eystrahorn 2. tbl. 2015

6
Fimmtudagur 15. janúar 2015 www.eystrahorn.is Eystrahorn 2. tbl. 33. árgangur www.eystrahorn.is Í tilefni af 40 ára afmælis Elli-og hjúkrunarheimilis Skjólgarðs hefur verið ákveðið að kynna og athuga með áhuga á stofnun Hollvinasamtaka heilbrigðisstofnana í Hornafirði. Markmið samtakanna verður m.a. Að auka tengsl almennings við stofnanirnar og þá sem bera hag þeirra fyrir brjósti. Og hins vegar að efla hag þeirra. Þetta verði gert m.a. með eftirfarandi: Að standa vörð um stofnanirnar og starfsemi þeirra. Að stuðla að kynningu út á við. Hlutast skal til um að félagsmenn fái greiðar upplýsingar um framgang stofnananna, og nýjungar á sviði heilbrigðismála er varða stofnanirnar og starfsemi þeirra. Að veita heilbrigðisstofnunum í Hornafirði fjárhags- og siðferðilegan stuðning og hvatningu í ýmsum framfara- og hagsmunamálum, svo sem að þrýsta á viðbyggingu við hjúkrunarheimilið. Tekjur Hollvinasamtaka heilbrigðisstofnana í Hornafirði verða: Félagsgjöld sem ákveðin eru árlega á aðalfundi samtakanna. Frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka og annarra aðila. Aðrar tekjur. Fjárframlög til Hollvinasamtakanna merkja ákveðinni starfsemi við stofnanirnar s.s rannsóknum, endurhæfingu, endurnýjun tækjakosts og tækjakaupum eða beinum fjárstuðningi við ákveðin markmið. Óskilyrtum fjárframlögum ráðstafar stjórn samtakanna í samræmi við markmið þeirra. Verði félagið lagt niður skulu allar eignir þess og tekjur renna óskipt til Hjúkrunarheimilisins á Hornafirði. Félagar teljast þeir sem greiða árgjöld samtakanna. Fyrirtæki, félagasamtök og opinberir aðilar geta orðið styrktarfélagar. Kynningin verður í Nýheimum, sunnudaginn 18. janúar 2015 kl. 15:00 eins og fram kemur í auglýsingu í blaðinu. Áhugafólk um Hollvinasamtök heilbrigðisstofnana í Hornafirði. Nú er að hefjast nýtt starfsár, 35. starfsár, hjá Ferðafélagi Austur-Skaftfellinga og er verið að dreifa metnaðarfullri dagskrá fyrir þetta ár. Mismunandi ferðir í boði. Næstkomandi helgi förum við af stað með nýtt verkefni sem nefnist „Eitt fjall í mánuði“ eins og Ferðafélaga Íslands og aðrar deildir innan FI hafa verið að bjóða uppá. Byggjum við þessar ferðir upp þannig að fjöllin eru mishá og miskrefjandi. Þetta verkefni er hugsað fyrir byrjendur í fjallgöngum, þá sem vilja koma sér af stað að nýju eftir hlé og reyndar alla þá sem vilja koma reglulegum fjallgöngum inn í dagatalið sitt. Farið er í 12 fjallgöngur, á laugardegi eða sunnudegi í hverjum mánuði út árið. Mun hver ferð verða auglýst í Eystrahorni og facebook hverju sinni og verð fyrir hverja ferð er 1000 kr. Allar ferðir fara frá tjaldstæðinu á Höfn og þar sem fólk kemur á einkabílum og sammeinast þar í bíla. Ætlum við að skora á einn vinnustað eða fyrirtæki í hverri ferð og munum við senda póst á vinnustaðinna og biðja yfirmenn að auglýsa ferðina innan síns hóps. Í lok árs mun sá vinnustaður sem skorað var á og mætti með flesta starfsmenn miðað við starfsmannafjölda fá verðlaun. Einnig munu allir sem taka þátt í verkefninu Eitt fjall í mánuði fara í happdrættispott sem verður dregið úr og veitt verðlaun í lok árs 2015. Einnig ætlum við að bjóða upp á undirbúningsfund í sal Ekrunnar 15 janúar kl. 20:00. Þar geta menn fræðst um hvernig sé best að undirbúa sig fyrir dagsferðir, göngur á vetrartíma til fjalla og hvað sé gott að taka með. Allar ferðir eru opnar öllum skiptir ekki máli hvort fólk er félagsmenn eða ekki. Jákvæð áhrif útivistar. Þú lærir að búa þig af stað í ólíkar aðstæður og kynnist margbrotnu veðurfari og náttúru. Þú lærir að þekkja sjálfan þig og þín takmörk. Þú fræðist um landslag,sögu og örnefni af farastjórum og ferðafélögum. Þú nýtur skemmtilegs félagsskapar og kynnist nýjum hliðum á samferðafólkinu. Þú eykur styrk, þol og bætir andlega heilsu. Hlökkum við til að eiga skemmtilegt gönguár með ykkur. F.h. ferðanefndar, Ragna Pétursdóttir. Stofnun hollvinasamtaka Eitt fjall á mánuði Föstudagshádegi í Nýheimum Fulltrúi Hornafjarðarsafna kynnir sýninguna „Samfélag í mótun“ en opnun sýningarinnar fer fram kl. 17:00 þann sama dag. Sýningin er byggð á ljósmyndum, munum og örsögum sem allar snerta mótunarsögu samfélagsins á Höfn. Hvetjum fólk til að mæta.

Upload: heradsfrettabladid-eystrahorn

Post on 07-Apr-2016

251 views

Category:

Documents


0 download

DESCRIPTION

 

TRANSCRIPT

Page 1: Eystrahorn 2. tbl. 2015

Fimmtudagur 15. janúar 2015 www.eystrahorn.is

Eystrahorn2. tbl. 33. árgangur www.eystrahorn.is

Í tilefni af 40 ára afmælis Elli-og hjúkrunarheimilis Skjólgarðs hefur verið ákveðið að kynna og athuga með áhuga á stofnun Hollvinasamtaka heilbrigðisstofnana í Hornafirði. Markmið samtakanna verður m.a. • Að auka tengsl almennings við stofnanirnar og

þá sem bera hag þeirra fyrir brjósti. Og hins vegar að efla hag þeirra. Þetta verði gert m.a. með eftirfarandi:

• Að standa vörð um stofnanirnar og starfsemi þeirra.

• Að stuðla að kynningu út á við. Hlutast skal til um að félagsmenn fái greiðar upplýsingar um framgang stofnananna, og nýjungar á sviði heilbrigðismála er varða stofnanirnar og starfsemi þeirra.

• Að veita heilbrigðisstofnunum í Hornafirði fjárhags- og siðferðilegan stuðning og hvatningu í ýmsum framfara- og hagsmunamálum, svo sem að þrýsta á viðbyggingu við hjúkrunarheimilið.

Tekjur Hollvinasamtaka heilbrigðisstofnana í Hornafirði verða: • Félagsgjöld sem ákveðin eru árlega á aðalfundi

samtakanna. • Frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja,

félagasamtaka og annarra aðila. • Aðrar tekjur. Fjárframlög til Hollvinasamtakanna má merkja ákveðinni starfsemi við stofnanirnar s.s rannsóknum, endurhæfingu, endurnýjun

tækjakosts og tækjakaupum eða beinum fjárstuðningi við ákveðin markmið. Óskilyrtum fjárframlögum ráðstafar stjórn samtakanna í samræmi við markmið þeirra. Verði félagið lagt niður skulu allar eignir þess og tekjur renna óskipt til Hjúkrunarheimilisins á Hornafirði. Félagar teljast þeir sem greiða árgjöld samtakanna. Fyrirtæki, félagasamtök og opinberir aðilar geta

orðið styrktarfélagar. Kynningin verður í Nýheimum, sunnudaginn 18. janúar 2015 kl. 15:00 eins og fram kemur í auglýsingu í blaðinu.

Áhugafólk um Hollvinasamtök heilbrigðisstofnana í Hornafirði.

Nú er að hefjast nýtt starfsár, 35. starfsár, hjá Ferðafélagi Austur-Skaftfellinga og er verið að dreifa metnaðarfullri dagskrá fyrir þetta ár. Mismunandi ferðir í boði. Næstkomandi helgi förum við af stað með nýtt verkefni sem nefnist „Eitt fjall í mánuði“ eins og Ferðafélaga Íslands og aðrar deildir innan FI hafa verið að bjóða uppá. Byggjum við þessar ferðir upp þannig að fjöllin eru mishá og miskrefjandi. Þetta verkefni er hugsað fyrir byrjendur í fjallgöngum, þá sem vilja koma sér af stað að nýju eftir hlé og reyndar alla þá sem vilja koma reglulegum fjallgöngum inn í dagatalið sitt. Farið er í 12 fjallgöngur, á laugardegi eða sunnudegi í hverjum mánuði út árið. Mun hver ferð verða auglýst í Eystrahorni og facebook hverju sinni og verð fyrir hverja ferð er 1000 kr. Allar ferðir fara frá tjaldstæðinu á Höfn og þar sem fólk kemur á einkabílum og sammeinast þar í bíla. Ætlum við að skora á einn vinnustað eða

fyrirtæki í hverri ferð og munum við senda póst á vinnustaðinna og biðja yfirmenn að auglýsa ferðina innan síns hóps. Í lok árs mun sá vinnustaður sem skorað var á og mætti með flesta starfsmenn miðað við starfsmannafjölda fá verðlaun. Einnig munu

allir sem taka þátt í verkefninu Eitt fjall í mánuði fara í happdrættispott sem verður dregið úr og veitt verðlaun í lok árs 2015. Einnig ætlum við að bjóða upp á undirbúningsfund í sal Ekrunnar 15 janúar kl. 20:00. Þar geta menn fræðst um hvernig sé best að undirbúa sig fyrir dagsferðir, göngur á vetrartíma til fjalla og hvað sé gott að taka með. Allar ferðir eru opnar öllum skiptir ekki máli hvort fólk er félagsmenn eða ekki. Jákvæð áhrif útivistar. Þú lærir að búa þig af stað í ólíkar aðstæður og kynnist margbrotnu veðurfari og náttúru. Þú lærir að þekkja sjálfan þig og þín takmörk. Þú fræðist um landslag,sögu og örnefni af farastjórum og ferðafélögum. Þú nýtur skemmtilegs félagsskapar og kynnist nýjum hliðum á samferðafólkinu. Þú eykur styrk, þol og bætir andlega heilsu. Hlökkum við til að eiga skemmtilegt gönguár með ykkur.

F.h. ferðanefndar, Ragna Pétursdóttir.

Stofnun hollvinasamtaka

Eitt fjall á mánuði

Föstudagshádegi í Nýheimum Fulltrúi Hornafjarðarsafna kynnir sýninguna „Samfélag í mótun“ en opnun sýningarinnar fer fram kl. 17:00 þann sama dag. Sýningin er byggð á ljósmyndum, munum og örsögum sem allar snerta

mótunarsögu samfélagsins á Höfn. Hvetjum fólk til að mæta.

Page 2: Eystrahorn 2. tbl. 2015

www.eystrahorn.is EystrahornFimmtudagur 15. janúar 2015

Eystrahorn

Snorri Snorrasonlögg. fasteignasali og lögg. leigumiðlariSími 580-7915

Einbýlishús til lEiguTil leigu er Álaleira 14 á Höfn í Hornafirði. Um er að ræða gott 240 m² einbýlishús ásamt bílskúr sem getur verið laust fljótlega

höfðavEgurTil sölu er rúmgóð 4raherb 100,3 m² íbúð á annari hæð í fallegu og velviðhöldnu fjölbýli. 4 íbúðir í stigagangi.

miðtúnMikið endurnýjuð 101,7 m² efri sérhæð með góðri sameiginlegri lóð. 4 svefnherbergi, laus fljótlega.

Vesturbraut25•Sími:862-0249

Útgefandi: ........... HornafjarðarMANNI

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: . Albert EymundssonNetfang: ............. [email protected]ófarkalestur .... Guðlaug HestnesLjósmyndir: ........ Maríus SævarssonUmbrot: ............. Heiðar SigurðssonPrentun: ............. Litlaprent

ISSN1670-4126

Nýtt á skrá til leigu

Stofnun HollvinaSamtakaStofnfundur Hollvinasamtaka heilbrigðisstofnana á Hornafirði verður í Nýheimum sunnudaginn 18. janúar kl. 15:00

DagSkrá:• Stofnun Hollvinasamtaka.• Skemmtiatriði.• Boðið verður upp á kaffi og konfekt.• Fjölmennum og styðjum heilbrigðisstofanir í

heimabyggð.

Undirbúningshópurinn

Vilhelmína Sigríður Bjarnadóttir var fædd 6.júlí 1921 að Hrafnabjörgumí Vestmannaeyjum. Hún lést 20. desember sl. á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands, hjúkrunar-heimilinu á Höfn. Útför hennar fór fram frá Hafnarkirkju 27. desember sl. Vilhelmína Sigríður sem oftast var kölluð Sigga í Þórshamri var dóttir Guðrúnar Halldórsdóttur frá Hliði á Eyrarbakka og Bjarna Vilhelmssonar frá Barðsnesi við Norðfjörð. Hún ólst upp í stórum systkinahópi á Norðfirði en þau voru 22 systkinin og þar af 15 alsystkini. Sigga fer tvítug til Hornafjarðar sem ráðskona við mótorbátinn Heklu frá Norðfirði. ÞarkynnisthúnBirniÞórarniÁsmundssynioggiftuþausig23.nóvember1942.Þaueignuðustáttabörnensjökomustuppþau;Hulda Valdís, Guðrún Jóhanna, Ásbjörn, Elma Stefanía, Olga,Birna og Sigurborg. Afkomendur þeirra hjóna eru orðnir 76talsins. Sigga og Tóti, eins og Björn Þórarinn var gjarnan kallaður, bjuggu allan sinn búskap á Hornafriði og lengst af í Þórshamri. Björn Þórarinn lést árið 2000. Sigga var dugnaðarforkur og það lék allt í höndum hennar. Hún vann lengst í mötuneyti KASK eða í yfir 25 ár. Sigga og Tóti áttu sumarbústað inn á Laxárdal í Lóni og nutu sín vel úti í náttúrunni þar, bæði við að hlúa að gróðrinum og steinasöfnun. Sigga dvaldi sl. 10 ár á hjúkrunarheimilinu á Höfn vegna heilsubrests. Börn Siggu og fjölskyldur vilja koma á framfæri sérstökum þökkum til starfsfólks á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands fyrir alúðlega og góða umönnun sem móðir þeirra naut í erfiðum veikindum hennar síðustu árin. Sömuleiðis þakka þau auðsýnda samúð vegna andláts hennar.

Andlát

Vilhelmína Sigríður Bjarnadóttir

HafnarkirkjaSunnudaginn 18. janúar Messa og sunnudagaskóli

kl. 11:00

Prestarnir

Vaktsími presta: 894-8881

bjarnanesprestakall.is

Félagsstarf Félags eldri Hornfirðinga

Samverustund föstudaginn 16. janúar kl. 17:00

Samverustund með Þorbjörgu á Hala sem hún nefnir Heimsókn frá Þórbergssetri.Við syngjum og hlustum. Missið ekki af samverustundinni. Minnum á skráningu á tölvunámskeiðið og þorrablótið. Allt um það var í síðasta Eystrahorni.Næst verður dansað í Ekrunni á Þorrablótinu 30. janúar.

Fjall á mánuðimeð Ferðafélagi Austur SkaftafellssýsluFerðafélagið ætlar að ganga á eitt fjall á mánuði, alla mánuði ársins 2015. Fyrsta fjall mánaðarins er Bergárheiði-Leynistindar (550m) laugardaginn 17. janúar. Lagt af stað frá tjaldstæði kl. 9:00. Léttir göngubroddar nauðsynlegir, léttur bakpoki, nesti og hlýr klæðnaður.

Skorum á starfsfólk Grunnskóla Hornafjarðar og Tónskóla A-Skaft. að fjölmenna í þessa ferð. Sjá nánar í fréttatilkynningu í Eystrahorni og á facebook síðu félagsins. Kynningar- og undirbúningsfundur fimmtudaginn 15. janúar kl. 20:00 í Ekrunni. Hlökkum til að hefja nýtt gönguár með ykkur

Allir eru velkomnir í ferðir á vegum félagsins. Verð 1000- kr. fyrir 18 ára og eldri. Séu hundar með skal vera ól meðferðis.

Frekari upplýsingar gefur Ragna Pétursdóttir í síma 662-5074

Page 3: Eystrahorn 2. tbl. 2015

www.eystrahorn.isEystrahorn Fimmtudagur 15. janúar 2015

Kæru Hornfirðingar nær og fjær

Í hartnær 100 ár hefur Mikligarður verið undirstaðan í samfélags- og atvinnuþróun á Höfn og í Hornafirði. Í honum hefur sagan tekið á sig myndir og skilið eftir minningar hjá

flestum þeirra sem hingað komu til vinnu og vertíða. Mikligarður var þó ekki bara verbúð, í honum fóru fram samkomur af ýmsum toga m.a. dansskóli og dansleikir, stúkufundir, skóla- og fundarhald. Ungmennafélagið Sindri var stofnað í Miklagarði og fór kirkjuhald

fram undir hans þaki í mörg ár. Margir fengu að dvelja í Miklagarði meðan verið var að koma undir sig fótunum og er óhætt að segja að í Miklagarði hafi verið líf og fjör.

Stofnfundur Hollvinasamtaka Miklagarðs verður í Nýheimum 21. janúar n.k. kl. 20.00

Stofnun Hollvinasamtaka Miklagarðs

Óskum eftir að sjá sem flesta

Starfsfólk Hornafjarðarsafna

Opinn stjórnmálafundur á Kaffi Horninu föstudaginn 16. janúar kl. 12:00Alþingismennirnir Unnur Brá Konráðsdóttir og Vilhjálmur Árnason ræða stjórnmálaviðhorfið.Allir velkomnir

Guðrún Bergsdóttir fæddist 27. júlí 1934 á Hofi íÖræfasveit. Hún var dóttir hjónanna Guðmundar Bergs Þorsteinssonar og Pálu Jónínu Pálsdóttur. Hún var þriðja í röð níu systkina. Guðrún kynntist eiginmanni sínum Ingimundi Gíslasyni (fæddur 7. mars 1921, dáinn 13.september 1990) og fluttisttil hans að Hnappavöllum árið 1955. Börn þeirraeru Ingibjörg Ingimundardóttir gift Gunnari Páli Bjarnasyni. Guðjón Ingimundarson. Sigurður Ingimundarson. Óskírður Ingimundarson(fæddur8.september1961,dáinn12.september1961).EinarPállIngimundarson.Guðrúnáttisexbarnabörnogfimm barnabarnabörn. Guðrún ólst upp á Hofi ásamt systkinum sínum. Hún fór til Reykjavíkur í vist og vinnu á spítala í tvo vetur. Hún snéri aftur í Öræfasveit og hóf búskap með eiginmanni sínum Ingimundi Gíslasyni á Hnappavöllum og stundaði þar búskap með honum og síðar sonum sínum allt fram til dauðadags. Hún var mikil prjónakona en annars voru bústörfin og heimilishaldið hennar líf og yndi. Guðrún var einstaklega heimakær, leið hvergi betur en heima hjá sér og fylgdist með afkomendum sínum af mikilli nákvæmni. Guðrún var mikil húsmóðir og var oft með marga í heimili, m.a. barnabörnin auk margra sumarbarna í gegnum árin. Fyrir 24 árum greindist Guðrún með bandvefssjúkdóm sem var henni fjötur um fót eftir það og skerti lífsgæði hennar. Hún gafst hins vegar aldrei upp og var sem klettur í lífi fjölskyldunnar á hverju sem gekk. Síðustu árin gengu henni nærri uns yfir lauk. Guðrún lést á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands á öðrum degi jóla eftir stutt veikindi. Útför hennar fór fram í Hofskirkju laugardaginn 3. janúar síðast liðinn. Fjölskyldan vill koma á framfæri kærum þökkum til allra þeirra sem sýndu hluttekningu og stuðning við undirbúning og útför Guðrúnar. Einnig vill hún koma á framfæri þökkum til starfsfólks heimahjúkrunar á Höfn fyrir innlit síðastliðin ár.

Fyrir hönd aðstandenda, Börn Guðrúnar og fjölskyldur þeirra

Andlát

Guðrún Bergsdóttir

Félagsfundirí verkamannadeild AFLs verða haldnir á

eftirfarandi stöðum:Víkurbraut 4 Hornafirði 15. janúar 2015 kl. 18:00Hótel Héraði Egilsstöðum 17. janúar 2015 kl. 14:00Búðareyri 1 Reyðarfirði 19. janúar 2015 kl. 18:00Lónabraut 4 Vopnafirði 20. janúar 2015 kl. 17:00

Dagskrá fundanna:• Mótun launakrafna fyrir komandi kjarasamninga• Önnur mál

Á fundinn eru boðaðir félagsmenn í verkamannadeild sem starfa á almenna markaðnum.

AFL Starfsgreinafélag Verkamannadeild

Vinningshafar í jólaleik Jaspis voru:

- Unnur Garðarsdóttir

- Hjördís Karlsdóttir

- Hreinn Eiríksson

Um leið og við óskum þeim til hamingju þá þökkum við þeim fyrir viðskiptin

Heiða Dís og Snorri

Jaspis

Page 4: Eystrahorn 2. tbl. 2015

www.eystrahorn.is EystrahornFimmtudagur 15. janúar 2015

Hið árlega Þrettándabingó Kvenfélagsins Óskar var haldið að Hrollaugsstöðum laugardagskvöldið 3. janúar síðast liðinn. Líkt og vanalega var góð mæting og mættu rúmlega 50 manns ungir sem aldnir til að spila um þá fjölmörgu og veglegu vinninga sem gefnir voru. Að loknu bingói gæddu gestir sér á kaffiveitingum í boði Suðursveitunga og Mýramanna. Við kvenfélagskonur viljum þakka þeim fyrirtækjum og einstaklingum, sem gáfu vinninga, fyrir stuðninginn og einnig þeim gestum sem mættu.

Að venju mun ágóðinn renna til stofnanna eða einstaklinga innan sveitarfélagsins sem þurfa aðstoð.

Stjórn kvenfélagsins Óskar

OPNUN

16.JANUAR

SAMFÉLAG Í M Ó T U N Samfélagið i Hornafirði frá lokum nitjándu aldar

fram undir miðbik tuttugustu aldar

KL. 17

LISTASAFN SVAVARS GUÐNASONAR

Verkefnisstjóri/ráðgjafi SASSÞórarinn Egill Sveinsson verkefnisstjóri/ráðgjafi SASS verður til viðtals á skrifstofu SASS í Nýheimum miðvikudaginn 14. janúar og fimmtudaginn 15. janúar.

Hægt er að panta tíma með því að senda póst á netfangið [email protected], hringja ísíma8980399eðabarakoma við hjá Þórarni.

Þrettándabingó 2015

Bifreiðaskoðun á Höfn 19., 20. og 21. janúar.Tímapantanir í síma 570 9090

fyrir kl. 16:00 föstudaginn 16. janúar.

Næsta skoðun er 16., 17. og 18. febrúar.

Þegar vel er skoðað

Skipulagsfundur vegna 100 ára kosningarafmælis kvenna 2015

Kæru velunnarar afmælisárs kosningaréttar kvenna á Íslandi!

Mánudaginn 19. janúar n.k. kl 20.00 verður haldinn skipulagsfundur í Nýheimum vegna viðburða tengda afmælishátíðinni 19. júní 2015.

Allir þeir sem hafa áhuga á að aðstoða við undirbúninginn eru hvattir til þess að mæta og leggja þessum merkisviðburði lið.

Kærar kveðjur, Afmælisnefndin

ÚTSALA ÚTSALAÚTSALAN ER HAFIN

20% - 70% AFSLÁTTUR

Komið og gerið góð kaup.

Verið velkomin

Þau fyrirtæki og einstaklingar sem gáfu vinninga eru: • Amara snyrtistofa• ÁrnanesCountryHotel• Guðrún Ingólfsdóttir• Hótel Höfn• Hótel Smyrlabjörg• Humarhöfnin• Húsasmiðjan• Húsgagnaval• Jaspis,

• Jöklableikja• Lyfja• N1• Nettó• Olís• Pakkhúsið• Pósthúsið• Sundlaugin.

Page 5: Eystrahorn 2. tbl. 2015

www.eystrahorn.isEystrahorn Fimmtudagur 15. janúar 2015

Þann 9. janúar síðastliðinn fórfram stofnfundur Femínistafélags Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu – FemFAS, í Nýheimum. Nokkur fjöldi nemenda og áhugasamra var samankominn af þessu tilefni og eru nú þegar skráðir u. þ. b. 30 nemendur í félagið. Í lögum félagsins kemur fram að tilgangur og markmið félagsins séu m. a.: Aðstyðjavið jafnréttisbaráttuna;að efla femíníska umræðu í umhverfi og samfélagi nemenda við skólann; leiðrétta neikvæðaímynd nemenda á femínistum og femínisma; veita vitneskju umhugtakið femínismaog jafnframtveita innsýn í starfsemi femínista;sem og stuðla að umhverfi þar sem algjört jafnrétti ríki. Stofnun félagsins var fagnað með lófaklappi í lok fundarins ekki síst fyrir þá staðreynd að árið 2015 eru 100 ár frá því að konur fengu kosningarétt á Íslandi. Þá var lögð fram tillaga að Druslugöngu á Höfn í sumar og var hugmyndinni vel tekið.

Ríki Vatnajökuls óskar eftir að ráða FRAMKVÆMDASTJÓRA

Leitað er að kraftmiklum og metnaðarfullum einstaklingi sem hefur vilja til að ná árangri í starfi.

Starfssvið:• Dagleg stjórnun og rekstur félagsins, ásamt verkefnastjórnun.• Gerð framkvæmda- og fjárhagsáætlana og eftirfylgni með þeim.• Virk þátttaka í stefnumörkun um starfsemi félagsins og framkvæmd

hennar.• Virk þátttaka í markaðs- og kynningarmálum og umsjón með heimasíðu

félagsins.• Samskipti við fyrirtæki, hagsmunasamtök og stofnanir innan félagsins

(klasans) sem utan.

Menntunar- og hæfniskröfur:• Háskólapróf sem nýtist í starfi og/eða víðtæk reynsla af rekstrar- eða

markaðsmálum.• Reynsla af stjórnun og rekstri.• Þekking og reynsla úr ferðaþjónustu kostur.• Mjög góð íslensku- og enskukunnátta sem og hæfni til að tjá sig í ræðu

og riti.• Leiðtogahæfni, frumkvæði og metnaður í starfi.• Hæfni í mannlegum samskiptum.• Góð tölvukunnátta og geta til þess að nýta sér upplýsingatækni á

fjölbreyttan máta.

Ríki Vatnajökuls er einkahlutafélag um klasa samstarfsfyrirtækja og opinbera aðila sem tengjast ferðaþjónustu á Suð-austurlandi. RV stuðlar að öflugri og arðbærri ferðaþjónustu allt árið sem byggir á aðdráttarafli stórbrotinnar náttúru, matvælum og menningu svæðisins. Skrifstofan er á Höfn í Hornafirði. Sjá nánar: visitvatnajokull.is

Umsjón með ráðningunni hafa Ingibjörg tel.899 7881 ([email protected]), Vala tel. 863 9199 ([email protected]), Ásmundur tel. 896 6412 ([email protected])

Umsóknarfrestur er til og með 29. janúar nk. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á [email protected]

Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.

Femínistafélag stofnað í FAS

Olía á góðu verðiÞú getur fengið kanadíska olíu sérpakkaða

fyrir KEMI hjá okkur.Sjá verðið á myndinni

AtvinnaOkkur vantar starfsmann á smurstöð og

aðstoðarmann í verslun.Upplýsingar í síma 478-1340

Verið ávallt velkomin

Verslun, sími 478-1414

Bóndadagskvöld á Kaffi HorninuÞriggja rétta bóndadagsmatseðill:

Humarþrenna – Grillaður humar m/hvítlauk, humarprjónn, tempurahumar

Nautaund með þrísteiktum frönskum, bernaise, selleryrótarmauki og lauksultu

Karamelluostakaka

Verð 5.900,-Verið velkominn

Starfsfólk Kaffi Hornsins sími 478-2600

Page 6: Eystrahorn 2. tbl. 2015

Hvenær kemur’ða eiginlega? Þetta er

nú alveg hætt að vera fyndið sko!!!

Ég ætla að verða fyrstur til að kaupa miða á

þorrablótið í ár!Sérð þú

eitthvað?Nei

ekkert!

Þorrablót Hafnarbúa 2015verður haldið í íþróttahúsinu á Höfn laugardaginn 24. janúar.

Húsiðverðuropnaðkl.19:30ogborðhaldhefststundvíslegakl.20:30.

Hljómsveitin Sóldögg leikur fyrir dansi.

Miðasala hefst í íþróttahúsinu fimmtudaginn 22. janúar kl. 17:00 - 19:00. Miðaverð er kr. 7.000,- Athugið að ekki er tekið við greiðslukortum.

Ef svo ólíklega skildi vilja til að einhverjir miðar verði óseldir föstudaginn 23. janúar verða þeir seldir kl. 17:00 - 18:00 þann dag í íþróttahúsinu.

Atvinna á Höfn

Þjónustustöð N1 á Höfn í Hornafirði óskar eftir að ráða starfsmann í almenna afgreiðslu og á grill.

Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri, vera reglusamur, stundvís og með ríka þjónustulund.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Þórarinn Birgisson í síma 861 1955 eða 478 1490.

NÁMSKEIÐ Námskeiðið gengur út á að tengja saman fatahönnun og Fab Lab hönnunarsmiðju. Farið verður í sköpunarvinnu sem og hugmyndafræði Fab Lab smiðjunnar. Kennt verður á teikniforritið Inkscape, vínil og lazerskerann. Námskeiðið nýtist bæði þeim sem eru að taka sín fyrstu skref sem og þeim sem eru lengra komnir í fata og textílhönnun. Kennt verður 3 laugardaga, 7. 14. og 21. febrúar frá kl. 10:00 - 14:30. Meiri upplýsingar og skráning hjá Fræðsluneti-nu. Sími: 560-2050 eða [email protected]

MIÐJA SKAPANDI GREINA Á HORNAFIRÐI

Fab Lab fatahönnun