fimmtudagur 12. mars 2015

Hitum upp fyrir Blúshátíð á Humarhöfninni

laugardaginn 14. mars frá 17:00-21:00.

Blús-Matseðill Forréttur: Parmaskinka með geitaostssósu og basilíku á ristuðu brauði

Aðalréttur: Blandaðir heilir humarhalar grillaðir í smjöri, hvítlauk og Svartagaldri.

Eftirréttur: Míní-pavlova

Verð 5.900 kr.

Blús-félagarnir Birkir Þór og Þorkell Ragnar munu svo blúsa fyrir matargesti.

Borðapantanir í síma 478-1200/846-1114 eða í tölvupósti á [email protected]

Sjávarþorpið Höfn heldur áfram

Nýheimar fimmtudaginn 12. mars kl.15:00 – 17:00.

Allir sem hafa áhuga á að bæta Höfn sem áfangastað og búsetukost eru hvattir til að mæta

Nánari upplýsingar veita:

Árdís Erna Halldórsdóttir, [email protected]

Fanney Björg Sveinsdóttir, [email protected]

Eins og fram hefur komið þá er búið að stofna hollvinasamtök með það að markmiði að styðja við og styrkja starfsemi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Hornafirði eins og stofnunin heitir í dag eftir sameiningu við Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Ákveðið var á fundi stjórnar hollvinasamtakanna að fyrsta verkefni samtakanna verði að taka þátt í fjársöfnun til kaupa á nýju ómtæki fyrir heilsugæsluna. Hér er um afar mikilvægt framfaraspor að ræða sem gagnast muni íbúum og starfsfólki vel. Læknar í dag eru farnir að líta á ómtæki sem framlengingu á hlustunarpípunni og sem nauðsynlegt tæki til greiningar og við meðferð á ýmsum sjúkdómum s.s. snemmsónar, kanna legu fósturs á meðgöngu, greina blæðingu í kviðarholi og gollurhúsi, greina loftbrjóst eða blóð í brjóstholi, finna æðar fyrir æðaleggi og ýmislegt annað sem ekki þarf sérfræðikunnáttu til.

Tækið, sem ætti að vera hluti stofnbúnaðar en er það ekki, kostar um 5 miljónir króna. Vegna þess var ákveðið að hrinda af stað almennri fjársöfnun til kaupa á tækinu.

Frekari upplýsingar eru á heimasíðunni hssa.is.

Íbúar héraðsins hafa gegnum tíðina sýnt samstöðu í mikilvægum verkefnum og nú skorum við á þá og aðra velunnara að taka myndarlegan þátt í þessu verðuga verkefni.

Söfnunarreikningur í Sparisjóðnum er 1147-15200513 og kennitalan 430796-2169.

Stjórn Hollvinasamtaka Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Hornafirði

Áskorun

Stöndum samanFrá Ferðafélaginu

Eitt fjall í mánuði Laugardaginn 14. mars

Hálsatindur 860 m eða léttari ganga Selgil-Miðháls-Bólstaðarfoss 480 m hækkun á Mýrum.

Lagt af stað kl. 9:00 frá tjaldstæðinu og sameinast í bíla. Ekið að Heinabergsjökli þar sem gangan hefst um kl.10:00.

Léttir göngubroddar nauðsynlegir, léttur bakpoki, nesti og hlýr klæðnaður. Klæðnað og útbúnað þarf að miða við veðurútlit og aðstæður.

Skorum á starfsfólk Rafhorns og Málningarþjónustu Hornafjarðar að fjölmenna í þessa ferð.

Ferðatími á tindinn er um 6 - 7 klst. en um 5 klst. léttari gönguna. Verð 1000- kr. fyrir 18 ára og eldri.

Séu hundar með skal hafa ól meðferðis.

Allir velkomnir.

Frekari upplýsingar gefur Ragna Pétursdóttir 662-5074

Page 4: Eystrahorn 10. tbl. 2015

4 EystrahornFimmtudagur 12. mars 2015

Borgartúni 7c, 105 ReykjavíkSími 530 1400www.rikiskaup.is

Til SöluTilboð óskast í hluta fasteignarinnar

Vestmannabraut 22 Vestmannaeyjum. 15774 - Vestmannabraut 22, Vestmannaeyjum eignarhluti Íslandspósts hf.

Um er að ræða afgreiðsluhúsnæði, vinnusal, skrifstofuhúsnæði, kaffistofur, geymslur og snyrtingar á 1. og 2. hæð ásamt herbergjum í kjallara og hlutdeild í sameign, stærð samtals 823,9 m², samkv. Þjóðskrá Íslands - fasteignaskrá, ásamt tilheyrandi leigulóðarréttindum. Húsið er byggt úr steinsteypu árið 1950. Brunabótamat er kr. 156.350.000,- og fasteignamat er kr. 48.550.000,- Húsnæðið þarfnast gagngerra endur-bóta en það verður til afhendingar í lok maí. Húseignin verður til sýnis í samráði við Sigríði Diljá Magnúsdóttur í síma 481 1002 og Ríkiskaup, Borgartúni 7, 105 Reykjavík í síma 530 1400.

Gögnin eru einnig aðgengileg á heimasíðu Ríkiskaupa www.rikiskaup.is

Tilboðseyðublöð liggja frammi á sama stað ásamt reglum um frágang og útfyllingu á tilboðseyðublaði.

Tilboð skulu berast Ríkiskaupum, Borgartúni 7, Reykjavík fyrir kl. 10.00 þann 27. janúar 2015 þar sem þau verða opnuð í viðurvist bjóðenda er þess óska.

Tilboð óskast í fasteignina Silfurbraut 5, Hornafirði.

15817 – Silfurbraut 5, Hornafirði, eigandi Ríkissjóður Íslands.

Um er að ræða steinsteypt einbýlishús á einni hæð sem stendur á fallegri gróinni 750 m² lóð.

Húsið er samtals 177,4 m², byggt árið 1973. Íbúðin er 138,2 m², með þremur svefnherbergjum og bílskúr er 39,2 m². Húsið er klætt að utan með Steniplötum.

Brunabótamat eignarinnar er kr. 40.500.000,- og fasteignamat er kr. 21.750.000,-

Húseignin verður til sýnis í samráði við Egil Benediktsson hjá Sýslumanninum á Suðurlandi á skrifstofutíma í síma 892 9358.

Tilboðseyðublöð liggja frammi hjá ofangreindum aðila og hjá Ríkiskaupum ásamt reglum um frágang og útfyllingu á tilboðseyðublaði.

Gögnin eru einnig aðgengileg á heimasíðu Ríkiskaupa www.rikiskaup.is

Tilboð skulu berast Ríkiskaupum, Borgartúni 7, Reykjavík fyrir kl. 10.00 þann 25. mars 2015 þar sem þau verða opnuð í viðurvist bjóðenda er þess óska.

Starfsfólk óskast í sumarstörf hjá HSU Hornafirði

LegUdeILdIr: Sjúkraliðar og ófaglærðir við umönnun. Einnig félagsstörf og ræsting, vaktavinna. Upplýsingar gefur Björg Sigurjónsdóttir hjúkrunarstjóri á hjúkrunarsviði í síma 470 8630 eða netfang [email protected].

HeILSUgæSLA: Sjúkraliðar í umönnun í heimahjúkrun, ritari og ræsting á heilsugæslu. Einnig starfsmann í dagdvöl aldraðra í Ekru. Upplýsingar gefur Ester Þorvaldsdóttir hjúkrunarstjóri á heilsugæslusviði í síma 470 8600 eða netfang [email protected]

AðStoðArMAðUr HúSvArðAr: Fjölbreytt starf við umhirðu lóðar, almennt viðhald og ýmislegt fleira. Bílpróf nauðsynlegt. Upplýsingar gefur Andrés Júlíusson húsvörður í síma: 861 8452 eða netfang: [email protected]

Umsóknareyðublað má finna á heimasíðu heilbrigðisstofnunarinnar, www.hssa.is og í afgreiðslu heilsugæslunnar. Hvetjum karlmenn jafnt sem konur til að sækja um.

Laun samkvæmt kjarasamningum viðeigandi stéttarfélaga og Launanefnd Sveitarfélaga.

Umsóknarfrestur er til og með 19. mars 2015.

Vorslátrun 24. marsvorslátrun sauðfjár hjá Norðlenska

Höfn mun fara fram 24. mars. Þeir sem hafa áhuga á að slátra vinsamlegast

hafið samband við Magnhildi á Höfn í síma 840-8870 [email protected] eða Svölu á

Akureyri í síma 460-8855. [email protected]

Aðalfundur UMF Mána verður haldinn þriðjudaginn 17. mars kl. 20:00 í Mánagarði. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf og breytingar á lögum félagsins. Léttar veitingar í boði.

Aukaæfingar í fótboltaFöstudaginn 13 mars byrja aukaæfingar yngri flokka Sindra í Bárunni.

Æfingarnar eru fyrir 5 flokk og uppúr og eru fyrir bæði kyn.

Æfingin hefst kl. 6:45 að morgni og verða svo líka á miðvikudögum á sama stað og sama tíma.

Þjálfari er Nihad Hasecic (Cober).

Þessar æfingar eru tilvaldar fyrir þá sem vilja ná aðeins lengra og eru þessar æfingar gjaldfrjálsar.

Körfubolti - meistaraflokkur karla

Sindri – Leiknir r.Kl. 16:30 laugardaginn 14. mars í íþróttahúsinu. Mætum öll og styðjum Sindra

Page 5: Eystrahorn 10. tbl. 2015

5Eystrahorn Fimmtudagur 12. mars 2015

Sveitarfélagið Hornafjörður auglýsir eftir áhugasömum aðilum til að taka Netaloftið við hlið Miklagarðs í fóstur

Við höfnina hefur verið lagður grunnur að endurgerð elstu byggðarinnar á Höfn. Þar eru áhugaverðir möguleikar á uppbyggingu í þjónustu við ferðamenn, í sambýli söguminja og nútíma atvinnuhátta – í heillegri þyrpingu gamalla húsa og endurgerða.Sveitarfélagið óskar eftir því að áhugasamir aðilar taki Netaloftið við Miklagarð í fóstur og geri nauðsynlegar endurbætur á húsinu með það að markmiði að húsið haldi sínu útliti og einkennum og að fá starfsemi í húsið sem samrýmist hugmyndum um uppbyggingu á svæðinu. Leigusamningur við leigutaka verður gerður til langs tíma. Við upphaf og lok leigutíma verður gert verðmat á eigninni sem notast verður við þegar eigninni verður skilað til sveitarfélagsins.Gera þarf töluverðar endurbætur á húsinu áður en að starfsemi getur farið þar fram. Nýlega ástandsskýrslu um húsið er hægt að nálgast með því að senda tölvupóst á Björn Imsland umsjónarmann eigna sveitarfélagsins: [email protected]. Skila skal inn greinargerð um fyrirhugaða notkun á húsinu, tímasetta framkvæmdaáætlun og upplýsingum um heildar fjármögnun verksins fyrir kl. 14:00 föstudaginn 15. maí í Ráðhús sveitarfélagsins að Hafnarbraut 27 eða með tölvupósti á netfangið: [email protected] merkt „Netaloft-greinargerð“.

Tækni- og umhverfissvið

Humarhátíð 2015Sveitarfélagið Hornafjörður óskar er eftir áhugasömum

félagasamtökum til að taka að sér Humarhátíð. Áhugasamir sendi umsókn á netfangið

[email protected] fyrir klukkan 16:00 þann 22. mars. Björn Ingi Jónsson, bæjarstjóri Hornafjarðar

Auglýsing um lýsingu deiliskipulag við Hafnarsvæði Óslandi

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti þann 9. mars 2015 að auglýsa lýsingu að deiliskipulagi Höfnina og Ósland skv. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Lýsing að deiliskipulagstillögu felur í sér eftirfarandi m.a.;• Að styðja við uppbyggingu atvinnulífs á svæðinu• Að ákveða landnotkun og fyrirkomulag þar sem hafnarvog

er nú• Aðgeragreinfyrirfráveituogáhrifumhennaráumhverfiog

lífríki Lýsing ásamt fylgigögnum verður til sýnis í ráðhúsi sveitarfélagsins Hafnarbraut 27 á opnunartíma frá og með 12. mars til 25. mars 2015 og á heimasíðu sveitarfélagsins http://hornafjordur.is/stjornsysla undir skipulag í kynningu.Tillagan verður kynnt í Ráðhúsi Sveitarfélagsins Hornafjarðar að Hafnabraut 27 Höfn þann 7. apríl kl. 13:00.Þeirsemteljasigeigahagsmunaaðgætaerhérmeðgefinkostur á að gera athugasemdir við lýsinguna. Frestur til að skilaathugasemdertil25.mars2015ogskalskilaðskriflegaá bæjarskrifstofur Sveitarfélagsins Hornafjarðar, Hafnarbraut 27, 780 Höfn eða á netfangið [email protected]

Aðalfundur IðnaðarmannadeildarAðalfundur Iðnaðarmannadeildar AFLs Starfsgreinafélags verður haldinn mánudaginn 23. mars kl. 18:00 að Búðareyri 1, Reyðarfirði. Hafið samband við næstu skrifstofu varðandi skipulag ferða á fundinn.

Dagskrá:1. Skýrsla formanns 2. Kjör stjórnar 3. Kjaramál 4. Önnur mál

AFL Starfsgreinafélag Iðnaðarmannadeild

Aðalfundur Sjálfstæðisfélags A-Skaft.Fundurinn verður fimmtudaginn 19. mars kl. 20:00 í Sjálfstæðishúsinu.

- Venjuleg aðalfundarstörf.

- Nýir félagsmenn velkomnir.

Stjórnin

Page 6: Eystrahorn 10. tbl. 2015

6 EystrahornFimmtudagur 12. mars 2015

AtvinnAÓskum eftir ábyrgri og góðri manneskju

til að taka að sér umsjón með Kaffiteríunni við Jökulsárlón.

Viðkomandi þarf að sýna gott frumkvæði, ábyrgð og góða stjórnun.

Þarf að geta unnið vel með fólki og geta tekið sjálfstæðar ákvarðanir.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Allar nánari upplýsingar fást í síma 478-2222 eða á e-mail [email protected]

útibú Lyfju hf. Höfn

Sumarstarf / framtíðarstarfSala- og afgreiðsla - Við leitum að sjálfstæðum og skipulögðum starfsmanni með ríka þjónustulund í sölu- og afgreiðslustarf. Starfið felst í ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum, afgreiðslu á kassa, afhendingu lyfja gegn lyfseðli, afgreiðslu á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra.

Vinnutíminn er frá 10:00-18:00 virka daga.

Um er að ræða afleysingu í sumar en möguleiki á áframhaldandi ráðningu að afleysingu lokinni.

Nánari upplýsingar veitir Hanný Pétursdóttir, lyfjafræðingur ([email protected]) s:478-1224

Á myndinni sjáum við Snæbjörgu Guðmundsdóttur sem útskrifaðist úr raunfærnimati á hestabraut í janúar s.l. Á myndinni sést hún ásamt syni sínum við hesthúsið í Lækjarhúsum með útskriftargögn úr matinu. Raunfærnimat á hestabraut fór fram á Suðurlandi á tímabilinu nóv.-jan. Alls tóku 17 einstaklingar þátt í matinu sem heppnaðist vel. Fræðslunetið, símenntun á Suðurlandi óskar Snæsu innilega til hamingju.

Raunfærnimat á hestabraut Starfsmenn vantar í sumarafleysingar

Eimskip á Höfn vantar tvo starfsmenn til sumarafleysinga.- Meiraprófsbílstjóra frá 1. maí til 31. október- Minnaprófsbílstjóra frá 15. maí til 31. ágúst.

Lyftararéttindi æskilegt en ekki nauðsyn.

Upplýsingar gefur Heimir í síma 894-4107.

BLÚSDJAMM Laugardaginn 14. mars kl. 15-17. verður haldið blúsdjamm í Vöruhúsinu. Frítt inn. Allir velkomnir að spila með.

www.voruhushofn.is

Page 7: Eystrahorn 10. tbl. 2015

7Eystrahorn Fimmtudagur 12. mars 2015

MIÐJA SKAPANDI GREINA Á HORNAFIRÐI

Dagsetningar námskeiðs

Fab Lab NámskeiðBoðið verður upp á 12 tíma Fab Lab námskeið í apríl og maí. Kennd verða undirstöðuatriði teikniforritsins Inksckape. Með Inkscape er hægt að vinna myndir fyrir vínylskera, laserskera viðar-fræsara. Kennt verður á stýringar helstu tækja Fab Lab smiðjunnar. Sýndir verða möguleikar á því hvernig hægt er að nýta smiðjuna á fjölbreyttan hátt í nýsköpun, handverki, fatahönnun og listum.

Kennt verður á þriðjudögum kl.17:00 - 20:00 dagana: 14. - 21. - 28. apríl og 5. maí. Verð: 15.000,- fyrir utan efniskostnað:Skráning hjá Vilhjálmi í Vöruhúsinu.

Námskeiðið er fyrir alla, engin krafa um reynslu í notkun teikniforrita.

Málverkasýning Óskars Guðnasonar í kaffistofu Domus Medica verður opin til 15. mars.

Opið virka daga frá kl. 8:00 - 19:00.

Olíu- og akrýlmálverk sem máluð hafa verið á síðastliðnum 2 - 3 árum.

PÓKER2.500kr.- “Tvöfaldur séns” hefst á slaginu kl. 20:00.

Mótið fer fram í kjallara Pakkhússins.

Hægt er að komast inn í mót fram að hlé eða um kl. 21:00.

Húsið opnar kl. 19:00 og kennsla og upprifjun í boði.

Fríttkaffifyrirspilara.

Sími 647- 4474 facebook.com/pkhofn

PizzatilboðFöstudag, laugardag og sunnudag frá kl 18:0016“ Pizza með þremur áleggstegundumKr. 1990.- ef sótt er.

Sími 478-2200

GroddaveislaHin árlega groddaveisla Kiwanisklúbbsins Óss

verður í Nýheimum 14. mars.

Húsið opnar kl 19:00. Málverkauppboð til góðgerðarmála, blúsmúsik, vinningar dregnir út úr númeruðum miðum.

Gamanmál og gaman saman. Boðið verður upp á hlaðborð með söltuðu spikfeitu hrossa- og sauðakjöti og grillaðu

hvalkjöti. Þetta verður borið fram með Seljavallakartöflum, rófum, uppstúf og öðru meðlæti.

styrkið styrktarsjóð Óss.

verð aðeins kr 4.000Miðapantanir í síma 478-1300 eða [email protected]

Page 8: Eystrahorn 10. tbl. 2015

8 EystrahornFimmtudagur 12. mars 2015

Húsgagnaval

FermingartilboðValhöll 5

svæðisskipt heilsudýna,

pokagormakerfi, gæðabólstrun.

Verð með Pu-leðurbotni og fótum 120x200 cm aðeins kr. 89.900-.

Tökum niður pantanir, væntanleg sending til landsins í lok mars.

Vorum að taka upp falleg rúmföt frá Lín design.

Einnig fást hjá okkur vinsælu úrin frá David Wellington.

Sumarhús eða orlofsíbúðir óskast

Stórt starfsmannafélag á Reykjarvíkursvæðinu óskar eftir vönduðum

sumarhúsum eða orlofsíbúðum á leigu til framleigu fyrir félagsmenn sína næsta sumar.

Áhugasamir sendi upplýsingar á netfangið [email protected]

fyrir 20. mars 2015.

Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja: Lýsing á eign og því sem henni fylgir, ástand hennar, staðsetning, stærð, fjöldi svefnplássa

og byggingaár. Auk þess skal fylgja lýsing á möguleikum til útivistar og afþreyingar í næstaumhverfi.Nauðsynlegteraðmyndir

oglýsingáumhverfifylgimeð.

Öllum tilboðum verður svarað.

Lista– og handverkskonur í

Hornafirði ! Hornafjarðarsöfn auglýsa eftir þátttakendum

á sýningu lista– og handverkskvenna í

Hornafirði vegna 100 ára kosningarafmælis

kvenna. Sýningin er sett upp til þess að sýna

lista– og handverk í nútíma eftir hornfirskar

listakonur og verður í júní 2015 í Listasafni

Svavars Guðnasonar.

Þær sem hafa áhuga á að vera með, vinsamlegast hafið samband við okkur á

[email protected] og/eða [email protected] fyrir 25.mars 2015.

Menningarverðlaun og menningarstyrkir verða veittir

13. mars kl.16:00 við hátíðlega athöfn í Nýheimum. Við

hvetjum alla styrkþega að mæta og veita styrkjunum viðtöku.

Gleðigjafar Samkór Hornafjarðar

Lúðrasveit Hornafjarðar Leikfélag Hornafjarðar

Hornfirska Skemmtifélagið Kvennakór Hornafjarðar

Blús– og rokkklúbbur Hornafjarðar Karlakórinn Jökull

Stakir Jakar

Allir velkomnir og léttar veitingar í boði,

Menningarmálanefnd Hornafjarðar

Menningarstyrkhafar Hornafjarðar 2014 eru:

Page 9: Eystrahorn 10. tbl. 2015

18. MARS MIÐ, 21:00 HÖFNSINDRABÆR (FÉLAGSHEIMILI)

19. MARS FIM, 21:00 EGILSSTAÐIRVALASKJÁLF

FORSALA HAFIN Á TIX.ISMIÐAVERÐ 3.000 KR

Page 10: Eystrahorn 10. tbl. 2015

Mar

khön

nun

ehf

Kræsingar & kostakjör

Tilboðin gilda 12. – 15. mars 2015Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.

kjúklingabringurdanskar/frosnar - 900g

1.391áður 1.761 kr/pk

-21%

20% afsláttur af Casa Fiesta vörum!

tacosósurmild/med/hoT 225 grVerð áður 249,-

199,- ídýfurguacamole 300grVerð áður 379,-

303,-ídýfursalsa 315 grVerð áður 339,-

271,-

ídýfurosTa 300 grVerð áður 359,-

287,-

tortilla flögurplain/chili/osTaVerð áður 199,-

159,-tortillas 4 stk24 cmVerð áður 279,-

223,-

tortillas 8 stk20 cmVerð áður 299,-

239,-tortillas heilhveiti 4 stk24 cmVerð áður 339,-

271,-

taco skeljar135 grVerð áður 299,-

239,-sósa f. vefjur225 gTVerð áður 249,-

199,-

burrito krydd40 grVerð áður 169,-

135,-