aðgát skal höfð – val á bókfræðifærslu vegna tenginga

21
Aðgát skal höfð – val á bókfræðifærslu vegna tenginga Janúar 2006 Ragna Steinarsdóttir Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni Harpa Rós Jónsdóttir, Upplýsinga- og kerfisfræðingur

Upload: lucius-farmer

Post on 02-Jan-2016

53 views

Category:

Documents


10 download

DESCRIPTION

Aðgát skal höfð – val á bókfræðifærslu vegna tenginga. Janúar 2006 Ragna Steinarsdóttir Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni Harpa Rós Jónsdóttir, Upplýsinga- og kerfisfræðingur. Vandamál. - PowerPoint PPT Presentation

TRANSCRIPT

Page 1: Aðgát skal höfð – val á bókfræðifærslu vegna tenginga

Aðgát skal höfð –val á bókfræðifærslu vegna tenginga

Janúar 2006

Ragna SteinarsdóttirLandsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni

Harpa Rós Jónsdóttir,Upplýsinga- og kerfisfræðingur

Page 2: Aðgát skal höfð – val á bókfræðifærslu vegna tenginga

Vandamál

• Ólíkar skráningarhefðir tíðkuðust í gamla Gegni og Feng sem gerðu það að verkum að færslur sameinuðust ekki sem skyldi

• Hluti gagnagrunnsins var undanskilinn sameiningu (t.d. efni Námsgagnastofnunar) þar sem færslurnar þóttu of ólíkar

• Erfiðleikar við sameiningu bókfræðifærslna gera það að verkum að talsvert er um tví- eða margskráð efni í kerfinu

Page 3: Aðgát skal höfð – val á bókfræðifærslu vegna tenginga

Ástæður tvískráningar

• Mismunandi skráningarhefðir - upplýsingar voru ekki eins fram settar í færslum. Ástæðan er ekki sú að “illa” hafi verið skráð í annað hvort gagnasafnið

• Of litlar samanburðahæfar upplýsingar í færslum, t.d. titilskráð rit og engin höfundaraðild, ekkert ISBN

• Lítilfjörleg frávik í texta eða talnastreng hindruðu árangur við vélrænan samanburð

• Færslur fyrir greiniskráð safngögn sameinuðust ekki – þ.m.t. mörg íslensk tímarit og hljóðrit

Page 4: Aðgát skal höfð – val á bókfræðifærslu vegna tenginga

Vandamál- Dæmi um tvöfalda færslu

Hvora færsluna á að velja til að tengja við eintak?

?

Page 5: Aðgát skal höfð – val á bókfræðifærslu vegna tenginga

Uppruni færslu

Þegar velja á rétta færslu til að tengja við er nauðsynlegt að þekkja uppruna hennar. Hann sést í sviði 040 í marksniðinu.

Greina þarf á milli eftirfarandi tegunda:

• Gamli Gegnir

• Fengur

• Nýskráð færsla

• Færsla sameinuð vélrænt

• Handsameinuð færsla

Page 6: Aðgát skal höfð – val á bókfræðifærslu vegna tenginga

Að þekkja uppruna færslu ...

• Færsla úr gamla Gegni – kóðarnir Lbs / Hbs / khí / sí / al... koma fram í sviði 040 $a

• Fengsfærsla – Fengur kemur fram í 040 $a

040 |a Lbs24510 |a Híbýli vindanna ; |b Lífsins tré / |c Böðvar Guðmundsson

040 |a Fengur

24510 |a London / |c Steve Fallon

Page 7: Aðgát skal höfð – val á bókfræðifærslu vegna tenginga

Að þekkja uppruna færslu

• Nýskráð færsla – fimm stafa kóði þess safns sem skráði bókfræðifærsluna kemur fram í 040 |a

• Færsla sameinuð vélrænt – þriggja stafa kóði í $a táknar uppruna úr gamla Gegni. Fengur í $d sýnir samrunna

040 |a GARAA

24510 |a Píanóleikarinn : |b endurminningar frá Varsjá 1939-1945 / |c Wladyslaw Szpilman

040 |a Lbs |d Fengur

24510 |a Grafarþögn / |c Arnaldur Indriðason.

Page 8: Aðgát skal höfð – val á bókfræðifærslu vegna tenginga

Að þekkja uppruna færslu

• Handsameinuð færsla – LBTHL-s kemur fram í 040 |aÓhætt er að tengja við þannig færslur

040 |a Fengur |d LBTHL-s

24500 |a Hundrað og ein ný vestfirsk þjóðsaga / |c Gísli Hjartarson tók saman

Hér hefur Fengsfærsla verið lögð til grundvallar og upplýsingar færðar úr Gegnisfærslu inn í hana

Page 9: Aðgát skal höfð – val á bókfræðifærslu vegna tenginga

Tvískráð efni – einstakar færslur (ekki fjölbindaverk)Hvort á að velja Gegnisfærslu eða Fengsfærslu?

• Ef safn á ekki eintak fyrir skal velja gömlu Gegnisfærsluna – 040$aLbs (eða annar þriggja stafa kóði) þar sem þær eru gjarnan ítarlegri

• Ef safn á eintak fyrir skal tengja við sömu bókfræðifærslu til að dreifa ekki eintökum eins safns af sama verki á margar færslur

• Tímarit á að tengja við Gegnisfærslu

• Hljóðrit á að tengja við Gegnisfærslu

Page 10: Aðgát skal höfð – val á bókfræðifærslu vegna tenginga

Fjölbindaverk

• Hafin er vinna við sameiningu fjölbindaverka. Meirihlutinn er þó ósameinaður

• Fjölbindaverk – stök bindi sem eru hluti af stærri heild

• Ekki alltaf númeruð

• Oft erfitt að þekkja frá öðrum verkum, best að vera með bindin í höndunum

•Margir samhljóða titlar finnast í leit

• Dæmi um mismunandi skráningu fjölbindaverks

Úr gamla Gegni

Úr Feng

Page 11: Aðgát skal höfð – val á bókfræðifærslu vegna tenginga

Fjölbindaverk

Oft margir titlar og erfitt að finna rétta færslu – mörg álitamál

•Meginregla

•Ef bindin eru fleiri en þrjú skal tengja við einstök bindi – oftast Gegnisfærsla (svið 040 |a Lbs)

•Ef bindin eru þrjú eða færri og öll eftir sama höfund skal tengja við Fengsfærslu (svið 040 |a Fengur)

Page 12: Aðgát skal höfð – val á bókfræðifærslu vegna tenginga

Fjölbindaverk...

•ALLTAF skal merkja bindistölu í lýsingu eintaks

•Þetta gildir um öll fjölbindaverk og öll verk sem hafa númer. Það sem greinir þau að skal fært í lýsingu eintaks hvort sem tengt er við færslu ættaða úr Gegni eða Feng

•Leita má til Rögnu Steinarsdóttur [email protected] sími 525-5667 í vafatilfellum

Page 13: Aðgát skal höfð – val á bókfræðifærslu vegna tenginga

Greinifærslur – Tengingarbann!

• Aldrei skal tengja eintök við greinifærslu, heldur kemur það fram í móðurfærslunni hvaða söfn eiga eintök af tilteknu verki

• Stundum geta verk og greinar haft sama titil og því þarf að gæta þess að tengja ekki við greinifærsluna – ritdómar – ævisögur

Dæmi: Z : ástarsaga

Nú er [ritdómur] sett í sviga aftan við titil:

Þú ert mín Selma Rún og læknarnir ætla að bjarga þér [ritdómur]

Page 14: Aðgát skal höfð – val á bókfræðifærslu vegna tenginga

Greinifærslur – tengingarbann!

• Hægt að þekkja greinifærslur fyrir tímaritsgreinar á því að þær hafa GR sem format og LKR svið

FMT GR24510 |a Hnípin kona í vanda : |b hugleiðingar um mæður átjándu aldar.

LKR |a ANA |b 000452260 |l ICE01 |r 773 |m Hnípin kona í vanda : |n Sagnir

Page 15: Aðgát skal höfð – val á bókfræðifærslu vegna tenginga

Fjölbindaverk sem greinifærslur - Varúð!

• Í Feng voru stór fjölbindaverk oft skráð sem ein heild, en gerð greinifærsla fyrir hvert bindi. Eintök má alls ekki tengja við bindin!

Dæmi: Saga mannkyns : ritröð AB

Page 17: Aðgát skal höfð – val á bókfræðifærslu vegna tenginga

Prentanir – Varúð!

• Í gamla Gegni var hefð fyrir því að skrá sér bókfræðifærslu fyrir hverja prentun vegna útgáfu Íslenskrar bókaskrár

• Ekki eru lengur gerðar nýjar færslur fyrir prentanir nema breytingar hafi orðið á verkinu. Hins vegar er sett inn athugasemd um prentun

Page 18: Aðgát skal höfð – val á bókfræðifærslu vegna tenginga

Prentanir – Varúð!

Tengja má við færslu – engar upplýsingar um útgáfu

Ekki tengja við færslu – þar sem um 2. prentun er að ræða

• Séu í Gegni færslur fyrir fleiri en eina prentun rits skal tengja eintök við færslu 1. prentunar

Page 19: Aðgát skal höfð – val á bókfræðifærslu vegna tenginga

Námsgagnastofnun – Varúð!

• Unnið er að sameiningu námsefnis grunnskóla. Búið er að sameina megnið af því efni sem er í notkun í dag, eldra efni er skemmra á veg komið

• Tilbúnar færslur eru merktar í svið 040$dLBTHL-s

• Hvernig þekkja má efni Námsgagnastofnunnar: Útgefandi = Námsgagnastofnun eða Ríkisútgáfa námsbóka (svið 260$bNámsgagnastofnun)

Page 20: Aðgát skal höfð – val á bókfræðifærslu vegna tenginga

Eintakstenging tímarita

Best er að fara í ítarleit á gegnir.is, leita að titli og afmarka við form færslu: “tímarit – titlar”

Dæmi: Vera

Page 21: Aðgát skal höfð – val á bókfræðifærslu vegna tenginga

Hvenær kemst gagnagrunnurinn í lag?

• Frumsameining 30.000

• Sameining október 2004 13.000

• Handsameinaðar u.þ.b. 3.500

• Íslensk bókaskrá var u.þ.b. 60.000

• Mikil vinna eftir í handvirkri sameiningu