leikur að lifa 1 tjáning, framkoma og aðstæður við tölum ekki alltaf eins!
Post on 19-Dec-2015
226 views
TRANSCRIPT
Leikur að lifa 1
Tjáning, framkoma og aðstæður
Við tölum ekki alltaf eins!
Leikur að lifa 2
11. Tjáning, framkoma og aðstæður
Lykilspurningar: – Hvað felst í því að tala skýrt og
skipulega?– Hvaða máli skiptir að tala skýrt og
skipulega?– Hvernig hafa aðstæður áhrif á málfar?– Hvernig er best að undirbúa sig fyrir
stutta framsögu eða formlega ræðu?– Hvernig flytur maður góða framsögu eða
ræðu?
Leikur að lifa 3
Tjáning
Við tjáum okkur:– skriflega– munnlega– með líkamanum
Tjáningin er mismunandi– eftir aðstæðum– eftir markmiði
Leikur að lifa 4
Mismunandi aðstæður
Gróf flokkun:– Óformlegar aðstæður
• samtal við félaga og fjölskyldu, frásögn í góðra vina hópi
– Miðlungsformlegar aðstæður
• stuttur fyrirlestur í skólanum, samtal hjá lækni, á teppinu hjá skólameistara
– Formlegar aðstæður
• fyrirlestur á stórum fundi, ráðstefnu, formlegt starfsviðtal
Leikur að lifa 5
Þurfum alltaf
Að tala nógu skýrt
Að tala nógu skipulega
Að velja orðin ... Þannig að viðmælandinn meðtaki boðin
örugglega á réttan hátt.
Leikur að lifa 6
Alltaf gildir
Hafa góða framsögn– Skýrmæli, raddbeiting, tónfall, tónhæð,
rétt öndun, að stoppa á réttum stöðum o.fl.
Nota hæfilega hátíðlegt mál– Við óformlegar aðstæður gerist þetta
oftast sjálfkrafa.– Við formlegar aðstæður þarf að vanda
sig og velja „sparileg“ orð.
Leikur að lifa 7
Alltaf gildir
Nota málfar sem viðmælandinn skilur.– T.d. taka taka tillit til aldurs viðmælandans.
Beita líkamanum rétt. – Líkamstjáning leggur áherslu á orðin.– Líkamstjáning þarf að passa.
• Ekki ofleika!
– Líkamsstaðan skiptir máli.• sitja/standa beinn, horfa á viðmælanda, sleppa
tilviljanakenndu handapati o.s.frv.
Leikur að lifa 8
Alltaf gildir
Vita hvað maður ætlar að segja og ljúka við setningar. – Mikilvægara við formlegar aðstæður eða þegar
brýnt er að viðmælandi sannfærist og trúi manni.
Spara hikorðin. – Of mikið af orðum eins og sko, sem sagt o.fl.
trufla hlustandann. – Í formlegu máli er betra að þegja í þrjár
sekúndur en segja eee, enginn af áheyrendunum tekur eftir því.
Leikur að lifa 9
Viðtal – stutt framsaga
Mikilvægt er að:– Undirbúa mál sitt og æfa sig.
• Ákveða í hvaða röð maður ætlar að taka atriðin fyrir.
• Undirbúa endinn.
– Tala í röklegu samhengi. • Byrja á byrjun og flétta svo frásögn/lýsingu
áfram.
Leikur að lifa 10
Lengri ræður
Hafa efnistök á hreinu.– Kunna skil á efninu. – Ræðan þarf að hafa:
• inngang sem fjallar stuttlega um efni ræðunnar og vekur þannig athygli, áhuga og traust áheyrenda.
• meginmál sem er umfjöllun um efnisatriði ræðunnar.• niðurlag sem er samantekt mikilvægustu punkta
ræðunnar og/eða niðurstaða, þar er gott að vísa til upphafsorða.
Leikur að lifa 11
Lengri ræður
Málfar – Talmál og ritmál er ekki það sama.
• Æfðu þig því upphátt til að finna hvort setningar hljóma eðlilega, hvort réttu orðin hafa verið valin, hvort maður nær að segja orð og setningar með þeirri áherslu sem maður vill ná o.s.frv.
Leikur að lifa 12
Lengri ræður
Undirbúningur skiptir miklu máli. – Velja þarf snyrtilegan og þægilegan klæðnað og
koma vel fyrir.– Streita og kvíði:
• Undirbúa sig með öndunar- og slökunaræfingum og með því að kynna sér aðstæður þar sem flytja á erindið.
– Hita upp líkama og rödd: • Losnar um spennu, vöðvar og raddbönd mýkjast. • Teygja á líkamanum, æfa augnhreyfingar, anda djúpt
og hita upp röddina og talfærin með tali og teygjum.
Leikur að lifa 13
Lengri ræður
Þegar komið er í púltið.– Koma sér vel fyrir í ræðupúltinu og anda
nokkrum sinnum áður en maður byrjar.
– Gott er að finna sér punkt rétt fyrir ofan hlustendur til að horfa á.
• Ekki byrja áður en þetta „samband“ hefur myndast.
Leikur að lifa 14
Lengri ræður
Ræðan flutt. – Ávarpa fundarmenn í upphafi. – Gæta að réttri líkamsstöðu
• Standa vel í báða fætur og hafa axlir slakar. – Öndun þarf að vera djúp.
• Annars finna áheyrendur fyrir streitu ræðumanns. – Forðast afsakanir.– Vera afslappaður og hreyfa sig hæfilega. – Rétt raddbeiting, raddhæð, blær og tónfall, skýr
framburður og hæfilegur talhraði auka skilning, athygli og áhuga hlustenda.
– Þagnir eru mikilvægar – stoppa aðeins við punkta.
Leikur að lifa 15
Lengri ræður
Varast þarf– Fum og fát veikir trú áheyrenda á ræðumanni. – Allir kækir og fikt trufla, svo sem fikt í
skartgripum, hári, að sjúga upp í nefið, fara upp á tærnar, smella með kúlupenna eða aðrar síendurteknar hreyfingar.
Gott er:– að fá áhorfanda þegar maður æfir sig, eða nota
myndbandstökuvél.
Leikur að lifa 16
Streita og kvíði
Einkenni sviðsskrekks. – Þurrar kverkar, hraður hjartsláttur, grunnur og
hraður andardráttur, svimi, gleymska og sviti í lófum.
Að vinna á kvíðanum. – Anda djúpt, slaka á, beita sig aga og æfa sig
vel. – Kynna sér aðstæður áður en áheyrendur mæta
á staðinn. – Gera slökunaræfingar rétt áður en framsaga
hefst.
Leikur að lifa 17
Upphitun – allir í hring
Teygjur og sveigjur, losa hendur og háls, mjaðmir, hristum okkur með hljóði.Teygja upp og falla með hljóði – rétta svo upp lið fyrir lið.Öndum inn og náum augnsambandi við alla í hringnum, fram og til baka.Geispum – ýkt.Nuddum allt andlitið.Puðra með vörum – Gamla Nóa.Kyssa – brosa nokkrum sinnum – segja ú-í, ú-í……..
Leikur að lifa 18
Upphitun – allir í hring
Blásum út í kinnar og sogum kinnar saman.Setjum stút á munninn og hreyfum hann í hring.Tungan: rekin út eins langt og kemst – Gerum „rennu“ með tungunni.Dö – rö – kö – göEndurtökum svolítið p-t-k, p-t-k ...Nuddum hvert annað í um 1 mín.Klapp – biss – kossTökum höndum saman – öndum og stækkum hringinn meira og meira.
Leikur að lifa 19
Upphitun - tungubrjótar
Rómverskur riddari réðst inn í Rómarborg.
Rændi og ruplaði rabarbara og rófum.
Leggjum áherslu á r-in.
Leikur að lifa 20
Tungubrjótar
Grillið glamraði.
10 sinnum í röð – hratt.
Allir geta flutt góða ræðu –
ef þeir undirbúa sig!