brownies með karamellukeim

4
Brownies með karamellukeim Hnausþykkar og þéttar í sér með afgerandi dökku súkkulaðibragði og ljúfum karamellukeim.

Upload: noi-sirius

Post on 08-Aug-2015

2.803 views

Category:

Business


4 download

TRANSCRIPT

Page 1: Brownies með karamellukeim

Brownies með karamellukeim

Hnausþykkar og þéttar í sér með afgerandi dökku súkkulaðibragði og ljúfum karamellukeim.

Page 2: Brownies með karamellukeim

Innihald• Uppskriftin gefur 20 stk.

• 280 g Síríus Konsum 70% súkkulaði• 3 egg• 2 tsk. vanilludropar• 280 g púðursykur• 80 g hveiti• 1½ tsk. lyftiduft• ¼ tsk. salt• 200 g smjör, bráðið• 200 g pekanhnetur

Page 3: Brownies með karamellukeim

Aðferð

• Hitið ofninn í 170°C. • Saxið allt súkkulaðið og bræðið helminginn af því yfir

vatnsbaði. • Þeytið egg, vanilludropa og púðursykur saman þar til blandan

verður létt og ljós.• Sigtið hveiti, lyftiduft og salt og blandið varlega saman við. • Blandið bræddu súkkulaði og smjöri saman við deigið og

hrærið varlega saman þar til það er slétt og samfellt. • Blandið að lokum söxuðusúkkulaðinu ásamt hnetunum

varlega saman við.

Page 4: Brownies með karamellukeim

Aðferð

• Smyrjið 20 cm x 30 cm ferkantað kökuform vel og klæðið það að innan með bökunarpappír.

• Hellið deiginu í formið og bakið í 20-22 mínútur. Leyfið kökunni að kólna dálítið í forminu áður en hún er skorin í bita.

• Berið bitana fram volga með vanilluís eða þeyttum rjóma og berjum.

Verði ykkur að góðu!