eystrahorn 6. tbl. 2015

4
Fimmtudagur 12. febrúar 2015 www.eystrahorn.is Eystrahorn 6. tbl. 33. árgangur www.eystrahorn.is Fuglaathugunarstöð Suðausturlands var stofnuð 14. mars 2005 og því búin að starfa í 10 ár. Af því tilefni verður gefið út veglegt afmælisrit. Í ritinu verða ýmsar greinar tengdar starfsemi stöðvarinnar og upplýsingar um merkingar og fleira sem starfsmenn hafa komið að á þessum 10 árum. Fuglaathugunarstöðin leitar eftir stuðningi við útgáfuna í formi auglýsinga eða styrkja eins og fram kom í dreifibréfi. Ritinu verður dreift til fugláhugafólks og á ýmsar stofnanir víða um land auk þess að verða aðgengilegt á vefsíðunni www.fuglar. is. Áætlaður útgáfudagur er 14. mars nk. Ritstjóri er Sigurður Örn Hannesson. Ritið verður í stærðinni A4, um 40 blaðsíður og upplagið verður 300 – 400 eintök. Verð á auglýsingum styrkjum: heilsíða kr. 40.000.-, hálfsíða kr. 22.000.-, merki/lógó: kr. 14.000.-, styrktarlína kr. 7.000.-. Velunnarar: sem greiða 1.500.- kr. fá nafnið sitt í blaðið og eitt eintak. Þeir sem áhuga hafa á að auglýsa eða styrkja útgáfuna geta haft samband við Brynjúlf í síma 894 0262 eða á netfangið [email protected], fyrir 15. febrúar nk. Fuglaathugunarstöð Suðausturlands 10 ára Þann 19. júní næstkomandi munum við fagna saman þeim merka áfanga að konur fengu kosningarétt á Íslandi. Af því tilefni verða haldnir ýmsir viðburðir, afmælinu og baráttunni um kosningaréttinn til heiðurs. Settir hafa verið á laggirnar hópar um hvern viðburð eða svokallaðir viðburðahópar og óskum við eftir þátttakendum í þessa hópa. Undirbúningurinn verður án efa stórskemmtilegur og vonumst við til þess að konur sem karlar á öllum aldri til sjávar og sveita skrái sig með okkur og taki þátt í þessum merku tímamótum. Eftirfarandi viðburðahópar hafa verið stofnaðir: Tónleikar og dansiball Hópstjórar: Íris Jóhanns, Árdís Halldórsdóttir og Kristín Gestsdóttir Ljóða- og bókaupplestur Hópstjórar: Soffía Auður og Sigríður Þorvarðardóttir Drusluganga Hópstjórar: Matthildur Ásmundardóttir, Guðrún Ingólfsdóttir og Bryndís Bjarnarson Hannyrðahópur Hópstjórar: Guðný Svavarsdóttir, Þórhildur Magnúsdóttir og Kristín Hermannsdóttir FAS-hópur Hópstjórar: Margrét Gauja og Ingibjörg L. Pálmadóttir Handverks- og listasýning í Listasafni Svavars í júní tileinkuð hornfirskum listakonum Hópstjórar: Vala Garðarsdóttir og Bryndís B. Hólmarsdóttir Til þess að skrá sig í hóp vinsamlegast hafið samband við Hornafjarðarsöfn í síma 4708052 eða á [email protected] - gudny@ hornafjordur.is eða bryndí[email protected]. Einnig er hægt að hafa beint samband við hópstjóra eða á facebook undir framkvæmdahópur afmælishátíðar. Hátíðardagskrá vegna 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna á Íslandi - Viðburðir og viðburðahópar - Samfélagsvefurinn www.hornafjordur.is Töluvert hefur verið um glóbrystinga í görðum á Hornafirði í vetur.

Upload: heradsfrettabladid-eystrahorn

Post on 07-Apr-2016

246 views

Category:

Documents


0 download

DESCRIPTION

 

TRANSCRIPT

Page 1: Eystrahorn 6. tbl. 2015

Fimmtudagur 12. febrúar 2015 www.eystrahorn.is

Eystrahorn6. tbl. 33. árgangur www.eystrahorn.is

Fuglaathugunarstöð Suðausturlands var stofnuð 14. mars 2005 og því búin að starfa í 10 ár. Af því tilefni verður gefið út veglegt afmælisrit. Í ritinu verða ýmsar greinar tengdar starfsemi stöðvarinnar og upplýsingar um merkingar og fleira sem starfsmenn hafa komið að á þessum 10 árum. Fuglaathugunarstöðin leitar eftir stuðningi við útgáfuna í formi auglýsinga eða styrkja eins og fram kom í dreifibréfi. Ritinu verður dreift til fugláhugafólks og á ýmsar stofnanir víða um land auk þess að verða aðgengilegt á vefsíðunni www.fuglar.is. Áætlaður útgáfudagur er 14. mars nk. Ritstjóri er Sigurður Örn Hannesson. Ritið verður í stærðinni A4, um 40 blaðsíður og upplagið verður 300 – 400 eintök. Verð á auglýsingum styrkjum: heilsíða kr. 40.000.-, hálfsíða kr. 22.000.-, merki/lógó: kr. 14.000.-, styrktarlína kr. 7.000.-. Velunnarar: sem greiða 1.500.- kr. fá nafnið sitt í blaðið og eitt eintak. Þeir sem áhuga hafa á að auglýsa eða styrkja útgáfuna geta haft samband við Brynjúlf í síma 894 0262 eða á netfangið [email protected], fyrir 15. febrúar nk.

Fuglaathugunarstöð Suðausturlands 10 ára

Þann 19. júní næstkomandi munum við fagna saman þeim merka áfanga að konur fengu kosningarétt á Íslandi. Af því tilefni verða haldnir ýmsir viðburðir, afmælinu og baráttunni um kosningaréttinn til heiðurs. Settir hafa verið á laggirnar hópar um hvern viðburð eða svokallaðir viðburðahópar og óskum við eftir þátttakendum í þessa hópa. Undirbúningurinn verður án efa stórskemmtilegur og vonumst við til þess að konur sem karlar á öllum aldri til sjávar og sveita skrái sig með okkur og taki þátt í þessum merku tímamótum.

Eftirfarandi viðburðahópar hafa verið stofnaðir:

Tónleikar og dansiball Hópstjórar: Íris Jóhanns, Árdís Halldórsdóttir og Kristín Gestsdóttir

Ljóða- og bókaupplestur Hópstjórar: Soffía Auður og Sigríður Þorvarðardóttir

Drusluganga Hópstjórar: Matthildur Ásmundardóttir, Guðrún Ingólfsdóttir og Bryndís Bjarnarson

HannyrðahópurHópstjórar: Guðný Svavarsdóttir, Þórhildur Magnúsdóttir og Kristín Hermannsdóttir

FAS-hópur Hópstjórar: Margrét Gauja og Ingibjörg L. Pálmadóttir

Handverks- og listasýning í Listasafni Svavars í júní tileinkuð hornfirskum listakonumHópstjórar: Vala Garðarsdóttir og Bryndís B. Hólmarsdóttir

Til þess að skrá sig í hóp vinsamlegast hafið samband við Hornafjarðarsöfn í síma 4708052 eða á [email protected] - [email protected] eða bryndí[email protected]. Einnig er hægt að hafa beint samband við hópstjóra eða á facebook undir framkvæmdahópur afmælishátíðar.

Hátíðardagskrá vegna 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna á Íslandi

- Viðburðir og viðburðahópar -

Samfélagsvefurinn www.hornafjordur.is

Töluvert hefur verið um glóbrystinga í görðum á Hornafirði í vetur.

Page 2: Eystrahorn 6. tbl. 2015

www.eystrahorn.is EystrahornFimmtudagur 12. febrúar 2015

EystrahornVesturbraut 25 • Sími: 862-0249

Útgefandi: ........... HornafjarðarMANNI

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: . Albert EymundssonNetfang: ............. [email protected]ófarkalestur .... Guðlaug HestnesLjósmyndir: ........ Maríus SævarssonUmbrot: ............. Heiðar SigurðssonPrentun: ............. Litlaprent

ISSN 1670-4126

Til sölu góður fjölskyldubíllHyundai Trajet. Árgerð 2007. Nýskráður 3/2007. 5 dyra – 7 manna. Ekinn 173 þús. km. Bensín. Sjálfskiptur. Grár. Verð 890 þús. kr.

Upplýsingar Sævar s. 899-0569

Nú líður að föstu. Hún hefst á öskudag 18. febrúar. Í sjö vikur fyrir páska íhuga kristnir menn pínu og dauða Jesú. Fastan hefur ekki lengur þann sess í hugum fólks sem hún hafði áður fyrr, þegar t.d. var ekki borðað kjöt frá öskudegi til páskadags. Fastan er tími íhugunar og iðrunar og hefur þess mátt sjá stað í kristinni kirkju um aldir. Helgihaldið í kirkjunni ber merki þeirra atburða sem urðu í lífi Jesú Krists sem leiddu til dauða hans á krossi. Í Hafnarkirkju verður helgihald á föstu með svipuðu sniði og áður. Auk hefðbundinnar guðsþjónustu annan hvern sunnudag verður kyrrðarstund hvern miðvikudag fram að páskum, fyrst á öskudag 18. febrúar. Stundin hefst kl. 18:15. Þar verður lesið úr píslarsögu Jesú, sungnir sálmar og beðnar bænir. Beðið verður sérstaklega fyrir sjúkum og þeim sem minna mega sín og taka prestarnir á móti sérstökum bænarefnum sem fólk vill að borin verði fram. Kyrrðarstundinni lýkur síðan með altarisgöngu. Við hvetjum ykkur til að koma til kirkju á miðvikudögum fram að páskum og nota föstutímann til íhugunar, uppbyggingar og trúarstyrkingar. Guð láti gott á vita. Verið öll Guði falin í lengd og bráð.

Sr. Sigurður og sr. Gunnar Stígur

Drottinn er minn hirðir og mig mun ekkert bresta. Sálm 23:1

Hvítasunnukirkjan Lifandi Vatn

Vegna framkvæmda í Hvítasunnukirkjunni Lifandi Vatn falla bænastundir á Þmmtudögum og samkomur á sunnudögum niður í febrúar.

Hvítasunnukirkjan Lifandi Vatn

Frá Hafnarkirkju

HafnarkirkjaSunnudaginn 15. febrúar Messa og sunnudagaskóli

kl. 11:00

Prestarnir

Vaktsími presta: 894-8881

bjarnanesprestakall.is

Hollvinasamtök

Framhaldsstofnfundur Hollvinasamtaka heilbrigðisstofnana á Hornafirði verður

föstudaginn 13. febrúar kl. 12:10 í Nýheimum.Markmið samtakanna er að styðja við uppbyggingu og standa vörð um starfsemi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Hornafirði og auka tengsl almennings við hana. Kynning á samtökunum og fyrri stofnfundur var haldinn 18. janúar. Mæting var mjög góð og margir gerðust stofnfélagar þá. Síðan hefur söfnun félagsmanna gengið vel og nú eru yfir 200 einstaklingar og aðilar skráðir stofnfélagar. Áfram er hægt að gerast stofnfélagi með því að mæta á framhaldsfundinn eða skrá sig á skráningarblað sem liggur frammi á biðstofunni á heilsugæslustöðinni.

Fundarboðendur

Félagsstarf Félags eldri Hornfirðinga

Samverustund í Ekrunni föstudaginn 13. febrúar kl. 17:00. Umsjónarmenn eru Hreinn og Kristín. Við hefjum stundina á söng að venju. Öll að mæta.

Sunnudaginn 15. febrúar verður VöffluBALL í Ekrunni frá kl. 16:30 til 18:00. Zophonías leikur fyrir dansi. Allir velkomnir ungir sem aldnir.

Félagsvist í EkruFyrsta spilakvöldið af þremur verður fimmtudagskvöldið 12. febrúar kl. 20:00 í Ekrusalnum. Verðlaun verða veitt fyrir hvert kvöld og síðan heildarverðlaun fyrir öll kvöldin. Aðgangseyrir 1000 kr. fyrir hvert kvöld. Kaffiveitingar innifaldar.Allir velkomnirNefndin.

F.v. Haukur Helgi Þorvaldsson, Ester Þorvaldsdóttir, Elísabet Einarsdóttir, Ari Jónsson, Halldóra B. Jónsdóttir, Albert Eymundsson og Elín Freyja Haukadóttir voru kosin á fyrsta fundi til að vinna að málinu og gefa kost á sér til stjórnarsetu.

Page 3: Eystrahorn 6. tbl. 2015

www.eystrahorn.isEystrahorn Fimmtudagur 12. febrúar 2015

Ágúst Ó. Gústafsson heimilislæknir verður með kynningarfund í fyrirlestrasal Nýheima fimmtudaginn 19. febrúar kl. 20:00 og ætlar að fjalla um nokkuð algengan og lúmskan sjúkdóm, járnofhleðslu. Hann mun einnig fjalla um járnskort og járnbúskap almennt. Ágúst hefur áhuga á því að vekja athygli fólks á sjúkdómi sem er lúmskur og getur haft slæmar afleiðingar. Sjúkdómurinn kallast járnofhleðsla eða hemochromatosis og er arfgengur í flestum tilfellum. Þeir sem hann bera eru með of mikið járn í líkamanum og getur það valdið líffæraskemmdum. Sjúkdómurinn gefur lítil einkenni í fyrstu en þau koma oftast fram hjá sjúklingum um miðjan aldur.

Getur haft mjög skaðleg áhrif“Þessi sjúkdómur getur haft mjög skaðleg áhrif á hin ýmsu líffæri líkamans og því er mikilvægt að finna þá sjúklinga sem fyrst” sagði Ágúst þegar hann var spurður út í sjúkdóminn. “Sjúkdómurinn hefur fengið meiri athygli síðustu árin og fleiri einstaklingar eru að greinast. Oft greinast aðrir fjölskyldumeðlimir í kjölfarið af því að einn einstaklingur greinist.

Karlar í meiri hættuÁgúst segir sjúkdóminn eflaust hafa fylgt mannkyninu, en honum var fyrst lýst árið 1865 og árið 1935 fundu menn út að þetta væri ættgengur efnaskiptasjúkdómur. „Sjúkdómurinn er arfgengur í 90% tilfella og veldur uppsöfnun á járni í líkamanum sem síðar getur valdið líffæraskaða,“ sagði Ágúst og var í framhaldinu spurður hvort sjúkdómurinn kæmi ekki fram í blóðprufu. „Í fyrstu skimun er járn í blóði mælt og ef það reynist óeðlilegt er farið út í frekari rannsóknir. Markmið mitt er að vekja fólk til umhugsunar, sérstaklega karlmenn á fertugsaldri, þar sem sjúkdómurinn er algengari og oftast skæðari hjá körlum. Hluti af þeirri skýringu er að helsta leið líkamans til að losa sig við járn er með blæðingum og þar hafa konur klárlega vinninginn. Í fyrstu eru einkennin almenn eins og þreyta og slappleiki. Önnur einkenni geta verið stoðkerfisverkir, liðabólgur, hjartsláttartruflanir, sykursýki, bronslituð húð og hártap svo eitthvað sé nefnt. Járn er mikilvægt við myndun blóð- og vöðvarauða sem er hvortveggja mikilvægt fyrir súrefnisflutning í líkamanum og einnig er járn mikilvægt fyrir ýmis efnahvörf í líkamanum. Í miklum mæli er járn skaðlegt líkamanum og stjórnar hann því nákvæmlega frásogi og nýtingu. Hjá sjúklingum með járnofhleðslu raskast þessi stjórnun. Fyrir utan það magn sem líkaminn notar, tapast lítið magn um meltingar- og þvagveg, en helsta leið líkamans til að losa sig við járn er með blæðingu. Þess vegna fá konur oftast einkenni eftir tíðahvörf og karlar eru í meiri hættu á að fá sjúkdóminn. Yfirleitt er þessi sjúkdómur að greinast hjá körlum um fimmtugt og hjá konum eftir tíðarhvörf. “ Auk þess að fjalla um járnofhleðslu verður einnig fræðsla um járnbúskap og járnskort.

ATVINNASambýlið Hólabrekka óskar eftir starfsmanni til að sinna eldamennsku og öðrum störfum sem

tengist eldhúsi og matargerð. Einnig vantar fólk til afleysinga á vaktir frá og með 1.apríl nk.

Nánari upplýsingar um vinnutilhögun, vinnutíma og laun veitir Anna Egilsdóttir í síma 860-3972

og [email protected]

Þrektímar á vegum SindraÞrektímar eru á miðvikudögum kl. 19:30 og laugardögum kl. 13:40 út febrúar til að byrja með.

Miðað er við 12 ára og eldri og eru allir iðkendur Sindra hvattir til að mæta og hressa upp á úthaldið.

Þjálfari er Goran Basrak

Knattspyrnuskóli Sindra

Knattspyrnuskólinn verður haldinn dagana 27. febrúar – 1. mars og er fyrir krakka í 5., 4. og 3. flokk.

Meðal þjálfara verða Auðun Helgason, Heimir Hallgrímsson, Edda Garðarsdóttir, Óli Stefán Flóventsson og þjálfarar Sindra.

Þátttökugjald er 6.000 krónur

Nánari dagskrá auglýst síðar. Gisting og fæði innifalið

Knattspyrnudeild Sindra

Of mikið járn?12 spora starfFyrirhugað er að fara af stað með 12 spora starf, vinir í bata andlegt ferðalag, í Hafnarkirkju. Fyrsti kynningarfundur er föstudaginn 20 febrúar kl 17:00. Þeir sem vilja kynna sér nánar um hvað er verið að tala geta farið inn á www.viniribata.isLeiðbeinendur verða Gunnar Stígur Reynisson prestur og Sveinbjörg Jónsdóttir djáknakandídat

Page 4: Eystrahorn 6. tbl. 2015

Leikfélag Hornafjarðar og Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu

sýna söngleikinn

Love me do í Mánagarði

Höfundur og leikstjóri: Stefán Sturla Sigurjónsson.

Frumsýning ........19. febrúar kl. 19:00 UPPSELTÖnnur sýning .....21. febrúar kl. 19:00Þriðja sýning ......22. febrúar kl. 19:00

Takmarkaður sýningarfjöldi.

Miðaverð 2.500 kr. (tökum ekki kort).Miðapantanir hjá Ingólfi í síma 892-9354,

eða [email protected] verða miðapantanir í síma 478-1462

klukkutíma fyrir sýningu sýningardaga.

Bifreiðaskoðun á Höfn 16., 17. og 18. febrúar.

Tímapantanir í síma 570 9090 fyrir kl. 16:00 föstudaginn 13. febrúar.

EKKI SKOÐAÐ Í MARS

Næsta skoðun er 13., 14. og 15. apríl.

Þegar vel er skoðað

Af hverju náttúrupassi?

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, boðar til opins fundar um frumvarp til laga um náttúrupassa, miðvikudaginn 18. febrúar kl. 20:00 í Nýheimum á Höfn.

Fundurinn er haldinn undir yfirskriftinni Af hverju náttúrupassi? og á honum mun ráðherra kynna frumvarpið og svara fyrirspurnum.

Fundarstjóri verður Ásmundur Friðriksson, alþingismaður.

Allir áhugasamirhvattir til að mæta.

Fimmtudaginn 12. Febrúar kl 20:00 í Pakkhúskjallaranum 1.000 kr “rebuy” Hægt að kaupa sig endalaust inn til kl 21:00. Frítt kaffi, allir velkomnir, kennsla og upprifjun í boði frá kl 19:00. S. 647-4474.facebook.com/pkhofn

föstudag, laugardag og sunnudag frá kl. 18:00

SANTA FE SPRING ROLLS, kjúklinga vorrúllur á salatbeði og ranch dressingu.

SVEPPAHATTAR fylltir með gráðosti og hvítlaukssmjöri á salatbeði.

SURF & TURF, glóðasteikt nautalund og hvítlauksristaðir humarhalar, borið fram

með bernaise sósu, ristuðu grænmeti og foundant kartöflum.

FRÖNSK SÚKKULAÐIMÚS með jarðarberjahlaupi, rjóma og berjum.

Borðapantanir í síma 478-1240

Elskendatilboð á Hótel Höfn

Verð kr. 5.900,- pr. mann