haraldur sigurðsson

8
Haraldur Sigurðsson

Upload: arion-banki

Post on 19-Feb-2016

244 views

Category:

Documents


0 download

DESCRIPTION

 

TRANSCRIPT

Page 1: Haraldur Sigurðsson

Haraldur Sigurðsson

Page 2: Haraldur Sigurðsson

Volcan Parícutin David Alfaro Siqueiros (1896-1974)31 x 31 cm.Piroxilina á tréplötu, 1962

Eldgosið í Tambora 1815Gede Susana99 x 69 cm.Olía á striga, 2004

MerapiSoedjono Abdullah (1911-1993)180 x 100 cm. Olía á striga, 1964

Siqueiros var einn af fremstu málurum Mexíkó á byltingarárunum. Þegar nýtt eld-fjall tók að gjósa upp úr miðjum kornakri árið 1943 þá heillaðist hann af stórbrotinni fegurð eldgosa. Gosinu lauk árið 1952 en þá var nýja eldfjallið Parícutin orðið yfir 400 metrar á hæð.

Stærsta eldgos sögunnar varð árið 1815. Þá gaus Tambora eldfjall í Indónesíu komu yfir 100 rúmkílómetrar af ösku. Yfir 117 þúsund manns fórust í heitum gjósku-flóðum umhverfis eldfjallið. Sprengigosið þeytti efnum upp í allt að 42 km. hæð og gosefnin endurköstuðu sólarljósi frá jörðu. Kólnun loftslags af völdum gossins varði í þrjú ár og orsakaði eitt mesta efnahags-tjón sögunnar sem orðið hefur af völdum náttúruhamfara.

Eldfjallið Merapi á eynni Jövu í Indónesíu er eitt af virkustu og hættulegustu eldfjöllum landsins. Við rætur þess er borgin Jogya-karta, en þar bjó listamaðurinn Soedjono bjó. Hann málaði þetta stóra verk árið 1964, þegar glóandi heit gjóskuflóð streymdu niður hlíðar eldfjallsins, eyddu skóglendi og brenndu öll þorp og íbúar þeirra létust.

VesuviusAndy Warhol (1928-1987)99 x 81 cm.Silkiþrykk, 1985

Árið 1985 tók Andy Warhol þátt í sýning-unni „Sterminator Vesevo” eða Ógnvald-urinn Vesúvíus í Napólíborg á Ítalíu. Hann hafði hrifist af eldgosinu í Saint Helens í Bandaríkjunum fimm árum áður og blandar hér saman áhrifum frá báðum þessum miklu eldfjöllum.

EldfjallasafnStykkishólmi

Page 3: Haraldur Sigurðsson

Sýning á 20 verkum úr safni Haraldar Sigurðssonar í höfuðstöðvum Arion banka5. - 31. maí 2011.

TeideRita Rogers89 x 71 cm.Encaustic vax og litur á striga, 2005

EtnaAthanasius Kircher41 x 37 cm Eirstunga, 1664

FujiKamae Kanamura27 x 20 cm. Þrykk á pappír

AsamaListamaður óþekktur25 x 28 cm. Blek á pappír

Ameríska listakonan Rita Rogers kom til Kanaríeyja árið 2005 og hreifst af yfirgnæfandi magni eldfjallsins Teide, sem er hæsta fjall í Atlantshafi, 3715 metrar á hæð. Síðasta stórgos fjallsins var árið 1909.

Árið 1664 setti Kircher fram þá kenningu að eldur brenni undir eldfjöllum. Í stíl við þá röngu skoðun sýnir hann þverskurð af eldfjallinu Etnu eins og arinn þar sem eldur brennur. Myndin er merk ekki síst vegna þess að hún er ein allra fyrsta tilraunin til að sýna þverskurð af jörðinni.

Eldfjallið Fuji í Japan er stærsta og jafn-framt helgasta fjall Japana og hafa flestir listamenn landsins spreytt sig á að túlka það. Þótt fjallið hafi ekki gosið síðan árið 1707, verður það að teljast eitt hættuleg-asta fjall landsins, þar sem mikil byggð er í hættu frá gosum þess.

Asama eldfjallið á Japan gaus árið 1783, á sama tíma og Skaftáreldar geisuðu á Íslandi. Þessi mynd er óvenjuleg undan-tekning í Japan vegna þess að hún sýnir eldgos. Yfirleitt eru túlkanir japanskra lista-manna á eldfjöllum sínum fyrst og fremst tengdar hinni fögru boglínu fjallsins, en ekki gosum.

Page 4: Haraldur Sigurðsson

Graham IslandAckerman23 x 28 cm. Handlituð koparstunga

Isla VolcanicaListamaður óþekktur30.5 x 25 cm. Aquatint og eirstunga

SurtseyE. Jensen 196342 x 33 cm. Litir á pappír

Titill óþekkturEthers 1985 Þrykk 51 x 43 cm.

Árið 1831 hófst eldgos í hafinu fyrir sunn-an Sikiley í Miðjarðarhafi. Fyrst á staðinn var breskt herskip og skírðu Bretar nýju eyjuna Graham Island. Þeir settu flagg sitt á eyjuna og eignuðu hana heimalandi sínu. Gosið var af sömu gerð og Surtseyjargos-ið sem hófst árið 1963. Það er fróðlegt að bera þessa mynd saman við mynd Ítala af sama gosi og myndina af Surtseyjargosinu til hliðar.

Ítalir komu að nýju eldeyjunni fyrir sunnan Sikiley skömmu eftir að Bretar skírðu hana Graham Island árið 1831. Þeir voru útsend-arar Ferdinands konugs í Napólí á Ítalíu og gáfu eyjunni nafnið Ferdinandea. Frakkar komu skömmu síðar og gáfu henni nafnið Julia. Það lá við að til átaka kæmi varðandi eign á nýju eyjunni. En málið leystist þegar brimið braut niður lausar vikur og ösku-myndanir eyjunnar og hún hvarf í hafið.

Í nóvember árið 1963 hófst eldgos í hafinu sunnan Vestmannaeyja, þar sem hafdýpi var 128 metrar. Næsta dag hafði Surtsey skotið upp kollinum. Gosið einkenndist af nær stöðugum sprengingum, þegar glóandi heit hraunkvika blandaðist sjónum og hvítir mekkir af gufu og svartir eða dökkbrúnir mekkir af vikri og ösku risu upp af eyjunni. Gosið var á allan hátt sams-konar og gosið í Miðjarðarhafi árið 1831, þegar Ferdinandea eða Graham Island myndaðist.

Glóandi hraunstraumur í Mexíkó og eldgos í baksýn.

Page 5: Haraldur Sigurðsson

Vue du Vesuve 28 x 20 cm. Eirstunga

Enkeladus grafinn undir Etnu eldfjalli 1738 27 x 38 cm.

Eldfjallið Fuji á Japanskri rúllu 58 x 188 cm.Átjánda öld

Eldgos í Vesúvíusi á Ítalíu, séð í rómantískri stemningu frá Napólí á nítjándu öld.

Í Grísku goðafræðinni var Enkelados einn af risunum, sem börðust við guðina á Olympus fjalli. Í orrustunni tapaði Enkelados og guðirnir grófu hann á Sikiley undir Etnu eldfjalli. Eldgos Etnu voru talin anda dráttur Enkeladosar, og jarðskjálftar einnig. Þannig mynduðu Forn-Grikkir þjóðsagnir sem skýrðu yfirnáttúrulega atburði, eins og eldgos og jarðskjálfta, sem afleiðingar af starfsemi risa og guða.

Málað með bleki á pappír, með silki-umgjörð og fílabeinsstöng. Dýrkun Japana á eldfjallinu Fuji náði til skreytinga á húsa-kynnum, eins og þessi rúlla sýnir.

Arenal Costa RicaEmilia Cersosimo (1944)130 x 80 cm.Olía á tréplötu, 1997

Emilia Cersosimo er einn þekktasti list-málari Costa Rica í Mið-Ameríku. Hún býr við rætur eldfjallsins Arenal, en það hefur gosið nær stöðugt síðan 1968.

Page 6: Haraldur Sigurðsson

Japönsk rúlla með Fuji58 x 188 cm.Nítjánda öld

Eldgos á Ternate 32 x 43 cm.Eirstunga, um 1700

Etna gýs árið 166936 x 41 cm. Eirstunga

Pico de Orizaba í Mexíkó 20 x 25 cm. Koparstunga eftir Arnold,úr verki Alexander von Humboldts 1812

Málað með bleki á pappír, með silkiskreytingum.

Eldfjallseyjan Ternate er í Maluku eyjaklas-anum, austast í Indónesíu. Þar var lengi ein mesta ræktun á ýmsum verðmætum og sjaldgæfum kryddjurtum eins og pipar og negul sem voru mjög eftirsótt vara í Evrópu. Gígurinn Gamalama gýs oft en gosin eru flest fremur lítil sprengigos.

Stærsta eldgos Etnu á Sikiley var árið 1669, en þá streymdi hraun yfir borgina Catania.

Þjóðverjinn og landkönnuðurinn Humboldt ferðaðist um Mexíkó árin 1803 og 1804 og varð hugfanginn af eldfjöllum landsins. Hann taldi Orizaba fegursta fjall landsins, og það hæsta, enda er Orizaba 5640 metrar á hæð.

Page 7: Haraldur Sigurðsson

Haraldur Sigurðsson er forstöðumaður Eldfjallasafnsins

í Stykkishólmi. Hann hefur starfað lengi sem prófessor í

Bandaríkjunum og gert rannsóknir á eldvirkni og jarðfræði um

heim allan, bæði á hafsbotni og á eldfjöllum á landi. Rann-

sóknarsvið hans eru fyrst og fremst stór sprengigos og áhrif

eldgosa á umhverfið og veðurfar. Meðal þekktustu verkefna

hans eru rannsóknir á gosinu árið 79 e.Kr. í Vesúvíusi á Ítalíu,

sem gróf borgirnar Pompei og Herkulaneum. Einnig hefur

hann starfað um árabil við rannsóknir á gosum í Indónesíu,

einkum Krakatau árið 1883 og Tambora árið 1815. Uppgötv-

un hans á 65 milljón ára gömlum glerperlum í Haíti í Karíba-

hafi varpaði nýju ljósi á orsök útdauða risaeðlanna og annars

lífríkis vegna mikils loftsteinsáreksturs á jörðu. Hann hefur

safnað listaverkum og öðru efni sem snertir eldgos í fjölda

ára um allan heim. Árið 2009 opnaði Haraldur Eldfjallasafn

í samráði við Stykkishólmsbæ. Í safninu er einstök nálgun

á túlkun listamanna um eldgos og mikill fróðleikur um allar

hliðar eldvirkni á jörðu.

Eldur niðri lýsir ferli eins þekktasta vísindamanns Íslands,

eld�allafræðingsins Haraldar Sigurðssonar. Bókin er einstök heimild

um uppeldi, sköpun og þróun jarðvísindamanns, sem hefur unnið

brautryðjendastörf á rannsóknum á eld�öllum víðs vegar um heiminn.

Hér �allar Haraldur á hispurslausan hátt um spennandi og oft

lífshættuleg rannsóknaverkefni, um ástir, sigra, áföll og margt annað

sem hefur gerst á nær fimmtíu ára ferli. Í frásögn sinni kemur

Haraldur til dyra eins og hann er klæddur, þegar hann greinir frá

leiðöngrum sínum í Indónesíu, Ítalíu, Haítí, Vestur Indíum, Grikklandi,

Afríku og víðar. Brenndandi áhugi hans á leyndardómum jarðar

kviknar á æskustöðvunum á Snæfellsnesi og leiðir af sér ævilangt

ferðalag um flest stórvirkustu eld�öll heims, þar til hann lokar

hringnum með stofnun Eld�allasafns í Stykkishólmi. Eftir

atburðaríkan feril við eld�allarannsóknir um heim allan hefur

Haraldur Sigurðsson frá mörgu að segja.

ELDFJALLASAFN STYKKISHÓLMIVulkan ehf. | [email protected]

Haraldur Sigurðsson

Haraldur Sigurðsson eld�allafræðingurlýsir ævintýralegu lífshlaupi

urðaríkan feril við eld�allarannsókni

Haraldur Sigurðsson frá mörg

Page 8: Haraldur Sigurðsson

ELDFJALLASAFN

eld�allasafn.is

Alþjóðasafn af listaverkum, fornum og nýjum, sem sýna eldgos, og einnig munir, forngripir, minjar og steintegundir úr einstöku safni Haraldar Sigurðssonar prófessors, sem hefur stundað eld�allarannsóknir í y�r �örutíu ár um allan heim.

Eitt af verkefnum Eld�allasafns er �árö un til að vinna að uppsetningu tveggja jarðskjálftamæla á Snæfellsnesi, undir rótum Ljósu�alla og Snæfellsjökuls.

Eld�allasafn - Aðalgötu 8 - 340 Stykkishólmur.Sími 433 8154 - safn@eld�allasafn.is